Vísir - 20.09.1944, Síða 3
VISIR
Bókamenn, athugið þessar bækur.
nns
FfTDT
Jakob B. Bull:
Vormaður Noregs.
220 bls.
Ky. 21,60 ób. — kr. 34,20 ib.
Ronald Fangen:
Með tvær hendur tómar.
377 bls.
Kr. 28,00 ób. — kr. 42,00 ib.
Friðrik Friðriksson:
Guð er oss hæli og styrkur.
113 bls.
Kr. 18,00 ób. — kr. 30,00 ib.
Sigurbjörn Einarsson:
Rosenius.
22 bls.
Kr. 2,00 ób.
Kaj Munk:
Við Babylons fljót.
225 bls.
Kr. 24,00 ób. — kr. 33,00 ib.
Þessar bækur eru allar hver annari merkari og eigulegri.. Þær má ekld
vanta í bókasafn yðar. En nú er hver síðastur. Sumar þeirra eru alveg uppseldar
hjá oss og aðeins örfá eintök eftir hjá bóksölum. Notið tækifærið og tryggið yð-
ur eintök strax hjá næsta bóksala. Eftir nokkra daga getur það verið of seint.
Bókagerðin LILJA
Pósthólf 651. — Reykjavík.
Stofuskápur
mjög vandaður, úr eik, til
sölu. Upplýsingar Guðrúnar-
götu 1. Sími 5642.
Þurkaðir ávextir:
R ú s í n u r,
S v e s k j u r,
' Epli,
F e r s k j u r,
P e r u r,
G r á f í k j u r,
B1 a n d a ð i r.
Verzlunin Vísir hi.
Laugaveg 1. Simi 3555.
Fjölnisveg 2. Sími 2555.
VINNA!
Sá, sem getur leigt 1—3 her-
bergja íbúð, getur fengið
stúlku í vinnu. Sá, sem vill
sinna þessu, leggi nafn og
heimilisfang ásamt upplýs-
íngum á afgr. blaðsins fyrir
23. þ. m., merkt „Vinna." —
Leirvörur:
Matar- og
Ávaxtasett,
Stakir diskar og tarínur
Sósukönnur,
Föt,
Bollapör.
Verzlun
Halldórs Eyþórssonar
Víðimel 3 5.
Vikuieinangrun
' ávallt fyrirliggjandi.
Vikursteypan
Lárus Ingimarsson.
Sími 3763.
Viðtalstími borg-ardómara
á skrifstofu hans í Arnarhvoli
verður á miSvikudögum, fimmtu-
dögum og laugardögum kl. io—12
f. h.
Innilegar þakkir fyrir auSsýnda vináttu á átt-
ræðisafmæli mínu 13. þ. m.
Stykkishólmi, 15. sept. 1944.
Ágúst Þórarinsson.
Eftir kröfu bæjargjaldkera Reykjavíkur og að
undangengnum úrskurði, verSa Iögtök látin fara
fram fyrir eftirfarandi ógreiddum gjöldum til
bæjarsjóSs:
1. Fasteignagjöldum ársins 1944, meS gjald-
daga 2. jan. s.l.
2. Lóðarleigugjöldum ársins 1944, meS gjald-
daga 2. jan. s.l.
3. Leigugjöldum ársins 1944, af húsum, túnum
og lóðum, meS gjaiddögum 2. jan., 1. apr.
og 1. júlí s.h
4. Erfðafestugjöldum ársins 1944, meS gjald-
daga 1. júlí s.l.
5. Samvinnuskatti af tekjum ársins 1943, með
gjalddaga 31. des. s.l.
6. Útsvörum, sem lögS voru á viS aukaniður-
jöfnun, með gjalddaga 1. nóv. 1943,
svo og fyrir dráttarvöxtum og kostnaði, að átta
dögum liðnum frá birtmgu þessarar auglýsingar.
0 \
19. september 1944.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Atvinna
Nokkrar stúlkur, sem geta tekið saum heim fyrir
verzlun hér í bænum, óskast strax.
Tilboð, merkt „Fatnaður“ sendist Vísi fyrir föstu-
dagskvöld.
BORÐBONAÐUR.
Höfum fengið horðbúnað úr rústfríu
stáli og silfurpletti.
Allt mjög góð vara.
Verzlun B. H. Bjarnason.
Beztu þakkir til allra þeirra, er sýndu mér vin-
áttu og hlýjan hug á fimmtugsafmæli mínu.
Pálmi Loftsson.
Tilkynning
frá Kjötverðlagsnefnd.
Landbúnaðarráðuneytið hefir tjáð Kjötverðlagsnefnd, að
samkvæmt þingsályktun frá 14. þ. m. um verðlækkun á vör-
um innanlands, hafi það ákveðið að verð á nýju kindakjöti
skuli vera óbreytt frá því, sem það var fyrir 15. september s.l.
| til 23. sama mánaðar, að þeim degi meðtöldum. Verðið verð-
! ur sem hér segir:
1) Heildsöluverð til smásaia á dilkakjöti kr. 5.75.
2) Smásöluverð á dilkakjöti (súpukjöti) kr. 6.50.
Sláturleyfishöfum og trúnaðarmönnum Kjötverðlags-
nefndar er skylt að halda nákvæmar skýrslur um kjötsöluna
á þessu tímabili og senda Kjötverðlagsnefnd skeyti um hana
að kvöldi þess 23. september.
Enn fremur er smásölum skylt að færa tvíritaðar frum-
bækur um alla kjötsölu og skal annað eintakið afhent trún-
aðarmönnum Kjötverðlagsnefndar utan Reykjavíkur og á
skrifstofu nefndarinnar í Reykjavík.
