Vísir - 15.06.1942, Qupperneq 2
V I S I R
VISIR
DAGBLAÐ
Ctgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 6 0 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Nýr leiðtogi.
y NDAN því er jafnan kvart-
að, að skortur sé á leiðtog-
um, sem af hreinu lijarta, liá-
leitum livptum og ósérptægnum
eldmóði hérjast fyrir réttindum
og velferð; alþjóðar. Einn slikur
er nú upp risinn á meðal vor.
Hann ljoðar frið, skírlífi og
reglusemi i opinberu lífi. Hann
boðar heiðarleik, ósérplægni og
eindrægni á vettvangi stjórn-
málanna. Hann iioðar bót á því,
sem menil á öllum öldum hafa
fundið þingræði til foráttu —
að mannavalið sé ekki nógu
gott.
★
Þessi nýi Leiðtogi, sem samið
hefir stefnuskrá „þjóðveldis-
manna“ og stendur bak við
framboðslísta þeirra, hefir þó
ekki talið lieppilegt að Láta sín
getið eða koma franx opinber-
lega. Hvort það stáfar af hæ-
versku skaí latið ósagt. En lík-
legt er, að ástæðan sé sú, að ein-
hvers óróa gæti í beinum hans
við það, að troða fram i dags-
ljósið. Ef farið væri að bera lif
hans og stjórnmálaferil saman
við þau háleitu sjónarmið, sem
koma fram í stefnuskrá hans,
þá er hætt við að margir kenndu
nokkurar velgju i munni. Marg-
ir eru þeirrar skoðunar, að til
þess þurfi „skefjalausa“ frekju
af slikum manni, að bjóða fram
kjörlista í Reykjavík. Kjósend-
ur í þessum bæ vita of vel í
livers vingarði liann hefir starf-
að um ævina.
*
Þjóðólfsmenn liafa reynt að
reisa hús sitt þar sem straum-
arnir í stjórnmálunum mætast.
Þess vegna hefir komið nokkur
rekaviður á fjörur þeirra.
Þenna við, sem hrakist hefir
frá einni strönd til annarrar,
hafa þeir nú dregið á land, þótt
mi jafnar séu stærðir og sund-
url .it gæði. Þeirra pólitíska fley
hef.r nú verið neglt saman úr
þessum rekavið.
Það er því engin furða, þótt
á lista Þjóðólfsmanna kenni
margra grasa. Af l»essum sök-
um hefir listinn fengið sérstakt
heiti og gengur nú manna á
milli undir nafninu „hristing-
urinn“. Sumir kalla hanna „út-
varpshristing“. Aðrir kalla hann
Jónasar-listann.
*
Þessi listi „Þjóðveldismanna“
er nokkuð einkennandi fjTÍr
það pólitíska ástand, sem nú
ríkir í landinu. Menn, sem orðið
hafa utan gátta í stjómmála-
flokkunum og menn, sem ó-
ánægðir eru af einhverjum á-
stæðum við sinn eigin flokk,
taka nú höndum saman til að
ná sér niðri á ástandinu. Mark-
miðið er sett hátt, en árangur-
inn er nokícuð svipaður því, þeg-
ar fjallið tók jóðsótt Þessir
menn ætla að lagfæra allt, sem
aflaga fer i islenzku stjómmála-
lifi. En stefnuskráin er sorglega
sviplaus og mennirnir, sem á
listanum eru, eru sorglega ó-
liklegir til þess að verða bjarg-
vættir þjóðfélagsins. Sá, sem er
„lieilinn“ í hreyfingunni er sorg-
lega lítið til eftirbreytni.
Þetta ætti að geta sýnt greind-
um mönnum, sem eru óánægð-
ir með sinn eigin flokk, að sam-
lök eins og „þjóðveldisflokkur-
inn“ geta aldrei bætt úr skák.
Þangað veljast flugumenn og
pólitískur flökkulýður. Lækn-
ingin liggur ekki i því, að svíkja
sinn eigin flokk, heldur í því
að koma þar fram á einn eða
annan hátt þeim umbótum, er
menn telja nauðsynlegar.
íslandsmótið:
Hermenn kveikja
í gróðri.
íkviknanir hafa að undan-
förnu orðið í gróðri í námunda
við Hafnarf jörð vegna óvarlegr-
ar meðferðar elds af völdum
setuliðsins.
Hafa tvær ikviknanir orðið
nýlega í gróðri í kapelluhraun-
inu, og í gær kviknaði í gróðri
fyrir ofan Lögberg. Sendi lög-
reglan í Hafnarfirði menn á
vettvang og lét slökkva eldinn.
