Vísir - 03.11.1942, Page 2
V ISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Ctgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóraf: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstrwti).
I
Símar: 1 6 60 (fimm línur).
Ve.rð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Féjagsprentsmiðjan h.f.
Stjórnarskipti.
Ð íkisstjórnin tilkynnti rikis-
stjóra i dag, að hón mundi
liiðjast lausnar strax fyrstu daga
þingsins, með þvi að raunverU-
lega er íilutverki hennar lokið,
þótt hún gegni störfum þar til
þing kemur saman. Er stjórnin
tók við vÖldum lýst'i forsætis-
ráðherra yfir því, að stjómin
mundi ekki taka upp fram-
kvæmd ágreiningsmála, heldur
afgreiða þau ein mál, sem brýn
nauðsyn krefði og svo kjör-
dæmattlálið, sem endanlega er
til lykta leitt og Alþingi kosið
samkvæmt hinum nýju lögum.
Ýms mál biða jnú úrlausnar
þingsins og verður þá fyrst á
vegi dýrtíðarmálin og ráðstafan-
ir,- sem gera þarf til þess að
stöðva verðbólguna, og helzt
vinna hug á henni, hvernig sem
til tekst. í rauninni má segja að
tilgangsláust sé fyrir þingið að
sinna þessum málum, nema því
aðeins að þjóðin skilji þá nauð'
syn að unninn sé bugur á því
böli, sem af verðbólgunni staf-
ar, en ætla má að ríkari skiln-
ingur sé nú í því efni en áður
var, enda sumar afleiðingarnar
þegar farnar að koma í Ijós, þótt
enn verði mair. Auðsætt er hitt,
að þingið verður nú sem fyr að
hafa forystu á hendi og ætti
það að vera melnaðarmál allra
flokka, að sú forysta takist vel.
* Almenningur hefir gert sér ljóst,
að það er honum enginn hagur
að fá hátt kaup í krónutali, þeg-
ar verðbólgan eykst að sama
skapi, en þetta hlýtur að leiða
til stöðvunar og algers hruns
atvinnuveganna, nema því að-
eins, að á verði stemmd að ósi.
Atvinnuleysi og eymd er fram-
undan, ef svo heldur fram, og
þótt nú virðist ýmsir baða í rós-
um verður sá gróði stopull og
lítt varanlegur, — og það sem
enn verra er, — sparifé lands-
manna, sem aflað hefir verið á
erfiðum árum, er að verða að
engu. Þjóðin er að verða fátæk
á því að græða, — þótt mót-
sagnakennt virðist.
Alþingi hefir miklu betri að-
stöðu en það hefir nokkuru sinni
áður haft til að setja hyggilega
löggjöf varðandi dýrtiðarmálin
og Játa henni verða framfylgt
af fullum þrótti. Kosningar eru
um garð gengnar og fjögra ára
seta framundan. Skilningur
fólks á nauðsyninni er miklu
meiri en áður var, og enginn
mun skorast undan skyldum sín-
um, ef öllum er gert jafnt undir
höfði. Þótt stjórnmálaflokkarn-
ir hafi ekki staðizt freistingam-
ar vegna kosninga þeirra, sem
um garð eru gengnar, munu
þeir nú allir hafa skilning á
þörfmni, og hafa bæði Alþýðu-
flokkurinn og Socialistaflokk-
urinn lagt á það rika áherzlu
að undanförnu, að hafizt yrði
handa um að stöðva verðbólg-
una. Er ekki ástæða til að ætla
að óreyndu, að þessir flokkar
muni láta sitja við orðin tóm,
eða velji þann kostinn að setja
einhver þau skilyrði fyrir sam-
vinnu sinni, sem algerlega
kunna að reynast óviðunandi og '
óaðgengileg fyrir aðra flokka.
Verði það ofan á, er hætt við að
erfitt muni reynast að hafa hem-
Líkan af verksmiðjubyggingunni.
