Vísir - 20.04.1943, Blaðsíða 6
Þriðjudagur, 20. apríl 1943.
Ví SIR
við innkaupsverð varanna. Ekki
verður fyrir það synjað að
slíkt virðist óeðlilegt, enda hlýt-
ur það að hafa talsverð áhrif
til hækkunar á vöruverð í land-
inu. En það er eins með tolla
og skatta. Þegar þeir liafa einu
sinni verið settir á, hika þeir
við, sem með fjármálin fara, að
létta þeim af þjóðinni, af geig
íyrir því að tekjurnar lxrökkvi
þá ekki fyrir gjöldum.
Það hefir verið athugað af
Hagstofunni hversu rniklu hafi
numið tollur af farmgjaldi þrjá
í'yrstu ársfjórðunga ársins 1942,
og er niðurstaðan þessi:
Innfiutningur á
þessu tímabili 166 millj. lcr.
Þar af eru vörur
undanþegnar tolli 28 millj. kr.
Eftir eru verð-
tollsvörur .... 138 millj. kr.
Farmgjöldin eru
talin samtals .. 33.374 þ. kr.
Tollur af farnv
gjöldum ......... 4.386 þ. kr.
Af samtals greiddum verð-
lolli, er 16.3% tollur af farm-
gjöldum, eða um 1/6 hluti verð-
tollsins. Mestur er innflutning-'
ur á vörum sem af er greiddur
8% verðtollur en þar næst koma
vörur sem af er greiddur 50%
verðtollur og nemur andvirði
þeirra 23.146 þús. kr. af fram-
angreindum innflutn. 138 millj.
kr. allra tollvara.
Eins og nú standa sakir er
það mál, sem hlýtur að koma
lil athugunar, hvort gerlegt sé
að lækka tolla á nauðsynjum,
svo sem ýmsum tegundum fatn-
aðar og öðru sem allur almenn-
ingur þarf til daglegra nota.
Tollar eru liér á mörgu hærri
en góðu hófi gégnir og gerist
það nú aðkallandi að taka toll-
skrána til endurskoðunar.
Ríkisstofnanir.
Tekjur af riltisstofnunum
voru á fjárlögum áætlaðar 3.719
þús. lcr. en hafa orðið 11.994
þús. kr. eða 8.275 þús. kr. um-
lram áætlun. Mestar eru tekj-
urnar af Áfengisverzluninni, en
þær nema samtals 6.058 þús .kr.
í stað þess að þær voru áætlaðar
1.822 þús. kr. Næst kemur
Tóbakseinkasalan og er telcjuaf-
gangur hennar 2.864 þús. en
áætlunin var 1.250 þús. lcr.
Þriðja stofnunin í' röðinni er
Bifreiðaeinkasalan. Tekjur
liennar voru áætlaðar 58 þús.
kr. en talið er að þær muni
nema 1.700 þús. kr., eða þritug-
földuð ácetlunin. Rildsútvarpið
og Viðtækjaverzlunin skila 630
þús. kr. í stað áætlunar 92 þús.
kr. Rikisprentsmiðjan 187 þús.
kr. i stað 70 þús. Landssmiðjan
109 þús. í stað 20 þús. Póstsjóð-
ui 111 þús. i stað 55 þús. Lands-
síminn er eina slofnunin sem
skilar minni reksturshagnaði en
áætlað var, eða 284 þús. í stað
462 þús. kr. Stafar það af því
að verðskrá símans var lialdið
óbreyttri þar til siðari hluta árs-
ins, en flest útgjöld fóru hrað-
vaxandi allt árið, einkum launa- 1
greiðslur.
