Vísir - 16.06.1944, Blaðsíða 4

Vísir - 16.06.1944, Blaðsíða 4
6 VISIR „Stritandi vélar starfsmenn glaða og prúða“. Þanxiig komst ein af þjóðhetjum vorum að orði í aldamótakvæði sínu. Hannes Hafstein sá fyrir, að iðnaður mundi rísa upp, þegar búið væri að beizla fossana. Margs konar iðnaður hefir risið upp og iðngreinum fjölgar stöðugt. Það var árið 1936, að Lakk- og málningarverk- smiðjan HARPA var stofnuð, og er því fyrsta verksmiðja í málningar- og lakkaframleiðslu. Verksmiðjan starfaði fyrstu árin í frjálsri sam- keppni við erlend firmu, sem mörg hver höfðu selt sínar famleiðsluvörur hér áratugum sam- an. Harpa óx og framleiðslutegundum f jölgaði stöðugt. Efnafræðingur, íslenzkur, var ráðinn að fyrirtækinu til þess að fullkomna vörurnar, svo sem að gera þær hæfari en erlendu vörurn- ar til þess að standast íslenzkt veðurfar. Alheimsstríð skall á og Islendingar gátu séð sjálfum sér fyrir öllum málningarvörum. — Islendingum gefst nú orðið daglega tækifæri til að sýna sj álfstæðisþrá sína með því að kaupa, að öðru jöfnu, íslenzkar framleiðslu- vörur. Allskonar hreinlætisvörur. Sigurþór ðlafsson Dáinn 30. maí 1944. In memoriam. Farðu vel, frændi! Fullvel man eg lund þína glaða og létta hlátrá. Andstreymi margt og erfiðleika gerðir þú jafnvel að gamanmálum. Léku þér verk í liprum höndum. Afkastameiri öðrum varstu. Hefðirðu í bardaga brandi veifað, þá hefðu sýnzt þrír á lofti! Vakti þér í barmi viðkvæmt hjarta. Blómum þú unnir. Við börn þú minntist. Þó geyst færir stundxnn á gleðinnar fáki heilbrigð skynsemi hélt í tauminn. Minnist ég þess að mörgum varstu velkominn gestur, sem vakti gleði. Þegar spurðist til þinna ferða hló oss mörgum hugur í brjósti! Farðu vel, frændi! fararheilla óska eg þér af öllu hjarta. Gráta skal ei, þótt genginn sértu, er lausn þinni fagna. — Lifi gleðin! Gretar Fells. Reykvíkingar eru að öðlast borgarmenn- ingu. Heilbrigðislögreglan er nú bú- in að starfa í tvö ár og hefir starf hennar þegar borið mikinn árangur. Lögreglustjóri átti fyrir helg- ina tal við blaðamenn rnn starfsemi heilbrigðislögreglunn- ar, en í henni starfa nú Ágúst Jósefsson, heilbrigðisfulltrúi, Sigriður Eiriksdóttir og Pétur Kristinsson. Það hefir aðallega verið starf þessa lögregluliðs, að veita mönnum leiðbeiningar um meiri þrifnað í umgengni á vinnu- stöðum o. v. og hefir sumsstaðar þurft að grípa til allstrangra ráðstafana, til þess að menn gæti fyllsta hreinlætis. En það tekur tíma, að kenna fólki fyllstu umgengnismenn- ingu og þess vegna er ekki unnt að kippa þessu í lag á svip- stundu. En árangurinn af starfi heilbrigðislögreglunnar bendir til þess, að hún hefir ekld unnið fyrir gýg og er fram líða stund- ir er liklegt að Reykvíkingar verði ekki eftirbátar annara borga. En til þess að svo megi verða, verður að stinga mislc- unnarlaust á kýlunum, til þess að leiða mönnum fyrir sjónir hvað ábótavant sé. 300 manns taka þátt í íþróttamótinu 18. júní. 17. jání-mát íþróttamanna verður að þessu sinni háð 18. júní vegna Þjóðhátíðarinnar á Þingvöllum þann 17. Glímu- félagið Ármann, K.R. og l.R. standa sameiginlega fgrir mót- inu. Um 300 manns taka þátt í sýningum og kappleikjum frá 6 félögum. Félögin sein taka þátt í keppn- inni verða Ármann, Fimleika- félag Hafnarfjarðar, Í.R. K.R., Knattspyrnufélag Vestmanna- eyinga og U.M.F. Skallagrímur í Borgarnesi. Mótið liefst kl. 4,40 með skrúðgöngu íþróttamanna úr Hljómskálagarðinum, þaðan gengið í gegnum miðbæinn og síðan suður á Iþróttavöll. For- seti Í.S.