Vísir - 25.08.1942, Side 1
f
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiöjan (3. hæð)
32. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 25. ágúst 1942.
Ritstjórar 1 Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 linur
Afgreiðsla
170. tbl.
í Stalingrad eru margar nýtízku byggingar, eins og sjá má af þessari mynd. —
Mapkmið þýzka hepsins.
Sterkar brynsveitir Þjóð-
verja komnar yfir Don.
Japanskir
endur-
bættir.
Amerískir verkfræðingar
starfa nú að því að ljúka við og
endurbæta flugvelli á Salo-
monseyjum.
Japanir böfðu byrjað á smíði
þessara flugvalla á eyjununi
þrem, sem Bandaríkjamenn
tóku og er nú verið að auka þá
og endurbæta, svo að allar teg-
undir amerískra flugvéla geti
notað þá.
Um bardaga hefir ekki verið
getið, síðan Japanar gerðu liina
misheppnuðu tilraun til land-
göngu fyrir skemmstu. Banda-
rikjahermenn eru þó enn að
leita japanskra hermanna í
skógunum.
Flugvélar bandamanna skutu
niður í gær 4 japanskar flug-
vélar yfir austanverðri Nýju
Guineu.
Á landi dreifðu bandamenn
japönskum njósnaflokki hjá
Kokoda (milli Port Moresby og
Buna).
Þjóðverjar hafa tekið borgina
Prokladnaya i Kákasus.
Brasilia teknr
75 öxnlskip.
3 káfbátum sökkt.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Einhverjar hörðustu orustur, sem háðar hafa
verið á austurvigstöðvunum — og þá í þess-
ari styrjöld og jafnframt í sögunni — eru nú
jháðar á bökkum Don-fljótsins, þar sem bugðan mikla
er aðeins um 60 km. frá Stalingrad.
Þjóðverjar hafa komið sterkum sveitum brynvar-
inna hernaðartækja, skriðdreka og fallbyssna af ýms-
tim stærðum og gerðum, austur yfir fljótið á tveim
stöðum, en þó að Rússar geri ótal gagnáhlaup og leggi
allt í sölumar til að hrinda Þ jóðverjum aftur í fljótið,
þá tekst þeim það ekki. Þjóðverjar hafa náð svo góðri
fótfestu á bakkanum Stalingradmegin, að það er talið
nærri vonlaust að Rússar geta hreinsað þar til. Von
jjeirra er i því fólgin, að þeir geti hindrað frekari fram-
gang Þjóðverja og hafi meiru úr að spila þegar til
lengdar lætur.
Syðst á vígstöðvunum, í fjöllum Kákasus, liafa Þjóðverjar
náð boginni Prokladnaya um 110 km. vestur af Grosny-olíu-
svæðinu, á járnbrautarlinunni frá Baku til Rostov. Hin hæga
framsókn Þjóðverja stafar af ýmsu, en þó einna helzt af þvi,
hversu landið er örðugt yfirferðar og gott til varnar, þótt Rúss-
ar hafi tiltölulega lítið lið þar.
Það er Þjóðverjum ekki með
■öllu kostnaðarlaust að brjótast
yfir Don, þvi að Rússar lialda
uppi sífelldri skothríð á brýr
þeirra. Lík þýzkra liermanna
fljóta í hrönnum niður eftir
fljótinu, segir i fregnum Rússa.
1 Moskva-útvarpinu var því
haldið fram í gærkveldi, sam-
kvæmt fegnum frá London, að
Þjóðverjar tefldu nú fram sið-
ustu varaliðssveitum sínum í
því skyni að brjóta Rússa á bak
aftur og komast að Volgu. Und-
anfarna 12 mánuði, sagði út-
varpið, hafa Þjóðverjar misst
10 milljónir manna og af þeim
voru 3jí millj. drepnir.
Hjá Kotelnikovo gera Rússar
tíð áhlaup á báða arma fleygs-
ins, sem Þjóðverjar hafa rekið
inn í viglinur þeirra, en virðast
■ekki geta hrakið þá til baka.