VÉIsmiájan Hédinn reisir
stórbyggingn i Vestnr-
bænnm.
Tuttugu ára starfsaímæli.
Vélsmiðjan Héðinn, sem nú hefir starfað í tuttugu ár, er að
koma sér upp stórbyggingu í Vesturbænum fyrir framtíðar-
starfsemi sína. Og nú, er félagið er nýbúið að starfa í 20 ár (1.
nóv.) er þessi bygging svo vel á veg komin, að starfsemin verð-
ur sennilega flutt þangað að mestu um áramótin næstu. Bygg-
ing þessi stendur þar sem Seljavegur sameinast Mýrargötu.
Hún er 80 metrar á lengd og liggur meðfram götubrún.
il á verðbó'Igunni, enda j>arf
ekki nema einn gikk í hverri
veiðistöð. Baráttan gegn verð-
bólgunni á að vera sameiginlegt
áhugamál allra flokka þingsins,
alveg án tillits til j>ess, livaða
flokkar ganga til stjórnarsamr
vinnu, en um það verður engu
spáð að svo komnu máli. Sagt
er að ýmsir menn innan Fram-
sóknar rói nú að því öllum ár-
um að koma á fót „vinstri sam-
vinnu“. Mun ekkert vera endan-
lega ákveðið í þvi efni, og ekki
þess að vænta fyr en flokks-
þingin hafa verið haldin, en
bæði Alþýðuflokkurinn og Soc-
ialistaflokkurinn hafa boðað til
slíkra funda nú um miðjan
mánuðinn.
í verzlunarskýrslum fyrir áv-
ið 1940, sem nýlega eru komn-
ar út, er ýmiskonar fróðleikur
er viðkemur verzzlun og verzl-
unarsögu. Þar er t. d. getið um
tölu verzlana í landinu frá alda-
mótum og til 1940, að því ári
meðtöldu. *
Heildsalar þekkjast liér ekki
fyrr en á árabilinu 1911—1915,
og þá er tala þeirra 16 (meðal-
tal yfir þetta árabil). Svo fer
þeim ört fjölgandi, og árið
1940 eru þeir orðnir 102 að tölu.
Einna örust verður fjölgunin
1940, því þá fjölgar þeim úr 77
frá árinu áður og i 102.
Meðaltal af kauptúnaverzl-
unum er á árabilinu 1901—05
273, en árið 1940 eru þær orðn-
ar 1019. En athyglisvert er það,
að sveitaverzlunum fjölgar svo
að segja ekki neitt frá aldgmót-
um og til þessa tíma. Á tímabil-
inu 1901—05 er meðaltal þeirra
27, en árið 1940 eru þær ekki
nema 31 talsins.
Frá því á fyrstu árunum eftir
aldamót og til 1940 hefir verzl-
unum á landinu alls fjölgað úr
300 upp í 1152.
Bátur ferst með
3 mönnum út af
Fáskrúðsfirði.
Trillubátur frá Fáskrúðsfirði
fórst um helgina með þremur
mönnum á. Voru tveir þeirra
kvæntir og láta eftir sig 9 börn.
Bátur þessi fór í róður
snemma að morgni s.l laugar-
dag, en hefir eldd komið fram
siðan; hinsvegar hefir fundizt
brak úr honum, svo að ekki þarf
að draga afdrif bátsins neitt í
efa.
Á laugardag sáu og heyrðu
menn af öðrum bátum, sem
voru i róðri, sprengingu mikla
á þeim slóðum, sem bátsins var
að vænta, ennfremur sáu þeir
vatnsstrók mikinn stíga þar frá
hafi, og töldu vist, að þar mundi
tundurdufl hafa sprungið. Þykir
mönnum sennilegt, að báturinn
muni hafa lent i þeirri spreng-
ingu og brotnað í spón.
Bátur frá Vattarnesi, sem leit-
aði að bátnum á sunnudaginn,
fann brak úr honum.
