Vísir - 27.06.1942, Page 3
VISIR
Sími 2339.
Látid skpifstofuna vita um þaö fólk, sem er farid burt úr bænum. — Opid 9-9; og
2-5 á sunnudðgum. — Sími 2339. — Kjósiö hjá lögmanni í Miðbæjarbarnaskólanum
Opið ÍO 12 f. h. og 1-5 og 8-9 e. h. og á laugardögum 1-5 og sunnudcgum 3-5.
D-listi er listi Sjálfstæöisflokksins
Professor
Worm-MiiIIer
hoMer foredrag om krigens utvikling og hvad den krever av os,
i engelske ])io i Baronsstig nedenfor Hverfisgata, söndag 28.
juni 1942 kl. 21.
Norske militære og sjömenn er innbudt. Adgangskort kan
hentes i flygeleiren eller paa marinekontoret. Andre kan kjöpe
billettter á kr. 3.00 ved inngangen.
NORDMANNSLAGET I REYKJAYIK.
Verðbréf.
Til sölu eru strax veðdeildarbréf, tiA7Sfí skuldabréf
og víxlar fyrir krónur 3—400.000.00. Tilboðum verð-
ur svarað um hæl og fullkominni þagmælsku er heitið.
Tilboð skulu merkt: „Tækifæriskaup“, og sendist af-
greiðslu Vísis.
Raflagnír
Tökum að okkur raflagnir í nýbygg'ingai’.
Einnig hreytingar og liverskonar viðgerðir á eldri
lögnum og tækjum.
■ISS Rp'wa
ivýv. RAPTÆKJAVEnZLDN «P VINNLSTCm LALOAVEO 46 SÉMI 58?>S
Barátta Norðmanna gegn
oki Þjóðverja.
Viðlal við próf. Worin-Hullcr.
Nýlega er kominn hingað til lands prófessor Worm-Miiller,
sem kennt hefir sagnfræði við Oslóarháskóla, og ritað hefir
meðal annars siglingasögu Norðmanna, og fjallar einn kafli
hennar um siglingar íslendinga til forna. Prófessorinn er víð-
kunnur fræðimaður og einn af traustustu merkisberum frjálsra
Norðmanna í baráttu þeirra fyrir sjálfstæði og frelsi Noregs.
Prófessor Worm-Miiller hefir
verið allmikið við stjórnmál rið-
inn í heimalandi sinu, og átti
hann sæti i miðstjórn vinstri
flokksins. Tólc hann þátt í öllum
samningaumleilunum Þjóð-
verja og Norðmanna áður en
hernámið fór fram, sat á fund-
um með þingmönnunum og
fylgdist með gangi málanna frá
upphafi. Er stjórnin og konung-
ur yfirgáfu land til þess að
heyja baráttu sína utan Noregs,
sat prófessor Worm-Miiller um
kyrrt og liélt áfram starfi sínu
við háskólann. En hann lét ekki
bugast fyrir ofurveldi né áróðri
Þjóðverja, ep hélt uppi ákveð-
inni baráttu í starfi sinu gegn
þeim, sem beindist fyrst og
fremst að því að glæða þjóð-
rækni og ættjarðarást norsku
stúdentanna, sem að sjiálfsögðu
standa framarlega i sjálfstæðis-
baráttunni. Þéssi starfsemi pró-
fessors Worm-Miiller leiddi til
þess, að Þjóðverjar kröfðust, að
hann væri leystur frá störfum,
og treystist háskólinn ekki til að
standa gegn þessum lcröfum, en
veitti prófessornum fri til sagn-
fræðistarfa utan háskólans.Þetta
frí var prófessor Worm-Miiller
mjög kærkomið, með því að þá
gat hann tekið upp baráttuna af
fullri alvöru gegn kúgurum
norsku þjóðarinnar. Hélt hann
nú úr landi til Sviþjóðar, Rúss-
lands, Japans, Bandaríkjanna,
Portúgals og loks Englands, en
þar hóf hann starf sitt í þágu
norsku stjórnarinnar í London.
Hefir hann meðal annars haldið
fjölda fyrirlestra i útvarp og þar
skýrt Norðmönnum frá, hvað
raunverulega hafi gerzt i Nor-
egi, hvernig samningaumleit-
anirnar hafa verið reyndar, en
þvinæst ofbeldi heitt til þess að
ná tangarhaldi á landinu. Um
þetta var norsku þjóðinni í
rauninni ókunnugt i öllum aðal-
atriðum, öllu samhandi var slit-
ið milli liöfuðborgarinnar og
ýnisra landshluta, k og menn
vissu ekki, hvað.gerðist og trúðu
heldur elcki því, sem þeir heyrðu
um ofbeldisverk og annað slíkt,
fyrr en þeir reyndu það sjálfir.
Er vafalaust, að einmitt þessir
fyrirlestrar prófessorsins liafi
leitt til þess, að Norðmenn beita
eno harðari andstöðu gegn Þjóð-
verjum, en þéir ella hefðu gert.
