Vísir - 28.11.1942, Qupperneq 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn
Auglýsingar
Gjaldkeri
Afgreiðsla
Siml:
1660
5 llnur
32. ár.
Reykjavík, laugardaginn 28. nóvember 1942.
251. tbl.
Landgöngulið Bandaríkjaflotans býst til bardaga.
Menn úr landgönguliði
Bandaríkjaflotans eru látnir
refa sig í að skjóta úv skamm-
byssum, er þeir sitja á hækj-
um sínum, eins og myndin
sýnir. Með því móti eru þeir
sjálfir miklu minna skot-
mark, en ef þeir standa. Kut-
inn, sem maðurinn til liapgri
bei*, er til þess að nota í ná-
vigi.
brezkor
sendiherra
hér.
Nýr brezkur sendiherra hefir
verið skipaður fyrir ísland —
Mr. Edwrad Henry Gerhard
Shepherd.
Mr. Sheplierd — menn rugli
honum ekki saman við aðal-
ræðismanninn, sem liér var —
er 56 ára og hefir verið í utan-
rikisþjónustu Breta um alllangt
skeið i Ameríku, Frakklandi,
Liberlu og Litliáen. Undanfarið
liefir hann gegnt séstökum störf-
um fyrir Bretastjórn í New
York.
Nýja-Guinea:
Japanir gera
g:agrnáhlanp.
Eftir að Japanir komu liðs-
auka á land við Buna eru þeir
byrjaðir þar miklar gagnárés-
ir. —
í fregnúm frá bækistöð Mac
Arthurs segir, að þessar árásir
liafi lííinn árangur í för með
vsér, og sé manntjón Japana
mikið.
Flugvélar Bandamanna liafa
undanfarið gert árásir á Lae á
Nýju-Guineu, og Timor.
Frá Guadaleanal er það lielzt
að frétta, að tvær japanskar
flugvélar reyndu í fyrradag að
gera árás á stöðvar Bandaríkjá-
manna, en ollu engu tjóni. Flug-
vélar Bandaríkjamanna lialda
stöðugan vörð yfir eynni, en þar
eru engar miklar iiernaðarað-
gerðir þessa daga.
Loka§ókn
liafin i Tnniii
1. lierinix tekur bæ 24 km.
frá Tiinishorg.
Fregnir frá aðalbækistöðvum bandamanna í Norður-
Afríku eru nú á þá leið, að 1. herinn brezki og Banda-
ríkjahersveitirnar þar séu nú búnar að ljúka undir-
búningi sínum undir Iokaviðureignina við hersveitir Ííala og
Þjóðverja og hafi þegar verið lagt til atlögu.
Minningarfyrirlestur
Haralds Níelssonar.
Þriðji minningarfyrirlestur _ Har-
alds Níelssonar ver'Sur fluttur n.k.
mánudag, 30.. nóv., kl. 5 hátíÖasal
JTáskólans. AtS ])essu sinni flytur
Gunnar skálcf Guiinarsson fyrirlest'-
ur, er hann nefnir: SiÖmenning —
siðspilling. Öllum er heimill aÖ-
gangur.
Fyrstu fregnir al'
lokasókn bandamanna í Tunis
eru á þá leið, að hersveitir
þeirra hafi tekið hæinn Tabuna,
sem er aðeins 24 kílómetra beint
vestur af Tunisborg. Hafa þeir
þvi farið drjúgan spöl frá því,
er þeir tóku járnbrautarbæ
þann, sem skýrt var frá í gær,
en hann var um 60 km. frá
Tunis-borg.
Fluglið bandamanna heldur
uppi mögnuðum loftárásum á
flugvelli möndulherjanna og
segir svo í fregn frá herstjórn-
inni, að á einum þeirra Iiafi 40
flugvélar verið eyðilagðar.
Nokkurar flugvélanna voru
eyðilagðar af bryndeild, sem
gerði skyndiárás á vollinn um
leið og loftárásin var gerð.
Auk þess skutu orustuflugvél-
ar bandamanna niður 11 flug-
vélar og var þvi 51 flugvél eyði-
lögð á einum degi á þessum slóð-
um.
Fréttaritari United Press í
Gasahlanca hefir ált tal við yfir-
mann franska flugliðsins i
Norður-Afríku. Segir hann í við-
talinu, að hann liafi lieitið yfir-
hershöfðingja bandamanna því,
að flugmenn Frakka mundu
veita þeim allan þann stuðning,
sem þeir gætu.
\
Tedtler fær viðurkenningu.
Sir Arthur T.edder flugmar-
skálkur, yfirmaður flughers
Brela i löndunum við auslanvert
Miðjarðarhaf, hefir nú fengið
viðurkenningu fyrir það, Iiversu
vel honum fórst úr hendi stjórn
flugliersins gegn flugsveitum
Rommels. Eins og kunnúgt cr,
, voru það nokkrar vel skipu-
I lagðar og gríðarharðar loftá-
1 rásir, sem færðu flugher handa-
manná yfirráðiii í lofti nokkuru
I áður en sókn 8. hersins hófst.
