Vísir - 03.08.1944, Side 1
Rltstjórar:
Kristján Guðiaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3,ahsð)
Ritstjórar
Blaðamenn Slmii
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
34. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 3. ágúst 1944.
173. ftbL
Ráðiit á borgir Smánarblettinn
í ^.'Frakklandi. i verður að aímá.
Aðallið Bandarík|amanna
ntefnir liratt til Renne§
Þjoðhátíðin I Eyjui
hefst á morgnn.
Fjöldi manns úr Reykjavík sæklr hátíðina.
Þungar sprengjufIugvélar j
bandamanna gerðu árásir á
ýmsa staði í S.-Frakklandi í
gær.
Aðalárásin var gerð á Avign-
on — þar sem páfar sátn einu
sinni -— en auk þess var ráðizt
á ýmsar stöðvar í Ron-dalnum.
Yar árásunum beint að flutn-
ingamiðstöðvum og olíugeymsl-
um.
Auk þessa gerðu flugvélar
bandamanna árásir á Genua á
ftalíu.
19 kanadiskir fangar
myrtir í fangabúðum
Þjóðverjar hafa skotið nítján
kanadiska fanga eftir að þeir
reyndu að flýja úr fangabúðum.
Átján þessara fanga voru ó-
breyttir liðsmenn, sá nítjándi
liðsforingi. Þeirra var gætt af
mönnum úr 12. bryndeild SS-
liersins, en í henni eru menn,
sem upprunalega voru í Hitlers-
æskunni.
Kanadastjórn hefir beðið
Sviss að reyna að grafast fyrir
tim nánari atvik og gert þá
kröfu til Þjóðverja, að þeim
verði hegnt, sem ódæðið unnu.
Yfirhershöfðingi Kanada-
manna í Evrópu hefir ávarpað
menn sína og sagt þeim að svara
ekki í sömu mynt, þótt færi gef-
ist, heldur láta þetta verða sér
hvatning til að berjast af enn
meiri hreysti en áður.
Orustan um Varsjá virðist
ætla að verða einhver mesta or-
usta á austurvígstöðvunum, síð-
an barizt var um Stalingrad.
Öllum fregnum ber saman
um það, að Þjóðverjar ætli að
verjast í borginni, meðan þess
er nokkur kostur. Þeir liafa flutt
mikið lið á vetlvang og nær ein-
göngu einvalalið og að þessu
sinni eru þeir ónískir á flugvél-
ar sínar, því að þeir eru að gera
alvarlega tilrauri til að lirifsa
til sín yfirráðin i lofti yfir Var-
sjársvæðnu. Síðan við Stalin-
,grad liafa Þjóðverjar elcki lagt
eins mikið á flugsveitir sinar.
-Meðan flugvellir Rússa eru
svo langt að baki vígstöðvunum,
sem nú er, má gera ráð fyrir
því, að Þjóðverjar geti náð yfir-
ráðuip í lofti á einstaka stað, en
ekki til frambúðar.
!
Götuvirki.
Þjóðverjar hafa sett tug-
þúsundir manna í Varsjá til að
reisa götuvirki og brotin eru
göt á liúsveggi til þess að liægt
sé að nota þau fyrir vígi. Lika
er búið að hreyta kjöllurum
margra liusa þannig, að hægt
er að aka skriðdrekum niður í
þá, líkt og gert var í Cassino
Þjóðverjar verða að afmá
smánarblettinn frá 20. júlí með
því að leggja fram alla krafta
sína gegn fjandmönnunum.
Þannig kemst Himmler að
orði í fyrstu dagskipan sinni til
Þjóðverja, sem gefin var út í
gær, í tilefni af þvi að 30 ár eru
liðin síðan „Slavar byrjuðu til-
raunir til að leggja Evrópu und-
ir sig“, en 2. ágúst 1914 hófst
stríðið milli Þjóðverja og Rússa.
Himmler sagði, að hermenn-
irnir heima fyrir yrðu að vinna
að minnsta kosti eins mikið og
þeir, sem störfuðu í liergagna-
verksmiðjum og enginn mætti
sýna eigingirni eða lilífa sjálf-
um sér.
Varnir Breta gegn
rakettusprengjum
eflast.
