Vísir - 20.12.1943, Page 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstófur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
33. ár.
Ritstjórar
Blaðamenn Slmi i
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
Reykjavík, mánudaginn 20. desember 1943.
V# v,• :r..vr
• <■«§»«
289. tbl.
Ný sókn Rússa á Nevel.
Bafa sótt fpam 80 km* á 80
km. bF@idu svæði.
Um 20000 Þjóðverjar felldir á 5 dögum.
Rússar hafa nú loks leyst frá skjóðunni viðvíkj-
andi þeim hernaðaraðgerðum, sem Þjóðverjar
hafa sagt að undanförnu, að ætti sér stað í
grennd við Nevel. Var tilkynnt í Moskva í gærkveldi,
að hersveitir Rússa hefði verið í sókn þarna undan-
farna daga og eru þær nefndar „hersveitir fyrstu
Eystrasaltsvígstöðvanna“.
I fregnum frá blaðamönnum segir, að veður hafi batnað
mikið um miðjan mánuðinn í nórðifr-hluta Hvíta Rússlands
og hafi þá verið hafin sókn, sem liafi verið vandlega undirhúin
í um það hil tvo mánuði.
Rússar liófu sóknina fyrir
sunnan Nevel fyrir sex dögum.
Áttu þeir í höggi við mjög
sterkar víggirðingar Þjóðverja,
sem höfðu auk þess liarðsnúið
lið til varnar. Eftir harðar or-
ustur tókst Rússum að rjúfa
varnir Þjóðverja á 80 km. breiðu
svæði og geystust í gegn. Höfðu
þeir í gærkveldi sótt fram um
það bil 30 km. og héldu áfram
vestur á bóginn.
Þar sem Rússar eru komnir
næst landamærum Lettlands,
eru þeir í rúmlega 100 km. fjar- j
lægð. En nafnið á vígstöðvum i
þessum þykir sýna, að Rússar !
ætli sér jafnvel að hrjótast vest-
ur yfir landamærin þarna.
500 bæir og þorp tekin.
Á svæði því, sem Rússar hafa
tekið, eru um 500 bæir og þorp.
Einna mikilvægust er járn-
brautarstöð ein — Estoritsa —,
sem er um það bil 40 km. fyrir
sunnan Nevel á línunni til Vi-
tebsk. Mun það vera takmark
Rússa, að komast á snið við þá
borg, reyna að umkringja hana.
Manntjón.
Rússar halda því fram, að
J>eir hafi leikið fjórar herdeildir
Þjóðverja, þar á meðal 20. bryn-
deildina, mjög grátt og muni
mannfaíl Þjóðverja vera um
20,000 menn fallnir. Rúmlega
2000 Þjóðverjar hafa verið tekn-
ir til fanga.
Hinsvegar segjast Rússar
ekki hafa tekið mikið lierfang
eða eyðilagt mikið af hergögn-
um fyrir Þjóðverjum. Þeir segj-
ast eingöngu hafa eyðilagt 70
skriðdreka og tekið 40 herfangi,
eyðilagt 800 bíla og tekið 300
og eyðilagt 160 fallbyssur og
tekið 200.
Mannafli Rússa.
í þýzkum fregnum er talið .
að Rússar tefli fram um fjórð-
ungi milljónar manna í árásum
sínum hjá Nevel. Eru það 14
skyttudeildir, 2 riddaraliðs-
deildir, 2 fótgönguliðsdeildir og
1 stórdeild skriðdreka, eða 1000
—1500 skriðdrekar.
Þjóðverjar halda því enn
fram, að þeir hrindi nær öllum
árásum Rússa, sem bíði ógurlegt
tjón.
Kerson á valdi
Rússa.
Þjóðverjar tilkynntu í morg-
un, að hersveitir þeirra liefði
hörfað úr borginni Kerson, sem
er við ósa Dnjepr-fljóts.
