Vísir - 21.05.1942, Blaðsíða 2

Vísir - 21.05.1942, Blaðsíða 2
VlSIR Endurbætur á götu- hreinsun 1 bænum. Tillögur heilbrigðisfulltrúans. Ágúst Jósefsson heilbrigðisfulltrúi hefir sent heilbrigðisnefnd Reykjavíkurbæjar tillögur um endurbætur við götuhreinsun hér í bæ, þar eð í ýmsu skortir á, að þrifnaður gatna og torga í bænum sé í ákjósanlegu lagi. Tíðindamaður Vísis náði snögg-vast tali af Ágústi Jósefssyni heilbrigðisfulltrúa í gær og birtist hér í aðalatriðum greinargerð hans og tillögur. DAG BLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugason Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Símar 16 60 (5 linur). Verð kr. 3,0* á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Verra gat það verið. gERMANN J(ÓNASSON valdi óneitanlega heppilegan tíma til þess að undirbúa sókn vinstra arms Framsóknarflokksins á hendur Jónasi Jónssyni. Kosn- ingar standa fyrir dyrum, þar sem Framsóknarflokkurinn verður að taka á öllu því, sem hann á til í þvi augnamiði að stöðva framgáng stjórnarskrár- málsins. Þótt þaer vonir, sem sumir Framsóknarmenn gera sér i þessu efni, geti ekkert átt skylt við það sem verða mun, þá er það nú samt svo, að Jónas Jónsson mun veigra sér við, að ráða niðurlögum Hermanns svona rétt fyrir kosningarnar, þótt út af fyrir sig sé ærin á- stæða til. Láti Jónas það hinsvegar und- ir höfuð leggjast að veita and- stæðing sínum hæfilega hirt- ingu i tíma, er það vafalaust að eftir kosningarnar verður það of seint, fari það svo að ráðstöf- un Hermanns verði ekki rift af stjórnarvöldunum. Þá stendur Hermann með pálmann í hönd- unum, hefir ekki lakari aðstöðu til blaðaútgáfu og áróðurs, en höfuðóvinurinn, og m.un þá þykjast hafa í fullu tré við hann að öðru leyti. Nú er í rauniimi úr vöndu að ráða fyrir Jónas. Honum er kunnugt um, og liefir raunar sagt frá því sjáifur, að er Sig- urður Jónasson hrökklaðist úr Framsóknarflokknum, út á gaddinn, eins og hann orðar það, beið bifreið forsætisráðherrans fyrir ptan alþingishústð, og for- sætisráðherrann ók Sigurði upp í Alþýðuprentsmiðju, til þess að koma fregninni um brottför Sig- urðar í Alþýðublaðið. Tók ráð- herrann sfðan Sigurð með sér heim, til þess að hugga hann eftir hrakningana. Þetta atferli bar vott um hugarfar Her- manns, enda hefir Jónas Jóns- son þegar dregið af þvi ýmsar ályktanir. Hitt mun hafa komið for- manni Framsóknar með öllu á óvart, að hinn fráfarandi for- sætisráðherra vilaði ekki fyrir sér að grípa til slíkra örþrifa- ráða, sem leigumálans um Gut- enberg, til þess að tryggja það, að formaðurinn gæti ekki ham- ast á honum, hafandi prent- smiðjuna Ekidu i annarri hend- inni, en fjölskyldublaðið Tím- ann i hinni. Sigurður Jónasson leitaðist við, að setja nýtt and- lit á Tímann. Það mistóksL Jón- as Jónsson vissi úr hvaða átt á- rásin kom, og honum gramdist að hitta ekki rétta manninn í fjöru, en allt varð að bíða síns tima. Þessi átök í Framsóknar- flokknum hafa verið skýrð hér í blaðinu, til þess, að almenning- ur geti gert sér ljósari grein fyr- ir þeim atburðum, sem