Vísir - 29.11.1944, Qupperneq 1
Rltstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur.
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritst|6rar
Blaðamenn Simit
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 linur
Afgreiðsia
34. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 29. nóvember 1944.
242. tbl.
Byltingartiiraun í Belgíu
kæfð í fæðingunni.
Vopnað lið var stöðvað á leið til Briissel.
Belgiska stjórnin telur sig
hafa kæft byltingartilraun í
fæðingunni í gærmorgun.
Skýrði Spaak ráðherra frá því
á þingfundi í gær, að þá um
morguninn hefði stjórninni bor-
izt njósn um að bílalest full
vopnaðra manna væri að fara
frá Mons til Briissel, og væri
ætlunin að stofna til uppreistar
gegn stjórninni. Lögregla var
þegar send á helztu vegamót á
leiðinni og tókst henni þegar að
stöðva uppreistarseggina og af-
vopna þá.
Annars er opinberlega skýrt
frá því í Brussel, að um 27,000
menn hafi afhent vopn sín, en
um 22,000 eigi eftix^að gera það.
Er gert ráð fyriijvþví, að þau
verði seinheimt iijá sumum
þeirra.
Pierlot fær aukin völd.
Þingið í Brússel samþykkti
í gær að veita stjórninni mjög
aukin völd og er það raunveru-
lega traustsyfirlýsing. Var til-
lagan um aukin völd stjórnar-
innar samþykkt með 116 atkv.
gegn 12, en sex þingmenn sátu
hjá við atkvæðagreiðsluna.
Pierlot hefir farið mjög hörð-
um orðum um þá, sem fylla
flokk uppreistarsinna. Segir
hann, að þeir vilji ekki að þjóð-
in fái matvæli eða kol, eða njóti
aukins öryggis, heldur vilji þeir
borgarastyrjöld, til að geta
skarað eld að sinni köku.
IlÚKfcar ráðaNt á
Rumcna I blöd- .
UIIl MUIlllÞ
/
Rússar gera nú árásir á Rúm-
ena í blöðum sínum og bera
þeim margt misjafnt á brýn.
Blaðið „Stríðið og verkatýð-
urinn“ hefir birt langa grein um
það, sem blaðið kallar svik
Rúmena á loforðum þeim, sem
þeir gáfu í vopnahléssátfmál-
anum. Blaðið gegir, að þeir hafi
ekki skilað stríðsí'öngum, svik-
izt um að handtaka útlendinga,
sem fjandmenn geti talizt og
stjórnin hirði ekki um að halda
uppi aga og reglu i landinu.
Umferðarhömlur
í Bergen.
Þjóðverjar hafa sett á um-
ferðarhömlur í Bergen að næt-
urlagi.
Stafar þetta af þvi, hversu
mikil og náargvísleg skemmdar-
verk norskir frelsisvinir hafa
unnið upp á síðkastið.
1 Akers-skipasmíðastöðinni
hefir mikið tjón verið unnið á
fimm skipum, sem voru þar til
viðgerðar. Eitt þessara skipa
var þýzka skipið Schleswig,
sem er 16,000 smálestir að
stærð, en hin voru öll meira en
5000 smál. að stærð. ,
1 gær var nýju 27,000 smá-
lesta flugstöðvarskipi hleypt af
stokkunum í Bandaríkjunum.
Bretar hafa farið yfir Chind-
win-ána í Burma á nýjum stað
og sótt fram nærri 20 lun.
Bandaríkfa*
meon skjöta
á Orniok.
Herskip bandamanna hafa
siglt upp í landsteina hjá Or-
mok og skotið á höfnina.
Unnið var mikið tjón á hafn-
armannvirkjum og vöruskemm-
um, en svarskothrið Japana var
ónákvæm og lítil, svo að her-
skipin komust öll ósködduð á
brott. Gerðist þetta í fyrrakveld
og stóð skothríðin í 90 mínútur.
Morgunin eftir, þegar herskipin
höfðu lokið starfi sínu, voru
sprengjuvélar sendar í árás á
Ormok,. og varð einnig tjón af
heimsókn þeirra.
