Vísir


Vísir - 16.06.1944, Qupperneq 6

Vísir - 16.06.1944, Qupperneq 6
4 VISIR Farfuglar efna til 2ja sumar- leyfisferða — og styttri ferða um hverja helgi. Hafa keypt skála hjá Lögbergi. lMtflega hefir Farfugladeild Reykjavíkur fesí kaup á skála í ^ nágrenni bæjanns, og er það annað „hreiðrið“, sem Far- fuglar eignast. Hitt er við Vaiahnúka hjá Kaldárseli. Skáli þessi, sem Farfuglar hafa fest kaup á, er við Selfjall, skammt frá Lögbergi. Heitir þar Heiðarból, en Valaból heitir heimkynni Far- fugla við Valahnúka. Farfuglar hafa ákveðið lengri eða skemmri ferðir um hverja helgi í sumar, en auk þess tvær smnarleyfisferðir, aðra í Þjórs- árdal, en hina norður í land. Nú þegar hafa þeir farið í allfjöl- mennar hópferðir undanfarnar helgar, og hefir þátttaka verið meiri en nokkuru sinni fyrr. Á- kveðið hefir verið að fara á Þjóðhátiðina á Þingvelli og sér deildin þeirn farfuglum fyrir ferð, sem þess óska. Verður far- ið austur í dag og gist í tjöldum á Þingvöllum. Að öðru leyti verða ferðir Farfugla í sumar sem hér segir: 24.—25. júni: Framhalds Jónsmessuhátíð í Valabóli. 1.—2. júlí: Ekið að Kolviðar- hóli á laugardag og gist þar. Á sunnudag verður gengið yfir Hengil og Dyrfjöll að Heiðar- bæ og ekið þaðan í bæinn. 8.—9. júh: Ekið austur undir Eyjafjöll á laugardag að Skóg- arfossi og gist þar i tjöldum. Á sunnudag verður ekið austur undir Sólheimajökul og hann skoðaður. Síðan snúið við og farið hægt meðfram Eyjafjöll- um og skoðaðir helztu merkis- staðir á leiðinni. 8.—-18. júlí: Sumarleyfisferð I. — Farið á reiðhjólum frá Akranesi og hjólað norður um land, sennilega að Mývatni, eft- ir því sem timi og aðrar ástæð- ur leyfa, og snúið þar við til Akureyrar. Þaðan verður farið með lrraðferðinni til Heykjavik- ur. Liklega um 10—14 daga ferð. 15.—16. júli: Farið með áætl- unarbil eða á reiðhjólum að Tröllafossi. 15.—23. júh: Sumarleyfisferð H. — Vikudvöl i Þjórsárdal. 29.—30. júli: Gengið á Esju. 5.—7. ágúst: Ekið austur að Cthhð i Biskupstungum og gengið um Brúarárskörð og tii Þingvaha, þaðan ekið í bæinn á mánudagskvöld. 12.—13. ágúst: Gengið úr Heiðarbóli í Valaból. 19.—20. ágúst: Berjaferð í Grafning. 26.—27. ágúst: Ekið austur að Múlakoti og Fljótshlíðin skoðuð. 2.—3. sept.: Áh'ahrenna i Valabóh. 9.—10. sept.: Farið í Heiðar- ból. Um hverja helgi verður auk þessa farið i bæði „hreiðrin“, Valaból og Heiðarból. Farfuglar hafa opna skrif- stofu í Trésmiðjunni h.f., Braut- arholti 30 (fyrir sunnan Tungu) öll miðvikudagskvöld kl. 8,30—10,30 og eru þar gefn- ar upplýsingar um einstakar ferðir og annað, sem viðkémur félaginu. Lýðveldisstoínunarinnar hátíðlega minnzt meðal Véstur-Islendinga. Forsætisráðherra Kanada flytur ræðu. Utanrikisráðuneytið hefir sent Vísi eftirfarandi tilkynn- ingu: • Eftir þeim upplýsingum, sem próf. dr. Richard Beck hefir lát- ið I té, mun lýðveldisstofnunar- innar verða minnzt. á ýmsan hátt meðal íslendinga vestan hafs og að tilhlutan þeirrá. Bæði vikublöðin íslenzku í Winnipeg „Lögberg“ og „Heimskringla“ gefa út sérstaka hátíðarútgáfu i tilefni af lýð- veldisstofnuninni, en ritstjóri hins fyrrnefnda er Einar P. Jónsson skáld, en Stefán Einars- son hins