Vísir - 01.09.1944, Qupperneq 1
o
Rltstjórar:
kristján Guðlaugsson ;
Hersteinn Pálsson
/
Skrifstofur
Félagsprentsmiöjan (3.„hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn Slmii
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S llnur
Afgreiðsla >
34. ár.
Reykjavík, föstudaginn 1. september 1944.
197. tbl.
HERFRÆÐIIGAR SEGJA, AÐ ORUSTUNNI
UM FRAKKLAND SÉ f RAUNINNI LOKIÐ.
Frönsku svikar-
arnir, sem eru
efstir á hlaði
hjá DeOaulle.
*
1 *
Petain 09 Laval eru
fyrstir af stórum hóp.
London í gær (UP).— Pierre
Laval er efstur á blaði af þeim,
sem Frakkar munu taka tafar-
Iaust af lífi, þegar þeir hafa
verið handsamaðir.
Petain marskálkur mun ekki
verða tekinn strax af lífi, því að
hann mun verða dreginn fyrir
dómara. Þetta var mér sagt,
þegar eg heimsótti þann mann
I herforingjaráði de Gaulle, sem
gengur undir nafninu „likhús-
vörðurinn”.
„Líkhúsvörðurinn“ er ró-
lyndur, dökkhærður liðsforingi,
sem bauð mér að líta inn í
vinnustofu sína. Það fyrsta, sem
eg kom auga á þar inni, voru
nokkrar myndir af hryllilega
leiknum líkum.
„Þetta eru verk nokkurra af
morðvörgunum, sem við mun-
um gera höfðinu styttri á sínum
tíma“, sagði „líkhúsvörðurinn“.
Hann tók blöð upp úr tveim-
ur skjalaskápvim.
„Hér er allt ritað, sem vitað
er um illvirki þessara fanta“,
sagði hann. „Þeir eru allir
Frakkar. Við munum krefjast
reikningsskila af þeim — ann-
aðhvort föðurlandsvinirnir, sem
eru heima fyrir, eða stjórnin,
sem sett verður á laggirnar,
það er að segja, ef þessir piltar
verða þá enn á lífi.
Þér eruð fyrsti maðurinn, ut-
an nánasta hrings foringja okk-
ar, sem fær að kynnast þessum
skjölum.“
Liðsforinginn sagði, að enda
þótt Petain væri talinn „föður-
landssvikari nr. 1“, væri ekki
ætlunin að lífláta hann, held-
ur á að láta fara fram réttar-
höld yfir honum vegna glæpa
hans í garð Frakka.
Það er Laval, sem er efstur
á lista þeirra, sem hafa þegar
verið dæmdir til dauða.
Joseph Darnand, forhertur
samstarfsmaður Þjóðverja, sem
var gerður innanríkisráðherra
Vichy-stjórnarinnar ekki alls
fyrir löngu, er næstur. Hann er
talinn sá Frakki, sem er „mest
hataður og fyrirlitinn“. Hann
hefir löngum stjórnað hernaðin.
um gegn Maqui-sveitunum.
Marcel Deat, atvinnumála-
ráðherra, er í þriðja sæti, fyrir
að senda eina milljón franskra
karla og kvenna í nauðungar-
vinnu.
Jacques Doriot, foringi
franska fasistaflokksins og liðs-
foringi í SS-hernum, er fjórði í
röðinni. Hann er sakaður um
Framh. á 3. síðu.
Járnbrautaverkfall
í Ungverjalandi.
Útvarpið í Moskva skýrir frá
því, að járnbrautarverkamenn
í Ungverjalandi hafi gert verk-
fall.
Hefir þetta komið eins og
reiðarslag yfir nýju stjórnina,
segir Moskva, því að liún ætl-
aði einmitt að veita Þjóðverjum
öflugan stuðning, en nú er kom-
ið í veg fyrir það.
Hin nýja stjórn hélt fyrsta
fund sinn í gær, til að ræða
verkfallið.
Þýzka fréttastofan tilkynnir,
að Stojai, fyrrum forsætisráð-
herrá hafi látizt í gær.
Her Tékkóslóvaka
hefir ía&hérvð
landsizw.
