Vísir - 22.08.1942, Side 2
V ISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 6 60 (fimm línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Hæpinn gróði,
jþ JÓDVILJINN hefir að und-
anförnu látið sér mjög um
það liugað, að gera Vísi tor-
tryggilegan í augum verka-
manna, og reyna að telja þeim
trú um að blaðið beiti sér fyrst
og fremst gegn hagsmunum
þeirra. í fyrradag birti þetta
kommúnistamálgagn setningu
úr einum leiðara Vísis, er f jall-
aði um þessi mál, en sleit hana
með öllu úr samhengi, og skýrði
hana svo einhliða út frá því, á
þann veg, að barizt væri þar
gegn kröfum verkamanna. Því
fór hinsvegar fjarri, því að alls
enginn dómur var lagður á það
liér í blaðinu hvort kröfurnar
væru sanngjarnar eða ekki, en
sagt eins og satt er, að kröfurn-
ar eru aukaatriði, með þvi að
um þær má semja, en aðalatriði
er hitt, að á þessum tímum er
viðsjárvert að beita mjög verk-
föllum til þess að koma kröfun-
um fram, ekki sízt er þau bein-
ast að afgreiðslu skipa, sem
allra orsaka vegng þarf mjög að
hraða.
Kommúnislar eru hér að sjálf-
sögðu á annari skoðun, enda eru
það fulltrúar þeirra meðal hafn-
arverkamanna, sem knúð hafa
verkföllin fram. Var það meðal
annars gert með þeim hætti lijá
einni skipaafgreiðslunni, að af
sjötiu verkamönnum, sein þar
vinna venjulega, voru aðeins
þrjátíu í vinnu dag þann er
verkfallið var samþykkt. Af
þeirn liópi greiddu 12 atkvæði
með því, að til verkfalls skyldi
Stofna, en það voru einvörðungu
kommúnistar. Gegn verkfalli
greiddu alkvæði 4 sjálfstæðis-
menn og 3 alþýðuflokksmenn,
en aðrir greiddu ekki atkvæði.
Með þessu móti var svo stofnað
til verkfallsins, og sér liver mað-
ur hvert vit er í slíku.
Nú liggur fyrir Alþingi frum-
varp til laga um afnám þeirra
ákvæða dýrtiðarlöggjafarinnar
sem kaupgjald varða. & frum-
varp þetta komið það langt á-
leiðis, að fáir dagar munu líða,
þar til það öðlast lagagildi. I
frumvarpinu er m. a. gert ráð
fyrir að segja megi upp samn-
ingum almennt með skömmum
fyrirvara, og semja þá að nýju
um kaupgjald. Er með þessu á-
kvæði gefin almenn lieimild til
að rifta fyrri samningum, þann-
ig að félögum vinnuveitenda og
verkamanna gefst kostur á að
semja að nýju, og fæst þá vænt-
anlega sanngjörn og eðlileg
lausn á þessum málum, sem
verður einnig óhjákvæmilega í
fullu samræmi við hagsmuni
verkamanna. Eftir þessu vildu
kommúnistarnir ekki bíða, held-
ur stofna til harðvítugra vinnu-
deilna áður, til þess að spilla fyr-
ir árangri væntanlegra samn-
inga, ög það hafði þeim tekizt í
bili.
En kommúnistar hyggjast að
koma víðar við en í Reykjavík-
urhöfn. Hinn 13. ágúst s. 1. birt-
ist svohljóðandi auglýsing 1
blaði þeirra: „Félagar, sem ekki
eru fastráðnir í vinnu, ættu að
tala við skrifstofu sosialistafé-
lagsins á Skólavörðustíg 19, áð-
ur en þeir ákveða sér vinnustað
næslu dagana“. Var auglýsing
VINNA
þessi undirrituð af stjórn sosial-
istafélagsins. Þess skal getið hér,
að um þessar mundir var liafin
ráðning á mönnum til hitaveit-
unnar, og hugðu að sjálfsögðu
margir verkamenn þar gott lil
glóðarinnar. En kommunum
þótti svo mikils við þurfa, að
þeir hoðuðu flokksmenn sína til
viðtals, áður en þeir ráðstöfuðu
sér til vinnu. Hvað var það, sem
hér bjó undir?