síðarnefnda. Fjölmenn undirbúningsnefnd frá Þjóðræknisfélaginu og öðr- um íslenzkum félögum í Winnipeg stendur að veglegum hátíðahöldum þar, og er síra Valdimar J. Eylands, vara-for- seti Þjóðræknisfélagsins, for- maður hennar. Hefjast hátíðahöldin með úlvarpi yfir stöðvar kanadiska ríkisútvarpsins að kvöldi þ. 16. júní. Er ráð fyrir gert, að for- sætisráðherra Kanada flytji þar stutt ávarp, en af íslendingum mun taka þátt í því útvarpi þeir Walter J. Líndal héraðsdómari, er flytur ræðu, og Grettir L. Jóhannsson, ræðismaður Is- lands, sem lesa mun kveðju- skeyti frá ríkisstjórn íslands. Meginþáttur útvarpsins verður söguleg frásögn í leikformi, einnig verður íslenzki þjóðsöng- urinn leikinn eða sunginn. Þ. 17. júní verða síðan hátíða- höld í Winnipeg, með ræðum, söng og upplestri frumortra kvæða. Ákveðið hafði verið, þegar dr. Richard Beck fór að heiman, að séra Philip M. Pét- ursson og Jón J. Bíldfell skyldu tala en einhverjir fleiri munu þar einnig taka til máls. Samtímis mun mikil hátíð haldin að Hnausum í Islend- ingabyggðinni í Nýja Islandi, og verður Guttormur J. Gutt- ormsson skáld meðal ræðu- manna þar. Þá verða einnig há- tíðahöld ijm sama leyti að Mountain i íslenzku byggðinni í Norðuf-Dakota, og að líkind- um í íslenzku byggðunum í Saskatchewan í Kanada. Lýðveldisstofnunarinnar verð- ur einnig minnzt á sérstakan hátt i sambandi við ársþing Lúterska kirkjufélagsins í Vest- urheimi, sem haldið verður um þær mundir í Argylebyggðinni íslenzku í Manitoba. Guðmundur Grímsson dóm- ari mun útvarpa ræðu um lýð- veldisstofnunina yfir útvarps- stöðvar í N.-Dako{a. Islendingar í New York gangast fyrir há- tíðahöldum þar í Jjorg; stúd- entafélagið íslenzka í Kaliforn- íu stendur að hátíðahöldum á þeim slóðum. Vafalaust verður lýðveldisstofnunarinnar einnig minnzt með samkomum ann- arsstaðar meðal Islendinga á Kyrrahafsströndinni og víðar á meginlandinu, þó dr. Beck væri eigi fullkunnugt um það, áður en hann lagði af stað að vestan. Ainbassador Banda> rík|anna ^rii^nr á funcfl ríkisstjóra. Afhendir embættisskilríki sín. Sendiherra Bandarikjanna, herra Louis G .Ðreyfus, gekk í fyrra- dag á fund ríkisstjóra og afhenti honum embæ.ttisskilriki sin. Við það tækifæri sagði herra Dreyfus, sem eins og kunnugt er, verður sérstakur fulltrúi Bandarikjaforseta sem ambassador ad hoc á lýðveldishátíðinni, meðal annars þetta: „Það er mér mildll heiður, að hafa verið útnefndur af hálfu forseta Bandaríkjamia til að leysa af hendi þetta virðulega starf í þann mund, er komið verður á lýðveldi á íslandi, en það er mikill viðburðm' og þáttaskipti í sögu Islands, Milli lslands og Bandaríkj- anna hefir verið vaxandi og söguleg samúð, sem hófst með samningnum 7. júh 1941, og hefir örlazt af sameiginlegum hagsmunmn og gagnkvæmum ávinning. Hefh’ þetta orðið til þess, að koma samskiptum þjóða okkar á grundvöll hinnar mestu vináttu og trausts og knýtt fastar og fastar bönd sam- vinnu og samúðar milli þjóð- anna. Hinn einlægi áhugi, sem for- seti Bandarikjanna hefir sýnt þessum samningi, er mér hvöt til að beita mér eins og eg fram- ast get að því verkefni, að auka enn á vinsamleg og innileg sam- skipti, sem þegar eru oi'ðin milli þjóðanna beggja. Eg vona að eg megi í því starfi minu njóta hjálpar og aðstoðar yðar, herra ríkisstjóri, og ríkisstjórnarinnar íslenzku. Eg átti tal við Roosevelt for- seta áður en eg fór frá Banda- ríkjunum, og fól hann mér sér- staklega að færa yður, herra rik- isstjóri, beztu árnaðaróskir sín- ar og amerísku þjóðarinnar. Öskaði harm Islandi gengis og yður persónulega gæfu, og leyfi eg mér að bæta mínum eigin óskum við óskir forsetans.