Vísir - 29.06.1942, Page 2
V I S I R
7
VISIF?
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Nazismi
og kommúnismi.
JÁ, kommúnistar trúa þvi, að
það sé alls ekki svo óvæn-
legt til fylgis nú í kosningunum,
að vera kommúnistar og fylgis-
menn Stalins hins rússneska.
Það er jafnvel vafamál, hvort
þeir sjá nú ekki eftir nafna-
skiptunum, sem þeir höfðu á sér
um árið, er þeir tóku upp nafn-
ið „Sameiningarflokkur alþýðu
— SósíaIistaflokkurinn“ í stað
Kommúnistaflokkur íslands. —
Þeir munu þykjast þess fullviss-
ir, að samúð sú, sem Rússar
njóta nú í lýðræðislöndunum,
sakir þess hve lengi þeir hafa
haldið uppi vörnum gegn inn-
rásarher Þjóðverja og stemt
stigu fyrir lokasigri nazismans,
Iiljóti að veita kommúnisman-
um og koinmúnistum, livar seni
er í íleiminum, hyr undir báða
vængi. Og af því að Rússar
heyja nú sameiginlega baráttu
með lýðræðisþjóðunum, gegn
yfirgangi nazista, þó að það sé
raunar af allt öðrum hvötum,
þá halda þeir, að fólkið i lýð-
ræðislöndunum muni láta glepj-
ast svo af því, að það sé þess
albúið að ganga í flokk ineð
kommúnistum og fylgja stefnu
þeirra fram til sigurs.
Þjóðviljinn spyr um það í
grein á dögunum, hvort iftenn
viti það ekki, „að nazisminn
geri í dag æðisgengnar tilraunir
til að myrða lýðræðið í lieim-
inum“! — En er það þá fyrst
nú „i dag“, sem nazisminn
byrjar á þessum tilraunum? Var
það ekki hlutverk nazismans
frá upphafi, að reyna að ráða
niðurlögum lýðræðisins, fyrst
og fremst í sínu heimalandi og
síðan „í heiminum“? Og hverj-
ir voru það, sem dyggilegast
unnu að því í Þýzkalandi, að
nazisminn komst til valda ?—
Það voru kommúnistar, og þeir
gerðu það eftir beinum fyrir-
skjpunum frá Rússlandi. Það
voru kommúnistarnir í Þýzka-
landi, sem lijálpuðu nazistun-
um til þess að brjóta lýðræðið
þar á bak aftur. Hatur þeirra
til lýðræðisins var svo magnað,
að þeir vildu vinna það til, til
þess áð koma því á kné, að naz-
istaflokkur Hitlers kæmist til
valda. Án hjálpar kommúnista,
hefði nazisminn þýzki dáið í
fæðingunni.
Það er nú að vísu talið, að
það hafi vakað fyrir leiðtogum
kommúnista á þeim tíma, bæði
í Þýzkalandi og Rússlandi, að
ganga fyrst af lýðræðinu í
Þýzkalandi dauðu i félagi við
nazista, en kæfa síðan nazism-
ann í blóði. En liafi það verið
tilgangurinn, þá hefir það hins-
vegar mistekizt. Og það breyt-
ir heldur engu um afstöðu
kommúnista til lýðræðisins. Og
alveg sama sagan endurtekur
sig líka síðar, þegar nazisminn
hóf sínar „æðisgengnu tilraun-
ir“ til þess að „myrða lýðræðið
í heiminum“ utan Þýzkalands.
Þegar nazistar höfðu undir-
okað Austurríki og síðan Tékkó-
slóvakíu og sneru sér svo að
PóIIandi, varð lýðræðisþjóðun-
um það loksins ljóst, að hverju
stefndi. Þá hófu þær samninga-
umleitanir við kommúnistana í
Rússlandi, um að veita sam-
eiginlegl viðnáin gegn yfir-
gangi nazismans. Það vissi þá
allur heimúrinn, að á því, hvefn-
ig' þeim samningum reiddi af,
vallt hvorki meira né minna en
það, hvort hafin yrði ný heims-
styrjöld og að um líf eða dauða
lýðræðisins í heiminum var að
tefla. Rússnesku kommúnist-
arnir áttu nú um það að velja,
hvort þeir vildu heldur veita
heimslýðræðinu lið gegn naz-
ismanúm eða nazismanum gegn
heimslýðræðinu. Og það fór'al-
veg eins og áður í Þýzkalandi,
kommúnisminn haslaði sér völl
við hlið nazismans gegn lýð-
ræðinu. Og í skjóli þeirrar styrj-
aldar, sem upp úr jiessu liófst,
réðust rússnesku kommúnist-
arnir síðan á nokkur smáríki,
sem lágu að landamærum
þeirra, og sýndu þannig í verki
hug sinn til lýðræðisins í heim-
inum, svo að af skyldu tekin
öll tvímæli um afstöðu þeirra
til þess, þó að þeir væru óvirk-
ir i hinni meiri styrjöld, sem
hafin var.