Prófessor Worm-Muller veitti
blaðamönnum áheyrn á miðv.-
dag og ræddi þar við þá um ýms
mál norsku þjóðarinnar. Lýsti
hann ánægju sinni yfir þvi að
vera kominn hingað til lands,
með þvi að i rauninni hefði það
skort á bæði við nám hans og
starf, að hann liefði ekki liaft
náin persónuleg kynni -af íslandi
og Islendingum, en saga norsku
þjóðarinnar yrði ekki skýrð,
nema þvi aðeins, að sá kunnug-
leiki væri fyrir hendi. Prófessor-
inn nnin halda hér ýmsa fyrir-
lestra við háskólann og á veg-
um Norðmanna hér, og munu
þeir fjalla um sjálfstæðisbar-
áttu Norðmanna, stórþingsfundi
og samningaumleitanir Þjóð-
verja, framkvæmdir norskra
stjórnarvalda utan Noregs, her-
mál og annað það, er snertir
haráttu Norðmanna, eins og
hún nú er háð.
Prófessor Worm-Miiller valcti
sérstaka athygli á því, að hin
forna íslenzka sagnaritun hefði
haft mjög mikla þýðingu fyrir
norsku þjóðina einmitt nú ó
þessum hörmungatimum. Þótt
Norðmenn séu lýðræðissinnað-
ir, hefir það þó sannazt, að þeir
eru og verða konungssinnaðir,
Ólafur konungur hinn lielgi er
kallaður i Noregi „hinn eilífi
konungur Noregs“. Margir voru
þeir, sem gerðu gys að þessu og
töldu Noregi allt annað hæfa en
konungdæmi, en reynslan hefir
sýnt, að Norðmenn hafa sam-
einazt um konung sinn með
slikri festu, einbeittni og tryggð,
að slíks munu fá dæmi vera.
Konungurinn hefir gengið á
undan með góðu fordæmi, og
hann er i rauninni merkið, sem
allir safnast um til þess að
vinna að sjálfstæði föðurlands-
ins. Norska þjóðin hefir átt við
stórlcostlegar hörmungar að
búa — i rauninni mildu meiri
heldur en menn grunar, — en
komandi vetur mun þó verða
henni mildu erfiðari en það sem,
af er, og liggur jafnvel sú liætta
í loftinu, að hungursneyð herji
landið. Þjóðverjar liafa með
degi hVerjum hert á fjötrunum,
tilskipun hefir rekið tilskipun,
og jafnvel börn og gamalmenni
hafa ekki farið vai'hluta af að-
gerðum Gestapo og þýzku her-
stjórnarinnar. Sagði pi'ófessor
Worm-Múller, að framferði
Þjóðverja væri þannig, að am-
erískir glæpamenn væi-u „hátíð“
í sainanburði við þá.
Prófessor Worm-Múller i-akti
að nokkuru fyrir blaðamönn-
um sögu Quislings. Á límabili
var það ætlun Þjóðverja, að
hann færi ekki með æðstu völd
í landinu, en Hitler sjálfur hlut-
aðist til um, að honum voru
samt sem óður falin þau. í síð-
1 asla stríði og ó árunum næstu
þar ó eftir starfaði Quisling með
Friðþjófi Nansen að hinni víð-
tælcu og heimskunnu hjálpar-
starfsemi lians. Hafði Nansen
mjög miklar mætur á Quisling
fyrir gáfur hans og dugnað.
Quisling var þvínæst gerður að
liernaðarsérfræðingi við sendi-
ráð Norðmanna í Moskva, og
var talið að liann liefði þá
kommúnistiskar lifsskoðanir.
Árið 1930 kemur hann svo til
Noregs aftur og tekur upp sam-
vinnu við Bændaflokkinn, sem
leiddi til þess, að liann var gerð-
ur að landvarnamálaráðherra.
Það starf lians var þó með þeim
hætti, að til æsinga og upp-
hlaupa kom. Árið 1933 stofnar
hann svo flokk sinn, er hann
nefndi „National Samling“, og
hafði þá lielzt að stefnumálum
að vinna að „samvirku stjórn-
arfyrirkomulagi" og boðaði
jafnframt yfirburði liins germ-
anslca kynstofns yfir alla aðra.
Einkum deildi hann þó hatram-
lega á Gyðinga. Stjórnmálalif
í Noregi var á þessum árum
með þeim liætti, að yngri kvn-
slóðin var orðin hundleið á
þeim flokkum, sem starfandi
voru i landinu, og uþpivöðslu-
semi kommúnistanna keyrði úr
öllu hófi. Gegn lienni reis æsku-
lýðurinn, og sumir hinna ungu
manna gerðust ótrauðir fylgis-
menn Quislings. Flestir hafa þó
snúið við honum baki síðar,
enda reyndist liann gersamlega,
fylgislaus i tvennum kosning-
um, sem fram fóru 1933 og
1936 og fékk i hið fyrra skipti
aðeins 2% atkvæða, en lieldur
: minna í siðara skiptið. Hefir
komið i ljós, að þótt enginn
grunaði liann um föðulandssvik
á þessum árum, hefir liann þó
þegið beinan fjárhagslegan
stuðning frá Þjóðverjum til
starfsemi sinnar. Nokkuru fyrir
hernámið hóf Jilaðið „Frit folk“
göngu sína að nýju af miklum
krafti og skorti þá ekki á fé, þótt
það hefði verið áð undanförnu
í nokkuru fjárhraki. Hinn 8.