Þjóðverjar halda áfram að
skjóta rakettusprengjum sínum
á London og aðrar borgir á S.-
Englandi.
Innanríkisráðuneytið brezka
hefir ákveðið ný hljóðmerki til
að gera fólki aðvart um hætt-
una, livort hún er alveg á næstu
grösum, eða hvort fólk á aðeins
að vera reiðubúið til að leita í
skýli.
Fregnir sumra blaðamanna
skýra frá því, að varnir Breta
fari hatnandi, þótt enn sé ekki
búið að vinna bug á þessari
hættu.
forðum, ]>egar Þjóðverjar stöðv-
uðu bandamenn þar.
}
Flutningar
frá Eistlandi.
östaðfestar fregnir herma,
að Þjóðverjar sé byrjaðir flutn-
inga liðsins frá Eistlandi og
Norður-Latvíu. Þeir geta þó
ekki notað höfnina i ,Riga til
þess, því að hún er undir skot-
liríð úr langdrægum fallbyssum
Rússa.
Churchill kom inn á „kyrr-
áetustefnu“ Hitlers í ræðu sinni
í gær. Sagði hann, að það bæri
vott um litla snilligáfu, að láta
ekki flytja hurt herinn í Eystra-
saltslöndum og Finnlandi, því
að nú væri með öllu óvist, hvort
nokkru af liðinu yrði hjargað.
i
Sóknin hægari.
Tvo síðustu sólarhringana
hcfir sókn Rússa verið mun
hægari en áður og á það sinn
þátt í því, hversu flutningaleið-
ir Rússa eru nú orðnar langar
en Þjóðverja stuttar.
Þjóðverjar kannast við það,
að Rússar sé hyrjaðir að fara
yfir Vistúlu ,160 km. fyrir suð-
austan Varsjá.
Frídagur verzl-
unarmanna n.k.
mánudag.
Frídagur verzlunarmanna er
n. k. mánudag. Hefir dagslcrá
fyrir daginn nú verið samin,
hæði yfir þau atriði, sem fram
eiga að fara í útvarpinu um
kvöldið og yfir skemfntunina,
sem frarii fer að Hótel Borg. í
útvarpinu hafa verzlunarmenn
umráð yfir 1 ldst. og 20 mín.
Þar flytur Hjörtur Hansson
form. Verzlunarmannafélagsins
ávarp, Baldur Pálmason flytur
minni verzlunarstéttarinnar og
Konráð Gíslason minni Islands.
Á milli ræðanna syngur Elísa-
het Einarsdóttir og útvarps-
hljómsveitin leikur. Á kvöld-
skemmtun félagsins að Hótel
Borg syngja þeir Ágúst Bjarna-
son og Jakob Hafstein tvísöng
og Lárus Ingólfsson les upp.
Reykjavíkurmótið:
Fram og Víking-
ur í kvöld.
Tvísýnt um úrslit
mótsins.
1 kvöld kl. 8.30 heldur Reykja-
víkurmótið áfram með kapp-
leik milli Fram og Víkings.
Eins og nú standa saldr liafa
félögin möguleika til þess verða
Reyk j avíkurmeistarar þannig,
að vinni Víkingur Fram hafa
þeir 4 stig, Valur 3, en K. R. 2
stig. En vinni K. R. Val (en þeir
eiga að keppa á morgun) þurfa
K. R. og Víkingur að keppa
aftur. Verði aftur á móti jafn-
tefli milli K. R. og Vals, þurfa
!. Víkingur og Valur að leika á ný.
Athugandi er það svo, að mót-
inu lýkur með sigri Vals, ef þeir
sigra K. R. — Eins og sjá má
af þvi, sem að framan er sagt,
er enn mjög óákveðið um úr-
slit mótsins, en úr þvi verður
skorið næstu tvö kvöld.
Smiippsagi
verKalýðslélap.
Enn hafa tvö verklýðsfélög
sagt upp samningum við at-
vinnurekendur.
Annað er Sveinafélag skipa-
smiða hér í Reykjavík, en liitt
Verkalýðsfélag Akraness. Samn-
ingar fyrrneinda félagsins eru
útrunnir 1. september, en samn-
ingar liins 5. september.