Enn hafa ekki borizt fregnir
um þetta frá Rússum, en fréttir
hafa borizt um það við og við,
að harðir bardagar sé háðir
þarna.
SA-Asía:
Einn flugher
bandamanna.
Skipulagður skv. N.-
Afríku reynslu.'
Muontbatten er nú búinn að
endurskipuleggja flugheri Breta
og Bandaríkjamanna í suðvest-
urhluta Asíu undir eina stjórn.
Yfirmaður alls flughersins er
Sir Richard Peirse, sem var um
eitt skeið yfirmaður sprengju-
flugvélasveitanna á Bretlandi.
Hann er lika fyrsti brezki flug-
foringinn, sem var falin stjórn
landhers og herskipa, auk flug-
sveita — í Palestínu fyrir stríð.
— Hann er 51 árs að aldri.
Næstur honum gengur Strate-
meyer, er var yfirmaður amer-
ísku flugsveitanna í Indlandi,
Burma og Kína.
Flughernum er skipt í tvennt
og sér annar hlutinn urn að veita
landher stuðning, en hlutverk
hins er að fara í langa leiðangra,
sem minni flugvélar ná ekki til.
Er skipulag þetta hið sama og
fyrst var notað í Norður-Afríku
með þeim árangri, að möndul-
herinn þar var gersigraður.
Rommcl og
nndstedt
æðast við
Rommel er nú staddur í
Frakklandi á eftirlitsferð.
Eftir að hann hafði kynnt sée
landvarnir í Danmörku fór
hann til Niðurlanda, en þaðan
sendi Hitler hann til Frakklands.
Segir þýzka fréttastofan, að
Rommel skoði Atlantshafsvegg-
inn og kynni sér styrkleika vara-
liðssveita Rundstedts.
Undanfarið hafa þeir Rommel
og Rundstedt setið langar ráð-
stefnur.
Jólakveíjur frá Lomlon
heyríust ekki.
Brezka útvarpið flutti í gær
jólakveðjur Islendinga í Bret-
landi, og var reynt að endur-
varpa þeim hér, en sendingin
heyrðist mjög illa.
Heyrðist ekki annað en slitur
úr sálminum „Sem börn af
lijarta viljum vér“. Þorsteinn H.
Hannesson söng.
Jólakveðjum verður útvarpað
aftur á annan í jólum ld. 14.15
—14.30 á 31 m. öldulengd.
Ítalía:
Bandamenn
vánna hægt á.
Á Ítalíu halda bardagar áfram
í versta veðri og færð og vinna
bandamenn á, en einungis mjög
hægt, því að mótspyrna er alls-
staðar geypi hörð.
Áttundi herinn hefir tekið
þorp eitt skámmt fyrir sunnan
Orsogna-Ortona-veginn og náð
þar tryggri fótfestu, en fram-
sveitir hafa lcomizt norður yfir
veginn og eru búnir að loka
honum fyrir Þjóðverjum.
Uppi í fjöllum hefir fimmta
hérnum loks tekizt að hrekja
Þjóðverja úr þorpinu Son Pietro
eftir skæða bardaga í návígi.
Er nú barizt uin annað þorp og
ætla Þjóðverjar bersýnilega að
verjast þar til þrautar, ekki síð-
ur en í Sn Pietro.
Árásir á járnbrautir.
Bandamenn hafa enn gert á-
rásir á flutningaleiðir Þjóðverja
í S.-Frakklandi. Ráðizt var á
brú yfir ána Var, skammt fyrir
vestan Nissa og brú yfir gil eitt
hjá Cannes.
Farið var í árás á flugvöllinn
hjá Podgoriza í Jugóslavíu, auk
þess sem gerðar voru margar á-
rásir á stöðvar þétt að baki víg-
stöðvum Þjóðverja á Italiu.
LOM ð lllflÉUCk.
Önuur á 4 dögum.
