Vísir - 21.07.1942, Qupperneq 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 6 60 (fimm Hnur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Fölsk velgengni.
J*ÁTT er það, sem okkur ís-
lendingum verður ekki að
meini. Það er nokkurn veginn
sama hvað á dágana 'drífur, alll
skapar vandræði, umræður og
blaðaskrif. Ríki atvinnuleysi i
landinu, er mikið um það rætt
og allir nokkurn veginn sam-
mála um að eitthvað beri að
gera, en svo er ekkert gert, sem
að gagni kemur. Skorti gjaldeyri
og heftist innflutiiingur af þeim
sökum, er sömu sögu að segja,
en þó verður vandinn enn meiri,
ef svo einkennilega vill til að
þjóðinni áskotnast verulegur
gjaldeyrir og skilyrði fyrir
auknum innflutningi hatna. Við
erum orðnir svo vanir örbirgð-
arhjarinu, að svo sýnist, sem
við unum ekki öðru hlutskipti.
Það er ekkert eðlilegra, en að
allmildar sveiflur séu í f járhags-
afkomu þjóðarinnar. Fram-
leiðslan er fábreytt, og má heita
að við lifum að mestu á út-
flutningi matvæla. Framleiðsla
jjeirra er liér dýrari, óhægari og
erfiðari en tíðkast með öðrum
þjóðum, og á venjulegum tím-
um leiðir þetta til þess, að við fá-
um lægra verð fyrir vörur okk-
ar en hinn raunverulega fram-
leiðslukostnað, — erum í raun
og sannleika ekki samkeppnis-
færir. Á styrjaldartímum, —
þegar dregur úr framleiðslu ó-
friðaraðilanna, og öllum, kröft-
um er einbeitt að vigbúnaðar-
framleiðslunni, eykst loks eftir-
spurnin eftir hinum íslenzku
matvörulegundum sem öðrum,
verðið liækkar þannig að af-
koma þjóðarinnar verður sæmi-
leg i svip. Það mætti þó vera öll-
um lýð ljóst, að styrjaldarástand
varir ekki nema stutta stund, og
strax er því lýkur skapast jafn-
vægi að nýju, annarleg sam-
keppni hefst og íslendingar
verða sem fyr að lepja dauðann
úr skel, af því að þeir eru ekki
samkeppnisfærir og á engan
liátt sjálfum sér nógir.
Það er athyglisvert, að ein-
mitt á liinum svokölluðu gróða-
árum erum við í rauninni stöð-
ugt að eyða verðmætum, í stað
þess að afla nýrra og gera at-
vinnugreinirnar fjölþættari. Þau
framleiðslutæki, sem fyrir eru
í landinu, er ekki hægt að endur-
nýja, sum farast með öllu, en
önnur ganga úr sér og eyðast
smátt og smátt. En það eru ekki
atvinnutækin ein, sem um má
þessa sögu segja. Jafnvel landið
sjálft er háð sama örlagadómi.
Á undanförnum árum höfum
við keppt að því með miklum
dugnaði, að auka ræktun lands-
ins. Túnrækt hefir margfaldast,
en að sama skapi hefir dregið úr
hagnýtingu úthaga, nema til
beitar. En svo ömurlegt er hlut-
skipti okkar, að þau verk, sem
að aukinni ræktun hafa miðað,
verða einskisvirði á styrjaldar-
tímum, eða geta orðið það, með
því að oklcur skortir nauðsyn-
legan áburð, til þess að halda
við ræktuninni, hvað þá að auka
hana áframhaldandi, enda koma
ýmsir erfiðleikar í veg fyrir að
svo verði gert. En sér þá ekki
hver maður hvað framundan er,
þegar atvinnutækin og jafnvel
landið sjálft gengur úr sér svo
sem að ofan er lýst. Þetta þýðir
að atvinnuvegirnir dragast sam-
an, geta á engan hátt veitt þjóð-
inni sæmilega lifsafkomu, hvað
þá tekið við þeirri fólksfjölgun,
sem orðið hefir á styrjaldarái'-
unum, en ætla má að í liópinn
bætist 1200—1400 manns á ári
liverju.