“ Ríkisstjóri þakkaði sendiherr- anum og kvað sér ánægju að veitá embættisskjölum hans við- töku. Ilann fór einnig viður- kenningarorðum um fyrrver- andi sendiherra Bandarikjaima, herra Leland Morris, sem kvaddur hefir verið til annars embættis, og kvað ríldsstjóri hann eiga marga góða vini á Islandi og væri hann sjálfur einn í þeirra hópi. „Mér er það sérstaklega mikil ánægja,“ hélt ríkisstjóri áfram, „að þér skulið einnig vera hing- að kominn sem sérstakur full- trúi hins vii'ðulega forseta Bandai'íkjanna, til þess að vera staðgengill hans við hátíðahöld- in í tilefni af endux’reisn lýð- veldisins á Islandi. Sú sérstaka vinsemd, sem forsetinn hefir þannig sýnt oss á þessum merku tímamótum, hefir snert hjarta hvers einasta Islendings, og um leið verið íslendingum hin þýð- ingarmesta hvöt. Síðan 7. júlí 1941 hafa sam- göngur og samúð milli Islend- inga og Bandaríkjamanna auk- izt rnjög mikið eins og kunnugt er. því er mér það sérstök gleði að tjá yður ánægju Islendinga með þessa auknu gagnkvæmu þekkingu beggja þjóða. Vér höf- um lært að meta skilning hinn- ar miklu Bandaríkjaþjóðar á okkar fámennu þjóð og högum hennar, sem hefir komið fram jafnt frá stjórnarvöldum Bandaríkjanna og fulltrúum þeirra hér og frá herliði Banda- ríkjanna, því er dvalizt hefir hér samkvæmt samningum, nú í nærfellt 3 ár. Eg hygg, að ekki sé ofmælt að hér sé um fyrir- mynd að ræða, fyrirmynd, sem á rætur sínar m. a. í fölskva- lausri frelsisást Bandaríkjaþjóð- arinnar, sem er sama eðlis sem frelsisást vor Islendinga. Eg þakka yður innilega fyrir þá sérstöku kveðju, sem þér fluttuð mér frá forseta Banda- ríkjanna, og óskir þær, er henni fylgdu mér og Islandi til handa. Eg bið yður að tjá hæstvirtum forsetanum, að mér hafi þótt mjög vænt mn kveðju þessa eins og alla þá vinsemd, sem hann hefir sýnt íslenzku þjóð- inni og mér nú og áður. Mér þætti mjög vænt um, ef þér vilduð færa hæstvirtum for- setanum hjartanlegustu óskir mínar um gæfu og gengi honum til handa og Bandaríkjaþjóð- ínnx. Draumur um sjóbað- stað í Eljómskála- garðinum. Gísli Halldórsson vei-kfræð- ingur liefir komið fram með þá athyglisverðu hugmynd að koma upp heitum sjóbaðstað í syðri tjörninni í Hljómskála- garðinum. Þessu hyggst hann að koma megi í framkvæmd með því að dýpka syðri tjörnina, steypa 1 hana botn og aflíðandi barma, en þekja síðan barmana með ca. hálfs metei's þykku sandlagi. Heitu vatni og hreinum sjó yrði svo dælt í þennan lilula tjarnar- inar. I sambandi við þelta yrði konxið upp nýtizku baðhöll með allskonar böðum, svo og veit- ingasölum og jafnvel gistihúsi. Jafnvel gæti hin fyrirhugaða æskulýðshöll verið i einni og sömu bygghigu, svo og sjódýra- safn. Sjálfixr yrði garðurinn skreyltur