Vísir - 09.03.1944, Síða 2
V I S I R
DAGBLAÐ
Útgefandí:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján GaSlangsson,
I Hersteinn Pálssón.
Skrifstofa: FélagsprentsmiSjunni
Aftrreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá IngóRsstræti).
Símar: 16 60 (fitnm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Féalgsprentsmiðjan h.f.
Snákur í paradís.
Ekkert mun liafa glatt þjóð-
ina meira, en er samkomu-
lagi tókst að ná milli allra flokka
þings um efnislega afgreiðslu
stjórnarskrárfrumvarpsins, en
formsskilyrði uppfyllt að hinu
leytinu. Hér var um óverulegan
ágreining að ræða, sem rétt var
og skýltáð jafna. Svo er ógæfan
þó möghuð að vart hefir ágrein-
ingur þeSsi verið jafnaður fyrr
en annar rís, hálfu alvarlegri
og varhugaverðari á allan hátt,
og virðist það vera stjórnar-
slcrárnefnd, nokkurn veginn
óskipt, sem hér hefir forystuna.
Nefndin hefir sjálf lýst yfir því
að starf sitt verði hún að miða
við fyrri yfirlýsingu Alþingis
varðandi afgreiðslu og gildis-
töku stjórnarskrárinnar. Þar af
leiðandí geti hún ekki borið
fram aðrar bi’eytingar á stjórn-
skipunarlögunum en þær, sem
beint leiða af breytingu konung-
dæmis í lýðveldi. Vilji nefndin
vera sjálfri sér samkvæm og
hugsa rökrétt verður hún þá
að forðast að bera fram breyt-
ingar á afstöðu forseta og kon-
ungs, umfram það, sem óhjá-
kvæmilegt er. Konungur hefir
ávallt farið með skilyrðislaust
neitunarvald, þótt hann hafi
ekki beitt því af eðlilegum
ástæðum. Forsetinn ætti eðli
málsins samkvæmt að fara með
sama vald, og stjómarskrár-
nefnd gat í rauninni virðingar
sinnar vegna ekki borið fram
aðrar tillögur í málinu, þótt
aðrir þingmenn treystust til að
gera það.
Þelta hefir stjórnarskrár-
nefnd þó gert, og úr því svo er,
verður það þá hennar sök
að ágreiningur rís um af-
greiðslu málsins, þótt meiri
hluti þings kunni ef til vill að
fylgja henni að málum. Þjóðin
mun ekki una slíkri afgreiðslu
stjómskipunarlaganna, og bar-
átta veröur tafarlaust hafin fyr-
ir því að breyting verði gerð,
sé vald forseta rýrt á þann hátt,
sem nefndin hefir lagt til og
meiri hluti efri deildar sam-
þykkt. Fóir íslendingar munu
fagna þeim stjórnskipunarlög-
um, sem afgreidd verða á þenn-
an hátt og ekki spáir sú af-
greiðsla heldur góðu um eftir-
leikinn,
Nú hefir Alþingi endanlega
afgfreitt þetta mál og bar ekki
gæfu til að afstýra óhappatil-
tektum efri deildar, varðandi
neilunarvald hins væntanlega
forseta.,. Með þessu stofnar
það 111 fullrar sundrungar og
væntanlega harðrar baráttu á
næstu árum um stöðu forsetans
og væútanlega afstöðu hans til
Alþingis. Kann þá svo að skip-
ast málum að þjóðin ákveði fyr-
ir sitt Ieyti að gera vég forset-
ans sem mestan, — jafnvel öllu
meiri en neðri deild Alþingis
gekk inn á að gera með
samþykkt tillögu forsætisráð- í
herra varðandi meðferð neit- 1
unarvaldsins. Það er órétt og
óeðlilegt að forsetinn verði ger-
samlega áhrifalails og sviptur
öllum skilyrðum til að eiga þátt 1
í löggjöfinni, nema rétt að j
forminu til að því er skilyrðis-
lausa undirskrift hans varðar að
lagasetningu Alþingis.
