Vísir - 04.11.1942, Page 2
V I S 1 fl
'VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIK H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstrwti).
Símar: 1 6 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félögsprentsmiðjan h.f.
Hyggindi,
sem í hag koma.
Qll lönd heims heyja baráttu
geng verðbólgunni, en beita
misjöfnum og misjafnlega
mörgum brögðum til að vinna
bug á henni. Vafalaust kemur
hér margt til álita svo sem
auknir skattar, uppbótargreiðsl-
ur af opinberri hálfu til fram-
leiðenda, lækkun tolla á nauð-
synjavörum, skyldusparnaður,
en þó öllu öðru frekar lagasetn-
ing, sem tryggi heilbrigt og ör-
uggt eftirlit með kauplagi og
verðlagi, svo og hitt að aldrei
sé gengið á rétt einnar stéttar
annari frekar. Hik i þessu efni
er sama og tap, og í rauninni
má segja að þjóðin hafi liðið
tilfinnanleg skakkaföll fyrir þá
sök að bún skildi ekki vitjunar-
tíma sinn, — en þá sölc eiga
fyrst og fremst injög fámennir
flokkar i þjóðfélaginu.
Sjálfstæðisflokkurinn treysti
þjóðinni til að bregðast vel og
drengilega við vandanum þegar
í upphafi, og lagði því til að hin
fi-jálsa leið yrði farin til þess að
hefta verðbólguna, þannig að
ekki þyrfti að koma til opin-
berrar íhlulunar i lagasetning-
arformi. Vel hefði einnig getað
komið til greina að kjör liinna
ýmsu stétta yrðu samræmd eftir
því sem frekast voru föng á, ef
athugun og rannsókn hefði
sýnt, að launahlutföllin milli
stétta væru ekki rétt, og þyrftu
því breytinga við. Frjálsa leiðin
kom hinsvegar aldrei til fram-
kvæmda,' af þeim sökum að
gegn henni var risið, og eiga þar
alþýðuflokksmenn og socialista-
flokkurinn þyngsta sök. Þegar
svo var komið að sýnt þótti, að
þjóðin kunni ekki að meta hina
frjálsu leið, og þau réttindi, sem
hún tryggði sér á þann hátt,
hvarf Sjálfstæðisflokkurinn að
því ráði, að styðja löggjöf þá,
sem Framsóknarflokkurinn
taldi allra meina bót, en varð
þó fyrstur til að bregðast þegar
á reyndi. Enginn neitar nú, að
hin frjálsa leið hefði verið
æskilegust allra hluta vegna, og
allir viðurkenna, — aðrir en
aumustu áróðursskriflin, — að
lagasetningin um dómnefnd í
kauplags- og verðlags-málum,
hafi verið virðingarverð tilraun
til að ráða bót á vandanum, þótt
hún kæmi ekki að þvi gagni,
sem ætlað var.
Nú eru einnig allir á einu máli
um, að einhverjar ráðstafanir
verði að gera til þess að koma i
veg fyrir frekari verðbólgu, og
til þess einnig að draga úr þeirri
verðbólgu, sem þegar er orðin.
Almenningi er vel kunnugt, að
megnið af fiskafurðum lands-
manna er þegar selt fyrir á-
kveðið verð, sem engin likindi
eru til að breytist, þótt kauplag
og allur kostnaður við útgerð-
ina margfaldist. Þelta hlýtur ó-
hjákvæmilega að leiða til þess,
að starfsemi frystiliúsanna
stöðvast fyrr eða síðar, og hafa
þegar borizt fréttir um að sum
frystihúsin hafi horfið frá starf-
rækslu, af því að auðsætt er
fyrirfram að um stórfelldan
taprekstur yrði að ræðá. Þetta
þýðir aftur að sjávarútvegur sá.
sem hér hefir verið uppi haidið,
dregst stórlega saman, —
smærri bátar verða ekki reknir,
heldur aðeins botnvörpungar og
stærri skip, sem sjálf flytja afla
sinn á erlendan markað, og þau
þó aðeins meðan að markaður-
inn er hagstæður.
Um hinn innlenda iðnað má
segja, að hann sé að nokkuru
þegar fallinp i rústir, en aðrar
greinar hans hangi á horriminni
og muni fyrr en varir verða að
draga saman seglin eða hætta
alveg, og þannig mætti lengi
telja.
