Vísir - 02.11.1942, Síða 4
I
VlSIR
/ ■
/
*
* ■ 'Tjfmt
m
| Gamla Bíó BH
11 n m A§lakkar
„North WeM. Mounted
P@Kce“.
Amerisk stótnnynd gerð
undir stjórn C@eil 1B. de Mille.
Aðalhlutverkin leika:
GARY COOPISIÍ. j
MADELEINK CARROLIi
PAULETTE GODDARD,
AKIM TAMIiSOFF.,
Börn fá efeiki aðgang.
Sýnd kl &Vi og 9.
GULLWOFARNIR.
Tim Holt-cowhpymynd.
Bönnuð bömum yngri en
12 ára. .
sem eiga aiS birtast í Vísi
samdægurs, verða að vera
komnar til Waðsins í síð-
asta lagi f yr'rr , kl. lt f. h.,
en helzt fycíi-' kl. 6 e. h.
daginn áður.
Þegar jþér
þurfið að láta pressa eða
kemisk hreinsó fátnað yðar,
þá sendið mér hann.
Fljót afgreiðsla.
Pressun.
Hreinsun.
P. W. BIERING.
Smiðjushg 12.
Fy pí niiggjandi
tii bygginga
Steyptir steínar, einangr-
unarplötur ú'r'vikri og hefil-
spónum. Ennfremur vikur-
holsteinn.
STEINAGERÐ
Guðmundar Agnarssonar.
Þvervegi 2.
Skerjafirði.
* A
u-JM
7T
Laugaveg 4. — Simi 2131.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR.
Hedda Gabler
Sjónleikur í 4 þáttum eftir H. Ibsen.
Aðalhlutverk og leikstjórn: Frú Gerd Grieg.
SÝNING í KVÖLD KL. 8.
, Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag.
Sjötugur:
Tómas Þorsteinsson
málarameistari.
Sjö áratugir er langur tími, en
afmælisbarnið hefir staðið þau
af sér með prýði; liárið að vísu
gránað, en fjörið sem til forna
og starfsgjeðin sífeldliega hin
saina.
Tómas hefir ávalt verið það
sem kallað er lifandi maður;
ekkert fellur niður dauft og
dautt í kringum hann. Hann
liefir lifgað umliverfi silt. Gefi
hann sig að einhverju, þá gerir
iiann það einhuga og óskiptur
Stjómmál eru hans hugðarefni,
meðal annars, og hefir hann
„slegið inai-ga hrýnu“ í þeim,
en þrátt fyrir það, þótt liann
sé kappsmaður og fjarri því að
hvika í nokkru frá sannfæring
siniii, hefir hann aldrei aflað sér
óvildarmanna ineðal þeirra, sein
á öndverðum meið liafa verið
við liann.
Ef Tómas nú gæfi sér ofur-
lítinn tima til jiess að.líta yfir
farinn veg, getur hann gert það
með gleði. Ilann hefir varðveitt
létta skapið, sem hann fékk í
vöggugjöf. Hann hefir lialdið
þeirri stefnu, sem liann setti
sér ungur, að hregðast engum,
sem hann ætti við að skipta. Þess
vegna munu í dag streyma hlýj-
ar hugsanir og árnaðaróskir til
hans frá þeim mörgu, sem hon-
um liafa kynnzt.
Vinur.
Næturlæknir.
Kristján Hannesson, Mimisvegi
6, sími 3836. Næturvörður í Ing-
ólfs apóteki.
Hjónaefni.
Síðastl. laugardag opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Rut Þórðar-
dóttir frá Vestmannaeyjum og Óli
yaldimarsson, skrifstofumaður frá
Norðfirði.
Félagið Iieyrnarhjálp
hefir útvegað nokkur heyrnar-
tæki, sem eru til sýnis á skrifstofu
Blindravinafélags íslands í Ingólfs-
stræti ió. Væri rétt fyrir heyrnar-
dauft fólk að nota þetta tækifæri
og kynna sér tækin.
Krlstján GQðlaagsson
Hæstaréttarlögmaður.
Skrifstofutíiixi 10—12 og 1—8.
