Vísir - 24.03.1944, Blaðsíða 2

Vísir - 24.03.1944, Blaðsíða 2
VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandí: BLAÐAÚTGÁFAN YÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla Hverfisgötu 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: 16 60 (fimm línur). Verð kr. 4,00 á mánuði. Lausasala 35 aurar. Féalgsprentsmiðjan h.f. Tvo báta vantar úr róðri. Vanefni — vanmat. TT iðurkenna verður að flestar framkvæmdir hér á landi, þótt stórar séu á okkar mæli- kvarða, eru af vanefnum gerð- ar og ekki hvað sízt þær, sem stærstar eru. Þó virðist einnig, sem oft séu aurarnir sparaðir, en krónunni kastað. Það borgar sig yfirleitt ekki að kaupa ó- dýrt „skítti“, þegar unnt er að fá gæðavöru fyrir tiltölulega litlu hærra verð. Slikt verður að litlu gagni og vafasamri ánægju er frá liður. Gildir þetta jafnt um viðskipti einstaklinga og opinberra aðila. Flest röskun á lífsþægindum ahnennings, sem við höfum daglega reynslu fyr- ir og dæmin fyrir augum, sprettur af þvi einu, að ekki hefir í upphafi verið vandað svo til opinherra framkvæmda sem slcyldi, — ódýrt og ef til vill lélegt efni keypt og verkinu áð öðru leyti liagað á þann veg að framkvæmd þess yrði sem einföidust og ódýrust, en kæmi þó að sem skjótustum notum. Munu fá opinher fyrirtæki standast fullan samanburð við sambærileg fyrirtæki í öðrum löndum, sem vandað hefir ver- ið til og ætluð til frambúðar í almennings þágu. Einnig verður að viðurkenna að við eigum yfirleitt langt í land til þess að lifa fullkomnu menningarlífi, þótt skrimt sé og allt komist af. Gatnagerð og vega er ófullkomin, gistihús sárafá frambærileg og lítið um þau lífsþægindi, sem með öðr- um auðugri þjóðum tiðkast. Þótt við sjáum þetta og viður- kennum, veit það á stærri fram- kvæmdir og meiri, en ber vott um vanmat á því, sem gert hef- ir verið. Róm var ekki byggð á einum degi og fjárliagslega rú- in og örsnauð þjóð byggir held- ur ekki upp heilbrigt fjárhags- Iíf og athafnalif á skammri stundu. Allt sækir seigt og fast í horfið, — það vinnst á og tap- ast eins og gengur, þar til þjóð- lífið allt er fallið í fast far og sækir fram til öruggrar þróun- ar og framfara. Með engri þjóð mun stórfelldari bylting hafa gerzt á skemmri tíma, en ís- lenzku þjóðinni, en allt sem á- unnizt hefir ber að meta að verðleikum. Við megum hins- vegar ekki vera ánægð með, eða yfirleitt sætta okkur við ósóm- ann, allra sízt ef unnt er að út- rýma honum án verulegrar fyr- irhafnar eða kostnaðar, en svo er um margt það, sem nú fer afíaga. Þjóðin var ekki góðu völ og val hénnar í ýmsum greinum fer eftir því. Heimskt er heiinaalið barn og margir þéir, sem fyrir framkvæmdum og hálfopinberum rekstri standa, telja það gott og full- gilt, sem engir sætta sig við, er meix-a hafa séð og betri aðbún- aði hafa kynst. Menn ræða um að ísland muni verða ferðamannaland, og kann svo að reynast, en það verða engir aultvisar, sem sækja landið heim, hafi það ekki upp á betri aðbúð að bjóða en nú er um að ræða. Þeir, sem eftir .