Vísir - 04.07.1944, Blaðsíða 1

Vísir - 04.07.1944, Blaðsíða 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritstjórar Blaðamenn Slmii Auglýsingar 1660 Gjaldkert 5 llnur Afgreiðsla * 34. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 4. júlí 1944. 147. tbl. Linkomies ver sieínu Finna. Tanner situr áfram. Linkomies forsætisráðherra Finna hefir haldið útvarpsræðu til þjóðarinnar. Ræddi liann.uni stefnu stjórn- arinnar, er hún tengdist Þjóð- verjum enn traustari böndum í striðinu gegn Rússúni. Linkom- ies sagði, að Finnar yrði að bergjast áfram með Þjóðverj- um til að endurgjalda Þjóðverj- um hjálp þeirra, enda gseti Finnar ekki liarizt áfram án að- stoðar þeirra. Þá sagði Linkomies og, að meðal þjóðarinnar hefði komið fram kröfur um breytingar á stjóminni, til þess að tekin ju’ði upj) ný utanrikisstefna, en þótt látið hefði verið að þeim kröf- um, myndi það ekki hafa haft neina breytingu á afstöðuna út á við. Þá hefir það verið borið til baka, að Tanner fjármálaráð- herra liafi ekki sagt af sér. Flokkur lians hefir ákveðið, að allir ráðherrar flokksins, fimm að tölu, muni verða áfram í embættum sínum. Þá hefir flokkurinn og ákveðið að lialda áffam að sækja þingfundi og hvatt alla sína menn til að veita stjórninni stuðning. —o— Hitler hefir minnzt Dietl hershöfðingja vegna dauða hans í flugslysi nú fyrir skemmstu. Sagði hann, að Dietl liefði ekki einungis verið tryggur fylgis- maður nazista, lieldur liefði liann einnig verið meðal beztu herforingja Þjóðverja. inlandifi s.l. Amerískar flugvélar vörpuðu samtals nærri því 60,000 smál. sprengja á þýzkar stöðvar í V.- Evrópu í síðasta mánuði. Eins og sprengjumagn það, sem brezki flugherinn varpaði til jarðar á sama tíma, er þetta meira sprengjumagn en amcr- ískar flugvélar hafa nokkuru sinni vhrpað á þýzkar stöðvar á ekki lengri tíma. Flugvirki og Liberator-vélar vörpuðu sam- tals 57,000 smál., en litlar sprengjuflugvélar vörpuðu 1750 smál. að auki. Rússar hálfnaðir til A-JBáðir fylkingararmar Prússlands á 10 dögumj bandamanna í sókn Mestu hrakfarir siríðsins vofa yfir Þjóðverjum Jíapauskri her- deild gereytt. Bandamenn í Burma hafa gereytt japanskri herdeild, sem var mjög sigursæl fyrr í stríð- inu. Herdeild þessi — sú 18. — barðist á svæðinu umhverfis Myiikyina og Maugaung, en nú eru fallnir að minnsta kosti fjórir af hverjum fimm her- mönnum hennar, nokkrir verið teknir til fanga og hinir að lík- indum orðið hungurmorða hingað og þangað í frumskóg- unum. Fyrr í stríðinu harðist þessi deild í Kína, á Malakka- skaga og í sókninni norður eft- ir Burma og gat sér mikinn orð- stír. ÍOOO stadip teknip í gær. J|ússar hafa sótt svo geyst fram síðustu hálfa aSra viku, aS þeir hafa á þeim tíma fariS hálfa leiSina til Austur- Prússlands frá vetrarstöSvum sínum. Eins og nú horfir virðist lítil von til þess fyrir Þjóðverja, að þeir geti komið í veg fyrir það, að Rússar brjótist alla leið til Eystrasalts, en þá væri her, sem í eru hundruð þúsunda manna, króaðir inni í Eystrasaltsríkjunum litlu. Er svo væri komið mundi rúss- neski flotinn í Kronstadt gera úrslitatilraunina til að brjótast út úr Finnska flóa og banda- menn búast við því, að hann mundi geta hindrað allar sam- göngur við þenna her, í sam- vinnu við flugher Bússa. Yfir Þjóðverjum vofir því mesti ó- sigur þessarar styrjaldar. 1000 bæir og þorp. Rússar tóku alls um 1000 bæi og þorp á vígstöðvum Hvíta- Rússlands og norður á milli Ladoga og Onega í gær. Mikil- vægust var taka Minsk, sem var síðasta virki Þjóðverja í Hvíta- Rússlandi. Mikilvægi borgar- innar má sjá á því, að í þýzka útvarpinu í fyrrakveld var sagt, að þessari borg yrðu Þjóðverjar að halda, enda streymdi þangað lið og þirgðir. 