Milli Krasnodar og Novoross-
isk kveðast Rússar hafa gert á-
lilaup með þeiin árangri, að
Þjóðverjar hafi orðið að hörfa
til nýrra stöðva. Norðurhjá
Voronésh, Orel og Reshev halda
Rússar áfram áhlaupum sínum
til að létta farginu af vigstöðv-
unum sunnar. Áhlaupin virðast
þó ekki ná þeim tilgangi.
Rússar hafa skýrt frá því
nokkurum sinnum að þeir eigi
í æfingu milljónaher í Ural-
fjöllum og hann yrði sendur
fram, þegar mikið þætti við
liggja. Hjá mönnum vaknar því
sú spurning nú, hvort Rússar
eigi þetta varalið enn og geti
sent það til Stalingrad-vígstöðv- j
anna, eða hvort það sé þegar
farið að taka þátt í orustum þar |
og hafi þá elcki getað stöðvað
Þjóðverja. Mikið getur oltið á
þessu fyrir Rússa, en það er
hætt við því, að þeir láti lítið
uppi um þetta.
Blöð Rússa láta engan bilhug
á sér finna, þótt alvarlega horfi
og Ilja Elirenburg skrifar m. a.:
„Hvar eru úinir kátu, áhyggju-
lausu Þjóðverjar, sem sóttu
fram í fyrra? Nú eru það al-
vörugefnir menn, sem sendir
eru fram til áhlaupa. Þjóðverjar
eru að tala um hina góðu upp-
skeru í Rússlandi. Þeir minnast
ekki á heztu uppskeruna, sem
hefir orðið til á augabragði —
krossana yfir gröfum þýzku
hermannanna, sem eru um allt
frá Voronesli til Kákasus-f jalla.“
Þjóðverjar munu vera
famir að nota nýja tegund
kafbáta. Hefir þetta verið
gefið í skyn í þýzku útvarpi
og blöð í Englandi og Amer-
íku hafa líka sagt frá þeim.
Kafbátar þessir geta farið
í kaf á örfáum sekúndum,
miklu hraðar en eldri gerðir,
en það þykir afar mikill
kostur. Sökkva þeir eins og
steinn niður í 300 feta dýpi.
Mesta dýpi sem þeir þola
er 600 fet (200 m.), en þar er
þrýstingurinn orðinn svo
mikill, að aðrir kafbátar
mundu leggjast saman. En
komist djúpsprengjur nærri
kafbátum á þessu dýpi þá er
eyðileggingin nærri viss.
Þessir nýju kafbátar nota
heldur ekki rafmagn, þegar
siglt er í kafi, heldur blöndu
af súrefni og vatnsefni. Þeir
þurfa því ekki að vera tím-
um saman á yfirborðinu til
að hlaða rafgeymana.
Olíuvaiiclamálin
i
ltaiiilarí k jj un um
Allir olíu- pg benzín-flutn-
ingar með jámbrautum hafa
verið bannaðir í 20 miðvestur-
og suð.vestur-fylkjum Banda-
ríkjanna.
Með þessu móti losna 5—7000
olíuflutningavagnar, sem liægt
verður að nota til flutninga til
austurríkjanna, en þar er skort-
ur á olíu tilfinnanlegastur vegna
flutningaörðugleika.
Liklegt er að skömmtun verði
tekin upp í þeim fylkjuin, sem.
vagnarnir eru teknir úr.
I Washington er leiguhifreið-
um bannað að aka fólki, sem
ætlar eingöngu að skoða borg-
ina.
Stjórn Brasilíu hefir gert 75
öxulskip, sem höfðu leitað
hafnar þar, upptæk.
Af skipunuin voru 57 þýzk,
en hin ítölsk.
Þá hefir þrem öxulkafbátum
verið sökkt með ströndum,
fram, og flotinn og flugherinn
halda áfram eftirlitsstarfi sinu.
öllum bönkum, sem eru í
eigu manna öxulrikjanna, hefir
verið lokað.
Argentina, Chile, Peru og
Uruguay hafa samþykkt að líta
ekki á Brasilíu sem styrjaldar-
þátttakanda. Hdrskip Brasilíu
geta þvi notað hafnir þessara
landa og flugvélar þess flugvelli
þeirra.