vænta má, en ekki af hinu, að blaðið sé ekki með öllu hlutlaust í bar- áttu þessari. Þar eigast þeir ein- ir við, sem aldrei mun hirt um þótt bítist Hitt verða menn þó að viðurkenna, að það er hart fyrir Jónas Jónsson, að þoia síkt framferði af hálfu andstæð- ings síns, sem hann liefir í upp- hafi komið til frama og manna- forráða, einkum þar eð ráðstaf- anir Hermanns beinast gegn fóstri Jónasar Jónssonar — Rík- isprentsmiðjunni. Jónas var hvatamaður að kaupum rikis- ins á Gutenberg, — hann lieindi sér ennfremur fyrir rikisútgáfu skólabóka, — hann hlutaðist til um bókaútgáfu Menningarsjóðs, — og mun hafa notið beztu kjara í prentsmiðjunni, — og svo á að gera þetta allt að engu ,í höndunum á honum. Ekki nóg með það. Þessi útgáfa, sein, Jón- as Jónsson liefir stofnað til, á beinlínis að standa undir rekstri prentsmiðjunnar í framtíðinni, og stuðla þannig að árangri bar- áttu þeirrar, sem liafin verður innan Framsóknarflokksins óð- ar en líður. Það er ekki að undra, þótt formaður Framsóknarflokksins sé ekki með hýrri hrá þessa dag- ana. Hann á völina og þá um leið kvölina. Flas er að vísu ekki til fagnaðar, en að hika er sama og tapa. En verra gat það óneitanlega verið lijá Hermanni. Hann valdi réttan tíma til óhappaverk- anna. *** Leiðari þessi er ritaður áður en vitað var að dómsmálaráð- herra hefði ákveðið að rifta þess- ari síðustu samningsgjörð Her- manns Jónassonar, en svo sem morgunblöðin skýra frá hefir það nú verið ákveðið. Með því hinsvegar að hér er skýrð af- staðan innan Framsóknar á rétt- an hátt, sem almenningur hefir þó ekki gert sér fulla grein fyrir, birtist leiðarinn óbreyttur frá því, sem hann var ritaður upp- haflega. Hermann Jónasson hefir gert grein fyrir málinu, ems og það horfir við frá hans sjónarmiði, i Tímanum í dag. Birtast athuga- semdir við grein hans hér í blað- inu á laugardaginn. Söínun hafin til Nýja Stúdentagarðsins. Vísir hefir aflað sér upplýs- inga um það, hvernig gengi með söfnunina til fyrirhugaðs Stúd- entagarðs. Sneri blaðið sér í því tilefni til Lárusar Pétursson- ar, stud, jur., sem er meðlimur í Garðstjórn Nýjá Garðs og innti hann eftir fréttum um þetta mál. Tjáði hann okkur, að strax þegar byrjað var á byggingu liússins hefði verið send bréf til allra stúdenta á landinu og þeh' Jæðnir liðsinnis við þennan mál- stað. Eru þegar í stað farnar að berast peningaupphæðir frá stúdentum og eykst fjöldi send- inga dag frá degi. Er þetta Ijós vottur jiess, að stúdentar muni ekki láta undir höfuð leggjast með aðstoð við byggingu þessa Garðs, frekar en gamla Stú- dentagarðsins, en þá voru marg- ar stórar gjafir gefnar. Er nú þörf mun meiri framlaga en þá, sem orsakast af dýrtíðinni í landinu. Ekki er nokkur vafi á þvi, að stúdentar komi þessari bygginu upp fyrir haustið og sjái svo um, að ekkert-nauðsyn- legt verði til hennar sparað, svo hún megi koma til sem hag- kvæmastra nota fyrir stúdenta, sem eiga að búa þar i framtið- inni. I.0.0.FT5=1245218V2 = 9 ffl 750 gestir hafa sótt listsýningu Guðmund- ar frá Miðdal. Sjö málverk