Vísir - 28.06.1944, Page 3
VISIR
Fangínn í Zenda.
Heimsfræg og afar spennandi skáldsaga, eftir Anthony Hope, er komin í bókabúðirnar. Frámhald af bessari bók er sagan RUPERT
hentzau,semkemurúthjá VASAUTGÁFUNNI * sumar. — VASAÚTGÁFUBÆKURNAR ERU ÚRVALS
SKEMMTIBÆKUR! — Kaupiðþærfráupphafi! ------------- VASAÚTGÁFAN. HAFNARSTRÆTI 19-
T
IMagnús Sveinssoni
forstjóri |
F. 31. júlí 1894. — D. 22. júní 1944.
Hann var Árnesingur í liáð-
ar ættir, koniinn af fjölmenn-
ustu og góðkunnustu ættum í
efra hlut héraðsins, Reykjaætt,
Langholtsætt og ætt síra Kol-
Iieins í Miðdal.
Faðir Maðnúsar var Sveinn
Bjarnason (d. 1938), frá
Austurhlíð, Loftssonar, Eiríks-
sonar á Reykjum á Skeiðum og
síðari konu Eiríks Guðrúnar
Kolbeinsdóttur prests í Miðdal
í Laugardal, Þorstein'Ssonar. —
Sigríður Magnúsdóttir, móðir
Magnúsar, lifir son sinn, 79 ára
að aldri, dóttir Magnúsar, Magn-
ússonar alþingismanns í Syðra-
Langholti (d. 1859) Andrésson-
ar og konu hans Katrínar Ei-
ríksdóttur á Reykjum.
Magnús var fæddur í Bergs-
holti í Staðarsveit 31. júlí 1894,
en fluttist á barnsaldri með for-
eldrum sínum vestur í Álfta-
fjörð, þarsem faðir hans starf-
aði um margra ára skeið við
hvalveiðastöð Herlufsens.
Árið 1913 fór Magnús lil Ak-
ureyrar, dvaldist þar einn vet-
ur og tók próf við gagnfræða-
skólann um vorið, en næstu ár
aflaði hann sér ýmis konar
menntunar á eigin spýtur. Öll
styrjaldarárin fyrri starfaði
liann í| þjónustu Landsverzlun-
arinnar, en árið 1919 fluttist
liann til Vestmannaeyja og
stundaði þar útgerð, og var
jafnframt bæjargjaldkeri þar
um nokkur ár. Þar kvæntist
hann Elínu Einarsdóttur frá
- Krossi í Lándeyjum, en missti
hana eftir skamma samhúð.
Varð þeim ekki barna auðið.
Árið 1933 flullist Magnús aft-
ur til Reykjavíkur, tók við
stjórn olíufélagsins Nafta h.f.
og stjórnaði því með miklum
dugnaði og forsjá til dauða-
dags.
Síðan Magnús kom til
Reykjavíkur, bjó hann einatt
hjá bræðrum sinum, og' foreldr-
um þeirra, meðan beggja naut
við. Var jafnan með þeim öll-
um in mesta ástsemd, og er
þeim sár harmur kveðinn að
fráfalli hans.
Magnús sór sig í ættir sínar
í sjón og raun. Hann var vel
viti borinn. Tryggðatröll og
manna staðfastastur. Hann var
óhlutdeilinn um annarra hag,
en inn raunbezti, tryggur og
vinfastur. Gekk hann að hverju
starfi með trúleik og eljan.
Hann var meðalmaður á hæð,
en manna þreklegastur á velli.
I Vestmannaeyjum aflaði
liann sér mesta trausts og virð-
ingar, sem dæmin sýndu. Hon-
um lét jafnvel útgerð, er liann
rak fyrir sjálfan sig, sem ráðs-
mennskan fyrir bæjarfélagið,
'og var hún þó ærnum vand-
kvæðum bundin.