Hverfisgafa 12. — Sími 3400.
Magnús Thorlacius
hæstaréttarlögmaður.
Aðalstræti 9. — Sími: 1875.
Kápur
Höfum nokkrar fallegar kápur fyrirliggjandi. — Saumum
einnig eflir máli. — Falleg snið. — Vönduð vinna.
¥efnaðarwörubúðin (jirettísgfötn H
Verzlunin DETTIFOSS
ERFLUTTÁ
Hringbraut 159
Hefir á boðstólum margskonar álnavöru,
undirföt, nærföt, sokka, hálsklúta o. m. fl.
SPEGLAR
Énskir speglar í baðherbergi
og forstofur — nýkömnir.
HELGI MAGNÚSSON & CO.
Hafnarstræti 19.
■ Xj arna pb í ó
SÆÚLFURINN
(Tlie Sea-Wolf).
Eftir liinni frægn sögu
Jack Londons.
EDWARD G. ROBINSON.
IDA LUPINO.
IOHN GARFIELD.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bömum innan 16 ára bann-
aður aðgangur.
Háskólaf y rirlestur.
Símon Ágústsson heldur á morg-
un (þriðjudag) fyrirlestur fyrir al-
menning kl. 6.15 í III. kennslustofu
háskólans. Efni: Um sálarlíf
kvenna. Öllum heimill aðgangur.
Brauðverð.
hækkaði í gær um á að gizka
30%, hækkunin á kaffibrauði er
öllu meiri en á matbrauði. Stafar
verðhækkunin af hækkandi verði á
bökunarvöruin ýmsum, svo og kol-
um, kaupi brauðgerðarfólks o. fl.
Úthlutun bifreiða.
Að gefnu tilefni skal það fram
tekið, að skilanefnd Bifreiðaeinka-
sölunnar annast ekki úthlutun bif-
reiða, en sér hins vegar um afhend-
ing á þeim ,er ákveðið hefir verið,
hverjir skuli fá hifreiðarnar. Þýðir
því ekki fyrir menn að snúa sér
til nefndarinnar viðvíkjandi úthlut-
un þeirra.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 20 kr. frá dauðum
manni og hálfdauðum, 10 kr. frá
H.B. (gamalt áheit), 20 kr. frá
Ingibjörgu. 20 kr. frá N.N. 50 kr.
frá Ónefndum. 50 kr. frá Þ.J.S. 5
kr. frá Ónefndri. 10 kr. frá R.R.
10 kr. frá G.G. 22 kr. frá A.G.
30 kr. frá N.O.
Áheit á Hallgrimskirkju
í Reykjavík,
afhent Vísi: 40 kr. frá Hrollaugi
Þorkelssyni, 15 kr. frá F.J.
Til fátæku ekkjunnar,
afhent Vísi: 7 kr. frá No. 7. 10
kr. frá J.E.
Til Noregssöfnunarinnar,
afhent Vísi: Áheit frá N.N. 10
kr. Frá utanförum Knattspyrnufé-
lagsins Vals 1931 og 1935 260 kr.
Útvarpið í dag.
Kl. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenzkukennsla, 2. fl. 19.00
Þýzkukennsla, 1. fl. 19.25 Hljóm-
plötur: Tataralög. 20.30 Erindi:
Vesturlönd Asíu, III: „Við vötniu
ströng“ — írak (Ivnútur Arngríms-
son kennari). 20.55 Hljómplötur:
Pianóleikur. 21.00 Um daginn og
veginri (Vilhj. Þ. Gíslason). 21.20
Útvarpshljómsveitin: Sænsk þjóð-
lög. Einsöngur (Guðmundur Jóns-
son (bassi): a) Sveinbj. Sveinbj.:
Sverrir konungur. b) Mozart: I.
Vögguvísa. 2. O, Isis und Osiris.
c) Giordani: Caro mio ben.
Nýja Bió ■
Söngfvagratan
Tin Pan Alley).
Svellandi fjörug söngvamynd
Aðalldutverkin leika:
ALICE FAYE,
JOHN PAYNE,
BETTY GRABLE,
JACK OAKIE.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Félagslíf
ZÍON, Bergsstaðastræti 12 B.
