Vísir - 13.09.1943, Síða 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiöjan (3. hæð)
Ritstjórar |
Blaðamenn Slml:
Auglýsingaf 1660
Gjaldkerl 5 llnur
Afgreiðsla
33. ár.
Reykjavík, mánudaginn 13. september 1943.
207. tbl.
Mussolini leyst-
ur úr haldi.
FallhlifasweiÉ og: S^meun
nádu liouum.
Þýzka herstjórnin gaf í gær út aukatilkynningu um það, að
tekizt hefði að losa Mussolini úr haldi með kænlegu her-
bragði.
Tilkynningin var á þá leið, að fallhlífahermenn og menn úr
öryggisdedd „Waffen SS“ hefði tekizt að ná honum úr fangelsi
því, sem hann hafði verið geymdur í. Þess er ekki getið, hvar
hann hafi verið geymdur né með hverjum hætti honum hafi
verið bjargað. „Með þessu móti er komið í veg fyrir það, að
hægt verði að framselja hann bandamönnum, eins og þeir höfðu
krafizt“, sagði í þýzku tilkynningunni að lokum.
Þetta er það fyrsta, sem menn frétta opinberlega um Musso-
lini síðan 25. júlí. Ýmsar fregnir höfðu borizt um afdrif háns,
m. a. að honum hefði verið leyft að fara til Þýzkalands og síðar
að hann hefði þegar verið framseldur.
Vopnahléð:
Italir seadu hvern
samninoamannion
ai sðroin.
Grandi kom hvergi
nærri samningunum.
Nú er loks búið að segja alla
söguna um samningana, sem
fram fóru, áður en bandamenn
í'éllust á að veita Itölum vopna-
hlé.
Fyrstu vikuna í ágúst lcom
sendiboði frá Ítalíu að máli við
sendiherra Breta í hlutlausu
landi og spurðist fyrir um horf-
ur á því, að Italir fengi vopna-
hlé. Honum var tjáð, að það
fengist aðeins gegn skilyrðis-
lausri uppgjöf.
Undir miðjan mánuðinn kom
italskur hershöfðingi til Madrid
og ræddi við Sir Samuel Hoare,
sendiherra Breta. Næsta dag
ræddi hann við Sir Reginald
Hall, sendiherra Breta i Lissa-
bon. Hann sagði á báðum stöð-
unum, að hann ætti að færa þau
skilaboð frá Badoglio, að ítalir
væru reiðubúnir til að ganga i
lið með bandamönnum, þegar
her þeirra væri kominn á land
á ítaliu.
Hershöfðinginn fór með svör
bandamanna til Róms, en varð
svo lengi á leiðinni, vegna þess
hve för hans varð að fara leynt,
að ítalska stjórnin var farin að
örvænta um að hann kæmi aft-
ur. Var þá sendur annar hers-
höfðingi til Lissabon og með
lionum Carlton de Wiart, brezki
liershöfðinginn, sem verið
bafði fangi Itala síðan 1941. En
sama -dag og þeir komu til Lissa-
bon kom fyrri hershöfðinginn
til Róms og var þá hinn síðari
sendur heim og de Wiart til
Englands.
Þá var haldinn fundur á Sikil-
ey. Fulltrúi ítala sagði, að þeir
væri raunverulega undir stjórn
Þjóðverja og því væri ekki liægt
að birta neitt um uppgjöfina
fyrr en meginher bandamanna
liefði geagið á land á ítalíu.
Þessu var svarað þannig, að ítal-
ir yrðu að segja af eða á innan
24 ldst. Sendimaður Itala flaug
þá til Róms og áður en frestur-
inn var útrunninn barst svar
ítala: Þeir féllust á kosti banda-
manna.
Eisenhower ákvað að skýra
frá uppgjöfinni um likt levti og
gengið yrði á land hjá Neapel
og Salerno, en þær landgöngnr
var búið að ákveða og undir-
búa.
Grandi greifi lcom til Lissa-
bon meðan á samningum stóð
þar, en hann ræddi ekki við
neinn erindreka bandamanna
og var að öllu leyti í einkaer-
indum.
N.-Guinea:
Flugvöllur tekinn
hjá Salemaua.
Bandamenn hafa tekið jap-
anskan flugvöll, sem er aðeins
3 km. frá Salamaua.