Kömmúnistaflokkurinn, sem
slíkur er fámennur og vel skipu-
lagður. Flokkurinn hefir ótak-
markað vald vfir flokkssálun-
um, og getur ráðstafað þeim á
hvern þann hátt, sem hann lyst-
ir. Það er því engin furða þótt
hann vilji ráðstafa þessum
mannverum til vinnu þar sem
lientast er, — ekki fyrir hlutað-
eiganda sjálfan, heldur flokk-
inn. Þessum mönnum er svo
skipt niður á vinnustaðina til
Jiess eins að reka þar áróður og
vinna í þágu kommúnista-
flokksins, með þvi að koma af
stað verkföllum. Þess vegna er
það, sem flokksstjórnin auglýs-
ir eftir flokksmönnunum til
viðtals á skrifstofunni ó Skóla-
vörðustíg 19, þegar vitað er að
þeir geta fengið vinnu svo að
segja livar sem vera vill, og þá
ekki sízt við liitaveituna. Þeim
er óheimilt að vinna þar of
mörgum, — þeir verða að reka
áróður á öðrum stöðum, og
slíkum malandi kvörnum er
komið fyrir á hverjum vinnu-
Stað.
Þannig er starfsemi þessara
manna, og verkamönnum er
það eins vel ljóst og öðrum, að
slik starfsemi getur ekki verið
góðs vili fyrir þá eða þjóðfélag-
ið. Því eiga þeir nú að hefjast
handa og reka af höndum sér
áróðursþý kommúnistanna.
Með því einu móti eru líkindi til,
að liejipileg lausn fáist á þeim
vinnudeilum, sem nú standa
yfir.
Á það hefir verið hent hér í
blaðinu, að mjög væri óheppi-
legt, að einstakir vinnuflokkar
stofnuðu til verkfalla, þegar
þeim þurfa þætti, án þess að
leita til hlutaðeigandi verka-
lýðsfélaga um forystu. Slíkt
skapar upplausnarástand sem er
ósamboðið siðuðu þjóðfélagi.
Þetta er hið sama og ef einstak-
ir vinnuveitendur, sem samn-
ingsbundnir eru sem félagar í
vinnuveitendafélögum, skæru
sig út úr og neituðu að virða
gerða samninga um kaup og
kjör. Slikt gæti mörgu illu til
lciðar komið, og myndi enginn
mæla því bót. Vinnuflokkarnir
verðskulda heldur ekki samúð,
þegar efnt er til slíks brölts, —
allra sizt frá hendi verkamanna.
Þessi vinnuflokkar eru að grafa
grundvöllinn undan heilbrigðri
starfsemi verkalýðsfélaganna,
en upp á slíkt er ekki unnt að
horfa þegjandi, eftir þróun
þessara mála a síðustu árum.
Hér verður að stemma ó að ósi.
Það á að vera keppikefli verka-
lýðsfélaganna, — ekki síður en
annara.
112 Tékkar líflátnir.
Fregnir um það hafa borizt
til London, að 12 Tékkar hafi
verið skotnir í Prag s.l. mið-
vikudag.
Þeir, sem skotnir voru, störf-
uðu í blaðaskrifstofu forsætis-
ráðherra Tékkóslóvakíu — einn
var yfirmaður hennar — þang-
að til Þjóðverjar tóku landið í
marz 1939. Hafa þeir setið í
varðhaldi síðan og yfirheyrslur
áður en þeir voru skotnir.
sem þeir voru skotnir.
HAFIN VIÐ HÖFNINA
Samninga? voru undirrit-
aðir á 5. tímanum í morgun
Snemma í morgun hafði Vísir tal af Guðmundi Vil-
hjálmssyni, framkvæmdarstjóra Eimskipafélagsins, og
spurði hann tíðinda af samkomulagsumleitununum. Gat
hann sagt blaðinu þau tíðindi, að samningar væru komn-
ir á, og vinna hafin aftur við höfnina. Fundir stóðu
mikinn hluta dags í gær, gærkveldi og fram eftir allri
nóttu. Samningar voru ekki undirritaðir fyrr en á
fimmta tímanum í morgun. — Samkvæmt samningum
þessum hækkar dagvinnukaup um ca. 38%.