Munið vakningarsamkomuna í
kvöld og næstu kvöld kl. 8. —
Allir velkomnir. (6
FERÐFÉLAG ISLANDS held-
ur skemmtifund i Oddfellow-
liúsinu þriðjudagskvöldið þ. 3.
nóvemher n. k. Húsið opnað kl.
8.45. Einar B. Páls.ym Dipl. Ing..
verkfræðingur, segir frá ferð á
Vatnajökul og sýnir skugga-
myndm Dansað til kl. 1. Aðeins
fyrir fplagsmemi. Aðgöngumið-
ar seldir á þriðjudaginn í Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar
og ísafoldarprentsmiðju. (9
Kkensiai
VÉLRITU N ARKEN NSL A.
Cecilie Helgason. Sími 3165. —
(663
IXiPAfl-flNDlfi]
LYKLAKIPPA tapaðist nálægt
Barónsstig á laugardagskvöld.—
Skilist á Hringbraut 32. (3
■VINNA®
HRÉINGERNINGAR. Sími
3337. Magnús. (774
STÚLKA óskar eftir atvinnu.
Herbergi áskilið. Tilboð merkt
strax sendist Vísi. (1
ÞVOTTAKONUR vantar nú
þegar. Gott kaup. Stöðug vinna.
Ráðningarstofa Reykjavíkur-
bæjar, Bankastræti 7. — Simi
4966.__________ (799
STÚLKA óskar eftir einhverri
atvinnu fyrrihluta dags. Uppl.
á Klapparstíg 9, eftir kl. 7. —-
(8
KtlÚSNÆDll
HERBERGI til leigu fyr-
ir einhleypan mann, sem getur
lánað afnot af síma. Tilboð
merkt „677“ sendist Vísi. (2
1 TIL 2 herhergi og eldhús
óskast. Þrennt i heimili. Uppl.
í síma 1521 Id. 4—7 i dag. —
__________________O0
STÚLKA óskar eftir herbergi.
Get tekið tauþvotta. Uppl. í sima
3963. (11
Kkaupskapubi
NÝU PPGERÐUR dívan til
sölu á Eiriksgötu 23, uppi. (4
GÓÐUR harnavagn til sölu.
Vitastíg 9, kjallaranum, eftir kl.
6, _____________(5
KARLMANN SREIÐH J ÓL
fundið utanvert við bæinn. A. v.
á. (7
7/2MUW
ksrnLOi
tiA
Np. 22
Þegar stúlkan fór að brjótast um,
ávarpaði Tarzan hana og sagði höstug-
lega: „Verið rólegar! Eg mun bjarga
yður!“ Mary kyrrðist við þessi orð, en
töfin, sem hún hafði orsakað með mót-
spyrnu sinni, gerði krókódílnum mögu-
legt að ná þeim. Það var ekki annað
sýnilesgt, en að þau yrði honum bæði
að bráð!
En Tarzan vissi, að ef hann væri
einn, mundi liann að líkindum geta
unnið bug á dýrinu, svo að hann tók
það ráð, að hann þeytti Mary eins
langt frá sér og hann gat. Hún var
þö að minnsta kosti óhult, hvernig sem
allt færi. Siðan sneri hann sér að ó-
argadýrinu og stakk sér í kaf, tíl þess
að komast undir kvið þess.
Honum gafst enginn tími til þess að
miða á þann stað, þar serti hann æti-
aði að færa hníf sinn i dýrið, svo að
lagið geigaði. Tarzan stakk strax aft-
ur, en við sársaukann tók krókódill-
inn kipp mikinn, sneri sér við í kafi
og bjó sig til þess að gleypa í sig
þessa skrítnu skepnu, senl hafði gerzt
svo djörf að ráðast á hann.
Tarzan hefði hæglega getað komizt
undan sjálfur vegna fimi sinnar, en
hann var ákveðinn að skilja ekki fyrr
við óargadýrið, en stúlkan væri óhult.
Hann varð því að berjst eða deyja —
eða hvorttveggja. Og þvi miður varð
dýrið því grimmara og æstara, sem það
var sært fleiri sárum.