Þótl hér liafi örfá dæmi verið
nefnd eru þau aðeins fyrirboði
þess, sem verða vill, og ef ekki
er úr bætt í tima bíður fram-
undan eymd sjálfskapai*vítanna
og þar getum við engu um
kennt öðrum en okkur sjálfum,
þótt illt muni mörgum þykja að
Ixila er á reynir.
Hver einsstaklingur hlýtur að
sjá hvert,>itefnir, en ef svo er
ætti liann einnig að vera reiðu-
búinn til að leggja á sig nokk-
ura byrði til þess að afstýra
vandræðunum í tíma, og enn er
það ekki of seint, ef hafizt er
handa. Engum er gróði að á-
framhaldandi verðbólgu, heldur
tapar hver einstaklingur og
þjóðin í heild, en tilfinnanleg-
ast verður tapið hjá þeim, sem
við engu slíku mega, gamal-
mennum og öðrum þeim, sem'
ekki þiggja laun og geta ekki
lifað á því, sem þeir hafa lianda
í millum, sökum aukinnar
verðbólgu. Er það vist að þá er
fleiri veggjum hætt, en náung-
ans vegg, sem brennur, hvort
sem menn hafa fulla skynsemi
til að afstýra frekara tjóni eða
ekki. Það væru vissulega hygg-
indi, sem í hag kæmu, ef þjóðin
æskti þess nú sjálf að taka á
sig nokkurar byrðar til að af-
stýra vandræðum, en þó þær
minnstu sem þörf væri á. Al-
þingi getur aldrei ráðið bót á
vandanum, nema því aðeins að
þjóðin standi heil og óskipt að
málunum, og láti enga vand-
ræðamenn bleklcja sig né hindra
að þær ráðstafanir verði gerðar
til úrbóta, sem gera þarf.
Verkefni Tónlistar-
félagsins í vetur.
Tónlistarfélagið hefir nú gert
heyrum kunnugt hvaða verkefni
það tekur til meðferðar í vetur.
Fyrstu hljömleikamir verða
haldnii’ i sambandi við þing
listamanna, og verða fluttir í há-
skólanum. Verða þar eingöngu
leikin norræn verk, eftir Sibe-
lius, Atterberg, Pál ísólfsson og
fleiri.
Eftir áramótin verður haldið
hljómJistarkvöld, sérstaklega
helgað „kammermúsik“ og verð-
ur þá fluttur einn af Branden-
burgarkonsertum Bach’s, Oktett
eftir Mendelsohn og eitthvað
fleira.
Seinna verður Jóhannesar-
passían eftir Bach tekin til með-
ferðar.
í maimánuði verður aldaraf-
mæli Griegs minnst með sér-
stökunvhljómleikum, helguðum
lionum.
Klakadrönglar og
sprengjuflutningur,
Blaðið „íslendingur“ á Akur-
eyri skýrir frá því fyrir
skemmstu, að lögreglan á Ak-
ureyri liafi orðið að ganga fram
í því að brjóta niður stórgerða
klakadröngla, sem hangið hafa
að undanfömu niður úr þak-
brúnum húsa í bænum. Hefir
stafað allmikil slysahætta af ís-
drönglum þessum, því þeir
hanga beint fyrir ofan höfuðin
á vegfarendunum, þegar þeir
ganga á gangstéttunum.
10 millj. kr. skuldabréfalán
til að ljúka hitaveitunni.
Málið kemur fyrir bæjarstjórn á morgun.
Á morgun liggur fyrir bæjarstjómai'fundi tillaga til
annarrar umræðu um að bærinn taki allt að 10 miiljón
króna skuldabréfalán til að Ijúka hitaveituframkvæmd-
unum. Yrði bæjamáði falið að sjá um lántökuna og á-
kveða lánskjörin, en borgarstjóra yrði veitt fullt og ó-
takmarkað umboð til þess að undirrita skuldabréf fyr-ir
láninu.
