Vísir - 01.09.1944, Side 2
VISIR
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján GuÖIaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 16 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 ó mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
PtanrfldsmáL
jyjorgunl)laðið víkur nokkrum
orðum að Vísi í leiðara sín-
um i gær i sambandi við um-
ræður þær, sem orðið hafa um
utanför forseta Islands og
fylgdarlið hans. Kemst blaðið
að þeirri niðurstöðu, að Vísir sé
gagntekinn af mikilleik Vilhj.
Þórs, en þótt hugsunin sé óljós,
vill þlaðið vafalaust gefa í skyn
að afstaða þessa Maðs mótist
af þeirri hrifningu. Morgun-
blaðið hefir vafalaust orðið vart
við að ritstjórn Vísis er ekki
leikin í þeirri list, að falla fram
og tilbiðja menn, en hefir leyft
sér að túlka stefnu Sjálfstæðis-
flokksins hreina og ómengaða
af vináttutillitum eða aðdáun-
arósjálfstæði.
Afstaða Morgunblaðsins og
umræður þess um utanför for-
setans virðist mótast einvörð-
ungu af þvi, að maður að nafni
Vilhjálmur Þór gegnir embætti
utanríkismálaráðherra, en hefði
maðurinn borið eitthvað annað
nafn, héfði sjálfsagt ekkert ver-
ið að athuga við utanför hans,
jafnvel þótt hann hefði setið í
minnililuta stjórn, og þannig
ekki haft umboð meiri hlutans
til utanfararinnar. En allt þetta
umboðshjal Morgunblaðsins er
meinloka. Það leiðir beint af
stöðii ráðherrans, alveg án til-
lits til nafns hans, að honum
bar að fara í förina, enda veit
núvetandi forseti íslands vafa-
laust eins vel hvað við á í þessu
efni og sjálfboðasérfræðingar
Morgunblaðsins i utanrikismál-
um. *
Morgunblaðið hefir áður og
fyrr bent réttilega á, að umræð-
ur um utanrikismál ættu að
fara fram með fullri hófsemd
og stillingu. Þau mál væru svo
viðkvæm, og vandmeðfarin, að
ekki mætti draga þau niður í
sorp innanlandsátakanna, en
blaðið hefir sjálft fallið fyrir
þeirri freistingu, að ræða þessi
mál á mjög óviröulegan og ó-
geðfelldan hátt og þá að sjálf-
sögðu óskynsamlega og jafnvel
skaðlega. Slíkt er illa farið og í
engu samræmi við vilja þess
flokks, sem blaðið hefir talið sig
málsvara fyrir.
Afneitunin,
J^ðstandendur Morgunblaðsins
hafa að undanförnu farið
um sveitir landsins í þeim er-
indagerðum, að biðja menn um
að lesa Morgunblaðið eitt, en
taka ekki mark á öðrum blöð-
um. sem teldu sig til Sjálfstæð-
isflokksins, en túlkuðu ekki
stefnu hans. Við þessa menn
skal það eitt sagt, að stefna
Morgunblaðsins hefir verið svo
óljós að undanförnu, að al-
menningur er helzt á því, að
hún sé engin og geti því allra
sizt verið stefna Sjálfstæðis-
flokksins. Hinsvegar hefir
stefnu flokksins verið haldið
fram með fullri festu hér í blað-
inu og hvergi verið frá henni
hvikað. Erindrekar flokksins
hafa því vafalaust farið út fyrir
umboð sitt, er þeir telja sig
þess umkomna að afneita mál-
gögnum flokksins og um leið
skoðunum alls þorra flokks-
Altt fé í fimm hreppum í Þingeyjarsýslu
verður skorið niður i haust
Bændur hafa orðið íyrir miklu tjóni.
Viðtal við Sæmund Friðriksson.
JJjins og kunnugt er, hefir
þingeysk mæðiveiki
(lungnaþemba) gert mjög
mikinn skaða á sauðfé í
nokkrum hreppum í Þingeyj-
arsýslu. Vísir hafði tal af Sæ-
mundi Friðrikssym, fram-
kvæmdastjóra sauðfjárveiki-
varnanna, og spurðist fyrir
um þetta mál hjá honum.