GASTON LERROUX:
irdiHir
liis.
þekkið mæta vel. Frédéric Lar-
san, herra forseti, það er Ball-
meyer!“
„Ballmeyer!1* hrópaði forset-
inn upp yfir sig.
„Ballmeyer!“ sagði Robert
Darzac og stóð upp. „Ballmeyer!
Það var þá satt!“
„Herra Darzac, þér haldið þá
ekki lengur, að eg sé brjálaður!“
Ballmeyer! Rallmeyer! Ball-
meyer! Nafn þetta endurómaði
um allan salinn. Forsetinn gerði
hlé á réttarhaldinu.
Uppi varð fótur og fit í hlé-
inu. Ballmeyer! Það verður ekki
ofsögum sagt af þvi, hve fólki
fannst þessi unglingur sniðug-
ur. Ballmeyer! En fyrir fóum
vikum siðan hafði sá orðrómur
gengið, að liann væri dauður.
Ballmeyer hafði þá sloppið frá
dauðanum, alveg eins og hann
hafði sloppið frá lögrgluþjón-
unum allt sitt líf. Þess gerist
vart þörf, að eg rifji hér upp af-
reksverk Ballmeyers. I tuttugu
ár hafa þau fyllt dómsmálasíð-
ur blaðanna og fréttadálkana.
Hann umgekkst heldra fólk, var
meðlimur í hinum þrengstu
klúbbum. Hann hafði rænt fjöl-
skyldur æru sinni, og peningum
frá spilafélögum sinum með
leikni, sem aldrei hefir átt sinn
líka. Hann liafði jafnvel ekki
hikað við, ef sérstakar hindranir
urðu á leið hans að bregða
hnífnum eða sauðarleggnum á
loft. Annars hikaði hann aldrei,
og ekkert fyrirtæki var honum
ofvaxið. Eitt sinn hafði hann
fallið í hendur réttvísinni. En
liann komst undan morguninn,
sem taka átti mál hans fyrir,
með þvi að kasta pipar í augu
varðmannanna, sem voru að
leiða hann til réttarsalsins.
Seinna varð það uppvist, að
þennan sama dag, meðan
slungnustu spæjarar lögregl-
unnar voru að leita lians, var
liann á frumsýningu í Tlieatre-
Francais, ódulbúinn ineð öllu
og livergi smeykur. Síðan vdir-
gaf hann Frakkland og settist
að í Ameríku. Einn góðan veður-
dag tókst lögreglunni í Ohio að
festa hendur á hinum alkunna
bófa. En daginn eftir slapp hann
á ný úr greipum þeirra. Ball-
meyer, það veitti ekki af heilli
bók, ef segja ætti sögu lians. Og
það er þessi maður, sem orðinn
var Frédéric Larsan! Og það var
drengsnáðinn hann Rouleta-
bilíe, sem uppgötvaði jietta! Og
það var li'ka hann, þessi slungni
spæjari, sem gaf Ballmeyer,
enda þótt liann þekkti alla for-
tíð hans, færi á að skjóta þjóðfé-
laginu enn einu sinni ref fyrir
rass! 1 þessu siðasta atriði gát eg
ekki varizt að dást að Rojileta-
bille, því að mér var fullkunn-
ugt, að ætlun hans var að fara
allt til enda að óskum Robert
Darzac og ungfrú Stangerson,
með þvi að frelsa þau frá bóf-
anum, án þess að hann talaði.
Þegai' réttarhaldið hófst að
nýju, höfðu menn ekki náð sér
enn eftir þessa uppljóstran, og
eg heyrði, að hinir bráðlátustu
sögðu: „Þótt við gerum ráð fyr-
ir, að Frédéric Larsan sé morð-
inginn, þá erum við jafn nærri
um það, hvernig hann komst út
úr gula herberginu!“
Rouletabille var undir eins
kallaður inn í vitnastúkuna, og
yfirheyrslan yfir honum hófst
á ný.
„Hvaða erindi,“ spurði for-
setinn, „átti Larsan inn í þetta.
herbergi? Hvers vegna reyndi
hann tvisvar að myrða ungfrú
Stangerson?“
I