Vísir - 24.03.1944, Blaðsíða 1

Vísir - 24.03.1944, Blaðsíða 1
'RItstjórar: | Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiöjan (3. hæð) Ritstjórar Blaðamenn Slmii Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 ilnur Afgreiðsla 34. ár. Reykjavík, föstudaginn 24. marz 1944. 69. tbl. Fáeinir af mörgum Fyrir skemmstu var sagt frá nokkurra daga viðureign enskra smáherskipa við kafbáta Þjóðverja á Atlantshafi. — Myndin sýnir nokkra kafbátsmenn, sem var bjargað, bíða þess að verða leiddir á land í Englandi og sendir í fangabúðir. Sigurvissa Jap- ana dvínar. „Sigurvegarinn frá Bou- gainville£C settur af. Japanir virðast ekki lengur eins örujggir um sigurinn og áður, ef dæma má af tiltekt- um útbreiðslumálaráðuneytis- ins í Tokyo, segir New York Times. Ekki alls fyrir löngu tilkynnti japanska útvarpið, að búið væri að sökkva nær öllum ameríska flotanum og her Bandaríkjanna á Kyrrahafi hefði verið gersigr- aður, en rétt á eftir kannaðist útvarpið við, að japanski flot- inn hefði ekki alveg töglin og hagldirnar á Kyrrahafi. Þetta átti að hafa þrennskon- ar tilgang: Fyrst og fremst að stappa stálinu í þá, sem heima sitja, í öðru lagi að reyna að sanna japönsku hersveitunum, sem eru svo. illa staddar fyrir norðan Ástralíu, að þær þurfi ekki að örvænta og loks að hvetja heimaþjóðina til nýrra átaka i stríðsframleiðslunni. Margskonar ráðstafanir hafa verið gerðar heima fyrir, sem sanna, að þar þykir þörf mjög aukinna afkasta, til þess að halda í liorfinu. Allt ber þetta að sama brunni, að forvígis- menn Japana eru farnir að sjá það, ^ð sigurinn er að mörgu leyti fjær en nokkuru sinni. Japanir hafa líka gert marg- ar og miklar breytingar á stjórn áróðurstækja sinna. Er það gert annaðhvort eítir að einhverjum hefir orðið á mikið glappaskot, eða eitthvert þjóðráð, sem fundið liefir verið til þess að vinna gegn áhrifum af óförum, hefir haft gagnstæð áhrif. Mað- ur sá, sem nú stjórnar útvarps- áróðri heitir Iguchi, og var ráðunautur Nomura, sem var síðasti sendiherra Japana i Bandarikjunum. Hann tók við af manni, sem hét IJori og gat sér mest orð fyrir að vinna „sig- urinn við Bougainville“ — í útvarpinu. Var það, er Japanir „sökktu" 20 ameriskum flug- stöðvarskipum við Bougain- ville, fáeinum dögum eftir að tilkynnt var i Washington, að ameríski flotinn ætti um 40 slík skip. Annars eru Japanir búnir að sökkva öllum amer- íska flotanum fjórum eða fimm sinnum, siðan striðið liófst og meðal annars sökktu þeir orustuskipinu Wisconsin áður en þvi var hleypt af stokk- unum. 3-4 millj. húsa á 10 árum, Heitar umræður urðu í brezka þinginu í gær um húsabyggmg- ar fyrir þjóðina eftir stríðið. TJmræðumar fóru fram i efri málsstofunni og skýrði Beaver- brook ftá því fyrir hönd stjórn- arinnar, að hún hefði undirbúið ráða^erðir um smíði allt að 4 milljónir húsa fyrstu 10 árin eftir striðið, en fyrstu tvð árin yrði þó vart hægt að koma upp fjeiri húsum en 400 þúsundum. Þingmenn lögðu mikla á- lierzlu á það, að öll hús, sem stjórnin reisti yrði vönduð en ekki neinir lijallar, sem gæfi að- eins afdrep, ef veður væri ekki of vond. Hermennirnir, sem væri búnir að berjast hraust- lega árum saman ætti kröfu til góðra húsa, þegar þeir kæmi heim að stríðinu