Hinn mikli og óvænti tekju-
afgangur Bifreiðaeinkasölunnar
stafar af því að eftirspurn um
bifreiðar til vöru- og fólksflutn-
inga var á síðasta ári meiri en
dæmi eru til áður. Þessari eftir-
spurn var engan veginn liægt að
fullnægja en þó lieppnaðist að
ná til landsins fleiri hifreiðum
vöru- og fólksflutnings, en áð-
ur hefir verið innflutt á einu
ári. Bifreiðakaup þessi tókust
fyril* velvilja stjórnarvalda
Bandaríkjanna er litu svo á,
að oss væri nauðsyn á að endur-
nýja þann bifreiðakost sem fyr-
ir var hér í landi. Nú eru afar
miklir örðugleikar á útvegun
slíkra tækja og því liklegast að
innflutningur þeirrn stöðvist að
mestu eða öllu. Er því ekki milc-
illa tekna að vænta hér eftir af
sölu bifreiða, enda er reiknings-
skilum og ráðstöfun á húi Bif-
reiðaeinkasölunnar senn lokið.
Hinn mikli tekjuafgangur
Afengisverzlunarinnar, sem er
ianglum meiri en áður hefir
tiðkast, stafar ekki af því, að
salan hafi aukizt í svipuðu lilut-
falli. Ástæðan er sú, að útsöiu-
verð vínanna hefir verið hækk-
að. Þó er það ekki hærra hér
nú en sumsstaðar erlendis.
Heildarsala Áfengisverzlunar-
innar að flöskutölu siðasta ár er
lítið eilt hærri en salan árið
1941, en þá var tekjuafgangur
1.923 þús. kr. Hinsvegar er sal-
an 1942 að ílöskutali 25% lægri
en árið 1940.
Hagnaður Tóbakseinkasöl-
unnar árið 1941 var 2.353 þús.
kr. og má þvi segja að mjög
Jiafi verið varlega áætlaðar tekj-
urnar 1942 með 1.250 þús. kr.
Að vísu er þess ekki að dyljast
að útlit unujitvegun tóhaks var
ekki gott um það leyti, sem
aætlunin var gerð, en úr því
rætlist betur en á horfðist.
Þessar tvær stofnanir sem eg
nú hefi síðast nefnt, hafa á sið-
asta ári liaft í tekjuafgang ná-
iega 9 millj. kr. — Þó ekki sé
hægt að gera ráð fyrir að þær
skili jafnan slikum liagnaði, þá
verða þessar einkasölur jafnan
. mjög mikilvægur þáttur í tekju-
öflun ríldsins. Þess vegna er
nauðsynl. að tryggja lieilhrigð-
an framtíðarrekstur þeirra og
sjá um að þessi fyrirtæki séu
rekin með þvi sniði og þeim
myndarskap, sem ríkinu liæfir.
Eg hefi leyft Tóbakseinkasöl-
unni að láta eina milljón króna
í varasjóð af tekjum síðasta árs.
Er það gert til þess að þessi
stofnun hafi nægilegt reksturs-
fé og þurfi ekki að skulda heima
og erlendis. Eg hefi leyft Áfeng-
isverzluninni að láta í varasjóð
500 þús. kr. og stofna sérstakan
byggingarsjóð með 500 þús. kr.
Það er ekki vansalaust að þetla
fyrirtæki skuli varla hafa þak
yfir liöfuðið og ekki hafa að-
stöðu til, húsnæðis vegna, að
haga rekstrinum á þann hátt
sem livarvetna mundi tahð
nauðsynlegt og sjálfsagt.
Þessar einkasölur eiga hvorug
þak yfir höfuðið. Hjá þvi verð-
ur ekki komizt að hyggja yfir
þær svo fljótt sem unnt er. En
jafnframt ætti að sameina báð-
ar þessar einkasölur og reka
þær sem eitt fyrirtæki. Mundi
rikissjóður vafalaust spara
nokkurn reksturskostnað við
slíka breytingu en sérstaklega
væri það æskilegt að sameina í
eitt myndarlegt fyrirtæki þann
verzlunarrekstur sem gera má
ráð fyrir að verði til frambúðar
í höndum ríkisins.
í þessu sambandi vil eg geta
þess, að eg tel, að jafnframt því
að sameina Áfengisverzlunina
og Tóbakseinkasöluna, ætti að
afnema Yiðtækjaverzlunina
sem sjálfstæða stofnun og gera
liana að deild í rekstri Rildsút-
varpsins.
10% útflutningsgjald.
