Vísir - 25.08.1942, Page 2
VISIR
Hátt á 6. hundrað manns
hefur ferðast á vegum
Ferðafélagsins í sumar.
O §nmarle^fi§ferðir með rúmlega
140 þátttakendnm.
Nú er sumarleyfisferðum Ferðafélagsins lokið á þessu
sumri. Voru alls farnar 6 ferðir og voru þátttakendur rúmlega
140.
Vísir hefir snúið sér til Kristjáns Ó. Skagf jörð framkvæmdar-
stjóra félagsins og fengið hjá honum upplýsingar um ferðirn-
ar sem famar voru og þátttakendaf jölda í hverri ferð fyrir sig.
Fyrsta sumarleyfisferðin var
norður að Mývatni, Dettifossi
og Ásbyrgi. Var það 8 daga ferð
er hófst 4. júlí. I>átttakendur
voru 44 og Helgi Jónasson frá
Brennu fararstjóri.
Næsta ferð var með sama fyr-
irkomulagi og farið á sömu
staði. Þátttakendur voru 38 og
fararstjóri Helgi frá Brennu.
Þriðja ferðin var til Arnar-
fells hins mikla og í Kerlingar-
fjöll á hestum. Var lagt af stað
18. júlí og stóð ferðin yfir í 8
'daga. Þátttakendur voru 15, en
fararstjóri Ágúst Sveinsson
bóndi í Ásum.
Fjórða ferðin var 7 daga ferð
í Öræfin. Var lagt af stað í hana
25. júlí og voru þátttakendur
20. Fararstjóri var Tryggvi
Magnússon.
Fimmta ferðin var í Herðu-
breiðarlindir og til Öskju. Sú
ferð var farin í samráði við,
deild Ferðafélags íslands á Alc-
ureyri. Þátttakendur liéðan úr
Reykjavík voru 4. I ferðina var
lagt 17. júlí frá Akureyri og stóð
yfir í 6 daga.
Loks var síðasta ferðin aust-
ur á Síðu. Lagt var af stað 4.
ágúst og stóð ferðin yfir í 4 daga.
Þátttakendur voru 20, og farar-
stjóri Jón Gissurarson.
Ein ferð féll niður vegna ó-
nógrar þátttöku. Það var viku-
ferð í óbyggðir á hesturn. Átti
að ferðast um Kjöl og gista í
sæluhúsum Ferðafélagsins.
Fjórtán helgarferðir voru
farnar í sumar. Þátttakendur i
þeim hafa verið um 430 alls.
Þannig hafa um 570 manns
ferðast á vegum Ferðafélagsins
í sumar, og þó eru enn ófarnar
þrjár helgarferðir, sú næsta um
Heiðmörk, en hinar i Grafning
og á Esju.
Með þessum ferðum hefir
Ferðafélagið gert fólki kleyft
að komast bæði um helgar og
eins í sumarleyfum á ýmsa feg-
urstu staði landsins. Það liefir
efnt til ferða um fegurstu staði
Norðurlands, allt norður að
Dettifossi, Ásbyrgi og Mývatni,
þá að Öskju og í Herðubreiðar-
lindir, en hér syðra austur á
Síðu, austur í Öræfi, sem senni-
lega er ein tignrikasta byggð
á Islandj og loks í Arnarfell hið
mikla, sem er einn sérkennileg-
asti andstæðuheimur i íslenzku
landslagi.
Um helgar hefir Ferðafélag-
ið einnig gert sér far um að fara
á sérkennilega og fallega staði
nær og fjær bænum. Hefir þátt-
taka yfirleitt verið jöfn, en ekki
mjög mikil í neinni einstakri
ferð. Það sem hamlað hefir
starfsemi Ferðafélagsins mest
er bílaskorturinn, þvi margsinn-
is hefir félagið áf þeim, sökum
orðið að neita fólki um far.
Frumvarp borið fram á Alþingi
um notkun allra aðaltegunda
byggingarefnis.