En nú berjast kommúnistar
þó með lýðræðisþjóðunum gegn
nazismanum og fyrir lýðræðinu
i heiminum, munu menn segja.
— Já, að vísu, en öllum heim-
inunx vitanlega mjög á móti
vilja sínum, og aðeins fyrir þá
sök, að þeir eiga sitt eigið lif að
verja, og af þvi, að þeirra eina
lífsvon í þeim hildarleik bygg-
ist á hjálp lýðræðisþjóðanna.
Og það dettur engum heilvita
manni í hug, að þeir séu að berj-
ast fyrir lýðræðinu i heiminum.
Vegna þeirra afskipta hefði naz-
isminn fengið í friði að lialda
áfram sinum „æðisgengnu til-
raunum til að myrða lýðræð-
ið“ og til þess að ganga af því
dauðu, ef svo vildi verkast.
Og svo skulum við muna það,
að þegar rússnesku kommúnist
arnir gengu í Iið við nazista, til
þess að gefa þeim færi á því
að brjóta lýðræðið í heiminum
á bak aftur, þá fögnuðu íslenzk-
ir kommúnistar því, og leyndu
ekki þeim vonum sinum, að end-
irinn yrði sá, að íslandi kæmi
í hlut Rússa, þegar herfanginu
yrði að lokum skipt. Og þegar
Rússar réðust á Finnland, þá
fögnuðu íslenzku kommúnist-
arnir yfir þvi, að dagar þess lýð-
ræðisríkis væru taldir. En þa
var nú ekkert gaman að vera
kommúnisti hér á íslandi né i
öðrum Iýðræðislöndum. Og
hvers vegna ætti kommúnism-
inn eða kommúnistar að njóta
meiri lýðhylli nú?
Rússnesku kommúnistarnir
eru Jieir sömu nú eins og þeir
voru Jiegar Jieir gengu i lið við
nazistana sumarið 1939, og
kveiktu með J>ví Iieimsstyrjakl-
arbálið, sem til var stofnað til
að „myrða lýðræðið i heimin-
um“. Og innræti íslenzku
kommúnistanna er það sama
nú, eins og þegar þéir lögðu
hlessun sina yfir það bandalag
og fögnuðu árásinni á Finn-
land. Og enn munu þeir ala Jiá
von i brjósti, að ísland eigi að
lokum því „láni“ að fagna, að
verða liandbendi Stalins.
Hvatar-íimdur
annað kvöld.
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt
heldur fund kl. 8 /2 annað kveld
í Oddfellowhúsinu uppi. Eru
konur áminntar um að fjöl-
menna á fundinn.
Magnús Jónsson, atvinnu-
málaláðherra, mun flytja ræðu
á fundinum, en annars mun
verða rætt um málefni félagsins
og kosningarnar, sem fram eiga
að fara eftir 6 daga.
Áliugi mikill er ríkjandi með-
al sjálfstæðiskvenna og eru þær
staðráðnar í þvi að koma full-
trúa kvenþjóðarinnar á lista
Sjálfstæðisflokksins — frú Guð-
rúnu Jónasson — á þing.
Ung^iir Isleiidliig*!!!*
bíður bana I tlu^iíl^§i
í Kanada.
i
Elaitii liét Joliannes Hagan.
r
J[ gær barst Haraldi Hagan, kaupmanni, skeyti þess
efnis, að sonur hans, Jóhannes, sem var við flug-
nám í Ameríku, hefði farizt af flugslysi.
Flugslysið vildi til með þelm hætti, að tvær flugvélar
rákust á í loftinu með þeim afleiðingum, að vélin, sem
Jóhannes sat í, hrapaði til jarðar og Jóhannes beið bana
- aí’.
Jóhannes Hagan var innan við tvítugt (fæddur 9.
júní 1924), bráðefnilegur flugnemi og fyrirmyndar
piltur í hvívetna. Hafði hann lengi verið í Svifflugfé-
laginu og lauk þar C-prófi. Ytra var hann búinn að
ljúka minna prófi og var farinn að fljúga einn. Hefir
liann sennilega verið einn í flugvélinni þegar árekst-
urinn varð.