Rétt fyrir helgina tókst sömu
iiersveitum að rjúfa ytri varnir
bæjarins. Misstu Japanir mikið
bð og urðu að hlaupa frá miklu
af vopnum og útbúnaði.
‘Þá heldur áfram að kreppa
að Japönum hjá Lae. Er lialdið
uppi mikilli skothríð á stöðvar
þeirra, til þess að undirbúa
lokaáhlaupið.
Námskeið fyrir lækna
Námskeið verður haldið fyrir
lækna á hausti komanda, og er
ráðgert að það verði haldið
annað hvort vikuna á undan
eða eftir ársþingi Læknafélags
Islands.
S. 1. vetur var kosin nefnd í
Læknafélagi Reykjavikur til
þess að undirbúa og annast
framkvæmdir á stuttli nám-
skeiði fyrir lælcna, og er nú á-
kveðið að nómskeið þetla verði
haldið um svipað leyti og árs-
þing Læknafélags Islands.
Er ráðgerl að kennslunni
verði komið þannig fyrir, að
þátttakendur skipti sér á sjúkra-
hús, rannsólcnarstofur eða aðrar
lækningastofnanir fyrri hluta
dagsins, en á kvöldin verði
flutt erindi læknisfræðilegs efn-
is.
Brot á verðlagsákvœðum.
Nýlega var veitingasalan í Akog-
’eshúsinu, Vestmannaeyjum dæmd
fyrir brot á verðlagsákvæðum. Hún
hlaut 200 kr. sekt og varð að greiða
kr. 15,00 í málskostnað. Ólöglegur
hagnaður, kr. 85,00, v;p- gerður
upptækur.
BRiNDISI Á VALDI IRETA.
Leiftursókn yflr Apuliuskaga frá Taranto.
8. herinn 920 km.
frá Regfg'io.
Harðar orustur við ágætlega
búinn þýzkan her við Salerno
i
1% retar haía' Brindisi á valdi sínu. Þegar þeir
» voru búnir að taka Taranto var vélaherdeild
send í skyndi þvert yfir skagann — eins og
; Vísir benti á, að liklegast yrði næsta skrefið — til að
taka Brindisi strax, til þess að brezki flotinn hefði
bækistöð við Adriahaf. Eru bafnarmannvirki beggja
borganna í fullkomnu lagi og ítalskir verkamenn fúsir
til að vinna við upp- og útskipun.
j Bandamenn hafa nú bæði „hæl og tá“ Ítalíu á valdi síhu og
virðist þá næsta skrefið hjá þeim að sameina lierina þar syðst
og hefja síðan sókn norður á bóginn til að taka höndum saman
við 5. ameríska herinn, sem berst hjá Neapel og Salerno. Þó
má vera, að bandamenn stofni til landgöngu einu sinni enn, að
þessu sinni á austurströndinni, andspænis Neapel og Salerno.
Áttundi herinn sækir jafnt og
þétt norður á bóginn. Hann var
í fyrrinótt- kominn 120 km. frá
Reggio, fyrsta landgöngustaðn-
um á Kalabriu og var þá búinn
að taka borgina Catanzax-o.
Mótspyrna er hverfandi litil,
því að þýzku hersveitirnar ótt-
ast bersýnilega að þær verði
króaðar inni og láta sér nægja
að tefja eftii-förina með því að
eyðileggja alla vegi og brýr.
I morgun var tilkynnt, að 8.
iierinn hefði tekið Cotrone.
Þjóðverjar
ágætlega útbúnir.
„Hjá Salerno hafa handamenn
liitt fyrir liinn harða kjarna j
þýzkrar nxótspyrnu,“ segir
fréttaritari United Press á staðn- I
ixm. „Þjóðverjar eru ágætlega !
útbúnir þax-na. Þeir liafa xnergð .
litilla vopna, sem eru mjög
hraðskeytt, en auk þess hafa
þeir mikið af stórum fallbyss-
um.“
Bandaiuenn búast við mjög
hörðum orustum, áður en þeir
geti lirakið Þjóðverja frá Neap-
el, þvi að vörn þeirra m,un snú-
ast að mestu um þá box-g. Italir
veita bandamönnum mikilvæg- i
an stuðning á þessum slóðum.
huga, að hefja skæruhernað á
he.ndur Þjóðverjum.
Viktor Emanuel
og Badoglio sleppa.