með ljósaauglýsing- um, grosbrunni í tjörninni o. s. frv. og yrði hann þannig að einskonar Tivoli Reykvikinga. íþróttir á hátíðinni. Þáttur íþróttamanna í Þjóð- hátíðarhöldunum á Þingvöllum verður fólginn í hópsýningum fimleikaflokka og Íslandsglím- unni. Hefst sá þáttur ,á fimleika- hópsýningu karla, 180 talsins, auk 11 fánabera. Stendur sú sýning yfir í 15 mínútur. KI. 6 hefst Islandsglíman. Iveppendur verða 12. Fór fyrri hluti glímunnar fram hér í bæn- um í fyrrakvöld, en xirslita- glimurnai- eiga að fara fram á ÞjóöUátiöinm og standa þær yiir i 30 xxxinútur. , Auk farantlgi’ipa þeirra sem um er keppt, iietxr x'tkisstjórn- in ákveöiö að geía vandaðann siifurbikar til þessarar keppni. Kl. 6,45 sýixir úrvais finxiexka- flokkur kvenna, bæði staðæfixxg- ar og æfmgar á hárri slá, og verður þeirri symngu ioktð ki. 7. Kl. 9 um kvöldið sýna 18 úr- vals fimleikamenn, bæði stað- æfingar, slöldc, dýnuæfhigar og æfingar á hesti og kistu. Sú sýn- ing stendur sem hinar fyrri í 15 minútur og er þar nxeð lokið íþróttasýningum dagsins. Veggskjöldur lýð- veldishátíðarinnar. Nýlega er kominn á mark- aðinn smekklegur veggskjöld- ur í lilefni af lýðveldishátið- inni. Hefir hann undanfarna daga verið til sýnis hjá Morg- unblaðinu og í Bókabúð Lár- usar Blöndal. Á skildinum er merki lýð- veldishátíðarinnar, en á jaðri hans stendur með upphleyptu letri: Endurreisn lýðveldis á Islandi 1944. Veggskjöldur þessi er úr bi'once og smiðaði Gamla kompaníið fyrirmyndina, en ] Málmsteypan, Lindargötu 50, steypir hann. Eftirspurn eftir skildinum er gífux’lega mikil, en þeir sem vilja eignast hann, geta snúið sér til Bókaverzlunar Lárusar Blöndal og skrifað sig á lista fyrir honum. Verð íjarverandi frá 18. þ. m. til 8. júli næstk. Páll Sigurðsson læknir gegn- ir héraðslæknisstörfum á meðan. Skrifstofa mín verð- ur opin eins og venjulega. Iiéraðslæknirinn í Reykjavík, 16. júní 1944. Magnús Pétursson. Lýðveldiskortið Kaupið lýðveldiskortið og sendið kunningjum yðar og vinuni, fi’ímerkt með hátíðarfrímerki. — Verður selt í dag i Pennanum, hjá Eymundsen og á Lækjartorgi. , H.f. Eimskipafélag íslands. Aukafundur Aukafundur í Hlutafélaginu Eimskipafélagi íslands, vei’ður haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins i Reykjavik, laug- ardaginn 18. nóv. 1944 og hefst kl. 1 e. h. DAGSKRÁ: 1. Tillögur til lagabreytinga. ..? Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum vex-ða afhentir hluthöfum og unxboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavik, dagana 15. og 16. nóv. næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalski-ifstofu félagsins í Reykjavík. Rej’kjavík, 9. júní 1944. STJÓRNIN. Elsku litla dóttir mín andaðist aðfaranótt 13. þ. m. Kristín Olsen, Vesturgötu 17 B. Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð og hluttekn- ingu við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar og tengdaföður, Gísla Þorsteinssonar skipstjóra. Sérstakar þakkir færum við stjórn H.f. Allinace. Steinunn Pétursdóttir, börn og tengdabörn. Elzta og stærsia hl jóðíæra- verzlun 1 a n d s i n s. ^íjóh.^hjcÁLÍ6 J^JcjúPilc ' M IUOOl

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.