Vísir - 12.02.1944, Blaðsíða 1

Vísir - 12.02.1944, Blaðsíða 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofun Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritstjórar Ðlaðamenn Slmt. Auglýsingar 1660 Gjaldkerl 5 llnur Afgreiðsla 34. ár. Reykjavík, laugardaginn 12. febrúar 1944. 36. tbl. Japanski flotinn flýr Rabaul. ★ Madang einnig ylirgefin Japanir hafa nú séð sér þann kost vænstan, að flytja flota sinn á brott frá Rabaul. Patterson, aðstoðarhermála- ráðherra Bandaríkjanna skýrði blaðaxnönnum frá því í gær, að flugmenn, sem hefði fyrir skemjnstu farið í leiðangur til Rabaul, liefði veitt því eftirtekt, að þai’ var ekkert herskip, en höfnin er jafnan vön að vera fuH af allskonar herskipum og flutninagskipum. Eru það auð- vitað loftárásir bandamanna, sein þessp valda. en verið getur einnig, að þau hafi verið kölluð norðiu' til Truk, vegna tóku bandamanna á Marshall-eyjum. Flugmenn hafa einnig gefið skýrslu um það, að hækistöð Japana i Madang virðist yfirgef- in og nærri mannlaus. LtofÉisókiiin á Marshallcylam. Flugvélar Bandarikjamanna liaWa uþþi víðtækri loftsókn gegh hringrifum þeim, sem .fopaiiir líafa enn á valdi sínu í Marshalleyjum. Vaí’nir eru ekki miklar af Jaþana hálfu og gera þeir engar árásir á stöðvar Bandaríkja- mánna. Þess er ekki getið í fregnum frá eyjunum, að nein- ir verulegir flutningar fari fram til setuliðs Japana á eyjunum. Loftórás var gerð á Wake- eyju í gær og var það í annað skipti á tveim dögum. Manntjón U.S. 150.478 Manntjón Bandaríkjanna í stríðinu nemur nú 150.478 mönnum. Af þeim liafa 34.179 fallið, 30.261 verið teknir til fanga, 51.292 særzt, en 34.746 eru týndir og eru vafalaust margir þeirra fangar. Á Italiu hefir manntjónið vei'ið sem hér segir: 23.655 menn alls, og eru 3707 fallnir en um 16.000 særðir. Innbrot. Innbrot var framið í nótt í verzlun Ásgeirs Ingimars Ás- -eirssonar á Laugaveg 55. Þjófurinn hafði komizt inn í verzlunina með þeim hætti að brjóta upp krossviðarplötu i hurðo gopna smekklás að innan. Stal hann peningakassa, litlum, sem i voru 4—5 úr og álíka margir lindarpennar, ennfrem- ur um 30 kr. í skiptimynt. Þá stal hann og nokkurum vind- lingapökknm. Mannerheim vill írið. Lundúnablaðið Daily Ex- press birtir þá fregn með stórri fyrirsögn, að Manner- heim marskálkur í Finn- iandi vilji að saminn verði friður við Rússa. Segir blaðið, að Manner- heim hafi fyrir nokkuru séð það, að Þjóðverjum yrði ekki sigurs auðið og bezt mundi að semja sem fyrst. Hefir yf- irhershöfðingi Finna gengið á fund forsetans, Rytis, á laun, ásamt með fleiri for- vígismönnum landsins. Ekki er enn vitað um árangurinn af förinni. Bretar biðja Svía afisökiinar. Brezki sendiherrann í Stokk- hólmi hefir beðið sænsku stjórnina afsökunar á árás á sænskt Rauða-Kross-skip. Skip þetta var statt i höfn- inni í Chios í Eyjahafi, er brezk flugvél gerði árás á það á mánu- dag. Segja Bretar, að þannig liggi í þessu, að skipið liafi ver- ið búið að fá siglingaleyfi frá brezku stjórninni, en á síðustu stundu hafi verið ákveðið að senda það af stað 4 dögum fyrr en upphaflega