Samkvæmt lögurn nr. 98 frá
9. júlí 1941 var sett á sérstakt
útflutningsgjald í síðastliðnum
ágústmánuði á útfluttan afla
logaranna, 10% af fob-verði.
Gjald þetta var einnig sett á
þann fisk sem íslenzk flutninga-
skip flytja á markað, en var
iétt af þeim aftur sökum þess
að lalið var að þau fengi ekki
risið undir tollinum,. Tollurinn
hefir þvi eingöngu livilt á afla
togaranna.
Tekjurnar af þessu útflutn-
ingsgjaldi frá því það var sett
á í ágúst síðastl. hafa numið
1.438 þús. lcrónum. Með líkum
rekstri og svipaðri sölu hotn-
vörpuskipanna og vgr siðari
helming ársins í fyrra mætti
gera ráð fyrir að þessi tekju-
stofn gæti gefið um 3 millj. kr.
yfir árið. Hinsvegar hefir staðið
talsverð deila um það milli tog-
araeigenda og rikissjóðs á hvern
liált bærj að reikna gjald þetta.
Gjaldið er í lögunum ákveðið
af fob-verði. En fjármálaráðu-
heytið hefir litið svo á, að þar
sem skipin seldu afla sinn er-
lendis bæri að finna fob-verðið
með því að draga kostnað við
að koma fiskinum á markað,
frá söluverði erlendis. Togara-
eigendur liafa hinsvegar krafizt
að afli togaranna væri metinn
í samræmi við gildandi foh-
verð á fiski liér á landi og út-
flutningsgjaldið reiknað eftir
því. Um þetta hefir ekki náðst
samkomulag og er ekki óliklegt
oð því verði vísað til úrskurðar
dómstólanna. Yrði niðurstaðan
sú, að ríkssjóði beri áð reikna
gjaldið samkvæmt kröfu skipa-
eigenda, þá er hér um, allveru-
lega endurgreiðslu að ræða, er
nema mundi mörgum hundr-
Liðum þúsunda.
Framtið þessa útflutnings-
gjalds er mjög undir hælinn
iögð. Lögin gera ekki ráð fyrir
að gjaldið sé innheimt af tap-
rekstri enda væri slíkt ósann-
gjarnt með öllu. Síðan gjaldið
var lagt á hefir mjög rýrnað
hlutur hotnvörpuskipanna
vegna vaxandi reksturskostnað-
ar og erfiðari siglingaskilyrða.
Þrengist afkoma þessafa skipa
frekar en orðið er, tel eg gjaldi
þessu teflt í hættu.
Verðbætur á útfluttar
landbúnaðarvörur.
Niðurstaða sú, er bráða-
hirgðayfirlitið sýnir, gefur ekki
alls kostar rétta hugmynd um
afkomu ríkissjóðs á liðnu ári.
Frá tekjuafganginum ber að
draga þá fjárhæð, sem greidd
kann að verða sem verðbætur
á útfluttar landbúnaðarvörur,
samkvæmt þingsályktunum 31.
ágúst og 23. maí 1942. Hin fyrri
þingsályktun er varðandi af-
urðir ársins 1942, en lhn síðari
vegna afurða ársins 1941.
Landhúnaðarráðuneytið lét
gera áætlun um þær verðbæt-
ur, sem liér um ræðir, í byrj-
un þessa árs og var talið, að
þær mundu þá nema samtals
um 25 Y'z milljón króna. Þá voru
allar þessar vörur óseldar,
nema gærur og garnir frá 1941,
sem seldar liöfðu verið í fyrra.
Síðan liafa verið seldar allar
gærur og garnir fyrir hag-
kvæmara verð en gert var ráð
fyrir, svo að áætlunin lækkar
af þeim sökum um 4 millj. kr.
Sú kvöð, sem á ríkissjóði hvíl-
ir vegna þessara verðhóta er nú
eins og sakir standa þannig:
Áætluð fjárhæð (i jan.
1943) ........ 251/2 millj. kr.
-f- Greitt 1942 2y2
millj kr. og
Mism. vegna sölu
4 millj. kr. . . 6V2 millj. lcr.
Eftir 19 millj. kr.