Her tékkóslóvakiskra frelsis-
vina hefir að sögn öll innhéruð
landsins á valdi sínu.
Herstjórn Tákkóslóvaka gaf
út tilkynningu um það, að Þjóð-
verjar hefði aðeins landamæra-
héruðin í austri og vestri á valdi
sinu og sæki þeir á í vesturátt
með miklu stórskotaliði og flug-
hði. Harðir bardagar eru í
grennd við Pressburg við Dóná.
Pólverjar rétta
fram höndina.
Pólska stjórnin í London hef-
ir sent Rússum tillögur til
lausnar á deilu þeirra.
Þar skuldbindur stjórnin sig
til að láta fram fara breytingar,
svo að allir flokkar eigi fulltrúa
í henni, þegar landið sé orðið
frjálst. Þá verði og gerður nýr
vináttusamningur Pólverja og
Rússa, en jafnframt verði, ef
vill, fleiri þjóðir hafðar með í
ráðum til að leysa „pólska
vandamálið“.
Pólverjar legja áherzlu á, að
þeir vilji gera bandalag við
Breta, Frakka og Rússa og hafa
nána samvinnu við Bandaríkin.
★
Churchill hefir sent pólsku
þjóðinni ávarp í tilefni af því,
að 6. ár stríðsins er að hefjast.
130 rakeítn-
stöðrar teknar
eða eyðila^ðar.
Bandamenn hafa nú tekið eða
gert 120 rakettustöðvar ónot-
hæfar í N.-Frakklandi.
Á litlu svæði rétt vestan við
Signu fundu brezkar hersveitir
14 rakettustöðvar og voru sum-
ar þeirra svo nýbyggðar, að þær
höfðu ekki verið notaðar. Flutn-
ingaleiðir til margra af rakettu-
sprengjustöðvunum hafa verið
rofnar með loftárásum eða
hinni hröðu sókn bandamanna
síðustu tvo eða þrjá dagana.
Bretar fóru til
Somme — 105
km. — á tveim
dögum.
Knnadamenn
eria komnir
nærri Dleppe.
m dögun í gærmorgun óku
brezkar vélahersveitir inn
í borgina Amiens, sem stend-
ur á bökkum Somme. Höfðu
þær farið 65 km. á aðeins 12
klst.
Þessi síðasta sóknarlota
Breta við Somme er með ein-
dæmum. Þess eru engin dæmi,
að nokkuru sinni hafi verið sótt
svo hratt fram af vélaher og
sízt þegar þess er gætt, að lengst
af var ekið í náttmyrkri og
helhrigningu. Fjöldi fanga var
tekinn um nóttina — þýzkir
hermenn, sem gefizt höfðu upp
á göngunni.
Bretar sóttu að Somme í
þrem fylkingum og tókst þegar
að komast yfir ána. 1 gær var
svo unnið að því, að breikka
brúarstæðið og var það orðið
um 20 km. á breidd um myrk-
ur.
Kanadamenn nálgast Dieppe.
Kanadamenn fóru yfir Signu
í gær og tóku Rúðuborg. Skildu
Þjóðverjar aðeins eftir fáeinar
leyniskyttur. Borgin hafði ekki
verið mjög illa útleikin.
Síðan var haldið rakleiðis
norður með ströndinni, og í
morgun var sagt í fyrstu frétt-
um, að Kanadamenn ætti aðeins
um 25 km. ófarna til Dieppe,
þar sem innrásaræfingin var
gerð, sællar minningar.
Suður-Frakkland.
Franskar hersveitir voru í
gærkveldi búnar að taka Nar-
bonne, sem er 80 km. frá landa-
mærum Spánar. Höfðu Frakkár
ekki orðið varir við neinar
]i>rzkar hersveitir á leið sinni og
mun allt þýzkt lið á bak og burt
úr Suður-Frakklandi.
Aðrar franskar hersveitir
sækja norður á bóginn fyrir
vestan Rón. Höfðu þær í gær
tekið borgina Argentiére, sem
er við járnbrautina norðvestur
frá Nimes, álíka norðarlega og
Montélimar.