Mokaíli og góðar gæftir á
Suðurnesjum og í Eyjum.
r
Ogæftir og veið-
arfæratap hjá
Akranesbátum
Engin ný lína
fengin til
landsins enn.
Gæftir hafa verið góðar
að undanförnu á verstöðv-
unum á Suðurnes.jum og á
Akranesi. Afli er einnig
m.jög mikill.
Sandgerði.
Þar liafa bátar róið stanz-
Iaust að kalla síðastliðinn hálf-
an mánuð og aflað afar vel. Alls
hafa verið farnir um 35 róðr-
ar frá Sandgerði á þessari ver-
líð og eru aflahæstu bátar
komnir með um 600 skippund,
Það er venjulegt að auka við
linuna þegar daginn fer að
lengja, en að þessu sinni eru
mikil vandkvæði á að hafa nóga
línu til að geta róið á hverjum
degi, hvað þá að geta aukið við
hana.
Keflavík.
Þar er svipuð aðstaða og i
Sandgerði. Gæftir og afli hafa
verið með bezta móti að und-
anförnu. Meðalafli mun vera þar
400 til 500 skippund á bát en
þeir aflahæstu munu vera
komnir með allt að 600 skip-
pund.
Veiðarfæraskorturinn er lík-
lega öllu tilfinnanlegri i Kefla-
vík en í Sandgerði. Sumir bátar
geta tæplega róið nema annan-
livern dag vegna línuskorts og
flestir hátar hafa frekar orðið
að rrtinnka línuna en auka hana
síðan daginn fór að lengja.
V estmannaeyjar.
Góðar gæftir og mikill afli
undanfaríð. Meðal afli á bát
mun þar vera um 400 skippund
og þar yfir.
Veiðarfæraskortur mun ékki
vera tilfinnanlegur í Eyjum.
Tekizt hefir að fá mest af þeim
netum, sem talið er að þurfi á
þessa vertið og línubátar hafa
einnig nokkurn veginn nóg veið-
arfæri.
Akranes.
Þar hafa verið talsverðar ó-
gæftir að undanförnu og yfir-
leitt á vertíðinni. 1 janúar voru
aðeins farnir 11 róðrar en 24
róðrar á vertíðinni í fyrra. Afli
mun af þessum ástæðum vera
mun minni á bát á Akranesi
en á sumum af hinum verstöðv-
unum, þar sem gæftir hafa ver-
ið góðar því næst frá byrjun ver-
tíðarinnar.
Lóðatap á Akranesbátum hef-
Fram á það hefir verið sýnt
hér í blaðinu að afstaða stjórn-
arskrórnefndar mótaðist af
fullri skammsýni og getur haft
hinar alvarlegustu afleiðingar, -
jafnvel nú ófyrirsjáanlegar með
öllu. Við lagasetningu sem al-
menna samningsgferð verður að
miða við versta, en ekki hið
bezta, — það verður að miða
við afbrigði en ekki venjuleg-
an gang mála. '
Stjórnskipunarmálið var
komið í Paradís friðarins, þann-
ig að gera mátti ráð fyrir að það
yrði afgreiit þannig að allir
mættu vel við una. Snákurinn
hefir sem fyrir komizt inn þar
sem hom?m var ekki ætlað að
vera. Hversu mikil skaðsemd
kann af honum að leiða er enn 1
óséð.
ir verið mikið alla þessa vertíð.
Er það bæði vegna óvenjulega
slæmra veðra og svo vegna þess
að hátarnir hafa orðið að sækja
á lóðafrékustu miðin. Eru rikj-
andi hrein vandræði hjá sumum
bátaeigendum af þessum sök-
um, því að ný lína fæst engin
enn.
Línuinnkaup.