Jóhann Gunnar Ólafsson, sem
gegnir bæjarfógetastörfum í
Hafnarfirði i forföllum Bergs
Jónssonar, hefir farið fram á
það við stjórn setuliðsins, að
hún hlutaðist til um það, að
gróður yrði ekki skemmdur
hvorki kjarr né annað það i
umdæminu, sem eldfimt er, og
hefir hún lofað því.
Fram sigraði
Víking með
3:0
Þriðji leikur íslandsmótsins
fór fram í gærkvöldi og var á
milli Fram og Víkings. Fór
leikur þessi á annan hátt, held-
ur en yfirleitt var búizt við, því
Fram sigraði glæsilega með
3 mörkum gegn engu.
Snemma í fyrri hálfleik settu
Framarar fyrsta markið. Litlu
seinna fengu Víkingar vita-
spyrnu á Fram, en tókst svo
illa, að Þorsteinn skaut beint á
markmanninn.
Eftir vítaspyrnuna var eins
og Víkingar hefðu hugast
látið, því Framarar voru í
stöðugri sókn og má með sanni
segja, að j>eir liafi átt allan leik-
inn. Lauk fyrri hálfleiknum
með því, að Fram hafði sett 3
mörk, en Víkingur ekkert. ÖIl
mörkin voru sett úr fallegum
skotum. Karl Torfason setti
fyrsta markið, Haukur annað og
Kristján þriðja.
Víkingar virðast hafa tapað
inildu í leikni síðan þeir kepptu
við Val, því þeir sýndu ekkert
samspil og leikur þessi var litið
annað en stór og ónákvæm
spörk.
Af þessum úrslitum má sjá,
að ekki er með nokkru móti
hægt að spá um úrslit leik-
anna, sem eftir eru á mótinu.
Næsti leikur fer fram í kveld
kl. 8.30 og verður hann á milli
Vals og Vestmannaeyinganna.
Dómari er Sighvatur Jónsson.
Hvernig skyldi sá leikur fara?
G.
Vegrlegr hátíðahöld IV.
jnní undir forptn
íþróttamanna.
Hátíðahöldin 17. júní undir forystu íþróttamanna, verða mjög
vegleg að vanda. í tilefni af afmælishátíð I. S. í. verður að
þessu sinni sú nýbreytni tekin upp, að aðgöngumiðar að mótinu
verða ekki seldir (nema að dansleikjunum), en í þess stað verða
seld merki til eflingar íþróttastarfseminni í landinu. Þarf ekki
að efa, að merki þessi verða vinsæl og mikið keypt.
Hátíðahöldin hefjast á Aust-
urvelli kl. 2 með því, að Lúðra-
sveit Reykjavílcur leikur þar
nokkur lög. Kl. 2V2 verður lagt
af stað suður á íþróttavöll og
i munu íþróttamenn ganga í í-
þróttabúningum í broddi fylk-
ingar, en ætlazt er til, að fólk
taki almennt þátt í skrúðgöng-
unni, því að þessi hátíð er ekki
nein sérhátíð íþróttamanna,
enda þótt þeir veiti henni for-
ýstu.
Við leiði Jóns Sigurðssonar
verður staðnæmst, og þar mun
verða haldin ræða, en enn er
ckki vitað, liver ræðumaðurinn
verður. Að ræðunni lokinni
verður lialdið út á íþróttavöll
og verður þar annað erindi flutt
en forseti Í.S.Í. mun setja mót-
ið. — í
Keppni fer fram í 100 m., 800
m. og 5000 m. lilaupum, auk
þess 1000 m. boðhlaupi, lang-
stökki, hástökki, kúluvarpi og
kringlukasti. Auk þessa verður
svo hæði kassaboðhlaup stúlkna
og pokahlaup pilta til skemmt-
unar, en annars verður dagskrá-
in auglýst í blöðum bæjarins á
morgun.
Kl. 10 að kvöld hefjast svo
dansleikir að Hótel Borg og i
Oddfellowhöllmni.
Merki þau, sem seld verða til
ágóða fyrir íþróttastarfsemina í
landinu, verða úr pappa með
greyptri mynd af Jóni Sigurðs-
syni og slaufa með íslenzku
fánalitunum.
180 maiins
hafa ko§ið
Eftir þeim upplýsingum, er
Vísir hefir fengið, voru 180
menn búnir að kjósa
hér í bænum á laugardag. —
Þeir, sem vita um fólk, sem
er á förum úr bænum, og hef-
ir ekki kosið, eru beðnir að
láta skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins í Varðarhúsinu vita
um það. Símanúmerið er
2339. Munið að kjósa áður en
þið farið úr bænum. Kosið er
í suðurálmu Miðbæjarskól-
ans.
x D-listinn
Haukar sigursæUr
í Hafnarfirði.