1 Róndalnum sjálfum hafa
bandamenn tekið borgina Val-
ence. Týna Þjóðverjar óðum
tölunni þarna, einkum þegar
þeir ]iurfa að fara yfir ár og
vatnsföll, því að þá komast
bandamenn ætíð í betra skot-
færi.
. Hersveitir Titos bafa náð á
vald sitt auðugri kolanánxu í
Makedoníu í N.-Grikklandi.
★
I Bandaríkjunum eru nú í
haldi 225 þús. fangar frá mönd-
ulveldunum og eru látnir vinna
5rmis störf.
Forseti íslands vænt-
anlegur í fyrramálið. |
I
Forseti íslands mun væntan-
legur hingað á morgun.
Eftir því, sem Vísir befir
frétt, er gert ráð fyrir því, að
forseti komi hingað til bæjarins
úr för sinni til Bandarikjanna
árdegis á morgun, ef óviðráð-
anlegar ástæður hamla ékki.
Förin hefir þá staðið hálfa aðra
viku.
Minning Jóns Sigurðssonar.
Slaii«Iai*áIs|aiBBeiin
■iiu■■«■ vera komn-
ir til Delgín.
Fara nai §öma leið «g Þjððverjar
1040.
||ernaSarsérfræSingar bandamanna segja nú hiklaust, aS
„orustunni um Frakkland“ sé raunverulega lokiS, þótt
bandamenn sé ekki búnir aS senda herliS til allra landshluta.
Og frá Sviss berast fregnir um aS ÞjóSverjar sé aS koma sér
fyrir í Siegfried-línunni.
Rætt um fram-
kvæmdir á
Hrafnseyri.
Miðvikudaginn 30. ágúst var
haldinn fundur á Hrafnseyri við
Amarfjörð um framtíð staðar-
ins.
Fundinn sátu Sigurgeir Sig-
urðsson biskup, Helgi Ehasson
fræðslumálastjóri, Hörður
Bjarnason skipulagsstjóri,
skólanefnda. og sóknamefnda-
menn úr héraðinu og alþingis-
mennirnir Gísli Jónsson og Ás-
geir Ásgeirsson. Fundurinn var
haldinn vegna þingsályktunar
frá síðasta Alþingi um fram-
lcvæmdir á Hrafnseyri í minn-
ingu Jóns Sigurðssonar, sem
þar var fæddur og uppalinn.
Lýðveldishátíðarnefndin stofn-
aði til fundarins og mun hún
bráðlega leggja fyrir, þing og
stjórn tillögur sínar um málið.
Ríkisstjórnin sendir
flokkunum tillögur
um dýrtíðarmálin.
Vísir hefir heyrt, að ríkis-
stjórnin hafí sent flokkunnm
tillögur til lausnar dýrtíðarmál-
unum.
Tíðindamaður blaðsins spurð-
ist fyrir um þetta hjá Birni Ól-
afssyni, fjármálaráðherra, í
morgun og skýrði liann blaðinu
frá því, að þetta væri rétt, en
vildi ekki gefa- neinar upplýs-
ingar um það í hverju tillögurn-
ar eru fólgnar.
Stjórnin mun leggja þessar
tillögur fyrir Alþingi í frum-
varpsformi, er það kemur sam-
an.
Rússar komnir að landamærum Búlgariu.
Sækia og veslui með Dóná.
Brezka útvarpið skýrði frá því
kl. 10 í morgun, að framsveitir
Rússa væri komnar suður að
landamærum Búlgaríu.
Þessi fregn hefir ekki verið
staðfest með opinberri tilkynn-
ingu í Moskva, enda gefur her-
stjórnin ekki út tilkynningar
sínar fyrr en að kveldi. En
hraðinn í sókn Rússa befir ver-
ið svo mikill síðustu dagana, að
þetta er mjög sennilegt.
Jafnframt því, sem Rússar
stefna suður að Dóná, fara þeir
einnig vestur með ánni vestur
til járnhliðsins, í áttina til Jugo-
slaviu og Ungverjalands.
Tito marskálkur tilkynnti í
gær, að hersveitir hans væri í
sólcn austur á bóginn, vafalaust
til móts við Rússa.
