Vísir - 23.06.1942, Síða 2
V I S I R
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
5LAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 60 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og’ 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Útsvarsskráin.
AÐ hlakkaði í andstæðing-
um Sjálfstæðisflokksins nú
fyrir helgina, af þeiin sökum,
að þeir vissu, að von var á út-
svarsskránni þá næstu daga.
Þeir þóttust þess fullvissir, að
nú gæfist efni í'kröftugan á-
róður gegn meirihluta bæjar-
stjórnar, sem nú skipar að
þessu sinni einnig meirililuti
niðurjöfnunarnefndar. Skatt-
stjórinn í Reykjavík var áður
sjálfkjörinn í nefndina og for-
maður hennar, en á síðastliðnu
vori iiaðst hann undan þessum
starfa með þvi að verkefni
hafði hann önnur næg fyrir.
Áður en útsvarsskráin kom
út var það jafnvel látið í veðri
vaka, að Sjálfstæðismenn þyrðu
ekki að gera útsvörin heyrin
kunn, með því að ]>au hefðu
iiækkað mjög frá því, sem var
í fyrra, og myndi það ekki auka
á líkurnar fyrir kosningasigri
flokksins hér í hænum, við þær
alþingiskosningar, sem nú fara
í hönd. Vitað var það, að heild-
arfjárhæð sú, er niður var jafn-
að, var mun hærri en i fyrra,
sem og að samkvæmt núgild-
andi skattalögum er óheimilt að
leggja útsvar á þann hluta
tekna, sem umfram er 200 þús.
kr., heldur kemur þar stríðs-
gróðaskattur til greina, en af
honum fær hlutaðeigandi bæj-
ar- eða sveitarfélag 45%, en rik-
ið hinn lilutann. Þegar tekjurn-
ar eru orðnar jietta háar, er
tekjuskattur og stríðsgróða-
skattur samtals komnir upp i
90% af tekjunum, að meðtöld-
um greiddum sköttum og út-
svörum, en að því er hlutafélög
snertir, að frátöldu þvi broti af
tekjunum, sem leyf t er að leggja
i varasjóð. Þá var sú breyting
einnig leidd í lög á síðasla al-
þingi, að tekjuskattar og útsvör
eru ekki gerð frádráttarhæf
tekjum áður en skattUr er á
iagður, og hefir niðurjöfnunar-
nefndin einnig orðið að taka
þetta til greina í starfi sínu.
Leiddi af þessu, að skattskyldar
tekjur hækknðu allverulega frá
þvi, sem áður var, og ef niður-
jöfnunarnefndin hefði lagt út-
svör á í samræmi við það, hefðu
þau orðið hlutfallslega
mildu hærri en i fyrra. Niður-
jöfnunarnefndinni var þetta vel
Ijóst og tók því það ráð að
lækka útsvarsstigann verulega,
og það svo að nú eru útsvörin
hlutfallslega töluvert lægri en i
fyrra miðað við tekjur.
Gunnar Viðar hagfræðingur
hefir gert grein fyrir Iækkun
þeirri, er gerð var á útsvarsstig-
anum, og gert þar samanburð
á honum á árunum 1940—1942.
Keinur þar í Ijós, að yfirleitt
er um stórfellda lækkun að
ræða, en út í það skal ekki farí^
að sinni.
Yfirleitt má segja, að menn
sætti sig vel við útsvörin, er
þeir taka tillit til allra aðstæðna.
Þótt þau hafi hækkað nokkuð
á einstaklingum og fyrirtækjum
i ýmsum tilfellum, leiðir það
beint af því, að tekjur manna
hafa verið miklu hærri á síðasta
ári en áður, og þarf þá enginn
að kvarta, þótt hann verði að
greiða einhverja útsvarsaukn-
ingu til bæjarfélags síns frá því
sem áður var. Ef hann telur
sig hinsvegar misrétti beittan,
getur hann leitað réttar síns með
því að kæra útsvarsálagninguna
og færa fram rök sín fyrir því,
að honum beri lægra útsvar.
Augljóst er það, að jafnframt
því sem verðlag allt og kauplag
hefir á siðasta ári liækkað stór-
lega, aukast einnig þarfir bæj-
arins fyrir hækkaðar tekjur.
Þeirra tekna er ekki unnt að
afla nema með auknum álögum
í heild þótt þær aukist ekki i
sama hlutfalli og tekjur al-
mennings, þótt svo kunni að
fara að einhver lekjuafgangur
kunni að verða hjá bæjarfélag-
inu getur það ekki valdið nein-
um hörmungum né liugarkvíða
gjaldendanna. Allir vita að hér
er margt ógert, og hið óvenju-
lega ástand hefir skapað ýmsa
crfiðleika sem ráða þarf fram
úr á næstu árum. Það verður
ekki gert án fjár. Því er það
hyggilegt að safna nú í sjóði til
þess að grípa til síðar er þörf
gerist.