Bjarni Benediktsson flytur frumvarp til laga um
notkun byggingarefnis, vegna þeirrar nauðsynjar, að
opinber stjómarvöld taki i sínar hendur frekari um-
ráð yfir ráðstöfun á aðalbyggingarefni því, sem til
landsiris flyzt. .
í 1. gr. frumvarpsins er kveðið svo á, að ef bæjar eða sveitar-
stjóm óski þess, skuli ráðherra sá, sem fer með verzlunarmál,
setja reglur um notkun allra aðaltegunda byggingarefnis, timb-
urs, sements og steypustyrktarjárns, sem til er í kaupstaðnum
eða hreppnum eða flutt verður þangað eftir gildistöku þessara
laga, í því skyni að efnið verði notað til þeirra byggingafram-
kvæmda, sem ráðherra telur brýnasta þörf fyrir á hverjum
stað, að fengnum tillögum bæjarstjómar eða hreppsnefndar.
— 1 2. gr. er ákvæði um, að er settar verði reglur um samkv.
1. gr. skipi ráðherra jafnframt tvo menn í nefnd, annan eftir
tilnefningu bæjar- eða sveitarstjómar, er hlut á að máli, er úr-
skurði með hliðsjón af settum reglum um notkun byggingar-
efnis o. s. frv. Brot á lögunum eða skilyrðum sem fyrmefnd
nefnd setur varða sektum allt að 50.000 kr.
DAGBLAÐ
Ú tgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlangsson
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1660 (fimm línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Afgreiðsla hjá opin-
berum stofnunum.
QPINBEIRAR stofnanir eru
settar upp til hagræðis fyr-
ir ahuenning. Þær eru þjónustu-
stofnanir landsmanna og ættu
því í hvívetna að vera fyrir-
mynd annarra fyrirtækja um
lipurð, kurteisi og vinsamlega
afgreiðslu. En þessa er þvi mið-
ur mjög farið á annan veg hér
á landi. Hér eru opinberar stofn-
anir ríki i ríkinu og hér fá menn
yfirleitt að finna það, að al-
menningur hefir ekki í önnur
liús að venda hvernig sem, af-
greiðslan er eða viðtökurnar.
Þeir, sem í þessum stofnunum
eru, virðast ^margir hverjir vera
þeiri'ar skoðunar, að fólkið sé
réttlaus aðili, sem aðeins sé tii
fyrir þessar stofnanir.
*
Eitt af því sem er rnest á-
berandi, er símaafgreiðsla á op-
inberum skrifstofum. Verða
menn oft að hringja lengi án
þess að svarað sé og svo þegar
komið er í símann, er svarað
með hálfgerðum þjósti, alveg
eins pg þeir, sem símans gæta,
hafi engan tima til að sinna
slíku kvabbi. í þessum efnum
er símagæzla ríkisstjórnarinnar
og ráðuneytanna sízt til fyrir-
myndar að ógleymdri síma-
vörzlunni hjá tollstjóra. Fleiri
stofnanir mætti nefna, þar sem
svarað er bæði seint og illa í
síma. Þetta er menningarleysi
og sýnir skort á athugun hjá
þeim, sem stofnunum veita for-
stöðu og mundu vafalaust flest-
ir þeirra kippa þessu í lag, ef
þeim væri á það bent. Til sam-
anburðar má geta þess, að i
Bandaríkjunum fá símastúlkur,
jafnt á opinberum sem einka-
skrifstofum, sérstaka þjálfun í
því að svara fljótt, kurteislega
og þægilega í síma. Væri full
þörf á að slík aðferð væri tekin
upp hér.
*
Það vill hrenna við, að al-
menningi sé sýnd lítil kurteisi
á mörgum, opinberum af-
greiðslustöðum. Eru menn látn-
ir oft bíða lengi eftir afgreiðslu
meðan afgreiðslumenn eru að
dunda við eitthvað, sem ekki
virðist þurfa sérstakrar athygli
við. Menn verða að bíða þolin-
móðir þangað til afgreiðslu-
manninum þóknast að afgreiða
þá. Að vísu eru hér heiðarlegar
undantekningar en yfirleitt er
afgreiðsla á opinberum stöðum
þannig, að fólki finnst því vera
sýnd sérstök náð, ef því er sinnt.
