Vísir - 28.07.1944, Blaðsíða 2
VISIR
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfastræti).
Símar: 166 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Gjaldeyrisráðstefnan.
Qjaldeyrisráðstefnan í Bretton
Woods er einn þáttur í
undirbúningsstarfi þjóðanna til
að di\aga úr mestu erfiðleikun-
um að styrjöldinni lokinni.
Ráðstefnunni er nú lokið, en 45
þjóðir tóku þátt í henni og full-
trúar voru 700. Verkefni ráð-
stefnunnar voru tvennskonar.
Annarsvegar voru athuguð skil-
yrði til að stofna alþjóða gjald-
eyrissjóð, sem hefði það hlut-
verk með höndum að efla og
tryggja milliríkjaviðskipti og
alheimsverzlun, en hinsvegar
stofnun alþjóða banka er hafa
skal með liöndum það hlutverk
að styrkja þjóðirnar til upp-
byggingarstarfsemi, sem þeim
sjálfum er um megn án þess að
undir bagga verði lilaupið.
Ýmsar nefndir liafa starfað að
þessum tveimur meginverkefn-
um og öðrum sem standa í
sambandi við þau. Verkefni
ráðstefnunnar er í rauninni að
efla alþjóðaviðskipti eftir stríð-
ið og ráða fram úr vandamál-
um, sem i þvi sambandi kunna
að rísa og kröfum þjóða í milli.
Sérstakar ráðstafanir verður að
gera vegna framleiðslu land-
anna og lcoma sér saman um
íhlutun og atkvæðisrétt hverrar
þjóðar varðandi stjórn alþjóða-
bankáns og rekstur.
Verkefni ráðstefnunnar hafa
verið hin vandasömutsu og
nokkurs ágreinings virðist
hafa gætt þjóða í milli varðandi
fyrirkomulagsatriði, og einkum
virðast Rússar hafa haldið fast
við kröfur sínar um sama
„quota“ og Bretland og munu
þeir hafa fengið þeim kröfum
sínum framgengt áður en ráð-
stefnumii var slitið. Hefði sam-
komulag ekki náðst var ætlun-
in að ný ráðstefna skyldi hald-
in bráðlega aftur, en sennilega
verður þess ekki þörf úr því að
fullt samkomulag náðist. Hins-
vegar verður ráðstefnan eða
stofnanir liennar að ráða fram
úr þeim vanda, sem leiðir af
skuldaskiptum rikja, — eink-
um þeirra, sem háð hafa ófrið
um langt skeið með öllum þeim
gífurlega kostnaði, sem slíkum
ófriðarrelcstri er samfara.
Lord Keynes, bankastjóri
Englandsbanka og formaður
nefndarinnar, sem fjallaði um
alþjóðabankann, skýrði svo frá
að utanríkiskuldir Bretlands
næmu 3.000.000.000 pundum,
en þá væri ekki reiknað með
skuldbindingum samkvæmt
láns og leigu kerfinu. Þessi
upphæð jafngildir allri árs-
framleiðslu Breta, sem þyrfti
þá til þess að greiða að fullu
skuldir rikisins, þær er að ofan
greinir. Þá yrði þjóðin að lifa á
loftinu í tólf mánuði, og aðrar
þjóðir að taka við vörum sem
greiðslu, sem þær hefðu enga
þörf fyrir. Rís hér sama vanda-
málið og í lok síðustu heims-
styrjaldar. Skuldirnar er ekki
unnt að greiða í gulli, og því
yrði að greiða þær í vörum. Of-
framleiðsla á vörum myndi
hinsvegar leiða til markaðs-
hruns og heimskreppu á svip-
aðan hátt og gerðist um og eftir
1930, en bitnaði þá með heljar-
þunga á flestum eða öllum
þjóðum og atvinnugreinum.
Lengsta og fjölmennasta hópferð á sjó,
semfarin hefir verið hér viðland.
Þrjú hundruð manns fara vestur með Esju.
^Jm 300 manns munu taka
þátt í útbreiðsluför þeirri,
sem Þingstúka Reykjavíkur
gengst fyrir að farin verði til
Vestfjarða um aðra helgi —
verzfunarmannahelgina.
För þessi er lengsta og fjöl-
mennasta ferðalag, sem farið
hefir verið á sjó liér við land
og hefir þriggja manna nefnd
Þingstúkunnar — þeir Þor-
steinn J. Sigurðsson, Helgi
Helgason og Einar Björnsson
— unnið að undirbúningi far-
arinnar upp á síðkastið.