loknu. Rússar hefja nýja sókn. Efu ÍOO km. frá Ungverjalandi. Rússar hófu á mánudag sókn milli Tarnopol og Proskurov, rufu varnir Þjóverja á stóru svæði og sóttu fram allt að 55 km. Meðal 200 bæja, sem Rússar tóku þessa þrjá daga, var járn- brautarstöð, sem heitir Kopul- tinski, sem er um 60 km. fyrir suðaustan Tarnopol og er braut- in milli þessara tveggja borga öll á valdi Rússa. Þar sem Rúss- ar liafa sótt lengst fram þarna eru þeir í um það bil 100 km. fjarlægð frá Ungverjalandi. Rússar bafa enn nálgazt Cer- nauti og tekið nokkrar borgir á þeirri leið. Eiga þeir ófarna um 40 km. leið að landamærum þeim, sem sett voru 1940, þegar Rúmenar voru neyddir til að láta Bessarabíu af bendi. Austur á milli Bug og Dnjestr hafa Rússar enn tekið 30 bæi, Fyrir austan Bug berjast Rússar Fregnir frá Ankara í morg- un herma, að Þjóðverjar sé farnir að taka Völdin í Rúmeníu. Segir i fregnum þessum, að Antonescu-bræðurnir hafi fallizt á allar kröfur jHitlers um að menn lians taki raunverulega við stjórnartaumunum í Rúm- eníu, þótt stjórnin verði við völd að nafninu til. Meðan þeir voru staddir i aðalbækistððv- um Hitlers gaf hann skipun um að 50.000 manna her skyldi taka i sínar hendur stjórn járnbraut- anna, símakerfisins og fleira. Rálgarar. Fregnir liafa borizt um það frá lilutlausum löndum, að Kyr- il, ríkisstjóri i Búlgaríu, meðan Símon konungur er ófullveðja, og Filoff forsætisráðherra stjórnarinnar liafi fengið skijyun um að ganga á fund Hitlers. Enginn vafi er á því, að þeir Steypiárás á Rabaul, Flugher bandamanna fyrir norðan Ástralíu hefir enn ver- ið aðgerðasamur síðasta sólar- hringinn. Ráðizt hefir verið á smáskip, sem lágu á höfninni i Vivak og munu liafa komizt þangað á laun með ströndum fram. Var nokkurum þessara skipa sökkt, Þá hafa steypiflugvélar ráðizt á flugvelli hjá Rabaul og gert þar nokkurn usla. Flugvélar frá Marshall-eyjum . hafa ráðizt á Ponape og Kus- aie. Víðavangshlaup Í.R. fer fram sumardaginn fyrsta. Keppt verður í þriggja manna sveitum. Keppendur gefi sig fram viÖ stjórn Í.R. xo dögum fyrir hlaupið. í úthverfum Vosnesenslt. Eru þeir þar 110 km. fyrir norðaust- an Odessa. muni beygja sig fyrir kröfum bans. Ungverjar. Margir ráðherrarnir i stjórn Kallays hafa verið handteknir og er liann sagður í stofufang- elsi, en svissneslc fregn segir, að liann lxafi komið þeim boð- um út til almennings, að hann neiti að viðurkenna lxina nýju stjórn og telji sig fori&etisráð- heri'a áfram. Nokkurir ráðherrar Kallays eru í nýju stjróninni. Ýmsir áhrifamenn aðrir hafa verið handteknir, jxeirra á me- al ritstjóri eins stærsta blaðsins í Budapest, Silinski, foi-maður bændaflokksins og Polay for- ingi sosialdemokrata. Sendisveit Ungvei'ja i Genf liefir neitað að viðurkenna nýju stjórnina, en hermálafulltrúinn ) í Stokkhólmi hefir viðuikennt hana, þólt sendiherrann þar liafi ekki gert það. Þýzkur her tekur járn- brautirnar í Rúmeniu. Búlgarar ciga að hiita Ilitlcr á mánodag’. Miklar handtökur i Ungverjalandi. 326 verksmiðjur eyðilagðar eða stórskemmdar í Berlin. Mestu árásir á solarhring. 3000 smál' varpað á Frankfurt á 30 mín. Þýzka útvarpið birtir aðvaranir 1 sífellu. Kveri ÉlaupiS rekur sioafl f Csssiuo. 