Eftir lóðatapið mikla 4 flest-
um verstöðvum í febrúar, hóf
viðskip’taráð umleitanir á kaup-
um á meiri línu frá Bretlandi
og var meðal annars tálað um
j þau mál við viðskiptanefnd
Breta, sem um þær mundir sat
hér á rökstólum. Munu nefndar-
mennirnir liafa haft góð orð um
að vera þessum viðskiptum
lilynntir, þegar þeir kæmi aftur
heim til Englands, en enn þá
hefir eklcert greiðzt úr i þessum
efnum. Mikil vöntun mun vera
á þessari vöru, m. a. meðal Breta
sjálfra, en telja má víst að við-
skitaráð og aðrir aðilar, sem
fjalla um þessi mál geri sitt
j ýtrasta til að fá þessa vöru til
j landsins sem allra fyrst.
,Um ókunna stigu‘
Falieg bók um merkilegap feröir,
landkönnun og rannsóknar-
leidangra.
SNÆLANDSÚTGÁFAN er nýtt bókaútgáfufyrirtæki hér í
bænum, sem sendir í dag- frá sér stórt og glæsi-
legt rit, prýtt f jölda mynda, en það eru þrjátíu þættir um svaðil-
farir, landkönnun og rannsóknarleiðangra frá ýmsum Iöndum
heims.
(Hafa þeir Jón Eyþórsson og
Pálmi Hannesson þýtt bókina
og gefið henni heitið „Um
ókunna stigu“, En á frummál-
inu heitir hún „Explorers Club
Tales.“ Hefir „Félag landkönn-
uða“ í Bandaríkjunum safnað
þáttum þessum saman og gefið
út í hók þeirri, sem nú liggur
fyrir í íslenzkri þýðingu.
1 formála að bókinni segja
þýðendurnir: „Þættirnir eru
flestir um ferðir ungra manna,
sem leita ævintýra og mann-
rauna víðsvegar um jörðina.
Einn liefir lent á Suðurliafs-
eyju, likt og Róbinson, annar
með galdamönnum í Zúlúlandi,
þriðji þreytir úlfaldareið um
Saliara, fjórði gistir steinaldar-
fólk á Austur-Grænlandi, fimmti
leitar uppi eitursnáka í myrk-
viðum Brazilíu, sjötti verður á-
horfandi að borgarastyrjöld í
Kína, sjöundi villist inn í
kvennabúr soldánsins í Mar-
okkó, áttundi ríður norður
Sprengisand og þannig mætti
lengi telja.
Margir af höfundum þessara
þátta hafa vissulega lagt á tor-
sóttustu Ieiðir jarðarinnar, þótt
þeir ætluðu sér hvorki að finna
Drengur
óskast til sendiferða.
H.f. Leiftur,
Sími 5379. Tryggvagötu 28.
nýjar heimsálfur, ný lönd né
nýjar þjóðir.“
Að lokum segja þýðendurnir:
„Við höfum ráðizt í að snúa
þessari hók á íslenzku, af því
að okkur þótti hún skemmtileg
og við töldum hana eiga erindi
til íslenzkra lesenda.“
Bók þessi er prýdd fjölda
sérprenlaðra mynda, sem límd-
ar eru inn í hana.
fréttír
CLAPP’S-
barnalæða
í dósum, 14 tegundir.
mmes
Bíml 1884. Elapparstfg 30.
Sími
okkar er
Verzlunin Máimey
Laugavegi 47.
I.O.O.F. 5. = 125398V2
sFl.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritið Eg hef komið hér
áður, eftir Priestley kl. 8 í kvöld.
Aðgöngumiðasalan er opin frá kl.
2 í dag.
Dansskóli Rigmor Hanson.
Fyrsta æfingin fyrir fullorðna
(framhaldsnámskeið) verður á
Laugavegi 63 í kvöld. — Annað
kvöld er fyrsta æfingin fyrir börn
og unglinga í Góðtemplarahúsinu.
Hásk ó Iaf y r i rlestu r.
Hjörvarður Árnason, M.F.A.,
flytur fyrirlestur í hátíðasal háskól-
ans á morgun, föstud. 10. marz, um
Myndlist frá endurreisnartímabil-
inu til Rococo-tímabilsins. Fyrir-
lesturinn verður fluttur á íslenzku
og hefst kl. 8.30 e. h. Skuggamynd-
ir sýndar. Öllum heimill aðgangur.