Ennþá er óseld ull tveggja
undangenginna ára, en samn-
ingar standa nú yfir og er þess
vænzt, að hagkvæmt verð fáist.
Hafa Bandaríkin sýnt oss skiln-
ing og mikla velvild í samn-
ingum um kaup á þessum af-
urðum. Afkoma ríkissjóðs síð-
asta ár er að miklu leyti und-
ir því komin, hversu tekst með
þessa samninga.
Þegar markaður hregzt fyr-
ir aðra aðalframleiðslugrein
landsinanna, er ekki nema eðli-
legt, að hlaupið sé undir bagg-
! ann til að jafna kjörin og firra
fjöhnenna stétt erfiðleikum,
sérstaklega þegar öðrum at-
i vinnuvegum vegnar óvenju-
! lega vel. En sú aðferð, sem
löggjafarvaldið liefir notað á
síðasta ári til þess að skuld-
hinda ríkissjóð í þessu skyni,
I er mjög óvenjuleg, þar sem
verðhótum er heitið í samræmi
við vaxandi verðbólgu og án
þess að skorður séu settar eða
hámark ákveðið um fjárhags-
lega skuldhinding rildssjóðs.
Eg verð að láta það í ljós
sem mína skoðun, að það sé
hættulegt fjárhag ríkisins, ef
mjög er vikið af þeirri leið,
sem stjórnarskráin gerir ráð
fyrir, að útgjöld séu ákveðin
með fjárlögum. Ef það færist
mjög i vöxt, að ákveða gjöld
með þingsályktunum eða ser-
stökum lögum, þá er liætt við
að með öllu geti riðlazt þær
áætlanir um afkomu ríkisins,
sem gerðar eru með ítarlegri
rannsókn og athugun við af-
greiðslu hverra fjárlaga. Með
þál. frá 31. ág. 1942 er raun-
verulega farið inn á nýja braut,
sem getur gefið mjög varhuga-
vert fordæmi. Þessi aðferð til
að ráðstafa tugum milljóna úr
ríkissjóði er mjög auðveld og
liandhæg, en einmitt þess vegna
er hún varhugaverð. Slikar
greiðslur ættu að minnsta kosti
að vera ákveðnar með sérstök-
um lögum.
! Raunverulegur
tekjuafgangur.
Eins og eg liefi áður tekið
fram, verðuy að líta svo á, að
svo stöddu, að ríkissjóður sé
skuldbundinn um 19 millj. kr.
vegna verðuppbóta á landhún-
aðarvörur. Er þá raunveru-
legur tekjuafgangur 10 millj.
króna.
Samkvæmt lögum frá 4. sept.
1942 um raforkusjóð, ber að
leggja í sjóð þenna 5 milljónir
króna af tekjuafgangi ársins
1942. En 5 millj. kr. liafa þeg-
ar verið í liann lagðar samkv.
rikisreikningi 1941. Ennfrem-
ur her að leggja í framkvæmda
sjóð % af tekjuafgangi og vil
eg telja það 3 millj. kr. Yerður
þá sá sjóður 11 millj. Verða
þessar greiðslur til sjóðanna að
sjálfsögðu framkvæmdar svo
fljótt sem unnt er fyrir rikis-
sjóð.
Eignabreytingar.
Eg skal þá taka fyrir greiðslu
yfirlit ársins, er sýnir eigna-
hreyfingar þær, sem orðið
hafa.
GREIÐSLUYFIRLIT 1942.
I n n: •
1. jan. Peningar í banka og lijá ríkisfébirði .... 15.690.000.00
Tekjur samkvæmt rekstursreikningi ........... 86.663.000.00
Fyrningar ...................................... 450.000.00
Utdr. hréf, endurgreidd lán og andv. seldra eigna 159.000.00
Einkum skuldir i Danmörku v/ afh. og vaxta af
dönskum lánum ......................... 640.000.00
Skiptimynt sett i umferð (% hl.) ............... 850.000.00
Ct:
Gjöld samkvæmt rekstursreikningi
Afborganir lána:
Innlend lán ........... 507.000.00
Lán i Danmörku .... 228.000.00
— - Englandi ...... 486.000.00
— - Ameríku ....... 298.000.00
Kv.104.452.000.00
57.576.000.00
Lán í Danmörku v/ Skipaútg.