Vormót í knattspyrnu er nú
hafið í Hafnarfirði og hafa tveir
leikir farið þar fram.
S.l. laugardag var kappleik-
ur háður milli 3. fl. Hauka og
Fimleikafélags Hafnarfjarðar.
Unnu Haukar með 2:0.
í gær kepptu sömu félög i
I. flokki. Báru Haukar aftur
sigur úr býtum með 4:2. Bald-
ur Möller dæmdi leikinn.
Mótið heldur áfram annað
kvöld.
Vegaframkvæmdir byrjaðar um
land allt.
Nýir veglr, aöallega lagðlr í fjarlægarl hérnönm. Nokkrar
örýr byggðar, snmar mikil mannvirki.
Vísir átti stutt viðtal við Geir G. Zoega vegamálastjóra í
morgun og spurði hann um vegaframkvæmdir í ár, nýja vegi,
viðhald, brúargerðir o. s. frv. en um þetta leyti árs eru fram-
kvæmdir á þessu sviði vanalega hafnar víðast og búið að ákveða
framkvæmdir allar. Að þessu sinni er þó ekki hægt að segja
með vissu, sagði vegamálastjóri, um allar framkvæmdir, því að
allt er óvissara nú um efnisútvegun og mannafla en á vanaleg-
um tíma, og verður því ekki rætt um þær framkvæmdir að sinni,
sem kann að verða byrjað á seinna.
KvenféLagið Hringurinn hafði
fjársöfnunardag í gær fyrir
væntanlegan barnaspítala hér í
bænum.
Vísir hafði tal af frá Kristínu
Jacobson i morgun og innti
hana eftir fréttum um ágóða af
sölu merkja og veitinga í gær.
Sagði frúin, að mög mikil að-
sókn hefði verið að veitinga-
tjöldunum í Hljómskálagarðin-
um og að veítingar hafi staðið
yfir til kl. 12 á miðnætti í nótt.
Merkjasala var einnig mjög
mikil. Ekki er ennþá búið að fá
yfirlit yfir ágóða af sölunni.
— Vegaframkvæmdir eru nú
að byrja um land allt, sagði
vegamálastjóri. — 1 þeim hér-
uðum, þar sem mikið er um
aðrar framkvæmdir, er lítið eða
ekki unnið að því að leggja nýja
vegi, heldur lögð megináherzla
á viðhal^ vega. Stafaf þetta af
því, að erfiðara er um útvegun
verkafólks, og er því meira unn-
ið að nýjum vegum i fjarlæg-
ari héruðum, þar sem meira
framboð er á vinnu, og í þeirn
héruðum, sem hafa orðið hart
úti vegna sauðfjárkvillanna, svo
\ sem austurhluta Skagafjarðar,
Suður-Þingeyjarsýslu og Keldu-
hverfi og víðar.
í Suður-Þingeyjarsýslu verð-
ur varið um það bil 70.000 kr.
umfram það venjulega til þess
að leggja nýja vegi og i Keldu-
hverfi yfir 30.000 kr.
— Eru erfiðleikarnir mjög
miklir á að fá vegavinnumenn?
spyr tíðindamaðurinn.
— Það er víða mjög örðugt,
segir vegamálastjóri, jafnvel
svo sumstaðar, að það er mikl-
um erfiðleikum bundið að fá
næga verkamenn til þess að
vinna að viðhaldi vega, og einn-
ig er erfitt að fá bíla.
— Verður mákið um brúar-
gerðir í ár? spyr tíðindamað-
urinn.
— Það er að svo stöddu ekki
unnt að segja með vissu um all-
ar brúargerðir, sem kann að
verða ráðist í. Það veltur á því,
livort hægt er að útvega efni og
mannafla. En það er nú þegar
byrjað á að byggja tVær brýr,
sem hvor um sig eru alhnikil
mannvirki. Önnur er hrúin yfir
Köldukvísl í Mosfellssveit, sem
kemur i stað einnar elztu brú-
arinnar á landinu, en hún þolir
ekki lengur hina miklu umferð,
sem þarna er. Nýja brúin verð-
ur yfir 60 m. og tvibreið, tvær
aukabrýr o. s. frv.
Hin brúin er á Geirlandsá í
Skaptafellssýslu, nálægt Kirkju-
hæjarklaustri. Þessi brú verður
um 160 metrar á lengd.
Bílfært til Austurlands
í þessari viku.
