Vísir - 28.06.1944, Page 2
VISfR
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
- Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Nátttiöllið glottir.
j^ðalfundi Sambands íslenzkra
samvinnufélaga er nýlega
lokið. Bar þar margt til tíðinda
og sumt ekki ómerkilegt. At-
hyglisvert þótti, að átta full-
trúar kommúnista, sem sæti
áttu á fundinum, skipuðu sér í
eins konar skajldborg um Ey-
stein Jónsson prentsmiðjustjóra
og fylgdu honum að heita mátti
í hverju máli. Þannig fékk
flokkur þessi því til vegar kom-
ið, að Jón ívarsson, gamall og
góður samvinnumaður, var
felldur úr Sambandsstjórninni,
en Eysteinn kosinn í hans stað.
Má segja, að þetta hafi verið
eina afrekið, sem kommúnistar
unnu á fundinum, en að öðru
leyti fóru þeir hrakfarir. Voru
Jiannig samþykktar tillögur, er
fólu í sér ströngustu áminning-
ar til -kommanna, sem sam-
vinnumanna, og aðrir varaðir
eindregið við öllu þeirra atferli.
Er þar rakið að kommarnir
hafi viljað efna til klofnings-
starfsemi innan samvinnufélaga
bænda í þeim tilgangi að skipta
þeim og sambandinu, og sýnt
þessum samtökum mesta fjand-
skap og jafnvel haft í frammi
beinar ofsóknir að öðru leyti.
Konnnarnir reyndu að svara
fyrir sig og báru fram tillögur
þess efnis, að Jónas Jónsson
skyldi víttur fyrir óviður-
kvæmileg skrif í Samvinnunni,
en tillögunni var vísað frá með
algjörum meiri hluta atkvæða.
Þjóðviljinn ræðir málið í gær
og kemst áð þeirri niðurstöðu,
að ávítur þær, sem fundurinn
samþykkti gegn þeim, hafi ekki
við rök að styðjast að því er
klofningsstarfsemina snertir, en
þó boðar blaðið jafnframt, að
nú komi til kasta hinna róttæku
afla, sem þessi sögulegi fundur
vildi reka út fyrir garð sam-
vinnusamtakanna. Blaðið segir:
„£að er freistandi fyrir hina
róttæku menn að hverfa undan
merkjum S.I.S. og mynda nýtt
samvinnusamband, sem vissu-
lega hefir möguleika á að verða
voldugt á skömmum ' tíma.“
Jafnframt telur blaðið, að fram-
ferði sambandsþingsins hafi allt
miðað að því að kljúfa hina
vaxandi samvinnuhreyfingu við
sjávarsíðuna frá hinni eldri
samvinnuhreyfingu, í þeirri
von, að Framsóknarflokkurinn
geti enn um stund notað hana
sem grundvöll fyrir sína póli-
tísku baráttu. Kommarnir eru
nú ekki aldeilis á því að láta
Framsókn haldast þetta uppi,
en athyglisverðar eru þá aðfar-
ir þeirra til að ná markinu. Ey-
steinn Jónsson mætti sem full-
trúi KRON á fundinum, — eða
hinna yngri samvinnusamtaka,
sem kommárnir nefna svo. —
Kommamir veita honum braut-
argengi, þannig að hann er kos-
inn í stjórn S.I.S. Jafnframt
boða kommarnir að samvinnu-
hreyfingin í bæjunum muni
kljúfa sig út úr samvinnuhreyf-
ingunni og stofna eigið sam-
band. Er þá ætlun Jkommanna
að nota Eystein Jónsson til
slíkra hluta, eða hvers vegna
kusu þeir hann í stiórn sam-
bandsins og fylgdu honum svo
örugglega að málum að öðru
leyti? Það eitt er víst, að þótt
Reglugerð um mat á ísvörð-
um fiski til útflutnixigs.
Mkvæmar regrlur nin útbiinað lesta skipanna.
\m júlí næstkomandi gengur í
gildi reglugerð um mat og
eftirlit með útflutningi á ís-
vörðum fiski.
