Vísir - 28.10.1942, Síða 3
V ISI H
Framtiðarstaður fyrir
Meontaskó ann.
TT ennslumálaráðherra hefir ,
skipað þá Guðjón Sam-
úelsson, húsameistara ríkisins,
Hörð Bjarnason, skrifstofu-
stjóra Skipulagsnefndar ríkisins
og Pálma Hannesson rektor til !
þess að gera tillögur um fram-
tiðarstað fyrir Menntaskólann í
Reykjavík.
Með heimild frá siðasta A1
þingi var ríkisstjórninni falið j
að láta fram fara athugun á !
þessu rnáli, með séi'stöku tilliti
til brottflutnings skólans úr :
bænum og austur að Skálholti
í Biskupstungum.
Kennslumálaráðherra hefir
nú skipað þriggja manna nefnd
samkvæmt þessari heimild til
að gera tillögur í málinu, en
með tilliti til þess, að skólinn
standi áfram þar sem hann hef-
ir verið hér í Reykiavík frá því
að núverandi skólahús var relst,
og er nefndinni ætlað að athuga
vandlega viðbótarskilyrði við
núverandi lóð, svo að skólinn
geti tekið við öllum Jæim nem-
'endafjölda; sem æskir upptöku
í gagnfræðadeild.
Það er full ástæða til l>ess að
fagna því, að kennslumálaráð-
herra skuli hafa ákveðið fram-
tíðarstað skólans eins og verið
hefir. Brottflutningstillasa rekt-
ors þótti fráleit og hefði aldrei
fengið byr hjá almenningi, enda |
allra hluta vegna óráð að flytja
slíka mennlastofnun sem
Menntaskólann i fjarlægt hór- |
að. —• Slík ráðstöfun
mundi gera efnaminni fjöl-
skyldum erfiðara um að senda
börn sín í skólann, nemendur
mundu ekki hafa aðgang að
eins góðum bókakosti og þeir
geta sótt frekari fróðleik í hér
í Landsbókasafninu, því að það
er ekki gert í einu vetfangi að
koma upp fullkomnu bókasafni
og loks er engin trygging fyrir
því, að hinir beztu kennslukraft-
ar fengjust, ef kennsluliðið ætti
að vera búsett óraleiðir frá
Reykjavík.
Það er vitað mál að kennar-
arnir eru elcki svo vel launaðir,
að þeir megi missa þær auka-
tekjur, sem þeir geta aflað sér
með margskonar störfum, er
þeir inna af hendi utan venju-
legs vinnutíma. Þeir þurfa lika
að geta haft greiðan aðgang að
fullkomnu bókasafni, vegná
vísindaiðkana beirra, sem marg-
ir þeirra leggja stund á. Þeim
yrði því gert mjög óhægt um
hönd, ef skólinn flytti upp i
sveit.
Ein mótbáran fyrir skóla í
Reykjavík hefir verið sú, að
bæiarlífið og skemmtanir hefðu
truflandi áhrif á námsfólkið.
Sú mótbára er ekki mikils
virði. Hvað mættu stórborgir
eins og Kaupmannahöfn, Stokk-
hólmur, Osló og fleiri segja i
þeim efnum, þar sem allar
þeirra menntastofnanir frá
barnaskólum til háskóla eru í
miðri hringiðu borgarlífsins?
Varla er minna um skemmtanir
þar en hér, eða færri þær freisf-
ingar, er verða á vegi hinna ó-
hörðnuðu unglinga. Hversvegna
hafa ekki hinir æðri skólar
Jiessara borga verið flnttir úpp í
sveit? Þar er vart samgöngu-
leysinu fyrir að fara. Ætli það
sé ekki vegna þess, að í borgun-
um eru þær menningarstofnan-
ir, sem æskilegast er að skóla-
nemendur kynni sér, svo sem
bókasöfn, listasöfn o. s. frv,
Það er líka öldungis óvíst,
hvort æskan liefir ekki beinlín-
is betra af þeirri tilbreytingu,
sem hið fjölbreytta líf í bæn-
um getur veitt, en „puri-
tanskri“ einangrun í heima-
vistarskólum. — Annarsveg-
ar eru heimilin og skólamir í
samvinnu um uppeldi ungling-
anna, en hinsvegar einungis
skólaaginn. Því er ekki að neita,
að það getur átt sér stað, að
þörf sé fyrir einangrun og
sterkan skólaaga fyrir einstaka
nemendur, en I>au tilfelli eru
örfá og gefa enga ástæðu til
gagngerðrar breytingar á skóla-
fyrirkomulaginu.
Sterk skólastjórn ineð góðum
aga er heppilegri, ef hún starf-
ar í samfélagi við heimilin að
uppeldi unglinganna, heldur en
skólasijórn, sem tekur sér ein-
ræðisvald um uppeldi á fjölda
æskumanna með mjög mis-
jafnri lyndiseinkunn og eðli.
1 þessu sambandi væri það
heldur ekki úr vegi, að skóla-
stiórnin tæki meiri þátt i félags-
lífi nemendanna, en gert hefir
verið að undanförnu, þvi að á
þann hátt gæti hún fengið ])eim
fjölda nýrra og þarflegra um-
hugsunarefna.
