Vísir - 02.11.1942, Side 2
V I S 1 R
VÍSIR
DAGBLAÐ
títgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlangsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstrwti).
Símar: 1660 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Bifreiðaúthlutunin.
J^ýlega kvað lögmaðurinn i
Reykjavík upp dóin í fyrsta
málinu, sem höfðað var gegn
fjármálaráðherra, út af bif-
reiðaúthlutuninni, og var fjár-
málaráðlierra og skilanefnd
bifreiðaeinkasölunnar sýknuð
af kröfum þeim, sem í málinu
voru gerðar.
Andstæðingar Sjáilfstæðis-
flokksins hafa á margan hátt
reynt að nota bifreiðaúthlutun-
ina sér tií framdráttai', einkum
í síðustu kosningum. Vita þeir,
sem er, að hér er um viðkvæmt
mál að ræða, og líkindi til að
unnt sé áð ala svo á óánægju,
að þeir menn, sem ékki hafa
orðið fyrir því happi að hljóta
bifreið, snfrizt þess vegna gégtt
Sjálfstæðisflokknum, með því
að þeir telji sig misrétti beitta.
Augljóst mál er það þó, að ekki
er unnt að gera svo öllum líki,
þar eð umsóknir um bifreiðar
eru mörgum sinnum fleiri en
bifreiðar þær, sem úthlutað er,
og verður það að velta á mati
á þörfinni, hverjir hljóta bif-
reiðarnar. Slíkt mat má vafa-
laust alltaf gagnrýna, en þótt
svo sé verður með engum rök-
um saiinað að það sé rangt, eða
óeðlilegt á nokkurn veg.
Nefnd sú, er kosin var af AI-
þingi til að hafa með höndum
bifreiðaúthlutunina, hefir hagað
störfum sinum svo, að í fullu
ósamræmi er við hagsmuni liins
opinbera. Hefir meiri hluti
nefndarinnar gert sér leik að
því, að úthluta bifreiðum til
manna, án þess að vera i sam-
ráði við fjármálaráðherra, og
lialdið áfram störfum eftir að
allur grundvöllur fyrir starfi
nefndarinnar var brott fallinn.
Hvorki nefndin, né þeir menn,
sem hún úthlutaði bifreiðum,
voru i „góðri trú“ er nefndin
tók ákvarðanir sinar, og fer
svo fjarri að hún hafi á nokkum
hátt verið þess um komin að
skuldbinda ríkissjóðinn, að engu
tali tekur. Hinsvegar getur kom-
ið til álita hvort nefndin liafi
ekki hagað störfum sínum á
þann veg, að hún hafi bakað sér
persónulega skaðabótaábyrgð.
Gæti slikt vel komið til greina,
en fer þó eftir nánari atvikum,
og er ekki unnt um að dæma
fyr en öll kurl eru til grafar
komin. Allur sá styrr, sem stað-
ið hefir um bifreiðaúthlutunina,
er einn þáttur í áróðursherferð
andstæðinga Sjálfstæðisflokks-
ins, vegna kosningabaráttu
þeirrar, sem nú er af staðin.
Þessir flokkar sáu svo um, að
fjármiálaráðherra var gert ó-
kleift að starfa með nefnd þeirri,
sem Alþingi ætlaðist til að hefði
bifreiðaúthlutunina með hond-
um ásamt honum, og er svo
var komið var ekki annað fáð
heppilegra en að stemma á að
ósi og afnema bifreiðaeinkasöl-
/na, sem aldrei hafði verið verk-
efni sínu vaxin. Þess munu etíg-
in dæmi, að opinber nefnd hafí
misskilið hlutverk sitt jafn
herfilega og meiri hluti þeirrar
nefndar, sem átti að hafa bif-
reiðaúthlutunina með höndum.
Mikíð veður var gert út af því
í blöðum vinstri flokkanna, er
málaferli gegn fjármálaráð-
herra voru hafin. Mátti þó öllum
meðalvitibomum nxönnum vera
það Ijóst, að málaferlin voru
hrein vitleysa, og alls enginn
grundvöllur fyrir þeim. Ef slík
málaferli væru réttlætanleg,
hefðu þau átt að beinast gegn
meiri hluti úthlutunarnefndar-
innar, en ekki gegn því opinbera.
