Vísir - 22.08.1942, Qupperneq 3
VISIR
Boðhlaupið umhverfis Réykjavik fór fram fyrra hluta júlímán-
aðar. Aðeins tvö félög, Ármann og K. R., sendu keppendur, og
varð sveit Ármanns hlutskarpari. Myndin er af henni, formanni
Ármanns og þjálfara. — Frá Vinstri: Garðar S. Gíslason, þjál^ari,
Sigurgeir Ársælsson, Hörður Hafliðason, Árni Kjartansson, Hall-
dór Sigurðsson, Hörður Kristófersson, Slefán Jónsson, Hermann
Hermannsson, Janus Eiríksson, Sigurður Norðdahl, Jóhann Eyj-
ólfsson, Bjarni Gnðbjörnsson, Haraldur Bórðarson, Sigurður Ól-
afsson, Sigurjón Hallbjörnsson, Baklur Möller og Jens Guðbjörns-
son, formaður Ármanns. — Þelta hlaup hefir nú farið fram fjór-
um sinnum og Ármann unnið þrisvar, og K. R. aðeins i annað
skiptið, sem keppt var.
Eftir 5 ár geta flugrvélarnar flogið
40.000 km. 1 lofu.
Það cr óhætt að fullyrða það, að cngin bók um styrjaldar-
málin hefir vakið eins mikla athygli í hinum enskumælandi heimi
og bókin „Victory Through Air Power“, en nafn hennar er í
fyrirsögn þessarar greinar þýtt „Flugvélarnar ráða úrslitum".
Höfundurinn er Alexander Seversky, flugvélasmiður, sem er Les-
endum Vísis kunnur, því að hann er flugmálasérfræðingur frétta-
stofunnar United Press og er réttilega talinn einn færasti maður
á sínu svið. Vísir mun birta nokkra kafla úr þessari bók hans
eftir því sem rúm leyfir. Þeir munu eflaust vekja mikla athygli.
að, sem hefir vakið
mesta athygli i þessu
stríði, er sú staðreynd, að
l'luíívélin er orðin sá liður
i hernaðinum, sem mestu
ræður um úrslitin. Menn
eru enn á nokkuð skiptum
skoðunum um hlutverk
flugvélanha í framtíðinni,
afstöðu hennar til flota og
iandhers, og hlutverk henn-
ar í þessari eða hinni orustu
eða herför. Hinsvegar eru
allir sammála um það, að
l'lugvélin hefir alveg koll-
varpað hinum hefðbundnu
kenningum og kerfum
hemaðarlistarinnar.
Öllum sérfræðingum ber sam-
an um það, að valdaafstaða
bjóðanna muni æ meira ákveð-
ast af flugvélum, eftir því sem
tímar líða. Það þarf þó ekki
sérfræðing til að sjá það. Menn
geta ekki komizt hjá þessari
skoðun, ef menn fylgjast á ann-
að borð með hinum daglegu
striðsfréttum.
***
að er bezt að eg geri grein
fyrir skoðunum minum i
sem fæstum orðum:
/
1. Hin liraðvaxandi aukning
á flugþoli og vopnum herflug-
véla hefir það i för með sér, að
Bandaríkin mega vænta þess, að
verða fyrir loftárásum í náinni
framtíð.
2. Þeir, sem neita því, að
slikt geti átt sér stað, vekja
falska öryggiskennd hjá fólki,
og það getur haft í för með sér
einskonar „Maginot-línu-hugs-
unarhátt“, sem varð Frökkum
hættulegastur.
3. Til þess að vera við öllu
búnir verðum við að undirbúa
loftstyrjöld, þar sem herjað
verður milli heimsálfanna og
ekki aðeins á prlitlum blettum
eða svæðum. — Þetta krefst
þess, að her okkar verði skipu-
lagður af nýju og við myndum
okkur nýjar hernaðarkenning-
ar, er eigi við breyttar aðstæður.
