Vísir - 03.11.1942, Page 3
V ISIR
| Frú Ingibjörg MöllerL(
Frú Ingíbjörg Gísladóttir
Möller andaðíst 21. f. m. að
heimili sínu, Hólatorgi 2 hér í
bænum. Hún var fædd 2. nóv-
ember 1853 á Neðri-Mýrum i
Engihlíðarhreppi i Húnavatns-
sýslu, og voru foreldrar hennar
Gísli hreppstjöri Jónsson og
kona hans Sigurlaug Bene-
diktsdóttir, bónda á Neðri-
Mýrum.
Hún ólst upp á Mýrum ög
dvaldist i foreldrahúsum fram.
yfir tvítug't. Árið 1875 giftist
hún Óla Möller, cr þá var verzl-
unarstjóri á Hólanesi á Skaga-
strönd. Litlu síðar ikeyjDltii j). M.
verzlunina og r.ak hana síðan
til vordaga 1888, en seldi ])ó og
fluttist af Hólanesi, keypti jörð-
ina Neðri-Mýrar af tengdamóð-
ur sinni og mágpm ipg ihöf þar
búskap. En lítt mun iiann hafa
getað sinnt búskapnum sjálfur,
!því að hann gerðist þá þegar
ibókhaldari við verzlun Jöhanns
Jn-óður síns, kaupmanns á
Blönduósi. Höfðu þau hjónin
nllgott bú á Mýj-um og elMis.t
það heldur með ári hverju. En
búskapar-árin urðu ekki mörg.
|Óli Möller var stórhnga maður
og .athafnasainur. Mun hann
<ekM hafa unað því, er til lengd-
ar Jbeit, að eyða manndómsárum
síiuitoa wið bókarastörf hjá öðr-
uni Hann varð og löngum að
dveljast fjarri heimili sínu og
ástvinum, ,og var mælt að hann
kynní því irUa. Það varð því að
ráði, eftir niu ára búskap, að
breytt tikyhlí tál og brugðið búí
á Neðrf-Mýrum.
' Voríð 1897 fluttist Óli Möll-
er alfarínn ár Hiímavatnssýslu
með fjölskyMn sína og settist
að á Hjalteyrí við Eyjafjörð.
Þar rak þá verzlun Gunnar
Einarsson frá Nesí, síðar kaup-
maður í Reykjavik. Keypti nú
Óli Möller verzlun hans og rak
hana síðan til æviloka (1917) .
Eftir lát hans fluttíst frú Ingí-
björg hingað til Reykjavíkur og
hefír æ síðan dvalizt á heimili
sonar síns, Jakobs fjármálaráð-
herra.
Það varð hlutskipti frú Ingi-
bjargar Möller, að stjórna bú-
rekstrinum á Neðri-Mýrum að
mestu leyti. Henni fór það svo
vel úr hendi, að á orði var haft.
Hún var elskuð og virt af hjú-
um sínum og mikils metin af
nágrönnum. Heimilisstjórnin
fyrir innan stokk var með mikl-
um ágætum. Húsfreyjan þótti
stjórnsöm og Iiyggin, sagði
þannig fyrir verkum, að ölliini
var Ijúft að hlýða, ætlaði eng-
um ofmikið starf. Eg er þessu
nokkuð kunnugur, þvi að eg
var þá að alast upp í næsta ná-
grenni við Mýrar, kom stundum
á heimilið og þekkti þá Mýra-
bræður, syni hennar, drengja
bezt. Og svo sagði frændi
minn einn, sem var vinnumað-
ur á Mýrum þessi árin, að
enga konu héfði liann þekkt
nærgætnari og raunbetri hjú-
um sínum en frú Ingihjörgu.
Fjörutíu árum síðar, er hann
minntist á MjTaheimilið og
dvöl sína þar, var hann enn
sömu skoðunar- Hafði ihann þó
ýmsar visíir reyni og mörgum
lieimilum kynnzi þessa fjóra
áratugi.
Þeim hjónunum, frú Ingi-
björgu og Óla Möbsa:, vaið sjö
barna auðió, er upp komuat, og
eru þau nú flesí lálm. Þau JUtt-
ugu ár, sem þau dvöldust á
Hjalteyri, ur&u þau fyrir mprg-
víslegu andstreymi og sorgum.
