Vísir - 15.06.1942, Side 3
VISIR
Stmi 2339.
Látid skpifstofuna vita um það fólk, sem er farið burt úr bænum — Simi 2330'.
Kjósið hjá lögmanni í Miðbæjarbarnaskólanum. — Opið ÍO 12 f. h. og 1 - 5 e. h.
D-listi er listi Sjálfstæðisflokksins
Kappreiðar Faxa
og héraðssýningin á Ferjukotsbökkum í gær
Héraðssýning á hestum og hryssum úr Borgarf jarðarhéraði
fór fram á Ferjukotsbökkum í gær, og að sýningunni lokinni
kappreiðar Hestamannafélagsins Faxa. — Veður var hið bezta,
vindsvali fram eftir degi, en logn og blíða er á daginn leið.
Héraðssýningin byrjaði kl. 1
e. h. og hófst með ræðu, sem
Bjami Ásgeirsson alþm., for-
maður Búnaðarfélags íslands,
flotti, en Gunnar Bjarnason
ráðunáutur Búnaðarfélagsins,
lýsti verðlaunagripunum og
skýrði frá verðlaunum. — Eins
og áður er getið gáfu þ'eir Bjami
Ásgeirsson og Pétur Ottesen,
þingmenn héraðsins, tvo veg-
lega silfurbikara, til heiðurs-
verðlauna, fyrir bezta kynbóta-
hestinn og fallegustu hryssuna.
Þokki, 6 vetra, jarpur, eign
Borgarhrepps, fæddur að Hamri
í Borgarhrsppi og alinn upp hjá
Kristófer bónda þar, hlaut ann-
an bikarinn, en hinn hlaut
hryssa frá Skarði í Lundar-
reykjadal, af gömlum og góð-
um stofni frá þeim bæ.
1. verðlaun hlutu auk Þokka,
sem áður var getið, Silfri, fjog-
urra vetra frá Hvanneyri, dökk-
grár að lit. Þessi foli er fæddur
og uppalinn hér í Reykjavík og
var eign Jóns B. Jónssonar,
Efri Hlíð, til skamms tima.
Þriðju fyrstu verðlaun hlaut
Goði, jarpur, fjögurra vetra,
fæddur að Skálpastöðum iLund-
arréykjadal, og alinn upp þar.
Auk þess fengu margir hestar
og hryssur 2. og 3. verðlaun.
Þarna var saman kominn
mikill fjöldi góðra gi’ipa og
vakti sýningin mikla athygli.
Dómnefnd skipuðu Gunnar
Bjarnason ráðunautur, Runólf-
ur Sveinsson skólastjóri á
Hvanneyri, Ásgeir Jónsson,
Haugum í Stafholtstungum.
VEÐREIÐARNAR..
Kappreiðarnar byrjuðu um
kl. 4 e. h. Keppt var í 300 mtr.
hlaupi og 250 mtr. (folahlaup)
og éinnig var keppt í skeiði,
sprettfæri 250 mtr. Úrslit urðu
þessi:
Stökk. Reyndir voru 8 hest-
ar á 300 metra sprettfæri. Fjór-
ir þeirra kepptu í úrslitaspretti
og hlaut 1. verðlaun Borgfjörð,
brúnn, eign Páls Sigurðssonar
biLstjóra, Borgarnesi, sá hinn
sami, sem sigraði á Hvítasunnu-
kappreiðum Fálcs. í gær hljóp
Borgfjörð sprettinn á 23.4 sek.
Önnur verðlaun hlaut Hörður,
sem vann 350 metra lilaupið við
Elliðaár í fyrra, eign Finnboga
Einarssonar, Álfsnesi, Kjalar-
nesi. Tími 23.4 sek. — Þriðju
verðlaun hlaut Skagfjörð, eign
Páls Sigurðssonar í Borgarnesi,
en Skagfjörð hlaut önnur verð-
laun við Elliðaár á annan í
hvitasunnu. Tími 24 sek.
Folahlaup. Þar kepptu sjö
folar. Fjórir komust í úrslit.
Fyrstu verðlaun hlaut Goði,
brúnn, 5 vetra, eign Eggerts
Runólfssonar í Norðtungu. Timi
22 sek. Annar varð Léttir, grár,
frá Auðsstöðum i Hálsasveit,
Timi 22 sek. Þriðji að marki
varð Háfeti, leirljós, eign Hös-
kuldar á Hofsstöðum í Hálsa-
sveit. Tími 23.5 sek.
Skeið. Aðeins þrír hestar
kepptu og komust tveir þeirra
í úrslit, en báðir lilupu upp á
úrslitaspretti, og voru engin
verðlaun veitt fyrir skeið.
