Vísir - 21.07.1942, Qupperneq 3
VISIR
Þegar Stefán Guðmundsson óperu-
söngvari söng í Tivoli 22, maí.
Fagnaðarlæti áhopfenda svo xnikil,
að vart eru dæmi til slíks.
STEFANO ISLANDI I „MADAME BUTTERFLY*
Fregnir liafa borizt um það
hingað, að Stefán Guðmundsson
(Stefano Islandi) óperusöngvari
hafi lialdið söngskemmtun í
liljómleikasalnum í Tivoli við
geisilegan fögnuð áheyrenda.
Voru fagnaðarlæíin svo mikil,
að slíks eru vart dæmi. Ber-
lingske Tidende 23. mai segja,að
Stefán haldi stöðugt óskertri
hylli almennings. Hrifni sú, er
inenn létu í ljós, er hann söng
í hljómleikasal Tivoli, var tak-
markalaus. Fagnaðarlátunum
ætlaði aldrei að linna og hann
varð að syngja aukalög, m. a.
„Donne e Mobile“ og „Eg vil
elska mitt Iand“, sem hann að
sjálfsögðu söng á íslenzku.
Blaðið segir ennfremur, að
ljóminn af sigri Stefáns i
„Perluveiðurunum“, liafi verið
yfir honum, er liann söng 2.
þátt úr þessari óperu Bizet. —
Stefán söng einnig „Martha,
Martha“, sem nýtur sérstakra
vinsælda áheyrenda i Tivoli, og
„La danza“ (Mamma, mamma
mia) eftir Rossini, og vakti
geisi fögnuð. Þetta og fyrrnefnd
aukalög, segja Berlingske Tid-
ende, sýnir, að liér var um mik-
inn söngviðburð að ræða. Á-
lieyrendaskarinn var lika mik-
ill og hvorki hægt að fá sæti eða
stæði.
Athugasemd um öl-
gerð á Islandi til forna.
í Morgunblaðinu 28. júni 1942
(29. árg., 116. tbl.) er i bálkin-
um „Úr daglega lifinu“ klausa
með þessari fyrirsögn: „Þeir
brugguðu öl i Skallakoti....“.
Skyldi af þessari fyrirsögn mega
ráða, að það væri fyrirsögn, að
hruggað hefði verið öl á þessum
hæ, en hitt hefði reyndar verið
meiri fyrirsögn, ef það liefði
ekki verið gert, því það er al-
kunna, að bruggað var öl um
gervallt ísland á fyrri dögum,
bæði i kotum og á höfuðhólum.
Efni klausunnar er nokkuð eft-
irtektarverðara en fyrirsögnin,
að islenzkur jurtafornfræðingur
(pollenanalytiker), Sigurður
Þórarinsson, er tók þátt i forn-
menjaútgreftinum i Þjórsárdal
1939, segi frá því í sænsku tíma-
riti í grein, sem hann kallar
„Mot Eld och Is“, þar sem rakin
er stuttlega saga íslendinga og
barátta þeirra við óblíð náttúru-
skilyrði, að hann hafi í jarðveg-
inum á eyðibýlinu Skallakoti,
nálægt Ásólfsstöðum, fundið
menjar þess, að þar hafi á fyrstu
öldum byggðarinnar (þ. e. a. s.
um 1000 og rétt eftir það. G. J.)
vaxið planta ein, sem alls ekki
er til i núverandi gróðurriki Is-
lands, en kölluð er pors (mis-
prentað pots í Mhl. G.J.) á Norð-
urlandamálum. Segir í klaus-
unni enn, að þetta plöntukyn
vaxi um öll Norðurlönd megin-
landsins (mun átt við Evrópu.
G. J.). Þessi planta segir höf.
hafi i fornöld verið mjög not-
uð við ölgerð, og er það rétt, eins
og að ofan greinir, ef aðeins er
miðað við Norðurlönd. Telur
höf. sannað, að jurtin hafi vaxið
í svo rikum mæli við Skallakot,
að hún hljóti að hafa verið rækt-
uð þar. Innflutningur hennar til
landsins hljóti að benda til þess,
að í Skallakoti og þá sennilega
viðar, liafi menn stundað ölgerð
í stórum stil. Svona segist Morg-
unhlaðinu frá, og er það um að
saka, ef rangt skyldi vera.