Dómsniðurstaða sú, sem að of-
an greinir, kemur því engum á
óvart, en er i fullu samræmi
við það, sem fyrirfram mátti
gera ráð fyrir. Herferðin gegn
fjármálaráðherra hófst einvörð-
ungu vegna kosningabaráttunn-
ar, og hefði hún ekki staðið fyr-
ir dyrum, hefði úthlutunar-
nefndin vafalaust hagað störf-
um sínum á annan veg. Fjár-
málaráðherrann hefir lítið lagt
til þessara mála á opinberum
vettvangi, þrátt fyrir allar árás-
ir, sem hann liefir sætt. Bifreiða-
úthlutunin er þess eðlis, að eng-
an veginn er auðvelt að hafa
hana svo með liöndum, að ekki
megi um deila. Hér er um mats-
atriði að ræða og annað ekki.
Undirréttardómurinn sker hins-
vegar réttilega úr því, að fjár-
málaráðherra hefir farið að
fullu að lögum, og er það aðal-
atriðið, sem og hitt, að nú hefir
bifreiðaeinkasalan verið afnum-
in og orðið engum harmdauði.
Hún hafði vissulega starfað of
lengi.
B- listinn vann stúd-
entaráðskosninguna
Kosningu í stúdentaráð Há.skól-
ans s.l. laugardag lauk með al-
gerum sigri B-listans — þ. e.
„Vöku“, Félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta, er hlaut 167 atkv.
og 5 menn kjörna, en A-listinn,
sameinaður listi kommúnista,
framsóknarmanna og jafnaðar-
manna, fékk 154 atkvæði og 4
menn kjöma.
Þeir sem kosningu liafa hlotið
eru, af B-lista: Jónas Rafnar
stud. jur., Ásgeir Magnúss. stud.
med., Kristján Eiriksson stud.
jur., Sigurður Guðmundsson
stud. theol. og Ásberg Sigurðs-
son stud. jur. Af A-lista voru
kosnir Kristján Þ. Eldjárn stud.
mag., Skúli Thoroddsen stud.
med., Benedikt Gunnarsson
stud. polyt. og Helgi J. Hall-
dórsson stud. mag.
Kjörsókn var með allra mesta
móti.
\
Bilarnir aka of hratt og
fótgangandi fólk hlýðir
ekki umferíareglnm.
Þetta verður að’lagast.
Lögreglustjóri kallaði nýlega
blaðamenn á sinn fund og skýrði
þeim frá því, að næstu daga yrði
aukið lögreglulið við umferðar-
bendingar á götum úti, og jafn-
framt bað hann blaðamenn að
brýna fyrir fólki, að það ætti
að hlýða umferðarbendingum
lögreglunnar, og þeir, sem gerðu
það ekki, bæru ábyrgð á því
sjálfir.
Það er nú komið á þriðja ár
síðan lögreglan fór að stjórna
umferðinni á fjölförnustu
gatnamótum í bænum. Enda
þótt sú ráðstöfun hafi verið til
mikilla bóta, vantar samt enn
nokkuð á, að fólk hlýði um-
ferðarreglum svo sem vera ber.
• Það, sem fótgangandi fólki er
nauðsynlegt að vita, er það, að
þvi er þá aðeins leyfilegt að fara
yfir götu, að lögregluþjónninn,
sem umferðinni stjórnar, snúi
að þvi annarri hvorri hliðinm.
En snúi hann að því baki eða
brjósti, er þvi óheimilt að fara
yfir götuna.
Þá er annað, sem ábótavant
Lóð Hallgrfmskirkjo
rýmd að nokkrn.
Verður nú hafizt handa um að
reisa kapelluna.
Biskup landsins, herra Sigurgeir Sigurðsson, tilkynnti í gær,
að bráðlega yrði hafizt handa um að reisa kapellu Hallgríms-
kirkju (suðurvænginn). Var biskup staddur í gærmorgun, á-
samt húsameistara ríkisins, próf. Guðjóni Samúelssyni, prestum
og sóknamefnd, á lóð kirkjunnar á Skólavörðuholti, en þessir
aðilar komu þar saman vegna hinna fyrirhuguðu framkvæmda.
