Vísir - 04.07.1944, Blaðsíða 3
I
Frelsisdagur
Bandaríkjanna
er í dag.
Frelsisdagur Bandaríkjanna
er í dag, 4. júlí.
Þennan dag árið 1776 lýstu
nokkur ríki Bandaríkjanna yfir
sjálfstæði sínu á fundi, er full-
trúar þessara ríkja héldu í
Philadelphia.
Þessi yfirlýsing kostaði
reyndar styrjöld við yfirráða-
þjóðina, Breta, en styrjöldinni
lauk með sigri Bandaríkjanna
árið 1783.
Frá þeim tíma má segja að
auðsæld og stórstígar framfar-
ir hafi fylgt þessari þjóð flest-
um þjóðum fremur, enda telst
hún í dag til mestu menningar-
þjóða heims.
Glímufarar Ármanns
komnir f rá ansturlandi
Glímufarar Ármanns eru ný-
komnir úr sýningarferð um
Austurland. Yoru þeir 14 tals-
ins undir fararstjórn Gunn-
laugs J. Briem, en glímustjóri
var Jón Þorsteinsson. Glímu-
sýningar liöfðu }x?ir á helztu
stöðum Austurlands og auk þess
á Hvammstanga og Kóþaskeri.
Sýningargestir munu samtals
hafa skipt þúsundum, en ferðin
stóð yfir í 11 daga.
Virtist glímumönnunum hvar-
vetna ríkja mikill áhugi fyrir
íslenzku glímunni þar sem þeir
sýndu og má treysta þvi að slík-
ar sýningarfe'rðir verði til þess
að glæða áhuga fyrir glímunni
hér á landi. Hafa ferðir þessar
því mikið menningarlegt gildi.
I. R.-insrar á
heimleið.
Flokkur I.R., sem verið hefir
á ferð um Vestfirði, er nú lagð-
ur af stað heimleiðis.
1 fyrradag — sunnudags-
kveld — liafði flokkurnn fim-
leikasýningu á ísafirði. Var
mikill mannfjöld viðstaddur og
sýningunni tekið með hrifningu.
Á laugardag var höfð sýning í
Bolungavik, einnig við ágæta
aðsókn og mikla lirifni áhorf-
enda.
Síðastliðinn fimmtudag héldu
ísfirzkir íþróttamenn I.R.-ing-
um samsæti.
Landganga á eyju
við N.-Guíneu.
Bandaríkjamenn hafa ger.gið
á land á Mefoor-eyju við norð-
vesturströnd Nýju-Guineu.
Á eynni eru 3 flugvellir
sem Japanir voru að reyna að
koma sér upp og var gengið á
land, þegar þeir voru húnir að
undirbúa vallarsmíðina að
mestu. Einn flugvallanna liefir
verið tekinn.
Japönsk smáherskip hafa ein-
staka sinnum gert vart við sig
undan Nýju-Guineu á þessum
slóðum, en ekki hætt sér nærri
bækistöðvum bandamanna.
Ofsóknir í Noregi.
Þjóðverjar og kvislingar of-
sækja nú mjög æskulýð Nor-
egs, sem þeir hafa gert vinnu-
skyldan.
Fjöldi marina hefir verið
handteldnn, einkum í grennd
við Oslo, og víða hefir lögregl-
an farið í herferðir til að leita
að ungum mönnum, sem hafa
ekki sinnt köllun um vinnu-
kvaðningu.
Um Noreg allan berst æskan
mjög gegn þvi að fara í vinnu-
svetir kvislinga og neitar að láta
skrásetja sig.
VISIR
Útsýnisskífa á
Almannagjárbarmi.
Ferðafélag lslands hefir látið
setja upp útsýnisskífu á hábrún
Almannagjár, rétt þar sem veg-
urinn liggur niður í gjána.
Er hér um að ræða samskon-
ar skífu og Ferðafélagið hefir
komið upp á Valhúsahæð og
Vífilsfelli. Staða- og fjallaheiti
eru skráð á koparplötu og geta
menn þar einnig séð hæð fjall-
anna.
Danir eyðileggja
þýzka herflutn-
ingalest.
Þýzkri herflutningalest hefir
verið hleypt af sporinu hjá Slag-
else í Danmörku.
Sprengju liafði verið komið
fyrir undir brautinni og sprakk
hún i loft upp er lestin var á leið
eftir henni. Tveir vagnar möl-
brotnuðu, en margir fóru á
hliðina og herma fregnir, að
nokkrir tugir hermanna liafi
beðið bana, en margir aðrir
særzt.
Samtíðin,
júlíheftið, er komin út og flytur
m. a.: Nú er það bókin um frelsis-
baráttu Islendinga eftir ritstjórann.