4. Það er engin ástæða til böl-
sýni, enda þótt horfur virðist
ekki sem glæsilegastar nú.
Bandaríkin eiga þvert á móti
allt, sem nauðsynlegt er til að
sigra í þessu kapphlaupi.
***
Flugþol flugvéla eyksi nú svo
hröðum skrefum, að Atlants-
liafið mun hverfa úr hópi hindr-
ana eftir 2 ár og Kyrrahafið eft-
ir 3 ár. Siðar, eftir 5 ár í lengsta
lagi, munu flugvéler verða
svo langfleygar, að þær munu
fljúga 40.000 km. — umhverfis
hnöttinn — í einum áfanga.
Þegar svo verður komið mun
livaða þjóð, sem er, geta sent
flugsveitir sínar á hvaða stað á
hnettinum sem vera skal og um
leið á hver þjóð á hættu að verða
fyrir árás. Flugvélarnar leggja
af stað frá heimalandinu, liversu
langt sem árásarmarkið verður
í burtu.
Það er meira að segja ekki
nauðsynlegt, að liafa flugvélar,
sem geta flogið 40.000 km. Flug-
vélar, er fljúga 24.000 km. —
hafa 10.000 km. starfssvið —
geta lieimsótt allar helztu þjóð-
ir lieims, aðalborgir þeirra og
iðnaðarmiðstöðvar, hvaðan
sem þær leggja upp.
Stórkostlegar endurbætur
hafa verið gerðar á fyrirkomu-
lagi flugvélanna, eldsneyti
þeirra, eyðslu hreyflanna á því
og öðru, sem miðar allt að þvi
að víkka starfssvið þeirra. Eg
er heldur ekki að ljósta upp
’neinu leyndarmáli með þvi að
skýra frá því, að verið er að
smíða 8000 ha. hreyfil, og geng-
ur vel. v
Hugsið yður sprengjuflugvél
með sex slíkum hreyflum —
samtals 48.000 hestöfl, jafnt og
nýtízku orustuskip — i saman-
burði við þær, sem nú hafa fjóra
2000 ha. hreyfla!
Nú er svo komið, að öllum er
Ijóst, hversu mjög flugherinn
réð úrslitum í Póllandi, Noregi,
Frakklandi, Jugoslavíu o. s. frv.
Steypiflugvélin Ju—87 hefir
haft meiri áhrif á hugmynda-
flug manna en nokkur önnur
flugvél. En hún er þó ágætt
dæmi um það, hversu einhliða
þýzki flugherinn er i raun og
veru.
Sumir menn höfðu einhvern-
veginn fengið þá flugu i höfuð-
ið, að þýzka þjóðin væri sér-
stök flugmannaþjóð og þó at-
.huguðu menn ekki, þegar orust-
an um Bretland var háð, að
Þjóðverjar töpuðu henni vegna
þess, að flugherinn hafði fyrst
og fremst verið látinn þróast
; sem hjálpartæki landhersins, en
ekki sem lireinn lofther.
Hann var að vísu ó-
háður, en þó var mest áherzla
lögð á það, að hann væri hæfur
til samvinnu við landherinn.
Þýzku flugvélarnar voru yfir-
leitt ekki langfleygar, vel vopn-
aðar né brynvarðar og þetta hafði
það í för með sér, að þau högg,
sem þær gátu greitt, voi-u lítils
} virði, ef enginn landlier var til
j að taka við, þar sem þær hættu.
Með öðrum orðum, gagn þeirra |
var mjög takmarkað, þegar ein-
göngu var um það að ræða, að
berjast við annan flugher i lofti.
Þjóðverjar voru ekki nógu
framsýnir eða djarfir.
***
að er nauðsynlegt, að menn
geri sér ljóst, hvaða orsakir
lágu til þess, að Hitler beið
fyrsta ósigur sinn, því að það
mun kenna okkur mikið um
þýzka flugherinn sérstaklega og
lofthernað yfirleitt.