Hefir undanfárna daga verið
unnið að samningi reglugerðar-
innar og var hún undirrituð 1
gær. Helztu atriði reglugerðar-
innar eru sem hér segir:
I 1. og 2. gr. reglugerðarinn-
Eysteinn kunni sjálfur að liafa
ekki unnið til þess, hefir hann
fengið megnasta óorð á sig inn-
an samvinnuhreyfingarinnar,
vegna utanínudds kommanna
við hann, — og er hann strang-
lega grunaður um græzku, eink-
um vegna fyrri yfirsjóna og
einnig hins, hversu seinþroska
hann hefir reynzt í hugarfari
og ginkeyptur við öllum gylli-
boðum kommanna.
Viðureignin á sambands-
fundinum ætti að vekja menn
til skilnings á því, að barátta
sú, sem staðið hefir milli kaup-
félaga og kaupmanna um aldar-
fjórðung, — og hefir oft og ein-
att verið þjóðinni til skapraun-
ar og skaða, — er nú með öllu
úr spgunni. Þessir aðilar hafa
reynzt fullfærir um að taka upp
heilbrigða og eðlilega samvinnu
sín í milli, sem tekizt hefir vel,
þegar þeir sjálfir hafa ráðið, en
illa þegar ríkisvaldið liefir grip-
ið inn í til að draga fram hlut
annars þeirra á kostnað hins.
Slíkt er óeðlilegt og ósámboðið
heilbrigðum rekstri, að njóta
fríðinda á kostnað annara aðila
í samkeppni. Stjórnmálin eiga
ekki að snúast um samkeppni
eða samvinnu þessara aðila.
Þeir eru einfærir um að skipa
málum sínum sjálfir og munu
leysa slíkt svo vel af hendi, að
allir geti vel við unað. Þessir
aðilar eiga hins vegar að sam-
einast um hagsmuni sína
og þjóðarinnar allrar, með því
að heilbrigð og óspillt verzlun-
arstétt er einn af bornsteinum
þjóðfélagsins, á sama hátt og
spillt, hugsjónasnauð og gróða-
fíkin kaupmangarasamtök geti
verið og eru ávallt þjóðarböl.
Islenzk verzlunarstétt hefir allt
til þess leyst hlutverk sitt vel
af hendi, þótt einhverjir mis-
brestir kunni að vera á ,en und-
antekningar eru í öllum grein-
um og vítin eiga að vera til varn
aðar, og einnig til dómsáfell-
is. Einstaka nátttröll hafa berg-
málað sönginn frá átakaárum
kaupfélaga og kaupmanna, nú
jafnvel síðustu dagana. Með töl-
um hefir verið sannað, að slíkt
bergmál tilheyrir ekki deginum
í dag og er að engu hafandi.
Það er endurómur þess, sem
var, og jafnvel þótt nátttröllin
glotti og hyggist að halda við
sama söngnum, verða þau að fá
hljóminn utan að. Þar sem
hvorki heyrist kvein né hljóð-
an, verður slíkt heldur ekki
bergmálað, og þegar heilbrigð
og eðlileg samvinna verzlunar-
stéttarinnar allrar miðar að
gæfu og gengi lýðs og lands,
rennur upp fyrir almenningi að
glott nátttröllanna er stirðnað
og da.uðakalt ogaðbergmáliðvar
en er ekki. En hinsvegar eru til
nátttröll, gædd holdi og blóði,
sem vinna gegn samvinnu og
samhjálp þjóðarinnar allrar.
Glottið mun einnig stirðna á
þeim, þegar þjóðin hefir fundið
köllun sína og hver þjóðlegur
þegn innir af höndum skyldu
sína, án þess að sóa fé og kröft-
um í fánýta innbyrðis baráttu.
ar eru fyrirmæli, sem miða að
því, að fiskiskip (eða bátar),
sem veiða fisk, sem ætlaður er
til útflutnings ísaður, eða skip,
sem flytja eiga slíkan fisk, hafi
hreinar og sléttar lestir að inn-
an, svo fiskurinn merjist ekki
á slám eða ójöfnum. I lestum
skal þess gætt, að ekki hvíli of
mikill þungi á fiskinum og
skulu lestir, stíur og hillur í
þeirn málaðar eða lakkbornar
eigi sjaldnar en einu sinni á ári.
Lestir skipanna, svo og skilrúm
og hilluborð, skulu þvegin
vandlega, áður en fiskur er ís-
aður í skipin.