Eins og þegar hefir verið bent
á, hefir þ»ð lengi verið alkunna,
að liér var rekin mikil ölgerð til
forna, og þurfti um það ekki
frekar vitnanna við. Porsjurtin,
sem höf. ályktar svo mikið af,
vex vilt á Norðurlöndum við al-
veg sömu skilyrði eins og eru
hér á landi; ef hún hefði verið
flutt hingað lifandi eða verið sáð
til liennar hér, hefði hún eins og
margar aðrar jurtir, sem hingað
hafa flutzt — t. d. kúmen — átt
að hafa breiðst hér út fljótlega
og orðið hráðalgeng — eins og
hún er i Noregi (sbr. ömefnið
Porsgrund) — og vera til hér
enn í dag. Svo er þó ekki og
bendir þetta eindregið til þess,
að liún hafi aldrei vaxið hér.
Ilafi jurtin nokkurntíma vaxið
liér, er auðvitað enginn kominn
til að segja, að hún hafi veriSi-
innflutt; hún liefði eins vel get-
að verið hér fyrir, er landnáms-
menn komu. Setjum svo, að það
sé rétt, sem liöf. heldur fram,
að hann liafi fundið menjar
þcssarar jurtar í jarðveginum i
Skallakoti, þarf samt að, ó-
rengdri gremingu hans, til full-
vissu að fá samhljóða greiningu
annarra færra rannsakenda. En
jafnvel þótl greiningin reyndist
rétt, þá er ómögulegt að álykta
það af henni, sem höf. gerir. Eg
hef nefnilega fulla ástæðu lil að
ætla, að hann liafi tekið jarð-
vegssýnishorn sitt innan úr tóft-
unum þarna, og má það vera
öllum augljóst, að ekki liafi
jurtin verið ræktuð innanhúss.
Gætu þvi þessar leyfar hent til
þess eins, að flutzt liefði liingað
þurrkað pors, vitanlega til öl-
gerðar. Til þess að sanna, að
pors hefði vaxið villt eða rækt-
að hér, þyrfti að finna slíkan
porsblandinn jarðveg utanhúss,
úti um hagann eða á víðavangi,
en hann liefir ekki fundizt enn.
Ef slíkar leifar kynnu að koma
í leitirnar, yrði líka að gera full-
nægjandi grein fyrir því, hvað
liefði orðið þess valdandi, að
jurtin liefir dáið út. Um notkun
hennar hér veit maður ekkert,
hún er aldrei nefnd hér í sam-
handi við ölgerð, sem, þó er
nokkuð minnst á í íslenzkum
heimildum, og i málinu sér
hennar engan stað, hvorki í ör-
nefnum né á annan liátt. í Búa-
lögum og viðar er getið um og
sett verðlag á innfluttar vörur
og þar með þær, sem til ölgerð-
ar þarf, en hvergi er getið um
pors, sem hefði þó mátt búast
við, ef hað hefði verið notað.
Allar ályktanir höf. eru því ger-
samlega i lausu lofti, en þá einu
ályktun, sem hægt væri að draga
af fundi þessum, að þurrkað
pors hefði verið notað hér, hefir
hann ekki dregið; hvort liún get-
ur borið sig veltur ‘þó algerlega
á því, að greining hans á jarð-
veginum reynist rétt, og þarf
því að fá liana hetur staðfesta.
Ef höf. skyldi hafa önnur og
hetri rölc fyrir málstað sínum
en Mhl. tilgreinir, þá er auðvitað
sem endranær skylt að hafa það,
er sannara reynist.
Guðbr. Jónsson.
B œtar
fréttír
Hallgrímskirkja í Reykjavík.
, Framh. af fyrri tilkynningum um
aheit og gjafir til kirkjunnar, af-
hent skriístofu „Hinnar alm. fjár-
söfnunarnefndar", Bankastr. ii. •—•
Afhent af trúnaðarmönnum: L.H.
