Vísir - 22.05.1942, Side 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
32. ár.
Ritstjóri I
Blaðamenn Siml:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
92. tbl.
ÞJOBVERJA ROFNAR,
Hreyfingarstyrjöld á óvíggirtum svæðum
Þjóðverjar „l&reinsa til“ á Kerch.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
ússar tilkynntu síðla í gærkveldi, að nú væri háðir „hreyfingar-bardagar“ hjá
Kharkov, því að þeir hefði brotizt í gegnum aðalvarnir Þjóðverja við borg-
ina og væri aðeins eftir að uppræta nokkra víggirta staði, sem skriðdreka-
deildirnar hefði brotizt framhjá og fótgöngu- og stórskotalið sæti nú um. Sé þetta rétt
eru bardagarnir nú komnir á nýtt stig og mikill sigur unninn fyrir Rússa.
Rússar birta einnig sigurtilkynningar frá öðrum
hluta vígstöðvanna — Kyrjálaeiðinu, þar sem þeir segj-
ast hafa rofið fremstu víggirðingabelti Finna og Þjóð-
verja og sótt fram næstum 25 km. á einum stað.
Þjóðver jar segjast hvarvetna hafa hrundið áhlaup-
um Rússa og hafi manntjón orðið mikið hjá þeim. Eru
Þjóðverjar nú að „hreinsa til“ á Kerch-tanga, þar sem
smáflokkar Rússa hafast við í hellum og gjótum í f jöll-
unum. Rússar segja, að barizt sé enn á tanganum.
Þessi breyting, sem orðið hefir á bardögunum i Ukrainu ætti
að vera Þjóðverjum í hag, þvi að það er viðurkennt, að þeir hafa
unnið mest í þessari styrjöld á því, hvað þeir hafa verið skjótari
í vöfum en andstæðingarnir. Þá veltur nefnilega einna mest á
því, að vera skjótur að færa lið og nauðsynjar til og frá, eftir
því hvar á að leita á í hvert skipti.
AÐALVARNIR
15Norðmenn
líflátnir.
Þýzka Iögreglan í Noregi hef-
ir tilkynnt líflát 15 Norðmanna.
Voru þeir allir teknir af lífi í
gær. v
Fjórtán mannanna ætluðu að
flýja til Englands og höfðu út-
vegað sér bát til fararinnar,
eldsneyti, vistir og vopn. Náðu
Þjóðverjar þeim í þann mund
er þeir voru að leggja upp í ferð-
ina. Sá fiinmtándi var dæmdur
fyrir að útvega flóttamönnum
bát til Englandsferðar s. I. liaust.
Dauðadómi tveggja -manna,
sem höfðu hjólpað við undir-
búníng fararinnar, var breytt i
ævilangt fangelsi. Loks voru
þrir menn dæmdir i 15 ára fang-
elsi og aðrir þrír i 10 ára fang-
elsi.
•J jsipöiiskeim
skipiiin sökkt
Frá herbúðum Mac Arthurs
berst sú fregn, að japönsku
beitiskipi og tveim flutninga-
skipum hafi verið sökkt.
Það var bandamanna kafbátur,
sem vann þetta í suðvesturhluta
Kyrrahafsins. Beitiskipið var af
svonefndum „Karko“-flokki, en
skipi honum eru 7100 smák, eru
vopnuð sex 8 þumlunga fall-
byssum og hafa tvær flugvélar
innanborðs. Áhöfnin er 600
manns.
Kaupskipin voru 9000 og 6000
smál. að stærð.
Skipulagning vinnu-
afls í Bretlandi.
Ernest Bevin, verkamálaráð-
herra Breta, hélt ræðu í gær og
skýrði frá því, að aldrei í sög-
unni hefði vinnuafl nokkurs rík-
is verið skipulagt betur í þágu
hernaðarþarfa en vinnuafl Breta
nú.