Það er því beinlínis hlægilegt,
þegar hin socialistísku málgögn
ræða af mikluni fjálgleik um
aukna velgengni þjóðarinnar.
Það er fjarri öllum sannleika,
enda verður engin þjóð auðug
vegna styrjaldar. Sá auður er
stundargróði, en ekki til fram-
búðar. Ef við gælum komið ár
okkar svo fyrir borð, að unnt
væri að viðhalda, endurnýja og
umbæta atvinnutækin og at-
vinnuvegina, væri all.t öðru máli
að gegna. Hið eina, sem að gagni
getur komið, er að verja þeim
verðmætum, sem nú kunna að
aflast, til þess að forða tilfinn-
anlegustu skellunum eftir stríð-
ið, en það verður ekki gert nema
því aðeins, að þjóðin gæti ýtr-
asta sparnaðar og leggi i sjóði,
þannig að hún verði undir erfiðu
árin búin af fullri fyrirhyggju.
Hér hefir allt til þessa stefnt í
öfuga átt. Fólkið óttast pening-
ana, — gengur út frá því, að
þeir séu og verði einskisvirði.
Þetta kemur m. a. fram í stór-
auknum fasteignakaupum
ýmsra aðila og svo háu verði
fasteigna, liverju nafni sem
nefnast, að slíkt gengur brjál-
æði næst. Af þessum orsölcum er
það einnig að allt verðlag á is-
lenzkri framleiðslu á innan-
landsmarkaði er spennt svo hátt
að engu tali tekur, og kauplag
fylgir dyggilega eftir í sam-
keppninni. Við erum sjálfir að
gera þann pening einskisvirði á
morgun, sem unnið er fyrir í
dag, og við erum að grafa
grundvöllinn undan heilbrigðri
framtíð íslenzku þjóðarinnar,
með skammsýnum kröfum og
máttvana stefnuleysi í einu sem
öllu á sviði fjármála og at-
vinnumála.
Ríkisstjóri ferðast um
V.-Skaptafellssýslu.
Skrifstofa ríkisstjóra sendi
blöðunum í gær eftirfarandi til-
kynningu:
Ríkisstjóri íslands Sveinn
Rjörnsson er nú á lieimsóknar-
ferðalagi í Vestur-Skaptafells-
sýslu. Kom hann s.l. laugardag,
18. þ. m. til Víkur í Mýrdal, en
sýslumaður Skaptfellinga, Gísli
Sveinsson, tók á móti lionum
við Jökulsá á Sólheimasandi. 1
Víkurkauptúni blöktu fánar á
stöng, er ríkisstjóri kom þangað.
í gær, sunnudaginn 19. þ. m.,
skoðaði ríkisstjóri með sýslu-
manni Mýrdalinn, en síðar um
daginn þáði hann kaffiboð með
nokkrum trúnaðarmönnum
fólksins vestan Mýrdalssands,
svo sem sýslunefndarmönnum,
oddvitum, hreppstjórum og
fl. starfsmönnum. Um. kvöldið
dvaldi ríkisstjóri á heimili sýslu-
inanns..í dag fer ríkisstjóri aust-
ur að Kirkjubæjarklagstri á Síðu
með viðkomu að Flögu í Skapt-
ártungu, og á morgun, þriðju-
dag, skoðar hann Síðuna, eftir
því sem tími leyfir, en kemur
aftur til Víkur á miðvikudag.
Á eftir heimsókn í Skaptafells-
sýslu fer ríkisstjóri um Rangár-
vallasýslu og Árnessýslu.
Útvarpið í kvöld.
Kl. T9.25 Hljómplötur: Lög úr
óperettum og tónmyndum. 20.00
Fréttir. 20.30 Erindi: Frá Sebasto-
pol (Skúli H. Magnússori).,20.55
Hljóinplötur: a) Spænska skemmti-
lagið eftir Rimsky-Korsakow. b)
(21.10) Symfónía nr. 2 eftir Rach-
maninoff.
25 ára hjúskaparafmæli
eiga í dag Ólafía Einarsdóttir og
Pétur *Lárusson, skrifstofufulltrúi
Alþingis.
Um 60 þús. kr. í samskotum
til Hallgrímskirkj u.