Formaðurinn á bátnum liét
Magnús Jónsson og lætur hann
eftir sig ekkju og fimm börn.
Hásetar voru Jón Jónsson
Austmann, bróðir Magnúsar, ó-
kvæntur, og Lúðvík Sigurjóns-
son, kvæntur og átti fjögur
börn.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Margrét Jónasdóttir,
Laugaveg 91A, og Þorsteinn GuS-
mundsson, prentnemi, Lindargötu
27.
Vélsmiðjan Héðinn liefir til
þessa haft aðalbækistöð sjna í
Miðbænum, en þar er fyrir
löngu orðið of þröngt um hana,
og hefir orðið að dreifa henni,
koma upp birgðageymslu ann-
arstaðar og verksmiðju. Eru
þar framleidd kæliáhökl í fyrsti-
hús, en Héðihn hefir tekið að
sér að koma upp mörgum
frystihúsum, og smíðar vél-
smiðjan sjálf flestar vélar, sem
í þeim eru notuð.
Það voru þeir Bjarni Þor-
steinsson vélfræðingur og
Markús Ivarsson vélstjóri, sem
stofnuðu Héðin. Keyptu þeir
járnsmiðju Bjarnhéðins heitins
Jónssonar við Aðalstræti og hef-
ir aðalslarfsemin jafnan verið
þar, unz breyting verður á, þeg-
ar hin nýja bygging er fullgerð.
Nordahl Grieg
íertugur.
í fyrradag varð norska skáld-
ið Nordahl Grieg fertugur. I til-
efni af því hefir Rithöfundafé-
lag íslands ráðizt í utgáfu á
nokkrum úrvalskvæðum Griegs
í þýðingu Magnúsar Ásgeirsson-
ar.
Eintökin verða 175 alls, öll
tölusett og með eiginhandarárit-
un Griegs sjálfs. Verður hvert
eintak selt á 100 krónur og renn-
ur ágóðinn til Noregssöfnunar-
innar. Bókin ber nafnið „Ætt-
mold og ástjörð“.
Nordahl Grieg er í röð fremstu
skálda Norðmanna. Er langt
siðan hann varð kunnur íslenzk-
um lesendum, ekki hvað sízt í
gegnum ljóðaþýðingar Magnús-
ar Ásgeirssonar.
Vísir óskar Grieg til hamingju
með afmælið.
Fréttir frá í. S. í.
U.M.F. Stöðvarfjarðar hefir
nýlega gengið í Í.S.t. Félagatala
er 76, form. Guðmundur Björns-
son.
Stjórn Í.S.t. hefir nýlega stað-
fest met í stangarstökki, 3,48 m.,
sett af lÓlafi Erlendssyni, Knatt-
spyrnufélagi Vestmannaeyja,
27. sept. 1942.
Nýlega hafa þessir menn gerzt
æfifélagar í Í.S.t.: Stefán A. Páls-
son forstjóri, Rvik, Finnbogi R.
Þorvaldsson verkfræðingur,
Rvík, Ólafur H. Ólafsson heild-
sali, Rvik. Eru þá æfifélagar í.
S.í. orðnir 147.
Sendikennari Í.S.Í. hefir ný-
lega lokið námskeiðum í knatt-
spymu og handknattleik í
Homafirði, Norðfirði og Stöðv-
arfirði. Þátttaka alls 163.
Héðinn hefir lengi verið eitt
af stórfyrirtækjum hæjarins og
vinna að jafnaði á hans vegum
upp undir 150 manns.
Tiðindamaður Vísis hefir átt
stutt viðtal við Halldór Pálsson
ráðunaut, sem er nýkominn
heim úr ferðalagi um Eyja-
fjarðar-, þkagafjarðar-, Ilúna-
vatns-, Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu. Halldór mætti fyrir hönd
Búnaðarfélagsins á hrútasýn-
ingum ií jæssum sýslum, og
flutti erindi.