Dómnefnd skipuðu Þorvald-
ur Jónsson, bóndi í Hjarðar-
holti, Pétur Þorsteinsson, Mið-
Fossum í Andakíl og Sigurður
Gíslason lögreglumaður. Vallar-
stjóri var Ari Guðmundsson,
verkstjóri, formaður Faxa. —
Ræsir Pétur Bjarnason, Grund.
Kappreiðamar fóru í alla
staði vel fram. Skemmtu menn
sér hið bezta.
Um kvöldið og fram eftir nótt
var dans stiginn.
B œjar
fréttír
Bjarni Vilhjálmsson
hefir lokið kennaraprófi í ís-
lenzkum fræðum viS Háskólann
með i. einkunn.
Bókasala Menntaskólans
í íþöku er opin milli kl. 2—4 á
morgun (þriðjudag). Vegna mik-
illar eklu á námsbókum eru nem-
endur vinsamlega beðnir aS selja
bókasölunni allar þær bækur, sem
þeir geta veriS án.
Næturlæknir.
Theodór Skúlason, Vesturvalla-
götu 6, sími 2621. — NæturvörSur
er í Ingólfs apóteki.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík vikuna 17.—23. maí
(i svigum tölur næstu viku á und-
an) Hálsbólga 39 (67) Kvefsótt
138 (171). Blóðscótt 10 (28). Gigt-
sótt o (2). Iðrakvef 48 (161). In-
flúenza 2 (2). Hettusótt 21 (53).
Kveflungnabólga 6 (14). Taksótt
6 (12). Skarlatssótt 2 (o). Kíkhósti
103 (127). Hlaupabóla 15 (2). Um-
ferSargulá o (3). Ristill o (1).
Þrimlasótt o (1). Ristill 1 (o). —
Mannslát 7 (7). — Landlœknis-
skrifstofan.
Ferðalög um helgina.
Farfuglar fóru 15—20 í Vala-
hnúka og unnu þar að byggingu
hreiðurs um helgina. FerS FerSa-
félagsins á SkarSsheiSi féll niður
vegna ills veðurútlits og ónógrar
þátttöku.
D-Iistinn er listi Sjálfstæðisflokksins
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.25 Hljómplötur: Blóma-
lög. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Um
stofnun sjúkrasamlaga (Jón Blön-
dal hagfr.). 20.55 Hljómplötur:
21.00 Sumarþættir (Steinþór Sig-
urðsson magister). 21.20 Útvarps-
hljómsveitin: Hugleiðingar um ýms
þjóðlög. Einsöngur (Maríus Sölva- :
son): a) Pétur Sigurðsson: 1. Vor,
2. Smalastúlkan. b) Eyþór Stefáns-
son: Hjá vöggunni. c) S. K. Hall: I
Ástarsæla.
Bindindisdagurinn
verður að þessu sinni haldinn í
Reykjavík, en ekki á Þingvöllum,
eins og að undanförnu, sökum þess
að ógerlegt er nú aÖ fá bifreiðar
til þess að flytja allt fólkiS. Bind-
indisdagurinn verður 21. júní n.k.
og standa að honum Í.S.Í., U.M.F.,
I.O.G.T. og Skátar.
Frá hæstarétti:
S. 1. mánudag var kveðimi
upp dómur i hæstarétti i málinu
Ingvar Guðjónsson vegna v.s.
Gunnvarar gegn Stríðstrygg-
ingafélagi ísl. skipshafna.
Málavextir eru þeir að sam-
kvæmt lögum nr. 66, 1940
skyldu útgerðarmenn skipa
greiða að öllu leyti stríðstrygg-
ingargjald til stefnda fyrir þær
QpœGööööttttoöíSööaeíXSööíiCíXiCöcxsööööcccsocöaooœsoQœoaoo
x Öllum þeim mörgu vinum mínum, sem á einn g
| og annan hátt sýndu mér ástúð á sjötugsafmæli g
Ímínu, færi eg hjartans þakkir fyrir alla tryggð- 8
ina og góðvildina. — Guð blessi ykkur öll.
FRIÐRIK HALLGRÍMSSON. |
XSOOOOOOÖOÖÖÖÖÖÖÖOÖÖÖÖÖÖOOÖOÖOÖÖOÖÖÖÖÖÖÖÖOOÖOOQOOOOOOO
Dómnefnd í kaupgjalds-
og verðlagsmálum
hefir skrifstofur sínar fyrst um sinn í Iðnskólanum.
við Vonarstræti. Sími 5880. Viðtalstími skrifstofu-
stjóra er frá IV2 til 3 siðdegis og eru þeir sem eiga
erindi við nefndina beðnir að snúa sér til hans. —
Sími 4261.
Dómnefnd í kaupgjalds-
og verðlagsmálum
Atvinnurekendur í Reykjavík eru minntir á,
að senda hingað nú þegar skrár um starfs-
menn sína, vegna útsvarsgreiðslu nú á þessu
ári.
