Vísir - 16.06.1944, Page 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiöjan (3. hæð)
34. ár.
Reykjavík, föstudaginn 16. júní 1944.
Ritstjórar
Blaðamenn Simii
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S llnur
Afgreiðsla
133. tbl
Stórárás Þjóðverja kemur bráðlega.
Siglfirðingar búa sig nú af
kappi undir hátíðarhöldin á
morgun, símar fréttaritári Vís-
is á staðnum.
Meginþorri allra húsa í bæn-
um hefir verið málaður, lóðir
hreinsaðar og prýtt og lagað
umhverfis hús eins og hægt er.
Þá hafa bæjarbúar og sett upp
fánastengur mjög víða og margt
annað gert, sem til prýði má
verða og hátíðarbrigða.
Yfirleitt virðast Siglifirðingar
samtaka um að hafa hátíðina
sem glæsilegasta liið innra og
ytra.
Lýðveldismerkin
rifiii ist.
Mikil þröng var umhverfis
merkjasalana á Lækjartorgi í
gær.
Má heita að sífelldur straum-
ur manna hafi verið allan dag-
inn til að kaupa merki þjóðhá-
tíðarinnar. Stundum var ösin
svo mikil, að lögreglan varð að
hafa hemil á þyrpingunni. Einu
sinni, er fréttaritari Vísis átti
leið framhjá torginu, voru tveir
lögregluþjónar að halda uppi
reglu við söluna.
Stoðvarölfreilar aDeins
teknar leigunámi
kaui. 17. jðui.
★
Bifreiðastöðvarnar opnar til
kl. 11 í kvöld.
Hin margþættu hátíðarhöld
Iýðveldisstofnunarinnar hefjast
á morgun.
Um 1500 tjöld munu verða
reist á Þingvöllum í dag og fara
íbúar þeirra austur í dag. Verð-
ur skipulögð tjaldborg á Þing-
völlum undir umsjón manna frá
hátíðarnefndinni. Tjöldin verða
númeruð og götur á milli
þeirra, merktar bókstöfum,
þannig að auðvelt verður að
finna hvert einstakt tjald og i-
búa þess.
Hátiðarnefndin hefir horfið
frá því, að taka leigunámi bif-
reiðar bifreiðastöðvanna í dag,
en hinsvegar eru allar bifreiðar
stöðvanna telcnar leigunámi ]).
17. júní„eins og áður var aug-
lýst, og eru öll sæti uppseld,
bæði til og frá Þingvöllum þann
dag.
Húsmæðraskóli
Saðurlands útskrifar
12 nemendur
Kínverjar vilja íá leif-
arnar af japanska
flotanum.
Kínverjar munu gera kröfur
til þess að þeim verði afhentar
leifar. japanska ftotans, ef ein-
hverjar verða að stríðinu
loknu.
John Hlavacek, fréttaritari
U. P. í Chungking, hefir átt tal
við Chen Shao Kwan, flotafor-
ingja Kínverja, sem skýrði frá
því, að land hans ælli að koma
sér upp flota eflir stríðið. Kín-
verjar eiga nú aðeins fá og lítil
herskip, sem eru á fljótum
landsins, en mikill fjöldi sjó-
manna er nú við sjóliernaðar-
nám i Bretlandi og Bandaríkj-
unum og eru þeir nægilega
margir til að manna nokkur
orustuskip, beitiskip og fall-
byssubáta.
En Kínverjar gera sér ljóst,
að vel geti svo farið, að banda-
menn sökkvi öllum japanska í
flotanum um það er lýkur. Þeir I
gera sér þó vonir um, að þeir !
geti jafnvel fengið eitthvað af
herskipum hjá Bandarikjunum
með láns- og leigukjörum líkt
og margar aðrar þjóðir.
Churchill lenti í
i
sjóorustu,
Brezlta þingið ræddi í dag um
hættur þær, er Churchill lagði
sig í, er hann fór til Frakklands.
Þingmaður einn benti á það,
að þar sem yfirhershöfðinginn
væri amerískur, mundi skuld-
inni skellt á hann, ef eitthvað
kæmi fyrir Churchill og mundi
það geta orðið hættulegt fyrir
sambúð þjóðanna. Það hefir
nefnilega verið skýrt frá því
opinberlega, að tundurspillir-
inn, sem flutti Churchill yfir
sundið, hafi lent í bardagá og
stóð Churchill í lyftingu — með
vindilinn auðvitað - allan tím- j
ann. i
Þingmanninum var svarað,
að hann væri ekki dómbær um
það, hvenær Churchill legði sig
í hættu og hvenær ekki.
Kyrrahaf:
Inxurás á Saipan.
Japanir, segja að Bandaríkja-
menn hafi gengið á land á Sai-
pan og sé háðir harðir bar-
dagar.