Þá eru í 3. gr. ákvæði þess
efnis, að ísvarinn fiskur, sem
er sendur héðan til útlanda,
skuli vera vel blóðgaður, nýr og
óskemmdur, svo ætla megi, að
hann geymist vel í ís og komi í
góðu standi út. Ekki má fiskur
liggja nema 1 sólarhring í fiski-
bát, frá því hann er vpiddur og
þar til hann er afgreiddur til ís-
unar. Hafi fiskur verið ísaður
jafnóðum og hann veiddist, má
hann liggja 2—3 sólarhringa í
fiskibát á tímabilinu frá 1. maí
til 30 sept., en helmingi lengur
á öðrum tímum árs.
Aðeins má nota hreinan, smá-
mulinn ís, eða hreinan snjó, til
ísunar. Við ísnotkun verður að
tilgreina, hve langan tíma áætl-
að sé að geyma megi fiskinn, og
einnig skal tilgreina árstima,
veðráttu og ástand íssins. Til
leiðbeiningar er í 8. gr. bent á,
að ckki sé ráðlegt að nota
minna en 300 kg. af ís í eina
smálest af fiski.
Skylt er bveíjum útflytjanda
að tilkynna fiskhleðslu svo tím-
anlega, að mögulegt sé fyrir yf-
irfiskimatsmann og mnboðs-
mann að skoða farm skipsins,
áður en fiskur er látinn í það,
svo þeir geti annast nauðsynlegt
eftirlit fiskjarins.
Síðan gefur yfirfiskimats-
maður vottorð um fisk þann,
sem fluttur er út.
Yfirfiskimatsmaður eða um-
boðsmaður hans getur stöðvað
fisksendingar, ef ákvæðum
reglugerðarinnar er ekki full-
nægt.
I 12. gr. er tekið fram, að á-
kvæði þessarar reglugerðar nái
til allra skipa, er flytja út fisk.
Umráðamönnum þeirra skipa,
er flytja út eigin afla, er skylt
að hlýta ákvæðum reglugerðar-
inanr, en með því að fiskimats-
menn geta ekki haft eftirlit með
afla þeirra eða meðferð hans í
skipinu, er yfirfiskimatsmönn-
um aðeins skylt að gefa vottorð
um, að lestirnar hafi verið
hreinar og allur útbúnaður
þeirra í góðu lagi.
1 13. gr. eru sett viðurlög við
brotum á ákvæðum reglugerð-
arinnar og eru það sektir, allt
að 10 þús. kr.
t
r Inoi
á Sandi.
Guðmundur skáld frá Sandi
lézt í sjúkrahúsinu í Húsavík í
fvrradag. Hafði liann legið
rúmfastur nokkuð á annað ár
og átt við erfið veikindi að
stríða, en sýndi þó aldréi betur
en í baráttunni við dauðann,
hvilíkur afburðamaður og
kjarkmaður hann var. Hann
vissi hvað verða vildi, en hop-
aði Iivorki né æðraðist.
Guðmundur skáld Friðjóns-
son var fæddur 24. október
1869 og ól mestan aldur sinn á
Sandi í Aðaldal. I æsku lauk
hann gagnfræðaprófi á Möðru-
völlum, en mun ekki hafa átt
kost á frekari framhaldsmennt-
un, enda gengu um það leyti
; einhver mestu erfiðleikaár yfir
i þjóðina, þannig að kostur al-
mennings mun aldrei hafa ver-
ið jafnþröngur. Allt líf Guð-
; mundar var honum skóli. Hann
j las óhemju um dagana af er-
lendum og innlendum bók-
j menntum, en hélt ennfremur
þeim merkilega sið, að taka sig
upp frá búi sínu nokkurn tíma
ársins og fara í fjölmennið til
Reykjavíkur eða Akureyrar til
þess að ræða við menn, fræða
þá og fræðast. Þetta var anda
hans nauðsyn engu síður en
matur og drykkur líkamanum.
Guðmundur var djúpvitur mað-
ur, einrænn nokkuð, en af-
bragðs skáld. Út hafa verið
gefnar eftir hann 15 bækur i
bundnu máli og óbundnu, en
handritasafn mun hann hafa
átt nokkurt óútgefið.
