Vísir - 03.11.1942, Side 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn Simi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
32. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 3. nóvember 1942.
229. tbl.
Kortið gefur greinilega hugmynd um hernaðaraðstöðuna í
Kákasus í aðalatriðum. Á því sjást bæði hin mikilvægu skörð,
sem liggja til Kutaisi og Tiflis.
Þjóðverjar loka mikil-
vægn skarði I Kákasns.
■ ■ ■ ■ «
Stefna að öðru mikilvægu fjallaskarði.
Þýzka herstjórnin tilkynnir, að hersveitir hennar hafi tekið
borgina Alagir, skammt frá Naltsjik 'í Kákasus. Með
töku þessarar borgar hafa Þjóðverjar lokað einu mikilvægasta
skarðinu í fjöllum Kákasus. —
Stntt og lagrgrott.
Pétur Júgóslavakonungur
skýrði frá því í gær, að 30—40
herdeildir (7—800.000 manns)
frá öxulrikjunum væri hafðar í
Júgóslavíu til að hafa hemil á
landsbúum:
•
Þýzka útvárpið sltýrir frá því,
að Bretar vilji lögleiða almenna
herskvldu í Syrlandi.
í leiðangri yfir Nprður-
Frakklandi í gær misstu Bretar
tvær flugvélar, en skutu niðiir
fjórar þýzlcar. /
•
Vieliy-útvarpið skýrði frá því,
að á skömmum tíma hafi 35G
manns í hinum hernumda hluta
Frakklands verið handteknir
fyrir allskonar andróður gegn
Þjóðverjum..
•
Þrír landskjálftakippir fund-
ust í gær í norðvesturhluta
Bandaríkjanna. Annar kippur-
inn var lengstur, stóð í 7*4
mínútu.
•
Eftir- mánuð verða rúmlega
1.000.000 Bandarikjahermenn í
herþjónustu utan heimalands-
ins. Þeir eru nú um 800.000.
•
Hergagnaframleiðsla Banda-
ríkjanna var í september 32%
meiri en i ágústmánuði og 3V2
sinnum meiri en í desember s.l.
•
Þýzkar fregnir herma, að ó-
eirðir sé enn miklar víða á Ind-
landi og verkföll tíð.
•
Kínverskar flugveitir og
ameriskar hafa gert árás á höfn-
ina í Hankow, sem stendur við
Gulafljót. Var árásin gerð í
fyrrinótt.
•
Morgenstierne, sendiherra
Norðmanna í Washington, er nú
staddur í London. Hákon kon-
ungur veitti honum móttöku í
bústað norsku sendisveitarinn-
ar þar og þakkaði sendiherran-
Frá Alagir er tiltölulega
skammt til annars skarðs, sem
er ekki síður mikilvægt, því að
um það liggur aðalvegurinn
suður fjöllin, hernaðarbrautin
til Tiflis. Þessi skörð munu nú
bæði teppt að fannfergi eða því
sem næst, en þýzki flugherinn
heldur uppi árásum á borg eina,
sem er hjá eystra skarðinu.
Bússar hafa játað, að þeir hafi
hörfað úr Naltsjik.
Við Stalingrad segjast Rússar
hæta aðstöðu sína jafnt og þétl
og i gær hafi þeir náð 6 vél-
byssulireiðrum frá Þjóðverjum.
Hinsvegar tala Þjóðverjar að-
eins um smáviðureignir
áhlauþaflokka og að þoka
hindri aðgerðir flughersins.
Norðvestur af Stalingrad
kveðast Bússar enn í sókn, sem
fyrr, þrátt fyrir harðvítuga
vörn Þjóðverja, sem geri allt að
20 gagnáhlaup á einum degi.
Sjúkraberi
sæmdur heiðursmerki.