Í., Ben. G. Waage, setur mótið en strax á eftir flytur Bjarni Benediktsson borgar- stjóri ræðu. Að því búnu hefjast marg- háttaðar hópsýningar fimleika- flokka og iþróttakeppnir — Keppt verður í 100 m., 800 m., 500 m. hlaupum og 1000 m. boðhlaupi, kúluvarpi, kringlu- kasti, liástökki og langstökki. Auk þess verða svo nokkur skemmtiatriði, svo sem kassa- boðhlaup, pokahlaup og e. t. v. fleira. Hlé verður kl. 7—8 um kveld- ið. Gerð og notkun íslenzka fánans. Nýlega var lagt fram á Al- þingi frumvarp um gerð og notkun íslenzka fánans. Frum- varp þetta er i 15 greinum. í fyrstu greininni er tekið fram um gerð fánans, þar segir: Hinn almenni þjóðfáni ís- lendinga er lieiðblár (ultra- 1 marineblár) með mjallhvítum I krossi og eldrauðum (hárauð- um) krossi innan í hvíta kross- inum. Armar krossanna ná al- veg út í jaðra fánans, og er [ breidd þeirra %, en rauða krossins % af fánabreiddinni. Bláu reitirnir eru rétthyrndir ferhyrningar: stangarreitirnir jafnliliða og ytri reitirnir jafn- breiðir þeim, en helmingi lengri. Hlutfallið milli breidd- ar fánans og lengdar er 18:25. Þá eru ýmsar fleiri reglur um gerð fánans og hvernig hann skuli notaður. P—-HNAPPARi fyrir húsgögn yfirdekktir | Prahkastíg 26 Kristján Guðlaugsson Hæstaréttarlögmaður. Skrifstofutími 10—12 og 1—6. Hafnarhúsið. Sími 3400. fJELABSPRfNTSMUIM .----------V Tarzan og eldar Þórs- borgar. Nr. 82 „Þú hefir enn bjargað lífi mínu,“ sagði Ukah við Tarzan, en 'hann greip fram i fy.rir risanum. „Við verðum að flýta okkur.“ Frumskógamaðurinn tók aftur forustuna og fór þá ganga i völ- undarhúsinu, sem honum sýndust lík- legastir til að liggja út úr borginni. En það var alveg óvíst, hvort hann færi rétta leið .... ... .Fáeinum mínútum eftir að fanga- verðirnir höfðu verið slegnir niður og hlekkjaðir, rakst Mungo á þá, þar sem þeir lágu ósjálfbjarga. Mungo var á eftirlitsför um neðanjarðargöngin og átti sízt von á því að rekast á tvo af undirmönnum sínum í þessu ásig- komulagi. Mungo sá á augabragði, að hér var ekki allt með felldu. Mungo flýtti sér að taka keflin út úr varðmönnunum og spurði þá, hvað fyrir hefði komið. Þeir leystu greið- iega úr spurningum hans. „ómögulegt,“ sagði Mungo reiðilega, „því að Tarzan var i neðri fangaklefanum.“ En hann vissi líka, að einungis Tarzan gat ver- ið trúandi til að lcika þannig á varð- mennina. Mungo beið nú ekki boðanna. Hann hljóp eins og fætur toguðu til næstu varðstöðvar og gaf skipun um það, að öllum skyldi tilkynnt, að Tarzan og félagar hans léki lausum hala í völ- undarhúsinu. Það varð að handsama flóttamennina lafalaust, hvað sem það kostaði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.