Herstjórn Bandamanna í
Norður-Afríku hefir tilkynnt, að
flugvélar hennar hafi í gær ráð-
izt á Innsbruck í Austurríki.
Þjóðverjar tilkynntu laust
eftir hádegi í gær, að mikill
fjöldi stórra sprengjuflugvéla
hefði flogið norður yfir Alpa-
fjöll. Sögðu Þjóðverjar, að urm-
ull orustuvéla hefði ráðizt á
sprengjuflugvélarnar, er þær
voru yfir Norður-ítalíu og Alpa-
fjöllum og hefði verið háðir æð-
isgengnir bardagar yfir snævi-
þöktum tindum fjallanna.
Ráðizt var á járnbrautarstöðv-
ar í Innsbruck eins og sl. fóstu-
dag, þegar ráðizt var á borgina.
Þýzkt skot'æraskip
eyðilagt.
Skotfæraskip var sprengt í
loft upp í Osló um helgina.
í fregnum frá Stokkliólmi er
sagt svo frá þessum atburði, að
sprengingar hafi einnig orðið í
húsum á hafnarbakkanum, en
þangað var búið að flytja nokk-
uð af farmi skipsins. Margt
manna fórst og skennndir urðu
miklar.
Svíar Iiafa það eftir Þjóðveri-
um í Osló, að hér hafi ekki ver-
ið um skemmdarverk að ræða.
Járnbraut rofin
í Jugoslavíu.
Skæruliðar í Júgóslaviu hafa
rofið' járnbrautina milli Sara-
jevo og Zagreb á einum stað.
| Hersveitir Brozovitch hers-
I höfðingja — sem Spáverjar
gáfu nafnið Tito í borgara-
styrjöldinni — náðu þorg einni
í Bosníu á sitt vald i fyrradag.
Annars staðar hafa þær látið
undan síga.
Baráttan um hug fólksins
fivfiriir Jj.-Bfitliili
Orustuflugvélar ráðast
á Rabaul.
Japanir beita öllum brögðum,
sem þeir kuima, til þess að reyna
að stöðva bandamenn í sókn
þeirra á Nýja-Bretlandi.
Blaðamenn síma, að hersveit-
ir bandamanna hafi sjaldan átt
í höggi við eins harðskeyttar
og brögðóttar herveitir Japana,
siðan byrjað var að berjast á
Salomonseyjum. Gera þær
hvei’ja árásina af annari á
bandamenn, en eru jafnóðum
neyddar til undanhalds og hafa
goldið mikið afhroð.
Flugsveitir Japana gera sí-
felldar árásir á innrásarliðið, en
það liefir fullkomna loftvernd
og eru japönsku flugvélarnar
harktar á flótta jafnskjótt og
þær birtast. Amerískar orustu-
vélar liafa i fyrsta skipti í stríð-
inu gert árásir á flugvellina hjá
Rabaul og skutu þar niður a.
m. k. 6 japanskar flugvélar.
8 Milano-búar.
drepnir.
Átla ítalir voru í gær telmir
af lífi í Milano, ákærðir fyrir
skemmdarverk.
Strangt umferðabann liefir
verið sett í Róm og Bologna,
vegna árása á þýzka hermenn.
Mega læknar einir vera á ferli
á næturþeli og þeir, sem koma
til borganna með járnbraut- .
um, verða að liafast við í járn- \
brautarstöðvunum til morguns.
Davíð Stefánsson segir frá nVopnum guðannau
DAVlÐ STEFÁNSSON frá Fagraskógi er fyrir
skemmstu kominn til bæjarins frá Akureyri, og ætlar
hann að vera viðstaddur frumsýninguna á leikriti sínu
„Vopn guðanna“, er leikfélagið sýnir á annan jóladag.
Hann hefir j>egar verið viðstaddur eina æfingu á leik-
ritinu, og lízt honum vel á meðferðina.
Frelsi og einræði.