Allir, sem hafa fólk í þjónustu sinni og hafa
ekki f engið send eyðublöð fyrir þessar skýrsl-
ur, geta fengið þau hér á skrifstofunni.
Samkvæmt lögum bera atvinnurekendur og
kaupgreiðendur ábyrgð á greiðslu útsvara
starfsmanna sinna, og er gengið ríkt eftir að
þeim ákvæðum sé hlýtt.
Skriistofa
borga r stj ór a
Tilkyiming:
Á meðan eg er fjarverandi úr bænum, eru þeir, sem þurfa að
fá kvarz og annað púsningarefni, beðnir að snúa sér til hr. Stein-
þórs Stefánssonar múrara, Þingholtsstræti 21, Reykjavík.
HELGI HERMANN EIRÍKSSON.
skipshafnir, sem tryggja bar
samkvæmt þeim lögum. í 2. gr.
laga nr. 76 frá 1941 er þessari
aðalreglu haldið, en þó gerð sú
undantekning að rikissjóði er
gert að greiða nokkurn hluta ið-
gjalda fyrir „fiskiskip, sem ein-
göngu stunda fiskveiðar við
strendur landsins og sigla ekki
milli landa.“ Skip Ingvars,
Gunnvör, var í utanlandssigl-
ingum frá haustinu 1940 til
25. marz 1941, en fr áþeim degi
til 6. sept. s. á. er skipið við
flutninga og fiskveiðar innan-
lands. Eftir 6. september 1941
fer skipið eina ferð til Englands,
en liggur svo í höfn til 20. nóv.
Ingvar taldi, að ríkissjóður ætti,
samkv. 2. gr. 1. 761941, að greiða
hluta af hinu lögboðna trygging-
argjaldi, þann tíma, sem skipið
var ekki i utanlands siglingum,
og neitaði að greiða þann hluta
gjaldsins. Var þá krafizt lögtaks
fyrir öllu gjaldinu og urðu úr-
slit málsins þau, að hæstiréttur
leyfði framgang lögtaksins, þar
sem útgerð Gunnvarar hefði
ekki á þvi tímabili er hér skipti
múli, verið með þeim hætti, sem
segir í undantekningarákvæði 2.
gr. 1. 76, 1941, og þannig að
Ingvar gæti notið góðs af því
ákvæði.
Hrm. Stefán Jóh. Stefánsson
flutti málið af hálfu áfrýjanda,
en lirm. Tlieódór B. Líndal af
hálfu stefnda.
er flutt úr Lækjargötu 2 í Lækjargötu 16 B, uppi.
Gtaggatjaldaefai
Góliteppi
fyrirliggjandi. .
Heildverzlun Kr, Benediktssonar
(Ragnar T. Árnason).
Garðastræti 2. — Sími 5844.
Tilk^nnmg
frá Viðskiptanefnd
Með tilvísun til áður birtra auglýsinga um vörukaup
frá Ameríku, tilkynnist innflytjendum hérmeð, að
allar pantanir á vörum, sem eiga að afgreiðast fyrir
21. desember þ. á., verða að sendast til nefndarinnar
FYRIR 25. Þ. M. Eftir þann tíma verður slíkum pönt-
unum ekki sinnt fyrst um sinn.
Til viðbótar áður auglýstum vörutegundum, ann-
ast nefndin nú innkaup á vélaverbfærum.
Viðskiptanefndin
Níldaritnlknr
♦
geta fengið atvinnu i sumar á Siglufiriði.
Fríar ferðir.-
Óskar Halldorsson
Sími 2298.
Sigríður
litla dóttir okkar, andaðist 12. júní.
Solveig Hjörvar. Haraldur SamúelsBon.
Maðurinn minn,
Ólafup Bjarnason
sein andaðist þann 6. þ. m. verður jarðsunginn frá fríkirkj-
unni fimmtudaginn 18. þ. m. og liefst athöfnin á heimili
hans, Vitastig 7, ldukkan 1 eftir miðdag.
Athöfninni i fríkirkjunni verður útvarpað.
Auðbjörg Guðmundsdóttir.
Jarðarför systur okkar,
Oddnýjap Höllu Jónsdóttur
frá Álftanesi á Mýrum,
fer fram frá dómkirkjunni þriðjudaginn 16. þ. in. Athöfn-
in hefst á heimili Soffiu og Ara Thorlacius, Tjarnargötu
41, kl. 10 fyrir hádegi.
Systkinin.
Jarðarför móður okkar og tengdamóður,
Margpétar Ouðmundsdóttur
fer fram frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 16. þ. m. og hefst
með húskveðju að heimili hennar, Bergstaðastræti 60, kl.
1 eftir hádegi. —
Atliöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Börn og tengdaböm.