Vísir - 13.09.1943, Page 3
V I S ! h
þeirri verðlækkun sé hægt aö niönnum liennar mörkuðu dýpri
iialda dýrtíðinni í skefjum. spor fyrir framtíðina, en enginn
þannig, að hægt sé að lialda þeirra stóð í eins nánu sambandi
atvinnuvegunum gangandi.
Er þetta að fjandskapast við
skattþegnana eða íþyngja at-
vinnuvegunum? Eða eru áður-
nefnd hlöð aðeins að taka upp
hanskann fyrir þá, sem vilja
reykja og drekka? Ef svo er,
þá eiga þau að ræða málið
vafningalaust.
HVað gera aðrar þjóðir?
Það er helzt svo að skilja
á sumum mönnum, að það sé
hin heimskulegasta fjarstæða
að halda niðri verðbólgu með
fjárframlögum frá hinu opin-
bera. Þetta þekkist þó víðar en
hér á landi.
í Bandaríkjunum er nú gert
ráð fyrir að .verja stórfé til
verðlækkunar á ýmsum vöru-
tegundum, til þess að forðast
verðbólgu. f Bretlandi hefir
dýrtíðinni verið lialdið í skefj-
um öll ófriðarárin með stór-
felldum fjórframlögum. En
það hefir verið gert á annan
hátt en í Bandaríkjunum eða
liér á landk Það hefir verið
gert á þann veg, að ríkisstjórn-
in hefir tekið í sínar hendur
innkaup og sölu margra hinna
mestu lífsnauðsynja og liagað
söluverðinu eftir því sem hag-
anlegast þótti til þess að lialda
niðri verðlagi nauðsynja í
landinu. í Bretlandi er öllum
ljós nauðsyn þessara ráðstaf-
ana, enda kemur engum til
liugar að lialda því fram, að
það hafi verið lieimskulega
gert af stjórninni að lialda
niðri verðlaginu á þennan hátt.
Það er í rauninni hluti af her-
kostnaðinum.
Verðlækkun á mjólk og kjöti
er okkar lierkostnaður, sem við
verðum að greiða vegna utan-
aðkomandi áhrifa og vegna
mistaka, sem átt hafá sér stað
í opinberu lífi.
En sá lierkostnaður er ekki
mikill hjá þeim byrðum, sem
nú eru lagðar á flestar þjóðir.
„Það er að vísu dýrt
að borga niður dýrtíð-
ina, en það er dýrara
að gefa henni lausan
tauminn.“
Katrín mikla.
Ævisaga Katrínu miklu
Rússadrottningar er nýkomin á
markaðinn á vegum útgáfufyr-
irtækisins Leiftur h.f. Frægur
þýzkur ævisagnahöfundur, Gina
Kaus hefir samið bókina, en
Freysteinn Gunnarsson skóla-
stjóri þýtt hana.
Er þetta mikið rit, nærri 300
bls. í stóru broti, eða áþekku
broti og drottningasögurnar
María Stuart og María Antoin-
ette. Nokkrar myndir, prentaðar
á gljápappir, prýða bókina.
í niðurlagsorðum bókarinnar
segir svo um Katrínu — hina
miklu drottningu Rússaveldis:
„Allir þeir, sem þekktu hana,
grétu hana, liinir morgu vinir
hennar, samstarfsmenn, þjónar
og þernur. Utan landamæranna
var létt þungu fargi af konung-
um og uppreistnarmönnum.
Hún hafði vakið öfund konung-
anna og ótta uppreisnarmann-
anna. En rússneska þjóðin tók
andláti hennar með stillingu.
Hún var góðog mild matushka á
heimili sinu, og hún var glæsi-
legur sigurvegari á keisarastóli.
En hvorugt kom fólkinu að
gagni eða gleði. Það var ekki
henni að kenna. Hún vildi koma
góðu til leiðar og gerði hvað
hún gat. En liún var á undan
sínum tíma. Það háði henni, að
fylling tímans var ekki komin.