Þá fer nú fram atkvæða-
greiðsla um það í Verlcamanna-
félaginu Illif í Hafnarfirði,
hvort segja skuli upp samning-
um þess félags.
Blómakarfan.
1 bókaverzlanir er nýlega komin
falleg saga fyrir börn og unglinga
er nefnist Blómakarfan. Þó saga
Jiessi sé aðallega ætluð börnum og
unglingum, er ekki a'Ö efa að mörg-
um fullorðnum barnavinum leiki
hugur á aÖ lesa þessa fallegu sögu.
Bókin er mjög vönduö að öllum frá-
gangi. Útgefandi er Bókaútgáfan
Norðri.
Á morgun hefst Þjóðhátíð
Vestmannaeyinga og er það 70
sinn, sem hún er haldin, því að
hún var fyrst haldin árið 1874.
Samkvæmt þeim fregnum,
sem Vísir hefir aflað sér inun að
þessu sinni verða enn meira um
dýrðir en venjulega i Vest-
mannaeyjum og blaðið hefir
liejnrt, að fólk héðan úi; hænum,
hæði gamlir Eyjaskeagjar og
aðrir, liafi byrjað að streyma til
Eyja strax um s. 1. helgi.
Þegar komið er að Þjóðliátíð-
inni hyrja Eyjaskeggjar að
flytja tjöld sín inn í Herjólfsdal
og sumir flytja jafnvel lieila bú-
slóð þangað, því að allt lif Eyj-
anna flytzt inn í dal þá daga,
sem hátíðin stendur.
Ávallt eru það íþróttamenn í
Eyjuin sem sjá um þessa íiátið
og að þessu sinni íþróttafélagið
Þór. Hefir verið unnið að und-
irhúningi hátíðarinnar í lieilan
mánuð og muni tjaldborgin rísa
upp í dag.
Á þessari liátíð er margt til
skemmtunar, svo sem ræðu-
höld, söngur, íþróttir, poka-
hlaup, hrenna á kvöldin og
flugeldar. Tveim danspöllum
hefir verið komið fyrir og eru
dansaðir gamlir dansar á öðr-
um, en nýir á hinum.
Myndin hér að ofan er tekin
á Þjóðhátíð í Ilerjólfsdal fyrir
nokkurum árum. Fremst á
myndinni má sjá veitingatjald
og' danspall, en að baki hin
myndarlegasta tjaldborg, þar
sem hundruð manna h'ggja við.
Richard Beck
kominn vestur.
Próf. Richard Becli er koin-
inn til Wasliington og hefir sent
•þaðan alúðarfyllstu lcveðjur til
allra Islendinga með þökkum
fyrir samveruna í júní og júli
í sumar.
Á mánudaginn kemur mun
próf. Richard Bech lialda aðal-
ræðuna á þjóðhátiðarsamkomu
Vestur-lslendinga að Gimli i
Manitoba og mun hann þá
skýra ítarlega frá lýðveldishá-
tíðinni og mótlökum á Islandi.
(Fréttatilk. frá utanrikisráðun.)
Slys:
Maður varð á milli
tveggja bifreiða í gær
Það slys vildi til í gærmorgun
rétt fyrir liádegi, að Jóhann
Eyjólfsson (Jóhannssonar
framkvstj.) varð á milli tvegja
hifreiða innarlega á Laugavegi
og meiddist mikið. -
Slysið vildi til með þeim hætti,
að hifreiðin R-2499, sem ók á
eftir herbifreið staðnæmdist
(skyndilega, er herhifreiðin liafði
stöðvast allt í einu fyrir fram-
an liana. Voru báðar þessar hif-
.reiðar á leið niður í bæinn. En
á eftir bifreiðinni R-2499 kom
önnur bifreið, R-665 og gat hún
ekki stöðvast nægilega fljótt,
er R-2499 staðnæmdist og rann
því aftan á hana. En við það
hrökklaðist R-2499 aftan á her-
bifreiðina. Vildi þá svo til, að
einmitt á því augnabliki var
Jóhann að ganga milli herbif-
j reiðarinnar og R-2499 og varð
| því á milli þeirra. Meiddist liann
1 allmikið; lijóst illa í hnéshót-
um og lilaut önnur minni
meiðsl. Var hann þegar fluttur
á Landspítalann og liður hon-
um nú sæmilega eftir atvikum,
eftir því sem hlaðið frétti í
morgun.