Sæmundi sagðist svo frá:
Mikil fjárfækkun hefir orðið
hjá bændum á þessu svæði og
var svo komið síðast liðinn vet-
ur og reyndar fyrr, að þeir
töldu sig ekki geta búið við
veikina öllu iengur.
í tilefni af þessu fór fram at-
kvæðagreiðsla meðal bænd-
anna, skv. lögum nr. 88 frá 9.
júlí 1941 um fjárskipti og varð
niðurstaða þeirrar atkvæða-
greiðslu sú, að fjareigendur á
svæðinu milli Jökulsár og
Skjálfandafljóts samþ., með
miklum meirihluta, niðurskurð
og fjárskipti. Að vísu var einn
hreppur á þessum slóðum,
Reykdælahreppur, áður búinn
að gera fjárskipti.
Af ýmsum ástæðum jiótti
ekki gerlegt að framkvæma
fjárskipti á öllu svæðinu, en
landbúnaðarráðherra sam-
þykkti fjárskipti á norðurhluta
þess, en það er Aðaldælahrepp-
ur, Reykjahreppur, Húsavikur-
hreppur, Tjörnesherppur og
Kelduneshreppur.
I sumar hafa miklar girðing-
ar verið settar upp til þess að
einangra þetta svæði.
Er í ráði að taka liflömb í
fjórum næstu lireppunum,
austan Jökulsár á Fjöllum og
auk þess, ef til vill, eitthvað á
Vestfjörðum.
Alls mun verða slátrað í
haust á þessu fjárskiptasvæði
um 9 þús. af fullorðnu fé, auk
allra lamba. — Mun slátrun
hefjast um 10. sept. n. k. og
vera lokið í kring um 25. sama
mánaðar.
manna. Slík ummæli verða því
ekki tekin alvarlega, en túlk-
uð út frá þeirri staðreynd, að
áður hefir það hent góða menn,
— jafnvel ekki Iakari en Pétur
postula — að afneita skoðunum
sínum oftar en einu sinni og
reyndist hann þó stefnu sinni
trúr, er hann hafði gengið i
gegnum hreinsunareld afneitun-
arinnar og þær sálarraunir, sem
henni fylgdu.
Einstaka menn mega hinsveg-
ar ekki fara að dæmi Lúðvíks
XIV., sem sagði: „Ríkið, — það
er eg“ og segja það sama um
Sjálfstæðisflokkinn. Sem betur
fer er flokkurinn skipaður hugs-
andi mannverum, — og þeim
vel gefnum og vel hugsandi, —
en þar af leiðandi mun flokkur-
inn ekki láta hjóða sér allan of-
stopa og yfirgang, sem jafnvel
kann að fela i sér algera tortím-
ingu flokksins sjálfs. Menn vilja
verja skoðanir sínar og berjast
fyrir þeim gegn öllum árásum,
hvort sem þær koma utan frá
eða að innan, en hitt kann al-
menningur ekki að meta, að fyr-
ir engum skoðunum sé barizt,
en samið um sálarheillina, —
en þó einkum veraldlega vel-
ferð — eftir því sem henta þyk-
ir hverju sinni. Það eitt er ekki
nóg, að kasta hanzkanum og
skora á hólm. Hjá hólmgöng-
unni verður ekki komizt sé við
menn að eiga, en þá hera þeir á-
byrgð á afleiðingum, sem til
slíks ieiks stofna.
Ráðgert er að flytja inn á
svæðið í stað þess fjár sem skor-
ið verður niður, 6000—7000 líf-
lömb.
Fyrirsjáanlegt er það, að ekki
verður hægt að koma kjötinu í
geymslu í frystihúsum, hvorki
hér á Suðurlandi eða Norður-
landi sökum þess, að öll eru
frystihúsin yfirfull af freðnum
fiski. Mun láta nærri, að þar
séu um 16.000 tonn. Eitthvað
verður þó tekið af fiskinum úr
frystihúsunum nú á n'æstunni
og verðui' þá liægt að koma
nokkuru af kjötinu í geymslu
þar.