Næturakstur.
Hreyfill, sími 1633.
Hjúskapur.
Gefin verða saman í hjónaband í
dag ungfrú Ólöf Steingrímsdóttir
og Sigurjón Sveinsson. Heimiii
ungu hjónanna verður á Reykhól-
um við Kleppsveg.
Handknattlciksmótið.
í gærkveldi sigraði kvenflokkur
Ármanns F.H. með 23 :8 mörkum.
í meistaraflokki karla sigruðu
Haukar Í.R. með 19:10 mörkum,
og í II. flokki karla sigraði Ármann
Val með 11 mörkum gegn 9, en
Valur sigraði í þeim flokki í fyrra.
1 kvöld keppa kvenflokar Í.R. og
Hauka, meistaraflokkar F.H. og
Fram, og 1. flokkur Ármanns og
Vals.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.20 Útvarpshljómsveitin
(Þórarinn Guðmundsson stjórnar) :
a) Austurlenzkur lagaflokkur eftir
Popy. m) Mimosa-vals eftir Jones.
c) Spanskur dans eftir Dazar. 20.50
Frá útlöndum (Björn Franzson).
21.10 Hljómplötur: Lög leikin á
cello. 21.15 Lestur íslendingsagna
(dr. Einar ÓI. Sveinsson). 21.40
Hljómplötur:' Stefán Guðmundsson
syngur. 21.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Þær raddir gerast nú með hverjum deginum háværari, er
hvetja Finna til að draga það ekki um of á langinn að semja
frið. Jafnvel í Bandaríkjunum, þar sem Finnar hafa lengst af
verið í miklum metum, er almenningsálitið tekið að snúast
mjög gegn þeim, og gætir þar af ýmsum ástæðum mikillar
gremju og óþolinmæði í garð þeirra.
Sjötta desember 1942 fögn-
uðu Finnar aldarfjórðungsaf-
mæli sjálfstæðis síns. En um
leið gerðist athurður, sem næst-
um var orðinn þess valdandi,
að Bandaríkin segðu þeim stríð
á liendur, svo seni aðrir banda-
manna. Atburðurinn, sem olli
því að Bandaríkin kvöddu
sendiherra sinn í Helsingfors
heim og liafa ekki enn sent
þangað sendiherra síðan, var
þessi:
Tadasi Sakaja, sendilierra
Japana í Helsingfors, aflienti
Risto Ryti og Gustaf Manner-
heim japanskt lieiðursmerki.
Um sama leyti var fullyrt, að
liáttsettir Finnar hefðu drukkið
skál fyrir hinni vel lieppnuðu
árás Japana á Pearl Harbor,
sem þá átti ársafmæli.
Amerikumenn hafa löngum
dáð Finna mjög og það af skilj-
anlengum ástæðum. Finnar
höfðu yfir sér myndarskap
mikinn og menningarbrag, og
voru í augum. Amerikumanna
„mestir allra smáþjóða“. Auk
þess höfðu Finnar einir allra
Evrópuþjóða staðið við skuld-
hindingar sínar gagnvart
Bandárikjunum og árlega greitt
afborganir af stríðsskuldum
fyrra ófriðar, sem þeir höfðu
raunar ekki stofnað til sjálfir
nema að litlu leyti, en höfðu
yfirtekið sem fyrrverandi hlnti
Rússaveldis.
En vinsemd Bandaríkjanna
nægði ekki til að fyrirgefa þeim,
sem hlökkuðu yfir árás Japana,
og verður þeim heldur ekki láð
það. Til þess að fá fullnægjandi
skýringu á afstöðu Finna til
Bandaríkjanna, kallaði Cordell
Hull Arthur Schönfeld, sendi-
herra U. S. í Finnlandi, á sinn
fund, og hvaða skýringar,
sem Schönfeld kann að hafa
liaft á takteinum, þá er það vist,
að liann var ekki sendur til
Finnlands aftur. Stjórn sendi-
sveitarinnar féll i lilut sendi-
ráðsritarans Roberts McClin-
tock, en auk hans vinna þar að-
eins tveir menn aðrir.