Þar misstu þau fjögur harna
sinna. Sonur þefuTa, .Jón :að
nafni, drukknaði í HjaJteyrar-
tjörn haustið 1900, einslakur
gæða-drengúr. Hafði stundað
nám í Möðriivallaskóla, en
starfaði nú við verziun föður
síns. Árin 1907—1908 urðu þau
fyrir þeirri þunghæru reynslu,
að missa allar dæíur sínar, Sig-
aíði, Sigurlaugu og Önnu,
elskulegar og prúðar stólkur,
bv.erja á eftir annarrí, ineð
fárra mánaða miIlibilL Var sú
iélz:ta rúmlega tvitug, en hin
yngsita komin nokkuð yfir
fermingu. Þær létust allar úr
berklaveiki. Má nærri gela
hvernig frú Ingibjörgu og þeim
hjónum báðum hefir liðið um
jxíssar naiandir. Og enn var veg-
íð í hínn sarna knérunn. Árið
1921 míssíí frú Ingibjörg yngsta
son sinn, Harald, og lézt hann
úr berkJaveíkí eins og systur
hans. Eru nú ekki eftir nema
tveir bræður af systkinahópp-
um, þeír Ludvig, útgerðarmað-
ur, og Jakob fjármálaráðherra.
Þegar frú Ingibjörg Möller
kom suður híngað á heimili
Jakobs sonar síns, var þar fyrir
önnur ágætiskona á svipuðum
aldri, frú Guðrún Pétursdóttír,
elckja síra Jens prófasts Páls-
sonar í Görðum, fósturmóðir
frú Þóru heitinnar Möller, konu
Jakobs ráðherra. Með þessum
lífsreyndu og góðu konum
tókst brátt mikil og innileg vin-
átta og prýðilegt samstarf á
heimilínu. Varð sambúð þeirra
svo falleg og ánægjuleg, að
slíks munu fá dæmi. Báðar
böfðu þær átt fyrir mann-
mörgum heimilum að sjá ára-
tugum saman, hvor um sig ver-
ið drottning í sínu riki. I lang-
vinnum sjúkdómi frúÞóru og að
henni látinni veittu þær í sam-
einingu heimilinu forstöðu og
þótti hvoiTÍ um sig ekld ráð
x-áðið, nema hin kæmi til. Svo
samhendar voru þær og lausar
við allán nxeting. — Synir Jak-
obs voru allir í berrisku, er
þeir misstu móður sína, ein-
lxverja mikilhæfustu konu, sem
eg hefi þekkt, en „ömmurnar“
gengu þeim í móður stað og
blessun hvildi yfir starfi þeirra.
Þær stjórnuðu og heimilinu af
mikilli prýði og þurfti ekki aðra
til að kveðja nieðan þeirra naut
við. Frú Guðrún andaðist fyrir
þrem árum og fannst það á, að
frú Ingibjöi’g mundi sakna
hennar mjög og ]xykja allt
tómlegra, er lxún var faiin,
Frú Ingibjörg Möiler var
mæt kona og nxikilliæf, en það,
sem einkenndi hana öllu öðru
fremur, var óvenjulegur göð-
leikur og frábær stllling. Hún
m un hafa verið stór í skapi, en
þess gætti nálega aldrei i skipt-
um hennar við samferðafólkið
á lífsleiðinni. Hennl Tirandi
liafa þótt það bera vitni um
menningarleysi, að hafa ekki
fulla stjórn á skapi sínu. Hún
var traustur vinur vina sinna,
ástúðleg og hlý i þeli, æðrulaus
í mótlæti, vildi gleðja en lékki
græta, gefa fremur en þiggja.
1 Hún eltistvel og naut löngum
góðrar heilsu. Fyrír nokkurum
vikum, þegar sumri liallaði og
liaustið gekk í garð, för hún í
rúmið. Kraftarnir voru þrotnir
og þreyta ellinnar lögzt yfir. Og
lífið fjaraði út, liæg't og rölega,
eins og ljós sem dvínar og deyr
á skari.
Páll SÍemgrhnssoti.
Fimmtugur
er í dag ÞorvarSiar Maguússon,
Laugaveg 27A.
Jón E. Bergsveinsson,
erindreki Slysavaruafélagsins, er
nýkominn úr ferðalagi austur á
sanda, þar sem uimiÖ er a'Ö þvi aÖ
fullgera skýlin viÖ Hjörleifshöfða
og Skaftárós fyrír veturiim. Ýmsír
lerfiðleikar hafa verið á fram-
kvæmdum, erfiðleikar á útvegun
efni's, skortur á vimmafli og stirð
tíð. Þó er von um, að Heift væri
að ganga þannig frá skýluTiurra, að
þaw verði nothæf í vetux. — Jón
kvað verða farið austur með efrú
það, sém til þessa þarf, i fyrra-
málið.