þægindum óska koma hingað ekki, en hinir sem vilja þreyta kraftana við óblíða nátt- Stórk ostlegt veidar- færatjén í verstödv- unum. Enn meizi hætta en áður á vertiðarstöðvun. í fyrirnótt hrepptu fiskibátar á Suðurnesjum afar vont veður á miðunum. Olli veður þetta til- - finnanlegu veiðarfærtjóni og sumir bátarnir lcomu mjög seint að landi. Afli var þó fremur góður á flestum bátunum. Einn bát, Ársæl Sigurðsson frá Sandgerði vantaði enn kl. 9.30. Ársæll er 22 smálestir að stærð. Ennfremur tjáði Slysa- varnafélagið blaðinu, að vélbát- inn Njáls, GK. 123, 36 smálestir að stærð, vantaði frá Keflavik. Einn bát kom Sæhjörg með í nótt. Var það Aldan m.b. 77. Vél hans bilaði í gærmorgun, þegar hann var að draga lín- una. Náði liann aðeins 7 hjóð- um af 30. Að öðru leyti var veiðarfæratap á Akranesbátum fremur litið. Veiðarfæratapið á Sandgerðis- og Keflavikurbátum var hins- vegar tilfinnanlegt. Sandgerðis- hátar töpuðu frá tveimur upp i 15 bjóð eða um helming af lin- unni, sumir þeirra. Aðrir náðu mestu eða öllu af línunni en þeir voru fáir sem voru svo heppnir. Þetta nýja veiðarfæratjón á Sandgerðisbátunum er afar til- finnanlegt en ekki er þó talið að það muni orsaka beina stövun lijá neinum bátanna. Veiðar- færagerðin hefir undanfarið get- að lilaupið eitthvað undir bagga með Sandgerðisbátum með út- vegun veiðarfæra og veitt þeim þannig talsvert lið í þessu mikla vandamáli. Frá Keflavík voru allir bátar á sjó í gær, eða því sem næst. Voru þeir rétt að byrja að draga þegar óveðrið skall á. Þeir töp- uðu sumir hverjir að minnsta kosti, meiri línu en Sandgerðis- bátarnir, eða frá 6 og upp í 18 bjóðum. Er það tap afar tilfinn- anlegt. Er jafnvel álitið að þetta tjón orsaki beina stöðvun á sumum bátunum. Aðrir munu verða að róa með mikið af gam- alli línu, sem búið er að leggja til hliðar og talin var svo, að segja ónothæf og má gera ráð fyrir, að ekki verði mikið lið að þeim veiðarfærum, þótt þau geti kannske dugað eitthvað í bili. úru og lítil lífsþægindi geta átt hér vísan samastað. íslendingar sætta sig vel við margt það, sem aðrir una ekki. Skal ekki um það rætt hvort matið sé réttara eða heilbrigðara, en við verð- um að horfast í augu við stað- reyndirnar og taka lífið eins og það er. Þjóðin þarf að læra miklu meira á flestum sviðum, en hún hefir ennþá gert, og henni mun reynast miklu auð- veldara að bæta við það, sem fengizt hefir, en að byggja í upp- hafi frá grunni, svo sem gert hefir verið. Það væri vanþakk- læti við fortíðina og vanmat á afrekum síðustu kynslóða, ef þeirra verk væru að engu þökk- uð, en svo er guði fyrir að þakka, að við getum bætt þar við, sem þær hafa frá horfið og er það ekki einvörðungu rétt, heldur beinlínis skylt. Kyrrstaða á ekki að verða hlut- skipti þeirrar þjóðar, sem þarf að byggja upp land sitt, og reynslan mun kenna henni að velja og hafna. Islandi er ekk- ert of gott, en núlifandi kynslóð- ir eg þær, sem á eftir henni feta, eiga að velja Iandi sínu hið bezta og annað ekki. Það eitt sæmir sannri menningu. Bálurinn Helgi Hávarðarson féklc á sig holskeflu, er hann var að draga línuna. Brotnaði ölduslokkurinn talsvert mikið og tveir menn meiddust nokkuð. Tækin, sem notuð eru til leggja línunni, slcemmdust einnig nokkuð. Það má fullyrða, að þetta nýja veiðarfæratjón veldur miklum erfiðleikum á vertíðinni á Suðurnesjum, þvi að áður var veiðarfæraskorturinn tilfinnan- legur og illa á hann bætandi. Verður þörfin fyrir innflutning á nýjum veiðarfærum því meiri en nokkru sinni fyrr. Bæ)a fréttír Útvarpiðí í kvöid. Kl. 20,25 Útvarpssagan: „Bör Börsson“ eftir Johan Falkberget, 12 (Helgi Hjörva). 