Frelsishvöt (kvæði) eftir Siguringa
E. Hjörleifsson. Fyrsti forseti ís-
lands (mynd). Frá Oxford og Cam-
bridge eftir Björn Bjarnason. Æfi-
ágrip nokkurra merkra samtíðar-
manna með myndum. Viðhorf dags-
ins frá sjónarmiði málarans eftir
Ingþór Sigurbjörnsson. Úrlausn
(saga) eftir Hans klaufa. Sjálfvirk
lyfjagerð? eftir Halldór Stefáns-
son forstjóra. Er Gandhi heilagur
— eða hræsnari ? Þeir vitru sögðu.
Bókafregnir o. fl.
íþróttakeppni á Siglu-
firði um hátíðardagana
Á vegum Knattspyrnufélags
Siglufjarðar fór fram íþrótta-
mót þann 17.—18. júní s.l. I
eftirfarandi íþróttagreinum
urðu úrslit þessi:
80 m. hlaup: 1. Svavar Helga-
son 10,7 sek. 2. Arthur Sumar-
liðason 10,9. 3. Haraldur Páls-
son 10.9. Langstökk: 1. Ingvi
Br. Jakobsson 6.23 m. 2. Svavar
Helgason 5.72. 3. Karl Olsen
5.60. Kringlukast: 1. Eldjárn
Magnússon 34.30 m. 2. Alfreð
Jónsson 33.75. 3. Sigurður
Bjarnason 32.40. Spjótkast: 1.
Ingvi Br. Jakobsson 49.56 m. 2.
Jónas Ásgeirsson 48.32. 3. Har-
aldur Pálsson 44.10. Kúluvarp:
1. Alfreð Jónsson 16.80 m. 2.
Bragi Magnússon 15.55. 3. Eld-
járn Mágnússon 14.70.
Þess skal getið, að keppt var
með drengjakúlu (5 kg. að
þyngd), en ekki 7 kg kúlu, svo
sem venja er til, þar sem önnur
var ekki til.
Boðhlaup, handknattleikur
karla og kvenna fór einnig
fram. Loks var svo knattspyrna
og kepptu ógiftir og giftir KS-
ingar. Sigruðu hinir ógiftu með
4:2. — Er Siglfirðingar höfðu
lokið sinni keppni, kepptu Fær-
eyingar og Norðmenn, er þar
voru staddir, í knattspyrnu, og
sigruðu Færeyingar með 4:1.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.30 Frelsisdagur Banda-
ríkjamanna: a) Ávarp (Magnús
Jónsson prófesso'r). b) Ræða (Ric-
hard Beck prófessor). c) 21.00 Tón-
leikar (pjötur): Tónverk eftir
Bandaríkjatónskáld: a) Svíta nr. 2
eftir Mac-Do'wel. b) Symfónía nr.
1 eítir Mac-Donald.
Stúlba
óskast strax í
ÞVOTTAHUSIÐ ÆGI,
Bárugötu 15. — Herbergi fylgir.
í þvottahúsinu.
Upplýsingar
ZLnýÉwQ,
vantar til að bera VÍSI um
Hverfisgröta
Dagblaéið TÍHIR
Allir vita aS
Gerber's Barnamjöl
hefir reynzt bezta og bætiefnaríkasta fæða,
sem hingað hefir flutzt.
Fæst í ,
bsw-e:
NB. Sendi út um land gegn póstkröfu. —
HATIBARBLAÐ VlSIS.
Ennþá fást nokkur eintök af þjóðhátíðarblaði Vísis.
Þeir, sem ætla sér að eignast blaðið, ættu að snúa sér
strax til afgreiðslunnar.
DAGBLAÐIÐ VlSIR.
EIKARSKRIFBORÐ
fyrirliggjandi.
Trésmíðavinnustofan
Mjölnisholtí 14. — Sími 289$.
Auglýsing
Áfengisverzlun ríkisins
aðvarar hér með viðskiptavini sína um það, að
aðalskrifstofa hennar verður lokuð vegna sumar-
leyfa dagana 10.—23. júlí.
Á sama tíma verður
Lyfjaverzlun ríkisins,
ásamt iðnaðar- og lyfjadeild, lokað af sömu á-
stæðum.
Viðskiptamenn eru hér með góðfúslega aðvar-
aðir um að haga kaupum með hliðsjón á þess-
ari hálfs mánaðar lokun.
Áfengisverzlun rikisins.
Eldfast gler mikið úrval
Bollar, stakir 1,75
Matskeiðar, silfurplett 2,65 *
Matgafflar — 2,65
Borðhnífar, — 6,75
Teskeiðar — 2,05
N ý k o m i ð.
K. EINARSSON & BldRNSSON
M A G I C
er þvottaefni framtíðarinnar.
Fæst í
VERZLUN
* SIMI 4205
Lögtak.
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undan-
gengnum úrskurði verða lögtök látin fram fara,
á kostnað gjaldenda, en ábyrgð ríkissjóðs, að
átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýs-
ingar, fyrir bifreiðaskatti, skoðuúargjaldi af bif-
reiðum og vátryggingargjaldi ökumanna bifreiða,
sem féllu í gjalddaga 1. apríl s.l.