Af 33 milljónum karla og
kvenna á aldrinum 14—65 ára
starfa 22 milljónir í þágu hem-
aðaríns. Þá er ekki talinn sá
f jöldi, sem starfar aðeins nokk-
urn hluta sólarhringsins að
landvörnunum.
itutt ogr lagrgrott.
Allt eldsneyti hefir nú verið
flutt úr frönsku herskipunum í
Martinique, svo að ekki er liægt
að sigla þeim á brott, án þéss að
nýjar eldsneytis-birgðir verði
fluttar í þau. Þessi aðferð verður
líka höfð við kaupskipin, sem
eru þama.
•
Ameriski blaðamaðurinn
Walter Winchell, sem er einna
þekktasti blaðamaður vestan
hafs, segir eftirfarandi sögu:
„Bréfdúfa í þjónustu Þjóðverja
var send frá vigstöðvunum til
stöðva foringjans. Hún fór hægt,
því að hún hafði slæmar fregnir
að færa. Þá náði önnur bréfdúfa
henni og sagði: „Reyndu að
komast úr sporunum. Það er allt
borið til baka í hréfinu mínu!“
Rússar skýra frá því, að
skriðdrekasveitir þeirra hafi
rofið lilið á varnabelti Þjóð-
verja og á nokkurum stöðum sé
enn varizt í því, þótt þeir sé
langt að baki fremstu sveitun-
um. Var strax hafin umsát um
þessi þorp og þau jöfnuð við
jörðu, ef verjendurnir gáfust
ekki upp áður.
Þjóðverjar hafa skipt um har-
dagaaðferðir, til þess að reyna
að draga úr hinu mikla skrið-
drekatjóni, sem þeir liafa orðið
fyrir. Fyrst sendu þeir fram
stóra skara skriðdreka, en þá
voru svo margir jæirra eyðilagð-
ir, að þeir breyttu til. Senda þeir
nú fram 10—15 skriðdreka i
einu ásamt með fótgönguliði.
En Jæim tekst ekki að heldur
að stöðva framrás Rússa, sem
hefir ekkert misst af þunga
sínurn, þótt dregið hafi úr hrað-
anum.
Þá skýra Rússar frá annari
bardagaaðferð, sem þeir segja,
að Þjóðverjar hafi tekið upp til
þess að reyna að uppræta fall-
byssustæði þau, sem eru skrið-
drekum þeirra svo liættuleg. Er
sú aðferð í því fólgiii, að skrið-
drekarnir sækja fram í breiðri
fvlkingu og er ætlunin að fórna
þeim, sem eru í miðri fylking-
unni til þess að hinum gefist
tími til þess að fara á snið við
fallhyssustæðin. Rússar segja
að skytturnar séu svo fljótar að
koma „fórnardýi*unum“ fyrir
kattarnef, að hinum gefist aldrei
timi til að ljúka ætlunarverki
sínu.
Um bardagana á Kirjálaeiði
segja Rússar, að þeim liafi tek-
izt að rjúfa skarð í varnarlínu
Finna og Þjóðverja. Streymdi
fótgönguliðið í gegnum skarðið
og dreifði úr sér að haki verj-
endanna, kom þeim í opna
skjöldu. Hörfuðu Finnar úr
tveim þorpum án þess að reyna
að verjast eða eyðileggja her-
gagnabirgðir og Rússar tóku
þorpin hardagalaust. Á þessum
vígstöðvum segjast Rússar hafa
fellt 3000 andstæðinga sína.
Þjóðverjar tilkynna, að þeir
liafi ej7ðilagt 63 skriðdreka i
fvrradag og ein herdeild liafi
grandað samtals 110 skriðdrek-
um fná því að Rússar hyrjuðu
sóknina. Einn liðsforingi er
sagður hafa eyðilagt 27 skrið-
dreka með fallbyssu sinni.
New York-fregnir lierma, að
vænta megi stórviðburða frá
vígstöðvunum lijá Murmansk
innan skamms, því að þar sé
komin hreyfing á Rússa.
