Vísir - 23.06.1942, Blaðsíða 3

Vísir - 23.06.1942, Blaðsíða 3
VISIR Sími 2339« Látið skpifstofuna vita um þad fólk, sem er farid burt úr bænum. — Opið 9-8 og 2-5 á sunnudögum. — Sími 2339. — Kjósið hjá lögmanni í Miðbæjarbarnaskólanum Opið 10 12 f. h. og 1-5 og 8-9 e. h. og á laugardögum 1-5 og sunnudogum 3-6. er listi Sjálfstæðisflokksins SKIPSTJÓRAFÉLAGIÐ „ALDAN“ lieldur Aðalfund i dag, þriöjudaginn 23. júní í Oddfellowlnisinú, uppi kl. 8.30 síðdegis. FUNDAREFNI: 1. Venjuleg aðalf'undarstörf. 2. Framtíðarhorfur félagsins o. fl. Félagar, fjölmennið. STJÓRNIN. Akraiiesmótið. Akranesmótið: Tjaldbúðirnar l á Kirkjuvöllum Akranesi, 21. júni ’42. Kristilega mótið, sem getið var um í „Vísi“ á la^gardag, hófst hér þann dag með guðs- þjónustu í Akraneskirkju. Með „Ægi“ komu hingað til • mótsins um 400 manns og eitt- hvað bættist við „fastra“ þátt- takenda hér uppfrá. En i morg- un kom enn margt fólk með e.s. Alden, svo að í dag hafa þátt- takendur verið 5—600. Tjaldbúðirnar eru annars- staðar en gert var ráð fyrir, eða á svonefndum Kirkjuvöllum, of- arlega á Skaganum. Standa þær þar prýðisvel, í ferhyrning, og stórt autt svæði í miðju. Þar var lialdin ákaflega fjölmenn úti- samkoma síðdegis i dag, — og raunar fyrsta samkoman þessa tvo daga, sem eg fyrir mitt Ieyti hefi fundið þá hátíðlega og trú- ar-þrungnu „stemningu:“, sem einkenndi Hraungerðismótin. Hafa þó guðsþjónusturnar og samkomurnar verið með mjög svo virðulegum og hátíðlegum hlæ og allar haldnar í kirkjunni. En eg held að það sé óheppilegt, að halda slík mót í kaupstað. Að minnsta kosti finnst mér per- ■sónutega að þetta mót vera ein- hvern veginn „lausara i bönd- um“ en Hraungerðismótin hafa verið. Eg mun síðar segja greini- legar frá þessu móti. En eins vil eg láta getið strax, sem mjög hefir hrifið mig, en það er söng- urinn i kirkjunni og þá sérstak- lega messusöngurinn. Síra Sig- urður Pálsson frá Hraungerði liefir verið fyrir altari við tvær guðsþjónustur, sem haldnar hafa verið, og leyst það af hendi með aðdáanlegum virðuleik, — en allstór söngfloklcur úr K. F. U. K. og M. i Reykjavík annast sönginn og Gunnar Sigurjóns- son cand. theol. verið organisti. Er þetta liklega fegursti og bjartasti kirkjusöngur sem eg hefi heyrt hér á landi. Mér liggur við að segja, að t. d. í upphaf messunnar í gær (laugard.) hafi söngur þessa unga fólks verið dásamlegur. En vegna mollu- liita í kirkjunni þegar á leið 1 guðsþjónustuna varð erfitt að syngja undir það síðasta. Almargt fólk fer heim í kvöld með e.s. Alden. En samkomunni verður haldið áfram á morgun, og fer allur fjöldinn ekki heim fyrr en annað kvöld. (Framh.) Frjr. Knattspyrnukappleiknr. í dag kl. 6 keppa prentarar og starfsmenn hjá tollstjóra, í knatt- spyrnu á Iþróttavellinum. Hvorir skyldi vinna? Silfurbrúðkaup eiga í dag frú Halldóra Ólafs- dóttir og Alexander Jóbannesson, skipstjóri, Grettisgötu 2. Konur í Hallgrímssókn, fjölmennið á íundinn, sem hald- inn verður í kvöld í bíósal Austur- ; bæjarbarnaskólans. Þar ver'ður rætt úm samkomú, sem haldin verður á sunnudag n.k. í HljómskálagarÖin- um/ til ágóða fyrir Hallgríms- kirkju. í tilefni af sænsku Jónsmessuhátíðinni I (midsommaren) taka Chargé d’Af- i faires Johansson og frú á móti j gestunrþann 24. júní milli kl. 3,30 ! og 6 eftir hádegi, og eru Svíar og vinir Svíþjóðar sérstaklega vel- komnir. Hjúskapur. I dag voru gefin saman í hjóna- band af síra Árna Sigurðssyni, ung- frú Guðrún Helgadóttir, Selja- landsveg 12, og Agnar ívars hús- gagnahólstrari, Sólvallagötu 37. — Heimili þeirra er á Sólvallagötu 37. Næturlæknir. Pétur Jakobsson, Karlagötu 6, sími 2735. Næturvörður í Lauga- vegs apóteki. Útvarpið í kvöld. Kl. 19.25 Hljómplötur: Norræn sumarlög. 20.00 Fréttir. 20.30 Er- indi: Jónsmessunótt (Guðm. Finn- bogason landbókav.). 21.00 Hljóm- plötur: a) Sumarlög. b) 21.20 Píanókonsert nr. 4 eftir Beethoven. 