Vísir - 08.07.1942, Page 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsiniðjan h.f.
Herverndin.
jþ ESS var minnst í Bandaríkj-
unum í gær, að ár var þá
liðið frá þvi er herlið þaðan steig
á íslenzka grund, en svo sem
kunnugt er höfðu þá undanfarið
farið fram samningaumleitanir,
er leiddu til þess, að íslenzka rík-
isstjórnin æskti eftir hervernd
Bandaríkjanna. Var hér þannig
á engan hátt um nýtt hernám
að ræða, heldur vernd sam-
kvæmt sérstökum milliríkja-
' samningi.
Segja má að með beiðni þess-
ari hafi Islendingar viðurkennt
þær staðreyndir, að Island væri
komið í liringiðu stórviðburð-
anna, og að það væri sjálft þess
ekki um komið að gæta réttar
síns gagnvart aðvífandi yfir-
gangi, hvaðan sem hann kynni
að koma. Hervernd Bandaríkj-
anna var þvi íslenzku þjóðinni
hið fyllsta öryggi, og i bili dró
hún úr yfirvofandi hættu hern-
aðaraðgerða hér á landi, með því
að Bandaríkin voru ekki komin
formlega i stríðið, er þau tóku
að sér vernd landsins. Með þessu
skrefi nálguðust Bandaríkin
stórlega styrjaldarvettvanginn,
og má segja að þessi athöfn væri
ótvíræður fyrirboði þess, sem
verða vildi, þótt enn væri ekki
teningunum kastað, en að því
hafinn undirbúningur.
Til þess að ganga úr skugga
um hve ísland er mikilvægt frá
hernaðarlegu sjónarmiði, þarf
ekki annnð en að líta í amerísk
blöð. I öðru hvoru blaði getur að
líta uppdrátt af norðurhveli
jarðar, þar sem siglingaleiðin er
sýnd frá Bandaríkjunum til
Bretlands og Rússlands, en á
þeirri leið er ísland einskonar
miðstöð í norðanverðu Atlants-
hafi. Allar leiðir liggja hér um
og hér er ákjósanleg aðstaða
jafnt til sóknar og varnar. Her-
vernd Bandarikjanna miðar því
ekki fyrst og fremst að því, að
vernda íslenzka hagsmuni, held-
ur samtimis og miklu frekar að
hinu, að vernda þeirra eigin
hernaðarlegu hagsmuni og sig
sjálf. Um það var mikið rætt í
Bandaríkjunum áður en her-
námið fór fram., að Island og
Grænland væru stiklur milli Ev-
rópu og Ameríku. Lýsti Adoiph
Berle, aðstoðarutanríkismála-
ráðlierra Bandaríkjanna, þessu
einnig í útvarpsræðu frá Bost-
on, er endurvarpað var einnig
hér í gær. Kvað hann að innrás
hefði verið fyrirhuguð í Banda-
rikin um ísland, Grænland og
Canada, jáfnframt því, sem á-
rás yrði hafin úr austri frá
hendi Japana. Hefðu þvi Banda-
rikin óhjákvæmilega neyðst til
að fá hér bækistöð til hernað-
arframkvæmda.
Það urðu íslendingum mikil
vonbrigði, er landið var her-
numið af Bretum. Þjóðin hafði
vonað, að hún fengi, eins og i
fyrra stríði, að lifa í friði utan
við hamfarir ófriðarins. Úr því
hinsvegar Svo var komið, sætti
þjóðin sig vel við hervemd
Bandaríkjanna og taldi i henni
felast hið mesta öryggi, sem
unnt var að fá, á þessum vand-
ræðatímum. Var það þjóðinni
einnig mikill hagur, að Banda-
ríkjastjórn skuldbatt sig til að
gæta Iiagsmuna íslands i hví-
vetna, birgja landið upp af nauð-
synjavörum og gera við það
hagkvæma viðskiptasamninga.
Evrópumarkaðurinn var Islend-
íngum lokaður, og hefði það
Ieitt til hinna mestu vandræða
fyrir þjóðina í langvarandi styrj-
öld. Jafnframt þessu lýsti stjórn
Bandarikjanna vfir því, að
herstyrkur þeirra hér á landi
myndi veíða kvaddur lieim að
stríðinu loknu og í öðru lagi
skvldi áherzla lögð á, að algjört
sjálfstæði og fullveldi Islands
yrði viðurkennt við væntanlega
friðarsamninga. I>etta hvort-
tveggja er íslendingum mikils
yirði.