Hráefnin nægja
oft ekki.
Roosevelt forseti hefir sagt
hlaðamönnum, að aðalvanda-
mál framleiðslu Bandaríkjanna
sé að afla hráefna.
Nefnd sú, sem á aS úthluta
forgangsleyfum á þeim, hefir
ekki ávallt nógu úr að spila, én
I annars er starf hennar mjög
þarft.
Forsetinn var þá spurður,
þvort liann væri ánægður með
framleiðsluna. Svaraði hann
því, að hann mundi aldrei verða
það, en þó væri liann ekki dap-
ur yfir henni.
Hann lagði áherzlu á það, að
Bandaríkin hefði enn ekki svo
miklum hergögnum á að skipa,
að það nægði handa öllum, sem
þyrftu þeirra.
j Loks sagði hann, að hann
vildi gjarnan koma einni mill-
jón hermanna til Ástralíu, en
1 það væri bara engin leið að
koma þeim þangað.
Churchill er kominn aftur úr
för sinni til Moskva. Hefir hann
verið fjarverandi í tæpar tvær
vikur. Blöðin i London fagna
honum vel.
Lögreglurannsólm
á ljósaútbúnaði
bifreiða.
Á næstunni mun lögreglan í
Reykjavík gera gangskör að því,
að athuga ljósaútbúnað bifreiða
og stöðva akstur þeirra, sem
ekki hafa ljósin í fullkomnu
lagi.
í þessu sambandi hefir lög-
reglustjóri skrifað öllum hif-
reiðaviðgerðastofum í bænum
og æskt þess, að þær kæmu upp
hjá sér útbúnaði til að rann-
saka hvort ljós bifreiðanna lýstu
mátulega hátt eða ekki. Ber
einnig nauðsyn til að ljósaúthún-
aðurinn, livað þetta snertir, sé
í góðu lagi.
Útbúnaðurinn til að athuga
liæð Ijóskastsins er fólginn i
því, að hifreiðinni er ekið að
vissu marki á gólfinu í viðgerð-
arverkstæðinu, þar eru ljósin
kveikt, svo þau lýsi á vegginn,
en á veggnum er komið fyrir
einskonar mælikvarða, er sýn-
ir nákvæmlega hve liátt ljósin
skuli stefna. Ef ljós bifreiðar-
innar stefna of hátt eða eru í ein-
hverju öðru ólagi, verður að
fara fram viðgerð á ljósaútbún-
aðinum, til þess að bifreiðin
megi aka áfram.
Þegar viðgerðarverkstæðin
liafa komið þessum útbúnaðít
upp hjá sér, mun götulögreglan
hefja sókn á hendur þeim hif-
reiðaeigendum, sem ekki hafa
ljósaútbúnað bifreiða sinna í
lagi.
Loftárás á Frankfurt
og Wiesbaden í nótt.
Brezkar sprengjuflugvélar
gerðu miklar árásir á horgir við
Rín í nótt sem leið. Aðalárásirn-
ar voru gerðar á Wiesbaden og
Frankfurt.
Sextán sprengjuflugvélar
komu ekki heim aftur úr leið-
angrinum. ítarlegri fregnir eru
ekki enn fyrir hendi.
Engar loftárásir voru gerðar
á Bretland í nótt.
Hoare í London.
Sir Samuel Hoare, sendiherra
Breta í Madrid, er kominn í
flugvél til London til viðræðna
við stjórnina. Sir Samuel mun
ekki verða lengi i London.
Ntntt Ogr lagrgrott.
Brezk blöð birta í morgun
fyrstu myndir af amerískum
svifflugum til hermannaflutn-
inga. Hver fluga flytur 15 menn
með alvæpni.
•
Hitler hefir skipað nýjan
dómsmálaráðherra og má liann
fara út fyrir lagabókstafinn í
starfi sínu, ef þurfa þykir.
I
Öll hernaðarframleiðsla
Bandarikjanna i júli var þrisvar
og hálfu sinni meiri en rétt
fyrir Pearl Harhor, þótt hún
hafi minkað heldur á sumum
sviðum.