155 kr. J.S. 105 kr. — Gjafir og
álieit: G.B. (áheit) 5 kr. Frá Akur-
eyri kr. 49.20. Frá veikri konu (á-
heit) 10 kr. N.N. (áheit) 5 kr. J.B.
(áheit) 25 kr. Ónefnd kona í Hafn-
arfirði 55 kr. — Afhent af herra
biskupi Sigurgeir Sigurðssyni, frá
sira Þorsteini B. Gislasyni, Stein-
nesi, 10 kr. — Eftirfarandi gjafir
og áheit afhent af síra Jakobi Jóns-
syni: Frá kirkjuvini 10 kr. Frá
ónefndum 100 kr. Frá Birni Jó-
hannessyni, Hafnarfirði, til minn-
ingar um foreldra hans Jóhannes
Sveinsson og Elinborgu Jóhannes-
dóttur 500 kr. Frá konu 5 kr. Frá
J. (tvö áheit) 30 kr. Frá Ernu litlu
20 kr. Frá utanbæjarmanni 10 kr.
Frá konu 10 kr. Frá Jensínu Jóns-
dóttur, Dýrafirði (áheit) 10 kr.
Frá Rósant Sigvaldasyni á Hall-
fríðarstöðum, til minningar um eig-
inkonu hans Septímu Jóhannesdótt-
ur 100 kr. Frá Alþýðuhúsi Rvik-
ur h.f. 1000 kr. Frá Öggu 5 kr. Frá
ónefndum 10 kr. Frá H.B. 50 kr.
Frá ónefndum 50 kr. Frá Benóný
Stefánssyni SO' kr. Frá ísfirðingi
10 kr. Frá Onnu, til minningar um
Ingibjörgu Helgadóttur frá Árbæ,
50 kr. Gjöf til minningar um Ing-
veldi Sigurðardóttur, Rvik, 100 kr.
— Framh. siðar. Beztu þakkir. F.h.
„Hinnar alm. f jársöfnunarnefnd-
ar“, Hjörtur Hansson, Bankastr.
11.
Hjónacfni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína Rannveig Kristinsdóttir frá
Húsavik og Bjarni Jónsson frá
Hellissandi.
Farsóttatilfelli í maí
voru samtals 4660, þar.af 1797
í Reykjavik, 1029 á Suðurlandi,
844 á Vesturlandi, 27 á Norður-
landi og 153 á Austurlandi. Inflú-
ensutilfelli voru samtals 213, þar
af 207 á Vesturlandi. Hettusóttar-
tilfelli voru 585, en kíkhóstatilfelli
859, þar af 468 í Reykjavík, 204
á Suðurlandi, 42 á Vesturlandi, 135
á Norðurlandi og 10 á Austurlatidi.
Veiki í svínum
kom upp fyrir nokkru í svína-
búum í Reykjavik. Varð hennar
vart að Bjarmalandi i júnilok og
siðar að Klömbrum og í svínabúi
Sláturfélags Suðurlands, og leikur
grunur á að hún sé komin upp við-
ar. Er hér um skæða veiki að ræða,
yíruspest i svínum, og mun veikin
hafa borizt með svínakjöti frá Ame-
riku, en svínum hér i nágrenninu
hefir verið gefinn úrgangur úr
amerísku svínakjöti frá setuliðinu.
Beinafundur við Bollastaði.
Á Bollastöðum í Flóa fundust
nýlega mannabein í jörðu, er ver-
ið var að grafa fyrir húsgrunni.
Voru þetta karlmannsbein, um 35
—40 centimetra í jörðu. Var mold-
arlag yfir beinunum, en hraunurð
undir. Engir gripir fundust í nánd
við beinin..
50 ára
er á morgun, 22. júli, frú Helga
Þorsteinsdóttir, kona Jóhannesar
Jónssonar útgerðarmanns á Gauks-
stöðum i Garði.
f leyniþjónustu Japana
heitir ný bók á íslenzkum mark-
aði, er ísafoldarprentsmiðji h.f.
gefur út. Bókin er komin út fyrir
nokkru, og er mikið rædd manna
á meðal um þessar mundir. Hún
er skemmtilega skrifuð og spenn-
andi spjaldanna á milli.