24.000 smál. varpað á Berlin á 3 mánuðum. Skriðdrekaframleiðslan nærri stöðvuð um tíma. Tr 24 klukkustunduui, sem liðu frá hádegi á miðvikudag til hádegis i gær, gerðu amerískar og brezkar flugvélar hörðustu loftsóknarhríð gegn Þýzka- landi, sem um getur í styr j- aldarsögunni. Á þessu tímabili fóru næst- um 4000 flugvélar í árásir á Þýzkaland og vörpuðu þær til jai’ðar um það bil 6000 smálest- um sprengja. Helmingi þessa sprengju- magns var varpað á Frankfurt, en þó stóð árásin á þá borg að- eins hálfa klukkustund. Hefir það aldi-ei koniið fyrir áður, að tekizt hafi að varpa niður 100 smálestum sjxrengja á mínútu hverri i loftárás. Stafar þetta af því, hvað burðarmágn flugvél- anna hefir verið stóraukið upp á siðkastið. Ái'ásin á Frankfurt stóð frá kl. 8,45—9,15 (ísl. tími) Qg þeg- ar Moskitovélar fóru til borgar- innar liálfri stundu síðar, sáust eldarnir í 400 km. fjarlægð. Klukkan 10 i gærmorgun fóru njósnaflugvélar Breia á vett- vang og náði reykmökkurinn af eldunum, sem brunnu enn, upp i fimm ldlómetra hæð. 1 í, Árásirnar í gær. Um fimm hundruð amerísk- ar sprengjuvélar fóru i gær í árásir á fimm staði í Þýzka- landi. Með þeim fóru 750 or- ustuvélar. Einkum var ráðizt á Messerschmitt-verksmiðjur i Braunschweig og hina miklu járnbraularstöð í Hamm, senx er ein stærsta járnbrautaskipti- stöð á öllu meginlandi Evrópu. Bandarikjamenn rnisstu 27 sprengjuvélar og 6 orustuvélar, en þær skutu niöur 20 þýzkan orustuvélar. I gær gerðu auk þess 400 Maraudei'-vélar árásir á ýmsa staði í Belgiu og Norður-Frakk- landi og brezkar flugvélar gerðu lika árásir á N.-Fx-akkland. Ný póst- og síma- bygging á Akureyri. Byggingu póst- og símahúss á Akureyri er nú svo langt komið, að llkur eru til að hún komist undir þaik í sumar. Búið er að sfceypa bakálínu liúissins i fnllri liæð, en ekki lokið að steypa framhliðina enn- þá. Hafizt er þegar harida um innréttingu neðstu hæðarinaar, og er ætlað að þar verði al- mennings afgreiðsla sírnans og póststöð. Þegar innréttingunni er lokið verður póstur og sími fluttur þangað, og er húizl við að liægt verði að starfrækja póststofu þar þegar á þessu ári. Símamiálastjórnin hyggst að koma fyrir sjálfvirkri símstöð í Enn var barizt af kappi í Cassino í gær og gengu látlaus áhlaup á báða bóga. Leikurinn liefir undanfarið boi'izt inn í suðui'hverfi boi'gar- innar. Þjóðvei'jar hafa aðeins um 15 liús á valdi sínu, en þau eru svo rammlega víggirt, að einsdæmi mun vera. Hafa þeir meðal annars á valdi sinu Continental-gistihúsið, en það er stærsta liúsið í borginni. Hafa þeir komið fyrir skriðdrekum í gistihúsinu og fleii'i húsum. Völundarhús undir Cassino. Það, sem veldur bandamönn- um einna mestum erfiðleikum i bardögunum um Cassino, auk þess að Þjóðverjar ex-u hæri'a settir í bænum, er hið full- komna net jarðganga, sem þeir hafa grafið þar. Segir einn blaðamanna bandainanna, að fullkomið völundarliús sé und- ir bænum. Næstum öll lxúsin eru tengd innbyrðis með jarð- göngunx, svo að Þjóðverjum skýtur ujxp á ólíklegustu stöð- xuu. Gerir það bandamönnum enn erfiðai-a fyrir en ella. Handknattleiksmót hefst á morgun, Á morgun kl. 4 hefst hand- knattleiksmót Sambands bind- indisfélaga í skólum í íþrótta- húsi Jóns Þorsteinssonar. 