Amerískir fréttaritarar i
Rússlandi síma, að það sé farið
að draga úr styrkleika gagn-
álilaupa Þjóðverja í grennd við
Kharkov. Telja þeir það stafa
af því, að Þjóðverjar hafi ekki
i öndverðu gert sér ljóst, hvað
Rússar gætu raunverulega, far-
ið ósparlega með mannafla sinn
og þurfi því að bíða eftir liðs-
auka nú.
Sömu fréttaritarar sima, að
23. brynvarða herdeildin þýzka
liafi verið upprætt við Kharkov
og sú 3. fengið slæma útreið.
Engar fréttir eru af sókn
Þjóðverja á Isyum — Barven- i
kovasvæðinu, aðrar en að Þjóð- j
verja tefli þar fram a. m. k.
400—500 nýjum skriðdrekum.
Skip með
gasvélum.
Þýzka útvarpið skýrir frá nýj-
ung í skipasmíðum, sem reynd
verður næstu vikur til fullnustu,
og mun hafa gefið góðar vonir
á tilraunastiginu.
Nýjung þessi er sú, að smíðað
hefir verið skip, og eru vélar
þess reknar með kolagasi. Er
skipið — 3000 smálestir að
stærð — smíðað í Danmörku,
og var þvi hleypt af stokkunum
fyrri hluta vikunnar.
Þess er ekki getið, livar vél-
arnar sé smiðaðar, en ekki er
ólíklegt að þær sé af þýzkum,
uppruna, því að Þjóðverjar
leggja mesta kapp á smíði
hreyfla er nota kola- eða viðar-
gas. Hafa þeir t. d. breytt mörg-
uin bilum svo að þeir fá nú kola-
mola eða viðarbút í stað benz-
íns.
Karl Rúmenakonung-
ur óvelkominn í U.S.
Karl fyrrum Rúmenakonung-
ur hefir gert margar árangurs-
lausar tiiraunir, síðan hann flýði
land sitt, til þess að fá lcyfi til
að setjasl að í Bandaríkjunum,
en Suroner Welles, aðstoðarut-
anríkismálaráðherra, hefir nú
tekið af skarið í því efni.
Ætlun Karls — sem nú er
uppgjafakóngur í annað sinn —
með þvi að fá landvistarlevfi í
Bandarikjunum, er að stofna
þar hreví nigu til að komast í I á
sæti Rúmeníu í þriðja sinn. Fn
í Bandarikj ínum er þegar til
lireyfing „frjálsra Rúmena“,
sem liafa ekki látið í ljós sér-
staka löngun til að fá Karl i sinn
.'iij' og stofnun aimarrar slikr.tr
hreyfingar mundi vera mjög ó-
þægileg fyrir rikisstjórnina.
Sumner Welles tjáði blaða-
mönnum þetta, en tilefnið var
það, að Iíarl hafði látið það í ljós
við blaðamenn i Mexíkó, þar
sem hann hýr nú, að ýntsir á-
hrifamenn i Bandaríkjunum
vildu fá hann þangað.
Annað atriði hefir líka mikið
að segja í þessu efni og það er,
að Rússar eru mjög andvígir
Karli og Bandaríkjastjórp vill
ekki gera þeiin neitt á móti
skapi.
Foringi „frjálsra Rúmena“ er
Charles Davila, fyrrum sendi-
herra Rúmeníu í Wasliington.
Sagði Davila af sér, rétt áður en
Karl flýði land.
Amerisku
orastDSkipi
sðkkt-
ítölsk tilkynning.
ítalska útvarpið gaf út
skynditilkynningu þess efnis,
að ítalskur kafbátur hefði
sökkt á Atlantshafi amerísku
orustuskip af Maryland-gerð,
32.000 tonna stóru og 1400
manna áhöfn.