Tvíhreyfla-sprengjuflugvélar
Þjóðverja höfðu það sameigin-
legt, að í þeim liafði burðar-
magni, flugþoli, vopnum og
brynvörnum verið fórnað til að
auka hraðann. Starfssvið þeirra
var aðeins um 1000 km. með
fullan farm, sem var að jafnaði
um ein smálest.
Annar lielzti galli sprengju-
flugvélanna — auk lílils flug-
þols — var skortur á varnar-
byssum. Venjulega höfðu þær
aðeins eina vélbyssu gegn átta
byssum brezku orustuflugvél-
anna, svo að allir sjá, að þar var
vonlaus munur. Ef varnir flug-
vélanna hefði verið fullnægj-
andi, þá hefði þær átt að geta
ruft sér braut að markinu og
eyðilagt brezka flugherinn í
lofti og á jörðu. Þá liefði út-
koma orustunnar um Bretland
orðið allt önnur.
' Skammsýni Þjóðverja sést
bezt af þvi, að sprengjuflugvél-
ar siðustu heimsstyrjaldar voru
jafnan betur vopnaðar en þær,
sem áttu að sigra England.
Tuttugu árum áður en nazistar
smíðuðu flugvélar með einni
byssu til varnar, voru tvær vél-
byssur notaðar til varnar árás-
um aftan frá.
Þjóðverjar vissu eins og allir
um vopnabúnað brezku flug-
vélanna, og það sýnir skilnings-
leysi þeirra á grundvallaratrið-
um hreins lofthernaðar og trú
þeirra á þvi, að allt sé komið
undir fjöldanum, að þeir skyldi
ekki taka þetta með i reikning-
inn.
Það má segja í stuttu máli, að
3. ríkið hafi smíðað fagrar
sprengjuflugvélar, smiðað þær
vel og útbúið þær ágætlega til
þæginda fyrir flugmanninn, en
hafi gleymt að búa þær þeim
kostum — flugþoli, burðar-
magni, byssum — sem trýggja
það, að hægt sé að varpa
sprengjunum á réttan stað.
***
lugherinn þýzki var bara
alls ekki til þess gerður, að
ryðja sér braut gegnum sveitir
fjandmannaflugvéla, vinna starf
sitt yfir árásarstaðnum og brjót-
ast sömu leið til baka. En það
var einmitt það, sem þurfti til
að sigra Breta.
Þjóðverjar höfðu auðsjáan-
lega búizt við því, að geta eyði-
lagt brezka flugherinn á jörðu
— t. d. með því að eyðileggja
flugvelli o. þ. li. eins og gert var
í Póllandi og Frakklandi — en
ekki í bardögum í lofti.
Bretar voru að vísu flugvéla-
fáir, en þeir voru þó miklu nær
því, að vera sannkallað flug-
veldi. Þetta var að vísu á lítinn
mælikvarða, en bugsunin, sem
lá á bak við flugherinn, var
hárrétt. I brezkum sprengju-
flugvélum var hraðanum fórn-
að fyrir aukinn vopnabúnað,
flugþol og burðarmagn, því að
hraði sprengjuflugvéla getur
hvort sem er aldrei orðið svo
mikill, að þær komist undan or-
ustuflugvélunum.
Þýzki herinn gat ekki brugðið
sér yfir Ermarsund af sömu á-
stæðu og liann gat ekki hindr-
að undanhaklið frá Dunkirk.
Brezki flugherinn var betri. Það
eitt kom ólagi á ráðagerðir
Þjóðverja og hefir jafnvel breytt
gangi mannkynssögunnar.
Báðir aðilar hafa haldið fram
sínum lilut, en enginn getur
lengur neitað því, að það voru
kostir brezka flughersins, sem
liindruðu innrás. Kostir brezku
flugvélanna réðu niðurlögum
ofureflis þýzku flugvélanna,
þótt þeir virðist raunverulega
hverfa í skuggann af því.