Hús Menntaskólans i Reykja-
vík verður innan skamms
hundrað ára. Það hefir elzta og
merkasta „tradition“ allra reyk-
vikskra bygginga og er jafn-
framt því eitt af fegurslu hús-
um bæjarins frá byggingar-
fræðilegu sjónarmiði. Þess ber
mjög að óska, að hinni nýskip-
uðu nefnd megi auðnast að
ganga svo frá hinu mikilsverða
hlutverki sinu, að Menntaskól-
anum verði ætlaður í framtíð-
inni staður, þar sem hann nú er
og hefir fest rætur í menningar-
sögu þjóðarinnar, að skólan-
um verði afhent í afmælisgjöf
nægilegt landrými tiJ hæfilegrar
aukningar starfsemi sinni — og
umfram allt að gamla húsið fái
að standa óbreytt meðan þess
er nokkur kostur.
Við eigum svo fáar „tradi-
tionir“ að við megum ekki við
því að glata þeim dýrmætustu.
Bϒar
fréttír
I.O.O.F. — Spilakvöld.
Frú Gerd Grieg verður hér á landi
nokkurn tíma enn.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
Heddu Gabler kl. 8 í kvöld, og
hefst sala aðgöngumi'ða kl. 2 í dag.
— Eins og á'Öur hefir veriÖ getiÖ,
átti frú Gerd Grieg aÖ fara til Eng-
lands mjög fljótlega, þar sem henn-
ar bíÖa önnur verkefni. En fyrir
vinsamlega aÖstoÖ norska sendiherr-
ans Esmarchs hefir frú Grieg feng-
iÖ nokkurn frest á skyldustörfum
sínum í Englandi. — Þessi fregn
er óefað mikið gleðiefni fyrir leik-
húsgesti, en þó mest fyrir Leikfélag
Reykjavíkur, sem nú mun geta haft
nokkrar sýningar í viðbót með frú
Gerd Grieg. AÖsóknin að þeim sjö
sýningum, sem búnar eru á Heddu
Gabler hefir verið sérstaklega góð,
enda hefir leiknum veriÖ afar vel
tekið.
Frá Golfklúbb fslands.
Félagar, munið að tilkynna þátt-
töku ykkar í árshátíð klúbbsins fyr-
i ir r. nóv. Tilkynnið þátttökuna til
1 Guido Bernhöft, simi 2790, og Ja-
kobs Hafstein, sími 5948.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 íslenzkukennsla, 2. fl.
19.00 Þýzkukennsla, 1. fl. — t9.25
Hljómplötur: Segovia leikur á gít-
ar. 20,0 oFréttir. 20,30 Kvöldvaka:
a) Knútur Arngrímsson kennari:
Vesturlönd Asíu, II: Logaland. Er-
indi. b) Sigurður Grímsson lög-
fræðingur: „Á að selja Battaríið?“
Frásaga. c) „Kling-klang“-kvintett-
inn syngur (Ólafur Beinteinsson og
fleiri). 21,50 Fréttir.
Bezt að augljsa í Vísi.
Sjúkrasamlagsiðgjöldin verða
hækkuð írá 1. nóv. n. k,
Sjúkrasamlagið hefur sótt um lyfsöluleyfi.
Vegna dýrtíðarinnar, hækkandi kaups og hækkandi vísitölu
virðist óhjákvæmilegt að hækka iðgjöld Sjúkrasamlags-
ins frá 1. nóv. n. k. Getur farið svo, að iðgjöldin verði að hækka
upp í a«t að kr. 10.00 pr. mánuð.
í fyrradag liélt stjórn Sjúkrasamlagsins fund og var þar sam-
þykkt eftirfarandi tillaga:
I
„Stjórn S. R. telur nauðsyn- | öll gjöld til lækna i samræmi
legt að liækka nú þegar iðgjöld við kauphækkun opinberra
sainlagsmanna í kr. 10 um mán- starfsmanna og nemur sú hækk- j
uð, en með hliðsjón af þvi, hvc un samlals 320 þús. kr., er
iðgjöldin eru þegar orðin liá, Sjúkrasamlagið verður að
treystir stjórn S. R. sér ekki til greiða. Ennfremur liefir kaup
að leggja til að iðgjöldin verði skrifstofufólks og annars starfs-
hækkuð meira en í kr. 8.00 pr. liðs Saml. liækkað i hlutfalli við
mánuð og treystir þvi jafnframt, þetta. Loks hefir vísitalan hækk-
að daggjöldin á sjúkrahúsum að til inikilla muna og bitnar
ríkisins haldist óbreytt allt ár- það allt á Sjúkrasamlaginu.
ið 1942 og opinber styrkur til Þess skal að lokum geta, að
S. R. aulcinn." Sjúkrasamlagið hefir sótt um
Hafði Visir tal af Gunnari E. lyfsöluleyfi til ríkisstjórnarinn-
Benediktssyni lögfræðingi, sem ar fyrir samlagsmenn sina,
sæti á í stjórn SjúkrasamJagsins. þannig að ágóðinn af lyfjaverzl-
Tjáði hann blaðinu að samþykkt uninni renni til stofnunarinnar
þessa bæri að skoða sem áskor- sjálfrar, en ekki til einstakra
un til ríkisstjórnarinnar uin lyfjabúðaeigenda.
verulega aukin fjárframlög til
rikisspítalanna og til trygging-
anna, svo ekki þyrfti að hækka
daggjöld á ríkisspitölunum aö
jafn verulegu leyti sem ákveðið
hefir verið.