Pálmi Einarsson,
ráðunautur Búnaðarfélags ís-
iands er fyrir skemmstu kominn
heim, en hann.hefir verið að heim-
an mestan hluta sumars, við mæl-
ingar og önnur störf. — Pálmi á
sem kunnugt er, sæti í Verkfæra-
nefnd, sem hefir umsjón með rekstri
hínna nýju og míkilvirku skurð-
grafa, sem í fyrsta sinn á þessu
árí voru teknar í notkun hér á landi,
og hafa verið í notkun í Staðar-
byggðarmýriim í Eyjafírðí og við
Akranes. Skurðgröfur þessar eru
hinar mikilvirkustu. Verkfæranefnd
er í þann veginn að koma saman
á fund, og að honum loknum er
væntanleg skýrsla nefndarinnar um
starfrækslu skurðgrafanna í sumar.
Næturlæknir.
Theódór Skúlason, Vesturvalla-
götu 6, sími 2621. Næturvörður í
Ingólfs apóteki.
Útvarpið í dag.
Kl. 18.30 Dönskukennsla, 1. fl.
19.00 Enskukennsla, 2. fl. 19.25
Hljómplötur: Lög úr óperettum og
tónfilmum. 20.00 Fréttir. 20.30 Er-
indi: Þættir úr sögu 17. aldar, X:
Kópavogseiðar og afleiðingar þeirra
í landsstjórn (dr. Páll Eggert Óla-
son). 20.55 Hljómplötur: a) Sym-
fónía nr. 2, d-moll, eftir Dvorsjak.
' b) Tilbrigði um bamalag eftir
Dohnanyi.
Valsbíllinn genginn
nt.
Búið sr að sækja bílinn R—
1089, sem var aðaldráttui’ í
happdræ.tti Valsve]tunpar. Sá,
er hlaut liann, lieitir Karl Jó-
'iumnsson, Þórgötu 21 A.
Þá er líka húið að sækja tepp-
ið, en það hlaut Sigurður Jóns-
son, Bergsstaðastræti 21B. Einn-
ig var eldstóin (kamina) sótt i
morgun, og lilaut hana Lárus
Rasnmndsson, Hringbraut 19L
Söguþættir
Ragnar s Ásgeirssonar
Mér þótti gaman að sjá að
komin er út bók eftir Ragnar
Ásgeirssþn, og ef t. v. von á
fleiruin. Eg hefi lengi verið þess
ófús að láta nokkuð áf því sem
R. Á. skrífar fara fram hjá mér,
og er það áreiðanlega of níikil
hæverska af honum, að líta svo
á sem þessar frásögur hans geti
ekki til bókmennta talist. Felst
eg ekki á þá skrítnu skoðun, að
ekki geti verið listaritverk ef frá
sönnu er sagt. — Tilgangurinn
með línum þessum er ekki að
fara að segja nánar frá bók
Ragnars, héldur aðeins að vekja
eftirtekt á því að hún er kom-
111 út.
Eg sé að skáldið Guðm. Frið-
jónsson er eitthvað óánægður
með grein eftir R. Á., sem hann
hjá mér hefir farið. Virðist mér
það ekkert aðalatriði þegar
dæma skal um þennan frænda
G. Fr., sem hann er að verja,
livort hann liafi átt 7 börn með
5 konum, eða 10 börn með 7
'komim, eða hvað það nú var.
Aðálatriðið er þáð hvernig mað-
urinn hefir reynst kouunum og
börnunum. Mér virðist R. Á.
lieldur ekki ámælisverður fyrir
það, að liann strauk frá þessum
húsbónda sínum í Hróarskeldu.
Það er öðru nær. Tel eg það vel
Earið, að liann skyldí ekki vera
lengur hjá eins lúalega lágt-
'bttgsandi saianni og þessí hús-
bóndi lians hefir veríð. R.
kemst svo aS orði þar sem hann
segír frá dauða þessa manns,
að hann liafi „flutt sig yfir í
aðra og vonandi betri veröld“.
En það má segja alveg með
vissu, að maður einsog þessi,
hefir eftir líkanislátið hér, lent
þar sem ekki er betra að vera,
heldur verra en hér á jörðu. Þvi
að það er náttúrulögmál, að
hver maður kemur eftír dauða
sinn fram þar sem allir eru likt
innrættir og sjálfur hann, og
breyta þvi við hann líkt og hann
hafði breytt við aðra í lífinu hér
á jörðu. Bendir allt það sem
fróðlegast hefir verið sagt af
lífinu eftir dauðann í þá átt,
enda virðist það fyrirkomulag
býsna haganlegt og réttlátlegt.