21,00 Strok- kvartett útvarpsins: Kvartett nr. 16, Es-dúr, eftir Mozart. 21,15 Erindi bænda- og húsmæðraviku Búnaðar- félagsins: Innigarðar (Unnsteinn Ólafsson skólastjóri). 21,35 Spurn- ingar og svör um íslenzkt mál (Bjöm Sigfússon). 21,55 Fréttir. 22,00 Symfóníutónleikar (plötur) : a) Fiðlukonsert eftir Vieutemps. b) Píanókonsert nr. 2 í f-moll eftir Chopin. Árni Pálsson húsasmíðameistari, Vífilsgötu 5, er fertugur í dag. Hnefaleikarar. 1 frétt hér í blaðinu á þriðjudag um hnefaleikara, sem sem sýndu hnefaleika fyrir setuliðsmenn, gætti þess misskilnings, að hnefaleikar- arnir voru allir taldir úr hnefaleika- skóla Þorsteins Gíslasonar, en f jór- ir þeirra: Marteinn Björgvinsson, Friðrik Guðnason, Arnkell Guð- mundsson og Kristmundur Þor- steinsson eru úr hnefaleikaflokki Ármanns. Vestmannaeyjasaga: Vestmanna eylngaf élagið í Rvík liyggst að gefa út sögu Eyjaskeggja. Vestmanneyingafélagið hefir nú í undirbúningi samningu héraðssögu Vestmannaeyja og mun í því efni leita til ýmissa fræðimanna úr Eyjum um samningu ritsins. Vestmannaeyingafélagið hélt aðalfund sinn í fyrrakveld og voru þar kösnir í stjórn Guðni Kárason formaður, Henrik Linnet gjaldkeri og Isleifur Pálsson ritari. Félagið var stofnað fyrir tveimur árum og eru í því um 140 félagar. Hefir félagslíf verið hið ágætasta í hvívetna, margir fundir verið haldnir og mikið gert til að auka og viðhalda kynningu meðal Eyjaskeggja hér í Reykjavík. Félagið hefir tvívegis sýnt kvikmynd þá, sem Kjartan Óskar Bjarnason tók í Eyjum á vegum fræðslumálaskrifstof- unnar. Er nú unnið að -því að fá kyikmynd þessa sýnda fyrir ahnénning í einu kvikmynda- húsinu hér. Myndin er gullfall- eg litkvikmynd og lýsir lands- lagi, fuglalífi, bjargsigi og ýmsum þáttum úr atvinnu- og þjóðlifi Eyjaskeggja. Það helzta sem á vantar í myndina er sjávarútvegurinn og mætti bæta úr því með því að fá Kjart- an til Eyja á meðan vertiðin stendur yfir. En svo sem kunn- ugt er, er sjávarútvegurinn liöfuðlífæð Vestmannaeyinga og á honum byggist raunverulega afkoma þeirra öll. Þess vegna þarf fræðslumálastjórnin að hlutast til um að bæta þessum þætti inn í kvikmyndina, til að gera hana heillegri og sannari. I sambandi við sögu Vest- mannaeyja má geta þess að þrír þekktir fræðimenn úr Eyjum, þeir Sigfús Johnsen bæjarfó- geti, Jóhann Gunnar Ólafsson bæjarfógeti á ísafirði og séra Jes Gíslason eiga allir meiri eða minni drög að sögu Eyj- anna og svo mun um fleiri. Félaginu ætti því ekki að verða nein skotaskuld úr þvi að fá samda ítarlega sögu Eyja- skeggja. Vestmanneyingafélagið hélt árshátíð 9. febr. s. I. Þar héldu ræður Jóhann Jósefsson alþm., Þorsteinn Einarsson íþróttafull- trúi og frú Jóhanna Linnet. Sigfús Halldórsson skemmti með söng og hljóðfæraslætti, en Guðjón Bjarnason söngstjóri stjórnaði kór Sólskinsdeildar- Daglegt líf í Chungking. II: . . Þar sem maður verður að vera ríkur ti! að lifa sem fátæklingur Þetta er síðari grein Mar- tins Moore, fréttaritara Daily Telegraph i Chungking, þar sem hann lýsir ástandinu í höfuðborg Kínaveldis. Áður en eg liafði dvalizt 48 klst. í Kina hafði eg fengið þrjú girnileg tilboð í slcóna mína. Margir höfðu dáðzt að skyrt- unum mínum. Mér bárust margar fyrirspurnir um það, hvort eg ætti ekki tannkrem, rakvélarblöð eða sígarettur. Þetta voru fyrstu kynni mín af lífi útlendingsins hér. Þegar fólk komst á snoðir um að dvöl mín yrði stutt, var það ekki lengi að skýra mér frá venjunni: „Þegar menn lialda á hrott, þá selja menn eða gefa allt það af farangri sínum, sem þeir mega við sig skilja.