Annars hefir rikisstjórnin á-
kveðið að hækka daggjöldin um
þriðjung, eða úr kr. 10 i kr. 15
frá 1. okt. s.l. Þessari hækkun
hefir stjórn Sjúkrasamlagsins
eindregið mótmælt.
Þá hækkuðu frá 1. júlí s.l.
Vanur bílstjóri
óskar eftir að keyra góðan
vörubil eða bíl hjá heildsölu-
firrna. Hefi einnig góða
vinnu fyrir vörubil. Tilboð,
rnerkt: „Vanur“, sendist
blaðinu fyrir laugardag. —
Fy ri rliggjandi
tii bygginga
Steyptir steinar, einangr-
unarplötur úr vikri og hefil-
spónum. Ennfremur vikur-
holsteinn.
STEINAGERÐ
Guðmundar Agnarssonar.
Þvervegi 2.
Skerjafirði.
Mig vantar
lijáioanraiii
iil aðstoðar á vinnustofum
minum og til að kynda tvær
miðstöðvar.
KRISTJÁN SIGGEIRSSON.
Clark Gable, kvikmyndaleik- sýnir þegar hann gekk í flug-
! ari, verður í dag liðsforingi í , herinn í ágúst s. 1.
flugliði Bandaríkjahers. Myndin !
Dug'lcs'ur
nn^lingnr
óskast til að bera blaðið til kaupenda um
SólTellina
Dagblaðiö Vísir
Hú§ tíl §ölu
Nánari upplýsingar gefur
Gnðlans:nr Þorláksson
Austurstræti 7. Sími 2002
10-15% afsláttur
af cCtirtöklnm) töiisu:
Herra- og dömu- rykfrökkum, drengía-vetirarfrökkum,
dömu- og telpukápum og nokkurum kiólhöiinti.
Takmarkaðar birgðir.
Komið heldur fyni en síðari hluta dags, þá er minna
að gera og þér fáið fljótari afgreiðslu.
VESTA, Laugavegi 40.
Diig'leg'iin ungling
vantar til aö bera til !
kaupenda un,
LaiigrariiewTeg ogr Klcppslíioltiö
frá 1. næsta mánaðar 1
Uagblaðið VfSlít Simi 1660
Smásöluverð
á vindlingum.
Otsöluverð á enskum vindlingum má eigi vex.a hærra en hér
segir.
Players N/C med 20 stk. pk. Ms. 2.50 pakkinn I
May Blossom 20 — 2.25 —
De Reszke, Virginia 20 — 1.90 —
Commander 20 — 1.90 —
De Reszke, tyrkn 20 — — — 2.00 —
Teofani 20 -r- 2.20 —
Derby 10 — 1.25 —
Soussa 20 — — 2.00 — .
Melaehrino nr. 25 20 — 2.00 —
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má úisöluverðið vera
3% hærra en að framan greinir, vegna flutningskostnaðar.
TÓBAKSEINKASÁLA R!KISINS.
Utivist barna.
Hér með er athygli vakin á 19. gr. lögreglusainþykkt-
ar Reyk javikur, sem hl jóðar svo:
„Unglingum innan 16 ára er óheimill aðgangur að
almennum knattborðsstofum, dansstöðom og öl-
drykk justofum. Þeim er óheimill aðgangur að almenn-
um kaffistofum eftir kl. 20, nema í fylgd með fullorðn-
um, sem bera ábvrgð á þeim. Eigendum og umsjónar-
mönnum þessara stofnana ber að sjá um5 að unglingar
fái þar ekki aðgang né hafist þar við.
Börn yngri en 12 ára mega ekki vera á almannafæri
seinna en íd. 20 á tímabilinu frá 1. október til 1. maí
og ekki seinna en kl. 22 frá 1. maí til 1. október, nema
í fylgd með fullorðnum.
Börn frá 12—14 ára mega ekki vera á almannafæri
seinna en kl. 22 á tímabilinu frá 1. október til 1. maí
og ekki seánna en kl. 22 frá 1. maí til 1. október, nema
í fylgd með fullorðnum,
Foreldrar og húsbændur bamanna skulu, að viðlögð-
um sektum, sjá um að ákvæðum þessum sé framfylgt.“
Mun lögreglan hafa ríkt eftirlit með, að ákvæði þessi
séu haldin og tafarlaust láta þá sæta ábyrgð, sem brjóta
gegn þeim.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 27. okt. 1942.
AGNAR KOFOED HANSEN.