Aldrei fer það svo, að ekki
Iiljótist einhver óþægindi af
dvöl fjölmenns setuliðs í fá-
mennu landi, og ei ber þvi að
leyna, að sú hefir raunin orðið
hér. Tjáir ekki um að sakast,
einkum þar sem vitað er, að
foringjum Bandarikjahersins er
það engu siður áhugamál en is-
lenzkum stjómarvöldum, að
samhúðin verði sem árekstra-
minnst. Hefir j>etta þráfaldlega
sýnt sig og komið fram i marg-
víslegri tilhliðrunarsemi, sem
þakka ber og meta að verðleik-
um. íslenzka þjóðin hefir aldrei
fyr umgengist fjölmennt erlent
setulið og jækkir ekki lieraga.
Kanu það að hafa í för með sér
vissa erfiðleika. Þrátt fyrir allt
verður ekki annað sagt, en að
alger meirihluti þjóðarinnar
umgangist hið erlenda lið á við-
eigandi og réttan hátt. Sambúð-
in mun leiða til þess, að er strið-
inu lyktar, kemur íslenzka
þjóðin út úr því sterkari og
sjálfri sér samkvæmari en hún
hefir verið fyr og í rauninni
miðar allt til góðs, ef rétt er á
haldið. Þótt reyna kunni á þol-
rifin, þurfUm við íslendingar
ekki að ganga i gegnum þann
hreinsunareld, sem aðrar þjóðir
eiga við að stríða, en hér mun
reynast jafn lireinn málmur og
í öðrum löndum, er hann kem-
ur úr deiglunni.
íslenzka útvarp-
ið frá Boston.
Endurvarpið tókst
B ágætlega,
í gær kl. 6.30 var endurvarp-
að útvarpi frá Boston, þar sem
sendiherra íslands í Washing-
ton, Thor Thors, flutti erindi á
íslenzku, María Markan, óperu-
söngkona, söng nokkur lög og
Mr. Adolf Berle, aðstoðarutan-
ríkismálaráðherra Bandaríkj-
anna, flutti stutt ávarp. Endur-
varpið tókst ágætlega.
Bæði ráðherrann og sendi-
herrann lögðu ríka áherzlu á
nána samvinnu og náið samstarf
milli íslands og Bandaríkjanna
i framtíðinni, þvi að þessi lönd
ættu eftir að tengjast traustum
menningar og viðskiptabönd-
um og að sameiginleg hugsun
beggja væri frelsi og mannrétt-
indi.
Thor Thors kvað okkur vilja
búa eina í okkar eigin landi. En
á þessum tímum, sem nú dyndu
yfir, hefði okkur skilist, að ekki
var unnt að lifa einangrað í
skjóli hlutleysis.Hinsvegar hefði
BandaríkjastjóA gefið loforð
um að hverfa héðan á brott með
her sinn að styrjöldinni lokinni
og að tryggja fullkomið sjálf-
stæði íslenzku þjóðarinnar.
Hann sagði í lok ræðu sinnar,
að Bandarikin litu með aðdáun,
velvild og umhyggju til okkar
íslendinga.
Útvarp jietta fór fram í tilefni
af þvi, að eitt ár er liðið frá því
að Bandaríkin sendu herliff til
íslands.
Sjálfstæðismenn hafa nú
fengið 10 menn kjörna.
Gísli Jónsson kosinn í Barðastrandarsýslu.
í gærkveldi var lokið við talningu í ellefu sýslum sem
eru: Snæfellsness-ogHnappadálssýsla, Dalasýsla, Barða-
strandarsýsla, Vestur-ísaf jarðarsýsla, Strandasýsla,
Norður-Þingey jarsýsla, Vestur-Skaptafellssýsla, Skaga-
f jarðarsýsla, Suður-Múlasýsla og Ámessýsla. tlrslií í
þessum kjördæmum urðu sem hér segir:
Snæfellsnes-
og Hnappadalssýsla.
Frambjóðandi Framsóknar,
Bjarni Bjarnason, var kjörinn
þingmaður með 648 atkv. (433).
Gunnar Thoroddsen (S) fékk
578 atkv. (752), Ólafur Frið-
riksson (A) hlaut 158 atkv.
(222), Guðmundur Vigfússon
(Sós.) 23 atkv. (7) og Alexander
Guðmundsson fékk 60 atkv.
Dalasýsla.