21.50 Fréttir. Auglýsing um skoðun á bifreiðum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Samkvæmt hifreiðalögum tilkynnist hér með bifreiðaeigend- um, að skoðun fer fram frá 1. til 31. júlí þ. á., að háðum dögum meðtöldum, svo sem hér segir: Miðvikudagur 1. júlí á bifreiðum R. 1— 100 Fimmtudagur 2. — - — — 101— 200 Föstudagur 3. — - — — 201— 300 Mánudagur 6. — - — _ 301— 400 Þriðjudagur 7. — - ■ — — 401— 500 Miðvikudagur 8. —- - — — 501— 600 Fimmtudagur 9. - — _ 601— 700 Föstudagur 10. — - — _ 701— 800 Mánudagur 13. — - — — 801— 900 Þriðjudagur 14. — - — — 901—1000 Miðvikudagur 15. — - — — 1001—1100 Fimmtudagur 16. — - — — 1101—1200 Föstudagur 17. — - — — 1201—1300 Mánudagur 20. — - — — 1301—1400 Þriðjudagur 21. — - — — 1401—1500 Miðvikudagur 22. — - — — 1501—1600 Fimmtudagur 23. — ' - — — 1601—1700 Föstudagur 24. — - — _ 1701—1800 Miánudagur . ; 27. — - — — 1801—1900 Þriðjudagur 28. — - — — 1901—2000 Miðvikudagur 29. — - — — 2001—2100 Fimmtudagur 30. — - — — 2100—2200 Föstudagur 31. — - — — 2201 og þar yfir. Ennfremur fer þann dag fram skoðun á öllum bifreiðum, sem eru í notkun hér i bænum, en skrásettar eru annarsstáðar á landinu. Ber bifreiðaeigendum að koma með bifreiðar sínar til hif- reiðaeftirlitsins við Amtmannsstíg 1, og verður skoðunin fram- kvæmd þar daglega frá kl. 10—12 f. h. og frá kl. 1—6 e. h. Bifreiðum þeim, sem færðar eru til skoðunar samkv. ofanrit- uðu, skal ekið frá Bankastræti suður Skólastræti að Amtmanns- stíg og skipað þar i einfalda röð. Við skoðunina skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram skír- teini sin. Komi i ljós, að þeir hafi ekki fullgild skírteini, verða þeir tafarlaust látnir sæta áhyrgð og bifreiðarnar kyrsettar. Þeir, sem eiga farþegabyrgi á vörubifreiðar, skulu koma með þau á sama tima, þar sem J>au falla undir skoðunina jafnt og sjálf bifreiðin. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á réttum degi, verður liann látinn sæta ábyrgð samkvæmt bifreiðalögun- um. Ef bifreiðaeigandí (umráðamaður) getur ekki af óviðráð- anlegum ástæðum fært bifreið sína til skoðunar ó réttum tíma. ber honum að koma á skrifstofu bifreiðaeftirlitsins og tilkynna það. Tilkynningar i síma nægja ekki. Bifreiðaskatturinn, sem fellur í gjalddaga 1. júli þ. á., skoð- unargjald og iðgjöld fyrir vátrygging ökumanns, verða inn- heimt um leið og skoðunin fer fram. Sýiia ber slcilriki fyrir því, að löghoðin vátrygging fyrir Iiverja bifreið sé,í lagi. Athygli skal vakin á því, að umdæmismérki bifreiða slculu ávallt vera vel læsileg, og er þvi hér með lagt fyrir bifreiðaeig- endur (umráðamenn), sem þurfa að endurnýja númeraspjöld á bifreiðum sínum, ap gera það tafarlaust nú áður en bifreiða- 1 skoðunin hefst. • 1. Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli, til eftirbreytnú Tollstjórinn og lögreglustjórinn í Reykjavík, 22. júní 1942. JÓN HERMANNSSON. AGNAR KOFOED-HANSEN. Hokkra verkamenn vantar í byggingarvinnu í Reykjavik. Gott fæði og húsnæði á sama stað getur fylgt. Uppl. í síma 5959, kl. 8—9 í kvöld og ann- að kvöld. Veðurstofuna vantar húsnæði 1. október eða' fyrr. — Uppl. hjá Veðurstofu- stjóra. Simi 3373.' Tilkjtiiiiiugr til verkamanna Þeir verkamenn, sem hafa rétt til sumaríeyfis hjá brezka setuliðinu, þurfa að hafa sótt sumarieyfispen- inga sína á skrifstofu setuliðsins, Hafnarstræti 21, eigi siðar en 30. júní n. k. Öðrum verkamönnum ber að snúa sér til viðkomandi atvinnurekanda, þegar þeir óska að taka sumarieyfi sin. Samkvæmt samningum „Dagsbrúnar“ um sumar- leyfi, eiga verkamenn rétt á að taka þaw á timabilinu 1. júni til 1. september. Nánari upplýsingar gefur skrifstofa „I)agsbrúnar“. 2 menn óskast við verksmiðjustarf strax. Uppl. á skrifstofunni fra kl. 6—8 í kvöld og á morgun. Maðurinn minn og faðir okkar, Andrés Jónsson klæðskeri, verður jarðsunginn frá fríkirkjunni miðvikudagúm 24. þ. m. — Athöfnin hefst kl. 1 e. h. með húskveðju á Skeggja- götu 16. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Ólöf Úlfarsdóttir og bðni. Innilegt þakklæti til allra nær og fjær fyrú- auðsýuda samúð við andlát og jarðarför eiginmanns og sonar, ff Péturs Árnasonar. Maríanna Elíasdóttir. Guðbjörg Loftsdóttir. V.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.