Biskup kvað í ráði að koma
upp kapellunni hið fyrsta, til
jiess að bæta úr brýnustu þörf
safnaðar og presta Hallgríms-
sóknar, með þvi að reisa kapell-
una, en meginbyggingin verður
læist síðar, þegar efni og að-
stæður leyfa.
Vísir skýrði fyrstur frá þess-
um áformum varðandi kapell-
una fyrir nokkuru, samkvæmt
viðtali við biskupinn, og nefnd-
ist greinin „Kapella Hallgríms-
kirkju mun brátt rísa af
grunni“. í þessu stutta viðtali
leiddi biskupinn styrk rök að
því, hver nauðsyn væri að
hrinda af stað nýju, voldugu á-
taki, til j.y,ss að vinna fyrir
kirkjumálið, og hverja þýðingu
það mundi hafa fyrir trúarlega
starfsemi, að kirkjan kæmist
upp, og verða uppeldisáhrifum
og bættum heimilisbrag til
blessunar.
Biskup hefir óskað j>ess get-
ið, í viðtali við Visi, að Bonesteel
hershöfðingi Bandaríkjahersins
hér hefði brugðist mjög vel við
umleitan sinni, um að rýma
lóð kirkjunnar, vegna hinna fyr •
irhuguðu framkvæmda, og hefir
jiað þegar verið gert að noklc-
uru.
Islenzk kona kcmst
úr fangabiiðnm
Japana.
T1 yT'ir skömmu barst mér
* bréf frá frú Steinunni
Jóhannsdóttur Hayes, dag-
sett 30. ágúst s. 1. Hún var
þá nýkomin til Bandaríkja
frá Japan og dvaldi á lieim-
ili sonar síns, sein er læknir,
— eins og foreldrarnir, —
í bænum Raleigh í fylkinu
Norður-Carólínu.
Þau Hayeshjónin liafa unnið
að kristniboði og læknisstörf-
um í Kína síðan um aldamót.
Dr. Hayes hefir um langt skeið
verið forstjóri stærðar sjúkra-
húss í Kanton í Kina, og síð-m
ófriður liófst milli Kinverja og
Japana hefir verið rekin jiar
björgunarstarfsemi í stórum
stíl. Um 1200 allslausir Kinverj-
ar fengu ókeypis máltíð einu
sinni á dag í görðum sjúkra-
hússins. Rauði Kross Banda-
rikja og ýmsir kristniboðsvinir
vestra lögðu féð til. Japanar
létu þetta starf hlutlaust, unz
ófriður hófst við Bandamenn.
En þá létu þeir greipar sópa
um allar eignir Ameríukmanna
í Kanton og annarstaðar þar
sem þeir náðu til.
„Japanar tóku allt smátt og
stórt, sem við hjónin áttum,
þeir tóku jafnvel gamla trúlof-
unarhringinn af hendinni á
mér,“ skrifar frú Hayes. „Sum-
arbústaðurinn okkar nálægt
Hong Köng var brendur, og öll
bankainnstæða okkar og
kristniboðsins til hjálpar og
líknar var tekin.“ —
„Við hjónin urðum að yfirgefa
heimili okkar í Kanton 11. apríl,
vorum flutt á flutningaskipi
japönsku til Shanghai. Þar vor-
Um við í haldi hjá Japönum til
29. júní. Þann dag lögðum við
af stað sjóleiðis til Austur-
Afriku.“
Flutti japanska skipið ýmsa
er í umferð bæjarins, og það
er of hraður akstur bifreiða.
Hefir lögreglan að undanförnu
kært marga bifreiðastjóra fyrir
of hraðan akstur, ekki hvað sízt
meðan á loftárásarmerkjum
stendur. Mun lögreglan halda
því áfram á meðan nauðsyn
krefur, en vill hinsvegar beina
því til bifreiðarstjóra, að j>eir
brjóti ekki sett ákvæði um öku-
hraða innanbæjar.
Bandaríkjaþegna til nýlendu
Portúgalsmanna i Austur-
Afriku og mætti þar skipi, er
kom með japanska þegna vest-
j an um haf. Urðu þar farþega-
{ skipti á skipunum. Þeir, sem
j komu austan frá Ifina og Japan,
! liéldu suður um Afríku og vest-
j ur um haf með ameríska skip-
; inu. Förin frá Kína til New
York tók alls nærri 2 mánuði.