april, þ. e. a. s. daginn fvrir inn-
rásina lýsti þetta blað yfir þvi,
að nú væri fylling timans kom-
in, þannig að þjóðernissinnar
tækju i sínar hendur stjórn
landsins og alræði í málum
þjóðarinnar. Jafnvel þá datt
norsku þjóðinni ekki i hug, að
Quisling myndi ganga á mála
lijá Þjóðverjum. Raunin liefir
sýnt allt annað, og margir hafa
þeir hrugðizt, sem trúað var í
upphafi sem öruggum föður-
landsvinum.
Það má búast við þvi, að i
fyrirlestrum prófessors Worm-
Múller verði margt það skýrt,
sem íslendingar þekkja ekki, og
að nýju ljósi verði brugðið yfir
haráttu norsku þjóðarinnar,
bæði í Noregi og utan Noregs,
eins og hún er í dag. Er pröfess-
or Worm-Miiller mikill aufúsu-
gestur islenzku þjóðinni, sem
vel kann að meta starf hans
fyrr og nú.
Gottskálk Jónsson
F. 31. maí 1899.
Fórst með botnv. „Sviða“ 2.
des. 1941.
Kveðja frá einkasyni hans.
Með sorg eg, pabbi, sakna þín,
þvi sanna ást, þú barst til mín,
og einkabarni á alla lund
þú aðstoð veittir hverja stund.
Þú farinn ert nú, faðir minn,
þig fela köldu hafdjúpin,
og framar ekki faðmur þinn
nú fær að vefja drenginn sinn.
Minn faðir kær, eg þakka þér
það allt hið góða’ er sýndir mér.
Með heitri trú, í hjartans von
þig liljóður kveður einkason.
B. J. G.
Fólksbíll
Vil kaupa góðan fólksbil
af nýrri tegund. Má kosta
20—30 þúsund. — Uppl. í
síma 5627 frá 6—8 í kvöld.
Blað danslcra nazista, „Fæd-
relandet“, liefir skýrt frá því,
að sjálfboðaliða í danska
flokknum á austurvígstöðvun-
um liafi verið neitað um ó-
keypis aðgang að dýragarðin-
um' í Ivaupmannahöfn. Her-
menn í danska hernum liafa
jafnan fengið ókeypis aðgang,
en dyravörðurinn úrskurðaði,
að sjálfboðaliðinn væri þýzk-
ur hermaður og yrði þvi að
kaupa aðgang.
< ■
Kaupsýslumenn
Við höfum nú fasta skrifstofu í New York
auk umboðsmanna okkar J>ar. Yið getum því
útvegað yður allar fáanlegar vörur frá Banda-
ríkjunum, Kanada og Suður-Ameríku. —
Greiðsla i sterliugspundimi geiur komið til
greina að einhverju leyti í sumum tilfellum.
Sölumenn okkar gefa upplýsragar og taka
pantanir.
Heildveralnii
Guðm. H. Þórðarsonar
Símar:
Skrifstofa 5815.
Lager 5369.
Okkur vantar
krakka til að bera blaðið til kaupenda um
Vesturbæinn
Snúið ykkur strax til afgreiðslunnar.
Dagblaðið VÍSffH
JT
Uthlutun matvælaseðla
í Reykjavík
fyrir næsía úthlutunartímabil, fer fram í Góðtempl-
arahúsinu mánudag, þriðjudag og miSvikudag i !
næstu viku, kl. 10—12 f. h. og 1—6 e. Ii.
Menn eru áminntir um að koma með stofha fyrir i
ýfirstandandi útlilutunartímabil, og gæta þess að þeir
séu áritaðir eins og form Jieirra segir til um.
Úthlutunarskrifstofa Reykjavíknr
Leigfug'arðar
bæjarins
Sú hreyting hefir nú verið gerð, að eftirleíðís mun
herra búnaðarnáðunautur Jóliann Jónasson gefa allar
upplýsingar og leiðbeiningar viðvikjandi leigugörð-
um bæjarins og matjurtarækt i bænum.
Skrifstofa hans verður fyrst um sinn í Lækjargötu
14 B. — Viðtalstími virka daga, nema laugardaga, kl.
1—3 e. h. — Simi 2151.
Rorgrarstjdri.
S6K-£'««3S.ta!afsSíæ3»rsa‘-'
Jarðarför okkar hjartkæra eiginmanns og föður,
Árna Magnússonar, vélstjóra
fer fram frá fríkirkjunni mánudaginn 29. þ. m. og hefst
með húskveðju að heimili hins látna, Ránargptu 32, kl. 1 y2.
Athöfninni i kirkjunni verður útvarpað.
Valdís Þorvaldsdóttir og böm.