Vísir - 17.01.1944, Page 1
—
Ritstjórar:
’ Kristján Guölaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur.
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Rltstjörar
Blaðamenn Simi>
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
34. ár.
Reykjavík, mánudaginn 17. janúar 1944.
13. tbL
Stórkostleg óheimil setuliðsviðskipti
Rússar hefja sókn fyrir
norðan Hvíta-Rússland.
Rjúfa Odessa-
Leningrad-
brautina enn
einu sinni.
*D ussar tilkynntu í gær-
kveldi, að þeir hefði
hafið enn eina sókn, að
þessu sinni fyrir norðan
Hvíta-Rússland. Þjóðverj-
ar segja frá sókn Rússa á
Kjrjálaeiði, en Rússar hafa
ekki staðfest þá fregn.
Að þéssu sinni hafa Rússar
rofið varnir Þjóðverja á 15 km.
svæði og sótt fram 8 km. Hér
er þvi ekki um sókn að ræða á
líkum mælikvarða og sunnar á
vigstöðvunum, en þó eru þarna
miklir möguleikar til þess að
gera Þjóðverjum enn erfiðara
fyrir norður hjá Leningrad.
Þótt sóknin sé bæði lítil og
hafi staðið aðeins þrjá daga,
liafa Rússar samt unnið mildð
á, því, að þeir hafa rofið járn-
hrautina milli Odessa og Len-
ingrad á enn einum stað, fyrir
norðan Novo Sokolniki. í þeirri
loorg skerast tvær brautir, sú,
sem getið er að ofan og Riga-
Moskvahrautin.
Rússar hafa ekki enn tekið
Sokolniki, en borgin kemur
Þjóðverjum að litlu gagni, því
að Rússar eru komnir mjög
nærri henni úr þremur áttum.
25. km. frá Rovno.
Fyrir sunnan Pripet-mýi-arn-
ar sækja Rússar hratt suður
méð brautinni frá Sarni. Þeir
hafa þar tekið mörg þorp og
borgir, en helzt þeirra er járn-
brautarborgin Kostopol, sem er
aðeins 25 km. fyrir norðan
Rovno, næstu stóru brautar-
stöðina.
Norður af mýrunum liafa
Rússar einnig sótt alhnikið
fraxn, en þó elcki eins mikið og
fyrir sunnan þær.
Gagnsókn Þjóðverja.
Gagnáhlaup Þjóðverja i
grennd vð Bug-ána, sem liófust
urn miðja síðustu viku hafa nú
snúizt upp í öfluga gagnsókn
fyrir aústan Vinnitsa og norðan
Öuman. Rússar segjast eiga
þama í einhverjum skæðustu
hardögunum á öllum austurvíg-
stöðvunum, en þeir geti hrundið
öllum áhlaupm Þjóðverja, þótt
þeir tefli fram ógrynni liðs og
skriðdreka. í gær segjast þeir t.
d. hafa eyðilagt 136 skriðdreka
á þessum hluta vígstöðvanna.
Bandaríkjaþing hefir sam-
þykkt að verja að sinum hluta
1350 milljónum dollara til við-
reisnarstarfsins (UNRRA).
Brezkur tundurspillir liefir
sökkt þýzkum kafbáti undan
Aquilas á SA-Spáni.
Rússar enn
fjandsamlegir
Póiverjum
FP ass-fréttastofan birti í
“ nótt svar við orðsend-
ingu þeirri, sem pólska
stjórnin í London lét frá
sér fara eftir mið.ja síðustu
viku, vegna deilu þeiiTar,
sem Rússar og Pólverjar
eiga í.
. Rússar eru liinir verstu í þess-
ari orðsendingu sinni. Segir þar
fyrst, að Pólverjar nefni ekki
einu orði tillögu Rússa um Cur-
zon-landamærin og sýni það
ljóslega, að þeir sé þvi algerlega
mótfallnir, að farið sé eftir
]>eim.
Þá segja Rússar, að þótt Pól-
verjar tali um að setjast að
samningaborðinu með Rússum,
þá sé það ekki sagt til annars en
að villa heiminum sýn, því að
það sjái hver heilvita maður, að
Rússar geti ekki farið að semja
við þá stjórn, sem þeir hafa ekki
stjórnmálasamhand við.
Svar Rússa er vissulega ann-
að en húizt mun hafa verið við
meðal Breta og Bandarikja-
manna, því að þar var svar Pól-
verja talið skynsamlegt og vera
tákn þess, að ekkert væri því til
fyrirstöðu, að allar deilur yrði
jafnaðar við samningaborðið.
Nýja-Guinea.
Astral í u menn
taka 8io.