Magnús hafði mesta yndi af
veiðiskap, einkum silungsveiði
í fjallvötnum. Stundaði liann
þá iðju mjög fast um lielgar
á sumrum, og oftar í fríum og
hjáverkum sínum. Hann átti
verskála og bát við Þingvalla-
vatn og fleytu átti liann við
Reyðarvatn. Hafði þá löngum
uppgripa-afla á stöng, þótt öðr-
um aflaðist tíðum lítið. Hann
var allra manna veiðnastur á
spón og kunni manna bezt að
greina, hverjar tegundir liæfði
bezt á hverjum stað og í livert
sinn eftir veðri og staðháttum.
Hann nefndi veiðispónu sina
gælunöfnum, „Djúpskegg“ og
„Grunnskegg“ o. fl. slíkum
nöfnum. Þótti þeim, sem
þekktu starfsháttu Magnúsar
við veiðar, ekki tíðindum sæta,
þótt hann hefði tífaldan afla
við aðra, er veiði stunduðu á
sömu slóðum. Var þá ekki sleg-
ið slöku við, en lialdið áfram
þótt tregur væri afli í svip.
Kvaðst Magnús ekki þurfa að
leita á fjöll veiðifanga til að
livíla sig. Oft reyndi liann mjög
á sig í ferðum þessum, bar
þungar byrðar, ef þurfti,
þreytti fast róðurinn stundum.
Einna þreyttastur kvaðst hann
hafa verið einu sinni, er liann
barði gegn bvössum austræn-
ingi í úrfellisveðri á myrku
liaustkveldi úr Hagavík í
Grafningi yfir þvert Þingvalla-
vatn, en ekki linnti hann fyrr
en lieima i vör að Miðfelli.
Minnir mig, að liann væri þrjár
klukkustundir að berja yfir
vatnið.
Þótt Magnús væri jafnan ið
mesta hraustmenni að burðum
og yrði nær aldrei misdægurt,
náði hann þó ekki fullum
finnntugsaldri. Hann fékk
skyndilega lijartabilun um nótt
og andaðist í liöndum bræðra
sinna, sem þá vóru einir heima.
Magnús er borinn til grafar
í dag.
Benedikt Sveinsson.
BLIKKBRÚSA notaða
k a u p i r
Verzlun 0. Ellingsen H.L
Foreningen Dannebrog.
Alt udsolgt til Stiftelsesfesten Lördag d. 1. Juli.
Husk at Bilerne körer Kl. 18.15 præcis.
fra Liverpool.
BESTYRELSEN.
Axels Corte*
Smiðjustíg 5,
getur nú aftur tekið á móti innrömmun á smærri og stærri
myndum.
Innrömmunarstoía Axels Cortez,
S m i ð j u s t í g 5,
UNGLINGA
vantar frá næstu mánaðamótum til að bera út blaðið um eftir-
greind svæði:
RAÚÐARÁRHOLT
SOGAMÝRI
Talið við afgreiðsluna. — Sími 1660.
DAGBLAÐIÐ VlSIR.
Hattaverzlun
til sölu. Nánari upplýsingar gefur
Guðlaugur Þorláksson,
Austurstræti 7. Sími 2002.
Smíðum |
húsgögn og innréttingar
við allra hæfi.
(MM 3M)Sa®QS32a[D %
Skólavörðustíg 6B. Sími 3107.
I þjóðliátíðarblaði Vísis urðu þau leiðinlegu mistök, að
í grein um Gamla Kompaníið h.f. var birt mynd af stól,
er Kompaníið hafði alls ekki smíðað. Hér birtist mynd
af rétta stólnum, sem er að öllu leyti smíðaður og
bólstraður hjá Gamla Kompaníinu, en útskurðinn hefir
E. Wiese gert. Hinn stóllinn, sem myndin var af í há-
tíðarblaðinu, var smíðaður og bólstraður hjá Kristjáni
Siggeirssyni, en Ágúst Sigurmundsson hafði skorið
hann út. Er óþarfi að taka fram, að báðir stólarnir eru
hin mestu listasmíði, enda af hinum færustu mönnum
gerðir.