Iþróttamót Skarphéðins
iór fram að Haukadal í gær
JÓHANNES HAGAN.
fallið saman eins og gömul og
slitin harmonika er á leið fund-
inn.
Annars var fundur J>essi með
stillilegra móti og að því leyti
nokkuð frábrugðinn því, sem
menn eiga að venjast á fram-
boðsfundum í Hafnarfirði.
Skemmtunin í Hljóm-
skálagarðinum í gær
Mótið fjölsótt og árangur íþróttamanna
tiltölulega góður.
Héraðasambandið Skarphéðinn hélt íþróttamót sitt að Geysi
í gær. Sigurður Greipsson, formaður sambandsins, setti mótið,
og við setninguna var íslenzki þjóðfáninn hylltur. Lúðrasveit
Reykjavíkur lék, en Pétur Sigurðsson erindreki flutti ræðu.
Um kvöldið var dansað. Geysir gaus fallegu gosi um daginn.
Vísir hafði í morgun tal af
Sigurði Greipssyni, og sagði
hann, að um 1000 manns hefðu
sótt mótið, Jirátt fyrir hráslaga-
legt veður.
Árangurinú í, iþróttagrein-
unum var yfirleitt góður. Fer
liann hér á eftir:
Langstökk:
1. Oddur Helgason (Selfoss)
5.64 mtr.
2. Hjalti Þórðarson (Skeiða-
manna) 5.53 mtr.
3. Guðm. Ágústsson (Vaka)
5.40 mtr.
Þrístökk:
1. Oddur Helgason 12.54 mtr.
2. Guðm. Ágústsson 12.19 mtr.
3. Ólafur Jónsson (Skeiðam.)
11.88 mtr.
2. Kristján Jósteinssson
(Stokkseyrar) 7 vinn.
3. Guðm. Ágústsson 6 vinn.
Þátttakendur í glimunni
voru 10. Skjaldarhafinn frá í
fyrra, Halldór Benediktsson
(Hvöt) keppti ekki. Fegurðar-
glímuverðlaunin lilaut Kristján
Jósteinsson.
Drengjaglíma:
1. Einar Ingimundarson
(Vaka).
2. Björgvin Jósteinsson
(Stokkseyrar).
3. Bjarni Jónsson (Skeiða-
manna).
Framboðsfundurínn
í Haínaríirði.
Kvenfélag Hallgrímssóknar
hélt skemmtun í Hljómskála-
garðinum í gærdag. Var
skemmtunin vel sótt, allt fram á
kvöld, en dofnaði nokkuð yfir
aðsókninni er á leið kveldið, því
þá fór að rigna.
Skemmtunin liófst kl. 2 með
guðsj>jónustu og prédikaði síra
Jakob Jónsson. Því næst flutti
form. félagsins, frá Guðrún Jó-
hannsdóttir frá Brautarholti, á-
varp, en að lokum talaði svo
próf. Guðbrandur Jónsson. Um
kvöldið kl. 9 skemmti Friðfinn-
ur Guðjónsson leikari.
Unga fólkið skemmti sér all-
an daginn við Jiað, „að hlaupa
í skarðið“, en eldra fólkið stóð-
álengdar og horfði á.
Hallgrímskirkjulíkanið var til
sýnis i garðinum allan daginn.
Ekki eru enn neinar upplýs-
ingar fyrir hendi um það,
hversu mikið fé hefir komið inn
fyrir merkjasölu og veitingar,
en gera má ráð fyrir, að Jiað hafi
verið nokkuð drjúgt.
Hástökk:
1. Oddur Helgason 1.55 mtr.
2. Guðm. Ágústsson 1.50 mtr.
3. Magnús Kristjánsson (Self.)
I. 47 mtr.
100 m. hlaup:
1. Guðm. Ágústsson 12.4 sek.
2. Oddur Helgason 12.6 sek.
3. Sighvatur Kristjánssön
(Skeiðam.) 12.7 sek.
800 m. hlaup:
1. Þórður Þorbjörnsson
(Vaka) 2:11,7 min.
2. Böðvar Stefánsson (Hvöt)
2:18,0 mín.
3. Guðm. Jónsson (Selfoss)
2:40,0 mín.
Kúluvarp:
1. Guðm. Ágústsson 42.02 mtr.
2. Sigfús Sigurðsson (Selfoss)
12.00 mtr.
3. Guðm. Benediktsson (Hvöt)
II. 98 mtr.
Kringlukast:
1. Sigfús Sigurðsson 34.77 mtr.
2. Magnús Kristjánss. 28.36 m.
3. Ingvar Þórðarson (Skeiða-
manna) 27.29 mtr.