Saipan-evjan er í Mariana-
klasanum, stærsta eyja hans. —
Hún er 1500 mílur austur af
Filippseyjum. Þar er góð höfn
og nolckurir flugvéllir. Um helg-
ina réðst amerísk flotadeild á
eyiuna og unnu spjöll.
Bandaríkjamenn viður-
kenndu ekki, að innrásin væri
hafin fyrr en seint í gærkveldi.
Vinnan,
6. tbl. 2. árg. er komið út. Efni:
Alþýðan verður að taka forystuna
í sjálfstæðisbaráttunni (K. í.),
Þættir úr baráttu ellefu alda (Björn
Sigfússon), Hvers væntum vér af
íslenzku lýðveldi ? (Guðjón B. Bald-
vinsson), Stéttardómur (Jón Rafns-
son), Fontamara (þýtt), kvæði o.
m. fl.
»Skrúðgfaogfa
ípróttamanna«
Skrúðganga íþróttamanna 18.
júní verður haldin i tvennu lagi.
Fyrri hlutinn verður á þá leið,
að kl. 1 e. h. safnast allt íþrótta-
fólk saman í venjulegum klæðn-
aði á íþróttavellinum. Þaðan
verður gengið undir fána ISl og
íslenzka fánanum að Iláskólan-
um og sameinast þar hinni al-
mennu skrúðgöngu, sem heldur
frá Háskólanum, að stjórnar-
ráðshúsinu. Síðari hluti skrúð- ;
göngu íþróttamanna verður á
þá leið, að þá verður gengið í
íþróttabúningum og undir fán-
um félaganna. Eiga félögin að
mæta kl. 3,45 á þeim stöðum,
sem hér segir:
I Austurbæjarskólanum: :
Knattspyrnufélag Reykjavílcur
og hópsýningarmenn.
I íþróttahúsi Jóns Þorsteins-
sonar: Glímufélagið Ármann.
1 Miðbæjarskólanum: Knatt-
spyrnufélögin: Fram, Valur, 1
Víkingur, Umf. Reykjavíkur,
Svifflugfélagið og Skátar.
I íþróttahúsi I. R.: Iþróttafé-
lag Reykjavíkur, Fimleikafélag
Hafnarfjarðar og Ilaukar í
Iiafnarfirði. j
KI. 4,30 safnast öll félögin
saman á Laufásveginum, fyrir
ofan Miðbæjarskólann. Þaðan
verður lagt af stað kl. 4,40 og
gengið niður að Hljómskála-
garði. Þar kemur Lúðrasveit
Reykjavíkur, undir stjórn hr.
Albert Klahn og gengur í far-
arbroddi skrúðgöngunnar. Frá
Hljómskálagarðinum r verður
gengið um Fríkirkjuveginn,
Lækjargötu, Austurstr., Aðal-
stræti, Suðurgötu. Staðnæmzt
stutta stund við leiði Jóns Sig- ‘
urðssonar, og síðan haldið út á
íþróttavöll.
Húsmæðraskóla Suðurlands
að Laugarvatni var sagt upp 8.
júní sl. — Skólinn starfaði að
þessu sinni í 7 mánuði. •
Á síðasta námsári voru 12
námsmeyjar í skólanum. Luku
þær allar prófi. Forstöðukona
skólans er Sigurlaug Björns-
dóttir. Hún annaðist einnig
matreiðslukennslu. Kennari í
handavinnu var Kristín Sigfús-
dóttir.
Daginn fyrir skólauppsögnina
var sýning á handavinnu náms-
meyjanna og einnig íþróttasýn-
ing. Var gerður mjög góður
rómur að hvorutveggja. Kenn-
arar frá héraðsskólanum
kenndu bóklegu námsgreinarn-
ar í vetur, einnig íþróttir og
söng.
Meimtaskólaniiitt
á Akureyri
var sagt upp í gær.
•
429 nemendur gengu undir próf
í vor.
Menntaskólanum, á Akureyri
var sagt upp í gær. Alls gengu
429 nemjendur undir próf á
vorinu, þar af tóku 92 gagn-
fræðapróf. Hæstu einkunn
við gagnfræðapróf lilaut Sig-
rún Árnadóttir frá Vopnafirði,
7,’10 en hæsta eipkunn er 8.
AIls voru útskrifaðir 45 stúd-
entar, 30 úr máladeild og 15 úr
stærðfræðideild. í máladeild
hlutu 25 stúdentar 1. einkunn
en 9 úr stærðfræðideild. í
máladeild hlaut hæsta einkunn
Páll Árdal frá Siglufirði, 7,40-
en í stærðfræðideild hlaut
hæsta einkunn Guttormur
Þórmar frá Laufási í Eyjafirði,
7,21.
^Stúdentaviðkoman aldrei
meiri en nú.