Tedder hefir verin • gerður að
varaformanni flugforingjaráðs
hrezka flughersins og gengur
því næslur að völdum Sir Char-
les Portal, sem er formaður
ráðsins. Porter var gerður að
yfirmanni flughersins Iiaustið
1940, þegar sprengjuflugvélar
hans gerðu liinar hörðu árásir
á innrásarhafnir Þjóðverja og
skutu þannig loku fyrir það, að
innrás væri möguleg.
Yfinnaður Tedders í Egipta-
landi verður Shelto-Douglas,
sem hingað til hefir verið vfir-
maður orustuflugvéla Breta.
Smuts, Eisenhower og
Cunningham hittast.
Sm.uts marskálkur og Dwight
Eisenhower .vfirhershöfðingi
handamanna i Norður-Afríku
hittust, þegar Smuts fór heim-
leiðis frá London í byrjun þess-
arar viku.
Smuts fór lil Gibraltar og þar
hittust þeir, og Sir Andrew
Cunningham foringi flotans,
sem flutti innrásarliðið á vett-
vang, kom og lil fundar við þá.
Þeir ræddu hið Iireytta viðhorf
i Afriku eftir sigur 8. hersins
og laiidgöngu bandamanna i ný-
lendum Frakka.
Útrýming Pólverja.
Pólska stjórnin í London hef-
ir ásakað Himmler fyrir að hafa
gefið út skipun um að útrýma
skyldi Gyðingum í Póllandi.
Segir stjórnin, að 6000 Gyð-
iugar sé nú flutlir dagléga á
brott frá Gyðingahvcrfinu i
N'afsjá og viti enginn hváð af
þeiin verður.
Sókn Rússa heldur áfram.
borg: milli Kalatsh og
Stalingrad.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun.
II
ersLjórnartiIkynning Rússa og fregnir frá blaða-
mönnum skýra frá því, að hersveitir Timo-
shenkos haJdi jafnt og þélt áfram sókn sinni
og fái Þjóðverjar við ekkert ráðið. Síðustu fregnir eru
um það, að rússneskar hersveitir liafi tekið járnbraut-
arborg eina um 25 km. fyrir austan Kalatsli, á járn-
brautinni frá Kliarkov til Stalingrad.
Bárdágar eru allstaðaar gríðarharðir, en belri úíbúnaður
Rússa og meiri mannafli ráða því, að þeir geta allsstaðar brotið
varnir Þjóðverja á bak aftur. Á einum stað kveðast Rússar
hafa átt i höggi við úiwalsherdeild þýzka, en hún hafi ekki stað-
izt áhlaup þeirra frekar en aðrar og orðið að láta undan siga.
Kins og áður kveðast Rúss-
ar taka mikið herfang og fjölda
fanga. Á einum stað kveðast
þeir i gær hafa komizt yfir 51
skriðdreka.
, •
I Stalingrad sjálfri segjast
Rússar vera í sókn í öllum
liverfum borgarinnar. Flutn-
ingar fara nú aðeins að litlu
leyti fram yfir Volga, því að
síðan leiðin opnaðist til borgar-
innar að norðán, hefir verið
þangað að heita má óslitinn
straumur farartækja, sem flytja
allskonar nauðsynjar til verj-
cnda og særða menn síðan á
brott.
Stimson hermálaráðherra
Bandaríkjanna átti tal við
blaðamenn i gær. Ræddi hann
um styrjoldina yfirleitt, ep
sagði um sókn Rússa, að hún
væri miklu eftirtektarverðari
en menn sæju við fvrstu at-
hugun.
Stimson henti á það, að nú
t;x*ki Rússar fanga í tugþús-
undatali, en i fyrra liefði þeir
ekki tekið neina fanga, svo að
teljandi væri. Þessi breyting
táknaði varla annað en það, að
þýzki hermaðurinn sé ekki eins
agaðiu’ og í fyrra, liann hlýði
ekki eins yfirmönnum sínum
og áður, þegar á móti blæs.
Þjóðverjar segja litið annað
en að þeir eigi i hörðum varnar-
bardögum á syðri hluta austur-
vígstöðvanna. Þeir skýra og frá
sókn Rússa á miðvígstöðvun-
um, hjá Ilmenvatni, en segja að
þeir hafi ekki náð tilgangi sin-
um nefnlega að rjúfa varnir
Þjóðverja á þeim slóðum.
Flotinn í Toulon:
1 kaitar lorOuðu sér.
Aðein.s tveir kafbátar munu
hafa getað forðað sér frá Tou-
lon, þegar Þjóðverjar tóku höfn-
ina þar í fyrrinótt.
Þegar sýnt þótli, að sjóliðið
mundi ekki gela varizt áras
j Þjóðverja, var sumum skipun-
j um sökkt, en önnur voru
; sprengd í loft upp. Fórht fjöldi
manna af áhöfnunum m.eð skip-
um sinum.