Eins og getið var í Vísi í gær lagði framkvæmdarnefnd Vinnu-
veitendafélagsins fram gagntilboð við uppkasti Dagsbrúnar-
stjórnarinnar, sem áður hefir verið sagt frá, og lagði svo sátta-
nefndin fram miðlunartihögu, sem báðir aðilar féllust á. í samn-
ingunum eru ýmsar breytingar frá því sem var í samningsupp-
kasti Dagsbrúnar. M. a. var tekið upp í samningana ákvæði,
sem á að tryggja það, að samningarnir verði haldnir.
Vísir fékk eftirfarandi upplýs-
ingar i morgun hjá Eggert
Claessen, framkvæmdastjóra
Vinnuveitendafélags Islands.
Kaupið fyrir almenna dag-
vinnu verður kr. 2.10, og nemur
sú hækkun ca. 38%.
Þegar unnið er við uppskip-
un og framskipun á kolum, salti
eða cementi og unnið að stöflun
á cementi i geymsluhús, er
kaupið kr. 2.75 á klst.
Hlutfallið milli almennrar
dagvinnu og yfirvinnu, nætur-
vinnu og lielgidagavinnu helzt
svipað því sem var, þ. e. að kaup
í yfirvinnu sé um 50% hærra
en dagvinnukaup og helgidaga-
kaup um 100%.
Dagvinnukaupið miðast við 8
klst. vinnudag.
Samið er til 6 mánaða og get-
ur hvor aðili um sig sagt upp
samning-unum með 1 mánaðar
fyrirvara, en sé samningunum
ekki sagt upp, framlengjast þeir
til 6 mánaða o. s. frv.
Eins og að framan er sagt eru
ýmsar breytingar á hinum nýju
samningum frá því, sem ráð var
fyrir gert í samningsuppkasti
Dagsbrúnar.
í samningsuppkastinu var t.
d. gert ráð fyrir því, að greitt
Þetta var ekki tekið upp í samn-
inginn.
Sömuleiðis hafði þess verið
krafizt, að greitt yrði fyrir full-
an vinnudag, þótt aðeins væri
unnið part úr degi. Þessu var
breytt þannig, að miðað er við
þegar unnið er hálfan dag, í
hafnarvinnu og annari meiri
háttar vinnu.
Það liafðist fram við þessa
samningsgérð, að stjórn Dags-
brúnar skuldbatt sig til að vinna
að því eftir mætti, að samning-
arnir verði haldnir.
Golfkeppninni
lýknr i dag:.
I fyrradag var keppt í næst
síðustu umferð í golfkeppninni
og sigraði Gísli Ólafsson, nú-
Verandi golfmeistari fslands,
Helga Eiríksson, svo að Gísli
kom til úrslita á móti Jakobi
Hafstein.
Keppt er í tveimur umferðum
og fór sú fyrri fram í gær. Varð
Jakob einni holu hærri en Gísli,
en segja má að litlu hafi munað.
Seinni umferð hefst á golfvell-
inum kl. 2 1 dag og bíða allir á-
hugamenn með miklum spenn-
ingi eftir úrslitunum.
t
Bjarni Jensson
Ásgarði
Hinn mikli og valinkunni
bændahöfðingi Bjarni Jénsson
að Ásgarði í Dalasýslu lézt að
heimili sínu í gær.
Bjarni var þjóðkunnur mað-
ur, ekki aðeins fyrir hina fram-
úrskarandi gestrisni sína, held-
ur og fyrir drenglyndi og liöfð-
inglyndi í hvívetna.
