Vísir - 03.06.1944, Blaðsíða 3
VISIR
BREZK-ISLENZK VI8SKIPTII HffTTU
Grein í brezku verzlunartímariti.
Folksflutningur til Þingvalla 17. júnL
Atvinnubiíreiðar teknai leigunámi
til að greiða fyrii flutningum.
Þjóðhátíðarnefnd lýðveldisstofnunar á Islandi hoðaði blaðamenn
á fund sinn í gær, og skýrði þeim frá undirbúningí að hátíðinni á
Þingvöllum 17. júní, einkum að því er varðar mannflutninga þang-
að austur og þau efni, sem almenningur þarf að kynna sér með
hæfilegum fyrirvara.
jJJÖRNBjÖRNSSON
kaupmaður í London
hefir birt athyglisverða grem
um viðskipti Breta og Islend-
inga í aprílhefli „British
Trade Journal & Export
World“, þar sem hann ræðir
um hömlur þær, er ríkja á út-
flutnmgi brezkra vara til ís-
lands. Kveður hann viðskipt-
um Breta við Island í hættu
stefnt, vegna þeirra samn-
inga, sem gerðir hafa verið
við Bandaríkin, um að láta
landinu nauðsynjar í té.
„Það verðiH' mjög erfitt fyrir
brezka framleiðendur að ná aft-
ur íslenzka markaðinum, sem
þeir eru sem óðast að tapa í
hendur Bandaríkjamanna“, seg-
ir 1 greininni, „enda þótt brezk-
ar vörur hafi i um 40 ár notið
mikilla vinsælda nieðal Islend-
inga og pantanir frá íslandi hafi
aukizt mjög, einkum 3 síðustu
árin.“
Bretar unnið fyrir gýg.
„Brezkir framleiðendur hafa
varið miklu erfiði til að byggja
iupp viðskipti við ísland, og það
-var ekki eingöngu stö/ðvun við-
■skiptanua við meginlandið, sem
gerði*það að verkum að eftir-
spurn jókst eftir enskum vör-
ium frá Islandi. Islendingar hafa
alltaf óskað eftir brezkum vör-
um, en óhagstæðir verzlunar-
•samningar neyddu þá til við-
skipta við Þjóðverja.
Þannig stóðu sakir til 15. jan.
1943, þegar viðskiptasamning-
ar við Ameríku leiddu til stöðv-
unar á útflutningi brezkra vara
til Islands. Þá hafði firma mitt
(Icelandic Marketing Co.,
■London) með höndum pantan-
ir, sem námu nær 20,000 ster-
lingspundum. Þótt vörurnar
væru að sumu leyti tilbúnar til
sendingar, en að sumu leyti
næstum tilbúnar, var lokað fyr-
ir útflutninginn og íslenzkum
innflytjendum vísað til amer-
iskra innflytjenda, enda þótt
þéir hefðu í höndum innflutn-
ingsleyfi fyrir þessum vörum.
Það er eftirtektarvert, að á-
standið breyttist ekki, þótt Is-
iendingar lýstu yfir því, að
margar af vörum þeim, sem í
Ameríku átti að kaupa, væru
þar ófáanlegar, sumpart vegna
skorts á skipakosti, sumpart
vegna þess að slíkar vörur
höfðu aldrei verið framleiddar
þar í landi.
Á þeim tímá voru nauðsyn-
legar matvörur fyrirliggjandi í
Ameriku og biðu flutnings, og
var reiknað með að taka myndi
að minnsta kosti ár að koma
þeim til Islands. Á meðan mátti
gera ráð fyrir að aðrar vörur
hrúguðust upp, svo að telja
mátti litla von til að Ameríka
myndi nokkurntíma geta full-
nægt þörf Islendinga fyrir
vörur.
ísland skortir vörur.
Island skortir margt af þeim
vörum, sem auðvelt væri fyrir
Breta að láta í té. Til dæmis
hefir komið fram í íslenzkum
blöðum óánægja húsmæðra yfir
skorti á algengustu tegundum
, leirvöru, aðallega bollapörum.
Þótt segja megi að þessi við-
skiptasamningur útiloki ekki
algerlega brezk-íslenzk við-
skipti að stx-íði loknu, þá er það
víst, að hann mun tefja þau að
mun. Innflytjendur munu um
óákveðinn tíma vera bundnir
við hin nýju verzl u narsambönd,
einkum um vélahluti og þvíum-
líkt.
Mér er kunnugt um að marg-
ir útflytjendur hafa sömu sögu
að segja, og tel eg víst að hæ£*t
verði að leggja gnægð gagna
fyrir viðskiptamálaráðuneytið.
Bak við útflytjendur standa
framleiðendur í ýmsum grein-
um, og er firma mitt umboðs-
maður fyrir um 40 stærstu
framleiðendur í ýmsum grein-
um. Má því telja að nokkur
hundruð framleiðanda hafi
nægan áhuga fyrir þessum mál-
um, og ættu þeir, sem hags-
muna hafa að gæta í þessu sam-
bandi, að taka sig saman um
að leita réttar síns hjá ráðu-
neytinu i sambandi við vænt-
anlega endurskoðun samnings-
ins í apríl.