Spjótkast:
1. Sigfús Sigurðsson 38.88 mtr.
2. Oddur Helgason 36.60 mtr.
3. Haraldur Bachmann (Self.)
36.02 mtr.
Sk jaldarglíma:
1. Steinn Guðmundsson (Ing-
ólfur) 8 vinningar.
Síðastliðinn Iaugardag var
haldinn framboðsfundur í
Hafnarfirði og var hann vel sótt-
ur. Frambjóðendurnir, sem
höfðu boðað til fundarins, Voru
framsögumenn, en þeir eru Þor-
leifur Jónsson fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, Emil Jónsson fyrir
Alþýðuflokkinn, Sigríður Ei-
ríksdóttir fyrir sósíalista og Jón
Helgason fyrir Framsóknar-
flokkinn.
Auk frambjóðenda töluðu eft-
irlaldir menn á fundinum:
Bjarni Snæbjörnsson og Guð-
jón Magnússon af hálfu sjálf-
stæðismanna, Kjartan Ólafsson
og Guðm. Gissurarson af hálfu
aljiýðumanna, Alexander Guð-
jónsson og Ólafur Jónsson fyrir
sósíalista og Sigurður Guð-
mundsson fyrir framsóknar-
menn.
Það sem einkum sérkenndi
Jiennan fund, var það, að hér
komu í fyrst skipti fram mál-
svarar framsóknarmanna og er
óhætt að segja, að þessi fyrsta
ganga þeirra í Hafnarfirði hafi
ekki verið beint gæfuleg. Þrátt
fyrir það, að smalað hafði verið
á fundinn, af framsóknarmönn-
um, úr næstu héruðum, voru
hræður þeirra svo fáar, að þeim
tókst ekki að halda móði í
frambjóðandanum, Jóni Helga-
syni og má segja, að hann hafi
Úrslitakappleikur í íslands-
mótinu í kvöld. - Víkingur
vann K.R. með 2:0
Næstsíðasti kappleikur í Is-
landsmótinu fór fram í gær-
kvöldi og var hann á milli K.R.
og Víkings. Bar Víkingur sigur
úr býtum í þessari keppni með
2 mörkum gegn engu.
Eins og leikar standa hafa
öll félögin tapað leik nema
Fram, sem keppir í kvöld til
úrslita á móti Val. Ekki er unnt
að segja fyrir um lok leiks
þessa, en Fram stendur töluvert
betur að vigi en Valur, þvi
þeim nægir jafntefli til þess að
vinna mótið, en ef þeir tapa,
verða bæði félögin jöfn að stiga-
fjölda og verða að keppa á ný
til úrslita.
Lúðrasveit Rvíkur leikur frá
kl. 8, en kl. 8.30 hefst kappleik-
urinn.
Ríkisstjóri mun mæta á I-
Jiróttavellinum í kvöld og horfa
á leikinn og má búast við að
margt annarra stórmenna komi
lil Jæss að sjá þennan spennandi
leik.
50 ára
er á morgun Árni Jónasson, ullar-
matsmaður á Kaplaskjólsvegi 12.
Bátur
með seglum (léttbátur) hent-
ugur á vötn, tií sölu. Uppl. í
síma 2450, eftir kl. 7. —-
Kaupavinna
fyrir konur og karlmenn,
eldri og yngri, er í miklu úr
vali laus nú Jægar. Sérstak-
lega í nærsveitunum. Hátt
kaup í boði.
Umsækjendur gefi sig
fram sem allra fyrst.
Ráðningarstofa
Reyk javik ur bæjar.
Bankastræti 7. — Sími 4966.
OMnir
nýkomnar.
KJÓLAVERZLUNIN
FIX
Garðastræti 2.
Sími: 1088.
Seljum góða
uppkveikju
Sendum heim.
FISKKASSAGERÐIN.
Sími: 4483.
2
stúlkur
vantar strax á Elli- og hjúkr-
unarheimilið Grund. Uppl.
gefur yfirhjúkrunarkonan.
bifreið
til sölu og sýnis við bifreiða-
stöðina Bifröst frá kl. 7—9 i
kvöld.
er til sölu í Körfugerðinni.
Ódýr
leikföng
Boltar ...... 1.50
Blöðrur............ 0.25
Rellur ............ 1.00
Litabækur........ 1.00
Litakassar ...... 0.50
Hringlur........... 2.00
Flugvélar ......... 2.50
Bílar ............. 2.50
Sprellukarlar .... 2,00
Göngustafir...... 1.00
Puslespil.......... 3.00
Berjafötur ...... 1.50
K. Einar§ion
Björnison