Þetta þarf að breytast, en það
verður ekki gert nema með sér-
stöku eftiríiti hins opinbera.
Ein stofnun tekur þó öllum
öðrum fram hér í bænum um
seina afgreiðslu. Það er skrif-
stofa tollstjóra. Allir sem við þá
stofnun þurfa að sldpta, kvarta
sáran undan þeim seinagangi,
sem þar er. Einfcum kvarta
kaupsýslumenn undan þeirri
meðferð, sem þeir þurfa að
sæta. Vörur er ekki hægt að fá
út frá skipaafgreíðslunni nema
gjöld hafi fyrst verið greidd af
þeim hjá tollstjóra. En það tek-
ur vikur, jafnvel mánuði, að fá
vörur afgreiddar gegnum skrif-
stofu tollstjóra. Þótt líf manns
liggi við, er ekki liægt að fá af-
greiddar vörur með minna en
nokkra daga eða jafnvel viku
fyrirvara. Stundum verða skjöl-
in að liggja hjá tollstjóra svo
vikum skiptir. Það sætir furðu,
að nokkur opinber stofnun skuli
geta sætt sig við að viðhalda
öðru eins sleifarlagi og hér á
sér stað. Þetta er ríkisvaldinu til
háðungar og borgurunum til
skaða og óþæginda. Það verður
að gera J>á kröfu til rikisstjóm-
arinnar, að hún láti setja af-
greiðslu tollstj óraskrifstofunnar
i viðunandi horf. Almenningur
gerir kröfu til, að þessu verði
kippt í lag. ,
★
Ef ekkert verður gert í þessu
máli bráðlega, mun hér verða
nánara rætt um þetta efni og
starfsemi þessarar stofnunar í
ýmsum atriðum, því kvartanir
eru mjög liáværar og menn liafa
frá ýmsu að segja.
Almenningur verður oftast að
þola þegjandi og hljóðalaust,
þótt þjónusta liinna opinberu
stofnana sé ekki ætið sem, skyldi.
f önnur liús er ekki að venda og
kvartanir einstaklinga eru sjald-
an teknar til greina. En blöðin
eru hinn rétti vettvangur til
þess að draga gallana fram i
dagsljósið og þjóðin á heimtingu
á að fá að vita hvernig hennar
eigin fyrirtækjum er stjórnað.
Ungmennafélag
Reykjavíkur efnir
til ferðalaga.
Ungmennafélag Reykjavíkur
efndi til göngufarar á Esju s.f.
sunnudag. 1 förinni tóku þátt
nokkrir félagar og skemmti
hópurinn sér hið bezta, þrátt
fyrir þokuna, sem byrgði mikið
fyrir útsýnið á tímabili.
Þetta er fyrsta skemmtiferð
félagsins, sem var stofnað hér
í bæ á s.l. vori. Þótti þátttakend-
um fararinnar vel byrjað með
því að klífa á hátind Esju, þó
æskilegt hefði verið, að almenn-
ari þátttaka hefði fengizt í þessa
för.
Esja er fögur ásýndum séð frá
Reykjayík og ferðalangurinn,
sem leggur á sig það erfiði, að
klifra upp hæsta tindinn, verð-
ur ekki fyrir vonbrigðum, þó
grjótið sé hrjúft og þokan grá-
lynd þar uppi. K.
Stofnun sniðmeistara-
félags í Reykjavík.
Nýtt fagfélag var stofnað í
Reykjavík mánudaginn 24. þ.
m. Er það félag tilskera í klæða-
og feldskurði hér í bænum, og
nefnist það „Sniðmeistarafélag
Reykjavíkur“.
Tilgangur félagsins er að
auka samvinnu og kynningu
meðal félagsmanna og efla hags-
muni þeirra. Ennfremur, að
leitast við i samráði við Klæð-
skerameistarafélag Reykjavíkur
og Klæðskerasveinafél. Skjald-
borg, að vinna að og efla hags-
muni klæðskerastéttarinnar i
heild, sérstaklega með tilliti til
kennslu í faginu. Stofnendur fé-
lagsins voru allir starfandi snið-
meistarar í bænum.