Bretar vilja endurskoðun.
I nýlegri grein í Daily Ex-
press segir svo: „Búizt er við
að Bretar fari fram á að fá und-
anþágu frá því ákvæði samn-
ingsins, að lagðar séu hömlur á
brezka,n útflutriing.“ Ganga
[sessi orð mjög i sömu átt, að
það er meiningarlaust að binda
sig við samning, er raunveru-
lega kæfir brezka útflutnings-
verzlun og tekur frá framleið-
endum tækifæri til að keppa
við framieiðendur annara
þjóða.“
Þjóðhátíðarnefnd
fer til Rafnseyrar.
Fjölmenn hátíð
verður haldin þar
Þjóðhátíðarnefnd fór í gær til
Rafnseyrar, fæðingarstaðar Jóns
forsetaSigurðssonar og átti fund
með hátíðarnefnd, sem skipuð
hefir verið þar í héraðinu. I
þeirri nefnd eiga sæti: Þórður
Njálsson, Ingivaldur Benedikts-
son og Björn Guðmundsson, fyr
skólastjóri á Núpi.
Verður efnt til mikillar sam-
komu að Rafnseyri, til að heiðra
minningu forsetans, og gera
nefndarmenn þar ráð fyrir að
um 2000 manns sæki skemmtun-
ina, enda hefir verið greitt fyrir
flutningi fólks þar um slóðir
eftir frekasta megni. Verða bát-
ar hafðir í förum fjarða á milli
og mikill áhugi er ríkjandi með-
al manna um sóknina. Þjóðhá-
tíðarnefnd lét Rafnseyrarnefnd-
inni i té íslenzka fána eftir þörf-
um, tjöld og annan útbúnað, en
jafnframt athugaði nefndin,
samkvæmt samþykktri þings-
ályktun, hvað hægt væri að gera
sérstaklega á Rafnseyri til að
heiðra minningu forsetans, og
mun nefndin senda ríkisstjórn-
inni ákveðnar tillögur í því efni,
sem skýrt verður frá nánar
síðar.
I förinni voru, auk nefndar-
innar, myndatökumaðui’, sem
kvikmyndaði staðinn og það,
sem þar fór fi’am, en Guðmund-
ur Einarsson frá Miðdal gerði
teikningu af staðnum og mun
síðar búa til „raderingu“. Sig-
urður prófessor Nordal var enn-
fremur með í förinni, en há-
tiðanefndin að Rafnseyri hefir
falið honum að halda aðalræð-
una til minningar um Jón Sig-
urðsson, en aulc þess verður
minning hans heiðruð á ýmsan
annan hátt.
FJELftSS PRENTS niflJ U tú’iAÍT
Nefndin hefir Iilutast til um,
að rikisstjórnín hefir gefið út
bráðabirgðalög um leigunám
bifi’eiða hátíðardagana. Var i
upphafi ætlunin að komast hjá
slíkri ráðstöfun, en reyndist
ýmsra orsaka vegna ólijá-
kvæmilegt. F armiðar verða
seldir almenningi dagana 10—
14. júní og fer salan fram í Iðn-
skólanum. Bifi’eiðar þær, sem
teknar vex’ða þannig leigunámi
geta væntánlega flutt allt að
3000 manns í hverri ferð, en þó
kann það að reynast eitthvað
minna, vegna hjólbai’ðaskorts
o. fl., en einkabifreiðar, sem
munu vera um 1140, munu geta
flutt um 3700 manns i liverri
ferð.
Lagt verður upp i förina frá
Fi’íkirkjuvegi og ekið inn
Hvei’fisgötu svo sem leið liggur.
Er austur kemur staðnæmast
bifreiðar þær, sem á vegum
nefndai’innar verða, á bakka
Almannagjár og verður þar all-
mikið svæðiliaft fyrir bifreiða-
stæði og það lagað eftir þörf-
um. Hinn 16. júní verða fai’nar
fjórar ferðir austur, kl. 9, 13,
17 og 21. Væri æskilegt að allir
þéir, sem eiga tjöld eða liafa
umráð yfir þeim, notuðu þessar
ferðir, en tjaldað verður á efri
völlunum sunnan við iþrótta-
svæðið. Hinu 17. júní um morg-
unin verða tvær ferðir farnar
kl. 7.30 og 10.30. Þeii’, sem fyrst-
ir kaupa sér farmiða geta valið
um ferðir frá Þingvöllum aft-
ur, en hinir síðustu geta það
ekki, heldur verða að sæta fyr-
irlagi nefndarinnar í því efni.
Farið verður frá Þingvöllum
hinn 17. júní ld. 18 og 22 og
verður flutningi fólks haldið á-
fram aðfai’anótt hins 18. júní,
þannig að ferðir verða frá Þing-
völlum kl. 13,17, og 21 .