í Toulon voru þrjú orustu-
skip „Dunkerque“, „Provenee“
og „Strassbourg“. Auk þess var
þar stöðvarskip sjóflugvéla, 10
Leitiskip, 25 hmdurspillar og
um 20 kafhátar.
Kkkert skip var á floti kl. 10
í gærmorgun, effir frönskum
lima, en sprengingar ljéldu á-
fram í þeim fram eftir degi.
De Gaulle ávaujiaði frönsku
þjóðina i gær og minntist sjó-
liðanna, sem fórust.
Neinustu fréttir
Sundknattleiksmótið:
R lið Ármanns vann
B liðið með 5:1
Sundknattleiksmót Reykja-
víkur hélt áfram í gærkveldi.
Kepptu þá A og B lið Ármanns
og sigraði A-liðið með 5 mörk-
um gegn 1.
Leikurinn var drengilegur og
fór ve| frani.
Næsti leikur fer fram n. k.
fimmtudag ’og keppa þá A-lið
Ármanns við K. R., en á föstu-
daginn keppa B-lið Ármanns og
Ægir.
Kona Chiangs
Kai-shek í U. S,
•
Það var tilkynnt seint í
gær í Hvíta húsiiiu í Was-
hington, að Mei-ling, kona
Chiangs Kai-sheks væri
komin loftleiðis til Banda-
rík janna.
Frú Chiang Kai-shek er
komin þangað í boði-Roose-
velts forseta og konu hans.
Hún mun ferðast um ýms
iðnaðarhéruð Bandaríkjanna
og kynna sér átök þeirra á
styrjaldarsviðinu.
Flughershöfðingi
týndur.
Einn af snjöllustu flughers-
höfðingjum Bandaríkjamanna.
Asa Duncan.hefir týnzt í flug-
ferð.
Hanu var á leið frá Bretlandi
til Norður-Afríku rétt eftir
miðjan mánuðinn, er flugvél
lians neyddist til að lenda
skammt undan strönd Norður-
Frakklands. Var vonazt til þess,
að mönnunum yrði bjargað, en
þó voru líkur taldar litlar.
Duncau var 50 ára að aldri og
hafði verið gérður að formanni
flugforingjaráðsins i Evrópu.
Hann er fjórði flughershöfðingi
Bandaríkjanna, sem týnist eða
ferst i þessu stríði. Tinker hers-.
liöfðingi hvarf í Midway-orust-
unni og tveir liafa farizt af slys-
förum.
2400 km. flótti frá Filipps-
eyjum til Astralíu.
159 daga svadilför tveggja amepískra
liðsfopingja.
Tveir amerískir liðsforingjar, William Osborne, höfuðsmað-
ur í fótgönguliðinu, og Damon Gause, flugforingi, eru nýkomn-
ir til Ástralíu eftir 159 daga flótta frá Filippseyjum. Á þeim
tíma fóru þeir um 2400 km. og er það lengsti flótti, sem um
getur í þessu, stríði.
Osborne sljórnaði hersveit
Filippseyinga, er varð að gefast
upp á Bataan-skaga, en þegar
það gerðist komst hann ijndan
og yfir Manillaflóann. Þar
hafðist hami við í fjöllunum
sunnan flóans í tvo íhánuði og
gáfu hinir innbornu honum að
eta. 1 júní frétli hann um annan
liðsforingja,* er líkt var ástatt
fyrir og gat gerl honum orð
um að liitta sig á tilteknum
stað. Var stutt þangað, en svo ó-
greiðfært, að þeir Gause hittust
ekki fyrr en eftir mánuð.
Gause hafði orðið viðskila við
féiaga síha, er hann var einu
sinni á ferð í híl og japönsk
sveil varð á vegi hans. Gause
stöklc úr bil sínum og gat leynzt,
svo að Japanir fundu hann
ekki. Næstu nótt gat hann læðst
framlijá) herhúðum Japana og
komst niður að sjó. Japanir
voru allsstaðar á sfröndinni svo
að Gause lagðisl til sunds og
synti meðfram henni, svo langt
undan aS hann sást ekki úr
landi. Þegar liann kom að landi
rakst liann á japanská hermenn,
sem tóku hann til fanga.
Hann slaþp þó von bráðar
frá þeim, kömst aftur til sjávar
og gat náð i bát, serri hánn
komst á til Corregidor. Þá var
svo komið, að það eyvirki var
að því komið að falla, svo að
Gause náði sér aftur í bát og
komst til suðurstrandai' Man-
ilaflóans.
Litlu eftir að hanii kom
þangað, náði hann sambandi
við Osborne og þeir komúst í
sameiningu yfir 20 feta bót með
Diesel-vél. í honum fóru þeir
milli eyja i allskoriar veðrum
og þurftri oft að standa í austri
tímum saman. Það sem þjáði þá
mest var matarskortur, en
Osborne kunni að búa til mat,
svo að á miili fengu j>eir sæmi-
lega í sig. Þeir voru næstum ó-
þjakaðir þegar þeir kómu til
Ástralíu.