íslandsmótiö:
K.R. sigfraði Vai
med 4:1
í gærkvöldi hélt íslandsmótið
áfram með kappleik á milli Vals
og K.R. og lauk honum með
glæsilegum sigri K.R., 4 mörk-
um gegn einu.
Endaði leikur þessi vissulega
með nokkuð öðrii móti heldur
en búizt var við*því langt er
síðan K.R. hefir unnið Val og
var sízt búist við, að það yrði
í þessum leik. Þess ber einnig
að gæta, að leikur þessi var
livort tveggja í senn fjörugur og
prúðmannlegur og er það vel.
K.R.-ingar sýndu með þessum
leik sínum, að þeir geta leikið
með afburðum vel og hafa
mikla möguleika til þess að
verða íslandsmeistarar í ár, því
liðið ,eins og það var i gær, er
sterkt og prýðilega vel samstillt.
Aftur á móti var Valsliðið nokk-
uð losaralegra og má ef til vitl
kenna því um, að ágæta menn
vantaði í það — þó sérstaklega
í vömina.
Þó ætla eg engu að spá um
úrslitin, því undanfarnir leikir
í mótinu hafa gefið mönnum
tilefni til þess að halda, að
frammistaða félaganna sé kom-
in undir veðráttu! eða einhverju
þvílíku, og mætti ætla að mis-
munandi veðrátta hefði mis-
munandi áhrif á hin einstöku
félög. Eftir þessu ættu K.R.-ing-
ar að standa sig bezt í nokkrum
vindi og vera þá jafnvel ósigr-
andi, en Valsmenn aftur á móti
liappadrýgstir i logni. G.
Um víða veröld.
Menn geta gert sér það í hug-
arlund, að það muni vera allt
ananð en auðvelt að ferðast um
heiminn á þessum tímum, en
það eru þó til menn sem gera
það og gengur vel. Hér er eitt
dæmi.
Vísir hefir nýlega haft frétt-
ir af Gunnari Guðmundssyni
frimerkjakaupmanni, sem fór
héðan af Iandi burt fyrir nokk-
uru. Er Gunnar nýkominn til
Kaupmannahafnar og kemur
hann frá Tokio i Japan. Ekki
hefir blaðinu tekizt að afla sér
upplýsinga um það, hvemig
Gunnar hefir komizt á milli
þessara staða, en liklegt er, að
hann hafi farið yfir Siberíu og
Rússland, Litlu-Asíu, Balkan-
löndin og Þýzkaland. Gunnar er
búinn að fara um gervallan
heim og lcoma mjög víða við.
Hann var um nokkum tíma á
Hawaii. Án efa getur Gunnar
sagt frá mörgu merkilegu, er
hann kemur aftur heim til Is-
Iands.
Verkfall hjá Ríkisskip
liófst í morgun.
Hafnarverkamenn hjá Skipautgerð ríkisins komu ekki til
vinnu í morgun, svo að sem stendur liggur öll, eða því nær öll,
vinna niðri við höfnina.
Þann 9. þ. m. skrifuðu verkamenn hjá Skipaútgerð ríkisins
forstjóranum og fóru fram á verulegar kjarabætur.
Kröfur þeirra voru í tveim liðum og em á þessa leið:
1. að fyrir hvem bjnrjaðan vinnudag skyldi greiða full dag-
laun og auk þess til uppbótar eina og hálfa klukkustund með
cftirvinnukaupi,
2. að eftirvinna verkamannanna reiknist frá kl. 6—8 síðd.
(var áður til kl. 10) og greiðist með kr. 4.30 pr. klst. að við-
bættri dýrtíðaruppbót.
Kröfðust verkamennirnir svars í gærdag, en þar sem ekki var
unnt að ganga að þessum kröfum, komu verkamenn ekki til
vinnu í morgun, og Iiggur vinna því við öll skip Skipaútgerðar
ríkisins og Eimskipafélagsins niðri um þessar mundir.
Hafa mál þessi verið afhent ríkistjóminni til meðferðar.
Ofangreindar upplýsingar fékk Vísir hjá Pálma Loftssyni for-
stjóra, og ennfremur hafði blaðið tal af Guðmundi Vilhjálms-
syni framkvæmdarstjóra hjá Eimskip og sagði hann að sem
stæði gerðist ekkert í kaupdeilunni, engar samningaumleitanir
og væri aðeins beðið eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Sjálfstæðismenn
á Akranesi láta
smíða tvö skip
Akranesi, 21. júní ’42.