Halldór kvað tíðarfar í öllum
þessum sýslum hafa verið mjög
erfitt frá því um réttaleytið og
jafnverst í Eyjafirði. Hefir tið-
ast verið norðanátt, snjókoma
eða slydda, og orðið að hýsa fé.
Erfiðleikar bænda af völdum
haustveðráttunnar, mannfæðar
o. fl. eru mjög miklir. Til dæm-
is hefir viða ekki verið unnt að
ljúka við að taka upp úr görð-
um. — Vegna mannfæðar hefir
verið um að ræða mikla erfið-
leika á því er slátrun snertir.
Viða hefir slátrun verið með
meira móti, en geymslupláss á
frystihúsum takmarkað og það
einnig átt sinn þátt i, að seint
hefir gengið, og fé, sem ætlað
er til slátrunar, hefir lagt af, og
bændur hlotið tjón af.
Sjíkrasamlagsiígjöldin
hækka npp í 8 krónur
á mánnði.
|
Sjúkrasamlag Reykjavíkur
hefir nú birt auglýsingar í blöð-
um og útvarpi þess efnis, að
„fyrst um sinn þar til öðru vísi
verði ákveðið verði samlagsið-
gjöld fyrir nóvembermánuð
innheimt með 8 kr. fyrir hvert
samlagsnúmer.“
Eins og auglýsingarnar bera
með sér, er hér um bráðabirgða-
ákvörðun að ræða. Stjórn
Sjúkrasamlagsins samþykkti
fyrir nokkuru tillögu, ]>ess efnis,
að iðgjöldin þyrftu að vera 10
kr„ en stjórnin treysti sér ekki
að leggja til, að þau hækkuðu
nema upp í 8 kr„ en kvaðst
treysta því, að samlaginu yrði
bætt það upp, sem ,á vantaði
með auknum opinberum
styrkjum. — Ríkisstjórnin mun
ekki hafa tekið ákvörðun sína í
þessu máli, og sennilegt er, að
það komi til þingsins kasta.
Carl Fr. Proppé
kaupm.
andaðist í nótt í Landakots-
spítala eftir langa vanheilsu
tæpra 66 ára að aldri.
Æviatriða þessa kunna kaup-
sýslumanns verður nánar getið
síðar.
Það sem Tímamönn-
um gleymist.
Blöð og andstæðingar Sjálf-
stæðisflokksins liafa að undan-
förnu — eða nú eftir kosning-
arnar — talið það furðulegt,
að hlöð sjálfstæðismanna láti
í Ijós ánægju vfir kosningaúr-
slitunum. Það þarf nú ekki að
fara í neinar grafgötur um, að
ef einhver andstæðingaflokk-
ur sjálfstæðismanna hefði, að
afstöðnum kosningum, komizt
í þá aðstöðu að verða fjöl-
mennasti flokkur þingsins,
he'fði það verið túlkaður sem
mikill sigur þess sama flokks
í kosningunum. Þetta sér hver
heilvita blaðalesandi, og hvað
sem t. d. Tíminn segir til þess
að hyhna yfir það, að sjálf-
stæðismenn unnu aftur Snæ-
fellsnessýslu, og að Bergi Jóns-
syni tókst heldur ekki það sem
Steingrími Steinþórssyni átti
að takast, en mistókst, að koma
í veg fyrir, að Gísli Jónsson
yrði þingmaður Barðstrend-
inga, mun tæplega nokkur
Tímalesandi svo grunnhygg-
inn, að hann sjái ekki, að í
glímunum i þessum kjördæm-
um fengu framsóknarmenn-
irnir slæmar byltur.