5. bekkjap nemandi tekup próf, sem
ep einedæmi í sögu Menntaskólans.
Menntaskólanum verður sagt upp kl. 9 í fyrramálið. Alls út-
skrifuðust 67 stúdentar, 69 gagnfræðingar gengu undir próf, en
113 undir inntökupróf í Menntaskólann. Hefir stúdentaviðkoman
aldrei verið meiri en nú, að því er Pálmi Hannesson rektor skýrði
tíðindamanni Vísis frá í morgun.
Um mörg ár undanfarið hef-
ir Menntaskólanum verið sagt
upp 17. júní, og verður ekki
brugðið frá þeirri venju að
þessu sinni, enda er það eðl?-
legt að stúdentar vilji útskrif-
ast á þessum merkisdegi.
En með því að flestir nem-
endur munu fara til Þingvalla,
afhenti rektor kl. 2 í gær próf-
skírteini gagnfræðinga, gei-ði
grein fyrir innlökuprófi og árs-
prófum og úthlutaði verðlaun-
úm til annarra en stiulenta.
Rektor lét þess getið i ræðu,
að prófskírteini gagnfræðing-
anna væru dagsett 17. júní og
beri að líta svo á, að þeir væru
útskrifaðir þánn dag, enda þótt
skírteinin væru afhent fyrr af
þeim ástæðum, er áður getur.
. Gagnfræðaprófi luku 29
skólanemendur og hlutu 23
fy-rslu einkunn og 6 II. einkunn.
Utanskólanemendur voru 40,
tveir þeirra urðu að fresta
nokkurum liluta prófsins til
liausts vegna veikinda og einn
féll. 9 lilutu I. einkunn, 24 II.
einkunn og 4 III. einkunn.
Hæsta fullnaðareinkunn á
gagnfræðaprófi 8.91 stig, hlaut
Örn Yngvason, en næst hæsta
8,67, hlaut Steingrímur Her-
mannsson. Hann fékk hæstu
einkunn á prófi 9.19. Sigrún
Friðriksdóttir var 3ja í röðinni
með 8,65. Af utanskólanemend-
um varð Magnús Sigurðsson
frá Gilsbakka hæstur með
8.57. Þannig útskrifast frá
Menntaskólanum 66 gagnfræð-
i ngar.
Menntaskólanum verður sagt
upp 17. júní klukkan 9 árdegis.
Þá útskrifast 67 stúdentar
og er það meiri stúdenta-
viðkoma en nokkru sinni fyrr.
Úr máladeild útskrifast 42
stúdentar, þar af þrír utan
skóla. Hefur 1 ágætiseinkunn,
26.1. einkunn, 14 II. einkunn og
1 III. einkunn. Þrjár stúlkur
Áskorun til Oags-
brúnarmanna
Þjóðhátíðarnefndin hefir tjáð
Al])ýðusam])andi Islands, að til
þess sé ætlazt, að verkalýðsfé-
lögin taki þátt í skrúðgöngu
þeirri, sem fer fram á sunnu-
daginn 18. þ. m., í tilefni af lýð-
veldisstofnuninni.
Samkvæmt því vill stjórn
Verkamannafélagsins Dags-
hrún skora á alla Dagsbrúnar-
menn að mæta á sunnudaginn
kl. 1 e. li. við Iðnó og skipa sér
undir fána félagsins í skrúð-
göngunni.
Það er eðlilegt metnaðarmál
fyrir Dagsbrúnarmenn, að láta
fylkingu sína í skrúðgöngunni
verða sem glæsilegasta og sýna
með því fögnuð sinn yfir merk-
asta atburði í sögu lslands.
urðu efstar í máladeild: Sigrið-
ur Magnúsdóttir (ág.) 9,19, Sig-
ríður Helgadóttir 8,70 og Mál-
friður Bjarnadóttir 8.59.
Úr stærðfræðideild útskrif-
uðust 23 skólanemendur og 2
utanskóla. 17 þeirra hlutu I.
einkunn og 8 II. einkunn. Hæst-
ur varð Tryggvi Þorsteinsson
með 8.55, annar Andrés And-
résson 8.39 og þriðji Haraldur
Sveinsson með 8.38.
113 luku inntökuprófi í
Menntaskólann, af þeim féllu
11. 28 hlutu 8.00 eða meira og
verða teknir í skólann.
Á ársprófi hlaut Magnús
Magnússon í 5. bekk B fullnað-
areinkunnina 9.55. Á prófinu
fékk hann 9.74. Þetta eru mestu
afrek við próf, sem hér liafa
þekkst a. m. k. um mjög lang-
an tíma. Magnús er bróðir Sig-
ríðar þeirrar, er ein nemenda
hlaut ágætiseinkunn við stúd-
entspróf. Þau eru börn Magn-
úsar Skaftfjelds bifreiðastöðv-
areiganda.