1.519.000.00
221.000.00
1.740.000.00
Til eignaaukn. og reksturs ríkisstofnana:
Landssíminn . ................. 1.785.000.00
Póstmál ........................... 110.000.00
Áfengisverzlun .................... 660.000.00
Tóbakseinkasalan................. 1.000.000.00
Ríkisútvarp og viðtækjaverzlun . . 810.000.00
Ríldsprentsmiðja .................. 280.000.00
Landssmiðja .................v. . . 109.000.00
Bifreiðaeinkasalan .............. 1.700.000.00
Áburðarsala ........................ 650.00000
Aðrar stofnanir.................... 300.000.00
------------ 7.404.000.00
Vitahyggingar ................................... 150.000.00
Til byggingar sjómannaskóla...................... 500.000.00
Keyptar jarðir og liúseignir.................. 620.000.00
Skuldabréf í Félagsgarði tekin upp i skatta . . 235.000.00
Til innkaupanefndar í New York ................ 1.650.000.00
Greidd innst. Raforkusj. og Framkvæmdasj. .. 13.000.000.00
Fyrirfram greitt v/ ársins 19-13 ................ 325.000.00
Sjóður í árslok 1942 ......................... 21.252.000.00
Kr. 104.452.000.00
kr., sem er mismunur á raun-
verulegum afhorgunum og
aukningu lausaskulda.
Hvað er framundan?
Eg hefi nú í stórum drátt-
j um gert grein fyrir afkomu
ríkissjóðs árið sem leið, þeim
eignabreytingum, sem orðið
hafa og skuldum ríkisins um
síðustu áramót. Lægi þá næst
fju'ir að reifa fjárlagafrum-
varp það, sem hér liggur nú
fyrir. En fyrir þá sök, er eg
gat um í upphafi þessa máls,
verður greinargerð þar að lút-
andi að bíða að sinni.
Þeir mundu varla þykja spá-
mannlega vaxnir, sem reyndu
nú að segja fyrir um, liversu
háttað verður fjárhag og at-
vinnurekstri landsmanna á
næsta ári. Verðbólgan hangir
enn eins og brugðinn brandur
yfir liöfði þjóðarinnar. Þangað
til þeirri hættu er hægt frá, er
ekki um að ræða nokkurt ör-
yggi fyrir þá, sem laun taka,
né þá, sem framleiðslu stunda
til lands og sjávar. Þangað til
er heldur ekki um nokkurt ör-
yggi að ræða fyrir fjárhags-
lega afkomu ríkissjóðs. Dýr-
tíðin hefir verið stöðvuð um
stundarsakir, en vér skulum
gera oss það ljóst, að vér höf-
um ekki enn vald á því, að
snúa ástandinu til varanlegs
bata. Þjóðin hefir nú sjálf
metaskálar örlaga sinna í
höndunum.
Hversu mjög afkoma ríkis-
sjóðs er háð framfærslukostn-
aðinum í landinu, sést af því,
að hvert stig í hækkandi vísi-
tölu kostar ríkissjóð 160 þús.
kr. á ári. Útgjöld ríkissjóðs, er
taka dýrtíðaruppbót, eru talin
að nema 16 millj. kr. á ári og
eru þá meðtaldar stofnanir
ríkisins. Taki því verðbólgan
aftur að vaxa, án þess að við
verði ráðið, munu útgjöld rík-
isins aukast með risaskrefum,
án þess að samsvarandi tekju-
auki komi á móti.
