Vísir - 01.06.1942, Síða 1
• -A •
Ritstjóri:
Kristján Guðiaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjórl
Blaðamenn Sírni:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S llnur
Afgreiðsla
32. ár.
Reykjavík, mánudaginn 1. júní 1942.
99. tbl.
Haldið inn í Libyu.
& v.\ í
Þessi mynd sýnir, er indversk Brenbyssuvagnasveit ekur inn
í Libyu um s. 1. áramót. Indverjar gátu sér mikinn orðstír
i þeirri sókn og undanhaldinu eftir hana.
Þjóðverjar hafa ekki komizt til sjávar.
Skriðdrekaorustan mikla í Marmarica-héraði í Libyu
hefir nú bráðlega staðið í sex sólarhringa, án þess að
lát hafi orðið á. Spá blaðamenn því, að hún hljóti að
fara að taka enda, þar eð hvorki kraftar hermannannna né
vélarnar muni geta þolað öllu lengri áreynslu án hvíldar. Aðal-
orustan er sem fyrr suður af Tobruk, sem Þjóðverjar munu
hafa ætlað að taka.
Brezka herstjórnin tilkynn- j
ir, að orustan hafi harðnað í |.
sífellu í gær og náð hámarki
sínu með því, að Þjóðverjar
tefldu fram síðustu sveitum
Afrílcuhersins. Er það álit
flestra, að orustan hljóti að
enda í dag og á morgun, því
að þreytan liljóti að fara að
segja til sín.
Bretar segjast hafa eyðilagt
um 800 hernaðartæki af ýms-
um gerðum fyrir Itölum og
Þjóðverjum, bæði með stór-
skotahríð og loftárásum. Þjóð-
verjar þurfa að flytja birgðir
sinar langar leiðir, og halda
Bretar uppi hörðum árásum á
flutningalestirnar. Má sjá mik-
ilvægi þessara flutninga af þvi,
að Bretar láta sprengjuflug-
vélar sínar gera árásirnar án
þess að hirða um orustuflug-
vélar ítala og Þjóðverja, sem
sveima yfir flutningabilunum.
Þjóðverjar og Italir gera lika
miklar loftárásir á birgðastöðv-
ar Breta, flutningalestir og, þá
staði, þar sem liði er safnað
saman. Segjast þeir skjóta nið-
ur að jafnaði 10 brezkar flug-
vélar á.dag, en á tveim dög-
um grönduðu þeir 33 samtals.
Italska herstjórnin gaf nokk-
urt yfirlit um bardagana í gær.
Segir hún, að Brétar hafi misst
345 skriðdreka, 21 brynvarð-
an bil, 53 fallhyssur og 200
vörubíla. Auk þess segja þeir
að 2000 hermenn Breta hafi
verið teknir til fanga.
Fréttaritari U.P. í Kairo sím-
a í nótt, að orustan virðist vera
að snúast Bretum i hag, og sé
það ekki sízt þvi að þakka,
hversu erfiðir aðflutningarnir
sé fyrir Þjóðverja.
Seinustu fregnir frá Libyu
herma, að Þjóðverjar liafi bætt
aðstöðu sina, þar sem þeir liafa
rutt sér braut á tveim stöðum
gegnum jarðsprengj usvæði
bandamanna.
Skipasmíðar ÍU.S.
Amerískir blaðamenn hafa
nýlokið víðtækri kynningarferð
um hergagnasmiðjuf- og lauk
ferðinni með heimsókn í skipa-
smíðastöð þar sem kafbátar eru
byggðir.
Árið 1940 störfuðu 2500 menn
i þessari skipasmíðastöð, en riú
eru þeir 9000 og 1 árslok eiga
starfsmennirnir að vera 140000.
L^wis Luckenback, skipa-
smiðahöldur í Bandarikjunum,
befir nýlokið ferð til allra skipa-
smíðastöðva í landinu og spáð
þvi, að i haust mirni þrem skiþ-
um yerða hleypt af stokkunum
dag hvern.
ICiíml. 1300 brezkar
r-Sftm
flngvélar yfir
Þýxkalandi.
3000 smál. sprengna varpað á Köln
/ : :
Árásin stóð aðeins i 90 mínútur.
EINKASKEYTI frá United Press. London 1 morgun.
UM 1300 flugyélar af ýmsum gerðum voru yfir Þýzkalandi aðfaranótt sunnu-
dagsins og yfir þúsund þeirra vor< yfir einni og sömu borg, Köln við Rín.
Hefir aldrei verið gerð eins æg'iley; loftárás á einn stað og halda Bretar þvi
fram, að þeir hafi sent á stað helmingi fleiri flugvélar en Þ jóðverjar sendu nokkuru
sinni til Bretlands, með f jórföldu burðarmagni.