Þeim hefir tekizt að fá til
fararinnar bezta skip, sem völ
er á liér á Iandi — vélskipið
Esjuna. Hefir framkvæmdar-
stjóri Skipaútgerðar ríkisins,
Pálmi Loftssón, sýnt Þingstúlc-
unni mikla lipurð og vinsemd
í samningum um leigu á skip-
inu og mun það stuðla mjög að
því að ferðin nái tilgangi sín-
um, að liægt var að fá Esjuna.
Farið verður liéðan frá
Reykjavík laugardaginn 5.
ágúst. Verður ekki haldið rak-
leiðis til ísafjarðar, heldur mun
verða farið inn í Djúúp t)g lagt
að bryggju á ísafirði á sunnu-
dagsmorgun. Þar munu templ-
arar á ísafirði og af öðrum
fjörðum vestra taka á móti
Reykvíkingum og hafa þeir
undirbúið mjög hátíðlegar mót-
tökur.
Samkomur 'templaranna
munu hefjast á þvi, að gengið
verður til kirkju og hlýtt guðs-
þjónustu. Um miðjan dag hefst
svo útisamkoma. Þar niun
söngflokkur syngja og lúðra-
sveit leilca fólki til skemmtun-
ar, en auk þess munu margir
ræðumenn — bæði vestfirzkir
og reykvískir---taka til máls.
Um kvöldið verður haldinn
dansleikur.
Haldið verður frá ísafirði á
mánudagsmorgun og siglt til
Þingeyrar. Þar mun verða hald-
in samkoma.
Vísir hefir átt tal við Þor-
stein J. Sigurðsson kaupmann,
sem er Þingtemplar. — Kvað
Lánveitendur eru að reyna engu
síður en skuldarar að tryggja
sjálfa sig gegn slíku hruni, og
með það fyrir augum er stofn-
að til ráðstefnunnar, en stofn-
anir hennar eiga að liafa eftir-
lit með alþjóðaviðskiptum og
alþjóðamynt, með það fyrir
augum að koma í veg fyrir
óeðlilegar sveiflur og hrun.
Við íslendingar höfum tekið
þátt i þessari ráðstefnu, og þótt
hlutur okkar kunni að reynast
smár i samtökunum, hefir ráð-
stefnan mjög mikla þýðingu
fyrir fjárhagslíf okkar, og ut-
anrilíisverzlun, engu síður en
fyrir allar aðrar þjóðir, með því
að við erum háðir somu örlög-
um og þær. Velgengni annarra
þjóða er velgengni okkar, og
vegni þeim illa verður sama
raunin að því er smáþjóðunum
við kemur. Líf þjóðanna er í
rauninni sama og líf einstakl-
inganna, aðeins stækkuð mynd
í láni og óláni. Ýmsir hafa talið
þýðingarlítið fju'ir okkur ís-
lendinga að taka þátt í þessari
ráðstefnu, en slík viðhorf stafa
af ókunnugleika. Ef við liöfum
nokkuru sinni liaft ástæðu til
að sækja ráðstefnur og taka
þátt í störfum þeirra, bar okkur
að gera það á ráðstefnunni í
Bretton Woods og árangur
hennar skiptir okkur svo miklu
máli, að segja má að hann
móti framtíð lands og þjóðar
um ókomin ár.
hann templara gera sér miklar
vonir um góðan árangur þess-
arar íjarar og útbreiðsluáhrif af
lienni. Áliugi reykvisk'ra templ-
ara sést bezt af því, að farmið-
ar í káetum seldust upp svo að
segja á svipstundu og sömu-
leiðis megnið af þeim farmið-
um, sem ætlaðir eru þeim, er
geta haft með sér svefnpoka
og sofið í þeim.
Meðan sjóferðirnar standa
yfir munu margvíslegar
skemmtanir verða um borð í
Esju. Meðal skemmtikrafta
þeirra, sem verða með i förinni
má nefna þá Pétur Á. Jónsson
óperusöngvara og Brynjólf Jó-
annnesson leikara, en auk þess
verður lúðrasveit með, sem
skemmtir með leik sínum við
og við — bæði á sjó og landi.
tgigurðup Sveinsson:
Sjúkdómar í skrúðgörðum
^Jndanfarin sumur hafa fjölmargir jurtasjúkdómar gert
vart við sig í görðum bæjarins. Fólk þarf því að vera
vel á verði gegn þeirri hættu, sem görðunum stafar af þess-
um ófögnuði.
■ ** ***** i—
Nokkuð hefir verið ritað urn i anna
jurtasjúkdóm og er það sérstak-
lega Ingólfur Davíðsson grasa-
fræðingur, sem skrifað hefir
margar ágætar greinar um þetta
efni. En þar sem seint verður
um of brýnt fyrir fólki að hirða
vel garðana og láta ekki sjúk-
dómana hafa yfirhöndina ætla
eg að geta hér þeirra kvilla er
verstir eru í skrúðgörðunum nú
í sumar.