Verkafólk
við Sildarverksmiðjur rikisins á
Siglufirði fara fram á 25% áhættu-
þókun til viðbótar við það kaup,
sem það hefir nú.
Næturlæknir.
Kristbjörn Tryggvason, Skóla-
vörðustíg 33, sími 2581. Nætur-
vörður í Laugavegs apóteki.
Bílstjórar
Strætisvagnafélags Reykjavikur
krefjast hækkunar á grunnkaupi úr
350 kr. í 400 krónur, og að auka-
vinna verði afnumin. Frestur til
svars var gefinn til 23. þ. m.
Samkv. ósk hernaðaryfirvaldanna
verða fréttir af síldveiðum ekki
birtar eftirleiðis hér i blaðinu.
Þjóðhátíð Vestmannaeyja
verður haldin dagana 7.—8. ágúst
næstkomandi.
Híisnæðisvandræðin:
150 heimilisfeðnr
og einstaklingar
skráðir í gær.
Um 150 manns, heimilisfeður
og einstaklingar, gáfu sig fram
í gær sem húsnæðislausir.
I gær var fyrsti dagurinn, sem
liúsiíæðislaust fólk var slcrásett.
Var aðsókn allan daghin svo
mikil á Ráðningarskrifstofunni,
en þar fór skráningin fram í
gær, að ekki var viðlit að af-
greiða fleira fólk, og þó var
unnið langt fram yfir venjuleg-
an vinnutíma.
Eftirleiðis fer skráning hús-
næðislausra fram á skrifstofu
framfærzlufulltrúanna, en ekki
á Ráðningarskrifstofu Reykja-
víkurhæjar, eins og auglýsl
hafði verið. Opið verður til
næstu helgar.
HITT O G ÞETTA.
Steve Avila, fræg ljónaskytta
í Kaliforniu, skaut nýlega fjórða
ljónið sitt á þessu ári. Hann hef-
ir þá skotið alls 175 ljón á 14 ár-
um.
•
Tólf hundruð veitingamanna
í San Francisco hafa heitið lög-
reglu borgarinhar því, að koma
upp um alla þá gesti sína, sem
eru svo málugir að telja megi
hættu á því, að þeir komi upp
um liernaðarleyndarmál, er þeir
vita um.
Gamanleikárann Boh Hope
hafði lengi langað til að leika á
móti stjörnunni Madeline Car-
rol. Að því kom að lokum, að
þau voru látin leika í sömu
mynd. Fyrsta atriði myndarinn-
ar er á þá leið, að Hope sparkar
í Madeleine á mjög óvirðandi
hátt.
•
Frú Lennox L. Maalc í New
Orleans í Bandaríkjunum kveðst
geta lesið 600 síðu bók á þrem
tímum, án þess að lilaupa yfir
eitt einasta orð.
Börn! Börn!
Komið og vinnið yrkkur
inn peninga
Berifl Visi til kanpenda
Talld §trax við afgreiðilnna
Maðnr
sem vill vinna við bifreiðaviðgerðir, getur fengið góða atvinnu
á bifreiðaverkstæði nú þegar. A. v. á.
Stúlkur
óskast í skemmtilegan iðnað. Ilppl. í símum
2085 og 1820.
Hveragerði —
Reykjavík
Leiðbeiningar fyrir farþega, sem ferðast vilja með
aukaferð okkar á sunnudagskvöldum:
a
Allir, sem vilja ferðast úr Hveragerði með
aukaferð okkar kl. 9 síðdegis á sitnnudögum,
verða að kaupa farseðla á sérleyfisstöð okkar
i Reykjavík.
Eftirleiðis verða aðeins sendair toifreiðar eft-
ir því f ólki sem keypt hef ir f armiða samkvaemt
ofanrituðu.
Sérleyfisbifreiðaafgreiðsla
Steindórs
Lesið i dag:
I leyniþjónustu jfapana
Hún er umræðuefni dagsins.
Bokaverzlnn ísafoldar
er miðstöð verðbréfavið-
skiptanna* — Sími 1710.
11 4878
1 teihnv^
| Tengdamóðir mín,
Gudleif Enlendsdóttir
fyrrv. hjúkrunarkona,
andaðist 19. þ. m.
Péíur Lárusson.