Vegamálastjóri sagði, að það
hefði verið óvenjulega mikill
snjór á Möðrudalsheiði í vetur.
Hefir verið unnið að þvi að
undanförnu að moka veginn
yfir heiðina og mun það verk
vel á veg komið. Er von um,
að bílfært verði til Austurlands
nú í vikunni.
Ársþing í. S. í.
Ársþing í. S. í. liélt áfram á
laugardag og laiik í gærkveldi.
Helztu tillögur, sem samþvkktar
voru:
1. Stofnað verði lilutafélag
til þess að reka útgáfu Iþrótta-
blaðsins, enda sé tryggt við
stofnun félagsins, að stjórn
f. S. í. ráði meiri liluta ritnefnd-
ar og ritstjóra. Á fundinum
safnaðist allmikið í þessum til-
gangi.
2. Áskorunin til Þingvalla-
nefndar, um að láta gera leik-
vang á Þingvöllum, var sam-
þykkt.
3. Vísað var til stjórnarinnar
tillögu, sem Benedikt Waage
flutti, um stofnun íþróttaheim-
ilissjóðs. Undirhýr stjórnin
málið frekara fyrir næsta árs-
þing, en í gærkveldi stofnaði
Ben. G. Waage sjóðinn með 500
kr. framlagi frá sjálfum sér.
4. Samþykkt var tillaga um,
að sambandsstjórnin ynni í þá
átt, sem mörkuð var í tillögu
Helga S. Jónssonar og Þorsteins
Bernharðssonar, á ársþiginu
1941 og að i því sambandi yrði
tekið til rækilegrar athugunar
hugmynd Aðalsteins Sigmunds-
sonar kennara um lausn þessa
máls, en það er um íþróttalögin
og tvískipting íþróttaforystunn-
ar, eftir lögunum.
»Gleðskapur 1
Steininumcc
Mjög piikið var um ölvun á
almannafæri nú um lielgina.
Voru teknir a. m. k. 25 menn
úr umferð. Auk þess voru tekn-
ir nokkrir slagsmálaseggir, sem
höfðu lent í áflogum á götum
úti.
+
inf
Sundlaug Ungmennafélagsins
í KeflaVík var opnuð til afnota
síðastliðinn mánudag, og hafa
nú farið fram á henni allmiklar
endurbætur. Hefir hún öll verið
máluð að innan og fengin ný
sjódæla, sem gerir þaí að verk-
um, að oftar er hægt að skipta
um sjó og tekur það nú mun
minni tíma. j
Sundlaugin fékk allan ágóða
af skemmtunum sjómannadags-
ins og nam hann um 6500 kr.,
en reksturskostnaður laugar-
innar hefir nú hækkað mjög
mikið, bæði vegna hækkimar i
vinnulauna og eldsneytis. Á
sjómannadaginn barst lauginni
1000 krónur að gjöf frá kvenna- j
deild Slysavarnafélagsins i
Keflavik, og er það ætlun deild-
arinnar, að þessari gjöf verði
varið til að auka sundkennsl-
una, og hefir kvennadeildin oft
áður styrkt sundlaugina mjög
rausnarlega.
Kennari í sumar verður Jakob
Sigurðsson úr Vogum, sem er
þaulreyndur kennari og mjög
dugandi í starfi sinu.
Sundlaugin er óskabam allra
Keflvíkinga og mjög mikið sótt
bæði af ungum og gömlum.
roisKur
úr gleri, sömuleiðis 2 gler-
skápar, nokkur horð og stól-
ar til sölu og sýnis á Hverf-
isgötu 32. --
Cafe Inxi’
Gafuketill
og lýsispressur óskast til
kaups. Erum kaupendur að
notuðum síldartunnum, heil-
um og liálfum.
Uppl. í sima 3663.
Vélstióri
óskast á línuveiðara, sem fer
á síld. Uppl. í síma 3663. —•
Harpó
ryðvarnarmálning.
«•
Hjólkoppur
af Buick-bíl h.efir tapast á
leiðinni frá Smáragötu Um
Barónsstíg upp að Skiða-
skála. Finnandi vinsamlega
skili honum.
H.f. Kveldúlfur. :
NÝ SENDING.
Enskar
VIRZIUNIN^HMr
cz^/
tella
Bankastræti 3.
Bezt að anglfsa í Vísi.
2 þjónar
óska' eftir vinnu. Mætti vera
á sumarhóteli. Tilboð, merkt:
„Þjónar“, sendist afgr. Visis
fyrir sunnudagskveld.
í kvöld
kl 8.30 keppa
Valur—Vestmanneyingar
Alltaf zneira fjör!
Allir út á völl!