Þorsteinn Þorsteinsson (S)
var kjörinn þingmaður með 357
atkv. (Bændafl. við kosn. 1937
fékk 402). Pálmi Einarsson (F)
hlaut 307 atkv. (321), Gunnar
Stefánsson (A) fékk 13 atkv.
(16) og Jóhannes úr Kötlum 33
atkv. (1).
<
V estur-lsafjarðarsýsla.
Ásgeir Asgeirsson (A) var
kosipn með 460 atkv. (utanfl.
fékk síðast 497). Bárður Jak-
obsson (S) hlaut 197 atkv. (411)
og Halldór Kristjánsson (F)
fékk 345 atkv. (256).
\
Strandasýsla.
Hermann Jónasson (F) hlaut
kosningu með 524 atkv. (632),
Pétur Guðmundsson (S) fékk
210 atkv. (Bændafl. fékk 311 at-
kv. við síðustu kosn.) og Björn
Kristmundsson (Sós.) fékk 58
atkv. (4).
i
f
N or ður-Þingeyjarsýsla.
Gísli .Guðmundsson (F) var
kosinn þingmaður með 608 at-
. kv. (539), Benedikt Gíslason (S)
fékk 133 atkv. (183), Benjamín
Sigvaldason (A) lilaut 23 atkv.
(48) og Kristján Júlíusson
(Sós.) fékk 49 atkv. (34).
!V
I
Vestur-Skaptafellssýsla.
Sveinbjörn Högnason (F)
kosinn með 460 atkv. (289 síð-
ast), Gísli Sveinsson (S) fékk
378 atkv. (436), Guðjón B.
Baldvinsson (A) 12 atkv. (32)
og Hlöðver Sigurðsson (Sós.)
20 atkv. (16).
Skagafjarðarsýsla.
Kosnir voru Pálmi Hannesson
(F) með 1099 atkv. (1072) og
Sigurður Þórðarson (F) með
1125 atkv. (1066). Pétur Hann-
esson (S) fékk 751 atkv. (983)
og Jóhann Hafstein (S) 657 at-
kv. (972). Ragnar Jóhannesson
(A) 75 atkv. og Ármann Hall-
dórsson (A) 74 atkv. Þóroddur
Guðmundsson (Sós.) 71 atkv.
og Pétur Laxdal (Sós.) 73 atkv.
Árnessýsla.
Kosnir voru Jörundur Brynj-
ólfsson (F) með 1323 atkvæðum
(1305) og Páll Hallgrímsson (F)
með 1196 atkv. (1253). Eirikur
Einarsson (S) fékk 835 atkv.
(1075) og Sigurður Ólafsson (S)
fékk 687 atkv. (989). Ingimar
Jónsson (A) hlaut 182 atkv.
(170) og Gunnar Benediktsson
(Sós.) 213 atkv. (8).
Suður-Múlasýsla.
Kosnir voru Eysteinn Jónsson
(F) með 1117 atkv. (1116) og
Ingvar Pálmason (F) með 1049
atkv. (1000). Árni Jónsson (S)
hlaut 538 atkv. (686) og Jón
Sigfússon (S) fékk 480 atlcv.
(620). Jónas Guðmundsson (A)
fékk 262 atkv. (562) og Eyþór
Þórðarson (A) 190 atkv. (408).
Arnfinnur Jónsson (Sós.) hlaut
369 atkv. (332) og Lúðvík Jó-
I
sepsson (Sós.) fékk 415 atkv.
(261).
Barðastrandasýsla.
Gísli Jónsson (S) hlaut kosn-
ingu með 610 atkv. (406). Steip-
grímur Steinþórsson (F) fékk
533 atkv. (565), Ilelgi Hannes-
son (A) hlaut 126 atkv. (290)
og Albert Guðmundsson (Sós.)
. fékk 83 atkv. (62).
: Veröhækkun á nokkr-
um vörutegundum.
Samkvæmt heimild í lögum
hefir dómnefnd í kaupgjalds- og
verðlagsmálum ákveðið að setja
n'ýtt hámarksverð á eftirtaldar
vörur:
Kaffibætir i heildsölu er nú
kr. 4.50 pr. kg., en var kr. 4.10
áður; og í smásölu er verðið kr.
5.20 á kg., en var kr. 4.80 pr. kg.
Verð á eggjum í júli og ágúst
hefir vei’ið liækkað upp í kr.
9.00 pr. kg. í heildsölu og kr.
10.80 pr. kg. í smásölu, en var
í júní kr. 7.00 í heildsölu og kr.