var og vöruðu | flugmennirnir sig ekki á því, að það var komið á leiðarenda. Bandamenn byrja áhlaup á ný fyrir sunnan Rómaborg fí irá óiri. 11 ára strákur týnist. Ellefu ára gamlan strák vant- aði f hús eitt á Laugaveginum £rá því er hann átti að fara í skólann kl. 8 í gærmorgun og til hádegis í dag. Stráksi kom ekki í skólann i gær og um hádegið í dag var auglýst eftir honum í útvarpinu. Strákurinn er hinsvegar kom- inn fram, hafð koimð i skólann kl. 8 í morgun án þess að hafa komið heim til sín áður. Tökin hert á Pólverjam. Þjóðverjar hafa áfram að herða tökin á Pólverjum eftir morðið á Ivutschara, yfirmanni lögreglunnar í Varsjá og um- liverfi. Nú hafa þeir gefið út bann við þvi, að nokkur Pólverji aki bil, nema það sé fyrir Þjóðverja og þýzkur farþegi sé í bilnum. Þetta stafar af því, að Kutsch- ara var myrtur af Pólverjum, sem voru í bíl. Alger sigur í lqfti er sumrar. Það er veðurfai’ið, sem hefir bjargað Þjóðverjum frá því, að bíða algeran ósigur í lofti. Þetta er skoðun Spaatz, flug- liershöfðingja handamanna á Bretlandi. Hann lét hana í ljós á fyrsta fundi sínum ineð blaða- mönnum í London fyrir skemmstu. „Ef flugmenn okkar sem fljúga frá Bretlandi, ættu við eins góð veðurskilyrði að búa og þeir, sem liafa bæki- stöðvar við Miðjarðarliaf,“ sagði hann, „geri eg ekki ráð fyrir því að flugher Þjóðverja mundi geta staðizt þá lengi.“ Spaatz var þá spurður um það, hvort hann gerði ráð fyrir því, að bandamenn mundu verða búnir að brjóta flugher Þjóðverja eins rækilega á bak aftur yfir Vestur-Evrópu og við Miðjarðarhaf, er sumar kæini. jHann svaraði: „Við búumst við því.“ Er Spaatz var spurður um það, hvort Bandaríkjamenn mundu gera dagárás á Berlín, svaraði hann, að það væri eng- inn staður i Þýzkalandi, sem ekki væri hægt að ráðast á. Amerískar flugvlar réðust á Frankfurt í gær í annað sinn á viku, f jórða sinn á hálfum mán- uði. Amerískir kafbátar liafa sökkt 12 japönskum skipum undan- farna daga. Vfgstöðváp 5. hersins Rússar 50 km. frá Odessa- brautinni. Innikróaða liöinu tvíetraö í smáhópa. Rússar eiga nú aðeins 50 km. ófarna aið jámbrautinni milli Odessa og Varsjár, sem er eina járnbrautin, sem Þjóðverjar hafa enn til sinna þarfa í Ukr- ainu, án þess að verða að taka á sig krók í gegnum Rúmeníu og Ungverjaland. jHersveitir Vatutins tóku í gær borgina Shepetovka, sem er rúmlega 70 km. frá Lutsk. Segir í tilkynningunni um töku borg- arinnar, að liún liafi verið örð- ug viðfangs, því að búið liafi verið að viggirða hana mjög rammlega. Gera Rússar sér von- ir um að þeim verði auðið að rjúfa Odessa-Varsjár-brautina innan skamms. Það mundi auka mjög á flutningaörðugleika Þjóðverja, ef flutningar þeirra til S.-Ukrainu verða að fara að öllu leyti um Rúmeníu. t Umkringda liðið. Vörn umkringdu herdeild- anna í Ukrainu gelur varla stað- ið öllu lengur. I gær segjast Rússar hafa tvístrað liðinu, svo að það sé nú skipt i marga smá- hópa. Voru það Kósakkar, sem gerðu álilaup frá öllum hliðum, er |>etta gerðu. Þjóðverjar lialda áfram að gera áhlaup að sunnan, til þess að reyna að bjarga hersveitun- um, en þeiin er öllum hrundið. Flutningaflugvélar liafa einnig verið sendar með hirgðir til þeirra til skamms tíma, en mik- ill fjöldi þeirra hefir verið skot- inn niður. 