Ríkissjóður greiðir kjötframleiðendum bætur vegna þess-
ara ráðstafana á það kjöt, sem selt verður til neytenda.
Kjölveiðlagsnefnd.
Hér með tilkynnist, að systir okkar,
Ingveldur Einarsdóttir,
andaðist í gærkveldi á Elliheimilinu Grund.
Fyrir hönd vandamanna,
Magnús Einarsson. Maren Einarsdóttir.
---------------------------------------,------------------
Jarðarför konunnar minnar,
/
Halldóru Halldórsdóttur,
fer fram frá Fríkirkjunni föstudaginn 22. þ. m.
Athöfnin hefst að heimili hennar, Hringbraut 67,
kl. 3,30.
Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Þorkell Berg-sveinsson.
Svavar
sonur okkar verður jarðsunginn á morgun, fimmtudaginn
21. sept. Húskveðja heima, Sólvallagötu 31, kl. 1,30 síð-
degis. Jarðsett í Fossvogs-kirkjugarði.
Svava Þorsteinsdóttir. Ársæll Árnason.
~^^^HHHMHHHHHHHHHHHHi
Bæjar
fréftír
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.25 Þingíréttir. 20.30 Út-
varpssagan: Úr „Borgum“ eftir Jón
Trausta, V. (Helgi Hjörvar). 21.00
Hljómplötur: Islenzkir einsöngvar-
ar og kórar. 21.10 Erindi: SelveiSi
á Islandi fyrrum og nú, siðara er-
indi (Björn Guðmundsson, Lóni —
Lúðvík Kristjánssan ritstj. flytttr).
21.35 Hljómplötur: Cello-konsert
eftir Tartini.
Næturvörður
er í Reykjavíkur Apóteki, sími
1760.
Næturlæknir
er í Læknavarðstofunni, sími
S030-
Næturakstur.
Hreyfill, sími 1633.
5 nautgripir
og nokkur hæns brunnu nýlega
inni, er eldur kom upp í fjósinu á
Uppsöium i Blönduhlið í SkagafirÖí.
Heyhlaða var áföst fjósinu og
brunnu um 30 hestar af töðui úr
henni í eldsvoðanum, en ailt hey,.
sem í henni var, hefði sennilega.
brunnið, ef heimilisfólk, gangtia-
menn og vegavinnumenn hefðu ekki
gengið jafn vasklega fram í þvi að
slökkva eldinn og raun bar vitnú
Happdrætti Ármanns.
í gær var dregið í happdrætti Ár-
manns 5 skrifstofu borgarfógeta.
Upp komu þessir vinningar: 23558!
íslendingasögumar, 20014 crttornan>-
skápur, 25915 máíverk, 29025 rit-
safn Davíðs Stefánssonar, 2663’,
frakkaefni, 25206 fataefni, 22863;
lituð ljósmynd, 17165 skíði, 13764;
Þúsund og ein nótt, 17594 værðar-
voð, 25780 bakpoki, 15124 lituð
ljósmynd, 7894 værðarvoð, 5923,
Þjóðsögunsafnið Grima og 9443
rykfrakki. Vinningarnir óskast sótt-
ir sem allra fyrst í Körfugerðina,
Bankastr.
Heimilisritið,
ágústheftið, er nýkomið út fjöl-
breytt og skemmtilegt vað vanda.
Efni ritsins að þessu sinni er sem
hér segir: Skin og skúrir, ný fram-
haldssaga, Hálsklúturinn, úrvals-
sag^t eftir Gunnar Larsen, Visinda-
legt viti, grein um nýtízku pynting-
ar. Ennfremur eru í heftinu ástar-
sögur, glæpasögur, fróðleikur*
fyndni, þrautir og svo siðast en
ekki sizt leikarafréttir. Ritið er í
alla staði mjög skemmtilegt og
„spennandi“.
Þýzkir striðsfangn
senfla kTeðjur tlL
Islands.
Sænska sendiráðínu hér hef-
ir borizt skeyti frá Sænska
Rauða krossinum með tilmæl-
um um að efni þess verði birt
hlutaðeigendum. Skeytið hljóð-
ar svo:
Við erum komnir heilu og,
höldu til Gautaborgar og send-
um innilegar kveðjur öllum ætt-
ingjum og vinum.
Heimbert Bethke, Carl Bil-
lich, Rudolf Camphausen, Erik
Dahn, Karl Haake, Hans Haes-
ler, Alfred Heinicke, Walter
Kratsch, Bruno Kress, Paul
Meinhardt, Rudolf Noah, Jacob
Ruckert, Heiny Scheither, Her--
bert Steimann, Heinrick Tege-
der, Ernst Thelen, Edmund Ull-
rich, Eugen Urban, Gerd Will
og Heinrich Wöhler.
6080 gestir komu á
Sjómannaheimili
Siglufjarðar árið 1943.
Samkvæmt árbók Sjómanna-
og gestaheimilis Siglufjarðar
fyrir árið 1943, hafa á því ári
komið 6080 gestir til heimilis-
ins, en starfstimi þess er frá 11.
júlí til 30. sept. Var heimilið
opið daglega þennan tíma fyrir-
sjómenn og annað aðkomufólk
á Siglufirði. Eins og undanfar-
ið amiaðist Stúkan Framsókn.
nr. 187 rekstur heimilisins.
BEZT AÐ AUGLYSA I VISI
K»QOQ(Xm»0«9QQDOWMÖoS: