Vísir - 10.03.1944, Qupperneq 3
V í s I R
gerðir bera með sér. Mjög lief-
ir og reynzt erfilt og tafsamt
að ná til allra þeirra aðilja, er
nauðsj'nlegt þótti að spyrja j
fyrir dóminum, og loks hafa |
veikindaforföll formanns
dómsins valdið all-mikilli töf
á rannsókninni.
Hjálagt fylgir sundurliðaðar
reikningur um sérstakan, út-
lagðan kostnað, í sambandi við
rannsóknina, og óskast hann
greiddur við fystu hentugleika.
Virðingarfyllst,
Árni Tryggvason
(sign.).
Hafsteinn Bergþúrsson
(sign.).
Jón Axel Pétursson
(sign.).
Til atvinnu- og samgöngumála-
ráðuneytisins.
Úðun trjáa.
Undanfarin sumur hefir trjá-
maðkui'inn gert töluvert vart við
sig hér i hænum. Verður trjá-
gróður oft mjög ljótur af þessum
orsökum. Hér leggst maðlcurinn
aðallega á birki og lirís, en einn-
ig víði, reyni, rihs og fleiri
runna.
Birkimaðkurinn, sem mun
vera algengastur þessara maðka,
er lirfa birkifiðrildisins. Og
verpa birkifiðrildin eggjum sín-
um þár sem hörlcur trjánna er
ójafn, t. d. við brumhnappana.
Þegar svo maðkarnir koma úr
egginu, skriða þeir inn í brum-
hnappinn og éta blöðin, sem
verða gö'lótt og vefjast utart
um maðkinn.
Beztu varnirnar við þessum
meinvættum er að úða trjávið-
inn i febrúar—apríl í þurru
og frostlausu veðri með varnar-
lyfjum. Um notkun þessara
varnarlyfja gildir liið sama og
um önnur eiturlyf, að gæta þarf
varúðar. En vissast er að úðun-
in sé framkvæmd af kunnáttu-
manni.
Nú ætti það að vera sameigin-
legt áhugamál hjá öllum garð-
eigendum og öðrum þeim, er
trjágróðri unna, að þessum leiða
kvilla verði útrýmt með öllu.
Nú er sérstaklega lieppilegt veð-
ur þessa dagana til að úða trjá-
viðinn. Og þeir, sem ekki hafa
nú þegar úðað í görðum sinum,
ættu að láta gera það sem fyrst.
Hallgrímskirkja og
samkeppnisteikning-
ar af Neskirkju.
Eg liefi heðið með nokkurri
eftirvæntingu eftir því, að heyra
álit manna á hinum margþráðu
samkeppnisuppdráttum, sem
lagðir hafa verið fram og verð-
laun veitt fyrir. Á eg þar við
uppdrættina af Neskirkju.
Hvað veldur þögn þeirra
manna, sem mestan hávaða
gerðu út af Hallgrímskirkju á
sínum tíma og lögðu sitt til, til
að vekja óánægju og sundur-
lyndi um þá byggingu? Maður
hefði mátt halda að þeir list-
elsku menn létu nú ekki á sér
stánda að láta álit sitt í ljósi á
þessum uppdráttum, sem hafa
fram lcomið af Neskirkju.
Á eg að trúa því, að menn hafi
orðið fyrir þeim vonhrigðum,
að þeir kjósi lieldur að þegja?
En ef svo er, væri þá úr vegi
að vekja upp að nýju Hallgríms-
kirkjumálið og farg fram á það,
að þeir, sem eiga að fjalla um
það, fari að athuga með fullri
vinsemd og skilningi, hvort
nokkuð væri á móti því, að hefj-
ast nú þegar lianda um að reisa
þann liluta byggingarinnar, sem
Hallgrimskirkjusöfnuður fór
fram á sínum tíma að reistur
j7rði. ^
Eg vona að við öll séum orðin
sammála um það, að Hallgrims-
kirkja,eftir uppdrætti prófessors
©uðjóns Samúelssonar, heri það
með sér í útliti, að hún sé kirkja,
en hvorki liljómskáli eða verk-
smiðja!!
Það verður aldrei deilt um
það, hversu margir sem keppa
um uppdrætti, hvort heldur af
kirkju með öðrum byggingum
og liversu vel sem þeir takast,
að þá er það alveg víst eins og
tveir og tveir eru fjórir, að fjöld-
inn verður aldrei sammála.
Eg vil í þessu tilfelli vekja
eftirtekt almennings á því, að
vilji /Hallgrimskirkjusafnaðar
kom svo skýrt fram með á-
skriftarlista þeim, sem sendur
var á sínum tíma til bæjarstjórn-
ar Reykjavikur um það að reisa
Hallgrímskirkju eftir þeirri
teikningu, sem þá lá fyrir af
kirkjunni, að það ætti að vera
sönnun þess, að það er ekki hægt
að réttlæta meðferð hæjar-
stjórnarinnar á þessu máli.
Eg sá mér til mikillar undrun-
ar i Morgunblaðinu nú fyrir
skömmu, að Víkverji skrifar
nokkrar linur um kirkjubygg-
ingar og komst að þeirrí niður-
stöðu, að allar kirkjur hér á
landi ætti að byggjast í sama
stíl og þá lielzt allar með sama i
útliti og dómkirkjan hér i
Reykjavik. Mér virist kenna þar
mikillar vanmáttarkenndar og
fullrar uppgjafar i kirkjubygg-
ingarmálum hér á landi.
íslendingar eru yfirleitt gefnir
fyrir framfarir og hafa á seinni
tímum gert virðingarverðar til-
raunir á mörgum sviðum at-
vinnuvega og bygginagrstils
húsa og opinherra bygginga. —
Þess vegna skýtur það nokkuð
skökku við, er kirkjurnar einar
eiga að vera útundan á þessu
sviði, einmitt þau liús, sem ís-
lenzka þjóðin ætti að standa
sameinuð um að reisa sem veg-
legust á hverjum tíma.
6. marz 1944
Guðrún Guðlaugsdóttir.
Slldil K1
á ÉidaiMlÉ.
Sundmót K.R. fer fram í
Sundhöllinni mánudaginn 13.
þ. m., og verður þar keppt í
10 sundgreinum og auk þessa
sýna hinar þekktu „hafmeyj-
ar“ K.R. undir stjórn Jóns Inga
Guðmundssonar.
Um sundsýninguna er það
að segja, að mörgum sundvin-
um eru þessar sýningar K.R.-
stúlknanna kunnar frá wndan-
förnum árum, en að þessu
sinni tekur Jón með nokkrar
nýjar æfingar, sem hér hafa
ekki sézt áður. Verður notað-
ur ljóskastari til að lýsa upp
vatnsborðið.
Á móti þessu verður m. a.
keppt um 2 bikara, annan fyr-
ir 200 m. bringusund karla og
hinn fyrir 100 m. frjálsa að-
ferð. Báðir þessir bikarar geta
unnizt til eignar á mótinu, því
að liandhafar þeirra, Sigurð-
ur Jónsson og Stefán Jónsson
hafa unnið þá tvisvar í röð áð-
ur. Má má hinsvegar búast við
harðri keppni i 100 m. sund-
inu, því að Stefán á liættuleg-
an keppinaut þar sem er Rafn
Sigurvinsson. En Rafn vann
Hraðsundsbikarinn á Ægis-
mótinu, nú fyrir skemmstu.
Auk þessa verður keppt í 300
m. sundi (frjáls aðferð). Þar
keppa m. a. Sigurjón Guðjóns-
son, er vann. 200 metrana á
Ægismótinu, Óskar .Tensen og
Guðmundur Jónsson, og verð-
ur vafalaust harður bardagi
þeirra á milli.
f 50 m. baksundi karla kepp-
ir Guðmundur Ingólfsson við
Pétur Jónsson, Guðmund Þór-
arinsson o. fl.
f kvennasundi verður keppt
i 100 m. bringusundi, og þar
vænlanlega hörð keppni milli
Unnar Ágústsdóttur og Kristín-
ar Eiriksdóttur, sem báðar eru
2 unglingar
16—18 ára, geta nú þegar komist að sem veitinga-
þjónsnemar að Hótel Borg.
Uppl. hjá yfirþjóninum.
Geymslupláss,
rúmgott, þurrt og rakalaust,
óskast nú þegar. A, v. á.
f
Relief-
taumálning
og penslar.
Peiiisilliiiii
Laugavegi 4.
Sími
okkar er
3245
Vezzlunin Málmey
Laugavegi 47.
GARÐASTR.2 SÍMI 1899 V
Lærið að
spila bridge. Lesið Bridge-
bókina.
l.O.O.F. 1. =125310872 ss9 III
Happdrættið
birtist ekki í bta&inu í dag, bœði
sakir rúmleysis og til að flýta út-
komu blaðsins. j
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.25 ÍTtvarpssagan: „Bör
Börsson" eftir Johan Falkberget,
X (Helgi Hjörvar). 21.00 Útvarps-
tríóið: Klarínett-tríó í B-dúr eftir
Beethoven (klarinett: Vilhjálmur
Guðjónsson; selló: Þórhallur Árna-
son; pianó: Fritz Weisshappel).
ingar og svör um íslenzkt mál
(Björn Sigfússon). 21.55 Fréttir.