Á landi hafa Bandarikjamenn
unnið á á böltkum Leyte-ár-
innar.
Mótþrói í sex her-
búðum í Kanada.
Ólga, sem nálgast uppreist,
er nú í sex herbúðum víðsveg-
ar um Kanada.
.Ástandið er verst í lierbúð-
um einum í Britisli Columhia,
vestur við Kyrrahaf, þar sem
franskir hermenn liafa verið i
uppreist í fjóra daga. Verður
dregið af þeim kaup og birgða-
flutningum til herhúða þeirra
hætt, en ekki gert meira að svo
stöddu. Eru hermennirnir var-
aðir við að gera almennum
borgurum mein eða vinna spjöll
á mannvirkjum.
Mennirnir í herbúðum þess-
um hafa sent Mackenzie King
forsætisráðherra bænarskjal og
heðið um að verða sendir heim
til Austur-Kanada. Bera þeir
fram ýmiskonar umkvartanir,
sem bera allar að sama brunni,
að þeir vilja ekki láta senda
sig úr landi.
Japönsk sókn stöðvuð
/
Hersveitum Kínverja hefir
tekizt að stöðva sókn Japana
í Suður-Kína.
Það voru hersveitir, sem sóttu
suðaustur til Kanton frá Liu-
chow, sem þarna voru stöðv-
aðar, þegar þær áttu eftir um
55 km. leið til markanna milli
Kwangsi- og Kwantung-fylkj-
anna. Síðan voru Japanir
neyddir til að hörfa litið eitt
undan.
/
Rússar nálgast
Duklaskarð.
Rússar hafa haldið áfram
/
sókn sinni í Ungverjalandi og
Slóvakíu.
Þeir hafa tekið borg, sem er
aðeins um 15 km. frá Dukla-
skarðinu yfir Karpatafjöllin.
Allmiklu suðvestar hafa þeir
farið vestur Tisza-fljót á nýj-
um stað og nálgast þar járn-
braut, sem liggur norður til
Tékkóslóvakiu.
Eisenhower og: Hontg:omery
» mfkilvægri ráð§tefnn.
Rektor og nokkrum
nemenduín Mennta-
skólans boðið ti!
Akureyrar.
Menntaskólinn á Akureyri
hefir boðið rektor Menntaskól-
ans í Reykjavík, ásamt nokkr-
um nemendum, heim, til að
kynnast skólalífinu nyrðra. !
Hyggst rektor að fara norð-
ur ásamt nokkurum nemendum
svo framarlega sem samgöngur s
leyfa, og dvelja nokkra daga
nyrðra.
Er hér um eftirtektarvert ný-
mæli að ræða og ættu fleiri i
skólar að fara að dæmi Mennta- j
skólans á Akureyri og bjóða til
sín nemendum og kennurum úr 1
hliðstæðum skólum. Hljóta bæði
nemendur og kennarar að geta
lært ýmislegt, bæði að því er
snertir starfsháttu við kennslu,
félagslíf nemenda o. s. frv.
Domar fyrir innbrot
og þjéfnaði.
1 gær var kveðinn upp dóm-
ur í máli tveggja manna, sem á
síðastliðnu sumri höfðu framið
mörg innbrot', alls 10—15.
Innbrot þessi voru framin
hjá Kron, Mjólkursamsölunni,
Andrési Andréssyni klæðskera
og fleirum. Reyndust innhrots-
þjófarnir vera Albert Sigurðs-
son og Magnús örnólfur Sig-
urðsson. Var hvor þeirra dæmd-
ur í 12 mánaða fangelsi og
sviftir kosningarétti og kjör- !
gengi. Auk þess var þeim gert
að greiða slcaðabætur svo þús-
undum króna skipti.
1 morgun var kveðinn upp
dómur yfir tveim mönnum, sem
stolið liöfðu ýmsum hlutum úr
bíl. Var livor þeirra dæmdur í
30 daga fangelsi skilorðsbund-
ið, ennfremur sviftir kosninga-
rétti og kjörgengi.