Þegar eg kynntist Akurnesing-
um fyrst, eða meðan eg var að
kynnast þeim, fannst mér eg
skilja hugsunarhátt þeirra þann-
ig, að þrátt fyrir allan sinn mikla
dugnað, væri þeir ekki félags-
lyndir menn. Þeir eru dálítið
„útaf fyrir sig“ að ýmsu leyti,
Akumesingar, og það jafnvel
einkennilega mikið, þegar þess
er gætt hversu nálægt þeir em
höfuð-menningarbóli landsins.
En eg rak mig öðru hvoru á
það, þegar viðkynningin varð
meiri, að eg misskildi þá. Það
er t. d. einn félagsskapur á Akra-
nesi, sem er til fyrirmyndar
samskonar félögum annarsstað- |
ar á landinu. Það er Sjálfstæðis- '
félagið. Fyrstu kynni, sem eg
hafði af Sjálfstæðisfélaginu á
Akranesi, voru brosleg. Eg var
áð æfa þar allstóran karlakór— 1
35—40 „káta karla“. Á einni æf-
ipgunni er mér sagt, að við verð-
lim að hafa hraðann á, því að
Sjálfstæðisfélagið ætlaði að liafa
fund í salnum okkar strax eftir
æfingu. En þegar til kom, þá var
einmitt söngflokkurinn uppi-
staðan í Sjálfstæðisfélaginu.
Söngmennirnir settust hara nið-
ur, allt í einu, allir með tölu, og
fóru að ræða pólitík frá sjónar-'
miði sjálfstæðismanna, — og
einhverjir -bættust við í salinn.
Eiginlega dáðist eg að þessu.
Að öðru dáðist eg þó enn
meira hjá sjálfstæðismönnunum ;
á Skaganum. Það var þegar þeir i
byggðu sumarskálann við Ölver. i
Það var rösklega af sér vikið. j
Þar þurfli góð samtök. Þar
þurfti mikla fórnfýsi. Og þar
þurfti mikinn dugnað. Þeir
hyggðu skálann sjálfir, stóran,
vistlegan og vandaðan, í frí-
stundum sínum, — en skálinn er
um 25 km. leið frá Akranesi.
Höfðu einn húsasmið — yfir-
smið, en unnu annars verkið
sjálfir: verzlunarmenn, sjó-
menn, verkamenn og iðnaðar-
menn. Og þar stóðu sannarlega
hendur fram úr ermum.
Þetta hvorttveggja, sem hér
hefir nefnt verið, þykir nú ef til
vill ekki sérlega merkilegt, —
en hvað segið þið um þetta:
Sjálfstæðismenn á Akranesi eiga
togara, sem svo hefir blessast
vel að nú eru þeir að láta byggja
tvö skip fyrir fé sem þeir áttu
inni erlendis fyrir afla þessa
togara.
Sjálfstæðisfélagið gekkst fyr-
ir því, að stofnað var h.f. Viðir,
sem síðan keypti togarann
Sindra, um áramótin 37—38.
Þetta fyrirtæki liefir dafnað með
ágætum vel og hefir reynst ein
styrkastasta stoð kauptúnsins,
sem nú er nýorðið kaupstaður,
— var t. d. á yfirstandandi ári
orðið langsamlega hæsti gjald-
andi til bæjarsjóðs.
Og nú eru þeir búnir að kaupa
og fá heim efni í tvö stór skip,
og vélar i þau bæði eru þeir bún-
ir að kaupa, — en þær eru úti í
Englandi enn, en fást væntan-
lega í tæka tíð.
Séð aftur eftir kili. Bönd reist fram
undir miSjan kjöl.
.
Hafin er smíði á öðru skipinu,
sem á að verða 100 smálestir.
Það er byggt hér á skipasmíða-
stöð Þorgeirs Jósefssonar, sem
er í stjórn Sjálfstæðisfélagsins
og alkvæðamikill áhugamaður.
— Yfirsmiður við þessa vbygg-
ingu er hinn þjóðkunni hag-
leiksmaður Eyjólfur skipasmið-
ur Gíslason úr Reykjavík. Skip-
ið á að verða tilbúið fyrir næstu
vertíð, en nú um sinn verður
nokkurt lilé á vinnu við það,
vegna aðgerða á bátunum sem
eiga að fara norður ,já síld“ —
en þeir munu verða 8, bátamir,
sem héðan fara. Búið er þegar
að reisa nokkuð af Ixindum, en
þó verður enn ekki séð hvernig
skapnaður verður á þessari
snekkju, — en þau hafa jafnan
verið fögur á að líta og reynst
vel skipin, sem Eyjólfur hefir
byggt.