I stjórn voru kosnir: Guðm.
Benjamínsson form., Jón Jóns-
son ritari og Sæmundur Páls-
son féhirðir.
Bílar til almenning'snota.
Lögreglustjóri hefir afráðiÖ, í
samráði við atvinnumálará'Öherra,
að framvegis verÖi tvær bifreicSar
til afnota á lögreglustööinni, fyrir
almenning, í brýnni nauðsyn, svo
sem þegar sækja þarf lækni eða
ljósmóður o. s. frv. Vegna erfið-
leikana, sem á því eru, fyrir al-
menning, að fá bifreiðar, er þetta
hin þarfasta ráðstöfun.
GREIN ARGERÐ.
Vegna örðugleika um að-
flutninga á byggingarefni þykir
nauðsyn bera til, að opinber
stjórnarvöld taki í sínar hendur
frekari umráð yfir ráðstöfun á
þeim aðalefnivörum, sem til
landsins flytjast og í frv. grein-
ir, en gert hefir verið fram að
þessu, enda fæst ekki flutt til
landsins byggingarefni svo
nokkru nemi, án aðgerða af
hálfu ríkisvaldsins um útvegun
skipakosts.
í frv. er gert ráð fyrir, að á
milli ríkisstjórnar arinars veg-
ar og bæjar- eða sveitarstjórnar
hins vegar verði samvinna um,
livernig einkum beri að ráðstafa
fáanlegu byggingarefni á hverj-
um stað, þannig, að það komi að
sem beztum notum fyrir al-
menning.
Fyrirfram er ekki unnt að
setja fastar reglur um notkun-
ina.
Það fer eftir ýmsum aðstæð-
um, hvaða framkvæmdir talið
verður æskilegt að gangi fyrir,
og er eðlilegt, að bæjar- og
sveitarstjórnir hafi nokkra í-
hlutun um það.
í Reykjavik og fleiri kaup-
stöðum má vafalaust telja, að nú
beri einkúm að verja bygging-
arefni til þess að koma upp í-
búðum fyrir húsnæðislaust fólk
og á þann hátt að sem flestum
komi að notum.
Samkv.' gildandi lögum, hefir
innflutnings- og gjaldeyris-
nefnd að vísu heimild til að
setja hverskonai’ skilyrði fyrir
Ieyfisveitingum. En vegna inn-
flutningserfiðleikanna annars
vegar og húsnæðisvandræðanna
Heyskapur gengur
sæmilega sunnaulands.
en norðanlands
eru öþurrkar.
Raupgjald í sveitunum
stórhækkar.
Vísir átti stutt viðtal við bún-
aðarmálastjóra í morgun og
spurði bann um horfurnar í
sveitinni, en búnaðarmálastjói’i
er að sjálfsögðu kunnastur
þeim málum.
Tún bafa yfirleitt sprottið vel,
sagði búnaðannálastjóri, þar
sem eg veit til, nema harðlend-
ustu tún. Þau eru mjög léleg.
Útjörð er yfirleitt lélegx’i en í
fyrra. Mýi’ar hafa yfirleitt
spi’ottið illa og flæðiengjar eru
lélegri en í fyrra, t. d. Flóaáveit-
an og Safamýri. Gras er minna
en í fyrra, en spretta var líka
mjög góð þá.
jOtheysskapur mun verða lít-
ill í ár, sagði búnaðarmálastjóri,
bæði vegna þess, að engjar eru
víða lélegar, og svo vegna fólks-
leysisins.
}
4
Hvaða kaup er goldið
í sveitunum nú?