En betnr má ef dnga skal.
Viðtal við síra Jakoh Jónsson.
Unnið er stöðugt að undirbúningi væntanlegrar byggingu
Hallgrímskirkju í Reykjavík. Fjársöfnunin er í fullum gangi
og happdrættismálinu er haldið vakandi eftir sem áður, þrátt
fyrir þá miklu örðugleika, sem eru á því að hrinda bygginga-
málum í Iramkvæmd.
Tíðindamaður Vísis sneri sér
til síra Jakobs Jónssonar og afl-
aði hjá honum ujjplýsinga um
málefni Hallgrímskii'kju.
„Eins og kunnugt er af frá-
sögnum blaðanna í vetur,“ sagði
síra Jakob, „var gefin lóð í því
skyni að reisa á henni íbúðar-
hús, er siðar yrði eflt til happ-
drættis um, til ágóða fyrir Hall-
grímskirkju.
Mikið af efninu, sem þarf til
hússins er tryggt, en nokk-
uð af því er ekki alveg í
hendi. Um þessar mundir eru
miklir örðugleikar á öllum
byggingaframkvæmdum eins og
allir vita, en þrátt fyrir það
treystum við að úr rætist fyrir
okkur.
Þar af leiðandi heldur happ-
drættisnefndin líka áfram störf-
um eftir sem áður, enda er á-
hugi fólks almennt mikill fyrir
happdrættinu. Það er búið að
prenta megnið af liappdrættis-
miðunum, en við viljum elcki
setja þá í umferð, né byrja að
selja þá, fyr en allt efni er tryggt
og komið á staðinn, svo fólk
verði ekki fyrir vonbrigðum, né
geti ásakað nefndina á nokkurn
hátt.“
„Hvernig ganga samskotin til
kirkj ubyggingarinnar ?“
„Um þau er það að segja, að
frá því í októberbyrjun og til
þessa tíma, hafa safnast rúm-
lega 58 þúsund krónur. Koma
þau jafnt og þétt, bæði frá ýms-
um fyrirtækjum og almenningi.
Peningasendingar og áheit virð-
ast færast i aukana úr sveitum
landsins, og það her glcðilegan
vott um, að ekki sélitiðákirkju-
bygginguna sem sérmál Hall-
grimssafnaðar, lieldur mál, seín
almenning varði.
Fólk gefur til kirkjunnar í
ýmsu tilefni, svo sem minning-
argjafir um látna ástvini, oft
gefa ung hjón kirkjunni gjafir í
tilefni af því að fyrsta barnið
lieirra fæðist. Sjómenn heita á
og gefa kirkjunni í ýmsum til-
efnum, t. d. ef þeir ná landi fyr-
ir vissan tíma o. s. frv. Loks
gefa margir beinlínis af þakk-
lætistilfinningu til Hallgríms
Péturssonar.
Eg skal skýra yður frá einu
atviki, sem mér mun ávallt
verða minnisstætt. — Þannig
var mál með vexti, að fyrir
nokkrum dögum var dyrabjöll-
unni hringt, eg fór til dyra, og
frammi á ganginum stóðu tvö
stúlkubörn. Önnur stúlkan snéri
sér að mér, færði mér nokkrar
krónur, sem hún kvað.vera gjöf
lil Hallgrímskirkju, og jafn-
framt gat liún þess, að þetta
hefði hún unnið sér inn sjálf.
Eg liefi sjaldan séð noklcurt
andlit ljóma jafn innilega af
falslausri og saklausri gleði sem
þessa barns, þegar það var að
afhenda mér gjöfina. Eg mun
seint fá gleymt þeim svip. — Til
skýringar skal eg geta þess að
stúlkubarn þetta hefir sótt
ba^iaguðsþjónustur í Hall-
grímssókn i vetur.“
„Hvernig er aðbúnaður kirkj-
unnar og kirlcjumálanna í Hall-
grímssókn um þessar mundir?“
Eins og yður, og Reykvíking-
um yfirleitt, mun kunnugt, eru
guðsþjónustur haldnar í bíósal
Auslurbæjarskólans, og þó að
forráðamenn skólans liafi allir
verið af vilja gerðir og velvildar
i .okkar garð, ber þvi ekki að
neita, að hjálpsemi þeirra er
þeim sjálfum til baga, þar sem
skólinn hefir ekki aðgang að
salnum á meðan við erum í
lionum.