50.000 fallnir. Norður hjá Luga er heldur farið að draga úr sókn Rússa, en þeir komust þó heldur nær borginm i gær. Rússar segja, að þeir liafi fellt 50.000 Þjóð- vérja á þessum liluta vigstöðv- anna einum, síðan sóknin var hafin vestur á hóginn í síðasta mánuði. Þeir segjast hafa tekið uin 4000 fanga, en landsvæðið, sem þeir hafa tekið af Þjóð- verjum, sé um 35.000 ferkíló- metrar. Kortið hér að ofan sýnir flesta þá staði, sem nú er barizt mest um á Mið-Italiu. Rétt fyrir neðan miðju til liægri sést Cassino, en Liri-Sacco-dalurinn, sem liggur á ská eftir miðri myndinni er ágæt leið til Rómaborgar. Landgöngusvæði bánda- manna sést ekki nema að litlu leyti, en vegurinn, sem er beint í suður frá Castel Gandolfo á kortinu, liggur suður til Nettuno. Ágætir afli á Hornaflrði. Fiskililaup í Berufirði. Flestir bátar á Austfjörðum, sem hafa ekki farið til Suður- nesja til róðra, stunda veiðar frá Hornafirði, símaði fréttr- ritari Vísis á Seyðisfirði í gær. Þar eru nú eins margir hátar og frekast geta komizt fyrir. Ögæftir liafa Iiamlað veiðum að undanförnu þar eystra, en á miðvikudag og fimmtudag gaf á sjó. Fóru þá allir út og veiddu ágætlega. Löðna er ekki farin að veiðast ennþá og er síld not- uð i beilu. Eru aflahórfur góð- ar, ef veður hamlar ekki veið- um. Fiskihlaup kom á Djúpavogi i vikunni, en af ýmsum ástæð- um gátu menn ckki hagnýtt sér það sem skyldi. Menn tóku eftir þvi snemma morguns, að lirannir af síld Iiöfðu hlaupið á land innst í Berufirði — en Djúpivogur er utarlega við fjörðinn — en fjörðurinn sjálfur var fullur af fiski. Svo illa vildi til, að' engir bátar vÖrií heima á Djúpavogi nema liilir trilluhátar. Var strax farið út á þeim og hlóðu þeir tvisvar eða þrisvar alvcg uppi i landsteinum. Síðan var bátur sendur frá Norðfirði til að sækja afíánn. Fékk hann ekki alveg fullfermi, en liann tekur 100 smál. Síðan þetta gerðist hefir elcki verið unnt að fara á sjó frá Djúpavogi, sakir ógæfta, en horfur eru ágætar með veiðar og nægur fiskur alls staðar, þar sem reynt hefir verið. Tveir sænskir sjómenn hafa verið dæmdir í fangelsi í Stett- in fyrir að lijálþa frönskum slríðsföngum til að strjúka þaðan. ★ Bretar hafa hækkað sendi- sveitir sínar í Urnguay, Colom- bia og Venezuela í sendisveitir af fyrstu gráðu (embassy). Skemmdarstarfsemi á herbúðum. Vikuhlaðið Dagur á Akur- eyri liermir, að allmikil hrögð liafi verið að því, að brotizt liafi verið inn i mannlausar Iierbúðir í grennd við Akur- eyri, valdið skemmdum og ýms- um hlutum stolið. Stjórn setuliðsins hefir séð sig knúða til að birta tilkynn- ingu þess efnis, að liún líti á þetta sem skennndarstarfsemi til lijálpar óvinunum og væntir þess, að íslendingar liætti að brjótast inn i og skemma her- búðirnar. Iiefir herstjórnin nú látið gera við og læsa lierhúðunum vandlega að nýju. íslenzkur stúdent flýr frá Danmörku. Samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefir fengið frá upplýs- ingastofu stúdenta hér, hefir íslenzkum stúdent tekizt að flýja frá Danmörku til Svíþjóð- ar. Stúdent þessi er Magnús Gislason frá Súlunesi. Hafði hann lokið kennaraprófi við Kennaraskólann í Reykjavík, en sigldi siðan til Danmerkur til framhaldsnáms nökkuru fyrir stríðsbyrjun. Frá því að stríðið hófst hefir Magnús stundað ýmsa vinnu, jafnframt því sem hann hefir lesið undir stúdentspróf, og lauk fyrir nokkuru prófi við danskan menntaskóla. Nú liefir símskeyti borizt hingað frá Sviþjóð þess efnis, að Magnúsi hefði tekizt að kom- ast frá Danmörku til Svíþjóðar og að hann væri núna í þann veginn að hefja norrænunám við háskólann i Stokkhólmi. Magnús er sonur Gisla Jóns- sonar, sem nú er bóndi á Innri Skeljabrekku í Borgarfjarðar- sýslu. Herskip hjálpa brezkum her- sveiturav laðamenn raeijð íiramta Engin flugveirnd sakir illviðia. B . hernura sjinuðu, pra l>að seint í ^ærkv.eklu t að amerískar og brezkaV her- sveitir hafi byrjað. öflugar ái'ásir á Þjóðverja á..land- Söugusyiðinu fvrjlr. .suiraan Róm. :ií: Veður var með vea’stat móti á Ítalíu í gær, stormur ;og- rign- ing. Segja blaðamennÍEtiir, að árásir liáfi sjaldán vériö gerðar við jafnslæm sldíyrði-- ög-. að þessu sinni. Þjóðverjár tóku hraustlega á móti og vörw háð- ir svo miklir hardagar í -mávigi, að það varð að gefa stórsKotaliði handamanna skipun um að beina skeytum sinum annað en á stöðvar þær, sem þeim var fyrst ætlað að skjóta á, til. þess að verða eklíi eigin mönnum að bana. (Herskip hafa verið hernum hjálpleg i bardögunum undan- farna daga og í gær skufu þau meðal annars á stöðvar Þjóð- verja andspænis vinstra fylk- ingararmi bandamanna, þar sem Bretar berjast. Illviðrin liafa meðal annars lmft það í för með sér, áð ekki hefir verið liægt að vinna að upþskipun úi’ flutningaskipaun handamanná óg er það til hins mésta baga, þvi að nú inunar um allt, sem hægt er að koma fram til hérmannanna; Enn ein afleiðing þéss, hvað tíð er stirð, er sú, áð flugvélar bandíamanna Verðá áð sitja lieima að méstu. Var lítið sem ekkert flogið í gær og hefii’ það verið Þjóðverjum í hag. Eögar þýzkar flugvélar gerðu vart við sig yfir vígstöðvúnum í gær. Á fundi Roosevelts forseta með blaðamönnum í gær barst talið meðal annavs að bardög- unum fyrir sunnan Róm. Sagði forsetinn, að liorfur væri i- skyggilegár. Cassino. Bandaríkjamenn halda úfram árásum sinum á stöðvar Þjóð- verja í borginni og í grfennd hennar og sagði herstjórnai'- tilkynningin frá þvi í morgun, að amerisku hersveitirnar hefði unnið lítið eitt á. 100 smál. sprengja varpað á Rabaul. A síðasta ári skutu amerískar flugvélar niður 844 þýzkar flug- vélar við Miðjarðarhaf. Banda- rikjamenn misstu 170 flugvél- ar. Flugvélar bandamanna hafa enn einu sinni gert árás á Ra- baul. Tæplega 100 smálestum sprengja var varpað niður og 20 japanskar flugvélar voru skotnar niður, er þær reyndu að verja horgina fyrir flugvél- um handamanna. Bandamenn sendu 250 flug- vélar til árásarinnar, og komu allar heim aftur nema tvær.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.