8.40 í smásölu á livert ltg. Hveiti
hefir hækkað litils háttar og er
verðið í heildsölu nú kr. 54.60
pr. 100 kg., en var kr. 53.49 pr.
100 kg. I smásölu er kg. selt nú
á kr. 0,68, en áður á kr. 0.67.
Molasykur kostar nú kr. 118.50
pr. 100 kg. í heildsölu, en áður
ki’. 111.95 pr. 100 kg. Smásölu-
verðið er kr. 1.48 pr. kg., en var
áður kr. 1.40 pr kg. Strásykur
hækkar úr kr. 95.56 pr. 100 kg.
upp í kr. 109.20 pr. 100 kg. í
heildsölu og úr kr. 1.19 pr. kg.
upp í kr. 1.36 pr. kg. í smásölu.
Þrátí fyrir þessa ákvörðun
um hámarksverð, má álagning u
hveiti, molasykri og strásykri
aldrei fax-a frain úr 6y2% i
heildsölu og 25% í sniásölu.
Hækkunin á strásýkri og
molasykri hér í bænum verður
ekki eins mikil og verðhækkun-
in nemur samkvæmt framan-
skráðu, sökuin þess, að kaup-
inenn í Reykjavik eiga enn í fór-
um sínum miklar birgðir af
þessum vörutegundum frá fyrri
tíð, en nýlega hefir SlS flutt inn
dýrari sykur (mola og strá),
sem verður með þessu framan-
greinda hámarksverði og verða
þær birgðir fluttar út á land.
Verður því sykur úti á landi dýr-
ari en hér í bænum og mun kg.
af molasykri kosta þar kr. 1.48,
en verður kr. 1.40 hér í bænum
fyrst framan af og hækkar ekki
meir en upp í kr. 1.44 pr. kg.
Strásykurverð úti á landi (hjá
SÍS) verður kr. 1.36 pr. kg., en
kr. 1.19 lxér og getur hækkað
mest upp í kr. 1.24 pr. kg.
Noregssöfnunin (6. júlí).
Afh. frá Morgunblaðinu 5810.
Hildur Einarsd. og Einar Jónsson,
bæði sjúkl. 15 kr. Guðrún Reykholt
ío kr. Sigurleif Sigurðardóttir 15
kr. Præp. kon. Ófeigur Vigfússon,
Fellsmúla 15 kr. Halldór Jpnsson,
sóknarprestur, Reynivöllum 100
kr. Kristín Eyjólfsdóttir 5 kr. Ásta
Jónsdóttir 10 kr. Ragnar Jónsson 5
kr. Steini Guðmundsson, Valdast.
20 kr. V.B.K. 500 kr. Starfsfólk
bæjarsímans og landssímans 1060
kr. Skáti (í þakklætisskyni fyrir
fyrirl. próf. Worm-Múller 100 kr.
Safnað af sr. Stanley Melax í
Fljótasókn 225 kr. H.f. Miðnes 300-
kr. A. J. Bertelsen & Co. 200 kr.
Frá íbúum Þingeyrarkauptúns
(meira síðar) 900 kr. Söfnun í
Iiólmavík og nágrenni kr. 1052.50.
Safnað af frk. Dýrleifu Jónsdóttur
í Drangsnesi kr. 227.50. Samtals
10.570 kr. Áður tilkynnt 139.638 kr.
Alls 150.208 kr.
Síldveidi
nyrðra.
Frá Dalvík var símað í gær,
að bátarnir Leifur Eiríksson og
Björn Jörundsson, sem getið var
í blaðinu í gær, hafi í fyrrinótt
fyllt sig þar á firðinum og feng-
ið samanlagt 700 mál síldar.
Aðrir bátar búa sig sem óðast
til síldveiða um þessar mundir,
þvi að eftir öllu að dæma virðist
síldin vaða.
Fjöldi síldarskipa var undir
Hrísey í gærmorgun.
Frá Siglufirði barst eftirfar-
andi skeyti:
Gunnbjörn frá Isafirði kom
i dag kl. 16 nxeð fyrstu síld til
Síldai-verksmiðja ríkisins, 400
mál, er veiddist við Hrísey. Óð
síldin ekki mikið, en gott að
eiga við lxana. Voru margir þar
P bátum, ennfremur ýmsir í
bátunx við Rauðanúpa. Sild sást
á Gi-ímseyjarsundi í morgun.
Baldur.
Bæjar- og hafnar-
verkamenn fara fram
á kjarabætur.