PRESTASTEFNAN
Frh. af 1. siðu
ist biskup starfs hans að ís-
lenzkri menningu og kirkju-
málum með hjartanlegum orð-
um viðurkenningar og þakklæt-
is. —
Svofelld kveðja barst frá
Stórstúkuþinginu á Akureyri:
„44. þing Stórstúku Islands,
haldið á Akureyri, þar sem Góð-
templarareglan var stofnuð fyr-
ir 60 árum, sendir Prestastefn-
unni innilegustu kveðjur og
þakkir fyrir þá ómetanlegu
lijálp, sem hún hefir veitt Regl-
unni í baráttu hennar frá önd-
verðu. Sérstaldega þakkar Stór-
stúkuþingið herra biskupinum
yfir Islandi og prestum lands-
ins fyrir það, með hve kær-
leiksríkum hug Reglunnar var
minnzt í kirkjum landsins á 60
ára afmæli hennar í vetur sem
leið. — Stórtemplar.“
>■ Biskup sendi svar við hinni
hlýju kveðju.
Kosnir voru í allsherjarnefnd
til þess að greiða fyrir störfum
prestastefnunnar: Jakob Ein-
arsson prófastur, Sigurður
Haukdal prófastur, Friðrik
Hallgrímsson dómprófastur,
Hálfdan Helgason prófastur
og sr. Gunnar Árnason.
Prestastefnan samþykkti í
einu hljóði svofellda yfirlýs-
ingu, eftir tillögu sr. Jakobs
Jónssonar:
„Prestastefnan óskar bisk-
upi, dr. Sigurgeir Sigurðssyni,
til hamingju með vesturför
hans og góða heimkomu, og
þakkar honum starf það, er
bann innti af hendi vestan hafs.
Það er álit prestastefnunnar,
að för hans hafi haft mikla
þýðingu fyrir þjóð vora og
kirkju, vegna þeirrar kynning-
ar, sem af lienni leiðir, og
þeirrar þjóðræknisstarfemi,
sem við liana er tengd, svo og
vegna þeirra vináttutengsla,
sem með för hans hafa verið
tengd milli kirknanna vestan
hafs og austan.“
Þá var fundi frestað til morg-
uns.
Kl. 8.30 flutti sira Benjamín
Kristjánsson snjallt erindi í
Dómkirkjunni, og nefndi liann
erindið: Hvcið getur bjargað
menningunni? Var því erindi
útvarpað.
Fjöldi af ljóðum Guðmund-'
ar mun lifa meðan íslenzka
þjóðin kann að meta fegurstu
bókmenntir sínar.
Þessa ágæta skálds og göfug-
mennis verður nánar getið
síðar.
Scrutator:
^KjOudJjji aÉmmjnwtyS
o
óþokkabragð.
Eftirfarandi hefir blaSinu bor-
izt:
Nú um síðastliðna helgi voru
ung hjón, héðan úr bænum, á
gangi á götu einni á Stokkseyri,
sem ekki er í frásögur færandi,
en þegar minnst varSi hleypur
köttur í veg fyrir þau, lætur vina-
lega aS þeim og mjálmar ámát-
lega. Konan klappaSi kettinum, en
hann fékkst ekki um þaS, heldur
hljóp undan og lét þannig, sem
hann vildi, aS þau fylgdu sér eftir.
GerSu hjónin þaS og hljóp köttur-
inn á undan þeim inn í port eitt.
Er þangaS kom blasti viS þeim ó-
fögur sjón. Lítill kettlingur hékk
þar, bundinn upp á framlöppunum
og hafSi veriS hert aS hnútunum,
þegar bundiS hafSi veriS um lapp-
ir hans. Hjónin skáru strax snær-
ið og leystu kettlinginn. — Þessi
saga, sem hér hefir veriS sögS,
lýsir á átakanlegan hátt hinni
mestu illmennsku, svo menn fá
varla trúaS því, aS annaS eins og
þetta eigi sér staS í menntuSu
þjóSfélagi. Væri þaS æskilegt, ef
einhver kemst á snoSir um þaS,
hver hafi framiS þetta illvirki, aS
hann léti þaS uppskátt viS yfir-
valdiS á- staSnum, svo varmenniS
geti fengiS maklega refsingu fyrir
tiltæki sitt.
- . í
Sumarsól og göturyk.