„I vikunni sem leið komum
: við til New York,“ skrifar frú
Steinunn. „Eg veit ekki hvort
J>ér getið ímyndað yður hvað
! Bandaríkin voru fögur og bros-
j mild í augum vor langferða-
manna. Vér reyndum að syngja
ættjarðarsönginn, er skipið fór
fram hjá „Frelsisstyttunni“ við
höfnina 1 New York, en j>að
| urðu grátstafir og jjakkartár er
heilsuðu „Frelsisgyðjunni“. Það
í var svo margs að minnast frá
! erfiðum dögum í aðþrengdu
Kína og á valdi grimmlyndra ó-
; vina, — en nú komin heil heim
{ fyrir dásamlega handleiðslu
j góðs Guðs.
Við hjónin liöfum aldrei verið
svo horfallin sem nú, og fór
okkur J>ó mikið fram á skipinu.
— Allt smátt og stórt, sem við
höfðum eignast í 40 ár í Kína,
er horfið, en við höldum heilsu,
eigum hvort annað og óbreytta
náð Guðs, — og þvi skyldum við
þá kvarta? — Kristniboðshjón-
in norsku (Westerborg), er
voru hjá okkur um hríð Can-
ton, fengu þá upphæð, er
kristniboðsvinir á íslandi sendu
þeim í fyrrahaust. Peningarnir
komu til banka í Hong Kong,
og voru lagðir þar í reikning
okkar, og svo greiddum við
Westerborg samsvarandi upp-
hæð, er kom sér mjög vel fyrir
j>au, alveg félaus. Við kvöddum
þau síðast í Shanghai, og erum
að vona að J>au hafi komist
nokkru síðar með öðru skipi til
Austur-Afríku. Þau voru örugg
og ólcvíðan með einlægu trausti
á Drottni, er við kvöddumst,
— innilega þakklát ókendum ís-
lenzkum vinum, er höfðu styrkt
þau og myndu halda áfram að
biðja fyrir þeim.“
Frú Steinunn Hayes getur
þess enn fremur í bréfi sínu, að
hún muni síðar skrifa nánar um
„erfiðasta árið“ j>eirra i Kína.
Sigurbjöm Á. Gíslason.
Sorphreinsunarbílarnir
nýju teknir til starfa.
IT ísir hefir áður getið um nýja sorpbíla sem bærinn myndi
» fá til sorphreinsunar í bænum, og verða mundu til mikils
léttis fyrir þá sem að sorphreinsun ynnu. Nú er fyrsti
bíllinn af þessari gerð kominn í umferð og hinir munu taka til
starfa innan skamms.
Vísir spurði Valgeir Björns-
son bæjarverkfræðing um hina
nýju bila, og sagði liann að j>eir
myndu verða til mikils liægðar-
auka og spara mjög vinnukraft
við sorphreinsunina.
Verða hér eftir færri menn í :
hverjum. flokki, því nú þarf j
ekki lengur að bera sorpið upp
i bílana eins og áður var gert,
lieldur er það mokað upp i
skúffu og síðan fylla bílarnir
sig sjálfir. Auk jjessa taka nýju
bilarnir miklu meira en j>eir
gömlu gerðu.
Fyrsti bíllinn af liinni nýju i
gerð var tekinn i notkun ný- I
lega, en líklegt er að hinir
bílarnir —- j>eir eru fjórir alls
—- verði teknir í notkun með
viku millibili.
Yfirbyggingarnar á bílana
voru fengnar frá Ameriku og
kostuðu þær um 1300 dollara á
hvern bíl, en j>ær eru settar sam-
an liér. Er hver yfirbygging all-
mikið bakn mð „sturtu“, skúffu
o. fl. og vegur hún um \y2 tonn.
Verður ekki annað sagt en
hinir nýju bilar séu til mikilla
bóta og hagræðis, fi'á j>ví sem
verið hefir.
Þá hefir Vísi spurt bæjarvei’k-
fræðinginn um gatnagei’ð i bæn-
um. Skýrði hann frá því, að
ekki hefði verið hægt að vinna
að öðru en að ræsum og lögnum
í hinum nýju hverfum í sumar,
óg að sumx’i færi gatnagerð í
bænum mjög eftir framkvæmd-
um í hitaveitunni. Verður þá að
grafa allar götur sundur,\ og \
verður ómögulegt að segja að ;
svo stöddu um hvað hægt er að
gera af nýjum framkvæmdum á
þessu sviði.
