Vísir - 01.06.1942, Qupperneq 2
VÍSIF?
DAG BLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
' :i! '' ■
Sitstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstraeti)
Símttr 1660 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuðí.
Lttusasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Út úr þokunni
EIR, sem farið liafa um
fjallvegi í þoku, þekkja
það vel, hversu skynvillurnar
geta bakað mönnum margvís-
lega hrellingar, jafnvel þótt vel
megi héíta ratljóst Steinvölur
sýnast björg, samferðamenn-
irnir tröll, þótt þeir standi langt
neðan við meðalmehnisku í
björtu. Ónot og óhugnan gríp-
ur rhehti og málleysingjá i
slíkuiri' ferðum, — tarigáóstyrk-
urinri gérir alla afvegi áúð-
veldári tií farar og allar vill-
ur eðlilégar.
I>Ví hefir verið svo farið á
undanförnum aldárfjóðungi,
að einn stjórnmálaflökkur hér
i laridi —- Framsóknarflokkur-
inn — hefir virzt í sföðugri
öræfaferð og ömurlegri þoku.
Flokkur þessi hefir að veru-
legu leyti róðið áttunum, sem
í hefir verið haldið af þjóð-
inni allri, — hann hefir haft
völdin til að knýja hana út á
afvegi og í ógöngur, án þess
að vérulegum vörnum yrði við
komið. Hvort haldið var til
hægri eða vinstri skipti ekki
máli, — stefnuleysið, krókarn-
ir og áttavillan, var hið æski-
legasta, og bezt var ef almenn-
ingur væri svo villtur í rásinni,
að hann greindi ekki hvort
vatn rynni upp á móti eða nið-
ur i móti, sem þó er talin
þrautaúrræðið fyrir villta
menn, til að finna leið til sjáv-
ar og mannabyggða.
Nú er farið áð rofa til i þok-
unni og þjóðin á góðum vegi
með að losria úr þessum trölla-
höndum. Það er orðið ratljóst
og menn teknir að 'átta 'sig á
stefnunni. Það er því úr þessu
þýðingarlítið fyrir Frámsókn-
arflokkinn að lióta því, að ef
ekki verði staðið í stað þar, sem
þokan er, þá skuli hann halda
til vinstri, lengra inn á öræf-
in og hærra upp i þokuna, með
því að fáir munu hverfa að
þeirri villu. Ofurmennin, sem
sagðir voru stórir, og sýndust
miklir fyrirferðar i þokunni,
eru það ekki lengur, er greina
má án verulegra skynvilla gerð
þeirra og sköpulag. Onotin og
óhugnanin hverfur og þokunni
léttir og einskis kvíða gætir
hvað biða muni i byggðinni.
Menn vita, hvað þar er og tröll
hafi hiria, sem í þokunni vilja
vera, — jafnvel þótt það væri
öll vinstri hersingin að við-
bættri Framsókn.
Það er stefnuleysi og hrakn-
ingum, sem horfið er frá, en
af sliku hafa menn fengið
meira en nóg. Þótt Frariisókn
hóti vinstri stefnu, skelfir það
engan, með því að hér eftir á
það að vera þjóðin, sem stefn-
unni ræður. Jafnvel þótt svo ó-
líklega • kunni að ! farav 1 að(
vinstri flokkarnir geti enn um
skeið leikið að nokkrri' laris-
um hala, er það ekki verra, en
það, sem nú er og væritá má
á hvérri stundu. Krókurinn
beygisf áð þvi, sem verða vill,
en í engu'spillir það, að al-
þjóð sé gert Ijóst með skýrurii
og ótviræðum yfirlýsingum,
hvers vænta má af hátfu Fram-
sóknár, vérði hún nokkurs rim
komin að' kosningum áfstöðn-
um, einkum þegar slikar yfir-
lýsingar eru birtar annan I
hvern dag, af hægri öflum ;
flokksins. Hvað þá um vinstri
öflin?