Annað er svo hitt, að ekki er
mögulegt að selja neitt af kjöt-
inu, fyrr lieldur en þing er kom-
ið saman, því þá fyrst verður
kjötverðið ákveðið.
Horfir heldur vandræðalega
um úrlausn þessa máls, en eftir
er að sjá, hverju fram vindur.
Engin síld fryst
til beitu.
Óvænlega mun nú horfa með
öflun beitusíldar fyrir næstu
vertíð.
Svo sem um var getið hér í
blaðinu fyrir skemmstu, voru
öll frystihús full af fisld, svo að
þau gátu ekki tekið síld til fryst-
ingar. Var þá von um að eittlivað
rýmkaðist í húsunum, en það
mun ekki iiafa orðið ennþá. Fer
útlit því að verða æði ískyggi-
legt, ef ekki verður skjót breyt-
ing á.
Beituþörf landsmanna mun
vera um 45,000 tunnur síldar á
Kartöflur lækka í verði
an.
Engin hljóxnsveit enn
Hótel Borg
a
Síðast liðið haust var öllu fé
i Siglufjarðarumdæmi slátrað
vegna garnaveikisýkingar. Mun
það hafa verið á annað þúsund
fjár, fullorðið. Hefir umdæmið
nú verið einangrað með girð-
ingu og verða flutt þangað nú í
haust um 500 líflömb af Vest-
fjörðum.
Þrálátur orðrómur hefir að
undanförnu gengið um það, að
samkomulag væri nú í þann veg-
inn að nást í deilu hjómlistar-
manna og Jóhannesar á Borg.
Vísir snéri sér þvi til Hjartar
Nielsen, yfirþjóns á Borg, en
Jóliannes er elcki í bænum, og
spurðist fyrir um, hvað hæft
væri í þessu. Kvað Hjörtur þetta
vera eintóman uppsuna, enda
liefði ekkert verið um þetta rætt
nú um tíma og myndi ekki verða
gert, fyrr en Jóhannes kgemi í
bæinn.
Þess skal getið hér til gamans,
að það fylgdi sögunni, að hljóm-
sveit sú, sem hefir undanfarið
verið á Hótel Gullfoss á Akur-
eyri, ætti að koma hingað og
leika á Borg, en eins og fyrr
segir er enginn fótur fyrir þeSs-
um orðrómi.
Ástæðurnar fyrir því, að Vinnuveitenda-
félagið vill fá verkíall Dagsbrúnar
dæmt ógilt.
EINS og skýrt var frá hér í
blaðinu í gær hefir Vinnu-
veitendafélag íslands höfðað
mál fyrir Félagsdómi gegn
Verkamannafélaginu Dagsbrún
og vill fá „Trúnaðarmannaráð“
félagsins dæmt ógilt til að fyrir-
skipa verkföll. Er mál þetta
höfðað vegna h.f. Shell og fer
hér á eftir útdráttur úr stefnu
Vinnuveitendafélagsins, svo
menn geti frekar áttað sig á,
hverjar forsendur liggja til
málshöf ðunarinnar:
Samkv. núgildandi lögum
V.m.f. Dagsbrún frá 16. og 17.
jan. 1943 er stjórn félagsins
skipuð 5 mönnum. í félaginu er
trúnaðarráð skipað 100 mönn-
um og loks trúnaðarmannaráð,
skipað 4 mönnum aulc hinna 5
stjórnenda, en formaður félags-
stjórnarinnar er jafnframt for-
maður trúnaðarmannaráðsins
og ritari hennar einnig ritari
þess.
í 35. gr. félagslaganna er svo
ákveðið, að þetta trúnaðar-
mannaráð, þannig skipað, hafi
vald til þess að taka ákvörðun
um vinnustöðvun.
Á þessum grundvelli liefir
trúnaðarmannaráð V.m.f. Dags-
brúnar tekið þá ákvörðun um
vinnustöðvun lijá Shell li.f. frá
og með 22. þ. m., sem ræðir um
í eftirgreindu bréfi, dags. 14. þ.
m.:
„Vinnuveitendafélag íslands,
f. h. h.f. Shell á íslandi, Reylcja-
vik.