PILT eða STÚLKU
vantar nú þegar.
Kjötbúð Sólvalla,
Sólvallagötu 9.
Fyrsti skozki prestur-
inn á íslandi.
Nýlega hefir fyrsti skozki
presturinn á Islandi verið vígð-
ur hér á landi. Er það sr. Robert
Jack, en hann er nú á förum
héðan úr bænum að Eydölum
við Breiðdalsvík, en þangað er
hann vígður.
Síra Robert kom hingað árið
1936 í boði knattspyrnufélags-
ins Vals, sem knattspyrnukenn-
ari. Kenndi hann fyrst í stað
knattspymu hjá Val og Háskól-
anum, en þar kenndi hann
jafnframt ensku. Eftir árs veru
hér fór hann utan til þess að
sækja skozkan knattspymu-
mannaflokk og kom upp með
hann árið 1937. Eftir það fór
hann vestur á Isafjörð og;
kenndi þar knattspyrnu, síðan
til Akureyrar, Vestmannaeyja,
Seyðisf jarðar, Djúpavogs og um
hríð kenndi hann knattspymu
í Breiðdal og Stöðvarfirði, en
nú fer hann þangað sem prest-
ur. —
Árið 1939 íók hann fyrir al-
vöru að nema guðfræði við há-
skólann og lauk þaðan prófi í
vor. Sira Robert Jack er fæddur
árið 1913 í litlu þorpi í grennd
við Glasgow i Skotlandi. Er síra
Robert ákveðinn í því, að
stunda prestskap hér áfram,
samkvæmt innri köllun sinni.
Prestakall það, sem síra Ro-
bért er vígður til, er víðáttu-
mesta prestakallið, sem veitt
var í vor. Hefir hann skýrt blað-
inu svo frá, að fyrir mörgum
árum, áður en hann kom til Is-
lands eða lærði eitt orð í ís-
lenzkri tungu, hafi hann ein-
hverju sinni hitt séra Pétur T.
Oddsson, sem þá dvaldi i Skot-
landi og var síðasti prestur á
Djúpav. á undan sr. Robert, sem
mun einnig þjóna því presta-
kalli, og hafi þeir þá tekið tal
saman um Island og síra Pétur
sýnt honum myndir frá Islandi,
en þær voru allar frá Djúpa-
vogi. Sízt grunaði síra Robert
þá, að þarna ætti hann eftir að
verða prestur, því þá var hann
ekki farinn að sjá Island og
hafði lítið um það heyrt talað.
En enginn veit sína ævina. . ..
Frá þingi Í.S.Í.
Iþróttír undir
eiiinl forystn.
Ársþingi I.S.I. lauk í fyrrinótt.
Var stjóm þess nedurkosin og
er þetta í 20. skipti, sem Bene-
dikt G. Waage er kjörinn for-
seti Iþróttasambandsins, en alls
hefir hann setið 30 ár í stjórn
þess.
BEZTAÐ AUGLÝSA í VlSI
Maðurinn minn og faðir,
Erlendur Ragnar Teitsson,
andaðist á Landsspítalanum að morgni 27. J m.
Fyrir hönd vina og ættingja.
Elín Ingvarsdóttii og dóttir.
Þingið hafði roörg mál til
meðferðar, m. a. var kosin 5
manna nefnd til að ræða við U.
M.F.I. um grundvöll fyrir sam-
einingu íþróttaforustunnar i
landinu. Nefndina skipa þeir
Frímann Helgason, Þorgils Guð-
mundsson, Þorgeir Sveinbjarn-
arson, Sigurpáll Jónsson og
Þórarinn Magnússon.
Þá samþykkti þingið áskor-
un, samkvæmt tillögu Sigurðar
Bjarnasonar og Þorsteins Bern-
harðssonar, til Alþingis, um að
breyta skemmtanaskattslögun-
vim þannig að verulcgur hlut*
skattsins gangi til íþróttastarf-
seminnar í landinu.