Sýnt er það þegar, að út um
byggðir landsins vekur kjör-
dæmamálið engan beyg. Menn
Iíta svo á, að breytingar á
kjördæmaskipan og kosninga-
lögum séu eðlilegar. Hér sé
haldið í rétta átt, — út úr þok-
unni og villunum, og það sé •
fyrir mestu.
Valur vann
II. fl. mótið.
Valur hefir unnið II. flokks
mótið í knattspyfnu. Til úrslita
var keppt í gærkveldi milli K.
R. og Vals og bar Valur sigur úr
býtum með 2 : 0.
Það er athyglisvert, að Valur
hefir unnið öll félögin með
sama markafjölda, þ. e. 2 : 0.
í gærkveldi kepptu einnig
Fram og Víkingur, og lauk þeim
ieik með sigri Fram með 2:1.
Röð félaganna að mótinu
loknu er sem hér segir: Valur
með 6 stig, K. R. með 4 stig,
Fram með 2 stig og Víkingur
með 0 stig.
Valur—Fram 3:1
Fjórði afmæliskappleikur
Í.S.t. fór fram á íþróttavellin-
um i fyrrakvöid. Háðu þar
kappleik Valur og Fram, sem
lauk með sigri Vals 3:1.
Leikurinn byrjaði með þvi,
að Fram fékk að velja mark,
og kusu þeir að leika undan
vindi. í þeim hálfleik hallaði
mjög á Val, og sýndu Fram-
arar mikla leikni, enda var lið-
ið skipað beztu mönnum í
Fram. í miðjum hálfleiknum
tókst Hauki að skora mark, en
á sjðustu mínútu gerðu Vals-
menn upphlaup, og skoraði Að-
alsteinn í Val fallegt mark. I
byrjun seinna hálfleiks skoraði
Magnús Bergsteinsson mark úr
þvögu fyrir framan mark hjá
Fram. Gekk nú á ýmsu, þang-
að til Magnúsi tókst að skora
þriðja mark Vals.
Leikur þessi var ffekar fjör-
laus, sérstaklega hjá Val. Beztu
menn í Fram voru þeir Högni,
Sæmundur og Karl, en í Val
Sigurður Ólafsson og Magnús
Bergsteinsson..
Keppninni um Vísis-gripinn
lýkur í kvöld, með keppni milli
K.R. og Fram kl. 8, og Víkings
og Vals kl. 9.15. Dómari í fyrri
leiknum verður Guðmundur
Sigurðsson, en Þráinn Sigurðs-
son i þeim seinni.
Störf Alþingis.
Vísi Iiefir borizt yfirlit yfir
störf Alþingis á síðastliðnum
vetri. 57 lög voru afgreidd á
þessu þingi og 17 þingsálykt-
unartillögur. Meðal þeirra laga,
sem afgreidd voru á þinginu,
má nefna lög um íþróttakenn-
araskóla, notkun vegabréfa
innanlands, striðsgróðaskatt
og ýmis fleiri, sem ekki verða
talin hér.
%
31 þingmannafrv. voru óút-
rædd og þar á meðal frv. til
laga um verklegt nám kandí-
data frá Háskóla íslands. Auk
þess, sem hér að framan er
talið, voru 36 þingsályktunar-
tillögur ekki útræddar.
Stádentar!
Styrkið Nýja StúdentagarðinnJ
Hjónaefni.
S.L laugardag opinberuðu trú-
bfun sína ungfrú Steinunn Þor-
þjöriiSdóttir, Framnesveg 18 og Jón
Rósmundsson verzlunarm., Lindar-
götu ig.
VISIR
, Nýi Stúdentagarðuriim:
Ntndentar gaftii
“rilRRII^rÖlJ illll.
»Sfiítlínur« safna peningfum.
Viðtal við Lárus Pétursson stud. jur.
Fréttaritari Vísis hafði tal af Lárusi Péturssyni í gær og
innti hann eftir fréttum af byggingu nýja Stúdentagarðsins.