Astralíumenn hafa tekið Sío,
sem er um 80 km. fyrir sunnan
Saidor.
Milli Ástralíumannanna, sem
þarna sækja fram, og Banda-
rikjaliðsins hjá Saidor er all-
mikið japanskt lið í gildrunni og
er litlum vandkvæðum bundið
að kreppa mjög að því, úr þyí
að húið er að taka Sio.
Bandaríkjamenn á Nýja-Bret-
landi hafa tekið hæð „66“ hjá
Borgen-flóa..
Níu skip hafa laskast í loft-
árás á Rabaul.
Fylgismenn Ghandis
látnir lausir
Búast má við þvr, að margir
Indverjar verið látnir lausir úr
fangelsum landsins næstu 6
mánuði.
Stjórnin hefir ákveðið, að
pólitískir fangar skuh ekki und-
ir venjulegum kringumstæðum
sitja lengur en sex mánuði í
varðlialdi. Þó má framlengja
fangavistina með þvi að taka
mál sakborningsins aftur fyrir,
en þeir geta skotið máli sínu
til æðri dómstóla.
Næstu mánuði verða tekin
fyrir mál allra fanga, sem sett-
ir voru í varðhald i sambandi
við uppþolin, sem Gandi og
menn lians stofnuðu til 1942.
100.000 ÞJoð-
werjar felldlr
á 3 vikuBii.
íðastliðinn fimmtudag
var hin endurvakta
sókn Rússa fyrir vestari
Kiev búin að standa í þrjár
vikur, því að hún hófst aft- i
ur á aðfangadag jóla. Til-
kynntu þeir í gær um árang-
ur hennar.
Á þessum tima segjast þeír
hafa fellt um hundrað þúsimd
liermenn fyrir Þjóðverjum, en
tekið um 7000 fanga.
Hergagnatjón Þjóðverja segja
Rússar að liafi einnig verið
mjög mikið og hafi þeir eyðilagt
eða téldð herfangi meira ert
2500 skriðdreka, rúmlega 2000
fallbyssur, um 1000 sprengju- !
vörpur og 8500 vörubíla af ýms- \
um gerðum. Þar við bætist, að
þeir liafi náð ómetanlegum
hirgðum af matvælum og fatn-
aði, sem muni gera þýzku lier-
mönnunum enn erfiðara fyrir
um vörnina en áður, því að yf-
irleitt sé þeir illab búnir, jafnan
svangir og kaldir, þegar þeir sé
teknir til fanga.
Helfrosnir
í Pripet-mýrunum.
í hardögunum umhverfis
Pripet-mýrarnar liafa Þjóðverj-
ar ekki aðeins misst mikinn
fjölda manna fyrir vopnum
Rússa, lieldur hafa margir her-
manna þeirra farizt í fenjunum,
sem eru víða ótrygg yfirferðar,
jafnvel i mestu frostum. Rúss-
neskar hersveitir, sem hafa það
hlutverk að safna saman föng-
um í mýrunum, hafa fundið
mjög mörg lík þýzkra her-
inanna, sem hafa villzt út af
stígunum um þær og frosið i
hel.
Trochio-fjall
tekið í áhlaupi.
Amerískar hersVeitir tóktí á
laugardag Trochio-fjall fyrir
sunnan Cassino, með áhlaupi.
Áhlaupið á fjallið var gert í
tvennu lagi og hófst fyrst úr
vestri rélt fyrir dögun. Hinar
sveitir Bandarikjamanna sóttu
að fjallinu úr suðaustri. Þjóð-
verjar vöi-ðust mjög vasklega,
enda höfðu þeir bókstaflega
Iireytt fjalhnu í samfellt virki,
fullt af sprengjuvörpum og vél-
byssuhreiðrum. Þótt náuðsyn-
legt væri að berjast um livert
fótmál, voru Bandaríkjamenn
húnir að ná fjallinu á vald sitt
fyrir myrkur.
Franskar hersveitir nokkrum
km. norðar sóttu einnig fram
og tóku tvö þorp' og nokkra
i'jallalinda.
Loftárásum er haldið uppi á
samgönguæðar og miðstöðvar
Þjóðverja heggja megin á Italíu-
skaga.
Eisenhower í
llretlfiindi.
Eisenhower hersröfðingi er
kominn til Bretlands og hefir
tekið við starfi sínu við undir-
búning innrásarinnar á megin-
landið.
Hann liefir skýrt blaðamönnr
um frá því, að hann hafi rætt
við Churchill og Roosevelt á
leiðinni til Bretlands. Fundur
hans og ChUrehills fór fram í
Norður-Afriku, en þaðan fór
hershöfðinginn til Washington.