Árásin stóð aðeins í hálfa aðra klukkustund — 90 mínútur
— en á þeim stutta tíma var 3000 smál. sprengja varpað yfir
iðjuver í borginni. I>að samsvarar þvi, að rúmléga 33 smálest-
um liafi verið demht niður á liverri mínútu — hálfri smálest
á sekúndu hverri.
Þjóðverjar skýra frá því, að mikið tjón hafi orðið i mið-
hluta borgarinnar og flugmenn Breta hafi m. a. eyðilagt 3 kirkj-
ur og 2 sjúkrahús. Lofa þeir því, að hefndir skuli koma fyrir
árásina og þær ekki smáar.
Þegar flugmennirnir fengu 1
skipanir sínar, kl. 6 á laugar-
dagskveldið, var lesið upp fyr-
ir þeim ávarp frá Harris, yfir-
manni sprengjuflugvélanna,
en þegar árásin var á enda,
fékk Harris heillaóskir frá
Winston S. Churchill, forsætis-
ráðherra. Sagði Churchill, að
þetta væri aðeins uphaf þess,
sem fjöldi þýzkrá borga mundi
fá að kvngast, er fram liðu
stundir.
í árásinni tóku þátt stærstu
sprengjuflugvélar Breta, Hali-
fax, Lancaster, Manchester og
Stirling, en þær stærstu þeirra
gela borið allt að 8 smál. af
sprengjum.
Á 6 jsekiindna
fresti.
n lcrafðist geysilega
mikils undirbúnings og skipu-
lagningar, þar sém ætlazt var
til að hún stæði aðcins í 90 min.,
eri það táknar, að ein flugvél
hafi farið yfir borgina á hverj-
um 6 sekúndum. Baldwin, vara-
flugmarskálkur, sá að miklu
deyti um undirbúninginn og
fór sjálfur með, til þess að sjá
hvernig tækist.
En meðan þessi hundruð
sprengjuflugvéla voru yfir
Köln, fóru um 250 tvíhreyfla-
flugvélar til árása á flugvelli
í námunda við Ivöln, til þess
að villa varnaflugvélunum sýn
og lokka þær til bardaga, svo
að sprengjuflugvélarnar yfir
Köln hefði betri frið lil að varpa
sprengjum sínum þar, sem
þær áttu að lenda.
I»j«ðver|ar
reiðir.
Þjóðverjar eru mjög reiðir
vegna árásarinnar og hóta
mildum liefndum. Voru fjörir
Kölnarbúar látnir lýsa árásinni
í útvarpið í gær. Umhverfis
borgina kveiktu Þjóðverjar
niikil bál, 'til þess að reyna að
villa flugmönnunum sýn, en
eldarnir í borginni sjálfri voru
svo miklu stærri, að flugmenn-
irnir létu ekki blekkjast.
Árásin hefir þegar haft þær
afleiðingai', að allt loftvarna-
lið i Þýzkalandi liefir verið
sett undir stjórn lögreglunnar.
Otrulegfir eklar.
Meðal flugmannanna voru
margir, sem höfðu tekið þátt
í árásunum á Lúbeck og Ro-
stoek. Þeir sögðu, að eldarn-
ir í Köln hefðu verið miklu
ægilegri og stórfenglegri. Einn
sagði: — Eldar voru um alla
borgina, og sumir svo stórir,
að maður átti bágt með að trúa
því, að þeir voru raunveruleg-
ir. Annar sagði: — Bjarminn
af eldunum og tunglskinið lýstu
svo vel, að eg gat þekkt af
hvaða gerð hver flugvél var,
sem eg sá.
Bretar misstu 44 flugvélar i
þessum leiðangri, en Þjóðverj-
ar tilkynntu i fyrstu, að þeir
hefði grandað 37.
Bandarikjamenn taka það
fram, að engar flugvélar þeirra
liafi tekið þátt í þessari árás,
en búast megi við því, að þær
starfi með Bretum að þessu
í frmntiðinni.
Hef 5i dará rá§
á Cantcrbury.
Laust fyrir hádegi yar til-
kynnt í London, að 50 þýzkar
sprengjuflugvélar Jiefðu gert
árás á Canterbury í nótt. Mikið
tjón varð. Þjóðvcrjar reyndu að
liæfa dómkirkjuna, en Bretav
segjast ekki ætla að gefa Þjóð-
verjum neinar upplýsingar um
hvort það hafi tekizt.
Skipatjonið.
Þjóðverjar gáfu út aukatil-
kynningu um sjóhernaðinn í
gær — um að þýzkir kafbátar
hef'ði sökkt 22 skipum við
Ameríku, samtals 106,800
smál.
Þá hafa kafbátar einir, til-
kýnna Þjóðverjar, sökkt í mai
140 skipum, seintals 767.400
smál. að stærð. !