186,000 fangar.
Síðustu átta dagana hefir
manntjón Þjóðverja verið með
ódæmum. Þeir hafa misst 186,-
000 manns í hendur Bússa lif-
andi, en auk þess hafa tugþús-
undir fallið. 1 gær voru teknir
7000 fangar og var hershöfðingi
einn meðal þeirra, en hk annars
fannst í valnum.
Fyrir norðaustan Praga tóku
Rússar bæ, sem er 20 km. frá
borginni.
25 þýzkar her-
deildir upprættar
4 aö auki ofurseldBi*
bandamönnum.
Eisenhower gaf blaðamönn-
um í gær upplýsingar um við-
ureignina við Þjóðverja fyrstu
85 daga innrásarinnar.
Manntjón Þjóðverja nemur
400,000 manns. Helmingurinn
er fangar og hafa 135,000
þeirra verið teknir síðan 25.
júlí. Tuttugu og fimm hérdeild-
ir liafa verið alveg upprættar,
en sömu örlög bíða fjögurra,
sem nú eru á Bretagne og Erm-
arsundseyjum.
Tveir herir, sá 7. og hinn ný-
stofnaði 5. brynher, hafa verið
gersigraðir, en tveir, 1. og 15.,
hafa goldið mikið afhroð.
Þjóðverjar hafa misst 3545
flugvélar, 1300 skriðdreka, 2000
fallbyssur og 20,000 bíla.
Lífið í París er nú að færast í
eðlilegt horf. Póstur og járn-
brautir gangh reglulega og sex
blöð byrjuðu að koma út i
fvrradag.
Þjóðverjar flýja svo' hratt
sums staðar í Norður-Frakk-
landi, að blaðamenn, sem fara
með fyrstu hersveitunum, segja
að erfitt sé að halda í þá. Það
eru einkum þær hersveifir, sem
Bandaríkjamenn elta, sem fara
svona hratt. Hjá þeim er ekki
lengur um undanhald að ræða,
heldur skipulagslausan flótta.
Rétt fyrir myrkur í gær voru
framsveitir Bandaríkjamanna
komnar mjög nærri Sedan, sem
er um 10 km. frá landamærum
Belgíu. Snemma í morgun var
sagt, að ekki væri útilokað, að
Bandaríkjamenn væri komnir
inn í Belgíu.
Leiðin frá 1940.
Bandaríkjamenn koma að
landamærum Belgíu á sama
stað og Þjóðverjar fóru suður
yfir þau til Frakklands árið
1940. Þá gerði herstjórn banda-
manna ekld ráð fyrir því, að
Þjóðverjar mundu treystast til
að fara í gegnum Ardenna-
skóginn með bíla sína og skrið-
dreka, en þeir brunuðu í gegn til
Sedan, Rethel og þaðan norð-
vestur til sjávar við ósa Somme.
í t
Eisenhower talar um
Siegfried-línuna.
Eisenhtíwer minntist lítið eitt
á Siegfried-línuna í viðtah, sem
hann átti við blaðamenn i gær.
Hann sagði, að hann vissi ekki
enn, hvort Þjóðverjar mundu
hörfa alla leið til hennar nú, en
hitt vissi hann, að engin varna-
lína væri betri en hermennirnir
í henni og það mundi lítt víg-
reifur her, sem Þjóðverjar gætu
komið þar fyrir.
Fegnir að gefast upp.
Hvarvetna þar sem banda-
menn fara um í sókn sinni aust-
ur á bóginn, aka þeir fram á
þýzka liermenn, sem hafa ör-
j magnazt á göngunni, því að
j herinn hefir ekki flutningatæki
handa öllum hersveitum. Þessir
hermenn gera enga tilraun til
að stöðva sókn bandamanna,
heldur sitja nreðfram vegunum
og horfa sljóum augum á
skriðdreka- og bílalestir banda-
manna fara framhjá og bíða
einungis eftir því, að þeim sé
sagt hvert þeir skuli halda í
fangabúðir.
Bandaríkjamenn einir taka
um 2000 fanga á degi hverjum.
j Frh. á 3. síðu.
I
#