Mál þetta kom til fyrstu um-
ræðu í sumar, en verður nú tekið
til annarar umræðu á bæjar-
stjórnarfundi á morgun. I lieild
var tillagan á þessa leið:
„Bæjarstjórnin samþykkir að
taka skuldabréfalán til þess að
Jjúka hitaveituframkvæmdun-
umj að upphæð allt að kr. 10.-
000.000,00 — tíu milljónir
króna— og felur bæjarráði að
sjá um lántökuna og ákveða
lánskjörin, en veitir borgar-
stjóra Bjarna Benediktssyni
fullt og ótakmarkað umboð til
þess að undirrita skuldabréf fyr-
ii Iáninu.“
Ennfremur var á sama fundi
eftirfarandi tillögu einnig vísað
lil annarar umræðu:
„Bæjarstjórnin veitir borgar-
stjóra Bjarná Benediktssyni
fullt og ótakmarkað umboð lil
þess, með samþykki bæjarráðs
og með áskildum fyrirvara um
ábyrgð á hitaveituefnivörum,
sem liggja í Kaupmannahöfn,
að .semja við A/S Höjgaarð &
Schultz um óhjákvæmilegar
breytingar á samningi bæjar-
stjórnar við firmað, dags. 15.
júní 1939, um framkvæmd hita-
veitunnar frá Reykjum, eða
gera nýjan samning um að ljúka
verkinu.“
Yisir átti tal við borgarstjóra
í morgun, en hann kvaðst ekki
telja sér fært að gefa neinar
upplýsingar um þetta mál fyr
en á bæjarstjórnarfundinum
annað kvöld, meðfram vegna
þess, að hann hefði sjálfur enn-
þá ekki fullnægjandi gögn í
liöndunum.
Sandpokabyrgi byggð á
nokkrum stððnm í mlð-
bænom.
Byrgin eru stór og rúma
alls um ÍOOO manns.
Þeir, sem hafa á hendi stjórn loftvarnanna, hafa sannfærst
um nauðsyn þess, til aukins öryggis borgaranna, þegar hættu-
merki eru gefin vegna loftárása, að koma upp sandpoka-
byrgjum á nokkrum stöðum í bænum. Hefir nú verið hafist
handa í þessu efni og er verið að koma upp traustum byrgjum,
sem hlaðin eru úr sandpokum og reft yfir með viðum og sand-
pokum hlaðið þar yfir.
Á fundi bæjarráðs fyrir
skemmstu var lagt fram eftirrit
af bréfi frá loftvarnanefnd, með
tilkynningu nefndarinnar 5. f.
m. um að byggja sandpokabyrgi
við Oddfellowhúsið, við Tjarn-
argötu 10, á Austurvelli, á Ot-
norðurvelli og við Lækjargötu
hjá Menntaskólanum.
Bæjarráð samþykkti fyrir sitt
leyti að nefndin léti byggja
nauðsynleg byrgi í Miðbænum,
og fól borgarstjóra og bæjár-
verkfræðingi að ákveða staði
fyrir byrgin, í samráði við
nefndina.
Þá samþykkti og bæjarráð
fyrir sitt leyíi að ioftvarnanefnd
keypti 150000 sancpoka af
setuliðinu fyrir ca. 25 aura
stykkið.
Vísir hefir spurt lögreglu-
stjóra, Agnar Kofoed-Hansen,
um byrgi þessi. Kvað hann
fyrsta byrgið eða byrgjasamr
stæðuna hafa verið byggða i
Miðbæjarskólaportinu. Var það
Þá skýrir sama blað frá því
að bóndi nokkur i Eyjafirði hafi
gert sér mikið ómak til að flytja
sprengju langar leiðir, sjóleiðis,
til setuliðsins.
Til allrar hamingju fyrir
bóndann var hér um að ræða
æfingasprengju, með öllu skað-
lausa, sem setuliðsflugvélar hér
höfðu látið niður falla.
En út af þessu atviki hefir
setuliðið á Akureyri fundið sig
knúð til að aðvara fólk að snerta
ekki sprengjur og því síður að
flytja þær til, heldur að gera
sýslumanni eða setuliðinu að-
vart.
byggt í reynsluskyni, en hern-
aðaryfirvöldin hafa eindregið
mælt með þessari tegund byrgja.
Hver byrgjasamstæða mun
í'úma 100—200 manns.
Vinna hafin við stórbygg
ingu fyrir póst og sfma
a Akureyrl.
Á Akureyri er nú hafin vinna
á stórbyggingu fyrir póst og
síma, er póst- og símamála-
stjórnin lætur reisa við Hafnar-
stræti þar í bæ.