Gaf hann þær upplýsingar, að nú þegar væri lokið við að
steypa grunn hússins. Stúdentar unnu að greftinum í sjálf-
boðavinnu og gáfu hana alla. Hér fer á eftir frásögn Lárusar:
t— Hvernig gengur með bygg-
inguna? Er hún komin vel á
veg?
— Henni miðar sæmilega á-
fram. Það er nú þegar lokið
við að grafa og einnig er grunn-
urinn þegar steyptur.
— Hafið þið fengið nóga
fagmenn, smiði og múrara?“
— Nei, það höfum við reynd-
ar ekki. Við höfum aðeins f jóra
smiði við mótauppslátt í grunn-
inum, en við þurfum miklu
fleiri, þegar fram í sækir. Eg
er ekki i neinum vafa um það,
að nógir gervismiðir fást, en
við getum ekki látið þá eina
nægja. Við vérðum að minnsta
kosti að hafa eitthvað af lærð-
um smiðum með. Alla verka-
mannavinnu munu stúdentar
vinna, og verður vonandi eng-
inn hörgull á þeim yfir sum-
arið.
— Er ákveðið, hvernig hús-
ið á að vera?
— Já, það er þegar búið að
fastákveða það. Byggingin
verður nokkuð öðruvísi en
Gamli Garður, því mest verður
lagt upp úr því, að líún rúmi
sem flesta stúdenta í herbergi.
Er áætlað, að hafa það þrjár
hæðir með litlu risi, fyrir utan
kjallara. Verða íbúðarher-
bergi á öllum hæðum, bæði
einmennings og fyrir fleiri.
Engin útskot verða á húsinu
og heldur enginn turn. Ekki
verður heldur neinn leikfimi-
salur eða matstofa, en ein setu-
stofa verður 1 húsinu. Inngang-
ur í húsið verður á norðurhlið
þess, og verður hann áþekkur
innganginum i Háskólann.
— Kostnaðurinn við bygg-
inguna, hvað er að segja um
hann?
— Hann er áætlaður að vera'
um 750 þús. kr. Gamli Garð-
ur kostaði á sínum tíma 200
þús. kr. Var mikill hluti þess
fjár fenginn með samskotum
eldri og yngri stúdenta víðs-
vegar að af landinu.
— Hvernig hafið þið hugs-
að ykkur að fá þessa upphæð?
— Við höfum 300 ^þús. kr.
frá ríkinu og 150 þús. kr. úr
sjóði Gamla Garðs, sem varið
verður til byggingarinnar, Það,
sem ávantar, verðum við að
treysta á, að stúdentar allsstað-
ar á landinu útvegi okkur með
samskotum, eins og við Gamla
Garð. Það er von, okkar nefnd-
armanna, að akademiskir borg-
arar sjái sér fært að láta eitt-
hvað fé úr hendi rakna, þvi að
öðrum kosti verður erfiðar að
koma byggingunni upp.
— Hvernig hafið þið hugs-
að ykkur að haga söfnuninni?
— Eins og frá var skýrt í
blaði ykkar um daginn, höf-
um við sent bréf til allra stú-
denta á landinu og beðið þá
liðsinnis við þennan málstað.
Hefir þegar árinnist nokkuð,
en ekki nálægt því nóg til þess
að geta staðizt allari kostnað-
inn.
Þegar samskotin til Gamla
Garðs fóru fram á sínum tíma,
voru það fjölda margir, sem
gáfu heil herbergi i húsið, og
kostaði hvert þeirra þá 5000
kr. Sumir gáfu jafnvel tvö. Nú
kostar sams konar herbergi
10.000 kr., og stafar þessi verð-
munur af dýrtíðarástandinu,
sem nú er ríkjandi í landinu.