-k'k'k
egar Þjóðverjum fór að
verða það Ijóst, hversu höll-
um fæti þeir stóðu, fóru þeir
að endurskipuleggja flugsveit-
irnar livað eftir annað og reyndu
að láta fjöldann bæta upp það,
sem vantaði á gæðin. Þessi ó-
vissa í bardagaaðferðum i orust-
unni um Bretland má vissulega.
teljast sönnun þess, að Þjóðverj-
ar hafi verið jafn langt á eftir
í lofthernaðartækni og flugvélar
þeirra voru ófullnægjandi. Það
tvennt hlýtur líka að fara sam-
an.
En það var alveg sama hvern-
ig Þjóðverjar brutust um, brezki
flugherinn liafði alltaf yfirliönd-
ina. Þjóðverjar höfðu ekki þann
útbúnað, sem þurfti til að ná
settu marki, og tilraunir þeirra
til að ná því með ófullkomnum
tækjum urðu þeim dýrkeyptar
og árangurslausar.
Sjö ára undirbúningur varð'
því að engu og það var aðeins
ljóminn af fyrri signim, sem
villti mönnum sýn. Lofthcr,
sem liafði reynzt starfi sínu
fullkomlega vaxinn í samvinnu.
við her og flota, var ósjálf-
bjarga, þegar hann átti að vera
alveg einn um h:tuna.
Þjóðverjum liafa orðið á eins:
mörg mistök í flugmálum og
hverjum öðrum. Þeir virtust
aðeins forystuþjóð á þessu
sviði af þvi að þeir byrjuðu
fyrr en aðrir að smíða herflug-
vélar og á stærri mælikvarða.
Vegna ósigurs þeirra i orust-
unni um Bretland liafa margir
komizt að þeirri niðurstöðu, að
Bifr eiðaviðger fl amaflar
getur fengið atvinnu og gott húsnæði nú þegar eða
1. olct. — A. v. á.
Hðsasmífi ameistari
gæti tekið að sér að byggja hús, gegn íbúð 1. október. Tilboð,
merkt: „Húsasmíðameistari“ leggist inn á afgr. blaðsins fyrir
miðvikudagskvöld. —
Tveir menn
geta fengið atvinnu, annar við bifreiðaviðgerðir, hinn
við hreinsun bifreiða. Húsnæði getur fylgt ef óskað er.
A. v. á.
Ilöllllll*
Lt:.... | Uidírfot
Mmnk nndrésar Mnmm hi.
IÐJA
félag: ¥erk§mið|nfolks
aðvarar meðlimi sína um, að þeirn er óheimilt
að vinna li já öðnjm iðnrekendum en þeim,
-sem eru meðlimir í Félagi íslenzkra iðnrek-
enda.
‘ V
Enn fremur vil jum við bendá á, að með-
limum Iðju bér að halda sér nákvæmlega við
hinn samningsbundna uppsagnarfrest..
STJÓRN IÐJU
Faðír okkar,
Bóas Bjopnsson
frá Grund í Reyðarfirði andaðist í Landakotsspítala 21.
ágúst.
Björg Bóasdóttir og Karl Bóasson.
Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Jórunnar Eiriltsdóttur
fei' fram á mánudaginn 24. þ. m. og hefst með húskveðju
frá heimili hennar, Njálsgötu 10 A, kl. 1 e. h.
Athöfninni í dómkirkjunni verður útvarpað.
Jarðað verður í Fossvogsgarði.
Guðný Jónsdóttir. Kristín Jónsdóttir.
Jón Benjamínsson.
Guðrún Jónsdóttir, Jón Birgir, Jórunn Jónsdóttir.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að faðir minnT
Brynjólfur Jónsson
andaðist að heimili sínu, Vitatorgi 1, þ. 21. þ. m.
Guðrún Brynjólfsdóttir.