Fyrirspurn um þetta svaraði
húnaðarmálastjóri á þá leið, að
i vor, þegar ráðningarstofan tók
til starfa, voru karlar ráðnir í
kaupavinnu fyrir 130—140 kr.
um vikuna og konur fyrir 60 og
jafnvel upp í 80 krónur urn vik-
una. Hinsvegar er ekki ólíklegt,
að ýmsir hafi' neyðst til þess að
borga hærra kaup, og dæmi
munu þess, að kaupamönnum
sé greitt miklu hærra kaup en
að framan greinir, bara til þess
að fá einhverja hjálp, jafnvel á
þriðja hundrað krónur á viku,
en sennilega eru slílc dæmi ekki
mörg, enda bændum uin megn
að greiða slíkt kaup.
1310 kroour i verð-
larni ivrir teikoioQU á
Síldaxverksmiðjur ríkisins á
Siglufirði efna til verðlaunasam-
keppni á teikningu nýrrar síld-
arverksmiðju, 10 þúsundi mála,
á lóð síldarverksmiðja ríkisins 4
Siglufirði, og annarrar helm-
ingi minni verksmiðju á Rauf-
arhöfn.
Einnig verður að gera upp-
drætti að hryggjum, þróm og
geymsluplássi fyrir mjöl og
lýsi.
Fyrstu verðlaun eru 10.000
krónur og önnur verðlaun 5
þúsund krónur.
Þeir, sem vilja sinna þessu,
eiga að vitja upplýsinga og
teikninga af lóðum til sildar-
verksmiðja ríkisins á Siglufirði.
Þangað á einnig að skila teikn-
ingum fyrir 31. okt. n.k.
i kaupstöðunum hins vegar er
víða þörf á strangara eftirliti
með notkun byggingarefnis
framvegis en til þessa hefir ver-
ið framkvæmt. Er þess þörf og
réttara að setja um eftirlitið sér-
stök lög, ef ætlazt er til, að það
komi að notum.
Samkv. frv. dregur ráðherra,
eftir tillögum bæjár- og sveitar-
stjórna, aðallínurnar, sem fara
ber eftir um notkun byggingar-
efnis á hverjum stað, þar sem
þörf er talin fyrir opinbera í-
hlutun, umfram skilyrði inn-
flutnings- og gjaldeyrisnefndar,
en framkvæmdin verður falin
tveim mönnum, er ráðherra
skipar, annan eftir tilnefningu
bæjar- eða sveitarstjórnar.
Vantar góðan
verkamann
til aðstoðar bifreiðastjóra á
vörubíl. Uppl. á Hverfisgötu
114, milli kl. 7 og 9.
Guðmundur Jónsson.
í ágætu standi, er af sérstök-
um ástæðum til sölu og sýn-
is á Hringbraut 191, kl. 4—6
í dag. —
Peoifloavesld
merlct: „Brynjólfur Eiríks-
son,“ tapaðist í gærmorgun á
leiðinni frá Landsímahúsinu
upp í Garðastræti, um
Kirkjustræti og Túngötu. —
Finnandi er vinsamlega beð-
inn að skila því til liúsvarðar
Landsímahússins, gegn fund-
arlaunum.
Ung: lijón
óska eftir eins til þriggja
herbergja íbuð. Vilja borga
500,00 kr. á mán.
Þeir, sem vilja sinna þessu
leggi nöfn sín á afgr. blaðsins,
merkt: „500“ fyrir fimmtu-
dagskvöld. —
Húsnæöi
vantar strax eða 1. sept. —
3 fullorðið í heimili. — Gott
fólk. — Tilboð, merkt: „400“
sendist blaðinu fyrir laugar-
dagskvöld. —
Ibnð
óikast
1—2 lierbergi og eldhús ósk-
ast nú þegar eða 1. október.
Tilboð, merkt: „Barnlaus
hjón“ sendist Vísi fyrir 28. þ.
m. —
ÁREIÐANLEGUR
maðnr
óskar ef tir að aka vörubíl. —
Uppl. í sima 3664. —-
sem hefir áhuga fyrir teikn-
ingu, getur fengið að læra
prentiðn. Umsóknir, ásamt
mynd, sem verður endur-
send, sendist Vísi, merkt:
„Unglingur“. —
nýkomnar.
vmit
Laugavegi 1.
Fjölnisvegi 2.