Útför
Jóhannesar Hagan
Þ. 9. júlí birti Lögberg eftir-
farandi frásögn af útför Jó-
liannesar Hagan, er fórst í
ílugslysi í Kanada:
Á fimtmudaginn þann 2. þ. m.
var Jóhannes Hagan flugnemi
frá Reykjavík kvaddur hinztu
kveðju í Fyrstu lútersku kirkju,
að viðstöddu miklu fjölmenni.
fagurlega og af samúðai-ríkri
viðkvæmni, „Hærra minn guð
til þín“, við undirleik Gunnars
Erlendssonar, en söngflokkur
Fyrsta lúterska safnaðarins
annaðist um sálmasöng. Lík-
menn voru vinir hins látna
sveins úr flugsveitinni að heim-
an.
Þó dvalartími Jóhannesar
Hagan á þessum slóðum yrði
ekki lengri en raun varð á, hafði
Iiann engu að síður eignazt liér
fjölda trúnaðarvina; var innræti
hans og fas slíkt, að hvarvetna
vakti vináttu og traust; við út-
förina voru vitaskuld langt um
fleiri, en honum hafði veizt per-
sónuleg kostur á að kynnast;
þeim, sem þannig var háttað
um, skildist þó engu síður en
nákomnum vinum, að verið var
að kveðja ungan glæsilegan
gest sameiginlegs kynstofns;
það var auðséð á öllu, að blóð-
ið rann til skyldunnar.
Ræðismaður íslands, herra
Grettir Leo Jóhannsson, annað-
ist um ráðstafanir útförinni við-
víkjandi, sem fram fór á veg-
um Bardals.
Eins og frá var skýrt í fyrri
viku, var lík Jóhannesar sent
til Minneapolis til bálfarar, en
þaðan verður askan send til Is-
lands. —
Yfir kveðjuathöfninni hvíldi
virðulegur blær hinnar dýpstu
samúðar með ástmennum og
vinum' hins látna.
5 prestvígslur
verða framkvæmdar á morgun í
dómkirkjunni. Hefst athöfnin. kl.
ioJ-2 f. h. og verður henni útvarp-
að. Þeir, sem vígslu hljóta, eru þeir
Erlendur Sigmundsson til Seyðis-
fjarðar prestakalls, Ingólfur Ast-
marsson til Staðarprestakalls í
Steingrímsfirði, Jens Benediktsson
til Hvamms prestakalls í Skagafirði,
Jón K. Isfeld til Rafnseyrai* presta-
kalls og Sigurbjörn Á. Gislason, er
skipaður hefir verið prestur að Elli-
heimilinu Grund. Herra biskupinn,
Sigurgeir Sigurðsson, framkvæmir
vígsluna, síra Þorsteinn Briem lýs-
ir vígslu, en vigsluvottar verða auk
hans síra Jakob Jónsson og síra
Sigurbjörn Einarsson.
Messur á morgun.
Nesprestakall. 1 Mýrarhúsaskóla
kl. 2J*.
Fríkirkjan í Reykjavík. Kl. 2, síra
Árni Sigurðsson.
Frjálslyndi söfunðurinn. í Frí-
kirkjunni í Rvík kl. 5, síra Jón
Auðuns.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Messað
verður í Hellisgerði kl. 3, ef veður
leyfir, en hamli veður, verður kvöld-
söngur í kirkjunni kl. 8J4 síðdegis.
Síra Jón Auðuns.
/ kaþólsku kirkjunni í Reykja-
vik. Hámessa kl. 10, og í Hafnar-
firði kl. 9.
Afhjúpun
styttu, sem Bjarni Snæbjörnsson
og frú hans gáfu í Hellisgerði, í
tilefni af 25 ára starfsafmæli
Bjarna, fer fram i Hellisgerði á
: morgun. Stytta þessi er gosbrunn-
ur, er stendur úti í miðri tjörn.
Innbrot
var framið í fyrrinótt í kaffi-
stofuna „Sæborg“ hér í bæ og stol-
ið þaðan um 20 kcónum í skipti-
mynt. Annað innbröt var framið i
vörugeymsluskúr, sem Eimskipafé-
lag íslands hefir í húsum Slátur-
félagsins við Suðurgötu og var stol-
ið þaðan nokkuru af vörum, þar á
ineðal allmiklu af vindlingum.