Þá er það einnig athugandi,
að peningaforráð almennings
í landinu nú eru miklum mun
meiri, en á þeim tíma, er Gamli
Garður var byggður. Óhætt er
að fullyrða, að umráð manna
yfir peningum séu svo mikil
nú, að það nemi þeim mismun,
sem er á kostnaðinum við þessa
byggingu og hinni fyrri.
Nú á næstunni munu kven-
stúdentar fara á vegum Garðs-
nefndar til þeirra manna, sem
við höfum sent bréf, og safna
saman því fé, sem þeir hafa
í hyggju að gefa.
Þá verður einnig að minnast
þess, að ýms hreppsfélög og
fyrirtæki lögðu drjúgan skerf ;
til Gamla Garðs, og væntum
við þess, að svo verði einnig nú.
— Hvenær á húsið að vera
komið upp, ef allt gengur að
óskum?
— Ætlunin er, að það verði
íbúðarfært strax i haust, svo
að stúdentar geti flutt í það,
þegar skólinn bjnjar, en verði
alveg búið um næstu áramót.
— Hver sér um bygginguna?
— Sigurður Jónsson bygg-
ingameistari liefir tekið að sér
að sjá um framkvæmd verks-
ins.
— Er nokkuð frekar um
þetta að segja?
— Ekki nema það, sem eg»
raunar hefi sagt, að eg vil biðja
stúdenta, eldri og yngri, að Ijá
okkur liðsinni sitt með pen-
ingasendingum sem allra fyrst,
til þess að húsið verði íbúðar-
hæft við byrjun næsta skóla-
árs. Hver maður hlýtur að sjá
fram á það, að það er allt ann-
að en þægilegt fyrir stúdenta,
sem stunda erfitt skólanám, að
hýrast í óvistlegum og loftlitl-
um líkkrufníngs- og geymslu-
herbergjum i Háskólakjallar-
anum, eins og þeir urðu að
sætta sig við síðastliðinn vet-
ur. Eldri stúdentar, sem áttu
þess kost að dvelja í Stúdenta-
garðinum í Kaupmannahöfn,
og þeir, sem voru á Gamla
Garði, vita það bezt hvers virði
slíkur staður er námsmönnum,
og skilja vel, hvers vegna yngrí
stúdentarnir sækja nú svo fast
að fá nýjan Garð.
Bíll eknr fram af
bryggju í Hafnarfirði.
í morgun kl. 9 '/2 ók flutninga-
bifreið út af bæjarbryggjunni í
Hafnarfirði og niður í sjóinn.
Bifreiðarstjórinn var einn i
bifreiðinni og komst hann lífs
af.
Dýpi er allmikið við bryggj-
una, eða um 16 fet um flóð.
Þegar bifreiðin ók fram af mun
sjór hafa verið um það bil hálf-
fallinn.
Fundur að
Stórólfshvoli.
Æsingatilraunir vegna k.jör-
dæmamálsins fóru út um
þúfur.
Þingmenn Rangæinga boð-
uðu til almenns fundar að Stór-
ólfshvoli i gær. Af hálfu Sjálf-
stæðisflokksins mættu þeir á
fundinum Magnús Jónsson at-
vinnumálaráðherra og Bjarni
Benediktsson borgarstjóri.
Fundurinn hófst kl. 4 síðd.
og stóð fram á kvöld. Fóru um-
ræður rólega fram, og þótt
framsóknarmenn reyndu að ala
á æsingi vegna kjördæmamáls-
ins þýddi það ekki, enda hurfu
þeir skjótlega frá því og að
afurðasölumálunum, sem þeir
töldu heppilegri til áróðurs.
Sjálfstæðismenn fengu góð-
ar úndirtektir á fundinum, en
auk hinna tveggja ofangreindu
talaði af þeirra hálfu Ingólfur
Jónsson á Hellu, en hann verð-
ur annar frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokksins í Rangárvalla-
sýslu, en hinn verður væntan-
lega Sigurjón bóndi í Raftholti.