Landsmenn hafa undan-
gengin þrjú ár selt flestar af-
urðir sínar háu verði. Fram-
Ieiðsla sjávarafurða, sem jafn-
an er meginhluti útflutnings-
ins, hefir verið rekinn af full-
um krafti, svo að segja öll
þessi ár. Aldrei fyr hefir feng-
izt annað eins fé fyrir útflutn-
ing landsins. Þó er nú svo
komið í dag, að allur sá gjald-
eyrir, sem þannig hefir feng-
izt, væri nú upp genginn, ef
engar gjaldeyristekjur hefðu
komið annars staðar frá. Ein-
hverir munu að likindum
segja, að slíkt skipti engu máli
meðan bankarnir eigi miklar
inneignir erlendis. Vera má að
svo sé, en þetta sýnir hvert
stefnir, ef vér reynum ekki að
Samkvæmt þessu hefir verið
greitt af lánum ríkisins 1.740
þús. kr. á árinu, cn af því eru
640 þús. kr. vegna afborgana
og vaxta af dönslcum lánum,
sem ekki hefir verið hægt að
koma í hendur réttra aðila og
stendur því enn inni hjá ríkis-
sjóði. Aðrar eignahreyfingar
eru litlar, að öðru leyti en því,
sem varið hefir verið til bygg-
ingar sjómgnnaskóla 500 þús.
kr. og kaupa á jörðum og hús-
eignum 620 þús. kr. Þær eign-
ir eru:
Kleppjárnsreykir 230þús.
Kröggólfsstaðir í Ölvesi 63 — í
Vatnsleysa í Skagaf. 37 —
Iveldur (eftistöðvar) 5 —
Leifsgata 16, Rvík 250 — j
Dýralæknisbúst. í Borg-
arnesi 35 —
Fé það, sem greilt liefir ver- 1
ið til Innkaupanefndarinnar í
New York, er lagt út til bráða- !
birg'ða, vegna þeirra vöru- !
kaupa, sem fara fram fyrir |
milligöngu ríkisstjórnarinnar i !
Ameríku.
Ríkisskuldirnar.
Skuldir ríkisins 31. des. 1942
eru taldar að vera samtals 51.-
012 þús. kr. Engin ný lán voru
tekin á árinu. Með lausaskuld-
um er talið 3.542 þús. kr., sem
fallið er í gjalddaga af dönsk-
um lánum, en ekki hefir verið
greitt síðan Danmörk var lier-
numin.
Skuldayfirlitið er þannig:
(Sjá yfirlit á bls. 3 í aðal-
blaðinu í dag.)
Skuldirnar 31. des. 1941 voru
samkvæmt rikisreikningi sam-
lals 66.219 þús. kr., svo að
Lækkun skulda á árinu, sem
leið, neinur 15.207 þús. kr. Þetta
orsakast af því, a'ð Raforku-
sjóður er talinn eiga lijá ríkis-
sjóði 5 millj. kr. og Fram-
kvæmdasjóður 8 millj. kr. í
árslok 1941. Þessar fjárhæðir
eru greiddar á árinu 1942, á-
samt afborgunum frá bönkum
og síldarverksmiðjum upp í
skuldir, sem ekki ganga í
gegnum reikninga ríkissjóðs.
Þetta nemur samtals 14.957
þús. kr. að viðbættum 250 þús.
koma þjóðarbúskapnum í það
horf, að hann verði sjálfum sér
nógur, án þess að byggjast um
of á istyrjaldarástandinu.
Stefna ríkis og löggjafar-
valds hlýtur að verða sú, að
sporna gegn allri verðþenslu,
að setja ekki stórfé í fyrirtæki
eða framkvæmdir meðan verð-
bólgan gerir öll verðmæti ó-
trygg, að spara og safna fé til
mögru áranna, sem liljóta að
koma, að binda ekki ríkissjóði
byrðar nú með miklum á-
byrgðum eða lántökum til
dýrra framkvæmda, að koma
atvinnuvegunum á heilbrigðan
grundvöll, þar sem undirstað-
an er ekki stríðsgróði, lieldur
verðskuldaður afrakstur fyrir
unnin störf, og að tryggja verð-
gildi gjaldmiðils landsins.
Þó að nú sé dimmt i lofti og
erfiðleikar á báðar hendur, þá
mun aftua birta eftir þau
ragnarök sem nú ganga yfir.
Það, sem færst hefir úr skorð-
um, mun leita jafnvægis. En
þá munu þeir minnstum erfið-
leikum sæta, sem skemmst
hafa hætt sér inn í þá hringiðu,
sem ófriðarástandið hefir skap-
að.