Hann skýrði Vísi svo frá í
samtali í morgun:
„Það, sem eg get sagt ýður um
leikritið, er að það fjallar um
elzta vandamál mannkynsins,
baráttuna milli frelsis og ein-
ræðis. Af jiví að sjálf átökin eru
svo algikl, að jiau hafa staðið
óslitið, siðan fyrsti valdhafi
varð til og liklegt er að þau
muni eiga eftir að standa enn
um lirið, liefi eg kosið að gera
leikritið óbundið tíma og stað.“
„Völd einræðisherrans endast
ekki lengur en tök hans á liuga
fólksins. Þegar þjóðin hefir snú-
ið við honum bakinu, duga
livorki harka né vopn. Þá er
hann sigraður í miðjum sigri
sínum. Baráttan, sem hafin var
gegn lionum, hefir heppnazt, og
hann bætist í lióp þeirra kónga,
sem komust í mát. Þótt eg liafi
klætt j>á baráttu í J>essu leikx-iti
•í ldæði trúarinnar, má ekki
skilja það svo, að eg áliti trúna
annað en einn þátt í þeirri bar,-
áttu. I átökum smælingjanna
gegn kúgaranum gætir alltaf
fyrst og fremst styrkrar trúar á
sigur réttlætisins yfir rangsleitn-
inni. Einvaldinn fellur fyrir allt
öðrum vopnum en þeim, sem
hann beitir sjálfur. Þvi hef eg
nefnt leikritið „Vopn guðanna“.
Vandaður undirbúningur.
„Eg hef ekki átt þess kost að
sjá nema eina æfingu, en eg er
sannfærður um að sýningin
mun vel takast. Lárus Pálsson
liefir staðið fyrir æfingum og
tekizt að vekja mikinn áhuga
meðal leikenda. Eg á ekki nógu
sterk orð til að lofa dugnað hans
og smekkvísi. Með lionum hefir
islenzkri leiklist bætzt ómetan-
Tegur liðsauki. Mér lízt mjög vel
á frannnistöðu einstakra leik-
enda. Einkum þykir mér von
til að Jóni Aðils muni takast vel
upp. Hann leikur aðalhlutverk-
ið, einvaldann. Þorsteinn Ö.
Stephensen og Haraldur Björns-
son virðast mér fara mjög vel
með lilutverk sín, og þá ekki síð-
ur Brynjólfur Jóliannesson, þótt
lilutverk lians sé mjög lítið —
mér liggur við að segja of litið.“
„Mér virðist ekkert hafa ver-
ið til sparað, hvorki kostnaður
né fyrirhöfn, og er mér það
gleðiefni, að allur ytri útbúnað-
ur verður sérstaklega vandað-
ur.‘
Seyss-Inpart komlnn
til Hafnar.
London i morgun UP.
Frá Sokkhólmi er símað eftir
áreiðanlegum heimildum í
Málmey, að Seyss-Inquart lands-
stjóri sé kominn til Kaupmanna-
hafnar með allt starfslið sitt frá
Amsterdam og muni ætla að
halda þar kyrru fyrir.
Koma hans hefir vákið nokk-
urn ugg meðal Dana, og er á-
litið, að fyrstu aðgerðir, sem
hann muni framkvæma, verði
hafnar gegn dönsku lögreglunni.
Þjóðverjar fá jóla-
trésskraut frá Bretum,
Brezkur útvarpsfyrirlesari
hefir sagt frá því, að Bretar noti
„silki“-pappírsræmur til þess að
trufla flugvélamiðunarstöðvar
Þjóðverja.
Papþírsræmur jxessar eru
látnar svífa til jarðar, þegar
brezkar flguvélar eru í árásum,
j>ví að þegar þær falla til jarðar
rugla þær miðunarstöðvar
Þjóðverja, sem geta ekki til-
kynnt með vissu, hvert flugvél-
ar Breta stefna.