Á fundi trúnaðarmannaráðs
félags vors þann 14. þ. m. var
samþykkt að stöðva alla vinnu
Dagsbrúnarmanna hjá h.f. Shell
á fslandi frá og með 22. ág. þ. á.,
ef ekki hafa náðzt nýir samning-
ar við h.f. Shell, um kaup og
kjör mánaðarkaupsmanna, fyr-
ir þann tíma.
Þetta tilkynnist yður hér með.
Virðingarfyllst,
f. h. Verkamannafél. Dagsbrún,
Eggert Þorbjarnarson.“
Sáttasemjari rejrndi sætlir í
málinu, en þær tókust ekki.
V.m.f. Dagsbrún gerði síðan
verkfall hjá h.f. Shell að morgni
þ. 22. þ. m. og stendur það verk-
fal! ennþá.
V.m.f. Dagsbrún lét verkfallið
ná til, ekki aðeins mánaðar-
kaupsmanna, heldur einnig
tímakaupsmanna og bannaði
öllum meðlimum sinum að
vinna, hvaða vinnu sem væri hjá
li.f. Shell.
f 15. gr. 1. nr. 80/1938 um
stéttarfélög og vinnudeildur er
að finna héraðlútandi lagaregl-
ur. Greinin er svohljóðandi:
„Þegar stéttarfélög eða félög
atvinnurekenda ætla að hefja
vinnustöðvun, þá er hún því að-
eins heimil, að ákvörðunin hafi
verið tekin:
a) við almenna, leynilega
atkvæðagreiðslu, sem staðið
hefir a. m. k. í 24 klst., enda
hafi félagsstjórnin auglýst nægi-
lega, hvar og hvenær atkvæða-
greiðslan um vinnustöðvunina
skyldi fara fram.
b) af samninganefnd eða
félagsstjórn, sem gefið hefir
verið umboð til að taka ákvörð-
un um vinnustöðvunina með
almennri atkvæðagreiðslu, sem
farið liefir fram á sama hátt og
greint er undir a-lið.
c) af trúnaðarmannaráði, ef
lög viðkomandi félags fela því
slikt vald, enda hafi vinnu-
stöðvnnin verið samþykkt með
a. m. k. % hlutum greiddra at-
kvæða á lögmætum trúnaðar-
mannaráðsfundi.“
Stefnandi (Vinnuveitendafé-
lagsstjórnin) lítur svo á, að
heimild sú, fyrir trúnaðar-
mannaráð til þess að ákvarða
vinnustöðvun, sem um ræðir í
c-lið téðrar lagagreinar, geti að-
eins náð til þess, þegar trúnað-
armannaráð er svo fjölmennt í
hlutfalli við félagatölu hlutað-
eigandi félags, að búast megi
við, að vilji trúnaðarmanna-
Verðlagsnefnd garðávaxta
hefir nú ákveðið að lækka tölu-
vert verð á kartöflum, frá því
sem það hefir verið nú um hríð.
Hefir nefndin ákveðið, að
heildsöluverð kartaflna skuli
vera 138 kr. hver 100 kg. en var
áður lcr. 190. Smásöluverð er
nú 1,70 hvert kg. en'var áður lcr.
2.35 pr. kg., skv. ákvörðun verð-
lagsnefndarinnar.
En skv. heimild í lögum um
dýrtíðarráðstafanir hefir at-
vinnu- og samgöngumálaráðu-
neytið ákveðið, að smásöluverð
megi ekki vera hærra en kr.
1.30 pr. kg., en heildsöluverðið
104.00 kr. pr. 100 kg. Er hér um
töluverða lækkun að ræða.
Mr. Rae dæmir 1. leik
í Walterskeppninni,
Það hefir orðið að samkomu-
lagi, að hinn enski knattspyrnu-
dómari Mr. Rae dæmi fyrsta
leik Walterskeppninnar, sem
háður verður kl. 5 n. k. sunnu-
dag.
Mr. Rae hyggst að sýna ís-
lenzkum knattspyrnumönnum
og áhorfendum, hvernig dæmt
er á meistaraflokksleikjum í
Englandi og hefir þvi fengið 2
islenzka dómara sem línuverði
sér til aðstoðar. Þar að auki hef-
ir hann sex unglinga til þess að
sækja boltann og koma honum
sem fyrst inn í leikinn aftur, er
honum er spyrnt út af vellinum,
en þetta tíðkast á öllum stærri
kappleikjum í Englandi.