22.00 Symfóníutónleikar (plötur) :
Symfónía nr. 5 eftir Tschaikowsky.
23.00 Dagskrárlok.
21.15 Orgelleikur í Dómkirkjunni
(Páll ísólfsson). 21.35 Spurn-
Verzlunar-
Maður, sem hefir góð verzl-
unarsambönd, verzlunar-
reynslu og. ágæta aðstöðu til
að ná í vörur, vill komast í
samband við mann, sem hefir
húsnæði á góðum verzlunar-
stað í bænum. Algerðri þag-
mælsku heitið. — Tilboð,
merkt: „Verzlunarfélagi —
826“ sendist í Póstliólf 501
fyrir mánudagskvöld.
oi! i ja »jnpTTrra
»Súdinu
fer fyrrihluta næstu viku til
ísafjarðar með viðkomu á
Sandi, Ólafsvík, Stykkis-
hólmi, Flatejr, Patreksfirði,
Tálknafirði, Bíldudal, Þing-
eyri, Flateyri, Súgandafirði,
Isafirði, þaðan beint til
Reykjavíkur og verður skip-
ið þá hlaðið til Norðurlands-
hafna vestan Akureyrar. —
Flutningi til Vestfjarðahafna
veitt móttaka árdegis á morg-
un.
Pantaðir farseðlar óskast
sóttir á mánudag.
„Esja”
Burtferð kl. 10 í kvöld.
afbragðs sundkonur.
Þá er það nýmæli i sund-
keppni hér, að efnt verður til
4x50 111. bringuboðsund kvenna
og senda K.R. og Ægir sína sveit-
ina hvort.
Drengajsundin verða þrjú, þ.
e. 50 m. bringusund, 50 m. bak-
sund og 50 m. skriðsund. Koma
þarna ýmsir mjög efnilegir
sundmenn fram.
Loks verður 3ja aðferða boð-
sund, þannig að hver keppandi
syndir 150 metra, baksund,
bringusund og skriðsund, en
4 menn skipa hverja sveit. Er
þetta algert nýmæli í sund-
íþróttinni hér, og munu taka
þátt í þessu sundi 3 sveitir, 2
frá K.R. og 1 frá Ármanni.
Sundsýning KR.-stúlknanna
verður lokaþáttur mótsins, og
verður þetta einstakt tækifæri
til að sjá bæði spennandi
keppni og ævintýralegar sund-
listir.
I er miðstöð verðbréfavið-
I skiptanna. — Sími 1710.
hreinar og góðar
kaupir kmta
verði
Félaösprentsmiðjan h.f.
Rennilásar
Grettisgötu 57.
Garðeigendur
Ef þér þurfið að láta úða eða grisja trjáviðinn í gÖrðum yð-
ar, þá talið við mig í síma 5268, frá kl. 5—7.
Sigurður Elíasson, garðyrkjumaður, Grettisgötu 68. —
Télismiðlur
athngtð
Sendið okkijr fyrir mánaðamótin pantanir yðar á
Stálöxlum, Koparöxlum, Koparfóðringum, Plötum,
Vinklum, Legumálmum, Boltum, Rennistáli og öðm
efni er þér þarfnist með á þessu ári.
Útvegum Specialstál, Bora, Fræsara, Snitttappa og
fleira. — Ennfremur Rennibekki og ýmiskonar áíiöld
með stuttum fyrirvara.
Efni oft fyrirliggjandi og afgreitt frá vörugeymsln
vorri í Reykjavík.
Hagnýtið yður sérþekkingu vora og reynslu.
GÍSLI HALLDÓRSSON P
VERKFRÆÐINGAR &. VÉLASALAR
V e^fóður
nýkomið
Veggfóðursverzlun
Victors Helgasonar
Hverfisgötu 37
Sími 5949
Kraf tbrauð
eru ávalli til eins og að undanförnu á eftirtöldum stöðum:
Laugarnesveg 50 (Kirkjubergi), — Njálsgötu 40,
— Vesturgötu 27, — Blómvallagötu 10, — Bræðra-
borgarstíg 16 og Bræðraborgarstíg 29 (Jafet). —
H.f. Jóii Símonarsoift
Bræðraborgarstíg 16.
Shilli 11
vantar að Hótel Borg.
Uppl, á skrifstofunnL
t
Þeir áskrifendur Vísis er kunna að verða
fyrir vanskilum á blaðinu, eru vinsamlega
beðnir að snúa sér strax til afgreiðslu
blaðsins í síma 1660, eða kl. 10—12 fyrir há-
degi næsta dag..
' ■ !
VeggrfóðHr
fjölbreytt úrval.
ppfmiNN"