Hús þetta er ákveðið að verði
fjórar hæðir og kjallari og stærð
þess 18.84x12.5 metrar á aðal-
byggingunni, en útbygging, sem
ákveðin er að reist <verði aust-
an við aðalbygginguna verði
14.4x11.7 m. að stærð og 2ja
hæða há. Stórhýsi þetta verður
byggt úr járnbentri steinsteypu.
Er vinna fyrir nokkuru hafin
við grunngröft, og verður reynt
að ljúka við kjallarabygginguna
í haust, ef tíðarfarið leyfir.
Tilboð
óskast í húseignina Báru-
götu 9. Ein bæð laus fró ára-
mótum, Áskilinn réttur til
að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Tilboðum sé skilað til Haf-
liða Hafliðasonar, Bárugötu
9, fyrir 6. þ. m.
Til §öln
tvöfalt rúm, úr ljósu birki,
með stoppuðum matressum.
Til sýnis í Mjóstræti 6,
neðsta hæð. —
Landskjörstjórn
kemur saman í Alþingishúsinu á
morgun kl. io f. h. til þess að út-
hluta uppbótarþingsætum til jöfn-
unar milli þingflokka.
Barnavinafélagið Sumargjöf
biður þess getið, a<J framvegis
ver'ði skrifa'Ö upp á reikninga til
félagsins 3.—6. hvers mánaðar kl.
4—5 í Ingólfsstræti 9B.
BcbJof
frétfír
Ljósmæður.
Fjórar nýjar ljósmæður útskrif-
uðust í september úr Ljósmæðra-
skóla íslands. Þær voru: Ingibjörg
Stefánsdóttir frá Mýrum í Skri'ð-
dal, Katrín Loftsdóttir, Bakka í
Landeyjum, Margrét Jónsdótitr,
Arnarstapa á Snæfellsnesi og Sig-
ríður Jónsdóttir frá Læknisstöðum
á Langanesi. Þetta er minnsti Ijós-
mæðrahópurinn, sem útskrifast hef- ,
ir frá Ljósmæðraskólanum síðan
hann kom í Landspítalann, og mun
breyttum aðstæðum í atvinnuhátt- j
um að kenna, nóg og vel borguð í
atvinna að öðru leytinu, qn lélega
borguð Ijósmóðurstörf að hinu.
Ferðafélag fslands
hélt annan skemmtifund sinn á
þessum vetri í Oddfellowhúsinu í
gærkveldi. Þar flutti Einar Pálsson
verkfræðingur ágætt og stórfróð-
legt erindi um Grímsvatnaleiðangur
frá síðastl. sumri, og drap hann þar
á margt, er jökulförum 0g ferða-
möynum yfirleitt mætti að gagni
koma. Allmargar skuggamyndir frá
leiðangrinum og fáeinar flugmynd-
ir af Vatnajökli voru sýndar. Dans-
að var til kl. 1.
Reykholtsskóli
tók til starfa fýrsta vetrardag.
Nemendur eru um 80, en kennarar
eru 8. Skólastjóri er Þórir Stein-
þórsson.
Næturlæknir.
Úlfar Þórðarson, Sólvallagötu
18, simi 4411. Næturvörður í Ing-
ólfs apóteki.
Frá hæstarétti:
Ók ölvaður
fyrir
Þann 30. okt. var kveðinn
upp dómur í hæstarétti í málinu
réttvísin og valdstjómin gegn
Sigurbirni Jóhanni Guðjónssyni
og Þórði Guðna Guðmundssyni.