Ranldi hann við forsetann og
Marshall, formann foringjaráðs
Bandarikjaima.
Eaker flughershöfðingi er
kominn til Alsir, til þess að taka
við yfirstjórn flugherja banda-
manna við Miðjarðarhaf.
Almenn hervæðing
í Búlgaríu.
Stjórnin í Búlgaríu hefir fyr-
irskipað almenna hervæðingu í
landinu.
Allir varaliðsforingjar til 60
ára aldurs liafa verið kallaðir
tafarlaust i herinn og flutninga-
verkamönnum hefir verið fyrir-
skipað að snúa aftur til vinnu
sinnar að viðlagðri þungri refs-
ingu.
Allt skólaliald hefir verið lagt
niður í landinu, en læknum og
hjúkrunarstarfsfólki í Sofia hef-
ir verið hannað að fara á brott
úr borginni.
„Fallhiífarsprengja“
Þjóðverjar gera mikið úr
nýju leynivopni, sem þeir segja,
að hafi fyrst verið notað á
þriðjudaginn.
Þann dag gerðu Bandarikja-
menn miklar árásir á flugvéla-
verksmiðjur i Þýzkalandi og
misstu 60 sprengjuvélar. Leyni-
vo]>nið er fallhlífarsprengja,
sem varnarflugvélarnar slej)pa
fyrir framan sprengjuflugvél-
arnar, svo að þær fljúga á þær
og sprcngja þær.
Sænskur fréttaritari staðfest-
ir ]>etta og segir, að Þjóðverjar
ætii sér að nota þetla vopn, þeg-
ar til innrásarinnar kemur.
Fril Bombisib
Harðir bardagar eru háðir í
Bosníu, þar sem Þjóðverjar hafa
hafið sókn gegn Tito.
Margar borgir hafa ýmist
verið i höndum Titos eða Þjóð-
verja og liefir niannfall verið
mikið á háða bóga. Með Tito
berjast nú fjórar sveitir, sem
börðust áður gegn honurn, ít-
ölsk deild, ungversk, húlgörsk
og loks þýzk sveit, en í henni
eru menn úr þýzka þjóðbrot-
inu í Jugoslaviu.
Utvarpið í kvcld:
19.25 Þingfréttir. 20.00 Fréttir.
20.30 Fjrindí: Vinnuhadi berkla-
sjiiklinga (séra F/irí1-:iir Aliierts-
son, dr. theol.). 20.55 Hljómplötur:
Szigeti íeikur á fiðlu. 21.00 Um
daginn véginn (Gumiar Thorodd-
sen alþingísmaður), 21.20 tJt-
varpshljómsveitin leikur íslenzk al-
])ýðulög. — Einsöngur: Síra Garð-
ar Þorsteinsson syngur lög eftir
norsk tónskáld. 21.50 Fréttir. Dag-
skrárlok.
Þrjú fyrirtæki kaupa
áfengi og nýlendu-
vörur í stórum stíl
af 2 starfsmðnnum
N.A.A.F
Aðeins helmingur
Dagsbzúnarmanna
greiddu atkvæði,
Allsherjar tttkuæða<prexöshi
um uppsögn uinnusamninga
hefir staðið gfir úndanfarna
j þrjá daga i Dagsbrún, og lauk
I henni í gærkueldi.
Aðeins helmingur félags-
manna greiddi atkvæði, eða
1510 af 2980 skráðum félags-
mönnum, og verður að telja það
mjög litla þátttöku.
Talning fer fram í kvöld.
Churchill alheill.
■ Churchill er nú heill heilsu
aftur og hefir hann verið í
; Marrakesh, höfuðborg Marokko.
Síðastliðinn miðvikudag ræddi
Churchill við de Gaulle liers-
liöfðingja i Marrakesh. Við-
síaddir voru Beaverbrook lá-
varður, Duff Cooper, sendiherra
Breta lijá frönsku þjóðfrelsis-
nefndinni og Polowski, forsætis-
ráðherra de Gaulles.
Talið er að rætt liafi verið um,
að bandamenn fengi þjóðfrels-
isnefndinni í liendur stjórn allra
franskra landa, jafnóðum og
þau verða leyst undan Þjóðverj-
um.
Síjórnarskrár-
nefnd.
Fjórir þingmenn úr \>rem
skilnaðarflokkunum, þeir
Bjarni Benediktsson, Jónas
Jónsson, Brgnjólfur Bjarnason
og Hermann Jónasson, hafa
borið fram ó Alþingi þingsá-
Igktunartillögu í efri deild, um
skipun stjórnarskrárhefndar.