ÞaS er orSa sannast, aS fátt eSa
ekkert sé Reykvíkingum kær-
komnara en sumar og sól, en allt
öðru máli gegnir um göturykiS,
sem er eins og hákarl í kjölfari
þessarar dýrSar. Þó fólk langi til
þess aS njóta blíSviSrisins, meS
því aS liggja eSa sitja úti á tún-
blettunum fyrir framan hús sín,
er slíkt nær ógerningur, því bílar
og vindhviSur þyrla upp siíkum
rykskýjum á götunum í nánd, aS
von bráSar eru öll vit manna íull
af sandi og mold. Almenningur
hér í bæ þekkir of vel þennan vá-
gest — göturykiS — til þess aS
ástæSa sé til aS kynna harn hér,
en þaS virSist aldrei nógu vel
brvnt fyrir hlutaSeigandi yfir-
völdum, aS gera þaS sem hægt sé
til þess aS hlífa fólki viS þessnm
fjára. Nú undanfarna daga hefir
göturykíS veriS raeS mesta nióti,
en va*nsbílarnir láta sanF ekki á
sér kræla. Þetta er nauSsynlegt að
lngfæra og það setn fyrst. Vreri
æs'UIegt og eSIiIegast, aS bílarnir
væru ávallt til reiSu, þegar á þeim
þyrfti aS halda, því enda þótt þeir
ekki geti samdægurs annaS cilum
bænum, horfir strax til bóta, ef
nokkrar götur verSa yfirfarnar á
dag.
Gamaldags gatnagerð.
Nú þessa dagana er veriS aS
malbika NjarSargötuna upp á
SkóIavörðuhæS, en nýlokiS er viS
aS malbika Freyjugötuna aS
NjarSargötu, frá Barónsstíg. AS
vísu er þetta mikil bót fyrir þá
sem viS götuna búa og vegfarend-
ur, sem um hana fara, en gang-
stéttirnar, beggja vegna viS
Freyjugötuna, eru enn í sínu
gamla horfi, og þaSan eys vind-
urinn rykinu út á götuna og í
loft upp, svo í þeim efnum er HtiS
unniS. Slík vinnubrögS sem þessi
eru alltof gamaldags, til þess aS
viShafa þau nú á tímum, enda er
slíkt fásinna að hlaupa frá hálf-
köruSu verki. AuSvitaS átti sam-
tímis því, aS gatan var malbikuS,
að leggja gangstéttina og ganga
aS öllu leyti frá þessum götu-
spotta, svo og fleirum, sem eins
er ástatt fyrir. Njálsgatan hefir nú
veriS fullgerS á kafla, bæði gatan
sjálf og gangstéttirnar og er slíkÞ
til fyrirmyndar í gatnagerS,
5 manna biíieið,
Dodge 1940, er til sölu og
sýnis í Shellportinu við
Lækjargötu kl. 8—10 í kvöld.
Bifreiðin er öll sem ný.
Telpukjólar,
úr tvisti og sirzi á 1—10 ára.
H. T0FT
Skólavörðust. 5. Sími 1035.
Ungur maður
óskar ef tir atvinnu eftir kl. 6
á kvöldin. Ymisleg vinna
kemur til greina. — Uppl. í
síma 4006 kl. 1-—8 i kvöld.
Chrysler,
model 1941, til sölu af sér-
stökum ástæðum, frá kl. 5—
7 á Hringbraut 143.
Tilboð
óskast í 5 manna Ford —
módel 1935. — Til sýnis í
porti Sænsk-íslenzka frysti-
hússins. Nánari upplýsingar
hjá vélstjóranum. Sími 2362.
2 djúpir stólar
nýir, til sölu, klæddir með
Angora plussi. —Uppl. Öldu-
götu 55, niðri.
VERKFÆRI
og Á H ö L D
verða tekin upp í dag,
svo sem:
Cementskóflur,
Skóflur, flatar,
Boltaklippur,
Hamrar allskonar,
Skrúflyklar,
Hallamælar,
Carborandumbrýni,
Sleggjur,
Glerskerar,
Kittisspaðar,
Sporjárn,
Skrúfjárn,
Málbönd allskonar,
Sköfur,
Meitlar,
Sandpappír
og margt fleira.
GEYSIR H.F.
V eiðarfæradeildin.