90 hafnarverkamenn og 114
bæjarverkamenn fara fram á
kjarabætur, við hafnarstjóm og
bæjarráð.
Kröfur hafnarverkamanna
eru þær, að dagvinnutími þeirra
verði styttur niður i 8 vinnu-
stundir, miðað við 10 vinnu-
stundir og að kaffitimi þeirra
haldist í hlutfalli við unnin tíma.
Að unnir verði tveir eftirvinnu-
tímar daglega og greiðist þeir
með 50% álagi á dagvinnukaup.
Og að verkamennimir fái tæki-
færi til að vinna seinnipart hvers
laugardags af sér á öðrum virk-
um dögum.
Kröfur bæjarvinnumanna eru
mjög líkar, en þó lítið eitt frá-
brugðnar, samkvæmt þeirri
venju, sem rikt hefir um vinnu
þessara manna.
Bæjarráð mun taka þessar
kröfur til meðferðar á fundi n.
k. föstudag.
Hjónaband.
Síðastliðinn fimmtudag voru gef-
in saman í hjóriaband á Akure. af sr.
Friðrik Rafnar, vigslubiskupi, ung-
frú Ásta Thoroddsen (Guðmundar
próf.) og Edwald B. Malmquist,
ráðunautur.
Síðastl. laugardag voru gefin
satnan í hjónaband af síra Garðari
Svavarssyni, ungfrú Áslaug Ágústs-
dóttir og Skúli Bjömsson (Jónsson-
ar kaupm. í Ásbyrgi). Heimili þeirra
er á Laugaveg 139.
Leikhúsmál.
3.—4. hefti 2. árg. er nýkomið út.
Aðalefni þess skrifar ritstjórinn
sjálfur, Haraklur Björnsson leik-
ari. Skrifar hann m. a. um íslenzka
leiklist V. (leiktjöld), Moliere, Poul
Renmert og Sif Þórs. Auk þessa
skrifar Lárus Sigurbjörnsson um
fyrstu leikritaskáld íslands (Pál J.
Árdal), Bjarni Bjarnason skrifar
um Pétur Á. Jónsson óperusöngv-
ara, Jón J. Sigurðsson skrifar um
kvikmyndahúsin og Árni Helgason
um Leikstarfsemi á Eskifirði. —
Nokkrar fleiri og smærri greinar
eru í heftinu. Prýða það fjöldi
mynda að venju.
Næturlæknir.
Halldór Stefánsson, Ránargötu
12, simi 2234. — Næturvörður er
i Lyfjabúðinni Iðunni.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.25 Hljómplötur: Lög úr
óperum. 20.00 Fréttir. 20.30 Er-
indi: Stofnun fyrsta fríldrkjusafn-
aðar á íslandi (Ásmundur Helga-
son frá Bjargi — J. Þór.). 20.55
Einleikur á pianó (ungfrú Margrét
Eiríksdóttir): a) Prelúdía og fúga
í g-moll, eftir Bach-Szántó. b)
Ccherzo i es-moll, eftir Brahms.
c) Nocturne í E-dúr, Op. 62, nr. 2,
eftir Chopin. d) Jardins sous la
Pluie, eftir Debussy. 21.25 Upplest-
ur: Kvæði (Guðmundur Finn-
bogason- landsbókavörður). 21.30
Hljómplötur: Þjóðlög frá ýmsum
löndum. 21.50 Fréttir.
Húsnæði
Þeir, sem vildu leggja
fram nokkur þúsmid krónur
gegn tryggingu ti! að fullgera
þægilega íbúð, gætu fengið
íbúðina leigða að innrétting-
unni lokinnL
Leggið nöfn yðar inn á
afgr. Vísis fyrir 12. júlí n. k.,
merkt: „íbúð 1942“.
2ja tonna, í góðu standi, til
sölu og sýnis á Óðinstorgi frá
kl. 7—9.
2 stúlkor
óskast í hreinlega fram-
leiðsluvinnu. A. v. á.
Dugleg
kaupakona
óskast á ágætt heimili í ná-
grenni Reykjavíkur. Véla-
heyskapur. Fjölmennt heim-
ih. Hátt kaup. Uppl. í sima
2718 og 2183.
2 stúlkor
óskast vegna sumarfrfá.
Hcitt A Kalt
"WILTON
Jón Halldórsson & Co. hX
Sími: 3107.
Harpó
ry ð var narmálning.
pHfœmmr
MHÍW
Nýkomnar.
Sími 1884. Klapparstíg'30.