Þýzka útvarpið hefir skýrt frá
því, að meðlimur í hjúkrunar-
liði þýzka. hersins i Rússlandi
hafi verið sæmdur Járnkrossin-
um fyrir hreystilega fram-
göngu. Var það í Suður-Rúss-
landi og kemur fram í frásögn-
inni, að hjúkrunarliðið, sem á
ekki að bera vopn, beitir þeim,
ef í nauðir rekur.
Frásögn mannsins hófst á því,
! að elcillinn í sjúkrabil lians liefði
villzt, og meðan þeir leituðu að
félögum sínum rákust þeir á
Rússa. Greip maðurinn þá li!
-handvélbyssu sinnar og skaut á
Rússana, svo að þeir forðuðu
sér í allar áttir en sjúkrabillinn
komst leiðar sinnar. Litlu síðar
varð Iiópur Rússa á vegi þeirra.
Kom þá sjúkrabílstjórinn i veg
fyrir það, að félagi hans — sá
er hlaut heiðursmerkið — varp-
aði að þeim handsprengjum, en
Rússarnir létu þá afskiptalausa
og komust Þjóðverjarnir til fé-
laga sinna.
um fyrir hið mikla starf, sem
hann hefir innt af hendi fyrir
Noreg i Bandarikjunum, eftir
að Þjóðverjar réðust á landið.
»Aldrei heíir
eins her og
brezki í Afríku«,
segja ítalir.
Hluti af viiastri fylkingar-
armi öxullierj anna
innikróaður.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun.
rtvarpsfyrirlesari einn ítalskur, sem gert hefir
að umtalsefni hina ný.ju sókn áttunda hers-
ins i Egiptalandi, lét svo um mælt í ræðu sinni,
að orustur þær, sem nú eiga sér stað í Egiptalandi, sé
meiri en nokkurar, sem þar hafi verið háðar. „Aldrei
hefir annar eins her sézt þar og sá, sem Bretar hafa
byggt upp. Aldrei hafa eins margar bryndeildir ver-
ið notaðar. Aldrei hefir brezki flugherinn verið eins
f ■jölmennur og ötull,“ sagði þessi útvarpsfyrirlesari.
Það hafa tíka verið gefnar upplýsingar í London, sem fara i
líka átt og þessi frásögn ítalans. Churchill skýrði frá þvi fyrir
nokkuru að tæp milljón manna hefði verið flutt suður fyrir
Góðrarvonarhöfða og sá fjöldi hefir að nokkuru leyti farið til
Egiptalands. Liðflutningar þangað hafa lika aukizt stórlega
síðan Rommel tókst að brjótast austur til E1 Alamein. Banda-
ríkjamenn hafa lika flutt mikið lið þangað, svo sem ráða má
af því, að herstjórn þeirra þar er orðin svo mikilvæg að hún er
farin að gefa út sínar eigin hernaðartilkynningar.
Nokkuru áður en Alexander,
hershöfðingi, gaf 8. hernum
skipun um að hefja sóknina var
frá því greint í London, að 2000
hrezkar flugvélar hefði verið
fluttar sjóleiðis til Vestur-Af-
ríku, settar saman þar og flog-
ið síðan til vígstöðvarina við
botn Miðjarðarhafsins.
I>á erU ótaldar þær flugvél-
ar, sem fluttar hafa verið frá
Bandaríkjunum, en þær hafa
komið m.ikið við sögu að undan-
förnu og skipta vafalaust hundr-
uðum.
Sókn erfiðari en áður.
Hernaðaraðstaðan er líka
þannig í Norður-Afríku nú, að
sókn er miklu erfiðari en áður.
