Vísir - 01.06.1942, Side 3
VISIR
Bc&jar
íréWtr
Stúdentar!
Styrkið Nýja Stúdentagarðinn!
Pening&kassa
með 4000 krónurii var stolið að .
Alafossi aðfaranótt laugardagsins.
Málið er í rannsókn.
Næturlæknir.
Jónas Kristjánsson, Grettisg. 81.
Sími 5204. Næturvörður í Reykja-
víkur apóteki.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína I?órunn Hjálmarsdóttir, Njáls-
götu 4 og Jónas Jónasson, skósmið-
ur, Barónsstíg 18.
Barnaverndarnefnd Reykjavíkur
hefir skrifstofu. sína í sumar í
Miðbæjarbamaskólanum, herbergi
nr. 19.
Noregssöfnunin .
er samkvæmt síðustu skýrslu
Norræna félagsins komin upp í kr.
85.419.00.
ASatfundur Leikfélagsins
var haldinn síðastl. laugardag.
Gefin var skýrsla um störf félags-
ins á árinu. 78 leiksýningar voru
haldnar á árinu, auk 26 sýninga á
Nitouche, sem haldnar voru í fé-
lagi við Tónlistarfélagið. Stjómin
var endurkosin, en hana skipa: Val-
ur Gíslason formaður, Brynjólfur
Jóhannesson ritari og Hallgrímur
Bachmann féhirðir. í varastjórn
eiga sæti: Alfred Andrésson, Arn-
dís Bjömsdóttir og Emilía Borg.
Til að velja leikrit i samráði við
stjómina voru kosnir: Gestur Páls-
son og Ævar Kvaran.
Hótel Skjaldbreið.
Eigendaskipti hafa orðið á Hót-
el Skjaldbreið. Systurnar Steinunn
og Margrét Valdimarsdætur, sem
rekið hafa gistihúsið að undan-
förnu, hafa selt það hlutafélagi,
er kallast „Hlutafélagið Skjald-
breið“. Framkvæmdarstjóri og hót-
elstjóri verður Pétur Daníelsson,
sem að undanförnu hefir verið
þjónn að Hótel Borg.
Lögregluþjónum
hér í bæ hefir verið fjölgað um
18.. Hafa þeir verið á lögreglunám-
skeiði, i vetur, en hafa nú lokið
prófi, og eru 14 þeirra þegar teknir
til starfa, en hinir f jórir munu koma
einhvem næstu daga.
Hjúskapsr.
, S.l. laugardag voru gefin saman
í ■ hjónaband af lögmanni ungfrú
Sigríður Símonardóttir og Ragnar
Jónsson, fulltrúi hjá sakadómara.
Heimili þeirra er á Barónsstíg 12.
Ferðalög um helgina.
Ferðafélagið efndi til farar suður
á Keili í gær. Lagt var af stað
kl. 9 í gærmorgun og ekið að Kúa-
gerði. Þaðan var gengið upp með
hraunröndinni og upp á Keili. Síð-
an var gengið á Trölladyngju og
loks yfir Sveifluháls niður að Kleif-
arvatni. Þátttakendur voru 30. —
A sunnudaginn kemur verður farið
á Eyjafjallajökul. Gengið verður
frá Stóru Mörk. — Farfuglar fóru
á laugardagskvöldið á Kolviðarhól,
en í gær var gengið á Hengil, en
síðan siíður af ' honum og haldið
milli hrauns og hlíða niður á Kol-
viðarhól aftur. Komið var í bæinn
kl. yy2 '1 gærkvöldi. Þátttakendur
voru 12. Báðir hópamir létu vel
yfir veðri og útsýjni.
^Revýan
„Nú er það svart maður“ verð-
ur sýnd kl. 8 í kvöld og annað
kvöld. Allt uppselt í kvöld, en að-
göngumiðar að sýningunni á morg-
un verða seldir i dag milli kl. 4
—7, og á morgun eftir kl. 2.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.25 Hljómplötur: Tatara-
lög. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi:
Líf og barátta í Austurlöndum
Asíu, III (Björgúlfur Ólafsson,
læknir). 21.00 Hljómplötur: Létt
lög. 21.05 Sumarþættir (frú Soffía
Ingvarsdóttir). 21.25 Útvarps-
hljómsveitin: íslenzk alþýðulög.
Einsöngur (frú Guðrún Ágústs-
dóttir): a) Markús Kristjánsson:
1. Gott er sjúkum að sofa. 2. Bí,
bí og blaka. 3. Elsk din Næste.
b) Palmer: Svo fjær mér á vori.
c) Karl O. Runólfsson: Den far-
ende Svend. 21.50 Fréttir.
Hreinap
léreftstnskar
kaupir hæsta verði
Félaasprentsniiíjan %
Hús o§ka§t
Vil kaupa heilt eða hálft hús með nýtísku þægindum, laust
til íbúðar nú þegar eða í síðasta lagi 1. október.
IVokkrar stnlknr
óskast í
Dósaverksmiðjnna Ii.f.