Hreinsað til í Japan.
Innanríkisráðherrann í nýju
stjórninni í Japan hefir sett 18
héraðsstjóra landsins frá em-
bætti.
Þeim var gefið að sök að hafa
gegnt skyldum sínum svo slæ-
lega, að ríkinu hefir verið stofn-
að í hættu. Flestir þeirra
þeirra frömdu harakiri, er þeim
hafði verið vikið frá störfum.
Héraðsstjórar í Japan eru
alls 48.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.25 Hljómplötur: Söng-
dansar. 19.40 Lesin dagskrá næstu
viku. v20.20 Útvarpsljómsveitin
(Þórarinn Guðmundsson stjórnar):
a) Lagaflokkur eftir Mozart. b)
Vals eftir Oskar Strauss. 20.50
Frá útlöndum (Axel Thorsteins-
son). 21.10 Hjómplötur: Lög leikin
Sókn Breta
verður hrað-
ari.
Sjö þýzkar her-
deildir úr sög-
unni.
ókn bandamanna í Nor-
mandie heldur áfram og
herma fregnir frá vígvöllun-
um í morgun, að yfirráð Þjóð-
verja í Rennes sé nú í mikilli
hættu.
Rennes er um 50 km. fyrir
sunnan Pontorson og eru því
rúmlega tvær dagleiðir milli
þessara borga, ef reiknað er
með sama hraða í sókn banda-
manna og að undanförnu.
Eins og áður hefir verið sagt,
er Rennes mikilvægasta sam-
göngumiðstöð á Bretagne-skag-
anum. Frá borginni liggja fjór-
ar járnbrautir og átta þjóðveg-
ir í allar áttir og hún er aðal-
birgðastöð fyrir hafnarborgir
skagans. Er því enginn vafi á
því, að hún er svo mikilvæg, að
háðir munu leggja mikið í söl-
urnar til að hafa þar yfirráð,
og líklegt er, að eins fari á
Bretagne og Cherbourg, ef
Bandaríkjamenn ná henni á
vald sitt.
Sókn Breta
verður hraðari.
Þótt sókn annars hers Breta
suður af Coumont gengi mjög
seint í fyrstu, vegna mikilla
jarðsprengjusvæða, sem Þjóð-
verjar höfðu útbúið, hefir hraði
hennar nú vaxið til muna. Hafa
Bretar tekið borgina Vire, sem
er um 27 km. fyrir sunnan Cau-
mont, en jafnframt færa þeir
út kvíarnar til austurs og stefna
til Villers Bocage.
Frá Vire munu Bretar að lík-
indum stefna til þriggja borga,
Flers í suðaustri við járnbraut-
ina frá Vire, Domfront, sem er
allmiklu sunnar en Flers og
Mortain, beint suður af Vire.
Sjö herdeildir
eru úr leik.
Eftir að Bretar byrjuðu að
fara hraðar yfir, hafa þeir farið
að taka fanga af Þjóðverjum. 1
gær var búið að telja um 1500
fanga síðan sóknin hófst.
Þegar bandamenn liófu inn-
rásina telja þeir að um tuttugu
þýzkar herdeildir hafi verið í
Normandie og næstu héruðum,
ef varalið sé talið með. Nú sé
hinsvegar svo komið,. eftir
rúmra átta vikna bardaga, að
sjö þessara herdeilda muni vera
úr sögunni.
Árásir
hjá Signu og Leiru.
Flugvélar bandamanna réð-
ust í gær einkum á samgöngu-
miðstöðvar Þjóðverja fyrir
austan Signu ög norðan Leiru
(Loire). Reyna þeir með því að
einangra vígvellina frá öðrum
hlutum Frakklands.
á cello. 21.15 Upplestur: Bréf Gutt-
orm 'H^llsonar úr Barbaríinu
(Bjarni Vilhjálmsson cand. mag.).
21.35 Hljómplötur: Litháisk lög.
Orustan um
Varsjá mesta
viðureign síðan
Stalingrad
Tng:þn§andir borgrarbúa látnir
rei§a götnvirki.