1 gærmorgun var svo sagt, að Þjóðverjar hefði „losað sig úr sambandi“ við Rússa, bar- izt væri á stóru svæði umhverf- is Minsk og bærist leikurinn fram og aftur. Þá voru Rússsar um það bil að fara inn í borgina. Styrkja hægra fylkingararm. Eins og áður hefir verið sagt, voru Rússar komnir svo langt fram hjá Minsk fyrir norðan og sunnan, að borgin var eins og á „pokabotni“. Nú leggja Rúss- ar einkum áherzlu á að styrkja hægra fylkingararm sinn. Getur það táknað, að þeir ætli að sækja niður með Dvinu til Riga. | Ólafnr Noregsprins ; yfirhershöfðingi Norðmanna. Norska stjórnin hefir útnefnt ; Ólaf ríkiserfingja sem æðsta j hershöfðingja alls norska hers- i ins. 1 Hershöfðingi Norðmanna, Ilansteen, taldi að það niundi verða Noregi fyrir beztu, að rík- iserfinginn tæki sem mestan þátt i baráttunni fyrir frelsi í Noregs og hefir því lagt til, að ' Iiann verði skiipaður ýfirhers- höfðingi. I Ólafur ríkiserfingi gekk í her- foringjaskólann í Oslo árin 1921 -—24 og gegndi síðan margvís- i legum störfum í hernum. Hann varð 41 árs á sunnudag, 2. júlí. Boðað til verk- falls á Selfossi. Nýafstaðin er atkvæða- greiðsla í Verkamannafél. Þór í Sandvíkurhreppi, Selfossi, um það hvort stjórninni skuli veitl heimild til að boða verkfall hjá Kaupfél. Árnesinga, Sigurði Óla Ólafssyni kaupmanni og' hreppsnefnd Sandvíkurhrej)ps, ef samningar um kaup og kjör liafi ekki náðst fyrir 11. júlí n. k. Fór atkvæðagreiðslan þann- ig, að allir félagsmenn sem staddir voru í hreppnum greiddu atkvæð, að einum und- anskildum, og sögðu þeir allir já. Stjórn félagsins öðlaðist þvi heimild til boðupar verkfalls. Þetla félag liefir aldrei haft samninga, en verkamenn hafa unnið 10 klst. á dag og haft kr. 2.10 í grunnlaun á klst. Vilja þeir fá sama kaup og í Hvera- gerði og Eyrarbakka, eða kr. 2.45 og 8 stunda vinnudag. Fyrir réttum mánuði Sunnudaginn 4. júni héldu bandamenn inn í Rómaborg, fyrstu liöfuðborgina í Ev- rópu, sem bandamenn stökkva Þjóðverjum úr. Þjóðverjar lýstu borgina ó- víggirta, en gerðu samt til- raun til að verjast fyrir suniian hana. En mótsjiyrna þeirra var fljótlega brolin á' bak aftur. Á myndinni sjást amerískir hermenn sitja á skriðdreka inn í borgina. Myndin er óskýr, J>ví að hún var send Jiráðlaust frá Ítalíu vestur um haf. Fiskaflinn íyrir mán. jan.—apríl 1944. Fiskaflinn fyrir mánuðina jan.—apr. 1944, miðað við slægðan fisk með haus, var sem hér segir: Isaður fiskur 75.642 smá- lestir á móti 59.369 smál. fyrir sömu mánuði 1943. Fiskur til frystingar var 39.195 smál. en 13.143 smál. á sama tíma i fyrra. Fiskur til lierzlu er 1.115 smál., en var 1.105 smál. í fyrra; fisk- ur til nðursuðu er 139 smál. en 98 smál. á sama tíma í fyrra. Fiskur í salt 117.954 smál., en 75.722 smál. í fyrra. Fjármálaráðstefnan í U.S. AlJ)jóða gjaldeyrismálaráð- slefnan í Bretton Woods i New Hampshire kom saman á laug- ardag. Morgen tu f jármála ráðherra Bandaríkjanna var kjörinn for- seli ráðstefnunnar. 44 þjóðir taka .J)átt í ráðstefnunni, sem um 500 manns sitja. 3 nefndir liafa verið kjörnar og á fulltrúi Islands á ráðstefnunni sæti í einni þeh'ra. Skutu niður 3 rakettu- sprengjur hvor í einni flugferð. Þjóðverjar halda áfrpm að skjóta rakettusprengjum yfir Ermarsund og valda þar tjóni á mönnum og mannvirkjum. Flugsveitir Breta eru sífellt á sveimi yfir Ermarsundi til að taka á irióti skeytnnum áður en 1 þau komast inn yfir land, en þó er ekki hægt að komast hjá því, ^ að einhver komist leiðar í sinnar. Þess var getið i fregnum í gær, að tveir brezkir flugmenn liefði hvor um sig skotið niður | þrjár sprengjur og flugmenn úr arinari sveit skutu niður þrjár samtals. Þýzka útvarpið lieldur áfram að ógna Bretum með enn tiarð- ari rakettu-sþrengjuárásum. Verkfallsboðunin í Eyjum gengur í gildi í dag. I Vestmannaeyjum hafa að undanförnu staðið yfir sam- komulagsumleitanir á milli sjó- manna og vélstjóra annars veg- ar og útvegsmanna hins vegar, um hlutaskiptingu á sítdveiði- skipum í sumar, en enginn ár- angur hefir enn náðzt. Höfðu sjómenn og vélstjórar boðað til verkfalls í dag, ef ekkert