Fyrir nokkru var ejnnig mað-
ur nokkur dæmdur í þriggja
mánaða fangselsi fyrir stuld á
timbri. Var hann sömuleiðis
sviptur kosningarétti og kjör-
gengi. Maður þessi hafði áður
hlotið dóm fyrir ávinningsbrot.
Ársskýrsla
Sambands íslenzkrai-afveitna hef-
ir borizt blaðinu nýlega. Er ritinu
skipt í tvo kafla, og fjallar hinn
fyrri um félagsmál, fyrsta aðalfund
félagsins o. fl. Hinn kaflinn er
ýmsar skýrslur og önnur mál er
fjalla um rafmagri. — Er ritið
mjög fróðlegt, og vandað að öllum
frágangi.
sýnir franska gamanleikinn
„H A N N"
í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
2 í dag.
Venjulegt leikhúsverð.
Bandamenn
komnir að
Roeránni.
Þjóðverjar halda
áfram árásum í
átt til Saarebourg
Þessi mynd sýnir hvernig byggingar hins heimsfræga fullvallar viS Paris
voru útleiknar eftir loftárásir bandamanna, er þeir komu til Parisar.
Verðlaunasamkeppni um íbúðaihús
í sveit.
1. veiðlaun hlaut Agúst Stemgiímssðn
byggingaiiæðingur.
Þann 30. sept. s.l. var út~
runninn frestur til að skila
teikningum í verðlaunasam-
keppni um íbúðarhús í sveit,
sem teiknistofa landbúnaSar-
ins efndi til á síSasta vori.
Alls bárust 18 tillögur og
fengu 3 af þeim verðlaun, 1.,
2. og 3. verðlaun. Fyrstu verð-
laun (kr. 3000.00) hlaut upp-
dráttur, sem merktur var
„Hraun“, og reyndist hann vera
eign Ágústar Steingrímssonar,
hyggingafræðings, í Hafnar-
firði. 2. verðlaun hlaut upp-
dráttur Ingva Gestssonar, liúsa-
smiðs, Flatey á Breiðafirði og
3. verðlaun hlaut uppdráttur
Ágústar Pálssonar, húsameist-
ara, Reykjavík.
Lýsing með uppdrættinum,
sem hlaut 1. verðlaun, er á
þessa leið:
Hús samkvæmt uppdrætti
merktur „Hraun“ hugsast byggt
úr steinsteypu, hvítmálað með
rauðu þaki, en brúnmáluðu tré-
verki utanhúss. Séð hefir verið
fyrir hjörtum gangi, sömuleiðis
hefir verið lögð áherzla á þægi-
legt samband milli geymslu í
kjallara, bakdyra og eldhúss.
í votviðrpm er ætlast til að fólk
noti einvörðungu bakdyrnar,
og í því skyni er borðstofa, vos-
klæðaherbergi með handlaug
og aðgangi að vatnssalerni,,
komið fyrir i sambandi við
hakdyr. Ætlast er til, að loftið
sé notað til geymslu á hlutum,
sem ekki eru daglega í notkun
og hefir því verið komið fyrir
þægilegum stiga á loftið. Svöl-
um til viðrunar o. fl. mætti
sleppa, ef þurfa þætti, án þess
að útlit hússins’ versnaði við
það. Upphitun verður frá elda-
vél eða katli j kjallara.
Fundur Norömanna-
félagsins.
Síðastliðinn föstudag hélt
Norðmannafélagið skemmti-
fund að Hótel Borg. Komu þar
saman um 300 manns: Norð-
menn, Danir, Islendingar og
Svíar. Hófst skemmtunin með
því að formaður íelagsins, To-
mas Haarde, bauð gesti og fé-
lagsmenn velkomna, og minnt-
ist á hina svívirðilegu fram- i
komu Þjóðverja í Norður-
Noregi.
Lárus Pálsson leikari las upp 1
tvö kvæði eftir Tómas Guð-
mundsson. Annað var innileg
kveðja til Noregs. Var háðum
kvæðunum tekið með áköfu
lófataki. Að lokum flutti S. A.