Að sjálfsögðu er réttast, er
kosningar hafa farið fram, að
samanburður sé gerður á úr-
slitum við kosningarnar næstu
á undan, en það er alls ekki
úr vegi, að úrslit séu einnig
borin saman við kosningaúrslit
fyrrum. Andstæðingar sjálf-
stæðismanna hafa gripið það
sem hálmstrá, að bera úrslitin
í haust saman við úrslitin í
kosningunum 1937, til þess að
reyna að telja mönnum trú um
rýrnandi fylgi flokksins með
þjóðinni. Það er nú hætt við,
að blöðum andstæðinganna
verði að þessu skammgóður
vermir, því að þótt meira fylgi
flokksins hafi komið fram
1937 en siðar, er flokkurinn
vaxandi og skilyrðin til þess
að aftur komi frain það fylgi,
sem hann á hjá þjóðinni, eru
áreiðanlega batnandi.
Þessi skilyrði eru batnandi
fyrst og fremst vegna þess, að
nú er við að búa réttlátari
kosningalöggjöf, og þar sem
flokkurinn hefir fengið að-
stöðu til þess að vera forystu-
flokkur á Alþingi mun áhrifa
hans nú gæta meira.
Síðast en ekki sízt:
Það, sem Tímamönnum
gleymist, þegar þeir bera sam-
an kosningaúrslitin 1937 og i
haust, er það, að samvinna sú
við Framsóknarflokkinn, sem
ekki hefir verið hjá komizt, á
liðnum árum, hefir verið óvin-
sæl hjá mörgum, og það á vafa-
laust sinn þátt i, að flokkur-
inn hefir ekki náð fram öllu
því fylgi, sem hann á, og kem-
ur hér og að vísu fleira til
greina. Flokkur eða flokkar í
ábyrgðarlausri stjórnarand-
stöðu — á erfiðleika og háska-
tímum — standa bezt að vígi
til þess að afla sér fylgisaukn-
ingar. Sú er reyndin — og felst,
í henni heldur döpur lýsing á
þroska margra kjósenda.. En
með vaxandi þroska og ábyrgð-
artilfinningu kjósenda mun
Sjálfstæðisflokknum auðnast að
ná meirihluta á Alþingi.
S.
1-2
málarasveinar
óskast strax.
Fritz Bemdsen.
Sími 2048. Grettisgötu 42.
Gjaldkeri
Frjálslynda
safnaðarins
biður safnaðarfólk, sem á ó-
greidd þessa árs safnaðar-
gjöld að greiða þau sem allra
fyrst. —
Er heima kl. 6—7 e. m.
Sólm. Einarsson.
Vitastíg 10.
Stúlka
óskast á veitingastofu. Uppl.
á Klapparstíg 42. —
Ungmennafélag
Reykjavíkui*
heldur skemmtifund Amt-
mannsstíg 4 fimmtud. 5. nóv.
kl. 9 e. li. Félagar vitji að-
göngumiða i Ingólfsstræti 16
á morgun, miðvikudag. Fé-
lagsskírteini afhent á sama
stað. —
Skemmtinefndin.
Karlmaonlðt
á kr. 225.00, 265.00, 295.00 og
385.00. —
Verzl. Valhöll
Lokastíg 8.
Stnlka
óskast til heimilisstarfa. —
Úppl. á Laufásveg 46, niðri.
Simi 5576. —
Vng
§tnlka
óskar eftir atvinnu. Herbergi
áskilið. Tilboð, merkt: ,Át-
vinna“ sendist í pósthólf 611.
8S.
i>n‘^ro
„Ottó“
hleður n. k. fimmtudag til
Flateyrar, Súgandafjarðar og
Bolungarvíkur.
Vörumóttaka fyrir hádegi
sama dag.
Bifreiðarslys.
1 gær varð 5 ára gömul telpa
fyrir bifreið, með þeim hætti, að
telpan missti hattinn af höfði sér
á gatnamótum Njarðargötu og
Freyjugötu, hljóp á eftir hattinum,
en lenti fyrir bifreiðinni, þannig
að hún rakst á annað afturhjól
hennar og féll í götuna. Missti hún
meðvitund og var flutt á spítala
til athugunar. Töldu læknar hana
ekki vera í yfirvofandi hættu.
1