Nefndin beinir þeirri ósk til
bifi-eiðaeigenda, sem umráð
liafa bifreiða sinna, að þeir fari
tvær ferðir hver til Þingvalla
með aðstandendur, venzlamenn
og vini, þannig að þeir fvrir sitt
leyti létti undir með fólks-
flutninga. Verður nánar til-
kynnt siðar um bi’ottfarartíma
einkabifreiða, sem verður hag-
að þannig, að ekki brjóti í búga
við ráðstafanir bifreiða á veg-
um nefndarinnar.
Ætlunin er að ekið verði i
hring, þannig að bifreiðar, sem
frá Þingvöllum fara, aki gamla
veginii niður með Geithálsi, og
verða gerðar vegabætur á hon-
um á alllöngum kafla, og þess
vænst að því verði lokið fyrir
liátiðina. Verði það ekki, mun
bifi’eiðaumferð beint syðri leið-
ina og allt gert sem unnt er til
að umferð verði sem gi-eiðust.
Á þrernur stöðum verður lög-
regluvörður, hjúkrunarlið og
símavarzla við, veginn, til að-
stoðax’, ef út af ber. Þær stöðv-
ar verða að Brúarlandi, Svana-
stöðum og vegamótum gamla
og nýja Þingvallavegarins.Þang-
að geta menn snúið sér og feng-
ið aðstoð ef með þai’f.
Bifreiðar á vegum nefndar-
innar hafa bækistöð á efri bakka
Almannagjár, svo sem getið
hefir verið. Þar verður enn-
fremur lögreglustöð o. fl. —
Einkabifreiðum er ætlaður
staður inni á Leirum og halda
kyrru fyrir meðan á hátíðinni
stendur, en þó er ætlast til, að
þeir, sem vilja halda heim, geti
gert það i hléinu milli athafnai’-
innar að Lögbergi og þar til
skemmtunin hefst kl. 4% síðd.
tJr því verður akstur slíki-a bif-
reiða ekki leyfður um hátíða-
svæðið eða Almannagjá fyrr en
eftir kl. 8 að kveldi. Bifreiðar
ei’lendi’a sendiherra og bif-
reiðar í þjónustu þjóðhátíðar-
nefndar fara að Valhöll og
hafa þar bækistöð, en Valhöll
verður ætluð Alþingi og gest-
um þess til umráða. Af þessu
leiðir aftur að veitingar verða
að fara fram i tjöldum og
vex-ða þær helztar: kaffi, sæl-
gæti, öl, tóbak og smurt brauð,
en vafasamt er hvort unnt reyn-
ist að selja lieitan mat. Nokkur-
ir aðilar liafa fengið leyfi nefnd-
arinnar til greiðasölu, og hefir
nefndin farið fram á það við
viðskiptaráð, að veitt verði
undanþága frá skömmtunar-
reglum, þannig að auðveldara
verði að afla vista og hafa
á hendi gi-eiðasölu. Fjölskyld-
ur og aðrir, sem það geta, ættu
því að hafa með sér nauðsyn-
legt nesti og tæki til eldunar,
ef þeirn sýnist svo.
Þess skal að lokum getið að
farmiðar kosta kr. 40.00 fram
og aftur, en fyrir börn yngri en
10 ára verða þeir látnir af
liendi gegn hálfvirði. Aðkomu-
fólk, sem hyggst að fara á Þing-
velli, þyrfti að tryggja sér far
sem fyrst. Allar nánari upplýs-
ingar í þessu efni gefur fullti’úi
nefndarinnar, Ævar R. Kvaran
lögfræðingur, en sírni hans er
1130. Nefndin liefir átt fundi
með bifreiðastöðvarstjórum, og
hefir tekizt bezta samvinna
með þessum aðilum. Er búizt
við að unnt verði að tryggja
18—20 þús. manns far austur,
án nokkurra vandkvæða.
Ný tegund þakmálningar.
„BATTLESHIP"-asbest-þakmálning.
Málningu þessa má nota á:
Steinþök — Pappaþök — járnþök.
Myndar vatnsþétta húð, sem þolir bæði frost
og hita. •
„BATTLESHIP" -Primer:
Undirmálning á steinþök.
.JATTLESHIP" -Plastic Cement:
Til þéttingar á rifum og sprungum á steinþök-
um, þakrennum, skorsteinum, þakgluggum
o. fl.
Almenna byggingaiélagið h/í
Auglýsendur!
Athugið að þjóðhátíðarblað Vísis kemur út 17.
júní n. k. og flytur meira, fjölbreyttara og vand-
aðra efni en nokkurt blað íslenzkt hefir áður flútt. j.
Þeir, sem vilja koma auglýsingum í þetta blað, '
gefi sig fram við auglýsingaskriístofu Vísis fyrir
8. þ. m.
Daqblaðið Vísir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
Ingibjargar,
litlu dóttur okkar.
Ingibjörg og' Magnús Þorgeii’sson.
Maðurinn minn elskulegur og faðir,
Gísli Þorsteinsson,
skipstjóri, Ránargötu 29,
andaðist fimmtudaginn 1. júní.
Steinunn Pétursdóttir og börn.