Þjófurinn,
sem stal peningunum í Hjálpræð-
ishernum í fyrrinótt, og skýrt var
frá í Vísi í gær, er nú fundinn.
Var það einn af herbergisfélögun-
um, 14 ára gamall piltur, og hafði
hann ekki eytt af þýfinu nema 5
krónum, er hann náðist.
Hjúskapur.
Gefin verða saman af síra Bjarna
Jónssyni í dómkirkjunni í dag ung-
frú Ólöf G. Geirsdóttir og Árni
Brynjólfsson, bæði til heimilis á
Hallveigarstíg 2.
Tjarnarbíó.
Milli tveggja elda heitir amerísk-
ur gamanleikur, sem sýndur verð-
ur í fyrsta skipti í Tjarnarbíó í dag
kl. 3, 5 og 7. Leikstjóri er Ernst
Lubitsch, en aðalhlutverk leika Mel-
vyn Douglas, Burgess Meredith og
leikkonan fræga, Merle Oberon,
sem í leiknum er í vandræðum að
velja milli eiginmanns síns, sem
hún hefir elskað, og mannsins, sem
hún heldur, að hún elski nú, Leik-
urinn er léttur og fjörugur og bráð-
skemmtilegur 0 g íburðarmikill;
meðal annars sést Merle Oberon í
ekki færri en 14 kjólum af nýjustu
tízku. Lady Hamilton er enn sýnd
kl. 9 við mikla aðsókn, og seljast
aðgöngumiðar að þeirri sýningu upp
á skömmum tíma. Er mikið dáðst
að leik Vivien Leigh og Laurence
Oliver, en þau eru hjón, eins 0g
margir bíógestir munu vita.
Næturlæknir.
í nótt: Jónas Kristjánsson, Grett-
isgötu 81, sími 5209. Næturvörður í
Laugavegs apóteki.
Aðra nótt: Pétur Jakobsson,
Rauðarárstíg.32, sírni 2735. Nætur-
vörður í Reykjavikur apóteki.
Helgidagslæknir.
Halldór Stefánsson, Ránargötu
12, sími 2234.
70 ára
verður á morgun frú Margrét
Jónsdóttir, Vesturgötu 68, ekkja
Jafets E. Ólafssonar, skipstjóra.
væri fyrir allan laugardag, þó aö ;
aðeins væri unnið til hádegis.
Séra Valdimar J. Eylands, prest-
ur safnaðarins, flutti við athöfn-
ina fagra og gagnhugsaða
ræðu. Birgir Halldórsson söng
ll»Úð
1—2 lierbergi og eldhús, ósk-
ast nú þegar. Tvent fullorðið
og 1 barn i heimili. Hjálp við
þvotta gæti komið til greina.
Tilboð sendist Vísi, merkt:
„Sjómaður". —
Kona
með 5 ára barn óskar eftir
RÁÐSKONUSTÖÐU á fá-
mennt heimili. Uppl. gefur
ÞORVARÐUR BJÖRNSSON,
hafnsögumaður.
Kvenhjól
til sölu.
ÞVERVEGI 2.
Skerjafirði.
Unglingur
sem hefir áhuga fyrir teikn-
ingu, getur fengið að læra
prentiðn. Umsóknir, ásamt
mynd, sem verður endursend,
sendist Vísi, merkt: „Ung-
lingur“. —
Unguhjónin
sem auglýstu eftir íbúð í
Vísi, s. 1. þriðjudag (tilboð
merkt: „500“) geta fengið
hana nú þegar. Komið og tal-
ið við gjaldkera Visis strax.
Vanur
bílstjóri
óskar eftir keyrslu á nýjum
mrubil. Tilboð sendist afgr.
Vísis fyrir 25. þ; m., merkt:
Innkaapa-
töikur
(Nýkomnar. Lágt verð).
Grettisgötu 57.
Cítrónur
nýkomnar,
vmn
Laugavegi 1.
Fjölnisvegi 2.
EGGERT CLAESSEN
EINAR ÁSMUNDSSON
hæstaréttarmálaflutningsmenn.
Skrifstofa í Oddfellowhúsinu
(Inngangur um austurdyr).
Sími 1171.