Á hinn bóginn er það vitan-
legt, að samkomusalur, sama
live smekklega liann er skreytt-
ur, og að öðrujeyti vel úr garði
gerður, kemur aldrei fullkom-
lega í staðinn fyrir kirkju.
Lolcs Iier þess að geta, að
starf kirkjunnar er líka fólgið í
öðru en almennum guðsþjónust-
um. Og við, prestarnir í Hall-
grímssókn, höfum orðið að
flýja á náðir skólans til að fá
stofu til fermingarundirbúnings
— en samkomustað til unglinga-
funda eða annars slíks höfum
við engan.
En þrátt fyrir þá anrtmarka,
sem á eru, að ýmsu leyti, viljum
við prestarnir umfram alll hafa
starfsstöð okkar jnnan presta-
kallsins. Þar byggist smám
saman upp söfnuður, seni á sin-
um tíma á að vera þess um-
kominn, að bera uppi starfsemi
þá, sem tengd verður við Hall-
grímskirkju jiegar hún verður
komin upp.“
Þannig fórust síra Jakobi
Jónssyni orð. En blaðið vill
bæta því við frá sinni hálfu, að
þó samskotin liafi gengið til-
tölulega greiðlega, þarf þó
miklu meira til, því að með
byggingu Hallgrímskirkju á að
reisa eitt veglegasta guðshús
þessa lands, og þess vegna þurfa
ekki bæjarbúar einir, heldur og
landsmenn allir, að sjá sóma
sinn i þvi, að leggja nokkurn
skerf til hinnar miklu og fögru
byggingar.
ísfirzkt skip bjargar
hollenzkum togara.
ryrir um mánuði, er vél-
* skipið Richard, var á
siglingu til Englands með
farm af ísfiski, bjargaði
það hollenzkum togara, er
var á reki undan vestur-
strönd Skotlands í vondú
| veðri.
I Skipstjóri á v.s. Richard er
Eyþór Hallsson og segist hon-
um frá björguninni á þá leið,
sem nú skal greint:
j Richard var staddur um 10
mílur undan Rarra Head, sem
er syðsti oddi Suðureyja (He-
brides-eyja), þegar skipverjar
koinu auga á skip, er hafði uppi
néyðarmerki. Var veður þá
frekar vont, strekkingur af
norðaustri og talsverður sjó-
gangur.
Skipstjóri á Richard breytti
þegar um stefnu og sigldi til
hins nauðstadda skips og kom
þá i ljós, að hér var um hol-
lenzkt botnvörpuskip að ræða.
Kváðu skipverjar á Jivi, að vélin
væri brotin og óskuðu eftir því,
að Richard drægi það til Fleet-
wood. Var Jiá strax hafizt handa
um að koma dráttartaug um
borð í skipið og gekk Jiað greið-
lega.
Förin til lands sóttist seint,
enda þótt vindur væri ekki bein-
línis óhagstæður. Vár leiðin til
Fleetwood 236 milur og tók það
rúmlega tvo sólarhringa að
draga skipið J)angað. Hollenzka
skipið var með um 700 kitt af
isfiski og seldi það aflann þegar
komið var í höfn. Hefir það ver-
ið gert út frá Fleetwood síðan
Þjóðverjar réðust inn i Holland.
K. R. hefur flest
/ stig.
Úrslit f kvöld.
Allslierjamiótið hélt áfram í
gærkveldi. Veður var mjög ó-
hagstætt til keppni vegna kulda,
og mun það að verulegu leyti
hafa hamlað íþróttamönnunum.
Urslitin í einstökum íj)róttum
urðu sem hér segir:
4X 100 m. boðhlaup:
1. Sveit KR 46,7 sek.
2. A-sveit Ármanns 47,5 sek.
3. FH 47,7 sek.
4. B-sveit Ármanns 49,4 sek.
(ísl. met er 45 sek.)
i
Spjótkast:
1. Jón Hjartar KR 52,33 m.
2. Jóel Sigurðsson ÍR 49,77 m.
3. Jens Magnússon KR 45,28 m.
4. Anton Björnss. KR 43,25 m.
(Met er 58,78 m.)