Uppl. á skrifstofunni
' ' ':"'j I . , :.
Vantar
frammistöðustúlku og eldhússtúlku strax.
latstofan OCLLFO88
Flatningsmenn
vaiitar á tograra
Uppl. á §dlvallagötn 50
eftir kl. 5 í dagr
Sumarbústaður
ÉÍl SÖlll
12 km. frá Reykjavik. Hús 4,80x6,85 metrar og lóð ca. 4000
i'ermetrar. Uppl. i síma 512 4.
DANlEL ÓLAFSSON & CO. H.F.
Vantar nokkra .
lagtæka menn
Uppl. á skrifstofu Stáltunnugerðarinnar, Ægisgötu 4.
Mikil útborgun.
Ari Þorgilsson
c/o Aðalskrifstofa Landssímans. Sími 1000. Heimasími 9139.
Verzl. Guðjóns Jónssonar
Hverfisgöta 50
er ávalt birg að allskonar nauðsynjavörum. Hefiji'
fengið mikið af fóðurvörum. Blandað hænsakorn,
hænsamjpl, maísmjöl, hveitiklíð. Mikið úrval af alls-
konar hreinlætisvörum, sælgætisvörum og nýlendu-
vörum, högginn melís á kr. 1,25 pr. kg. — Gulróf-
ur, Matar- og útsæðiskartöílur ágætar. Nýan rabarbar
höfum við með dags fyrirvara. Munið, að beztu kaup
gera allir á Hverfisgötu 50.
Verzlun Guðjóns Jónssonar
Sími 3414 og 4781.
Aðalfundur
n.F. Finiiskipafélagrís flslands
verður haldinn laugardaginn 6. júní kl. 1 e. h. í Kaup-
þingssalnum í húsi félagsins. — Áðgöngumiðar og at-
kvæðaseðlar verða afhentir hluthöfum eða umboðs-
mönnum þeirra á miðvikudag 3. og fimtudag 4. júní
kl. 1—5 e. h. báða dagana.
STJÓRNIN.
Tilkynning
Það tilkynnist hér með heiðruðum viðskiftavinum
okkar, að við höfum selt húseign okkar, Hótel Sk jald-
breið, hlutafélaginu Skjaldbreið, frá 1. júni að telja..
Við þökkum innilega viðskiftin á liðnum árum og
vonumst til, að hinir nýju húsbændur verði þeirra við-
skifta og vinsemdar aðnjótandi, sem við höfum ávallt
mætt.
Virðingarfyllst. .
Steinunn Valdemarsdóttir. Margrét Valdemarsdóttir.
Samkvæmt ofpnrituðu hefir hlutafélagið Skjaldbreið
keypt Hótel Skjaldbreið og munum vér framvegis reka
þar alls konar veitingar og annan hótelrekstur, eins og
verið hefir. Vér munum af fremsta mætti kappkosta
fljóta og góða afgreiðslu og á allan liátt að reyna sem
bezt að fullnægja þörfum viðskiftavina vorra.
Virðingarfyllst.
pr. pr. Skjaldbreið h.f.
Pétur Daníelsson.
Til brúðargjafa
Keramik. — Krystall
Matax*- og kaffistell koma i vikunni.
K. Einarsson & Bjömsson
Bankastrséti ll
AtTÍnna
Duglegur og ábyggilegur maSur óskar eftir góðri atvinnu.
Tilboð sendist fyrir 5. þ. m., merkt: „!þróttamaður“.
Nendiiveina
vantar
Uppl. á skrifstoíunum Skólavörðustkg 12
Bróðir minn,
Hinrik GuðmundSBon
lést að Vífilsstaðahæli 30. mai siðastiiðinn
Fyrir hönd aðstandenda.
Axel GiiíiÖjnnndsaon .
Hér með tilkynnist, að
Elisabet Guðmundsdónir
frá Heysholti,
andaðist á Landsspitalanum þann 28. maí.
Likið verður flutt austur þann 2. þ. m., og liefst kveðju-
athöfn á Þórsgötu 8, kl. 8% fyrir hádegi þann dag.
Vandamenn.
Jarðarför litlu dóttur okkar,
Aöalheidar Margrétar
fer fram frá fríkirkjunni þriðjudaginn *2. júni, og hefst með
bæn á heimili okkar, Holtsgötu 31, kl. 3 eftir hádegi.
Jarðað verður i Fossvogskirkjugarði.
Aðalheiður Klemensdóttir. Guðm. Kr. Kristjánsson. 1
Jarðarför
Ólafar Jónsdóttur
(Þingholtsstræti 3)
fer fram þriðjudaginn 2. júni. Athöfnin hefst i Fríkiricj-
unni kl. l^ e. h.
Aðstandendur.
Okkar innilegustu þakkir til allra, er sýndu okkur samúð
og hjálp við fráfall og jarðarför
Bergs Jónssonar skipstjóra
Þóra Magnúsdóttir, börn og'tengdaböm.