hafa selzt og ein höggmynd. Sýningin er opin daglega til ki. io á kvöldin. Hjúskapnr. Gefin voru saman í hjónaband síðastl. sunnudag Guðríður Magn- úsdóttir, kennari, og Robert Abra- ham, söngstjóri. Eg tel nauðsynlegt að nobkr- ar breytingar verði gerðar á skipulagi hreinsunarstarfsms. Sem stendur starfa við hreins- un gatna og torga 16 verkamenn með þrjá heslvagna, auk tveggja manna, sem eingöngu hafa með Iiöndum hreinsun skolpleiðslna og niðurfalla. Þeir vinna einn- ig að hreinsun skolpleiðslna og vatnssalema fyrir húseigendur i bænum, gegn greiðslu i bæj- arsjóð. Verkstjóri við þessa vinnu alla hefir einnig á hendi verkstjórn við sorphreinsun bæjarins. En ’ verkstjórn við Jjessi störf er nú orðin ofvaxin éinum manni, og verður J>að enn meir, þegar fyrirhugaðar breytingar á sorphreinsuninni komast í kring nú á næstunni og sérstaklega eftir að hitaveit- an tekur til starfa, því þá verð- ur engum úrgangi frá húsum hrent. Til þess að ráða bót á núver- andi ástandi um þrifnað gatna og torga í bænum eru tillöguir minar á ]>essa leið: 1. Að ráðinn verði sérstakur verkstjóri við sorphreinsunar- starfið því það er orðið svo um- fangsmikið, og alls vegna mjög áríðandi að það sé vel af hendi leyst. Ármenningar fara í tveimur stórum bilum austur að Selja- völlum undir Eyjafjöhum á laugardagskvöldið. Þaðan verð- ur gengið á EyjafjalIajökuL, ef veður leyfir, ef til vill farið að Skógafossi og víðar. Eerðafélag tslands efnir til farar á Snæfellsjökul, sem að undanförnu. Farið verður með Laxfoss í Borgarnes, á laugar- daginn og þaðan ekið í bifreið- um vestur Mýrar og SnæfeJls- nes vestur i Breiðuvik. Á sunnu- dag og mánudag verður gengið á Snæfellsjökul og e. t. v. á Stapa og víðar. t gær voru 40 —50 manns búnir að tilkynna þátttöku sina vestur. Farfuglar fara á laugardags- kvöld í Menntaskólaselið, það- an að Ljósafossi og um Þing- velli til Reykjavíkur á mánu- dag. 20 manns eru þegar ráðn- ir í förina, en enn er hægt að bæta nokkrum við. Þátttaka til- kynnist Hauki Bjamasyni kl. 7 —8 á kvöldin i sima 4557. Í.R.-ingar fara nokkrir í hóp á HekJu. Fjallamenn efna ekki til neinnar hópferðar — hinsvegar fara þeir á eigin spýtur viðsveg- ar á jökla og stjóm félagsins mun fara á Tindafjallajökul að athuga stæði fyrir nýjan fjalla- skála. Hafa Fjallamenn nú þeg- ar greitt skála sinn á Eyjaf jalla- jökli að fullu, og hafa keypt nokkuð af efni í fyrirhugaðan skála á Tindafjallajökli. Eru likur til að skálabyggingin verði hafin í sumar að einhverju leyti. íþróttafélag kvenna efnir til 2. Að núverandi verkstjóri við bæði þessi störf*liafi ein- göngu á hendi verkstjórn við hreinsun gatna og torga, og önnur störf, sem slíkum þrifn- aðarráðstöfunum heyra til. 3. Að bætt verði fjórum mönnum við í gatnahreinsun- ina ásamt hesti og vagni, svo að flokkarnir verði fjórir. 