Kvöldvaka Blaða-
mannafélagsins
Blaðamannafélag íslands
hélt aðra kvöldvöku sína á
þessum vetri í Oddfellowhús-
inu á föstudagskvöld.
Bar öllum sanian um, sem
hlýddu á kvöldvökuna, að hún
liefði borið af öðrum skemmt-
unurn sem haldnar hafa verið
i Reykjavík í langan tíma. Má
segja að þar hafi hver skemmti-
krafturinn verið öðrum betri.
og þó illa hægt að gei’a upp á
milli jæirra.
Valtýr Stefjánsson ritstjóri
stýrði kvöldvökunni og fórst
það með ágætum úr hendi.
Fyrsti liður kvöldvökunnar
var það, að Jón Sigurðsson
skrifstofustjóri Alþingis las upp
stórlygasögur og vöktu j>ær
mikinn hlátur meðal áheyrenda
enda var framsögnin öll með
afbrigðum góð.
Jón Sen, sem er einn efni-
legasti nemandi Tónlistarskól-
ans, lék nokkur lög á fiðlu. Var
leikur hans fágaður og furðu-
lega góður af jafn ungum
manni.
Frú Soffia Guðlaugsdóttir
las nokkúr kvæði af dæmafám
snilld, en þvi næst söng ungfrú
Anna Þórhallsdótir nokkur lög.
Verður ekki annað sagt en að
sönglistarmenning Reykvíkinga
hafi beðið tjón af því, hversu
sjaldan ungfrú Anna hefur lát-
ið til sín heyra. Er þar um mjög
athyglisverða söngkonu að
ræða.
Kristján Guðlaugsson ritstjóri
flutti stutt en snjallt erindi um
daginn og veginn. Enda j>ótt
erindið væri þrungið djúpri al-
vöru, var það j)ó fyllt svo mik-
illi gamansemi og léttri kýmni,
Starfsemi
félagsins
hefit í dasr-
Mánudaga og fimmtudaga:
Kl. 2—3 frúaflokkur.
— 6—7 Old Boys
— 7—8 Telpnaflokkur
(yfir 13 ára)
- 8—9 kvenflokkur
— 9—10 karlaflokkur.
Þriðjudaga og föstudaga:
Kl. 7—8 Badminton
— 8—9 Drengjaflokkur
(yfir 13 ára)
— 9—10 Handknattleikur.
Miðvikudaga:
Kl. 8—9 Úti-íþróttir.
— 9—10 Ifandknattleikur.
. Laugardaga:
Kl. 6-—7 Badminton
— 7—8 Handknattleikur
— 8—9 Badrtiinton.
Skrifstofa félagsins er op-
in næstu kvöld kl. 6—9. Sími
4387. Þátttakendur í hand-
knattleik komi til viðtals í
kvöld. Komið á fyrstu æfing-
una. Nýir félagar láti innrita
sig stx-ax. Sundmenn tali við
Jónas Halldórsson í Sund-
höllinni. —
STJÓRNIN.
Karlmanna-
fötin
eru komin.
KLÆÐAVERZL.
H. ANDERSEN & SÖN.
Aðalstræti 16.
ior
\ ý
lifur og svið
Kjötbúðin
Verkamannabústöðunum
og Hofsvallagötu 16.
Amerískt
veggfóður
að áheyrendur höfðu hina mestu
skemmtun af.
Lokaþáttur dagskrárinnar á
úndan dansinum var tvísöng-
úr hjá hinum góðkunnu söngv-
urum Ágústi Bjarnasyni og
Jakob Hafstein sem hafa ekki
aðeins mjög fallegar raddir,
lieldur er jafnframt nautn að
sjá þá á sviði. Þeir gera meira
en að syngja lögin, j>eir leika j>au
líka. Jafnframt því, að syngja
tvísöng, söng hver þeirra fyr-
ir sig nokkur einsöngslög.
Loks var dansað til kl. hálf
tvö.
Hvert einasta sæti i húsinu
var fullskipað, og komust
miklu færri að en vildu.