9 flokkar keppa frá 5 skólum, eða fi’á Verzlunarskólanum, Háskólanum, Gagnfi'æðaskóla Reykvikinga, Menntaskólanum og Samvinnuskólanum. Keppt vei'ður í fjórum flokk- um, a, b, c og kvennaflokki, en Vei'zlunarskólinn einn sendir kvennaflokk og mun því vinna verðlaunagi'ip þann sem um er , keppt án keppni að þessu sinni. * Samvinnuskólinn vann þann grip í fyrra. I a-flokki keppa nú einhverjir sterkustu flokkar, sem nokkurn tíma hafa keppt á liandknatt- leiksmóti S. B. S. en það eru flokkar Háskólans og Sam- vinnuskólans. Verður þar keppt um nýjan verðlaunagrip, þar eð Menntaskólinn vann í fyrra íil eignar þann grip sein þá var keppt um. (Handhafi b-flokks verðlaun- anna er Vei’zlunarskólinn, en c-flokks verðlaunanna Gagn- byggingunni, enda er húsið lxyggt með það fyrir augum. En áður þarf að konxa á gagngerðri breytingu núverandi simakerfis og leggja línur allar neðanjarð- ar. En i þær framkvæmdir verð- ur ekki unnt að ráðast, fyrr en ófriðnum lýkur og rýmkast um möguleika til efnisútvegunar. T,vi'stu þrjá mánuði * „orustunnar um Ber- lin“ voru 326 verksmiðjúr í borginni annað hvort jafnaðar við jörðu éða stór- skemmdar af völdum sprengja Breta. Flugmálaráðuneytið brezka gaf út tilkynningu um þetta í gær, er rannsókn hafði farið fram á ljósmyndum, sem teknar lxöfðu verið af skemmdum þeim er urðu í Berlín á timabilinu frá 18. nóvembei- s.l. ár til 15. febr- úar sl. Á þeixri tima var 24.000 smál. sprengja vai'pað á Berlin. 1 tilkynningunni segir einnig, að í Berlín sé 8 verlcsmiðjur, sem Þjóðverjar geti ekki án ver- ið en þær eru alls uin 40 í öllu landinu. Fjórar þessará verk- smiðja voru eyðilagðar. Auk þess eru í Berlin 24 verksmiðj- ur, sem eru í næst-mikilvægasta flokki. Tólf þeirra hafa verið eyðilagðar en fjórar skemmdar. Stærsta verksmiðjan mjög illa útleikin. Meðal verksmiðja þeirra, sem Bretar réðust á einna fyrst var Rheinmetall-Borsig-verksmiðj- an, en liún lxefir orðið að koma i stað Kruppsverksmiðjanna að miklu íeyti. I lok desember hafði þessi verksmiðja, sem er liin stærsta í Þýzkalandi, fengið slika útreið, að talið var að ski'iðdi'ekaframleiðsla þar væri liætt að mestu. Óvíst er, hversu liægt lxefir verið að gera við verksmiðjuna siðan. Eyðilegging þessarar verk- smiðju, segir í tilkynningu flug- málai'áðuneytisins i gær, á vafa- laust sinn þátt í því, lxvað Þjóð- verjum gengur iía að sjá ller sínum fyrir skriðdrekum. Opinber fyrirtæki og byggingar. En það eru ekki aðeins verk- smiðjur hergagnaiðnaðarins, sem liafa orðið fyrir sprengjum Breta. Fjölmörg nauðsyrileg fyrirtæld borgariunar hafá eýði- lagzt eða stórskemmzt. Méðal þeirra eru 7 gasstöðvar, 9 vatns- veitustöðvar, sex pósthús, níu sporvagnamiðsföðvar o. fl. Auk þess hefir 21 stjói-narbygging oi'ðið fyrir margvislegum skemmdum og er Gestapo-bygg- ingin meðal Jteírrá, se>n hafa gereyðilagzt. Eyðilegging þessara bygginga, segir tilkynning Breta að k)k- um, hefir leitt til þess, að mikils glundi'oða er farið að gæta í stjórn Þýzkahmds oig raunar alli'ar Evróþu. Gjöfum til bazars Kvenfélags frjálslynda safnaðarins er veítt móttaka frá kl. i á morgun hjá Ingibjörgu Sigur'B- ardóttur, Kirkjustræti 6 og \ Thör- valdsensstræti 2, gengi'Ö inn frá Vallarstræti.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.