Þessi tímabæra áminning
Cordells JJull mun hafa valdið
miklum heilabrotum með Finn-
um, og liafa flestir vist lagt það
út á hinn sama veg, að Finnar
ættu ekki lengur jafn-traustri
vináttu Bandaríkjanna að fagna
og áður fyrr.
Meðan Finnland heldur áfram
þátttöku sinni í stríðinu, ógnar
það sifellt flutningaleiðum
Rússa frá norðurhöfnunum, þar
sem vitað er að miklum her-
gagnasendingum bandamanna
er jafnan skipað upp. Telja má,
að að jafnaði sé um 100 þúsund
manna þýzkur lier i Finnlandi,
auk liins þaulæfða finnska hers,
sem talið er að nemi um 300.000
manna. Auk þess hafa Þjóð-
verjar full not af flugvöllum og
liöfnum í norðurhluta landsins,
og geta á þann liátt gert flutn-
ingum bandamanna til Mur-
mansk og Arkangelsk skráveif-
ur.
Það verður því ekki séð, að
bandamenn geli til lengdar dreg-
ið það að láta til skarar skríða
gegn Finnum, og ef marka skal
sókn Rússa í Rússlandi sunnan-
verðu, þá mun þeim ekki veit-
ast það erfitt að sigra á Finn-
landsvígstöðvunum, því það
mun nú talið mála sannast, að
liin hægfara sókn þeirra haust-
ið 1939 var í blekkingarslcyni
höfð hægari og klaufalegri en
ástæður voru til.
Þó láta Finnar sér, að þvi er
virðist, mjög annt um að halda
því fram, að þeir eigi alls ekki
i stríði við bandamenn, aðra en
Rússa, að þeir telja það fjar-
stæðu eina, að þeir skuli teljast
handamenn Þjóðverja, að öðru
leyti en þvi er til stríðsins við
Rússa kemur. Þeir benda á það
sér „til málsbóta“, að þeir hafi
um eitt slcéið verið komnir í
færi við járnbrautarleið Rússa
norðan frá Hvítahafi, en liafi
skirrzt við að láta til skarar
skríða, því að þeir hafi vitað,
að bandamönnum kæmi það
mjög illa, að eyðilagðir væri
flutningar þeirra til suðurvíg-
stöðva Rússlands. Það verður að
játa, að manni koma slíkar skýr-
ingar mjög kynduglega fyrir
sjónir, en um það er ekki á-
stæða að efast, að þær eru settar
fram í fullri alvöru. Eg átti sum-
arið 1941 oft tal við finnskan
blaðamann, sem þá starfaði i
London (áður en Bretar slitu
stjórnmálasambandi við Finna).
/Hann útvarpaði til þjóðar sinn-
ar og brýndi fyrir mönnum
nauðsyn þess, að halda frið við
England og það, hversu æskilegt
það væri að Bretar sigruðu Þjóð-
verja. En þegar kallið kom,
hvarf hann aflur heim til Finn-
lands, til þess að berjast gegn
Rússum við hlið Þjóðverja.
Það sem einna mest veldur
um, hversu erfitt er að skilja af-
Tvö góð
herbergi
og eldhús til leigu 14. mai í
nýtízku liúsi fyrir stúlku
gegn heilsdagsvist.
Tilboð, merkt: „Fullorðn-
ir“ sendist afgr. Vísis fyrir
laugardagskvöld.
Tlmbnr
til sölu
Gólfborð 1J4—iy2”,
Tré 6x6—6x7.
Uppl. í síma 2972 kl. 7—8.
Stýrimann
3 háseta og mótorista
vantar á 35 tonna bát.
Uppl. í síma 1881.
2 laghentir
menn
óska eftir einhverskonar
vinnu. Ýms ákvæðisvinna
gæti komið til greina. Uppl. á
Laugavegi 18 A, efstu hæð.