4. Að gerð verði sú breyting á fyrirkomulaginu við gatna- hreinsunina, að allir flokkarnir byrji daglega á hreinsun mið- bæjarins frá Lækjargötu að austan til Aðalstrætis að vestan, en að því loknu, og helzt ekkí seinna en klukkan 10 að morgni, fari tveir flokkar um götur austurbæjarins, en hinir tveir um götur vesturbaejarins. í við- lögum mætti þá líklega taka annan vesturbæjarflokkinn til hreinsunar á miðbænum síðari hluta dags, ef þurfa þætti. Ef heilbrigðisnefnd og bæj- arráð fellst á framangreindar tillögur mínar, er eg sannfærð- ur um, að mikil breyting til bóta yrði á hreinsun gatna og torga í bænum, og umkvörtun- um fækka eða falla með öllu niður. gönguferðar á Skriðu og land- svæðið úmhverfis hana. Farið verður um Þingvelli á austur- leið. Þátttakendur munu verða um 20. Skátar — þeir sömu sem voru á Langjökli um páskana — munu sennilega fara á Tinda- fjallajökul um helgina. Auk þessa munu svo einstak- lingar og smærri ófélagsbundn- ir hópar halda út úr bænum í lengri og skemmri ferðir. GuIIna hliðiS verður sýnt í kvöld kl. 8. AÍ5 þessu sinni í 64. sinn. ,Jíú er það svart, maður“. Þessi ágæta revýa, sem aö flestra dómi, er til þekkja, er sú skemmti- legasta, sem nokkuru sinni hefir verið sýnd hér, verður leikin annað kvöld (föstudag) kl. 8 e. h. Að- göngumiðar eru seldir eftir kl. 4 í dag. 3. flokks mótiS hélt áfram í gærkvöldi, og fór þann veg, að Fram vann Víldng með 4:1, en K.R. vann Val með 3: o. Úrslit mótsins fara fram ann- að kvöld kl. 8, og keppa þá Val- ur 0g Víkingur, en kl. 9.15 K.R. og Fram. Næturlæknir í nótt, er María Hallgrímsdóttir, Grundarstíg 17. Sími 4384. — Næt- urvörður í Ingólfs apóteki. Á kjörskrá. Samkvæmt upplýsingum, sem Vís- ir hefur fengið í Stjórnarráðinu eru 1292 manns á kjörskrá í Vestur- ísafjarðarsýshi, 1124 í Strandasýslu og 762 í Austur-Skaptafellssýslu. Úr öðrum kjördæmum hefir ekki frétzt um kjósendatölu ennþá. Útvarpið í kvöld. Kl. 19.25 Þingfréttir. 19.40 Lesin dagskrá næstu viku. 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarp frá Aiþingi. Sundmótið í livöld. Kl. 8.30 í kvöld hefst Sund- knattleiksmót Ish.nds í Snnd- höllinni. Verður keppt um grip, sem 1. S. í. gaf, og er gerður af Ríkarði Jónssyni listamanni. Taka fjórir flokkar þátt í þessari keppni og eru það 2 fl. frá Ármanni, 1 frá K.R. og 1 frá Ægi. Undanrásir hafa nú þegar farið fram. í kvöld keppa fyrst B-lið Ármanns og K.R. um þriðja og fjórða sæti, en A-lið Ármanris og Ægir um 1. og 2. sæti. Á undan sundknattleiknum verður keppt i 50 metra skrið- sundi og keppa þar hvorki meira né minna en 10 snjöllustu hraðsundsmenn ókkar, þar á meðal Stefán Jónsson (Á), Hörður Sigurjónsson (Æ), Rafn Sigurvdnsson (K.R.), Bdvard Færseth ,(Æ) og Magnús Krist- jánsson (Á). Þá verður keppt í 50 m. bringusundi og 100 metra skrið- sundi fyrir drengi innan 16 ára. Þetta er siðasta sundmótið í vor. Verður vonandi fjölmennt X Sundhöllinni i kvöld. IIAN DÍÐ ASKÓLINN. Frh. af bls. 1. legum greinum fyrir ung- menni, og að veita þeim, er ætla að helga sig myndlistarnámi, sem fullkomnasta kennslu i teikningu og málaralist. Skólinn starfar í þrem dag- deildum og mörgum siðdegis- og kvöldflokkum. Dagdeildir skólans eru: 1. Kennaradeildin með 7—8 stunda kennslu á dag, 7 mán. vetrar. — Kennslugreinir: trésmiði, málmsmíði, pappa- vinna og bókband, íöndur bama, dráttlist, íslenzka, skólasaga, uppeldisfræði, heilsufræði. 