Nú er ekki hægt — eða a. m. k.
miklu erfiðara — fyrir Breta
að fara suður fyrir syðra fylk-
ingararm fjandmannanna og
síðan norður til strandar, til
að króa lið þeirra inni, eins og
Wavell gat gert, því að nú „hvíl-
ir“ syðri fylkingararmurinn á
Qattara-lægðinni, og hún er ó-
fær yfirferðar. Þess vegna verð-
ur að sækja framan að stöðv-
um Rommels og sú sóknarað-
ferð er alltaf erfiðari og dýr-
keyptari. Til þess að þurfa að
leggja sem minnst í sölurnar
heita bandamenn sér á sem
mjóstu svæði í einxi, en með þvi
geta þeir líka aukið mjög þunga
áhlaupa sinna. Þannig liafa þeir
t. d. lagl aðaláherzluna á sóka
nyrzt.
Liðhlaupar.
Samkvæmt fíegnum frá Þjöð-
verjum gerðu Bretar mikil á-
lilaup norður við sjó í gærinorg-
un, en herstjórnin í Kairo hafði
lilkynnt áður, að nokkur hluti
vinstri fylkingararms Þjóðverja
og ítala væri innikróaður.
í hverju áldaupi segjast Bret-
ar taka allmikið af föngum, en
siðustu fregnir herma að pólsk-
ir og serbneskir liðhlaupar liafi
gengið á hönd þeim, er þeir sáu
sér færi á því. Voru menn þess-
ir neyddir til lierþjónustu.
í gær reyndu ítölsk skip að
komast til Tobruk og hafði það
þá ekki verið reynt í viku, vegna
þess hve brezkar flugvélar voru
vel á verði yfir siglingaleiðinni
til borgarinnar. Tvö skip voru
hæfð tundurskeytum og
sprungu bæði i loft upp.
G^ðingar ofsóttir
í Moregi.
Samkvæmt fregn frá blaða-
fulltrúa Norðmanna hér eru
hafnar mjög víðtækar Gyðinga-
ofsóknir í Noregi.
Orsökin er drápið á landa-
mæraverðinum, sem drepiiin
var í Austfoldarlestinni fyrir
skemmstu. Allir Gyðingar, sem
áttu ættingja meðal farþega lest-
arinnar, þegar drápið var fram.-
ið, voru handteknir og tveim
dögum siðar voru allir karlmenn
af Gyoingaættum handteknir.
í Osló voru 200 menn hand-
teknir á einum degi og voru hin-
ir handteknu á aldrinum 14—
75 ára. Alls er talið að 2300 karl-
menn af Gyðingaættum sé í
Noregi. Allir hinir handteknu í
Oslo eru settir í Grini-fangelsið.
•
í rúrnt ár hafa aðeins 6—8
manns sótt hverja sýningu í
kvikmyndahúsinu í Túnsbergí.
er verkfall það gert vegna þess,
að forstöðukonan var sett af, til
þess að hægt væri að koma naz-
ista í stöðu hennar.
BiONiiÍBi^RiTiar í
11 a sb «! a r í k | n n u iií.
Kosningar fara fram í Banda-
ríkjunum í dag, eins og frá hefir
verið skýrt áður hér í blaðinu.
Verkamenn í hergagnaiðnað-
inum fá frí frá vinnu til að
kjósa, en annars eru frí næst-
um aldrei gefin.
Willkie hefir heitið á menn
að efla flokk repubiikana og
mótspyrnuna gegn New Deal-
lögum Roosevelts. 1 ávarpi sínu
réðst hann og á stjórnina fyrir
að hafa ekki slitið stjórmnála-
sambandinu við Vichy-Fi’akk-
land.
annar
Fregn frá Bandaríkjurium
hermir, að vegna þess hve
mikil brögð sé að verzlun
milli setuliðsmanna og ís-
lendinga á áfengi og allskon-
ar skömmtunarvörum, hafi
dómsmálaráðherrann ís-
lenzki gefið út bann við því
að Iandsmenn kaupi vörur,
sem ekki eru merktar „Made
in Iceland".
Það er að vísu rétt, að við-
skipti milli Islendinga og
setuliðsmanna eru óheimil,
en það er hætt við því, að fátt
yrði á boðstólum fyrir Islend-
inga, 'ef þeir mættu aðeins
nota innlendar vörur, eins og
hermt er í skeytinu.