Samkvæmt tillögu þessari á-
lyktar efri deild Alþingis að
kjósa 5 manna nefnd til þess
að iliuga stjórnarskrármálið.
í greinargerðinni segir, að
eðlilegt og hagkvæmt þyki, að
cfri deild kjósi nú þegar nefnd
til iluiga stjórnarskrárfrum-
varpið, ásamt nefnd þeirri, sem
neðri deild kýs tli meðferðar
frv.
60 ára
var'Ö i gær frú Ragna E. Jóns-
son, Laugavegi 53 B, ekkja Eyj-
ólfs héitins jónSsonar rakara frá
Herru. Frú Ragna er norsk a'Ö ætt-
um, en hefir dvalið hér um 35
ára skei'Ö.
Dansskóli Rigmor Hanson
tekur til starfa á ný í þessari
viku. Á fimmtudaginn kl. 8 fyrir
þá, sem vilja læra Jitterbug, kl. 10
framhaklsnámskeiÖ fyrir þá, sem
voru fyrir jól (vals, foxtrott,
tango) ög byrjunaratriði í Rumba
og La Conga. Á mánudögum kl.
8 Rumba og La Conga. Kl. 10
vals .foxtrott og tango (fyrir byrj-
endur). Flokkar fyrir börn og ung-
linga verða á föstudögum.
' 1 ■ :V M,'', ! !(■!''>!-
I.
í.:! 4i.. t [ Ijt RjjJ i ý '
rjú verzlunarfyrirtœki
hér í bænum, Nýfeödu-
vöruverzlun Jes Zimsen,
Ingólfsbakarí, og Þorkell
Ingvarsson stórkaupmaður
hafa rekið stórfelld ólögleg
viðskipti við brezka Mrgúa-
stöð hér í bænum frá því í
ársbyrjun 1943.
Nýlenduvöruverzlun Jés Zim-
sen hefir keypt ýmsar vörnr af
einum starfsmanni Jæssarar
hirgðastöðvar fyrir túgi þús-
unda. Eru það mest allskpnar
nýlenduvörur. Þorkell Ingvars-
son stórkaupmaður hefir ásámt
einum starfsmanni sinum, Sig-
urði Þorkelssyni, keypt whisky
og gin af sama starfsmanni
þessarar birgðastöðvari, Mun
þar vera að ræða um marga
tugi af wliisky- og ginkössum.
Þá hefir Ingolf Petersen, eig-
andi Ingólfsbakarís, keypt all-
mikið af ýmsum nýlenduvörum
af öðrum starfsmanni þessar-
ar birgðastöðvar.
Birgðastöðin, sem selt hefir
þessar vörur, er NAAFI-stöð, er
rekin liefir verið hér í sambandi
við brezka setuliðið.
Verzlunarstjóri í Nýlendu-
vöruverzlun Jes Zimsen, er
Gunnar Jónsson. Hefip hann, í
viðbót við að reka jjessi við-
skipti við NAAFI-stöðina, keypt
allmikið frá erlendum skipum,
sem hér liafa verið.
Þorkell Ingvarsson liefir, á-
samt starfsmanni sinum, Sig-
urði Þorkelssyili, sell áfengi það,
er hann keypti frá birgðastöð-
inni, til ýmissa bifreiðastjóra í
bænum, er siðan hafa selt það
til annara.
Eins og fyrr segir, hófust þessi
viðskipti að mestu ley-ti í árs-
byrjun 1943, og voru i fullum
gangi fram á sumar. Brot þetta
lieyrir undir refsiákvæði tolllag-
anna, en ennþá er ekki búið áð
rannsaka málið svo tii liiitar,
að unnt sé að segja hvern dóm
þessir menn hljóta.
Hljómleikar.
Næstkomandi fimmtudag
halda Samkór Reijkjamkur og
Karlakórinn Ernir hljómleika
i Gamla Bió kl. ií.30 að kueldi.
Samkór Reykjavikur er
stærsti kór landsins og er þetta
í fyrsta skipti sem liann syngur
opinberlega. Karlakórinn Ern-
ir keinur einnig fram i fyrsta
skipti þayna.
Á söngskráhni eru 12 lög
eftir erlenda og inlenda höf-
unda. S}rngur Samkórinn átta
þeirra og Ernir fjögur.
Stjórnandi er Jóhann
Tryggvason.
Varðarfélagið
heldur fund annað kveld kl. 8,30
í Listamannaskálanum. Á dagskrá
eru lýðveldismálið og stjórnarskrá-
in. Meðal frummælenda eru Gísli
Sveinsson, Bjarni Benediktsson og
Ólafur Thors. Á eftir verða frjáls-
,ar umræður.