Sænskur blaðamaður simaði
frá Berlin í gær, að þýzk börn
hefði safnað silkipappírnum,
sem var varpað til jarðar í sið-
ustu árás og ætli að nota bann
til skrauts á jólatré.
I Mið-Kína er nú barizt um
þrjár borgir skammt frá Timg-
ting-vatni, Li-skien, Ni-skien
og An-skien. Eru Kínverjar í
sókn.
Það er enginn grundvöllur til
fyrir verðlækkun á bókum
-segir formaður bóksalafélagsins.
Verðlag og verðstýfing bóka hefir verið mikið rætt hér í
bænum undanfarna daga. Mörgum hefir fundizt tími til
kominn að lækka bókaverð, öðrum hefir aftur á móti fundizt
sá grundvöllur, sem verðlagsnefnd byggði 20% verðstýfingu
sína á, hæpinn eða jafnvel alls ekki fyrir hendi.
Nú hefir Vísir snúið sér til Gunnars Einarssonar forstjóra
ísafoldarprentsmiðju h.f. sem er formaður Bóksalafélagsins,
og spurði hann um álit hans á verðstýfingu bóka.
„Við litum svo á,“ sagði
Guúnar, „að verðlagsnefnd liafi
ekki liaft heimild til að verð-
stýfa þessa vöru að ófyrirsynju
um 20% vegna J>ess, að fyrir þvi
var enginn grundvöllur.
Þegar lagt hefir verið há-
marksverð á aðrar vörur, hefir
ævinlega legið til grundvallar
fast innkaupsverð eða fram-
leiðsluverð og viðskipta-
manni ákveðin föst álagning.
Þarna hafa bækur áftur á
móti sérstöðu, J>vi enda J>ótt
sumar bækur seljist sæmilega
og aðrar vel, Jxá eru aðrar sem
lítið eða ekkert seljast. Þannig
hefir þetta verið frá öndverðu og
verður alltaf. Það er ómögulegt
að segja fvrir um sölu bókar,
J>ví sölumöguleikarnir fara oft
og einatt ekki síður eftir per-
sónuleik og dugnaði seljandans
heldur en eftir ágæti bókarinn-
; ar. Bókaútgefendur hafa J>vi |
; ævinlega orðið að fara þá leið
! að vinna tapbækurnar upp á
| sölubókunum, en með vei’ð-
j {ýfingunni er sá möguleiki að
| mestu útilokaður — og liver
á. bá að bera baggann?
Verðlagsnefndin tók það
skýrt fram við okkur bókaút-
refendur að bún liefði ekki
heimild til að skipta sér af inn-
lendri vinnu. Nú er málum
þannig liáttað, að verð bóka
liggur svo að segja eingöngu i
vinnu, viimu útgefanda, höf-
undar eða Jiýðanda, prófarkales- .
ara, prentara, bókhindara o. s.
frv. Og úr því að verksvið verð-
lagsnefndar liggur ekki i af-
skiptum af vinnulaunum, hvern-
ig getur liún þá skipt sér af
öðru en sölulaunum bóka? Og
livernig getur liún án nokkurra
eftirgrennslana verðstýft bækur
um 20% ?
Enn liafa bókaútgefendur sér-
stöðu að því leyti, að Alþingi
hefir lagt þeim á herðar útbýt-
ingu bóka- endurgjaldslaust til
ýmissa bókasafna innlendra og
erlendra og stuðla Jiannig bein-
línis að J>ví, að minna verði
keypt af bókunum.
Loks sjáum við ekki ástæðu
til að verðstýfa orðsins list
fremur en aðra list, og ekki
fremur ástæða til að verðlags-
nefnd skipti sér fremur af J>vi
sem fært er í letur, frekar en
hún færi heim til listmálara og
verðlegði málverk hans eftir
stærð og metrafjölda eða lista-
verk myndhöggvara eftir þyngd
á vog.“
70 ára
er í dag frú Anna Torfadóft.ir,
Vesturgötu 50A.