Konungur Itala og Badoglio
for sæt i sráðherra hafa báðir
komizt undan rú Rónx. Þeir á-
vörpuðu þjóðina á laugai'dag og
í gær var tilkynnt, að jxeir hefði
aðsetur í ónefndi'i borg á Suð-
ui’-Italíu. Fregnir höfðu borizt
um það, að Vilctor Emanuel
væi’i kominn til Sikileyjar, en
það er borið til baka.
{
Barizt í 3 daga
á Rhodos-eyju
Þjóðvei-jar liafa afvopnað lið-
ið á Rliodos, en tyrkneskar
fregnir herma, að ítalir hafi var-
izt af hai’ðfengi á 3 daga, áður
en þeir voru ofui’liði bornir.
Fregnir liafa einnig boi’izt frá
Tyrklandi um það, að Italir hafi
vai'izt í meira en 2 sólarlninga
í Aþenu.
Hershöfðingi Þjóðverja k
Balkan heitir von Weisch. Hann
sigraði Júgóslava á sínum tíma
og nú segja Þjóðverjai’, að liann
iiaíi nægt lið til að verja skag-
ann.
I
Sækja á ný fram bjá
Briansk.
Rússar héldu vestur á bóginn á öllum vígstöðvunum frá Bry-
ansk til Azovshafs í gær. Þeir nálgast óðum Dnjepr-bugð-
una, en áður en þeir komast þangað munu þeir rjúfa einu járn-
brautina, sem liggur norður frá Krímskaga og hindra undan-
hald þaðan.
Rússar sækja fram i tveim
eða þrem samhliða fylkingum
meðfx’anx járnbi'autinni frá
Mariupol til Dnjep'r. Voru þeir
i gærkveldi komnir 50 km. vest-
ur fyrir Volnovaka og er þá á-
lika langur spölur eftir til fljóts-
ins. En milli þeirra og fljótsins
er hrautin til Ki’im, sem sker
Mariupol-brautina í Zapoi’osje.
Norðvestur af Karkov hefir
aftur komið skriður á Rússa.
Þar sækja þeir meðfram járn-
brautinni til Kiev og eru um
30 km. fx’á boi-ginni Niasjin.
Þaðan liggur braut norður á
bóginn, en borgin er aðeins 120
km. fyrir noi’ðaustan Kiev og
eru Rússar þar næstir þeirri
fornfi’ægu og helgu borg.
Hjá Bi-yansk liafa Þjóðverjar
en norðið að láta undan síga.
Hafa þeir orðið að vikja bæði
fvrir norðan borgina og sunn-
an hana. Rússar hafa líka byrj-
að sókn á nýjan leik suðvestur
frá Spasdemensk. Þar eru þeir
aðeins 50 km. frá Roslavo, mik-
ilvægri borg á brautinni milli
Bryansk og Smolensk.
Undanfarnar vikur hafa Rúss-
ar tekið 165,000 ferkílómetra
lands af Þjóðverjum.
Knattspyrnan.
I gær fór fram kappleikur
milli Fram og Vals í Walters-
keppninni. Valur vann með 3:2.
Á sunnudaginn kemur fer fram
úrslitaleikur á milli hinna gömlu
keppinauta, Vals og K.R.
Á laugardaginn voru tveir
leikir háðir í II. flokki. Fóru
leikar þannig að K.R. vann
Fram 1 :0 og Valur vann Vík-
ing 6:0.
1 gærmorgun kepptu Akur-
eyringar, II. flokkur við b-lið
K.R. og unnu Akureyringarnir
1 : 0. Svo sem kunnuget er, taka
Akureyringarnir ekki þátt i II.
fl. mótinu, en keppa hér hins-
vegar sem gestir.
Annars flokks mótið heldur
áfram á miðvikudaginn kl. 7.15
með leik milli K.R og Víkings.
Annað kvöld kl. 7 fara úrslit-
in í I. fl. fram á íþróttavellin-
um. Þar keppa Fram og Valur
og vænta menn fjörugs og
spennandi leiks.
Annað kvöld keppa einnig kl.
6.15 K.R. og Valur í 4. flokki.
Áttu báðir þessir siðasttöldu
leikir að fara fram í kvöld, en
varð að fresta þeim vegna
bleytu.