•
Þýzka útvarpið hefir skýrt
frá því, að von Gahlenz, hers-
höfðingi, skrifstofustjóri í flug-
málaráðuneytinu þýzka, hefir
beðið bana í flugslysi. Með
honum fórst dr. Criime, skrif-
stofustjóri í kennslumálaráðu-
neytinu. Von Gablenz stjórnaði
sjálfur flugvélinni.
Tvö afmæli.
f dag eru tvö afmæli — brezk-
pólska sáttmálans og innrásar
Breta og Rússa í Iran.
Þ. 25. ágúst 1939: Var undir-
ritaður sáttmáli Breta og Pól-
verja um gagnkvæman stuðn-
ing, ef önnur hvor þjóðin yrði
fyrir árás. Viku síðar var styrj-
öldin hafin.
Þ. 25. ágúst 1941: Fóru her-
sveitir Breta og Rússa yfir
landamæri Irans, sem veitti í
fyrstu mótspyrnu, en lagði síð-
an niður vopnin. Riza Shah
Palilevi, er þótti hafa veitt
mönnum öxulríkjanna fullmikil
friðindi, var settur af og sonur
hans tók sæti hans. Síðan hefir
Iran verið aðalflutningaleið
bandamanna til Rússa.
Fljúgandi virki l i : í >.
Nokkur fljúgandi virki fóru
í gær til árásar á kafbátasmíSa-
stöð hjá Le Havre.
Á leiðinni heim gerðu 40
Focke-Wulf-190 orustuflugvél-
ar árás á þær. Flugmennirnir i
einu virkinu særðust, en annars
tóku brezkar og amerískar or-
ustuflugvélar á móti Þjóðverj-
unum. Voru tvær flugvélar
skotnar niður af háðum.
•
Frá Alexandríu koma þær
fregnir, að þangað sé kominn
allmikill fjöldi amerískra hrað-
báta (mosquito-boats), sem
starfa eiga með enska flotanum.
Valur
Reykjavíkurmeistari.
Veðrið var eins og bezt verður
á kosið í gærkveldi og áhorf-
endur margir.
Leikurinn var fjörugur frá
upphafi. K.R liafði heldur sókn
fyrst, en er á liálfleikinn leið,
var sóknin frekar hjá Val. Þó
var leikurinn tiltölulega jafn. Er
38 mín. voru liðnar af hálfleikn-
um skoraði Ellert, sem nú er
kominn i bæinn og þá auðvitað
í liðið hjá Val. Skoraði hann
eftir skemmtilega snöggan sam-
leik að marki K. R.
Seinni hálfleikur byrjaði einn-
ig mjög fjörugt, en er 8 mín.
voru liðnar, vildi einn K. R.
manna verja skot að markinu,
sem því hefði þó engin hætta
stafað af, og skallaði óverjandi
mark hjá sjálfum sér. Við þetta
var sem K. R.-ingar misstu
kjarkinn, þvi þó þeir ynnu af
kappi, var eitthvert vonleysi yf-
ir leilc þeirra, ekki sizt þegar Jó-
hann Eyjólfsson skoraði 3.
markið, ca. tveim minútum síð-
ar, eftir að hafa fengið miðjun
innan vítateigs frá hægra kanti
og leikið snöggt á tvo mótherja.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í
leiknum, fékk K. R. þó nokkur
upplögð færi, sem voru misnot-
uð, Valur missti reyndar lika
góð færi. — Dómari var Guðjón
Einarsson og liafði hann 4 linu-
verði og var það til bóta, eink-
um með tilKti til þess, að þeir
voru góðir.
Úrslitin gefa ekki alveg rétta
mynd af styrkleika liðanna, 3:1
eða jafnvel 2:1 hefði verið eðli-
legra, en Valur verðskuldaði sig-
urinn.
Björgvin Scliram lék nú með
K. R. og sá á honum æfingaleys-
ið. K. R. liðið munar um þá
bræður Skúla og Þórarinn Por-
kellssyni, sem vantaði. Valslið-
ið var mjög heilsteypt. Ellert
alltaf hættulegur, þó hann sé
nú lítið æfður. D.