Friid blaðafulltrúi merkilegt
erindi frá Noregi, bæði um bar-
áttu Norðmanna og svo um
Þjóðverja og hina dýrslegu
framkomu þeirra, sérstaklega á
undanhaldinu frá Norður-Nor-
egi.
Bátur strandar.
Mannbjörg varö.
Þann 27. þ. m. strandaði vél-
báturinn „Hafaldan“, RE 71,
við Skarðsvík á Snæfellsnesi.
Mannhjörg hafði orðið, en að
öðru leyti hafa Vísi ekki borizt
greinilegar fregnir af þessu
slysi.
Hafaldan var aðeins 9 tonn
að stærð og byggð 1912. Eig-
andi bátsins er Sigurður Pét-
ursson.
/
Fjalakötturinn
sýnir revýuna
„Allt í lagi, lagsi“
á morgun (fimmtudag) kl. 8.
AðgöngumiSar seldir frá kl. 4—7 í dag í ISnó og eftir kl. 2
á morgun.
|?isenhower og Montgomery
sitja nú á ráðstefnu í höf-
uðstöðvum * þess síÖarnefnda
einhvers staðar í Belgíu.
Fór Eisenhower í gær flug-
leiðis frá aðalstöðvum sínum,
en blaðamenn símuðu frá aðal-
stöðvum Montgomerys, eftir að
þeir hershöfðingjarnir höfðu
hitzt, að þeir mundu taka á-
kvarðanir, sem mnndu hafa
mikil áhrif á gang liernaðar-
aðgerða næstu vikurnar. Að svo
stöddu verður ekki sagt meira
frá þessari ráðstefnu.
Við Roer-ána.
Níundi herinn ameríski sótti
i gær niður eftir dal þverár
einnar, sem rennur í Roer (frb.
rör) og tólcst undir kvöld að
komast að ánni skammt suður
af Júlich. Þeir hafa þai’na tek-
ið þorp, sem heitir Bannen.
Fyi’sti ameríski herinn liefir
einnig nálgazt Roer, en eru ekki
komnir að ánni.
Gei’a má ráð fyi'ir miklum
bardögum, áður en bandamenn
komast austur fyrir Roer, því
að áin er mesta vatnsfall áður
en komið er austur að Rín.
5 km. frá Saarlautern.
Her Pattons, 3. herinn, sótti
enn á í gær suðaustur af Lux-
emburg, og var urn kvöldið í
5 km. fjarlægð frá Saarlautern.
Þjóðverjar 'gera tið og áköf
áhlaup í áttina til Saarebourg,
þar sem 3. og 7. herinn koma
saman, en þessum áhlaupum
hefir jafnóðum verið hrundið.
Orustunni um Alsace
senn lokið.
Enskur blaðamaður símaði i
gær, að líklega yrði orustunni
um Alsace senn lokið. Gera
mætti ráð fyrir því, að enn yrði
harizt aí' kappi í nokkra daga,
en úrslitin rnætti sjá fyrir, og
mundu Þjóðverjar ekld geta
rétt hlut sinn þarna úr þessu.
Næturakstur
annast AÖalstöÖin, sími 1383.
Næturvörður
er í Ingólfs Apóteki.
Næturlæknir
er i Læknavarðstofunni, sími
S030.
Fjalakötturinn
sýnir annað kvöld kl. 8 revýuna
„Allt í lagi lagsi“,
1
Útvarpið í kvöld.
I Kl. 18.30 Islenzkukensla, 2. fl.
1 19.00 Þýzkukennsla, 1 fl. 19.25
Þingfréttir. 20.30 Kvöldvaka: a)
GuÖmundur Gíslason IJagalín rit-
höf.: Upplestur. b) 21.00 Einsöng-
ur (frú Rósa Önundardóttir frá
Raufarhöín). c) 21.15 Matthias
Helgason bóndi, Kaldrananesi: Sel-
veiði i Þorkelsskerjum, frásögu-
þáttur (H. Hjörvar flytur). d)
21.35 Kvæði kvöldvökunnar. e)
21.40 Lúðrasveitin „Svanur“ leikur
(Karl O. Runólfsson stjórnar).
I
i