Reyniátan.
Einhver skæðasti sjúkdóm-
urinn í trjágróðri hér í Reykja-
vik er reyniátan. Sveppur þessi
er svo útbreiddur hér í bæ, að
full þörf er að gera all-itarlega
herferð gegn lionum nú þegar.
Hann lýsir sér venjulega á þann
liátt, að við sár sem kemur á
börkinn, kemur rauður hringur
og dregst viðurinn saman á
þessum bletti og fellur inn. Ef
ekkert er gert við þessu, breið-
ist skemmdin fljótlega út um-
hverfis greinina svo að hún
visnar og deyr, í sliku tilfelli
er bezta ráðið að skera greinina
af og brenna lienni, eða sjá svo
um á annan hátt, að hún ekki
smiti frá sér.
Ef sjúkdómurinn er á byrj-
unarstigi er hægt að útrýma
lionum með því að skera mein-
semdina burtu með beittum
hníf. Er áríðandi að barkar-
rendurnar í kringum sárið séu
skornar inn í ósýkt tré. Gott er
að bera ofurlítið af olíumáln-
ingu eða koltjöru í sárið (en þó
ekki út á börkinn). Fólk ætti
þó ekki að bera mikið af kol-
tjöru eða málningu í þessi sár,
þegar tren eru í örum vexti.
Ryðsveppur er algengur á
birki, sérstaklega ungum plönt-
um. Sjúkdómurinn lýsir sér
þannig, að á neðra borði blað-
myndast gulir blettir,
stundum ná þessir blettir alveg
saman svo allt blaðið verður
heiðgult. Algengasta varnar-
meðalið er Bordeauxvökvi. Er
úðað með lyfinu strax og
sveppsins verður vart.
Blaðlús og birkiormum er
auðvelt að útrýma með Nikó-
tínblöndu. Nikótínið fæst hjá
Áburðareinkasölu ríkisins og í
apótekunum og er notað 2 gr.
af nikótíni og örlitið af græn-
sápu í 1 líter af vatni, gegn
birkiormum, en mun minni
skammtur af nikótíni eða 1J4
gr. i 1 liter af vatni er nóg til
að drepa blaðlúsina. Grænsáp-
an gerir það að verkum að
vökvinn loðir betur við blöðin.
Varhugavert cr að úða i sterku
sólskini, þvi hætta er á því, að
blöðin geti þá sviðnað við úð-
unina.
Hjónaband.
Síðastl. laugardag voru gefin
saman í hjónaband af síra Jóni
Thorarensen ungfrú Inga Ingólfs-
dóttir Ránargötu 44 og Jón Ólafs-
son stýrimaÖur, Grænumýri, Sél-
tjarnarnesi.
ÓDÝRAR BÆKUR
Eftirtaldar bækur
Menningar og fræðslusambands Alþýðu
verða seldar næstu daga með gamla lága verðinu meðan upp-
lög endast:
GUNNAR GUNNARSSON: Svartfugl kr. 8,00.
STEFAN ZWEIG: Undir Örlagastjörnum, Magnús Ásgeirsson
íslenzkaði. Verð kr. 4,50.
ROMAIN ROLLAND: Æfisaga Beethovens, Símon Jóh. Á-
gústsson íslenzkaði. Verð kr. 5,50.
GUNNAR GUNNARSSON: Heiðaharmur, innb. 16,00.
DOUGLAS REED: Hrunadans heimsveldanna. Verð kr. 12,75.
HERMANN RAUSCHNING: Hitler talar. Verð kr. 13,00 heft,
kr. 16,00 innb.
CARL HAMBRO: Árásin á Noreg, heft kr. 6,00, innb. 10,00.
ÖRN ARNARSON: Illgresi, innb. kr. 30,00, skinnb. kr. 55,00.
Aðeins örfá eintök óseld af sumum bókunum.
Bókabúð Braga Brynjólíssonar
Hafnarstræti 22. — Sími 3223.
„Látið blömin tala“
BU»i
Ave\tir
Sími 2717.
Allir út á völl!
Reykjavíkurmótið í
fullum gangi í kvöld
kl. 8,30.
Fram — K.R.
Bezta skemmtunin er spennandi leikur.
FRAM AFRAM! AFRAM K.R.!
Skipsferð
vestur og norður 5.—8. ágúst
næstkomandi. Viðkomustað-
ir: Patreksfjörður, Isafjörð-
ur, Sigluf jörður og Akureyri.
Um flutning óskast tilkynnt
á skrifstofu vorri.