Sunnudaginn 18. júní verða
fjolbreytt hátíðaliöld hér í
bænum, eins og áður hefir verið
skýrt frá. Meðal annars fer
fram skrúðganga, sem'hefst kl.
1,30 frá Háskólanum.
I skrúðgöngunni taka þátt m.
a. samtök íþróttamanna, skátar,
stúdentar, templarar, lögreglu-
lið og félagar úr svifflugfélag-
inu. Ennfremur að sjálfsögðu
allir aðrir ahnennir borgarar
bæjarins. Börnin verða um 1000
og bera þau öll íslenzka fánann
í göngunni. Stúdentar, templar-
i\r og iþróttamenn ganga undir
íslenzka fánanum og félagsfán-
um sínum. Að öðru teyti verða
engir sérfánar í skrúðgöngunni.
Bruni að
Munkaþverá.
í gærkveldi um 7 legtið kom
upp eldur að Mu'nkaþverá í
Egjafirði og hlutust af mjög
miklar skemmdir.
Slökkvilið frá Akureyri kom á
vettvang og tókst því að ráða
niðurlögum eldsins, en innbú
var þá nær allt brunnið og tókst
ekki að bjarga nema litlu einu.
Tvær ibúðir voru i húsinu og
brann mestallt sem í þeim var.
Menntamál,
5. hefti 17. árg. flytur m. a. þetta
efni: Lýðveldi á Islandi (Ól. Þ.
Kr.), Sumargjöf 20 ára, Ásgeir
Ásgeirsson fimmtugur, Málleys-
’ingjakennsla fyrr og síÖar (Brand-
ur Jónsson), Nýir húsmæðrakenn-
arar, Kvennaskólinn á Hverabökk-
utn, Landsprófið (Ol. Þ. Kr.) o. fl.
Næturakstur
fellur niður til mánudagskvölds.
Bandamenn
segjast halda
stöðvum
smum.
4600 smál. sgrengja
á Frakkland í fyrri-
nótt
Ð ardagar færást jafnt og
þétt í aukana í Nor-
mandie, en bandamenn búast
við enn harSari átökum bráð-
leea.
En þrátt fyrir það, að Þjóð-
verjar hafi ekki gert neitt lilé
á árásum sínum og þær hafi
þvert á móti farið' vaxandi, segj-
ast bandamenn hafa getað hald-
ið stöðvum sínum yfirleitt alls-
staðar og á einum stað, hjá Car-
entan, segjast þeir hafa sótt
fram um átta kílómetra.
Stimson hermálaráðherra
Bandaríkjanna ræddi í dag um
bardagana í Normandie. Hann
sagði, að bandamönnum hefði
gefizt meiri tími en þeir hefðu
þorað að vona, til að koma sér
fyrir á meginlandinu. Það mætti
þakka árásum flugsveita
bandamanna, sem eyðilögðu
samgönguæðar Þjóðverja yfir
Signu, og síðan hafa Þjóðverj-
ar ekki getað korúið sér upp
neinni brú.
En stórkostleg gagnáhlaup
Þjóðverja hljóta að byrja
innan skamms, sagði Stim-
son, en það er tími til að
búa sig undir að taka á
móti þeim.
Loftstyrjöldin.
Undanfarið hefir veður verið
óstopult á landgöngusvæðinu í
Normandie, svo að loftárásir
hafa oft legið hiðri hálfan dag,
en jafnskjótt og gefið hefir aft-
ur hafa bandamenn sent flug-
vélar í þúsundatali gegn Þjóð-
verjum.
Miðvikudaginn var ófært
flugveður um morguninn, en
]>egar veður batnaði eftir há-
degið var farið í fleiri árásir en
nokkuru sinni hafa verið gerð-
ar. Þá vörpuðu brezkar flugvél-
ar 4600 smálestum sprengja á
stöðvar Þjóðverja rétt fyrir
dögun. En rétt fyrir myrkur
kvöldið áður var varpað um
1200.smál. á hraðbátakvina í
Lc Ilavre.
f »Stórvirki«
ráðast á
Japan.
Hin nýju endurbættu flug-
virki Bandaríkjamanna, sem
Vísir hefir greint frá áður, hafa
nú komið við sögu í fyrsta sinn.
Það var tilkynnt í Washing-
ton í gær, að þau liefðu gert á-
rás á Japan, en ekki skýrt fíá
árásarstaðnum. Marshall hers-
höfðingi skýrði frá því, er hann
lét þetta uppskátt, að við til-
raunir hefði virki þessi reynzt
svo vel, að afráðið væri að nota
þau víðar á næstunni. — Far-
ið var frá Kina.
Marshall sagði ennfremur, að
loftstyrjöldin kæmist á nýtt stig
með þessum flugvélum.