Málavextir eru þeir, að i októ-
ber 1941 var lögreglunni í
Reykjavik skýrt frá því, að á-
kærði, Sigurbjörn, væri að aka
bil ölvaður. Brá hún þá við og
lcom að ákærða, þar sem liann
var að stíga út úr bifreið sinni
í Lækjargötu. Innti lögreglan
kærða að því, hvort liann væri
ekki eigandi bifreiðarinnar, og
játaði liann því. En ekki var
hann að því spurður, hvort hann
liefði ekið, né heldur skipti lög-
reglumaður, sem leit inn í bif-
reiðina, sér af manni, er sat þar
og hvarf sá síðan. Er Sigurbjörn
kom' til yfirheyrslu, en hann
reyndist vera drukkinn, er lög-
reglan kom að, játaði hann ölv-
un sína, en kvað mann, er liann
hitti, hafa ekið fyrir sig bifreið-
inni i umrætt skipti, en neitaði
að skýra frá hver það hefði ver-
ið. Loks er að því var komið, að
mál hans yrði tekið til dóms,
skýrði hann frá því, að ákærði
Þórður Guðni hefði í umrætt
skipti ekið bifreiðinni, en þeir
hefðu hitzt af tilviljun og hefði
Þórður vepið allsgáður. Er Þórð-
ur kom fyrir rétt hélt hann þessu
sama fram. Kvaðst hann hafa
flutt sig úr bifreiðarstjórasæt-
inu strax er bifreiðin nam stað-
ar i Lækjargötu, og áður en
Sigurbjörn fór út, en er lögregl-
an skipti sér ekkert af honum
hélt hann heim til sín. Var Þórð-
ur nú settur i varðhald, til þess
að afplána ógreidda sekt, en þá
j átaði Jiann. að hafa borið :rangt
fyrir réttinum. Sannleikurinn
væri sá, að Sigurbjörn og hann
hefðu drukkið saman umrætt
kvöld og Sigurbjörn síðan ekið
bifreiðinni, en síðan fengið Þórð
til þess* að játast undir að hafa
keyrt bifreiðina, án þess þó að
beita hann hótunum eða veita
lionum, laun fyrir. Er Sigur-
björn var yfirheyrður um þessi
atriði, játaði hann brot sitt. Þá
var og Sigurbjörn í máli þessu
sakaður um óleyfilega töku á
sykurpokum.
Orslit málsins í héraði urðu
þau, að Sigurbjörn hlaut fang-
elsi í 5 mánuði fyrir brot sín, en
Þórður fangelsi í 3 mánuði. Þá
voru þeir og báðir sviptir kosn-
ingarétti og kjörgengi til opin-
og bar rangt
rétti.
berra starfa og æfilangt rétti til
að stýra bifreið.
Þessi málalok voru staðfest i
hæstarétti.
Skipaður sækjandi málsins
var hrl. Magnús Thorlacius, en
skipaður verjandi Sigurbjörns
Gunnar Þorsteinsson hrl. og
skipaður verjandi Þórðar Stefán
Jóh. Stefánsson hrl.
Strandsk ýli.
Það reynir á hugrekki og
þrek að berjast við úfinn sæ,
við strendur lands. Er hinn síð-
ari staðurinn oft hættulegri
hinum fyrri, því oft er land-
taka erfið við ómilda brima-
strönd. Og þótt komið sé á land,
eru skipbrotsmenn oft jafn
nauðulega staddir. Svo auð og
ill yfirferðar er mörg strönd-
in. Til eru strendur, er svo eru
ómildar aðkomu, að þær geta
sér fyrir það orð um mörg lönd.
Ein slík strönd er hér á landi,
og mun vart þurfa að skýra frá
því, hver eða hvar hún er. Þessi
strönd ber meðal erlendra sjó-
manna heitið „Skipakirkju-
garðurinn,“ eða eitthvað á þá
leið. Þessi strönd hefir ógiiað
hverjum þeim, sem þar hefir að
landi borið, með viðáttu sinni,
vegleysum, vatnsföllum og
skorti leiðarmerkja. Á strönd
þessari risa nú upp 5 skipbrots-
mannaskýli fyrir þá, sem þar
rekur á land.
Hefir kvennadeild Slysa-
vamafélagsins í Reykjavik reist
eitt þeirra, er stendur á Mýr-
dalssandi miðjum og búið það
vel að fatnaði, áhöldum og vist-
um. Allur kostnaður þess er þeg-
ar greiddur. Deildin ræðst nú
í byggingu »nýs skýlis.
Til að afla fjár til þess
efnir Kvennadeild Slysavarna-
félagsins til hlutaveltu um kom-
ancli lielgi og eru þær áhuga-
sömu konur, er það verk annast
nú að búast til að ganga milli
góðra og gjöfulla manna, og
biðja þá að leggja þessu máli
lið, með gjöfum til hlutavelt-
unnar. Og varla mun nokkur
láta þann synjandi frá sér fara,
er til hans kemur jafn brýnna
erinda; því hver er sá, er ekki
telur auknar slysavarnir éitt
hinna þýðingarmesiu viðfangs-
efna þjóðar vorrar. J.