Veikindi Kristjáns X;
Kristján konungur er nú óð-
um að hressast. Segir danska
útvarpið frá því, að honum auk-
ist kraftar og matarlystin fari
vaxandi. Er hann nær hrtalaus.
Síðastliðinn miðvikudag,
þann 28. október, sendi Sveinn
BjörnssoM ríkisstjóri Kristjáni
konungi X skeyti vegna veik-
inda hans.
I skeytinu kvaðst ríkisstjóri
votta Kristjáni konungi samúð
sína i veikindum hans og von-
aði að hann næði heilsu fljótt
aftur.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Hedda Gabler í kvökl. Að-
göngumiðasalan er opin frá kl. 2
í dag.
i
Astralíumenn taka Kokoda
Japanir hörfa lika a Gna<lalcaiial.
Kokoda er nú aftur í höndum Ástralíumanna. Var gefin út
tilkynning um þetta í höfuðstöðvum Mac Arthurs í
Ástralíu í morgun. Hefir framsókn áströlsku hersveitanna því
aldrei verið hraðari en hina síðustu daga.
í tilkynningunni um töku
Kokoda er og vikið að þvi, að
Japanir hafi reynt að senda slcip
með>.'ð til hjálpar því liði, sem
XÍrst á Kokoda-vígstöðvunum.
Tvö herflutningaskip — ann-
að 10 þús. smál., hitt 12 þús.
smál. - sáust á siglingu á leið
tilBuna og létt beitiskip og tund-
urspillir í fylgd með þeim. Auk
þess nutu þau verndar niu or-
ustuflugvéla. Sprengjuflugvélar
handamanna neyddu skipin iil
að snúa aftur norður 'á bóginn
og skutu niður fimm af níu
verndarflugvélunum. Herflutn-
inagskipin munu hrifa haft um
7000 manns innanborðs.
Víkinagsveitir
á Nýju-Guineu.
Víða um Nýju Guineu eru
sérstalclega þjálfaðar víkinga-
sveitir, sem gera árásir á stöðv-
ar Japana að næturlagi. Er sér-
staklega getið um eina slíka á-
rás, sem gerð var á bækistöð
japanskra Iiðsforingja. Vörpuðu
víkingarnir fvrst reyksprengj-
um inn i hækistöðina, én létu
síðan vélbyssuhriðina dynja á
Japönum. Er gefið í skynf að
hér sé að nokkuru leyti um, fall-
þlífahermenn að ræða.
Flötamálaráðuneytið i Wash-
ington tilkynnir, að Japanir hafi
i gær verið hraktir til baka
km. á Guadalcanal.
18 Tékkir dæmd-
ir til dauða.
Útvarpið í Prag skýrði frá
því í gær, að 18 Tékkár hefði
verið dæmdir. til lífláts.
Voru þeir dæmdir fyrir
skemmdarstörf. Auk þeirra
voru tveir dæmdir í 18 ára fang-
elsi fyrir lík afhrot.
Tuttugu Pólverjar frá Slesíu
liafa verið dæmdir til dauða
fyrir að reyna að „lama siðferð-
isþrótt þýzlcra hermanha“, en
Pólverjarnir höfðu verið nevdd-
ir í lierinn.
Herfang tekið í eyðimörkinni
Þegar Þjóðverjar hófu sókn þá, er misheppnaðist fyrir
skemmstu, tóku Bretar að herfangi vopn það, seni ést hér á
myndinni. Er það hið fyrsta þeirrar tegundar, sem 8. herinn
tekur. Er þarna um að ræða 15 cm. fallbyssu, sem er brynvarin
og eku'r á slcriðbeltum af eigin afli. Maðurinn, sem klifrað hefir
upp á morðtólið, er enginn annar en Wendell Willkie, er var í
Egiptalandi, þegar Bretar náðu þessu lierfangi.
V