Sveinbjörn Högnason lýst yf-
ir þvi, að hann myndi leita
fylgis austar á landinu, eða í
V.-Skaftafellssýslu, en í hans
stað myndi verða i framboði
af hálfu Framsóknar sýslu-
maður Rangæinga, Björn Fr.
Björnson. Lýsti sýslumaður
einnig framboði sinu.
Þetta var fundur Framsókn-
arflokksins, og hafði verið smal-
að til fundarins, enda mátti
ætla, að Framsókn væri þar i
meiri hluta, þóft Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði þar og mikið
fyigí-
76 nemendur við
Tónlistarskólann
Uppsögn' Tónlistaskólans fór
fram í gær, í Hljómskálanum,
þar sem hann hefir haft hús-
næði í vetur.
Alls stunduðu 76 nemendur
nám. Af þeim lögðu 47 stund
á píanóleik, 22 á fiðluleik, 4
cellóleik, 3 tónskáldskap og 1
orgelleik. — Allir nemendurnir
nutu tilsagnar í tónlistarsögu og
hljómfræði.
Frú Unnur Arnórsdóttir lauk
burtfararprófi í píanóleik, en
hún liefir stundað nám i skól-
anum í ‘fimm vetur.
Kennslu höfðu með höndum
Páll ísólfsson skólastjórn, Árni
Krisljánsson, Björn Ólafsson,
dr. Edelstein, dr. Urbantschi—
tsch, Karl O. Runólfsson og
Rögnvaldur Sigurjónsson.
Eins og í draumi.
Rannsóknarlögreglan hefir haft
uppi á manni einum, er brautzt á
hvítasunnunni inn í, og olli spjöll-
um á þremur sumarbústöðum við
Þingvallávatn. Var maðurinn ölóð-
ur of fermingar-portvíni og hafði
verið fleygt úr bíl undan Kárastöð-
um aðfaranótt þriðjudags, 26. maí
síðastl. Varð honum reikað niður
að Skálabrekku og svalaði,-. skapi
sínu á rúðum og húsmunum í sum-
arbústöðum, sem Ólafur R. Björns-
son, Jean Claessen, Isleifur Jóns-
son og Unnur Samúelsdóttir áttu.
Segir maðurinn, að þetta hafi borið
fyrir sig eins og í draumi.
Lán óskast
að upphæð 20 þús. kr. gegn
1. veðrétti i ágætu iðnfyrir-
tæki. Þagmælsku heitið. Til-
boð sendist Vísi hið allra
fyrsta, merkt: „K“
helzt 5 lampa. Svarað í síma
5726, milli 7 og 9 e. h.
Vaiiur
bílitjóri
(meira próf)
óskar eftir að keyra góðan
bil, helzt vörubil. — Tilboð
sendist blaðinu, merkt:
„Vanur“.
2—2J4 tonna, model 1934, til
sölu. Skipti á litlum fólksbíl
geta komið til greina. Uppl.
Skothúsvegi 7, eftir kl. 7 i
kvöld og annað kvöld.
Starfs-
stúlkii
vantar á Vífilsstaðahælið
vegna forfalla annarar. Uppl.
á skrifstofu ríkisspítalanna
og hjá yfirhjúkrunarkonunni
Sími 5611.
Stúlku
vantar strax á
Ellih júkrunarheimilið
GRUND.
Uppl. gefu yfirhjúkunar-
konan.
Harmonika
til sölu næstu daga i
KÖRFUGERÐINNL
Þvotta-
aim
vantar í þvottahús Landspít-
alans. Uppl. á skrifstofu rik-
isspítalanna og hjá þvotta-
ráðskonunni.
Chevrolet, iy2 tonns, til sölu
og sýnis hjá Gróðrárstöðirini
við Hringbraut frá kl. 8—9.
Krlstján Gnðlaogsson
Hæstaréttarlögmaður.
Skrifstofutími 10—12 og 1—6.
Hverfisgata 12. — Sími 3400.