Okt.
Helgi Pjeturss.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ AUGLÝSA
1 VÍSI
GETUM ÚTVEGAÐ NOKKRAR
Sements hrærivélar
FRÁ BANDARÍKJUNUM.
Samskonar wcl til sýnis hér.
@ Alfá @
umboðs- og heildverzlun.
Sími 5012. ' Sími 5012.
Auglýsing
um
almenna bólusethihgu.
Alraenn bólusetning hefst næstkomamfj sniðvikudag
1). 4. þ. m. og verður síðan frarahaldíð srnátt og smátt
eftir þvi sem liægt verður við að koma.
Bólusett verður í Templarasundi 3 (Ungbárnavernd-
in). Ofangreindan dagkl. 13.30 til lOOtékal færa þang-
að börn, sem heima eiga fýrir vestan Framnesveg og
Bakkastíg að þeim götum báðum méðtöldani.
* -• i
Sama dag kl. 15—16 böm, sem heima eígá milli Fram-
nesvegar og Bræðraborgarstígs, vestan Brunnstigs og
Kaplaskjólsvegar að Bræðraborgarstig meötöldum.
Fimmtudaginn 5. þ. m. kl. 10 til 11 ^iyl. skal færa
þangað börn af svæðinu milli Bræðraljörgarstígs,
Brunnstígs, Ægisgötu og Túngötti. ''1 ‘' •' ! 1
Sama dag kl. 13.30 til 14.30 börn, sem heima eiga
sunnan Túngötu að Sólvallagötu ög Gáf'ðáÁtræti, þæf
götur báðar meðtaldar.
Sama dag kl. 15—16 börn, sem heima eiga á svæð-
inu norðan Túngötu til sjávar milli Ægisgötu og Aðal-
strætis, sú gata meðtalin.
Laugardaginn 7. þ. m. kl. 10—11 árd. slai færa þang-'
að börn, sem heima eiga á svæðino miíli Aðalstrætis,
Lækjargötu, Garðastræti og Tjámal'iniláF suður að
Hringbraut og svæðinu milli Sólvallggöiu • ,og Hring-
brautar vestur að Kaplaskjólsveg.
Sama dag kl. 13.30—14.30 böm af svæðinu sunnan
Hringbrautar milli Melavegar og Kaplaskjólsvegar;
Grímstaðaholt þó ekki meðtalið.
Áframhald verður aúglýst síðar.
Skyldug til frumbólusetningar ern öf! börn fullra
tveggja ára, ef þau hafa ekki haft bólusótt eða verið
hólusett með fullum árangrí eða þrisvar áh árangurs.
Skyldug til endurbólusetningar eru ö!3 böm, sem á
þessu ári verða fullra 13 ára eða eru eldri, ef þau ekki
eftir að þau voru fullra 8 ára, hafa haft bólusótt eða
verið bólusett með fullum árangri eða þrisvar án ár-
angurs.
Bóluskoðun fer fram viku síðar á sömuii 'tímum dags-
ins.
Héraðslæknirinn í Reykjavik, 3. nóvember 1942.
MAGNÚS PÉTURSSON.
N.B. Kennarar eru beðnir að gefa börnum frí, ef á
þarf að halda, svo að þau geti mætti til bólu-
setningar á réttum tíma.
Klippið auglýsinguna úr blaðinu til minnis.
8IGLINC1AR
j
milli Bretlands og Islands halda áfram, 1
eins og að undanförnu. Höfum 3—i
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Culliford’s Associated Lines, Ltd.
26 LONDON STREET,
Fleetwood.
Faðir okkar,
Carl Proppe
andaðist í nótt i Landakotsspitalanom.
3. nóv. 1942.
Böm og kTígdabðm ,
mmmmm^mmmmmmmmm
Jarðarför hióður okkar,
Gudmundu Bjargar Jónsdóttur,
fer fram frá dómkirkjunni, miðvikudaginix 4. þ. m„ og
hefst með húskveðju frá heimili hinnar látna, Grettisgötu
7, kl. 2 e. h. •
Jakob Helgason. Gunnai’ Helgason.
Bjarni Helgason. Ingibjartur Helgason.
Innilegar þakkir votturn við öllum ]xeim mörgu, skyld-
um og vandalausum, sem sýndu okkar samúð og hluttekn-
ingu við analát og útför
Ásu Kristínar Jóhannesdóttur,
Lokastig 4.
____________________________Gunnar Ólafsson og böm.
I