Umhverfi og ástæður urðu
henni ofjarl, það var veiklciþi
hennar. Hún skildi, að liún varð
að haga sér eftir umhverfi og á-
stæðum, það var styrkleiki
hennar. Margir af samtíðar-
við samlíð sína og liún. Hún lét
ekki eftir sig neinar byltinga-
hugmyndir,meirihluti landvinn-
inga hennar tapaðist aftur, rit
hennar eru gleymd. Það, sem
hún hugsaði, sagði og gerði, er
ódauðlegt aðeins í lifandi sam-
bapdi við pérsónuleik liennar
sjálfrar. En persónuleiki hennar
á sér engan Iíka. Þar var saman
slungið vit og mildi, hlýleiki og
ástríður, ráðsnilli og heppni.
Hún var einn af draumum
mannsandans, holdi klæddur.
Þýðing hennar fyrir samtíð
hennar og sögu var mikil. En
saga hennar sjálfrar er meiri.
Ilún lifir um aldur og ævi“.
Síra Árni Sigurðsson
fimmtugur
Hinn vinsæli safnaðarprest-
ur Fríldrkjunnar, síra Árni Sig-
urðsson, er fimmtugúr í dag. J-
Hann liefir síðan 1922 gegnt .
prestsþjónustu við Fríkirkjuna |
og gegnt því starfi af mikilli
prýði, enda hafa vinsældir hans
.farið jafnt vaxandi síðan.
Síra Árni nýtur mikils trausts
innan prestastéttarinnar og hef-
ir í mörg ár átt sæti í stjórn
Prestafélagsins. Það verða því
margir sem senda honum hug-
heilar árnaðaróskir í dag.
Fimmtugur í dag:
Siir öiðggBdssei.
Sigurður Guðmundsson, fyrr-
um ráðsmaður Dasbrúnar, er
fimmtugur í dag. Hann fluttist
hingað liaustið 1920. Innan
verlcamannafélagsins Dags-
brúnar vann liann sér brátt
traust og mylli og var um langt
skeið ráðsmaður félagsins. —
Hann starfar nú á Vinnumiðlun-
arskrifstofunni. Sigurður er
maður mjög vel látinn og vill
hvers manns vandræði leysa.
Hann er einn fárra heiðursfé-
laga í Dagsbrún.
Innlímingarbækur
Bækur til þess að líma í
blaðaúrklippur, auglýsingar
o. fl. fyrirliggjandi.
E. K.
Austurstræti 12. Sími 4878.
Magnús Thorlacius
hæstaréttartögmaSur.
ACalstræti 9. — Sími: 1875.
GARÐASTR.2 SÍMI 1899 '
Sigurgeir Sigurjónsson
hœstaréttcrmáloflutningsmaður
Skrifstofutími 10-12 og 1—6.
Aðalstrœti 6 Sími 1043
m
Ný, merkileg og skemtileg bók: i
Kstíríii iiiikla
Ævisaga eftir GINU KAUS.
íslenzk þýðing eftir FREYSTEIN GUNNARSSON, skólastjóra.
Katrín II. Rússa drottning, sem kölluð liefir verið hin mikla,
var hertogadóttir frá Zerbst í Prússlandi og giftist ríkiserfingja
Rússa er hún var lítt af barnsaldri. Við lát Elísabetar drottn-
ingar kom Pétur III. til ríkis, en hann var duglítill stjórnandi
og þar kom, að Katrín drottning lians steypti honum af stóli
og tók völdin í sínar hendur. Katrín réð ríkjum í Rússlandi í
34 ár. Naut hún mikillar lýðhylli, enda var hún stórbrotin kona,
gáfúö, vel menntuð og rússnesk i anda, þótt erlend væri að
þjóðerni,
í lok ævisögunnar farast höf. orð á þessa leið:
„Allir þeir, sem' þekktu hana, grétu hana (þegar hún andaðist),
hinir mörgu vinir hennar, samstarfsmenn, þjónar og þernur. Utan
landamæranna var létt þungu fargi af konugum og uppreisnarmönn-
um. Hún hafði vakið öfund konunganna og ótta uppreisnarmanna. En
rússneska þjóðin tók andláti hennar með stillingu/ Hún var góð og mild
matushka (móðir) á heimili sinu, og hún var glæsilegur sigurvegari
á keisarastóli. En hún var á undan sínum tíma. Það háði henni, að
fylling tímans var ekki komin. Umhverfi og ástæður urðu henni of-
jarl, það var veikleiki hennar. Hún skildi, að hún varð að haga sér
eftir umhverfi og ástæðum, það var styrkleiki hennar. Margir af sam-
tíðarmönnum hennar mörkuðu dýpri spor fyrir framtiðina, en eng-
inn þeirra stóð í eins nánu sambandi við samtíð sína og hún. Hún
lét ekki eftir sig neinar byltingahugmyndir, meiri hluti landvinn-
inga hennar tapaðist aftur, rit liennar eru gleymd. Það, sem hún
liugsaði, sagði og gerði, er ódauðlegt, aðeins í lifandi sambandi við
persónuleik hennar sjálfrar. En persónuleiki hennar á sér engan líka.