2. Myndlistardeildin með 5 stunda kennslu á dag, 7 mán. á ári. Kennslugreinir: teikn- ing ýmiskonar og málaralist. 3. Öryrkjadeild veitir lömuð- um og fötluðum unglingum kennslu i verklegum grein- um. Síðdegis- og kvöldnámskeið skólans. Mikill meirihluti nem- enda skólans stundar nám á 9Íð- degis- og kvöldnámskeiðum hans. Em þaT kenndar þessar greinir: Teikning bama (flokkur barna, 7-—14 ára), föndur (nám- skeið fyrir starfandi barna- kennara í Reykjavík og ná- grenni), smíðar (námskeið fyr- ir drengi 9—13 ára), heimaiðja skáta (25 skátar nutu kennslu i bókbandi), tréskurður, bók- band, alm. teikning og meðferð lita, rúmsæisteikning, augiýs- ingateikning og leðurvinna. Til þessa hefir Handiðaskól- inn verið einkaeign Lúðvigs Guðmundssonar skólastjóra. Rikissjóður hefir kostað kennsluna í kennaradeildinni, en fél. „Sjálfsbjörg“ hefir styikt kennsluna í öryrkjadeild skól- ans. Allri annarri starfsemi skólans hefir verið haldið uppi með kennslugjöldum nemenda. Þ. 9. þ. m. var sú breyting gerð á skipum skólans, að hon- um var breytt i sjálfeignarstofn- un og heitir hann framvegis Handíða- og myndlistarskólinn. Eignir stofnunarinnar eru: hús- eignin á Gnmdarstíg 2A hér í bænum, og húsbúnaður og kenrislutæki þau, er áður voru í Handíðaskólanum. Stjórn hinnar nýju stofnunar er þannig skipuð: formaður er Ingimar Jónsson skólastjóri, ritari Sigurður Thorlacius skólastjóri, en gjaldkeri Hall- dór Kjartansson forstjóri. — Hvitasunnuferðir ferðe- og íþrótta- félaga bæjarins. Ferða- og íþróttafélög bæjarins hafa í hyggju að fjölmenna út úr bænum um hvítasunnuna — og efna flest þeirra til ferða upp til fjalla og jökla. Tökum upp í dag smekklegt úrval af snyrtivörukössum og töskum i leðurumbúðum fjTÍr ferða- fólk. Munið: ferðastigvélin fást hjá okkur. Verzl. GúmmLskógerðin, Laugavegi 68. Trésmiður sem vantar íhúð, vill vinna’ við hús gegn því að fá leigða íbúð í húsinu. Tilboð, merkt: „Trésmið- : ! ur leggist inn á afgr. blaös- ins fyrir laugardag. Bamlaus hjón óska eftir stofu og eldhúsi yfir sumarið. — Tilboð, merkt: „Ábyggileg greiðsla“ sendist Vísi. s-- 1 1 -- ~ ■K ' 4 2 góðar mjólkurkýr til sölu. Uppl. í sima 3392. OfafljarDarkjðCliri um 300 fermetra, lofthæð 2,7 metrar, fasst leigður. Tilboð sendist Sigurði Thoroddsen, Austurstraeti 14, sem veitir allar upplýsingar. Reglusamur maðux óskar eftir herbeifei i góðu húsi 1. júní. Snyrtileg nnr gengni. Fy rirfram greiðela um lengri tima (ár eða meir). Uppl. í síma 1676 eða 5479. WllíDr óskar eftir stóru herbergi e6a tveim minni í miðbædjnm eða náíægt honum. Tilboð óskast sent til Jóbb Pálssonar, Laufásveg 59 fyrir 26. þ. m.:—. . Kjólatau röndótt, verulega faöeg, nýkomin. Verzhan Ingibjargar Johnson. nýkomin. Verzlun Ingibjargar Johnson. Lúðvig Guðmundsson er ráðian forstöðumaður skólans, en Kurt Zier listmálari, fyrstí kennari. t

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.