sam- komulag hefði náðzt fyrir þann tíma. Að vísu er hér ekki um raunverulegt verkfall að ræða, því skip frá Eyjum eru enn ekki farin á sild, en aftur á móti hefir verkfallsboðunin það í för með sér, að skipin fara ekki á síldveiðar fyrr en deilan er leyst. Fundir stóðu yfir 1 allan gær- dag út af þessu og munu vænt- anlega halda áfram, þar til úr rætist. Enginn sáttasémjari er enn kominn í málið. Kveldúlfur selur Snorra goða, Kveldúlfur h.f. er búinn að selja botnvörpunginn Snorra goða. Kaupandi er fiskveiðahluta- félagið Viðey. Mun J>að breyta nafni skipsins, en ekki mun fullráðið, livað það verður látið lieita. Snorri goði er þriðja skipið, sein Kveldúlfur selur síðústu mánuðina. Iiið fyrsta var Egill Skallagrímsson, sem nú lieitir Drangey og ,er eign samnéfnds lilutafélags. Litlu síðar var Ar- inbjörn tiersir seldur Óskari Halldórssyni útgerðarmanni og dætrum lians. Heitir togarinn nú Faxi og er R—17, en var R—1. Deila vörnbíl- §tjóra óle^§t. Verkfall vörubifreiðastjóra hér í Reykjavík heldur áfram, en samkomulagstilraunir fara fram daglega. Á föstudagskvöld í s.l. viku sendi stjórn„Þróttar“þau boð að félagið væri reiðubúið til þess að gera samninga á grundvelli tillögu sáttasemjara, þó með nokkurri breytingu. Á laugar- dag komu svo boð frá Vinnu- veitendafélaginu um það, að gengið væri að boði „Þróttar“, en Jiegar undirskriftir áttu að fara fram, kom í ljós, að stjórn Vinnuveitendafélagsins hafði misskilið tilboð „Þróttar“, svo ekkert varð úr samkomulagi að ])ví sinni, og stendur enn við sama. Kanadamenn lögðu til atlögu austan við Caen í morgun. 57.000 þýzkir fangar téknir í Normandie. Jólarhring eftir að fyrsti ameríski herinn — í hægra fylkmgararmi banda- manria í Normandie — hóf sókn sína, lögðu Kanadámenn til atlögu í vmstra fylkingar- armi. Kanadamenn hófu.áblaup sitt eftir að stórskotahríð hafði ver- ið haldið uppi langan tíma, til að rjúfa varnir Þjóðverja. Markið var að ná að minnsta kosti þorpinu Capicaye, sem er nokknr sj)öl fyrir austan Caen og var rammlega víggirt. Þeg- ar klukkan var átta (sex eftir ísl. tíma) voru Kanadamenn búnir að stökkva Þjóðverjum ])aðan og áttu í bardögum um flugvöllinn við þorpið. 1 herstjórnartilkynningunni í morgun er sagt, að álilaupi 1. ameriska hersins, undir stjórn Bradleys, sé haldið áfram og hafi liann m. a. náð á vald sitt hæð einni, sem gnæfi yfir borg- ina La Ilaye du Puits og einnig liafi tekizt að reka Þjóðverja úr öðrum mikilvægum stöðvum. 11 vegir um Caen rofnir. Aðstaða Þjóðverja versnar jafnt og þétt í Caen, þvi að nú er svo komið, að bandamenn hafa getað rofið 11 af vegum þeim, sem liggja um bæinn. Þjóðverjar haía aðeins þrjá vegi opna úr bænum, en banda- menn halda bæði uppi skotlu’ið og loftárásum á þá. Fyrir vestan Caen er allt með kyrrum kjörum, en það þykir ósennilegt, að ekki dragi til tíð- inda þar mjög bráðlega. 57,000 fangar. Bandamenn höfðu í gær tekið alls 57,000 fanga í bardögunum í Normandie. Er nú talið, að manntjón Þjóðverja sé að minnsta kosti orðið 120,000. — Meðal fanganna eru margir verkamenn Todt-sveitanna. Var sá elzti þeirra 78 ára áð aldri. Margir Tékkar, Pólverjar, Rúss- aí og Frakkar eru meðal þeirra. Allt á floti. Veður eru mjög stirð i Nor- mandie og allt á floti á sumum hlutum vígstöðvanná. Þess er einkum getið, að sókn Banda- ríkjamanna vestast hafi verið erfið, því að sums staðar hafi vatnið náð hermönnunum upp i liáts. Hafa verið óvenjulega miklar rigningar við Ermar- sund að undanförnu. Japanir hafa tekið allmikil- væga borg i Honan-fytki í Kina, um 100 km. fyrir norðvestan Changsa. * Keitel og fleiri háttsettir Þjóðverjar eru sagðir komnir til Helsinki. Ilalifax lávarður, sendilierra Breta í Wasliington, er kominn til London til slcrafs og ráða- gerða. * Bretar eru farnir að senda franskar kvikmyndir til sýn- inga í Normandie.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.