Scrutator:
@ V.
Qjcududih aÉmjwnwfyS
BCfi j.ymaaj
Síldarverðið.
1 skýrslu þeirri, se fylgir reikn-
ingum Landsbanka íslands fyrir
árið 1943 er frá því skýrt, að þrátt
fyrir að gefa hafi þurft afslátt af
nokkrum hluta af saltsild, sem
seld hafi verið til Ameríku hafi eig-
endur síldarinnar fengið útborgað
að fullu það verð, sem Síldarút-
vegsnefnd hafði tilkynnt þeim um
vorið, að væri áætlað til þeirra fyr-
ir útflutta síld.
Eftir þeim upplýsingum sem blað-
ið hefir fengið hjá síldarútflytj-
endum hafa þeir ekki enn fengið
alla þessa upphæð greidda, en þar
sem gera verður ráð fyrir að
skýrsla Landsbankans byggist á ör-
uggum heimildum, treysta síldarút-
flytjendur því, að þeir fái þetta
verð greitt við endanlegt uppgjör,
enda álíta þeir, að aðstaða þeirra
sé svo sterk, að þeir myndu vinna
mál út af cismuninum fyrir dóm-
stólum, en til þess þarf vœntanlega
ekki að koma.
Sök bítur sekan.
Þeim Þ j óðvilj amönnum hefir
orðið heldur illa við þær Upplýsing-
ar mínar á þriðjud., að þeir fölsuðu
myndir þær, sem þeir birta. Hafa
þeir fengið flog af versta tagi við
Iestur klausunnar og rokið til að
semja svar — ef svar skyldi kalla
— áður en bráði af þeim. Og ekki
mátti minna en að eyða hálfum öðr-
um dálki í að afsanna uppljóstanir
Vísis.
Það á að vera ein sönnunin fyr-
ir því, að allt sé í lagi með Þjóð-
viljasamvizkuna, að blaðið hafi
ekki komið út fyrr en 1936, en
myndin hafi verið tekin 1934. En
þetta er bara engin sönnun, því að
Þjöðviljinn gat vel birt mynd ár-
ið 1936, þótt hún væri tekin 1934.
Verra hefði verið ef Þjóðviljinn
hefði hætt að koma út áður en
byltingin var gerð í Austurríki. Þá
eru frekar líkur fyrir því, að hann
hefði ekki getað birt myndir frá
henni.
Þá á það að vera sönnun hjá
Þjóðviljanum, að hann hafi látið
steypa myndina eftir „matricu" úr
bandarísku blaði. Hingað til hefir
Þjóðviljanum þðtt fátt nýtilegt
koma vestan um haf og bætir þetta
vart málstaðinn. Nafns blaðsins
er heldur ekki gétið, en að líkindum
er það einhver þjóðvilji þeirra
Bahdarikjamanna og þá álíka ó-
prúttinn í umgengni sinni við sann-
leikann og Þjóðviljinn í Reykjavik.
Og ekki munu margir telja áróð-
urstæki eins og „Sovfoto“ fullgilda
sönnun fyrir sakleysi Þjóðviljans.
Harðjaxlar.
En Þjóðviljamenn hefir að lík-
indum grunað, að einhver gæti séð
við blekkingum þeirra í mynda-
notkuninni, því að þéir slógu þvi
ekki alveg föstu, að þorpið sé í
Litúvu. Það var klókindabragð hjá
þeim — en nægir þó ekki. Myndin
fylgdi grein um Litúvu og með und-
irskriftinni var beinlínis gefið í
skyn, að myndin sýndi íbúa þorps
þar í landi.
Svo klykkir Þjóðviljinn út með
því, að Vísismenn sé grænjaxlar, af
því að þeir kunni ekki að falsa
myndir. Já, hvílíkir aular! Það er
þá dálítið annað með einvalaliðið
við Þjóðviljann. Þeirra blað er
yngst dagblaðanna i Reykjavík og
samt kunna þeir strax öll svik og
pretti. Já, það er mikill munur að
vera kominn á Harðjaxlstigið!
„Esja"
í hraðferð vestur og norður
til Akureyrar fyrri hluta
næstu viku. Tekið á móti
flutningi til Akureyrar og
Siglufjarðar fram til hádegis
á morgun (laugardag) og til
Isaf jarðar og Patreksf jarðar
fram til hádegis á mánudag.
Pantaðir farseðlar óskast
sóttir á mánudaginn.
Hliðartöskur.
• Nýjar fallegar gerðir
tókum við upp í dag.
H. T0FT
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
CIL0REAL
Franskur ekta augnabrúna-
litur.
E R L A, Laugavegi 12.