Þar var saman slungið vit og mildi, hlýleiki og ástriður, ráðsnilli og
heppni. Ilún var ein af draumum mannsandans, holdi klæddur. Þýð-
ing hennar fyrir samtð hennar og sögu var mikil. En saga hennar
sjálfrar er meiri. Hún lifir um aldur og æfi.“
Bókin er með myndum og fæst hjá bóksölum og útgefanda.
LEIFTUR H.f.
i
Xý §káld§a^a
eftir Jóhann J. E. Kúld,
er nýkomin út.
Um heljarslóð
er spennandi bók um liættur hafsins og erfiðleika og
' og ævintýri sjófarenda.
Kaupið bókina h já næsta hóksala.
Bókaútg. Pálma H, Jónssonar
Akureyri.
2 stnlknr vantar sti’ax á \ Ellj- og hjúkrunarheimilið GRUND. Uppl. gefur yfirlijúkrunar- konan. i Nokkrar stúlkur óskast í DÓSAVERKSMIÐJUNA. / Uppl. i verksmiðjunni hjá verkstjóranum.
Amerísk kjólaefni
NtKOMIN.
LÍFSTYKKJABÚÐIN H.F.
Hafnarstræti 11. Sími: 4473.
Heimilisiðnaðarfélags íslands
liefjast 6. okt. n. k. Kennslu verður hagað eins og að
undanförnu. Allar upplýsingar gefur GÚÐRÚN PÉT-
URSDÓTTIR, Skólavörðustíg 11 A. — Sími 3345
kl. 2—5 daglega.
Skittar arslns M
Athygli skattgreiðenda i Reyk javík er hér með vakin
á því, að skattar ársins 1943 féllu í gjalddagri 15. ágúst
síðastliðinn og ber mönnum að greiða þá á skrifstof-
unni í Hafnarstræti 5, 1. hæð, he'rb. nr. 1—A.
Þeir, sem vegna flutnings eða arinára örsaka, hafa
ekki fengið enn skattseðla sína, geri svo vel að vitja
þeirra á skrifstofuna eða gera aðvart og« sregja til nú-
verandi heimilisfangs síns í sima 1550.
Greiðið gjöld yðar sem fyrst, með því losnið þér við
dráttarvexti.
TOLLSTJÓRINN í REYKJAVÍK.
Skrifstofan opin:
Virka daga kl. 10—12 og , Sími: 1550.
1—4, en íaugardaga 10—12. (4 linur).
Eínafræðingur
óskar eftir stöðu um óákveðinn tíma. — Tilboð auðkennt:
„Efnafræðingur“, sendist blaðinu sem fyrst.
BEZT AÐ AUGLÝSA I VÍSL
Nokkrar duglegar stúlkur
óskast. — Uppl. hjá verkstjóranum dagl. frá' kl. 3—6.
Skúlagötu.
Kexvepksmiðjan FRÓN h,f,
! ? ; ’
Málverkasýning
ÞORVALDAR SKÚLASONAR
og
GUNNLAUGS SCHEVINGS
Kirkiustræti 10.
Opin í síðasta sinn í dag (mánudag) og á morgun
frá kl. 10—10.
Hér með tilkynnist að jarðarför
Guðmundar Eyleifssouar
fer fram þriðjudaginn 14. þ. m. kl. iy2 e. h. frá heimili hans,
Grettisgötu 20. *
Fyrir mina hönd og barna okkar.
Guðrún Guðbrandsdóttir.
Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum, að konan
mín,
Guðný Sigurðardóttir.
andaðist í Landakotsspitala þann 12. þ. m.
Fyrir mína hönd og annara aðstandenda.
Steingrímur Steingxímsson.
I
f