Borgarfógetinn í Reykjavík, 4. júlí 1944.
Kr. Krístjánsson
settur.
Maðurinn minn og faðir okkar,
Jón Kr. Sigfússon,
bakari,
andaðist 3. júlí á Landakotsspítalanum.
Sigríður Kolbeinsdóttir,
Halldóra Jónsdóttir,
Stefanía Jónsdóttir,
Grétar Jónsson.
Innilega þökk fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför móður okkar og fósturmóður,
Sigríðar Þ. Daníelsdóttur.
Kristbjörg Jónsdóttir,
Kristinn Jónsson,
Petrína Nikulásdóttur.
Frá hæstnrétti:
Þrotabú Guðm. H.
Þórðarsonar fékk
ekki Hótei Heklti.
Fyrsti démurinn í mál-
um Guðm. H. Þórðar-
sonar.
Þann 27. júní var kveðinm
upp dómur í Hæstarétti í mál-
inu Þrotabú Guðm. H. Þórðar-
sonar gegn Sigurjóni Jónssyni.
Mál þetta er risið út af því,
að Guðmundur H. Þórðarson
veðsetti á sínum tíma Sigurjóni
Jónssyni skuldabréf, tryggtmeð
veðrétti í Hótel Heklu, til trygg-
ingar kröfum, sem Sigurjón áttl
á hendur Guðmundi. Er Guð-
mundur varð gjaldþrota krafð-.
ist þrotabú hans riftingar á veð-
setningu þessari. Þeirri kröfu.
var hrundið, bæði í héraði og
fyrir hæstarétti, og segir svo í
forsendum hæstaréttardómsins:
„Tryggingarbréf það, sem fc
máli þessu greinir, var eign h.f.
Hótel Heklu og hafði það félag
veitt Guðnmndi H. Þóðarsyni
leyfi til að veðsetja það. Varhið
veðsetta verðmæti því ekki eign,
sem renna átti til þrotabús Guð-
mundar, og ekki hefir þrotabú-
inu á neinn hátt verið íþyngt
vegna veðsetningarinnar, enda
er engri kröfu lýst á hendur bú-
inu af h.f. Hótel Heklu. Sam-
kvæmt þessu veitir hvorki 20.
gr. né önnur ákvæði laga nr. 25
1929 um gjaldþrotaskipti þrota-
búinu heimild' að rifta veðsetn-
ingu þessari. Ber því að stað-
festa hinn áfrýjaða dóm að nið-
urstöðu til.“
Hrl. Einar B. Guðmundsson
flutti málið af hálfu áfrýjanda,
en lidm. Guttormur Erlendsson
af hálfu stefnda, og var þetta
síðasta prófmál lians fyrir
liæstarétti.
Sirætisvagnar vorn
skaðabótaskyldir.
Þann 27. júní var kveðimt\
upp dómur í Hæstarétti í mál-
inu Strætisvagnar Reykjavíkur-
gegn Jóhanni Indriðasyni f. h.
Harðar sonar síns.
Voru tíldrög máls þessa þaur .
að Hörður lenti með fingur milli:
stafs og hurðar í strætisvagni
og meiddist. í héraði var talið -
að áfrýjandi bæri bótaábyrgð á,
slysi þessu og var sú niðurstaða,
staðfest í hæstarétti, og segir-
svo í forsendum dómsínsr
„Samkvæmt vottorði Magn-
úsar Sigurjónssonar, er staðfest
hefir verið fyrir dómi eftir upp-
sögn héraðsdóms, hafði strætis-
vagninum þegar verið ekið af
stað, er slysið varð. Kveðst
Magnús hafa verið í vagninum
og greinilega tekið eftir, er slys-
ið bar að hendi. Það er og kom-
ið fram, að vágninum hafði ver-
ið ekið nokkurn spöl, er menn
veittu áverka drengsins athygli.
Að svo vöxnu máli þykir verða
samkvæmt 34. gr. laga nr. 23
1941 að leggja ábyrgðina á slysi
þessu á áfrýjanda, enda þótt
ekki sé sönnuð sök bifreiðar-
stjórans. Ber því að staðfesta
liinn áfrýjaða dóm.“
Hrl. Theodór B. Lindal flutti
malið af hálfu áfrýjanad, en brL
Sig. Ólason af hálfu stefnda.
Aheit
til Slysavarnafélags íslands: Frá
N. . kr. 20.00. Frá gamalli konu kr.
io. oo.Frá E. H. kr. 50.00. Frá G.
Pálssyni kr. 5.00. Fanney Sigurð-
ardótturN kr. 20.00. N. N. kr. 100.-
00. G. B. kr. 10.00. — Samtals kr.
215.00. — Slysavarnafélag íslands
þakkar gjafirnar og hinn góða hug,
sem þeim fylgja. Henry Halfdans-
son.