Verður vafalaust fróðlegt
hæði fyrir knattspyrnumenn og
áhörfendur að horfa á þe'nnan
leik og má sjálfsagt margt af
Mr. Rae læra í þessum efnum.
Nýja Bíó:
As ir skáldsins.
Annað kvöld tekur Nýja Bíó
til. sýningar stórmynd, sem
fjallar um ástir og ævi ameríska
skáldsins Edgar Allan Poe. —
Poe fæddist árið 1809 í Boston,
en foreldrar lians dóu er liann
var á unga aldri. Eftir það ólst
Iiann upp hjá kaupmanni nokk-
urum í Richmond í Virginia.
Lýsir myndin skólaveru hans i
Englandi, Virginia-háskólanum
og West Point-herskólanum. —
Aðalblutverkin leika Linda Dar-
nell, John Sbepperd (sem Allan
Poe) og Virginia Gilmore. Er ó-
hætt að fullyrða, að þetta sé með
beztu myndum, sem Iengi hafa
sézt hér í bænum.
ráðsins verði nokkurn veginn
spegilmynd af vilja félags-
manna, sem heildar.
Um s.l. áramót voru félags-
menn Dagsbrúnar 2980 að tölu
og befir ekki fækkað síðan.
Stefnandi telur því, skv. liugs-
un og tilgangi téðs laga-ákvæðis
geti 4 menn (auk 5 félagsstjórn-
anda) ekki verið nægilegir til
þess, að svo verði litið á, sem
hér liggi fyrir trúnaðarmanna-
ráð í heim skilningi, sem leggja
verður í það orð í umræddu á-
kvæði vinnudeilulaganna.
Ennfremur bendir stefnandi
á, að lögin taki ákvörðunarrétt
um vinnustöðvanir úr höndum
félagsstjórna og það geti ekki
samrímst lögunum, að þetta
vald sé lagt í hendur stofnunar,
þar sem félagsstjórnin getur ein
ráðið öllu.
Stefnandi telur, aðallega, verk-
fall þetta ólöglegt að öllu leyli
vegna þess, að trúnaðarmanna-
ráð Dagsbrúnar fullnægir ekki
skilyrðum Iaganna (nr.
80/1938).
Urvals þurkaður
Saltfiskur
fyrirliggjandi. Ódýr. —
Birgið yður til vetrarins
meðan verðið er lágt.
— Sömuleiðis eru til
Rófur
utan af landi, ódýrar og
góðar.
Hafliði Baldvinsson,
Hverfisgötu 123.
Sími 1456.
Vanur biíreiðarstjóri
óskar eftir að keyra
góðan vörubíl. Getur
skaffað vinnu. Tilboð
merkt „VörubílT^
sendist Vísi.
Bútasala
hefst í
SAUMASTOFUNNT
Hverfisgötu 49
í dag.
(Káputausbútar.)
ísskápui.
Nýr fyrsta flokks ís-
skápur til sölu. Tilboð,
merkt lSSKÁPUR,send-
ist blaðinu fyrir laugar-
dagskvöld.
Nýslátiað
giísakjöt
verður selt í dag og á
morgun
BERGSSTAÐASTRÆTI 2.
Framleiðsluverð.
Duglegur
sendisveinn
óskast nú þegar.
Húsgagnaverzlun
Reykjavíkur
Vatnsstíg 3.
Húsmæður!
Sultutíminn
er kominn!
Tryggið yður góðan árang-
ur af fyrirhöfn yðar. Varð-
veitið vetrarforðann fyrir
skemmdum. Það gerið þér
bezt með því að nota
BETAMON,
óbrigðult rotvarnarefni.
BENSONAT,
bensoesúrt natrón.
PECTINAL, Sultuhleypir.
VÍNEDIK,
gerjað úr ávöxtum.
V ANILLETÖFLUR.
\rÍNSYRU.
FLÖSKULAKK í plötum.
HíflrHEriiHx
Fæst í öllum
maitvöruverzlunum.