“ tJtlendingarnir liérna lifa í fullkominni fátækt eins og sí- gaunar, og skipta með sér öllu því, sem þeir geta komizt yfir með heiðarlegu móti. Ef maður gengur um strætin í Chungking, Kunming eða ein- hverri annari borg, verður mað- ur ekki var við neinn birgða- skort. Verzlanirnar eru fullar af þriðja flokks vörum, sem fram- leiddar eru liérna á staðnum og fyrsta flokks matvörum. En ef maður spyr um verðið, þá skil- ur maður livers vegna vinir manns skammast sín ekki fyrir að betla af manni alls konar varning. Ódýrar sígarettur! I Chengtu sá eg nokkura pakka af enskum sigarettum í tóbaksbúð. Þetta var tegund, sem kostaði fimm krónur 50 stk. Eg spurðist fyrir um verð- ið og það var 3 pund sterling fyrir 50 stk. (68 kr.). Eg hélt að eg hefði misskilið afgreiðslu- manninn, en þegar eg skýrði enskum vini mínum frá þessu síðar, sagði hann aðeins: „Það var ódýrt!“ Innlendar framleiðsluvörur og matvörur eru ótrúlega dýrar. Vasaklútur kostar 5 sliillinga. Vesti úr svo lélegu efni, að það væri óseljanlegt í Englandi, kostar hér 30 shillinga. Skór kosta 4 sterlingspund. Einkennandi fyrir kinversk- an verzlunarmáta eru umboðs- fornverzlanirnar. I einni slíkri verzlun sá eg gamalt reiðhjól með slitnum lijólbörðum, sem innar. Bauðst hann til að koma þangað endurgjaldslaust með kórinn til að votta frábæra gest- risni er kórinn hafði hlotið við komu sína til Eyja. Scrutator: '&xxUlx ahnemwM cl u Heimæðargjald. Margir hafa um það spurt, á hvern hátt leigjendum beri að greiða húseigendum sinn hluta af heim- æðargjaldi Hitaveitunnar. Eins og kunnugt er, hvílir heimæðargjaldið á húsum með lögtaksrétti, og á Hitaveitan aðeins aðgang að ’hús- eigendum. Hins vegar hefir húsa- leigunefnd ákveðið, að húseigend- um sé heimilt að hækka húsaleigu í sambandi við heimæðargjaldið, og er þá skoðað sem gjaldið bætist við eignarverð hússins. Heimilt er að hækka húsaleigu af öllu húsmu um 9% af heimæðargjaldinu, og jafn- ast það að sjálfsögðu einnig á íbúð húseiganda, eigi hann sjálfur heima í húsinu. Dæmi má taka þannig: Húseigandi hefir hehning húss á móti leigjanda, og er heimæðar- gjaldið 600 krónur. AIls hækkar þá leigan um 9% af 600 kr. eða 54 kr. á ári. Af því greiðir leigjandinn helming, eða 27 kr. á ári, m. ö. o. hækkar leiga hans um kr. 2,25 á mánuði. Húsaleiguhækkun þessi verður að sjálfsögðu í gildi, þar til önnur breyting verður á gerð eða þar til húsaleigulögin verða afnum- in. Með þessu móti afskrifast heim- æðargjaldið á 11—12 árum, og hef- ir þá hver greitt sinn hltua af þeim, sem heita vatnsins njóta. Skurðir í g-ötum. Einhver mesti umferðabaginn eru þverskurðirnir yfir göturnar. Eins og kunnugt er, valda slíkir skurðir óhemju sliti á bifreiðum, en auk þess gera þeir það að verkum, að bifreiðar verða að hægja á sér við hvern skurð, og veldur það óhemju töfúm á umferð, eirimitt á þeim götum, sem fjölfarnastar eru, þar sem mesta nauðsyn ber til að um- ferð gangi greitt og trafalalaust. Meðan annað er ekki að gert, hlýt- ur