400 m. hlaup:
1. Sigurg. Ársælss. Á 53,5 sek.
2. Jóhann Bernhard KR 53,9 s.
3. Brynj. Ingólfss. KR 54,0 s.
4. Hörður Hafliðas. Á 57,2 sek.
(Metið er 52,6 sek.)
*
Þrístökk:
1. Oliver Steinn FH 13,01 m.
2. Skúli Guðm.ss. KR 12,98 m.
3. Jón Hjartar KR 12,65 m.
4. Stefán Jónsson Á 11,41 m.
(Metið er 14,00 m.)
5000 m. hlaup:
1. Har. Þórðars. Á 17:38,8 mín.
2. Indriði Jónss. EiR 17:40,6 m.
3. Árni Kjartanss. Á 17:43,4 ni.
(Metið er 15:23,0 mín.)
Sleggjukast:
1. Vilhj. Guðm.ss. KR 42,31 m.
2. Helgi Guðm.ss. KR 37,28 m.
3. Gunnar Huseby KR 36,06 m.
(Metið er 46,57 m.)
Einna skemmtilegasta íþrótt-
in á vellinum i gærkveldi var
400 m. hlaupið. Sigurgeir hljóp
á yztu braut og átti því erfiðasta
aðstöðu. Jóhann Bernhard, sem
hljóp á annari braut, dró lika
hröðum skrefum á Sigurgeir,
náði honum og hljóp fram úr
honum. En Jiolið var meira hjá
Sigurgeir, og i lokasprettinum
fór hann fram úr Jóhanni.
Brynjólfur Ingólfsson dró mjög
á i seinni hluta hlaupsins og
inunaði litlu að liann næði Jó-
hánni.
í þrístökkinu var hörð barátta
milli Olivers Steins og Skúla
Guðmundssonar, sem nú eru að
skara fram úr öðrum stökk-
mönnum. Sigraði Oliver með 3ja
cm. mun.
I 5 rasta hlaupinu hélt Har-
aldur forystunni nær alla leið.
Indriði hjóp fram úr honum í
Bíll
Til sölu við Bergstaða-
stræti 25 2ja tonna vörubif-
reið, nýskoðuð, í góðu standi,
ásamt miklu af tilheyrandi
varahlutum og 12 manna
farþegaskýli. — Uppl. í síma
3942.
FLUGNA-
VEIÐARAR
rJLi v e rp a a
Símar 1135 — 4201
Stúlka
óskast til liúsverka hálfan eða »
allan daginn. Uppl. á Víðimel
60.
vantar mig nú Jiegar eða 1.
okt. — Fyrirframgreiðsla. —
Henrik W. Ágústsson.
Sími: 4352.
GÓÐ
til sölu. — Tækifærisverð. —
Uppl. milli kl. 7%—9 í kvöld
á Baldursgötu 22 (uppi). —
Bílbody
i góðu lagi óskast keypt. —
Uppl. i sima 4137 kl. 6—8 i
kvöld.
Ilmor nalir
óskar eftir atvinnu við verzl-
un eða innheimtustörf. Til-
boð, merkt: „19“, sendist á
afgr. blaðsins fyrir 25. þ. m.
Sérstaklega góður með
nýrri vél er til sölu og sýnis í
Tjamargötu 16 í kvöld kl.
8—9. —
næst síðasta hring, en Jiafði ekki
úthald á við Harald.
Annars vantar á mótið ýmsa
ágætustu iþróttamennina okkar,
svo sem Brand Brynjólfsson,
Sigurð Finnsson, Ólaf Guð-
mundsson og Svein Ingvarsson,
þó fleiri séu ekki taldir.
Stigatala félaganna að lokinni
keppninni i gærkveldi var þessi:
KR 131 stig, Ármann 91 stig,
FH 51 slig, ÍR 11 stig og Úmf.
Selfoss 1 stig.
í kvöld verður keppt í 10 km.
lilaupi og fimmtarþraut og er
það síðasta keppnin á mótinu.