Á laugardag tilkynnti. flota-
málaráðuneytið í Washington,
að- þrem skipum hefði verið
sökkt við Ameríku. Siðan um
miðjan janúar hefir 239 banda-
mannaskipum. verið sökkt þar
vestra.
Fréttaritari U. P. i Rio de
Janeiro sírnar, að brazilskt þ,er-
skip liafi tekið finnnskt skip,
sem var grunað um að færa
kafbátum birgðir.
Undanfarna 5 mánuði hefir
framleiðslan á flugvélabenzini
í Bandaríkjunum fimmfaldazt.
Japanir nota gas.
Náðu Kinhwa með því einu móti.
JAPANIR hafa nú beitt eiturgasi í annað sinn
gegn Kínverjum — í orustunni um KinKwa,
höfuðborg Chekiang-fylkis. Tókst þeim ekki
að hrekja Kinverja á brotl fyrr en þeir beittu gasinu,
því að Kínverja hafa fæstir gasgrímur.
Japanir höfðu hrakið Kínverja úr borginni, en þeir
gerðu gagnálilaup með svo góðum árangri, að Japanir
urðu að hörfa þaðan aftur. Gaf japanski hershöfðing-
inn þá skipun um að beita gasinu. Japanir hafa líka
tekið borgina Lanchi, vestur af Kinhwa, með gasi. Kín-
v.erjar *egjast hafa fellt 20.000 menn fyrir Japönum í
þessum bardögum.
í fyrra ski])tið notuðu Japanir gas til að ná Icliang,
við Yangtze-fljót, um 500 km.’ frá Chungking. Vörðust
Kínverjar svo vel þar, að Japanir sáu fram á það, að
þeir mundu hiða ósigur og til að rétta hlut sinn heittu
þeir gasinu. .
Kínverjar sitja um borgina Anking í Anhweifylki, á
norðurbakka Yangtze-fljóts.
Kaíbáta-
árás á
Sydney.
Þremur kafbátum
sökkt.
Frá Ástralíu berst sú fregn i
norgun, að japörisk kafbáta-
deild hafi gert tilraun til árása
á hafnarborgina Sydney í
Ástralíu. í fyrstu fregnum af
árásinni sagði aðeins, að þrem
litlum kafbátum hefði verið
sökkt fyrir Japönum. Eirium
kafbátanna var sökkt með
stórskotahríð, en hinum
tveim með djúpsprengjum.
Árásiri mistókst algerlega,
því að aðeins eitt skip laskað-
ist af völdum Japana og það
hafði ekkert hernaðarlegt
gildi.
Jafnvægi hjá
Kharkov.
Finnar og styrjöldin.
Rússar tilkynna, að jafnvægi
sé nú komið á vígstöðvamar hjá
Kharkov og verði árásir Þjóð-
verja æ aflminni.
Annarsstaðar segja Rússar að
engin markverð tíðindi liafi átt
sér stað. Á Svartahafi hafa
Rússar sökkt 80(X) sjnál. kaup-
fari fyrfr Þjóðverjum..
Hernaðartilkynning Þjóð-
verja skýrir frá þvj, .að stað-
bundnar árásir þeirra liafi bor-
ið góðan árangur og hafi þeir
bætt aðstöðu sína.. Á einum
stað segjast Þjóðyerjar hafa
tekið 4000 fanga, 21 fallbyssu
og 79 sprengjuvörpur.
Sænski fiokkuripn í Finn-
landi liefir lialdið ársþing sitl í
Ilelsinki og samþykkt að Finn-
ar verði að berjast til sigurs
gegn Rússum. Jafnframt ákvað
flokkurinn að senda Manner-
heim, marskálki, lieillaóskir á
fimmtudaginn, en þá verður
hann 75 ára.
Kr. 1.598.720
gjaldendur í
firði.
á 1106
Hafnar-
Niðurjöfnun útsvara er nú
lokið í Hafnarfirði og var júfn-
að niður samtals 1.598.720 kr.
á 1106 gjaldendur. í fyrra var
jafnað niður 926.000 kr. á 837
gjáldendur.
Þessir eru hæstu gjaldendur
útsvara i ár, (þeir, sem greiða
10 þiis. gr. og yfir):
Bæjaréitgerð Hafnarfjarðar
340 þús., Eiriar Þorgilsson &
Co. li.f. 86 þús., Júpiter h.f. 83
J þús., Venus h.f. 81 þús., Sviði
li.f. 73.700, Hrafna-FIóki h.f. 73
þús., Mai’z li.f. 73 þús., Vifill h.f.
72.500, Jökuli h.f. 64.460, Bein-
teinn Bjarnason 18 þús., Geir
Zoéga .13.800, Sigúrjón Einars-
son skipstj. 12.780, Verzl. Ein-
ars Þórgilssonar 12 þús., Ing-
ólfiiU- Flygeiiring 11.635, Raf-
tækja\verzluniri 10.500, Foss h.f.
10 þús.