að vera hægt að halda þessum skurðum í horfinu, fylla jafnan eft- ir því sem efsta lagið slitnar, og fullyrða bílstjórar, að þetta sé enn nauðsynlegri aðgerð en að slétta hol- óttar götur, og verður þó ekki ann- að sagt en að hvorttveggja sé til skapraunar og vansæmdar. Göturnar. Eg hefi orðið þess var, að þeir, sem þessum málum ráða og eiga vitanlega við mikla erfiðleika að stríða, þyki sér æði misboðið með hinum sífelldu blaðaskrifum um á- stand gatnanna. Mætti skýra það, hversu lítið er að gert, með því að einhver þrái hefði í þá hlaupið. Þetta er mjög mikil misskilningur, því að þessi skrif eru ekki gerð af því að blaðamenn langi til að gera sig merkilega, heldur af hinu, að þeir verða daglega þeirrar óánægju varir, sem meðal'almennings ríkir, og má fullyrða, að ' viðkomandi starfsmenn muni eigi síður fara var- hluta af þeim athugasemdum. En blaðamenn gætu engum að liði orð- ið með því að þegja um almenn- ingsálitið. I Hornafræði. „Vel á minnzt, átthagafræði. — Veiztu hvað þeir kalla norðanvind- inn á Hornströndum ?“, spurði ísak ísax íbygginn. „?“, sagði ég. „Þeir ! kalla hann hornablástur, góði minn.“ i kostaði 60 pund. Útlendingur, sem fluttist burtu, fékk 300 pund fyrir útvarpstækið sitt, þegar liann fór frá Cliungking. Tækið liafði koslað hann 15 pund þegar það var nýtt. Það virðist eðlilegt, að inn- flutlar vörur séu sjaldséðar í Kína. En það er ótrúlegt að þær seljist raunverulega fyrir slíkt verð. Hver hefir efni á að kaupa þær? Svarið er að þrátt fyrir eftirlit hins opinbera og strang- ar refsingar, þá er fjöldi af kaupmönnum og bröskurum, sem græða milljónir. Slikir menn hafa jafnvel efni á að drekka skozkt whisky, sem kostar 27 pund flaskan (702 kr.), og reykja erlendar sígar- ettur, sem kosta 1 s. 2 d. stykkið. \ Matur 54 sinnum dýrari. Það er einnig einkennileg ákefð i öllu fólki í að koma öll- um peningum, sem það hefir afgangs, i einhvern vaming. Maðurinn, sem kaupir sér not- að reiðhjól, myndavél eða út- varpstæki getur notið þessara hluta með þeirri ánægjutilfinn- ingu, að liann geti sett þá fyrir meira verð en hann keypti, ef lionum liggur á. Þegar erlendum vörutegund- um er sleppt, þá er meðalverð kínverskra vörutegunda 94 sinnum liærra en fyrir stríð. Tiltölulega eru matvörur ódýr- ar. Sumar tegundir kosta aðeins 56 sinnum rneira en fyrir stríð. Það er ennþá hægt að fá góða máltíð í veitingahúsi fyrir 1 pund (26 kr.). Andasteik kost- ar 25 shillinga og kjúklingar aðeins 15 shillinga. Smjör kost- ar 25 sli. pundið — ef það er fá- anlegt. Eg liefi aðeins bragðað smjör einu sinni og það var þegar eg var gestur trúboða nokkurra, sem áttu kú sjálfir. I Chengtu kostar mjólkurbolli 3 shillinga. Erlendar óþarfavörur eru miklu dýrari. Algengt verðlag í verzlunum i Chungking er oft: Kaffi 15 sh. pundið; kókó 3 sterlingspund (78 kr.); niður- soðin mjólk 1 pund dósin. Útlendingurinn hérna saknar hinna dásamlegu daga, þegar Imiðítilil (prjónuð og saumuð). AÐALYÖRUR: BarnafaAnaðar Kjólabúðin Bergþórugötu 2. Athugið! Fornbókaverzlun vor kauþ- ir allar bækur hæsta verði. Einnig tímarit og blöð. — Greiðsla hvort heldur er i peningum eða bókskiptum. Komið og reynið viðskiptin. Bókaverzlun Guðmundar Gamalíelssonar Lækjargötu 6. — Sími 3263.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.