Þetta eru stærsta skipið, sem
hér er byggt. Hitt skipið, sem
sjálfstæðismenn ætla að bvggja
mun sennilega verða nokkuð
minna en þetta.
Th. Á.
ir
Jón Ivars
fimmtugur.
Jón fvars, aðalbókari Lands-
símans, er fimmtugur í dag.
Þeir, sem þekkja Jón og hafa
umgengizt hann um dagana,
eiga bágt með að trúa þessari
staðreynd, svo unglegur er hann
í útliti og anda. En við vinir
hans og kunningjar, verðum að
láta okkur það lynda, að svona
sé, því þannig er það
Jón er fæddur 23. júní árið
1892. Ilann gerðist bókhaldari
hjá Gefjunni á Akureyri árið
1914 og var það til ársins 1920,
er hann fluttist hingað til
Reykjavikur og gerðist aðalbók-
ari hjá Landssímanum. Þvi
starfi hefir hann svo gegnt
þangað til í ár, er hann varð að
segja því lausu vegna heilsu-
brests.
Jón hefir ávallt verið mjög
músikalskur og sönghneigður
maður, og er það enn. Kann
hann því vel, að tekið sé lagið
i vinahóp og leikur ekki vafi
á því, að mikið verður um söng
á heimili hans i dag, á þessum
merkisdegi i lifi hans.
Það er ekki langt síðan ég
kynntist Jóni fyrst, en það fyrsta
sem ég varð var i fari hans,
var liin prúðmannlega fram-
koma hans og snyrtimennska.
Allir þeir, sem þekkja Jón, bera
honum sömu söguna, að hann
sé einn þeirra alúðlegustu og
trygglyndustu manna, sem þeir
hafi fyrir hitt.
Jón er kvæntur Rósu Teits-
dóttur, hinni ágætustu konu, og
hefir þeim , hjónum orðið
þriggja barna auðið. Misstu þau
tvö börnin ung, dreng og stúllcu,
en sonur Jieirra, Agnar ætlar
að kvænast í kvöld og auka
þannig á hátíðleik dagshis hjá
foreldrum sínum.
Við vinir þinir, Jón, óskum
þér innilega til hamingju með
þennan merkisdag í lífi þínu
og óskum þess af heilum hug,
að þú eigir eftir að lifa ennþá
mörg gleðirík og happadrjúg
ár. G. Ein.
Jónsmessan er í nótt.
Það var trú manna í gamla daga,
að ef þeir böðuðu sig alsnaktir upp
úr næturdögginni (kl. 12 á mið-
nætti) á Jónsmessunótt, og óskuðu
sér einhvers, myndu þeir fá þá ósk
sína uppfyllta. — Ekki skulum vér
segja neitt um það, hversu mönnum
gekk vel að fá óskir sínar uppfyllt-
ar, en ekkert er það, sem mælir á
móti því, að menn reyni það einu
sinni, að fá sér bað i dögg nætur-
innar þessa nótt, og noti tækifærið
og óski sér einhvers um leið. Sjá-
um svo, hvort úr rætist.
I
6 stærðir
JLi v e rp a a4^
Sírnar: 1135, 4201
t
skápur
óskast.
Erl. Blandon & Co„ hJr.
Sími: 2877.
Góðar
vðrobfll
(án bílstjóra) til leigu. Uppl.
á Njálsgötu hl, aimari hæð.
Chevrolet
vörubifreið
2ja toriha, model 1933, tíl
sölu. Skipti á 5 manna fólks-
bifreið gæti komið til greina.
Uppl. á Laugavegi 137. Simi
5742, frá 5—8 e. h.
Sterling-
silfur
nýkomið.
Takmarkaðar birgðír.
JÓH. NORÐFJÖRÐ.
Austurstræti 14.
Stúlku
vantar í r
Kjötbúö Sólvalla.
Uppl. i Kjötbúð Sólvalla. !
Eleki svarað i sima.
Búðar-
diskar
úr gleri, ásamt 2 glerskápum,
til sölu og sýnis á Hverfis-
götu 32.
CAFE inn.
Mann, vanan
vantar mig nú þegar.
Jón Guðmundsson,
Nýjabæ, Seltjarnarnesi,
Simí: 4794.
I er miðstöð verðbréfaviS-1
| skiptannæ — Sími 1710. |
\