Þrjú bifreiðarslys í gær,
T^rju meiriháttar bifreiðarslys urðu hér í bænum og grend
hans í gær. Eitt þeirri vildi til á Suðurlandsbraut, annað
á Laugamesvegi og hið þriðja á Skólavörðustígnum.
Umsátursástand
á N.- og M.-ltalíu.
Kesselring marskálkur liefir
lýst öll héruð undir þýzkri
stjórn á Italíu í umsátursástandi.
Verkföll eru bönnuð, sömuleið-
is fundahöld. Mönnum er bann-
að að bera vopn og þeir, sem
brjóta það bann, verða skotn-
ir. Símanotkun hefir verið
mjög takmörkuð og verka-
mönnum er stranglega skipað
að liefja vinnu við öll sanv
göngutæki.
200.000 Italir afvopnaðir.
I gær var búið að afvopna
200.000 italska hermenn víðs-
vegar um Ítalíu, segja Þjóð-
vérjar. Eru þá ekki meðtaldar
setuliðssveitirnar í Milanó og
Róm. Þjóðverjar segja ennfrem-
ur, að fasistar gerist sjálfboða-
liðar í þýzka Iiernum í þúsunda-
tali.
Bandamenn segja hinsxegar,
að ítalsldr hermenn hafi viða
leitað upp til fjalla m,eð það í
I gærkveldi ók amerísk her-
bifreið á konu sem var á gangi
á Laugarnesveginum. Konan
kastaðist út af veginum og
meiddist mikið, en bifreiðin ók
áfram, án þéss að skipta sér
af konunni.
Vildi þessi atburður lil á móts
við Hrisateig 1 og mun bifreið-
in mafa komið aftan að stúlk-
unni. Sá fólk konuna liggjandi
við götuna, en bifreiðina alca
burtu.
Konan var flutt á Landsspít-
alann og við Röntgeiiátbugun
kom í ljós að mjaðmargrind
hennar var brotin. Hún er þó
ekki talin vera í lífshættú. Kona
þessi mun vera um, eða yfir
fimmtugt.
I gærmorgun vildi annað slys
til. Varð telpa fyrir bíl á Skóla-
vöfðustígnum og mun liafa lent
að einhverju leyti undir lionum
Rrotnuðu báðir framhandleggir
hennar og lilaut hún auk þess
minni háttar meiðsl, skrámur
og mar.
Þriðja bifreiðarslysið vildi til
á Suðurlandsbraut við Lang-
boltsveg. Þar óku saman íslenzk
bifreiða og lierbifreið. Islenzka
hifreiðin skemmdist allmikið og
tvær stúlkur, sem í lienni voru,
slösuðust. Þær voru fluttar á
berspitala, en ekki er kunnugt
um meiðslin.
Læknablaðið,
i. tbl. 29. árg. flytur þetta efni:
„Digitalis: Meðferð við organiska
hjartasjúkclóma" (Theodór Skúla-
son). „Ritdómar um Röntgendia-
I gnostik", „Frá læknum“ o. fl.
Silfurbrúðkaup
áttu i gær frú Guðríður Hannes-
dóttir og Bergsteinn Magnússon,
Selbúðum 9, hér í bæ.
Málverkasýningin
í Sýningarskálanum verður eigi
opin lengur en i dag og á morgun,
þrátt fyrir aðsókn, því að skálann
var eigi hægt að fá á leigu nema
til hálfs mánaðar.
Sextugsafmæli
á í dag frú Valgerður Víglunds-
dóttir, Vesturgötu 69.
Handavinnunámskeið
sem Heimilisiðnaðarfélag Islands
gengst fyrir hefst 6. okt. n.k. Frú
Guðrún Pétursdóttir, Skólavörðu-
stíg 11A gefu rnánari upplýsingar.
Símanúmer frúarinnar er 3345, kl.
2—5 daglega.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20,30 „Þýtt og endursagt"
(Vilhj. Þ. Gíslason). 20,50 Hljóm-
plötur: Nörsk lög. 21,00 Um dag-
inn og veginn (Vilhjálmur S. Vil-
hjálmsson blaðamaður). 21,20 Út-
varpshljómsveitin: Amerísk þjóð-
lög. — Einsöngur (Pétur Á. Jóns-
son) : Söngur Lenskis eftir Tschai-
kowsky. Söngur Samsonar eftir
Saint-Saens. Álfakóngurinn eftir
Schubert, og Vetur eftir Sveinbj.
Sveinbjörnsson.