Kafbáturinn sendi mörg
tundurskeyti samtímis, og
bar árásina svo brátt að, að
orustuskipið kom engum
vörnum fyrir sig, en kafbát-
urinn komst óhindrað á
brott. Líkur voru taldar til að
orustuskipið hefði verið á
leið annaðhvort til Góðra-
vonarhöfða eða Miðjarðar-
hafs. v
Þýzka herstjórnin gaf einn-
ig út auka-herstjórnartil-
kynningu um að þýzkir kaf-
bátar hefðu nýlega sökkt að-
allega í Karabiskahafinu og
Mexicó-flóa 23 skipum frá ó-
vinunum með samtals 125.000
smálesta burðarmagni.
Styrjöldinni lokiö ^
innan 60 daga ■
Emil Ludwig, hinn landflótta
þýzki rithöfundur, sem dvelur
nú í Bandaríkjunum, hefir spáð
því, að styrjöldin verði á enda
innan 60 daga.
Snæfellsnes,
i Ferðafélagið efnir nú um há-
tíðina til farar vestur á Snæfells-
nes, og i þetta sinn verður farið
um Borgarnes, í stað þess að fara
beint yfir Faxaflóa á skipi, eins
og oft hefir verið áður. En þeim
er það hagræði, sem heldur vilja
fara á landi en sjó, að fara
skemmri sjóleiðina, auk þess,
sem það gerir ferðalagið miklu
fjölbreytilegra.
, JAKOB MÖLLER
fj<ármálaráðherra talaði af liálfu
Sjálfstæðisflokksins, í fyrri
ræðutíma hans, í útvarpsum-
ræðunum í gærkveldi. Munu
allir, sem á hlýddu ljúka upp
einum munni um, að ræða hans
hafi sfíingið mjög í stúf við hinn
ofsafengna málflutning Fram-
sóknarmanna, enda er hún ein-
hver rökfastasta þingræða, sem
um stjórnarskrármálið hefir
verið flutt. Vísir birtir ræðu
fjármálaráðherrans i heild í
aukablaðinu- í dag.
þessari ferð gefst mönnum kost-
ur á að sjá að nokkru hið ein-
kennilega landslag Mýranna,
Mýrafjöllin, Ilítardalsfjöll og
Hnappadalsfjöll. Sunnanlands á
Snæfellsnesi eru sveitir grasi
vaxnar, f jöllin há og sérkennileg
víða, Ljósufjöll, Elliðahamar o.
fl., en vegurirín liggur miðsveit-
is vestur þessi héruð. En þegar
vestur undir Jökul kemur, tekur
við Búðahraun og mjög fáséð
landslag eftir það með sjónum
öllum, fyrst á Búðum, þar sem,
sjávarósarnir falla inn í hraun-
gjár og grasi gróna livamma,
en fjallasýn fögur og mikil við-
sýni. En er kemur í Breiðavík,
er Arnarstapi og Hellnar, sævar-
berg furðuleg og drangar, þar
sem Lón-dranga sjálfa ber yfir
allt. En yfir í norðri gnæfir jök-
ullinn, og freistar þeirra upp að
ganga, sem, fjöllin og, jöklana
vilja klífa. Þessi för er skjótfar-
in og auðveld, eftir því sem hver
vill gera sér hana, en margt ný-
stárlegt að sjá .í þessu landi, sem
er. hvorttveggja í senn: nærri
Revkjavík, en þó fjarri Reyk-
vikingufn. .
í dag er „skipasmiðadagur“
Bandaríkjanna, og var ætlunin
að hleypa 30 skipum af stokk-
unum i 19 skipasmiðastöðvum.
Það verður ekki hægt — því að
3 eru þegar komin á flot og
Fjöllin á Snæfellsnesi hlasa
við Reykvikingum hvern heið-
an dag og Snæfellsjökull er hinn
tigni vinur þeirra Reykvikinga,
sem sjá kunna fegurð hans. í
byrjað áð smíða önnur í stað
þeirra.
Reykur gýs úr þýzku flug-
vélinni, sem er að steypast
til jarðar, eftir að rússneska
flugvélin, er sést til vinstri,
hefir hæft hana. Myndin er
tekin úr rússneskri sprengju-
flugvél, og sést i annað hlið-
arstýri hennar. Rússneska
steppón er fyrir neðan.